Landið

Tölublað

Landið - 18.05.1916, Blaðsíða 2

Landið - 18.05.1916, Blaðsíða 2
76 LANDIÐ Orusta í loftiiiix. Það er barist á landi, á sjó og í lofti. Og að ýmsu leyti hefur stríðið nú verið óttalegra, en menn bjuggust við. En hrapallega hefur þeim skjátlast, sem töldu sennilegt, að stríðið yrði svo hræðilegt, að það myndi svo að segja ráða sjálfu sér bana. Loftflotarnir myndi geta jafnað Parfs, Berlín og Lundúnir við jörðu, en slík skelfing grípa þjóð- irnar, að stríðið hætti. En þó að þannig hafi ekki farið, þá er víst, að æ verða ófriðar- þjóðirnar leiknari í lofthernaði, og mikinn skaða hafa loftherferðir gert, þótt fjarri sé, að menn á jörðu niðri sé varnarlausir gegn slíkum árásum Á myndinni sést þýzk flugvél f bardaga við enska — ofar skýj- unum. Sú þýzka er svonefnd Fokker-vél (nefnd eftir þeim, er fann upp það lag, Hollendingnum Fokker). Þykir það lag betra, en „dúfu"-lagið, sem þeir notuðu í upphafi stríðsins. Einkum kváðu Fokker-vélarnar vera hentugar, ef snúa þarf við, eða breyta stefnu á stuttum tfma. landið vandræðum með drengilegri mótstöðu gegn hinni háskasamlegu tilraun hans að sameina jfi og nei. Rvík io. maí 1914. Bjarni Jónsson frá Vogi. Tvísapir loddaraflokksins. Á laugard. var flutti ísafold grein, er nefndist „Þversum-menskan", eftir einhvern »Einn af mörgumn. Mjög líkist grein þessi rithætti Einars ráðh. Arnórssonar, sem nú kvað vera nokkurskonar yfirritstjóri lodd- arablaðsins Öll er greinin full af rangfærslum, og væri hr. E. A. nær að reyna að samríma orð sín og gerðir. Orð sín, er hann í ísaf. 31. des. 1914 segir um uppburðinn í ríkisráði: »Pað, sem vér vildnm fá skýrt tram, var það, hvort konungnr skoðaði raálið sérmál eða eigi. En þá yfirlýsingu höf- nin vér alls eigi fengiðw1) — og hinsvegar gerðir sínar, er hann sjálfur fær stjórnarskrána samþykta með dönsku skilmálunum (eins og ísaf. sagði í fyrra), skilmálum þeim, er H. H. gat fengið, en Sjálfstæðis- flokkurinn vildi ekki lfta við. En Einar forðast sem heitan eld- inn, að minnast á þessi orð sín — af skiljanlegum ástæðum. — Út yfir tekur ósvífni ísafoldar, er blaðið ber á Sig. Eggerz, að hann hafi ekki farið með stjórnarskrár- málið (og fyrirvarann) eins og meiri hluti alþingis 1914 ætlaðist til. Er ráðherra búinn að gleyma undir- skrift sinni undir traustsyfirlýsingu þá til Sig. Eggerz fyrir framkomu hans í ríkisráði, er birtist í tsafold 13. febr. 1915? Heldur hann ís- lenzka kjósendur svo gleymna og sinnulausa, að þeir sjái ekki mun- inn á afstöðu hans nú og þá? Til þess að varpa ljósi yfir árásir ísa- foldar nú á Sjálfstæðismenn (sem hún þó getur ekkert saknæmt til foráttu fundið), þá álítum vér rétt að birta hér yfirlýsingu þessa, úr ísaf. '3/2 1915. Hér fer húnáeftir: þingmeirihlntinn og' ríbisráðs- atbnrðirnir 30. nór. Y firlýsing. Við undirritaðir lýsum yfir því, að vér teljum, að framkoma ráðherra 1 ríkisráði 30. nóv. síðastliðinn hafi verið í fullu samræmi við þingviljann. Sér- staklega skal það tekið fram, að vér álítum fyrirhugaða auglýsing konungs til Dana ósamrýmanlega við fyrirvara alþingis. í janúarmánuði 1915. Bened. Sveinsson, Bjarni Jónsson f. V. þm. N.-Þing. þm. Dalamanna. Björn Kristjdnsson, Björn Þorláksson, 1. þm. Gbr.