Landið

Útgáva

Landið - 01.09.1916, Síða 4

Landið - 01.09.1916, Síða 4
140 LANDIÐ Hll læOnr! cfiiðjié fiauptnenn yéar ávaíí um fíina alfíunnu sœísqfí Jrá alóin> " sqfayaróinni „Saniíasu í cfíeyfíjavífí. diolasparann! f*á Sigurjöni nota allir. Pantið í tíma, fyrir veturinn. Eftirfarandi vottorð gefur nægar upplýsingar um að kolasparann á hver húmóðir að nota. Hr. kanpmaðnr Sigurjón Fétnrsson, Hafuarstræti 16. Undirrituð hef fengið frá yður Holasparann, og get með ánægju vottað, að hann hefur reynzt mér ágætur „sparari**. Ég hef ávalt orðið að nota „steamkol*, þar til ég fékk Kolasparann. Með honum hafa vanaleg ofnkol enst mér mun betur. Gefa betri og meiri hita, en nokkur „steamkol". 25 aura pakki drýgir vanaleg kol um 3—4 krónur á skippund. í ágúst 1916. Pvottahúsið Reykjavík. J. Helgadóttir. Kreyns vindlar eru aftur komnir á Lager hjá Ó. G. Eyjólfsson & Co. I’egiiskyldu- viimaii. --- (Frh.) Þetta tal, um óstundvísina og ó- hlýðnina, er náttúrlega sama mark leysan, eins og þegar því er haldið fram, að íslendingar sé fámennari að tiltölu og fátækari, en aðrar þjóðir, af því að þeir sé latari, ónýtari og óhagsýnni, en nágranna- þjóðir þeirra. Sveitabændurnir búi illa og missi úr hor, af því að þeir sé heimskir slóðar, en sjómennirnir græði ekkert og drukni í hrönnum, af því að þeir kunni eigi rétt veiði- tök og hafi vond áhöld. En þess skíra sannleika er eigi gætt, að or- sökin til fátæktar íslendinga er sú, að vér búum í miklu illviðrasamara og óveðurblíðara landi, sem þar af leiðandi er verra og slyshættara en nágrannalöndin. Landið vort er eins og harðindabýlin og harðbalakotin; það má, og er oft búið vel á þeim, með miklum dugnaði og ráðdeild, og þá er lífið þar sæluríkt á marg- an veg, en auðsælli mundi þó dugn- aðarmaðurinn verða á gæðajörð. Ef annað hvort á endilega að lasta, þá mun réttara að láta landið, heldur en þjóðina, verða fyrir því. íslend- ingar eiga eflaust fremur Iof en last skilið fyrir það, hversu góðri sið- menningu þeir hafa náð hér norður í hafísbeltinu með óstöðuga veðráttu- farinu og alóvissa árferðinu. Efni- viðurinn í fólkinu hér er góður; það er áreiðanlegt; og ég er sann- færður um, að ef vér byggim í Danmörku, þá myndim vér búa jafn-vel sem Danir, og ef vér bygg- im í Norvegi, þá myndim vér búa jafn-vel sem Norðmenn, eða séim yfirleitt jafnokar annarra manna í dugnaði og ráðdeild. — En þó svo væri nú, að íslend- ingar sé óstjórnþýðir, óstundvísir, óhlýðnisgjarnir og óverklagnir, þá myndi það reynast hégómi, að slíkir ókostir lagist með þriggja mánaða nauðungarvinnu, einu sinni á mannsæfinni. Þegar ég var í latínuskólanum, sem ég hef svo margar ágætar endurminningar frá, þá var þar (og er líklega enn) stranglega heimtuð mikil stundvísi af mönnum, og lá refsing við, ef út af var breytt. Þetta gat. t. d. komið morgunsvæfum mönnum fremur illa; en um slíkt dugði eigi að mögla. En þrátt fyrir þenna ágæta aga í sex ár samfleytt, hef ég þó þekt embættismenn, sem vóru framúrskarandi óstundvísir trassar. Hluturinn er, að náttúran verður oftast náminu ríkari, og gamli mað- urinn í oss leitar út, þegar hann finnur sér færi til. Það sem góð- um skólum tekst eigi að uppræta að fullu, það tel ég auðsætt, að þegnskylduvinnunni takist eigi held- ur. Og verklagnin, sem skyldu- vinnan á að skapa, hlýtur í flest- um tilfellum að verða einskisvirði; því bæði er það, að margur mað- ur vinnur þar verk, sem honum er ógeðfelt, og svo er víst, að fjöldi manna starfar þar að verkum, er þeir aldrei framar á æfinni snerta hendi sinni á, svo ágóðinn verður harla smár. Það er vissulega of- mikið lagt á hættu, að ætla sér að laga galla landslýðsins með þessu skylduvinnubjargi, og væri eflaust heppilegra, að reyna aðrar ljúfari leiðir áður. Ekki efast ég um, að meðhaldsmennirnir haldi þessu máli fram af ættjarðarást; en mót- haldsmennirnir halda sinni skoðun fram engu síður af ættjarðarást. Missýning í málinu er hjá öðrum- hvorum, og eftir röksemdunum að dæma, virðist hún vera hjá með- stöðumönnunum. Það