Landið - 05.05.1916, Síða 2
68
L ANDIÐ
ingarnir, ísafold, Morgunblaðið og
Vísir, hefði tök á því, að skýra
nógu villandi frá innihaldi og til-
drögum málanna, þegar skjölin
kæmi fyrir almenningssjónir. Þeim
væri treystandi til þess að gera
svart að hvítu og hvítt að svörtu,
eins og venja þeirra hefur verið,
þegar um hneykslismál ráðherra
er að ræða.
fxðing stjórnarinnar.
Þingræða eftir Bjarna Jóneson frá Vogi.
(Nú er svo komið, að aldrei
hefur loddaraskapur stjórnarflokks-
ins farið framar, að ósvífni og
blekkingum. Þeir, sem sviku þjóð-
ina bregða nú öðrum ura heitrof
— einmitt þeim mönnum, er
standa vildu við stefnu sína og
meiri hluta þjóðarinnar. Og þeir.
sem hnupluðu flokksnafninu, reyna
að snúa málinu við og gera svart
að hvítu. Þykir oss því vel til fallið
að prenta hér ræðu Bjarna Jóns-
sonar frá Vogi, er hann hélt á
eldhúsdaginn, á síðasta þingi. Vlk-
ur hann þar að fæðingu núverandi
stjórnar og flettir ofan af loddara-
skapnum og svikunum. Hér kemur
ræðan á eftir:)
Það verður vafalaust margs að
minnast hér í dag, þar sem hús-
móðirin, sem er deildin hérna, þarf
að finna að við ekki færri en þrjár
ágætis eldabuskur, sem hún hefur
haft í þjónustu sinni síðan síðast.
líg skal ekki taka mér það vanda-
sama verk fyrir hendur að tala um
alt, sem þessum stjórnum hefur á
orðið. Það sem ég ætla einkum að
líta á, er fæðing hinnar yngstu
starfskonunnar. Ég ætla ekkert að
tala um, hvernig hún hefur eldað,
heldur um hvernig hún fæddist,
því að það er svo með stjórnir
öðruvísi en öil önnur dýr veraldar-
innar, að þær eru sjálfráðar hvernig
þær fæðast, og bera þá vitanlega
ábyrgð á því, að það verði eigi
með ósæmilegum hætti.
Hinn 20. október 1913 þröngv-
uðu ráðherraf annars ríkis konungi
íslands tll þess, að setja skilyrði
fyrir staðfesting stjórnarskrárinnar.
Mcr dettur ekki í hug að trúa því,
að konungur hafi sett slíkt skilyrði
af sjálfsdáðum. Ráðherra íslands,
sem þá var, brást þá alþingi, er
hann lét eigi þá þegar hart mæta
hörðu og sagði af sér. En kjós-
endur réttu þó hlut vorn í kosn-
ingunum 1914, og næsta þing fór
svo með málin að öllu var borgið.
Sá ráðherra, sem næstur fór með
málið, gerði vilja þingsins, og kom
djarfmannlega og þó stillilega fram
við konungsvaldið, og sagði af sér,
þegar konungsvaldið vildi eigi gera
vilja þingsins.
Þá var þessu máli svo komið,
að annarhvor aðilinn varð að láta
undan, konungurinn eða þingið.
Nú veit ég eigi, hvort íslenskir
þingmenn telja konungsvaldinu
heimilt að ganga á móti þingviljan-
um, en ég tel það gersamlega ó
heimilt. Því er raunar svo háttað
eftir bókstaf laganna, að konungur
hefur neitunarvald; en sú er reynsla
allra þjóða, að slíkt getur leitt til
hinna mestu vandræða. Því er það
nú orðið að óskrifuðum Iögum
meðal þjóðanna, að konungsvaldið
láti undan þingum, og það má
telja óviturlegt, ef nokkurt þing
lætur undan og heykist á réttu máli.