- og Kjs. 5. kgkj. Einar Arnórsson, Guðrn. Hannesson; 2. þm. Árnesinga. 1. þm. Húnvetn. Guöm. Eggerz, Hdkon Kristófersson, 2. þm. Sunnmýl. þm. Barðstr. Guðm. Oláfsson, Karl Einarsson, 2. þm. Húnv. þm. Vestm.eyinga. Jósef J. Björnsson, Magnús Pétursson, 2. þm. Skagf. þm. Strandara. Kristinn Daníelsson, Sig. Gunnarsson, 2. þm- Gbr.- og Kjs, þm. Snæfellinga. Ólafur Briem, Sktili Thoroddsen, 1. þm. Skagfirðinga. þm. N.-ísfirðinga. Sveinn Björnsson, Þorleifur Jónsson, i.þm. Reykvíkinga. þm. A.-Skaftf. Þá hafa 5 aðrir þingmenn, auk ráð- herra, lýst yfir hinu sama, ýmist á fundum, í bréfum eða blaðagreinum. Það eru þeir: Björn Hallsson, Hjörtur Snorrason, Jón á Hvanná, Karl Finn- bogason og Þórarinn Benediktsson. Karl Finnbogason hefur ritað hverja blaðagreinina á fætur annari, 1 sömu 1) Auðkent hér. átt og yfirlýsingin fer.' Þeir austan- þingmennirnir þrfr voru nýlega á sam- eiginlegum fundi á Eiðum, og var ísa- fold símað, að þeir hefðu lýst ein- dregnu samræmi sínu við frarakomu ráðherra, enda að lokum samþykt traustsyfirlýsing til hans á fundinum, sem þeir allir samþyktu. Loks hefur Hjörtur Snorrason bréflega þakkað ráðherra framkomu hans. Alls eru það þá 24 þingmenn, sem þegar hafa lýst yfir skilningi sínum á fyrirvaranum. Er yfirlýsing þeirra allra nákvæmlega i samræmi við það, sem haldið hefur verið fram hér í blaðinu. Verður nú fróðlegt að vita, hvort Heimastjórnar-rithöfundarnir ætla enn að halda áfram að berja hausnum við stein og vefengja það, að ráðherra hafi verið í samræmi við þingviljann! Þessi yfirlýsing allra þeirra þing- manna, er að fyrirvaranum stóðu — ætti og fullkomlega að nægja til þess, að taka af allan vafa hjá konungsvald- inu og Dönurri um afstöðu þingsins í þessu máli, svo að engar utanstefnur mun þurfa héðan til að fá það atriði útkljáð. Hvað þarf nú framar vitnanna við? Loddaraflokkurinn slær sjálfan sig svo greinilega á munninn, sem óskast getur. Hann stendur frammi fyrir þjóðinni f allri sinni nekt, af- hjúpaður svikablæjunni, og stoðar ekkert, þótt hann reyni að búa sér til nýja skýlu með því að þyrla upp skammaryki um þá menn, sem fast stóðu við vilja þingsins 1914. Stejnujestan. I 29. tbl. ísafoldar er blaðs Ein- ars Benediktssonar (Þjóðstefnunnar) getið með allramestu fyrirlitningu, og m. a. komint svo að orði: „E. B. skrifar hvert orð í blaðið. Er það sama staglið og áður, út i veður og vind"1). Ekki líður lengur en til 35. tbl., þá er E. B. orðinn fyrirmyndar- blaðamaður, svo að ísafold finst ástæða til, að taka upp blaðamensku- vitsmuni hans með feitu letri. Alveg er þetta sama tóbakið, sem með Sig. Eggerz. Hvað ætli líði nú margar vikur, þangað til ísafold minnist aftur á „staglið út í veður og vind“ eftir E. B. ? 1) Auðkent hér, Það er auðséð, að fingraför ráð- herra eru á blaðinu. — Röddin er auðþekt, „þótt hendurnar sé Esaús", eins og í ritningunni stendur. Útlönd. Orustur kváðu geisa nú bæði á austur- og vestur-vígstöðvunum, en ókunnugt um úrslit. Rússar sækja fram í Mesópota- míu, en fyrir vestan Trebizond hafa Tyrkir tekið sér ramgerðar varnar- stöðvar. Vitnavexth* miklir hafa verið í Noregi og Svíþjóð fyrir skömmu (nú um miðjan mánuðinn). Verk- smiðjur hafa sumsstaðar orðið að hætta vinnu og margra þuml. vatn kvað vera á götum í Stokkhólmi. Frumvarp