Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 21.09.1907, Síða 2

Lögrétta - 21.09.1907, Síða 2
170 L0GRJET7A. Lögrjetta kemur út á hverjum mið- vikudegi og auk þess aukablöð við og við, minst 60 blöð als á ári. Verð: 3 kr. árg. á íslandi, erlendis 4 kr. Gjalddagi 1. júlí. Skrifstofa opin kl. 10‘/i—11 árd. og kl. 3--4 siðd. á hverjum virkum degi. Innheimtu og afgreiðslu annast Arinbj. Sveinbjarnarson, Laugaveg 41. ir þær, er þar að liggja, eða rjett- indi, sem hann hefur yíir þeim, þeg- ar almenningsheill krefst þess til mann- virkja í þarfir landsins eða sveitar- artjelaga. 13. gr. Stjórnarráð íslands ákveð- ur í hvert skifti, hversu mikið skuli af hendi látið samkvæmt 12. gr., það er og á þess valdi að ákveða, að á eignir þær, er getur í 12. gr., skuli gegn endurgjaldi lagðar kvaðir. 14. gr. Éf samningum verður ekki við komið, skulu 3 óvilhallir, dóm- kvaddir menn meta kaupverð fossa og endurgjald fyrir starfsafl, sem um er rætt í 2. gr., svo og skaðabætur þær, er getur í 12. og 13. gr., og má skjóta gjörð þeirra til 5 manna mats- nefndar, er hinn íslenski landsyfir- rjettur kveður í hvert skifti. Fiskimat. Svohljóðandi þingsá- lyktunartillaga var samþykt: Alþingi skorar á stjórnina, að leggja fyrir næsta alþingi frumvarp til laga, er lögbjóði fiskimat á öllum fullverkuðum saltfiski, er flytst frá íslandi til Spánar og Ítalíu, og að engan fisk megi flytja til þessara staða, nema lögskipaðir fiskimats- menn hafi gefið vottorð um gæði hans. Lög um skipun prestakalla. 1. gr A íslandi skulu vera fau presta- köll, sem nú skal greina: I. Norðurmúlaprófastsdœmi. 1. Skeggjastaðir: Skeggjastaðasókn. 2. Hof i Vopnafirði: Hofs og Vopna- fjarðarsóknir. 3. Hofteigur: Hofteigs, Brúar og Möðru- dalssóknir. 4. Kirkjubær í Hróarstungu: Kirkju- bæjar-, Hjaltastaðar- og Eiðasóknir. 5. Valþjófsstaður: Valþjófsstaðar ogAss- sóknir. 6. Desjarmýri: Desjarmýrar-,Njarðvíkur- og Húsavíkursóknir. II. Suðurmúlaprófastsdœmi: 7. Dvergasteinn: Vestdalseyrar- og Klippsstaðarsóknir. 8. Mjóifjörður: Brekkusókn. 9. Vallanes: Vallaness- og Þingmúla- sóknir. 10. Norðfjörður: Nessókn. 11. Hólmar í Reyðarfirði: Hólma-, og Eskifjarðarsóknir. 12. Kolfreyjustaður: Kolfreyjustaðarsókn. 13. Eydalir: Eydala- og Stöðvarsóknir. 14. Hof í Álptafiði: Hofs- og Djúpavogs-, Berufjarðar- og Berunessóknir. III. Auslur-Skaptafellsprófaslsdœmi: 15. Bjarnanes: Bjarnaness og Stafafells- sóknir. 16. Kálfafellsstaður: Kálfafellsstaðar- og Einholtssóknir. 17. Sandfell: Sandfells- og Hofssóknir. IV. Veslur-Skaptafellsprófaslsdœmi: 18. Kirkjubæjarklaustur: Prestsbakka-og Kálfáfellssóknir. 19. Þykkvabæjarklaustur: Þykkvabæjar-, Langholts- og Grafarsóknir. 20. Mýrdalsþing: Höfðabrekku-, Reynis-, og Skeiðflatarsóknir. V. Rangárvallaprófastsdœmi. 21. Holt undir Eyjafjöllum: Eyvindar- hóla-, Ásólfsskála-og Stóradalssóknir. 22. Breiðabólsstaður 1 Fljótshlíð: Breiða- bólsssaðar- og Hlíðarendasóknir. 23. Landeyjaþing: Kross-, Voðmúlastaða- og Sigluvíkursóknir. 24. Oddi: Odda, Stórólfshvois-ogKeldna- sóknir. 