Landið

Eksemplar

Landið - 05.05.1916, Side 2

Landið - 05.05.1916, Side 2
68 L ANDIÐ ingarnir, ísafold, Morgunblaðið og Vísir, hefði tök á því, að skýra nógu villandi frá innihaldi og til- drögum málanna, þegar skjölin kæmi fyrir almenningssjónir. Þeim væri treystandi til þess að gera svart að hvítu og hvítt að svörtu, eins og venja þeirra hefur verið, þegar um hneykslismál ráðherra er að ræða. fxðing stjórnarinnar. Þingræða eftir Bjarna Jóneson frá Vogi. (Nú er svo komið, að aldrei hefur loddaraskapur stjórnarflokks- ins farið framar, að ósvífni og blekkingum. Þeir, sem sviku þjóð- ina bregða nú öðrum ura heitrof — einmitt þeim mönnum, er standa vildu við stefnu sína og meiri hluta þjóðarinnar. Og þeir. sem hnupluðu flokksnafninu, reyna að snúa málinu við og gera svart að hvítu. Þykir oss því vel til fallið að prenta hér ræðu Bjarna Jóns- sonar frá Vogi, er hann hélt á eldhúsdaginn, á síðasta þingi. Vlk- ur hann þar að fæðingu núverandi stjórnar og flettir ofan af loddara- skapnum og svikunum. Hér kemur ræðan á eftir:) Það verður vafalaust margs að minnast hér í dag, þar sem hús- móðirin, sem er deildin hérna, þarf að finna að við ekki færri en þrjár ágætis eldabuskur, sem hún hefur haft í þjónustu sinni síðan síðast. líg skal ekki taka mér það vanda- sama verk fyrir hendur að tala um alt, sem þessum stjórnum hefur á orðið. Það sem ég ætla einkum að líta á, er fæðing hinnar yngstu starfskonunnar. Ég ætla ekkert að tala um, hvernig hún hefur eldað, heldur um hvernig hún fæddist, því að það er svo með stjórnir öðruvísi en öil önnur dýr veraldar- innar, að þær eru sjálfráðar hvernig þær fæðast, og bera þá vitanlega ábyrgð á því, að það verði eigi með ósæmilegum hætti. Hinn 20. október 1913 þröngv- uðu ráðherraf annars ríkis konungi íslands tll þess, að setja skilyrði fyrir staðfesting stjórnarskrárinnar. Mcr dettur ekki í hug að trúa því, að konungur hafi sett slíkt skilyrði af sjálfsdáðum. Ráðherra íslands, sem þá var, brást þá alþingi, er hann lét eigi þá þegar hart mæta hörðu og sagði af sér. En kjós- endur réttu þó hlut vorn í kosn- ingunum 1914, og næsta þing fór svo með málin að öllu var borgið. Sá ráðherra, sem næstur fór með málið, gerði vilja þingsins, og kom djarfmannlega og þó stillilega fram við konungsvaldið, og sagði af sér, þegar konungsvaldið vildi eigi gera vilja þingsins. Þá var þessu máli svo komið, að annarhvor aðilinn varð að láta undan, konungurinn eða þingið. Nú veit ég eigi, hvort íslenskir þingmenn telja konungsvaldinu heimilt að ganga á móti þingviljan- um, en ég tel það gersamlega ó heimilt. Því er raunar svo háttað eftir bókstaf laganna, að konungur hefur neitunarvald; en sú er reynsla allra þjóða, að slíkt getur leitt til hinna mestu vandræða. Því er það nú orðið að óskrifuðum Iögum meðal þjóðanna, að konungsvaldið láti undan þingum, og það má telja óviturlegt, ef nokkurt þing lætur undan og heykist á réttu máli. Það, sem liggur til grundvallar fyrir þingbundinni stjórn, er kjós- andavaldið, en þingmenn eru um- boðsmenn kjósandanna og bera á- byrgð fyrir þeim, en konungurinn er ábyrgðarlaus og í rauninni ekki annað en nokkurs konar þýðingar- laust skjaldarmerki. Hér er nú ekki einungis um það að ræða að láta undan konungs- valdinu, því að konungurinn hafði ekki reynt að ganga á rétt okkar, heldur er málið þannið vaxið, að það eru yfirráðakröfur annars ríkis, sem verða þess valdandi, að kon- ungur fór eigi að vilja þingsins. En kröfur vor íslendinga rýrðu að engu vald konungsins sjálfs yfir ís- landi. Það var því öllu sjálfsagðara að láta ekki undan, þegar málið var þannig vaxið, því að alt und- anhald gat orðið til þess, -að litið yrði á rétt vorn öðrum augum framvegis en hingað til. Þingið lét sér eigi heldur koma til hugar að beygja sig, og það beygði sig ekki fyrir konungi sínum heldur valdhöf- um annars ríkis. Og kröfur þessa ríkis voru ekki á neinum öðrum rökum bygðar en að rétti okkar hafði verið haldið með röngu í 100 ár. Nú stóð svo, þegar Sigurður Eggerz fór frá, að allar leiðir voru öpnar. Auðvitað var sjálfsagt að fara beinustu leiðina. En beinasta leiðin var, að bíða fram til þings, því að það var auðsætt hverjum meðalhygnum manni, að konungur mundi gera vilja þingsins, heldur en að fella stjórnarskrána og eiga það á hættu, að fá enga löglega stjórn. Konungur hefði aldrei gert þetta að kappsmáli, sízt nú á þess- um hættulegu tímum. Hann hefði sagt við hina dönsku ráðherra sína, að framvegis ætlaði hann að stjórna fslandi og Islenaingum með ís- landsráðherra einum, og án nokk- urrar íhlutunar danskra stjórnar- valda. Að ég hafi rétt fyrir mér í þessu, er auðsætt hverjum manni, þegar Iitið er á það, hverjir tímar nú eru. A þessum tímum hefði konungurinn ekki vogað sér að leggja út í deilur við íslendinga. Það er ekki langt síðan að að ein slík deila endaði með skilnaði. Og það hefði mátt búast 'við, að hér hefði farið eins, að sambandsslit hefði orðið milli ríkjanna, en undir því hefði konungur aldrei átt, og því hlaut hann að láta undan. Þegar nú hæstv. ráðherra tókst stjórnina á hendur og bauðst til að leiða málið til Iykta, með þeim hætti, sem danskir ráðherrar vildu, þá vann hann þjóð sinni óþarft verk, og það verk er þannig vaxið, að óvítt má það ekki vera. Þeir verða að vita það, sem fást við stjórnmál hér á landi eftirleiðis, að slíkt verk má ekki oftar vinna, þótt þetta þing sé, því miður, svo saman sett, að það viil ekki víta verkið á þinglegan hátt. Ég mun því nefna hér í nokkrum liðum á- stæður mínar til að telja það víta- vert. Þá skal ég fyrst geta þess, að með þessu verki er slegið úr hönd um oss það vopnið, sem var nægi- legt til þess, að vinna fullan sigur í þessu deilumáli okkar við Dani, og vopnið var það, að enginn meiri hluta maður tæki við stjórn, nema fram gengi þær kröfur, sem Sigurður Eggerz gerði fyrir hönd íslendinga, og ollu þvf, að hann lagði niður völdin. Hefði þetta verið gert, og eng- inn látið bilbug á sér finna, þá hlaut konungsvaldið að láta undan, eins og ég hef áður tekið fram, því að ekki dettur mér í hug, að nokkur maður úr minni hlutanum hér á þinginu hefði þorað að taka við völdunum. Þetta vopn, sem ég hef nefnt, ónýtti hæstv ráðherra, og því víti ég verk hans. Þá er annað, sem ég tel vítavert, og það er þetta: Þingið hafði sett ákveðið skilyrði fyrir staðfestingu stjórnarskrárinnar. Það er þvf bein óhlýðni við alþingi, að undirskrifa staðfestinguna, án þess að skilyrði þingsins væri öll tekin til greina, eða með .nokkrum öðrum skilyrð- um, hvort sem f þeim felst rétt- indamissir eða ekki; það kemur í þessu sambandi ekkert málinu við Eg er ekki málafiutningsmaður Dana, þó að mér væri brigslað um það um daginn, og því segi ég ekkert um það hversu mikil réttindi eru mist. En ég víti stjórn- ina fyrir að óhlýðnast þannig al þingi Islendinga. Það er þingið, sem á að ráða, en ekki ráðherrann, og þingið ætti að refsa fyrir ó- hlýðni við sig, og mundi gera það nú, ef það þekti sinn vitjunartíma. En þótt þingið í heild sinni vilji eigi víta þessa aðferð, þá vítí ég hana. Þessi óhlýðni við þingið verður enn berari, þegar þess er gætt, að stjórnin sýndi því eigi svo mikla virðingu að kalla það saman á aukafund, til þess að reyna, hvort það vildi ganga að þessum nýju skilmálum, og þó höfðu margir þingmenn gert það að kröfu sinni, að svo yrði gert. Það mátti eigi minna vera en spurt yrði að því, hvort íslendingar vildu láta undan í þessu höfuðmáli sínu, en svo mikið var ekki við haft. En þótt sumir þingmenn hafi nú gefið ró reiðinni og fyrirgefið stjórninni, þá víti ég þetta. Þá kem ég að 4. liðnum, sem stjórnin hefur gert vítavert í þessu máli. Skilyrðin fyrir staðfestingu stjórnarskrárinnar voru stefnumál, sem kosið var um. Meiri hluti kjósanda vildi engin loforð gefa Dönum í þessu máli, enga samn- inga við þá gera í þessu máli og engar skuldbindingar undir gangast. Það er því auðsætt, að þessari stefnu mátti eigi breyta, án þess að spyrja kjósendur, með því að efna til nýrra kosninga, þvf að hvar er tryggingin fyrir kjósendur ann- ars, að haldin sé við þá kosninga- loforð, ef einstakir þingmenn hafa leyfi til að breyta um stefnu milli kosninga. Tryggingin er ekki til, ef svo er, og þá er ekki til neins að trúa neinum manni fyrir að fara með mál sín, ef hann hefur leyfi til þess að snúast skyndilega í lið með andstæðingunum. En hverir eru það, sem eiga valdið? Það eru kjósendurnir í landinu. Meiri hluta stjórn er gagnslaus og ótæk, og í raun og veru engin meíri hluta stjórn, hafi hún ekki meiri hluta kjósanda að baki sér. En atferli eins og þetta, sem hér hefir verið haft í frammi, að nokkurir þingrnenn úr meiri hlutanum breyti um stefnu miili kosninga og gangi í lið með andstæðingum sínum í minni hlut- anum, er í eðli sínu stjórnarbylting, og er fátt eða ekkert vítaverðara, og því víti ég það. Það er auðvitað, að þingmenn eiga ekki að vera bundnir við að fylgja kjósendum sfnum, hvað sem líður sannfæring þeirra; en geti þeir ekki fylgt þeim lengur í ein hverju stefnumáli, þá er ekki til fyrir þá nema eitt ráð, og það er að segja af sér þingmensku. Geri þeir það ekki, þá eru kjósendur dregnir á tálar. Það hefur verið gert í þessu máli, og það víti ég. Það var svo langt frá því, að þing væri rofið, að alt var gert til þess, að láta kjósendur eigi vita um hvað fram fór. Þeim var mein- að að láta uppi álit sitt á þing- málafundum. Þetta má heita að nfðast á kjósendum. Og þótt aðrir láti sig þetta litlu skifta, þá leyfi ég mér að víta það. Þessi atriði, sem nú eru talin, eru öll því vítaverðari, sem afleið ingar þeirra eru skaðsamlegri en vanalegar smáyfirsjónir stjórna, Það er miklu vítaverðara, heldur en þó að stjórnin taki fé úr landssjóði, sem henni er ekki heimilað af þing- inu. Afleiðingin af óhlýðni við al- þingi er f fyrsta lagi sú, að öðrum er bent til kvæða að gera hið satna. Og hver verður afleiðingin af því, að alþingi lætur sér lynda, að ein stakir menn snúi vopnin úr hönd- um þess; hún verður sú, að virðing erlendra mótstöðumanna ókkar á þingi og þjóð er skert. Og þetta gerir öll vor mál erfiðari í framtíð- inni. Eða heldur nokkur, að Danir muni óttast mjög í næsta skifti, sem alþingi vill halda á rétti sfn- um? Nei, sannarlega ekki. Þeir senda bara heim til þess að vita, hvort ekki sé nokkrir menn í meiri hlutanum, sem vilji ganga í minni hlutann og mynda nýjan meiri hluta. Önnur afleiðingin verður sú, að virðing Iandsmanna á þinginu eyð- ist, og uggur hlýtur að vakna hjá alþýðu um það, að landsvelferð geti orðið létt á metunuin oft og einatt. Þriðja afleiðingin er sú, að menn venjast á að hlaupa f brott frá stefnu og skifta um meiri hluta á þinginu, án leyfis kjósanda. Ef þessu heldur áfram, verður mönn- um ekki meira um að skifta um stefnu, án leyfis kjósanda, en þyrst- um manni að renna niður mjólkur- sopa. Og ég vil spyrja; Hver verður þá virðing kjósanda fyrir þinginu, þegar farið verður að telja það sómasamlegt, að dylja kjósendur þess, sem verið er að gera í þeirra nafni? Þá verður þess ekki langt að bíða, að ráðherrann okkar verði talinn af kjósendum að vera rang- látur ráðsmaður. Þess er fyrst að krefjast, að ekki sé viðhöfð nein launung í opinber- um málum. Kjósendur eiga heimt- ing á að fá að vita, hvað gerist, því að þeir eiga fyrir því að verða, ef eitthvað ber út af. Ég skal svo ekki lengja. umræð- urnar mikið hér eftir. Iig hefi gert mér það að skyldu, að vera stutt- orður og setja orð mín skýrt fram og skilmerkilega. Þótt ég þykist sjá inn í sálir margra manna hér, að þeir telji mig ekki fara rétt með, þá kemur sá dagur, að þeim verður kent það með harðri hendi, að svo er. íslenzkir kjósendur eru ekki svo skyni skroppnir, að þeir láti lengi bjóða sér annað eins og þeim hefur nú verið boðið. Ég skal engu spá utn það, að það verði við næstu kosningar, því að nú hefur þessi stefnuleysisstefna náð miklu tangarhaldi á hugum manna. En því vil ég spá, að sá tími kemur, að ný bára rís, sem skolar henni burt og öllu, sem henni fylgir. Þótt ég hafi talið nokkur atriði, sem við koma fæðingu stjórnarinn- ar, þá er mér ekki skylt að rekja feril hennar sfðan, enda er hann stuttur. Aðeins vil ég minnast á eitt atriði út af skírnarræðu þeirri, sem haldin var yfir henni hér á dögunum. Á ég þar við öryggis- tillögu þá, sem borin var upp hér í deildinni, og þar sem látið var í Ijós, að vilji þingsins væri óbreytt- ur frá í fyrra, þótt öðruvísi hafi farið í ríkisráði Dana, en það hafði ætlazt til. Þetta var nóg til þess að slá varnaglann, því að engin viðurkenning var fengin fyrir því, sem gerðist f ríkisráðinu, af íslend- inga hálfu. Allir vita, að ráðherr- ann einn hafði ekki vald til að gefa þá viðurkenningu, sérstaklega þar sem hann var ekki skipaður í umboði þingsins. Það, sem hann gerði, var því ekki bindandi fyrir landið. Tillagan var nægileg til að vernda allan vorn rétt, snúa sigur- inn úr hendi Dana og koma fram þeirri upphaflegu tilætlun, að ís- lendingar fengi því framgengt, að uppburður sérmálanna fyrir kon- ungi yrði viðurkent fslenzkt sérmál, sem ekki kæmi öðrum við, en þeim og konunginum. Undirtektirnar undir tillöguna urðu eins og allir vita. Að réttu lagi hefði stjórnin átt að segja: „Þessa tillögu mun ég samþykkja og bið alla mína fylgismenn að gera hið sama. Ég er ekki „infallibilis"1). Þótt ég sé sannfærð um, að fyrirvaranum hafi verið fullnægt, má vera að mér skjátlist það. Þess vegna er allur varinn beztur, að samþykkja tiliöguna, því að það getur aldrei sakað“. — Ég tel illa farið, að stjórnin skyldi ekki gera þetta. Henni gat ekki orðjð það til neins meins, þar sem allir þeir, er að til- lögunni stóðu, báru það fram, að í henni ætti ekki að felast neitt van- traust. Það var létt fyrir stjórnina að gera þetta, og mér sárnaði, að hún skyldi ekki gera það. Þótt svo kunni að vera, að ein- hverjar varnir finnist í þessu máli, þá er það ekki að þakka meiri hlutanum hér að neinu leyti, því að bæði stjórnin og meiri hluti þings hafa gert sitt til að Ieiða málstað vorn í vafa, í staðinn fyrir að leiða hann til ljóss og sigurs. Ég er ekki að segja, að við séum varnar- lausir gagnvart Dönum, þótt tillag- an væri feld, einkum þar sem ég fékk alla flokka til að lýsa því yfir, að vilji þeirra væri óbreyttur í þessu efni frá því í fyrra, og þar sem al- þjóðaréttur gerir ekki kröfu til, að þingvilji komi fram í sérstöku formi. Þar við bætist, að Danir vissu, að hverju ráðherrann mátti ganga og að hverju ekki. Þeir hafa því ekki verið bona fide2), heldur mala fidel) í þessu máli. Én hvað sem því líður, þá er það vítavert af stjórninni, þar sem allir voru í rauninni sammála um kjarna máls- ins, að hún vildi ekki styðja að því, að yfirlýsingin væri gefin í sterkara formi. Þá hefði engum dottið í hug, að véfengja rétt landsins. Gjalðkeramálið. Hvarvetna berst að megn óá- nægja með úrslit gjaldkeramálsins og árásir ráðherra á Landsbk. f ísafold. Skrifað er, að eigi sé til 1) = óskeikul. 2) = hrekklausir, 2) = undirförlir.

x

Landið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landið
https://timarit.is/publication/194

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.