um almenna herskyldu á írlandi hefur fallið í neðri mál- stofu Bretaþings. Danir hefja nú almenn samskot til ioftvarna. Þykir auðsjáanlega varlegast, að vera við öllu búnir. Er ÍsmíoM leigð? Menn hafa haft meira en lítið hugboð um það, síðan er ráðherra skiftin urðu, að ísafold væri seld á leigu og hefði verið það síðan. Um sama leyti er sagt, að efnaðir Heimastjórnarmenn hafi tekið að sér allmiklar ábyrgðir fyrir blaðið. En stjórn sú, $em nú situr að völd- um, er vitanlega aðeins hjáleiga frá Heimastjórnarmönnum. Nú þykjast menn ekki í vafa um það lengur, að þeir Ólafur og Sveinn, sem eru verkamenn í hjaleigunni, hafi leigt núverandi stjórn blaðið fyrir fult og alt. Þetta sést m. a. á því, að hvert hrakyrðið rekur nú annað um skip- un Björns bkstj. Kristjánssonar í bankastjórastöðuna. Segir t. d. í ísafold 13. þ. m., að B. Kr. hafi verið „dubbaður upp* í bankastjóra- stöðuna. Þessi orð benda á það, að hann hafi ekki hlotið stöðuna að verðleikum, heldur hafi Björn heit. Jónsson af samvizkuleysi valið óhæfan mann f stöðuna. Afsakanlegt ætti það að vera, þó að mönnum verði á að hugsa, að blaðið sé selt á leigu, er það flytur annað eins níð um föður þeirra Ólafs og Sveins, og þá sjálfa ura leið, því að vitanlega voru þeir harðánægðir með B. Kr. sem banka stjóra og þingmann alt fram að sfðustu ráðherraskiftum, enda var B. Kr. helzta pólitiska stoð Björns heit. Jónssonar. En nú á tímum kvað flest fást fyrir gjaldið. Skírnir. 2. hefti Skfrnis 1916 er komið út fyrir nokkru, og er það hið fróðlegasta að vanda. Fyrst skýrir próf. Björn M Ólsen frá því, að stjórn Bókmenta- félagsins hafi samþykt að halda aldarafmæli félagsins hátíðlegt þ. 15 ágúst næstkomandi. Ekki er fyrirkomulag hátfðahaldsins ákveðið ennþá, „en samþykt hefur stjómin •ið lata leggja krans á leiði aðal stofnenda félagsins, þeirra R. Kr Rasks og Áma Helgasonar á aldar- afmælinu, og er von um, að fé- Iagsmenn í Kaupmannahöfn gang- ist fyrir þessu af félagsins hálfu, að því er Rask snertir. Af því að minnisvarðinn á leiði Árna Helga- sonar í Garða kirkjugarði er farinn að bila, hefur stjórnin afráðið að Iáta gera við hann fyrir aldar- afmælið*. Minningarrit aldarafmælisins mun og verða gefið út á þessu ári, og vonast stjórnin til þess, að full- prentað verði 15. ág., svo að fram megi leggja á hátfðinni. — Þá er og kvæði eftir Einar Benediktsson: Útsær. Langt kvæði og mikið, nieð einkennilegum brag- arhætti, — lengri vísuorðum, en tíðkast f fslenzkum kveðskap, — en vel á hann við efnið. Fult er þar af stórfeldum líkingum og smellnum orðatiltækjum, sem vandi er þess höfundar. Hér er ein vísa til smekks: Því dagar sólina uppi um unaðarnætur. Þá eldist ei líf við blómsins né hjartans rætur. — Hafkyrðin mikla leggst yfir látur og hreiður, en lágeislinn vakir á þúsund sofandi augum. Á firðinum varpar öndinni einstöku reyður, og uppi við land kasta sporðar glampandi baugum. Báruraddir í vogavöggunum þegja. Ein vísa er aðeins hvísluð niðri í ósi. Tíminn er kyr. Hann stendur með logandi ljósi. og litast um eftir hverju, sem vill ekki deyja. Þá kemur æfisaga Þorleifs Guð■ mundssonar Repþs ettir Pal E. Óla son. Er hún fróðlega og vel rituð. Þorleifur hefur verið mesti merkis- maður, stórgáfaður f margar