25. Landprestakall: Skarðs-, Haga- og Marteinstungu-sóknir. 26. Kálfholt: Kálfholts-, Áss-, Háfs- og Árbæjarsóknir. 27. Vestmannaeyjar: Ofanleitissókn. VI. Árnessprófastsdœmi. 28. Stórinúpur: Stóranúps-, Hrepphóla- og Ólafsvallasóknir. 29. Hruni: Hruna- og Tungufellssóknir. 30. Torfastaðir : Torfastaða-, Haukadals-, Bræðratungu-, Uthlíðar- og Skálholts- sóknir. 31. Mosfell í Grímsnesi: Mosfells-, Mið- dals-, Klausturhóla- og Búrfellssóknir. 32. Þingvellir: Þingvalla- og Ulfljóts- vatnssóknir. 33. Hraungerði: Hraungerðis-, Laugar- dæla- og Villingaholtssóknir. 34. Stokkseyri: Stokkseyrar, Eyrarbakka- og Gaulverjabæjarsóknir. 35. Arnarbæli: Arnarbælis-, Hjalla-, Reykja- og Strandarsóknir. VII. Kjalarnesprófastsdœmi. 36. Staður í Grindavík: Staðar-, Krísu- víkur og Kirkjuvogssóknir. 37. Utskálar: Utskála-, Hvalsness- og Njarðvíkursóknir. 38. Garðar á Álptanesi: Garða- og Bessa- staða- og Kálfatjarnarsóknir. 39. Reykjavfk: Reykjavíkur-, Lágafells- og Viðeyjarsóknir. 40. Reynivellir: Reynivalla-, Saurbæjar- og Brautarholtssóknir. VIII. Borgarfjarðarprófastsdœm i. 41. Saurbær á Hvalfjarðarströnd : Saur- bæjar- og Leirársóknir. 42. Garðar á Akranesi: Skipaskaga- og Inrirahólmssóknir. 43. Hestþing: Hvanneyrar-, Bæjar-, Lund- ar- og Fitjasóknir. 44. Reykholt: Reykholts-, Stóra-Áss-, Gilsbak.ka- og Síðumúlasóknir. IX Mýraprófastsdœmi. 45. Stafholt: Stafholts-, Hjarðarholts-, Hvamms- og Norðtungusóknir. 46. Borg : Borgar-, Álptaness- og Álptár- tungusóknir. 47. Staðarhraun: Staðarhrauns-, Akra- og Kolbeinsstaðasóknir. X. Snœfellsnessprófastsdœmi. 48. Staðastaður: Staðastaðar-, Búða-, Miklaholts- og Rauðamelssóknir. 49. Nesþing : Ólafsvíkur-, Ingjaldshóls- og Hellnasóknir. 50. Setberg: Setbergssókn. 51. Helgafell: Stykkishólms-, Helgafells- og Bjarnarhafnarsóknir. 52. Breiðabólsstaður á Skógarströnd: Breiðabólsstaðar- og Narfeyrarsóknir. XI. Dalaprófastsdœmi. 53. Suðurdalaþing: Sauðafells-, Snóks- dals-, Stóravatnshorns- og Hjarðar- holtssóknir. 54. Hvammur í Hvammssveit: Hvamms-, Staðarfells- og Dagverðarnessóknir. 55. Staðarhóll: Staðarhóls-og Skarðs-og Garpsdalssóknir. XII. Barðastrandarprófastsdœmi. 56. Flatey: Flateyjar- og Múlasóknir. 57. Staður á Reykjanesi: Staðar-, Reyk- hóla- og Gufudalssóknir. 58. Brjánslækur : Brjánslækjar- og Haga- sóknir. 59. Sauðlauksdalur: Sauðlauksdals-, Breiðuvíkur og Saurbæjarsóknir. 60. Eyrar: Eyra- og Stóru-Laugardals- sóknir. 61. Bildudalur: Bíldudals- og Selárdals- sóknir. XIII. Vestur-ísafjarðarprófastsdœm í. 62. Rafnseyri: Rafnseyrar- og Álpta- mýrarsóknir. 63. Dýrafjörður : Sanda-, Hrauns-, Mýra- og Núpssóknir. 64. Holt í Önundarfirði: Holts-, Kirkju- bóls- og Sæbólssóknir. XIV. Norður-ísaffarðarprófastsdœmi. 65. Staður í Súgandafirði: Staðarsókn í Súgandafirði. 66. Isafjörður: ísafjarðarsókn og Hóls- sókn í Bolungarvík. 67. Ögurþing: Ögur- og Eyrarsóknir. 68. Vatnsfjörður: Vatnsfjarðar-, Nauteyr- ar- og Unaðsdalssóknir 69. Staður í Grunnavík: Staðarsókn. 70. Staður í Aðalvík: Staðarsókn. XV. Strandaprófastsáœmi. 71. Árnes: Árnessókn. 72. Staður 1 Steingrímsfirði: Staðar- og Kaldrananessóknir. 73. Tröllatunga: Tröllatungu-, Fells- og Óspakseyrarsóknir. 74. Prestsbakki: Prestsbakka- og Staðar- sókn í Hrútafirði. XVI. Húnavatnsprófastsdœmi. 75. Melstaður: Melstaðar-,Kirkjuhvamms-, Staðarbakka- og Núpssóknir. 76. Tjörn á Vatnsnesi : Tjarnar- og Vesturhópshólasóknir. 77. Breiðabólsstaðurí Vesturhópi: Breiða- bólsstaðar og Víðidalstungusóknir. 78. Þingeyraklaustur: Þingeyra-, Undir- fells- og Blör.duóssóknir. 79. Auðkúla: Auðkúlu- og Svínavatns- sóknir. 80. Bergstaðir: Bergstaða-,Bólstaðahlíðar- og Holtastaðasóknir. 81. Höskuldsstaðir: Höskuldsstaða-, Hofs- og Spákonufellssóknir. XVII. Skagafjarðarprófastsdœmi. 82. Hvammur í Laxárdal: Hvamms- og Ketusóknir. 83. Reynistaðarklaustur: Reynistaðar-og Sauðárkrókssóknir, 84. Glaumbær: Glaumbæjar- og Víði- mýrarsóknir. 85. Mælifell: Mælifells-, Reykja-, Goð- dala og Ábæjaisóknir. 86. Miklibær: Miklabæjar-, Silfrastaða- og Flugumýrarsóknir. 87. Viðvík: Viðvíkur, Hóla-, Hofstaða- og Rípursóknir. 88. Fell í Sléttuhlíð : Fells og Hofssóknir. 89. Barð í Fljótum : Barðs-, Holts- og Knappsstaðasóknir. X VIII. Eijjafjarðarprófastsdæm i. 90. Grímsey: Miðgarðasókn. 91. Hvanneyri : Hvanneyrarsókn. 92. Kvíabekkur: Kvíabekkjarsókn. 93. Vellir í Svarfaðardal: Valla-, Stærra- Árskógs-, Tjarnar-, Urða- og Upsa- sóknir. 94. Möðruvallaklaustur: Möðruvalla-, Bægisár-, Bakka- og Myrkársóknir. 95. Akureyri: Akureyrar, Lögmannshlíð- ar- og Glæsibæjarsóknir. 96. Grundarþing: Grundar-, Munka- þverár-, Kaupangs-, Saurbæjar-, Möðruvalla, Miklagarðs- og Hóla- sóknir. XIX. Suður-Pingeijjarprófastsdœm i. 97. Laufás: Laufás-, Svalbarðs-, Greni- vfkur- og Þönglabakkasóknir. 98. Háls í Fnjólkadal: Háls-, Illugastaða- Draflastaða- og Brettingsstaðasóknir. 99. Þóroddsstaður: Þóroddsst'aðar- og Ljósavatnssóknir. 100. Skútustaðir: Skútustaða-, Reykja- hlíðar- og Lundarbrekkusóknir. 101. Grenjaðarstaður: Grenjaðarstaðar-, Nes-, Einarsstaða- og Þverársóknir. 102. Húsavík: Húsavíkursókn. XX. Norður-Pingeyjarprófastsdœmi. 103. Skinnastaðir: Skinnastaða-, Garðs-, Presthóla- og Víðihólssóknir. 104. Svalbarð í Þistilfirði : Sválbarðs- og Ásmundarstaðarsóknir. 105. Sauðanes: Sauðanessókn. 2. gr. í Reykjavíkurprestakalli skulu vera tveir þjóðkirkjuprestar: dómkirkju- prestur og annar prestur honum jafnhliða. Lanastjórnin, 1 samráði við biskup, skipar fyrir um aðstöðu þeirra hvors til annars, samband sfn á milli og verkaskiptingu í söfnuðinum. 3. gr. Landstjórnin hlutast til um, að þær breytingar á skipun prestakalla, sem að ofan eru ákveðnar, komist á, eptir því sem prestaköllin losna, svo fljótt, sem því verður við komið. 4. gr. Nú vilja menn breyta skipun sókna eða takmörkum prestakallaeðaleggja niður kirkju, færa úr stað eða taka upp nýja kirkju, og skal þá mál það koma fyrir safnaðarfund eða safnaðarfundi, ef fleiri en einn söfnuður eiga í hlut. Ef breytingin viðkemur að eins einum söfn- uði, ræður meiri hluti atkvæða á lögmæt- um safnaðarfundi. Séu söfnuðirnir tveir, ræður meiri hluti atkvæða á báðum fund- um. Séu söfnuðirnir fleiri en tveir, ræð- ur meiri hluti safnaðafunda. Samþykki héraðsfundur tillögu safnaðarfundar (eða safnaðafunda) er rjett, a"ð landstjórnin, f samráði við biskup, veiti leyfi til að breyt- ing sú, sem um ræðir fái fram að ganga. 5 . g r. Þegar Ijenskirkja er lögð niður, fellur sjóður hennar til þeirrar kirkju, eða þeirra kirkna, sem sóknin erlögðtil. Svo- er og um skrautgripi (ornamenta) kirkj- unnar og áhöld (instrumenta), og andvirði fyrir kirkjuna sjálfa. Sjómannalíf. Eftir Rndyard Kipling. (Frh.). ---- Tvær skútur keptu um það, hvor fyrri yrði að fylla Iestina. Önnur þeirra var Stundvís, en hin hjet Parry Norman, og var svo nærri um þær, að földi manna veðjaði um það tóbaki, hvor fyrri yrði. En þá meiddi einn af hásetunum á Parry Norman sig svo að hann varð frá verk- um, og við það komst Stundvís á und- an. Þó Ijet Diskó troða í hana eins og hægt var; þeirTom Platt fundu rúm fyrir hvert „dagsverkið" eftir annað, þótt Harvey sýndist alt fult. Loks var saltið þrotið og talaði Diskó þá ekki framar um, að hægt væri að koma meiru í skútuna. En hann fór strax að leysa stórseglið. Það var kl. 10 að morgni dags. Um há- degi voru seglin öll í lagi og komu þá. úr öllum áttum bátar fullir af mönnum. Allir öfunduðu þá Stundvísmenn af því, að verða fyrstir heimleiðis, en komu nú< til að biðja þá fyrir brjef og boð. Svo var þilfarið rutt, flagg dregið á stöng og akkerið tekið inn. En Diskó sagðist gjarnan vilja gera sem flestum greiða með því að taka af þeim brjef heim, en þeir hefðu ekki næiri allir komið þeim af sjer enn. Þess vegna sigldi hann fram og aftur innan um flotann, áður hann legði á stað. En í rauninni var þetta sigurför hans. Hann hafði fjögur undanfarin ár orðið fyrstur að ljúka sjer af þar úti á miðunum og alt af faiið þá þessa förað sigrinum unnum. Dan þandi harmómiku sína, Tom Platt sveiflaði fiðluboganum, en allir sungu með full- um röddum versið, sem enginn má. syngja fyr en „alt salt er vott": „Nú, sendið okkur brjefin. Við siglum ykkur frá, því saltið alt er vott og norðanvindur á. Við siglum burtu hlaðnir og sjáum bráðum land,— með fimtán hundruð tunnur, með fimtán hundruð tunnur, með fimtán hundruð tunnur á milli Quereau og Grand", Brjefum var fleygt inn á þilfarið á Stundvís og voru þau bundin við kola- mola, en Gloucestermenn kölluðu ogbáðu að bera heilsan konum sínum, kærust- um og útgerðarmönnum. Svona leið Stundvís innan um flotann, með blakt- blaktandi framsegl eins og hönd, sem veifað er til kveðju. Harvey sá fljótt, að sú Stundvís, sem færði sig með hálfum seglum til og frá á miðunum um sumarið, var alt annað skip, en þetta, sem nú sigldi með full- um seglum heimleiðis. Fyrst þótti honum nóg um öldulöðrið við skipshliðina, en vandist því samt fljótt og skemti sjer vel á ferðinni. Mest þóttifdrengjunum 1 það varið, að fá að standa saman við stýrið, en hafa Tom

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.