væri eflaust ágætt, að fá t. d. marga af íslenzku foratflóunum gæðasnauðu ræsta fram, svo þar gæti skapast gras- gott valllendi eða nýtilegt flæði- engi. En ofdýru verði má þetta kaupa, og eflaust er unt að finna önnur ráð til þess, en þegnskyldu- vinnuna. Að þetta og margt fleira, sem gera þarf, verði alls eigi gert nema þegnskylduvinnan komist á, það er sleggjudómur, sem við enga reynslu hefur að styðjast. En allar framkvæmdir hljóta að taka tíma, og heimskulegt er ofmikið bráðlæti. Eftir því sem máli þessu nú er komið, virðist svo sem þegnskyldu- vinnan hljóti að ná jafnt til kvenna scm karla; enda er það sanngjarnt, úr því að konur hafa fengið jafn- rétti við karla í stjórnarfarinu, og sjálfsagt, fyrst þeim er líka ætlað að greiða atkvæði um málið. En í verkafólkseklu þeirri, er nú geng- ur yfir landbúnaðinn, hlýtur þó heimilunum að verða kvöðin enn þungbærari, þegar kvenfólkið er tekið með. Vinir þegnskylduvinn- unnar spyrja samt furðu lítið um hag einstaklinga og heimila í þessu máli. Það er þó eigi annað sýnna, en að landbúnaðurinn ætli hreint að eyðileggjast af þessu voðalega fólksleysi um þennan afarstutta bjargræðistíma hans, og svo Hka sligast undir ofurhæð kaupgjaldsins. En það mætti þó allir sjá, að brott- nám unga fólksins í þegnskyldu- vinnu hlýtur að auka á fólksekluna, og þá hækkar um Ieið kaupið, svo að landbúnaðurinn stenzt alls eigi við það. Ég hygg, að sjávarút- vegurinn biði líka tjón við þessa skylduvinnu. Það getur jafnvel verið álitamál, hvort það er rétt af lands- stjórninni, að taka fólk frá atvinnu- vegunuin til vegagerða, og hvort eigi væri réttara, að fá útlent lið til þess; en þó er ég nú á því, að þessi vegavinna hafi, enn sem kom- ið er, fremur lítið gert til í þessu efni. Þar á móti verður slíkt eigi sagt um þegnskylduvinnuna, þegar hún bætist á alt annað. Hugsjón þegnskylduvinnunnar hjá Hermanni, frumkveða þessa máls, var (svo sem von var af honum) í fyrstu að mörgu leyti fögur, því hann lagði höfuðáherzluna á upp- eldi lýðsins og svo uppgræðslu landsins, en hjá mörgum fylgis- mönnum hans er farið í hundana með alla fegurð, því að þeir virð- ast hugsa mest um að spara fyrir landssjóðinn með þessu, og jafnvel gera þetta að tekjuauka fyrir hann, til dæmis með því, að losa hann við framlag til vegabóta. Hér er þá, þar sem sízt skyldi, vikið frá herskyldufyrirmyndinni, því eigi er herþjónusta nein tekjulind ríkissjóð- anna, heldur til gjaldauka. Þar að auki vilja sumir, að vinnuþegnarnir starfi f smáhópum hver í sinni sýslu eða jafnvel sveit, en með því er málið komið út í örgustu hreppastjórnvizku. Það var þó til- ætlunin í fyrstunni, að þetta yrði helzt frjáls menningarskóli fyrir fólkið og græðslumeðal fyrir landið, til að bæta það og prýða. Nú virð- ist þó sem Hermann sjálfur sé far- inn að skaðskemma málið fyrir sér, eftir því sem ég hef áður skilið uppástungu hans, því í ritgerð sinni f Skírni í ár, setur hann upp reikning, þar sem útgjöld lands- sjóðs af fyrirtækinu eru talin 108 þúsundir króna og tekjurnar af vinnunni taldar landssjóði til inn- gjalda nákvæmlega jafnháar. Þetta er nú víst oflág áætlun, en það gerir auðvitað minst til, svona f umtalinu, og kemur það af þvf, að hann telur vinnuþegnana um 800 manns á ári, en ég býst við, ef allar konur á 19. ári og allir karlar á 21. ári væri teknir, þá yrði það hér um bil fertugasti hver maður, eða um 2000 manns á ári, en við þetta hækkar áætlunin meir en ti) helminga. En hvað sem um þetta er, þá er auðsætt af þessari áætlun, að Hermann ætlast nú eigi til, að vinnan gangi sem aukreitis hjálp til þeirra verka, sem annars yrðu látin sitja á hakanum, svo sem til að græða upp in mörgu sár, er landið hefur fengið; ekki til að rista fram fenin, gróðursetja skóga, auka blómskrúð og grasklæða hrjóstrin, heldur til að vinna verk, sem landssjóði ber að láta gera nú þegar og byrjað er á, svo sem að koma upp vatnsveitingum, leggja vegi, bæta hafnir o. m. fl. Samkvæmt þessu ætlast Her- mann nú til, að landssjóður hætti hér eftir við framlög sín til búnað- arfélaga, skógagræðslu, sandaupp- græðslu, gróðrarstöðva og margs fleira. Þegar ég las þetta, spurði ég sjálfan mig, hver hagurinn þá eiginlega yrði fyrir ættjörðina sjálfa af þessum vinnuskatti og fann hann engan, við slfka vöruvíxlun. Maður- inn er auðsjáanlega orðinn of veill til að halda inni fögru hugsjón ó- breyttri til streitu, hvað sem á dynur og stjórna fylgismönnum sínum. Þessi stefnubreyting f lakari átt, hlýtur að spilla fyrir málinu hjá stórhuga og víðsýnum ættjarð- arvinum. (Frh.). yókannes L, L. jfóhannsson. 153 iila. Loddarinn gekk fram á gólfið og pataði út f loftið. Þegar hann opnaði hnefann, hafði hann rautt blóm f hendinni. »Leyfið mér að láta þetta yfir falska stein- inn, Iafði mín«, sagði hann. »Svo tek ég þenna vasaklút og vildi gjarna, að einhver frúin gerði svo vel að breiða hann yfir blómið. Þökk, nú tek ég klútinn burt aftur, og einnig blómið. Ég hristi klútinn — og blómið er horfið. En sjáið nú, hvað er komið f þess stað«. Fólkið rak upp undrunaróp, þvf að í stað rauða blómsins, sem hulið hafði falska stein- inn, Ijómaði nú rétti, stóri demantinn á brjósti frúarinnar. Enginn skildi, hvernig þetta hefði mátt verða með slíkri skyndingu. »Nú hef ég aldrei séð annað eins«, sagði Sir Jósep. »Að hugsa sér, að þetta alt saman hefur aðeins verið —« 18. kapftnli. Á. slóðinni. »LeikurI«, æpti Rayne. »Osvífinn skrípa- leikur, sem ég hef orðið að þola ilt fyrir. Hafið þér allan tfmann haft gimsteininn á yður? Og ég hef verið rannsakaður fyrir 154 illan grun, til þess eins, að gera loddaralæti yðar áhrifameiri. Þér megið þakka yðar sæla, að hér er kvenfólk viðstatt. Annars skyldi ég berja yður, svo að um munaði*. Loddarinn var niðurlútur, en ekki virtist hann óttast hótunina. Og hann var ekki þesslegur, að ráðlegt væri að fara í handa- lögmál við hann. »Ég bið yður afsökunar«, sagði hann. »Ég ætlaði f upphafi að láta þetta enda öðruvfsi. En þar eð þessi maður tók svo alvarlega f málið, þá langaði mig að gera dálítið gaman. Ég lét við gangast rannsókn- ina, en sá fljótt, að ég hafði farið of langt, en of seint var að bæta úr því. Ég get ekki annað gert, en beiðzt afsökunar*. Rayne var fokvondur, en frú Manton gat stilt hann, svo að hann fór að brosa. Það var heimskulegt, fanst honum, að vera reiður við óvalinn loddara. Rayne lofaði að vera kyr enn um stund, og játaði, að hann hefði ekkert að gera. Lafði Sloman fór að tala við hann, svo að frú Manton gat komizt brott. Hún gekk út á svalirnar með Clifford. »Jæja«, sagði hún. »Hefur hepnin verið með yður?« »Ég get ekki neitt sagt um það ennþá«, svaraði Clifford. »Hann hafði hvorki á sér 155 lykla né skjöl, og yfirleitt var ekkert merki- legra þar, en þetta vindlingahylki*. »Þér hafið þó líklega ekki stolið vindlinga- hylki Raynes«, varð frú Manton að orði. »Ég tók það traustataki«, anzaði Clifford rólega. »Vinur yðar, prófessorinn gerði það fyrir mig. Hann er líklega meðsekur okkur í þessu máli?« »Já, að nokkru leyti. Én hann vissi auð- vitað ekki annað, en að hann átti að koma fram ákveðnum atburðum. En hvað eigum við að gera við þetta hylki?« »Sumir geyma skjöl í vindlingahylki sínu, og svo gæti verið hér, því að annars hefur hann hvergi getað geymt neitt slíkt á sér. Þar að auki bauð Rayne mér vindling, þegar átti að fara að rannsaka hann og ég tók þá eftir þvf, að hann hafði tvenskonar vindlinga, vanalega og gráa. Hann varð gramur við sjálfan sig, þegar ég ætlaði að taka einn gráa vindlinginn, og sagði að í þeim væri meðal við andþrengslum*. Frú Manton kinkaði kolli. Hún virtist skilja alt að ósögðu máli. »0g svo hafið þér skift um«, sagði hún. »Það verða fleiri listir leiknar, fyrir náttverð- inn, svo að prófessorinn getur sjálfsagt skift um aftur. En nú verð ég að fara, annars verður mín saknað. Þér getið verið í næði í

x

Landið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landið
https://timarit.is/publication/194

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.