Það, sem liggur til grundvallar
fyrir þingbundinni stjórn, er kjós-
andavaldið, en þingmenn eru um-
boðsmenn kjósandanna og bera á-
byrgð fyrir þeim, en konungurinn
er ábyrgðarlaus og í rauninni ekki
annað en nokkurs konar þýðingar-
laust skjaldarmerki.
Hér er nú ekki einungis um það
að ræða að láta undan konungs-
valdinu, því að konungurinn hafði
ekki reynt að ganga á rétt okkar,
heldur er málið þannið vaxið, að
það eru yfirráðakröfur annars ríkis,
sem verða þess valdandi, að kon-
ungur fór eigi að vilja þingsins.
En kröfur vor íslendinga rýrðu að
engu vald konungsins sjálfs yfir ís-
landi. Það var því öllu sjálfsagðara
að láta ekki undan, þegar málið
var þannig vaxið, því að alt und-
anhald gat orðið til þess, -að litið
yrði á rétt vorn öðrum augum
framvegis en hingað til. Þingið lét
sér eigi heldur koma til hugar að
beygja sig, og það beygði sig ekki
fyrir konungi sínum heldur valdhöf-
um annars ríkis. Og kröfur þessa
ríkis voru ekki á neinum öðrum
rökum bygðar en að rétti okkar
hafði verið haldið með röngu í
100 ár.
Nú stóð svo, þegar Sigurður
Eggerz fór frá, að allar leiðir voru
öpnar. Auðvitað var sjálfsagt að
fara beinustu leiðina. En beinasta
leiðin var, að bíða fram til þings,
því að það var auðsætt hverjum
meðalhygnum manni, að konungur
mundi gera vilja þingsins, heldur
en að fella stjórnarskrána og eiga
það á hættu, að fá enga löglega
stjórn. Konungur hefði aldrei gert
þetta að kappsmáli, sízt nú á þess-
um hættulegu tímum. Hann hefði
sagt við hina dönsku ráðherra sína,
að framvegis ætlaði hann að stjórna
fslandi og Islenaingum með ís-
landsráðherra einum, og án nokk-
urrar íhlutunar danskra stjórnar-
valda.
Að ég hafi rétt fyrir mér í
þessu, er auðsætt hverjum manni,
þegar Iitið er á það, hverjir tímar
nú eru. A þessum tímum hefði
konungurinn ekki vogað sér að
leggja út í deilur við íslendinga.
Það er ekki langt síðan að að ein
slík deila endaði með skilnaði. Og
það hefði mátt búast 'við, að hér
hefði farið eins, að sambandsslit
hefði orðið milli ríkjanna, en undir
því hefði konungur aldrei átt, og
því hlaut hann að láta undan.
Þegar nú hæstv. ráðherra tókst
stjórnina á hendur og bauðst til
að leiða málið til Iykta, með þeim
hætti, sem danskir ráðherrar vildu,
þá vann hann þjóð sinni óþarft
verk, og það verk er þannig vaxið,
að óvítt má það ekki vera. Þeir
verða að vita það, sem fást við
stjórnmál hér á landi eftirleiðis, að
slíkt verk má ekki oftar vinna,
þótt þetta þing sé, því miður, svo
saman sett, að það viil ekki víta
verkið á þinglegan hátt. Ég mun
því nefna hér í nokkrum liðum á-
stæður mínar til að telja það víta-
vert.
Þá skal ég fyrst geta þess, að
með þessu verki er slegið úr hönd
um oss það vopnið, sem var nægi-
legt til þess, að vinna fullan sigur
í þessu deilumáli okkar við Dani,
og vopnið var það, að enginn
meiri hluta maður tæki við stjórn,
nema fram gengi þær kröfur, sem
Sigurður Eggerz gerði fyrir hönd
íslendinga, og ollu þvf, að hann
lagði niður völdin.
