Lögrétta - 26.06.1907, Blaðsíða 1
LOGRJETTA
= Ritstjóri: PORSTEINN GÍSLASON, Pingholtsstræti 17.=
I 27.
Reykiavík 20. jiiní 1907'.
II. árg-.
HAFNARSTR-1716 19 20 21-22 ■ KOLAS -1-2- LÆKJAKT-1-2
* REYKJAVÍK»
Bestu
oínkolin,
sem til Reykjavíkur flytjast,
eru
T
inomseBs
í dag kom stór farmur af
þessum alþektu góðu kolum,
og ættu allir að birgja sig
upp til sumarsins á meðan
verið er að skipa þeim upp.
Ressi kol verða seld með
sama verði og kol annar-
staðar hjer í bænum.
thomsens jlíagasin.
Brynjólfur Björnsson,
tannlæknir,
heima kl. 10—2 og 4—6.
Þingholtsstræti 18.
Dr. Porvaldur Thoroddsen.
Prófessor dr. Þorvaldur Thorodd-
sen og kona hans, frú Þóra Pjeturs-
dóttir, komu með „Ceres" á sunnu-
daginn var. Þau hjón fóru alfarin
hjeðan til Hafnar sumarið 1895, og
hefur frú Þóra eigi komið til lands-
ins síðan, en dr. Þorvaldur kom hjer
síðast sumarið 1899 og varþá rann-
sóknarferðum hans lokið um landið,
og höfðu staðið yfir ein 17 sumur.
Dr. Þorvaldur er frægastur maður
í heimi allra þeirra íslendinga, er nú
eru uppi, og enginn maður hefur fyr
nje síðar unnið á við hann að því,
að fræða umheiminn um ísland. Helst
væri að líkja honum til Arngríms
lærða, en fróðleikur Þorvaldarum ís-
land fer á mörgum tungum til fleiri
þúsunda, en Arngrímur prestur náði
tii latínulærðra manna einna hverra
um sig.
Árið sem leið kom út á þýska
tungu stórmikið rit í 2 bindum eftir
dr. Þorvald, og er það yfirlit yfir all-
ar hans jarðfræðilegu rannsóknir hjer
á landi. Eiga útlendingar þar greið-
an aðgang að þeim fræðum. Rit
það er gefið út í Gotha á Þýska-
landi, og er í ritsafni sem fylgir með
landfræðislega tímaritinu heimsfræga,
sem kent er við Petermann. Á þessu
vori er út komið hjá Bókmentafje-
laginu í Höfn 1. hefti af hinni miklu
íslandslýsingu hans, og verður það
rit væntanlega eigi stórum minna en
Landfræðissaga hans, og eigi síður
hið kærkomnasta.
Dr. Þorvaldur og kona hans eru
hingað komin sjer til skemtunar, og
verða hjer sumarlangt. Hjeðan fara
þau til Lundúna, eru þau boðin á
100 ára minning Jarðfræðisfjelagsins
þar, í septembermánuði. Er það fje-
lag elst og merkast slíkra fjelaga, og
er dr. Þorvaldur heiðursfjelagi í því.
Vjer segjum prófessorinn og trú
hans velkominn til landsins og ósk-
um þess, að sumardvöl þeirra hjer
verði þeim sem ánægjulegust í hví-
vetna.
Þingmálafundur
fyrir Reykjavík
var haldinn laugardaginn 22. þ. m.,
eftir fundarboði frá þingmönnum kjör-
dæmisins. Fundarstjóri var kosinn
Sighvatur Bjarnason bankastj. Stjórn-
arandstæðingar ætluðu að koma Krist-
jáni Jónssyni yfirdómara að, en það
místókst og voru þeir í minni hluta
í fundarbyrjun. Fundarskrifari var
Olatur Davíðsson bankabókari.
Þingmenn lögðu dagskrá fyrir fund-
inn og voru þar þessi mál:
1. Sambandsmálið.
2. Hlutfallskosningafrumvarp stjórn-
arinnar.