attir, en sérlega tungumálamaður. Þegnskylduvinna, erindi flutt f Stúdentaíclagi Reykjavíkur, 22. jan. f vetur, af Hermanni Jónassyni. Eru þar saman komin rök Her- manns fyrir nauðsyn þegnskyldunn- ar. Ætlar hann, að tekjur og gjöld landsins við hana muni að mestu fallast f faðma, er fram f sækir. Alt er erindið hið fróðlegasta, mál- ið lipurt og kjarngott og meðferðin ljós. Er það mesta nauðsyn fyrir alla kjósendur landsins að lesa það rækilega og með athygli. Þá er næstur alþýðufræðslufyrir- lestur eftir Bjarna Jónsson frá Vogi: nHvað verður um arjleifð íslend- inga" ? A hann þar við bókmenta- arfinn forna, og segir margt snjallt orðið og satt. Það veitir heldur ekki af þvf, að minna landslýð á fornbókmentir vorar og hvetja hann til þess að færa sér þær í nyt, því að lestur þeirra er áreiðanlega að minka. Og horfir til vandræða, ef þessu fer fram til lengdar, að al- þýða manna sækist ólm eftir alls- konar rusli, innlendu og útlendu, en fáist ekki til þess, að lfta f Njálu eða EglU. Þá ritar Héðinn Valdimarsson fróðlega grein um Byltingar í al- þjóðaviðskiftum, sem leitt hefur af ófriðnum mikla, — sérstaklega um breytingar á gangverði víxla. * Arsrit Heilsuhælisfélagsms 1915, er komið út fyrir skömmu. Er þar fyrst skýrsla um sjúklinga árið 1914 eftir Sigurð lækni M ignússon. 1. jan. 1914 voru 63 sjúklingar á Heilsu- hælinujrá árinu komu 116 sjúk- lingar, er fóru 81, og 31 dó Eftir voru I. jan 1915 67 sjúklingar. „Bata að meira eða minna leyti fengu 71 af 104, þ e. 68.3% Heilbrigðir urðu 45, þ. e. 43,3%. En af þeim, sem voru á 1. sjúk- dómsstigi við komu, urðu 88,2% heilbrigðir. Af þeim, sem dóu, voru 20 svo langt leiddir við komu (allir inn- komnir í fyrsta sinn), að vonlaust var um bata. Ef þeir eru taldir frá, verður árangurinn þessi: Ðata að meira eða minna leyti fengu 84,5%. Heilbrigðir urðu 53,6°/o“. Þá er skýrsla um deildir Heilsu- hælisfélagsins og tillög þeirra. Eru þær 31 talsins, í 12 sýslum og 1 f Reykjavík. Er það alt of lftið. Minna má ekki vera, en ein deild sé í hverri sýslu á landinu — helzt fleiri. Hæst tillög eru frá Reykjavíkur- deild (1800,00 kr.) og Hafnarfjarð- ar- og Garðadeild (1000,00 kr ). Eyjafjarðar- og ísafjarðarsýsla hafa hvor um sig 4 deildir, en hvergi sjást Akureyri né ísafjarðarkaup- staður. — Gjafir og áheit námu árið 1914 2232,89 kr. Þá eru reikningar félagsins og reksturskostnaður hælisins 1914. Hann var um 72 þús. kr. Svo er skrá yfir sjóði og annað fé, sem gefið hefur verið Heilsu- hælisfélaginu og eigi má nota sem eyðslufé. Þá er grein um félagið eftir Guð- mund Björnsson landlækni, og leyfir Landið sér að taka hana upp. Þar eð landið tekur hælið að sér við næstu áramót, getur Heilsu- hælisfélagið snúið sér eingöngu að þvf, að styrkja fátæka sjúklinga, og er ekki nógsamlega hægt að hvetja menn til þess að styrkja það. Til dæmis með þvf, að kaupa minn- ingarskildi við andlát manna, en eyða ekki fé í gagnslausa kranza. Minningarskildi má fá á öllum tfm- um dags hjá ritara félagsins, Jóni Rósenkranz, á Uppsölum. Loks eru lög félagsins og ýmsar skipulagsskrár.

x

Landið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landið
https://timarit.is/publication/194

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.