Hefði þetta verið gert, og eng-
inn látið bilbug á sér finna, þá
hlaut konungsvaldið að láta undan,
eins og ég hef áður tekið fram,
því að ekki dettur mér í hug, að
nokkur maður úr minni hlutanum
hér á þinginu hefði þorað að taka
við völdunum. Þetta vopn, sem ég
hef nefnt, ónýtti hæstv ráðherra,
og því víti ég verk hans.
Þá er annað, sem ég tel vítavert,
og það er þetta: Þingið hafði sett
ákveðið skilyrði fyrir staðfestingu
stjórnarskrárinnar. Það er þvf bein
óhlýðni við alþingi, að undirskrifa
staðfestinguna, án þess að skilyrði
þingsins væri öll tekin til greina,
eða með .nokkrum öðrum skilyrð-
um, hvort sem f þeim felst rétt-
indamissir eða ekki; það kemur í
þessu sambandi ekkert málinu við
Eg er ekki málafiutningsmaður
Dana, þó að mér væri brigslað
um það um daginn, og því segi
ég ekkert um það hversu mikil
réttindi eru mist. En ég víti stjórn-
ina fyrir að óhlýðnast þannig al
þingi Islendinga. Það er þingið,
sem á að ráða, en ekki ráðherrann,
og þingið ætti að refsa fyrir ó-
hlýðni við sig, og mundi gera það
nú, ef það þekti sinn vitjunartíma.
En þótt þingið í heild sinni vilji
eigi víta þessa aðferð, þá vítí ég
hana.
Þessi óhlýðni við þingið verður
enn berari, þegar þess er gætt, að
stjórnin sýndi því eigi svo mikla
virðingu að kalla það saman á
aukafund, til þess að reyna, hvort
það vildi ganga að þessum nýju
skilmálum, og þó höfðu margir
þingmenn gert það að kröfu sinni,
að svo yrði gert. Það mátti eigi
minna vera en spurt yrði að því,
hvort íslendingar vildu láta undan
í þessu höfuðmáli sínu, en svo
mikið var ekki við haft. En þótt
sumir þingmenn hafi nú gefið ró
reiðinni og fyrirgefið stjórninni, þá
víti ég þetta.
Þá kem ég að 4. liðnum, sem
stjórnin hefur gert vítavert í þessu
máli. Skilyrðin fyrir staðfestingu
stjórnarskrárinnar voru stefnumál,
sem kosið var um. Meiri hluti
kjósanda vildi engin loforð gefa
Dönum í þessu máli, enga samn-
inga við þá gera í þessu máli og
engar skuldbindingar undir gangast.
Það er því auðsætt, að þessari
stefnu mátti eigi breyta, án þess
að spyrja kjósendur, með því að
efna til nýrra kosninga, þvf að hvar
er tryggingin fyrir kjósendur ann-
ars, að haldin sé við þá kosninga-
loforð, ef einstakir þingmenn hafa
leyfi til að breyta um stefnu milli
kosninga. Tryggingin er ekki til,
ef svo er, og þá er ekki til neins
að trúa neinum manni fyrir að fara
með mál sín, ef hann hefur leyfi
til þess að snúast skyndilega í lið
með andstæðingunum. En hverir
eru það, sem eiga valdið? Það eru
kjósendurnir í landinu. Meiri hluta
stjórn er gagnslaus og ótæk, og í
raun og veru engin meíri hluta
stjórn, hafi hún ekki meiri hluta
kjósanda að baki sér. En atferli
eins og þetta, sem hér hefir verið
haft í frammi, að nokkurir þingrnenn
úr meiri hlutanum breyti um stefnu
miili kosninga og gangi í lið með
andstæðingum sínum í minni hlut-
anum, er í eðli sínu stjórnarbylting,
og er fátt eða ekkert vítaverðara,
og því víti ég það.
Það er auðvitað, að þingmenn
eiga ekki að vera bundnir við að
fylgja kjósendum sfnum, hvað sem
líður sannfæring þeirra; en geti
þeir ekki fylgt þeim lengur í ein
hverju stefnumáli, þá er ekki til
fyrir þá nema eitt ráð, og það er
að segja af sér þingmensku. Geri
þeir það ekki, þá eru kjósendur
dregnir á tálar. Það hefur verið
gert í þessu máli, og það víti ég.
Það var svo langt frá því, að
þing væri rofið, að alt var gert til
þess, að láta kjósendur eigi vita
um hvað fram fór. Þeim var mein-
að að láta uppi álit sitt á þing-
málafundum. Þetta má heita að
nfðast á kjósendum. Og þótt aðrir
láti sig þetta litlu skifta, þá leyfi
ég mér að víta það.
Þessi atriði, sem nú eru talin,
eru öll því vítaverðari, sem afleið
ingar þeirra eru skaðsamlegri en
vanalegar smáyfirsjónir stjórna, Það
er miklu vítaverðara, heldur en þó
að stjórnin taki fé úr landssjóði,
sem henni er ekki heimilað af þing-
inu. Afleiðingin af óhlýðni við al-
þingi er f fyrsta lagi sú, að öðrum
er bent til kvæða að gera hið satna.
Og hver verður afleiðingin af því,
að alþingi lætur sér lynda, að ein
stakir menn snúi vopnin úr hönd-
um þess; hún verður sú, að virðing
erlendra mótstöðumanna ókkar á
þingi og þjóð er skert. Og þetta
gerir öll vor mál erfiðari í framtíð-
inni. Eða heldur nokkur, að Danir
muni óttast mjög í næsta skifti,
sem alþingi vill halda á rétti sfn-
um? Nei, sannarlega ekki. Þeir
senda bara heim til þess að vita,
hvort ekki sé nokkrir menn í meiri
hlutanum, sem vilji ganga í minni
hlutann og mynda nýjan meiri hluta.
Önnur afleiðingin verður sú, að
virðing Iandsmanna á þinginu eyð-
ist, og uggur hlýtur að vakna hjá
alþýðu um það, að landsvelferð
geti orðið létt á metunuin oft og
einatt.
Þriðja afleiðingin er sú, að menn
venjast á að hlaupa f brott frá
stefnu og skifta um meiri hluta á
þinginu, án leyfis kjósanda. Ef
þessu heldur áfram, verður mönn-
um ekki meira um að skifta um
stefnu, án leyfis kjósanda, en þyrst-
um manni að renna niður mjólkur-
sopa. Og ég vil spyrja; Hver
verður þá virðing kjósanda fyrir
þinginu, þegar farið verður að telja
það sómasamlegt, að dylja kjósendur
þess, sem verið er að gera í þeirra
nafni? Þá verður þess ekki langt
að bíða, að ráðherrann okkar verði
talinn af kjósendum að vera rang-
látur ráðsmaður.
Þess er fyrst að krefjast, að ekki
sé viðhöfð nein launung í opinber-
um málum. Kjósendur eiga heimt-
ing á að fá að vita, hvað gerist,
því að þeir eiga fyrir því að verða,
ef eitthvað ber út af.
Ég skal svo ekki lengja. umræð-
urnar mikið hér eftir. Iig hefi gert
mér það að skyldu, að vera stutt-
orður og setja orð mín skýrt fram
og skilmerkilega. Þótt ég þykist
sjá inn í sálir margra manna hér,
að þeir telji mig ekki fara rétt
með, þá kemur sá dagur, að þeim
verður kent það með harðri hendi,
að svo er. íslenzkir kjósendur eru
ekki svo skyni skroppnir, að þeir
láti lengi bjóða sér annað eins og
þeim hefur nú verið boðið. Ég
skal engu spá utn það, að það
verði við næstu kosningar, því að
nú hefur þessi stefnuleysisstefna
náð miklu tangarhaldi á hugum
manna. En því vil ég spá, að sá
tími kemur, að ný bára rís, sem
skolar henni burt og öllu, sem
henni fylgir.
Þótt ég hafi talið nokkur atriði,
sem við koma fæðingu stjórnarinn-
ar, þá er mér ekki skylt að rekja
feril hennar sfðan, enda er hann
stuttur. Aðeins vil ég minnast á
eitt atriði út af skírnarræðu þeirri,
sem haldin var yfir henni hér á
dögunum. Á ég þar við öryggis-
tillögu þá, sem borin var upp hér
í deildinni, og þar sem látið var í
Ijós, að vilji þingsins væri óbreytt-
ur frá í fyrra, þótt öðruvísi hafi
farið í ríkisráði Dana, en það hafði
ætlazt til. Þetta var nóg til þess
að slá varnaglann, því að engin
viðurkenning var fengin fyrir því,
sem gerðist f ríkisráðinu, af íslend-
inga hálfu. Allir vita, að ráðherr-
ann einn hafði ekki vald til að
gefa þá viðurkenningu, sérstaklega
þar sem hann var ekki skipaður í
umboði þingsins. Það, sem hann
gerði, var því ekki bindandi fyrir
landið. Tillagan var nægileg til að
vernda allan vorn rétt, snúa sigur-
inn úr hendi Dana og koma fram
þeirri upphaflegu tilætlun, að ís-
lendingar fengi því framgengt, að
uppburður sérmálanna fyrir kon-
ungi yrði viðurkent fslenzkt sérmál,
sem ekki kæmi öðrum við, en þeim
og konunginum. Undirtektirnar
undir tillöguna urðu eins og allir
vita. Að réttu lagi hefði stjórnin
átt að segja: „Þessa tillögu mun
ég samþykkja og bið alla mína
fylgismenn að gera hið sama. Ég
er ekki „infallibilis"1). Þótt ég sé
sannfærð um, að fyrirvaranum
hafi verið fullnægt, má vera að
mér skjátlist það. Þess vegna er
allur varinn beztur, að samþykkja
tiliöguna, því að það getur aldrei
sakað“. — Ég tel illa farið, að
stjórnin skyldi ekki gera þetta.
Henni gat ekki orðjð það til neins
meins, þar sem allir þeir, er að til-
lögunni stóðu, báru það fram, að í
henni ætti ekki að felast neitt van-
traust. Það var létt fyrir stjórnina
að gera þetta, og mér sárnaði, að
hún skyldi ekki gera það.
Þótt svo kunni að vera, að ein-
hverjar varnir finnist í þessu máli,
þá er það ekki að þakka meiri
hlutanum hér að neinu leyti, því að
bæði stjórnin og meiri hluti þings
hafa gert sitt til að Ieiða málstað
vorn í vafa, í staðinn fyrir að leiða
hann til ljóss og sigurs. Ég er
ekki að segja, að við séum varnar-
lausir gagnvart Dönum, þótt tillag-
an væri feld, einkum þar sem ég
fékk alla flokka til að lýsa því yfir,
að vilji þeirra væri óbreyttur í þessu
efni frá því í fyrra, og þar sem al-
þjóðaréttur gerir ekki kröfu til, að
þingvilji komi fram í sérstöku formi.
Þar við bætist, að Danir vissu, að
hverju ráðherrann mátti ganga og
að hverju ekki. Þeir hafa því ekki
verið bona fide2), heldur mala
fidel) í þessu máli. Én hvað sem
því líður, þá er það vítavert af
stjórninni, þar sem allir voru í
rauninni sammála um kjarna máls-
ins, að hún vildi ekki styðja að
því, að yfirlýsingin væri gefin í
sterkara formi. Þá hefði engum
dottið í hug, að véfengja rétt
landsins.
Gjalðkeramálið.
Hvarvetna berst að megn óá-
nægja með úrslit gjaldkeramálsins
og árásir ráðherra á Landsbk. f
ísafold. Skrifað er, að eigi sé til
1) = óskeikul.
2) = hrekklausir,
2) = undirförlir.