3. Kirkjumál.
4. Almennur kosningarjettur.
5. Bindindismál.
6. Höfn í Reykjavík.
Guðmundur Björnsson landlæknir
var frummælandi í sambandsmálinu.
Mælti hann langt erindi, rakti all-
ítarlega helstu atriði úr stjórnskipun-
arbaráttu íslendinga og sýndi fram
á, hvernig sambandi Islands við Dan-
mörku væri nú farið og hverjum
breytingum það, eftir hans skoðun,
þyrfti að taka til þess að það eftir-
leiðis gæti orðið til hagnaðar fyrir
bæði löndin, enda taldi hann það eitt
vera rjettan grundvöll undir sam-
bandi milli tveggja þjóða, að kosti
hvorugrar væri að nokkru leyti þröngv-
að með samningunum. Taldi hann
mjög líklegt, að þannig lagaða samn-
inga væri nú hægt að fá; að lokum
bar hann fram svohljóðandi tillögu
til fundarályktunar:
a. Fundurinn telur rjett, að kon-
ungur skipi menn, er alþingis-
rnenn tilnefna, helst af öllum flokk-
um, í millilandanefnd, til þess
að íhuga sambandið milli ís-
lands og Danmerkur og undir-
búa og koma fram með tillögur
um sambandslög.
b. Fundurinn vill, að þjóðinni gef-
ist kostur á, að láta vilja sinn í
ljósi við nýjar kosningar um þær
tillögur, sem gerðar kunna að
verða, áður en þær eru lagðar
fyrir alþingi.
c. Fundurinn vill að Ieitað sje sam-
komulags á þeim grundvelli, að
ísland sje frjálst sambandsland,
sjeu sem fæst mál sameiginleg
og löggjöf í þeim málum þann-
ig háttað, að það eitt verði að
lögum hér á landi, sem alþingi
samþykkir.
d. Fundurinn telur nauðsynlegt, að
í væntanlegum sambandslögum
sjeu skýr og hagfeld ákvæði, er
tryggja rjett íslands, ef ágrein-
ingur rís um, hvað sje sjermál
þess.
Af hendi stjórnarandstæðinga tal-
aði því næst Magnús Blöndahl trje-
smiður og bar fram svohljóðandi til-
lögu til fundarályktunar:
Fundurinn krefst þess, að vænt-
anlegur sáttmáli um samband ís-
lands og Danmerkur byggist á
þeim grundvelli einum, að Island
sje trjálst sambandsland Danmerk-
ur og hafi fult vald yfir öllum sín-
um málum og haldi fullum forn-
um rjetti sínum samkvæmt gamla
sáttmála, en mótmælir harðlega
allri sáttmálsgerð, er skemra fer.
Sjálfsagða afleiðing af þessu tel-
ur fundurinn, að íslensk mál verði
ekki borin upp fyrir konungi í rík-
isráði Dana.
Við hana bar Guðm. Björnsson
fram viðaukatillögu svohljóðandi:
„— og að eigi verði skipaður land-
stjóri yfir þau“.
Um málið urðu síðan langar um-
ræður. Af hendi heimastjórnarflokks-
ins töluðu, auk Guðm. Björnssonar:
Jón Olafsson, Tryggvi Gunnarsson,
Lárus Bjarnason sýslumaður og Hann-
es Hafstein. Af stjórnarandstæðingum
töluðu auk Magnúsar Blöndahls: Ein-
ar Hjörleifsson, Björn Jónsson og
Benedikt Sveinsson. Guðm. Finn-
bogason mag. talaði utan dagskrár
um fánamálið. Fundarstjóri vakti
máls á, að umræðum um það mál
mætti ekki blanda saman við málið,
sem fyrir lægi, heldur yrði að hafa
það sjer á eftir. Þá gerðu stjórnar-
andstæðingar hark mikið með ópum
og óhljóðum og fótastappi, en þó tók
út yfir, þegar Lárus Bjarnason ætl-
aði að tala. Voru þá svo mikil ó-
hljóð og gauragangur, að enginn
heyrði til sjálfs sín, auk heldur til
annara. Forgöngumenn fyrir ólátum
þessum voru þeir Björn Jónsson rit-
stjóri og Gísli Guðmundsson, og höfðu
þeir góða fyigd af sínum flokksmönn-
um. Áminningar tundarstjóra voru
ekki hafðar að neinu, og yfirleitt hög-
uðu þeir menn sjer svo, að líkara
var æstum skríl, en borgurum, sem
saman eru komnir til að ræða mik-
ilsvarðandi iandsmál. Eftir nærri
klukkutíma ólæti varð þó komið svo
mikilli reglu á, að gengið varð til
atkvæða um tillögurnar. Stjórnar-
andstæðingar hötðu notað tímann til
að smala vel sínu liði og mun í því
hafa verið nokkuð töluvert af ung-
um mönnum, ekki kosningarbærum,
enda var atkvæðagreiðsla öll mjög svo
ógreinileg.
Tilllaga Guðm. Björnssonar var
fyrst borin upp og fjellu atkvæði
þannig:
1. liður feldur með 107 atkv. gegn
99.
2. liður tekinn aftur af tillögum.
3. og 4 liður feldir með 120 at-
kv. gegn 87.
Því næst var tillaga Magnúsar
Blöndahls samþykt með 144 atkv.
Segn 33 °g viðaukatillagan feldmeð
90 atkv. gegn 39.
Kl. var þá orðin eitt og var því
enginn tími til að ræða önnur mál,
sem á dagskrá voru, en þeim var
flaustrað af, að kalla umræðulaust.
I ýánamálinu var svohljóðandi til-
laga samþ. með 126 samhljóða atkv.
Fundurinn telur sjálfsagt, að ís-
land hafi sjerstakan fána, og felst á
tillögu Stúdentafjelagsins um gerð
hans.
í hlutfallskosningamálinu bar Guð-
mundur Björnsson upp svohljóðandi
tillögu:
Fundurinn er í öllum aðalatrið-
um samþykkur frumvarpi stjórn-
arinnar um hlutfallskosningar til al-
þingis,
og Björn Jónsson svohljóðandi breyt-
ingartillögu:
Þó fundurinnjáti,að ýmislegtrjett-
látt og vel ráðið sje í hinu nýja frum-
varpi um kosningar til alþingis, þá
telur hann frv. ótímabært að svo
stöddu.
Breytingartillagan var samþykt með
73 atkv. gegn 14.
Um almennan kosningarjett var
með 136 samhlj. atkv. samþ. svohlj.
tillaga:
Fundurinn aðhyllist almennan
kosningarjett, er nái jafnt til kvenna
sem karla.
Um kirkjumál var samþykt svo
hljóðandi tillaga með 119 atkv. gegn 2.
Fundurinn aðhyllist aðskilnað rík-
is og kirkju og vill því ekki, að
sett sjeu nein þau lög, er geti orð-
ið skilnaðinum til hindrunar.
Um bindindismál var með 121 at-
kv. gegn 3 samþ. svohlj. till.:
Fundurinn skorar á alþingi, að
banna með lögum veitingar áfengra
drykkja á skipum í landhelgi við
ísland.
Um h'ófn í Reykjavík var með 124
samhlj. atkv. samþ. svohlj. tillaga:
Fundurinn skorar á alþingi að
kosta höfn í Reykjavík til helm-
inga við bæinn og sje höfnin sam-
eign landsins og bæjarins.
Frá Benedikt Sveinssyni kom fram
svohlj. tillaga:
Fundurinn skorar á stjórn og
þing, að fresta tilnefningu í milli-
þinganefndina þangað til nýjar
kosningar til alþingis hafa farið
fram.
Samþ. með 67 gegn 25 atkv.
Frá Sigurði Jónssyni barnakennara
komu fram svohlj. tillögur:
a. Fundurinn skorar á alþingi að
samþykkja lög um kennaraskóla.
Samþ. með 67 samhlj. atkv.
b. Fundurinn skorar á alþingi, að
samþ. barnafræðslufrumv. stjórn-
arinnar.
Samþ. með 30 atkv. gegn 6.
Frá Birni Jónssyni kom fram svo-
hljóðandi tillaga: