Lögrétta - 30.05.1908, Blaðsíða 4
96
L0GRJETTA.
höfn, hefur í vetur byrjað að kenna
aðalatriðin úr s'ógu fslands á kenn-
araháskólanum. Hann kennir sögu
sjálfur og lætur kennarana lesa kenslu-
bók Boga Melsteðs í íslendingasögu.
Hina íslensku kennara, sem taka þátt
í sögukenslunni, lætur hann hjálpa
dönsku kennurunum til að skilja ís-
lensku á kenslubók þessari. Það mun
vera í fyrsta sinni, sem íslensk kenslu-
bók hefur verið notuð í dönskum
skóla, nema þá er um kenslu í ís-
lensku er að ræða á háskólanum.
Sláturhús á Sauðárkróki.
Skagfirðingar hafa nú ákveðið að
reisa sauðtjársláturhús í sumar á Sauð-
árkróki og hefur sýslunefndin átt
lofsverðan þátt í að greiða fyrir
því máli. Hún hefur veitt 2000 kr.
styrk til þess að reisa sláturhúsið, og
er það í fyrsta sinn að nokkur sýslu-
nefnd sýnir slíka rögg af sjer í því
máli. Bændur hafa lofað 2700 kr.
til fyrirtækisins og eru það kaupfje-
lagsbændur. Svo er til ætlast, að
sláturhús þetta verði sameignarsiát-
urhús bænda, þá er skagfifskir bænd-
ur verða almennt færir um að taka
það að sjer, enda er sýslusjóðsstyrk-
urinn veittur í þeim tilgangi. Enn
sem komið er vantar áhuga og fje-
lagsanda til þess að það sje hægt;
fyrir því hefur kaupfjelagið og stjórn
þess tekið sláturhús þetta að sjer
fyrst um sinn.
Enn sem komið er virðist sam-
vinnuandi til verklegra framkvæmda
mestur meðal bænda á Suðurlandi.
Fróðlegt að sjá, hvort Vestur-Hún-
vetningum, Dalamönnum og Stranda-
mönnum tekst að sameina sig um
sláturhús á Borðeyri. Góðir menn
þar í sveitum verða að beinast fyrir
því, ef það á að takast.
B. Th. M.
Frá fjallatindum til fiskimiða.
Frá Seyðislrði. Jón í Múla
sendi Lögr. með símskeyti 27. þ. m.
þá leiðrjettingu við frásögn um
fund »Þjóðmálafjel. Seyðfirðinga« í
næstsíðasta tbl., að enginn af gest-
unum þar, að undanteknum Bjarna
frá Vogi, hafi tekið þátt í atkvæða-
greiðslunni, og að yfir 20alls(þ.e.
að gestum meðtöldum) hafi sótt
fundinn.
Fregnin i Lögr. var tekin eftir
símtali við mjög áreiðanlegan mann
á Akureyri. Misskilningurinn mun
vera sá, að hann hafi sagt fjelags-
mennina á fundinum 12, en ekki
fundarmenn alla. Hitt leiðrjettir
skeytið ekki, að margir fjelags-
manna hafi verið unglingar, sem
ekki eiga atkvæðisrjett. Ein Jón í
Múla sjálfur var einn gestanna, og
sýnir leiðrjetting hans þá það, að
hann hefur ekki greitt atkvæði með
fundarályktuninni, þótt ísaf. og
Ingólfur hafi verið að flagga með
nafni hans móti nefndarfrumvarp-
inu.
Mannalát. 19. þ. m. andaðist á
Húsavik Björn Bjarnason fyrrum
bóndi í Eystri-Krókum 1 Fnjóska-
dal, 77 ára gamall, faðir Marteins
verslunarmanns í Húsav., Friðbjörns
frá Grýtuhakka og þeirra systkina.
Kona hans, Helga Olafsdóttir, lifir
enn.
25. f. m. andaðist í Árnanesi í
Hornafirði, úr tæringu, Pjetur Sig-
urðsson stúdent, 27 ára gamall,
bróðursonur Bergs Þorleifssonar
söðlasmiðs hjer.
27. þ. m. andaðist í Hafnarfirði
húsfrú Agnes Mathiesen, ekkja Árna
Mathiesens verslunarmanns og móð-
ir Matthíasar skósmiðs hjer í Rvík,
85 ára gömul.
Fjárkláði segir »Vestri« að fund-
ist hafi á hrút einum í Kjartans-
staðakoti í Skagafirði.
Símskeyti
frá útlöndum.
Khöfn 29. maí: Hardendómur
ónýttur í ríkisrjetti (Þýskalands).
Eulenberg tekinn fastur; álitinn
meinsvari.
Konungur heim kominn á mið-
vikudag.
Skúli gagnrýnir nefndarfrum-
varpið í »Politiken« í dag. Stú-
dentar halda bráðum fund. Skúli
talar.
Reykjavik.
Frá Ameríku komu með »Laura«
á þriðjudaginn var 12 íslendingar
alfluttir heim, þar á meðal Arnór
Árnason frá Chicagó, sem hjer
dvaldi vetrarlangt fyrir tveimur
árum.
»Hrólfur«, netaveiða-vjelabátur-
inn, sem áður hefur verið frá sagt
hjer í blaðinu, aflar vel, svo að
hin nýja veiðiaðferð, sem með hon-
um er byrjuð hjer, á sjálfsagt
mikla framtíð.
Nefndarálitið, sem prentað er
hjer framar, er orðrjett þýðing eftir
Jón Ólafsson, tekin úr bæklingi,
sem verið er að prenta og flytur
útdrátt úr gerðabók nefndarinnar.
Xaupbætir fögrjettu
er
Sj ómannalíf
eftir R. Kipling.
Nýir kaupendur, sem fengið hafa
blaðið, geta vitjað sögunnar til af-
greiðslumannsins &
Laugavcgi 4i.
Ný trje
frá Akureyri íást í
THBMSERS MAGASÍNL
Allskonar
lalnar- 09 Hafskipabryggjur
tek jeg að mjer að. smíða.
Guðmundur E. Guðmundsson & Co.
Reykj arik.
Sigurður Magnússon
lœknir
fluttur á Suðurgötu 8.
Eggert Claessen
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Pósthússtræti 17. Venjulega hsina kl. 10—11
og 4—5. Talslmi 16.
Auglýsingum í „Lög-
rjettu“ tekur ritstjórinn við
eða prentsmiðjan.
Sveinn Jjörnsson
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Kirkjustræli 10.
Mótorbáturinn „STKjANBI"
fer eftirtaldar ferðir frá Borg-
arnesi upp í Hvítá frá 17. maí til 16. júlí:
Maí 18. Júní 15.
26. — 21.
— 30. — 29.
Júní 1. Júlí I.
— 9- — 7-
— 12. — 15-
Ennfremur fer báturinn
aukaferðir þegar þörf krefur.
Okumenn! Takið eftir!
•t* ^~s
Hjer með leyfi jeg mjer undirskrifaður að benda heiðruðum
landsmönnum nær og fjær, sem hesta þurfa að knýja fyrir aktsri,
að hin alþektu Rragfa-aKtygi, smíðuð eftir norsku sniði, munu óef-
að, eftir reynslu, koma að langbestum notum á voru landi. Fást
aö elns á Laugraveg- 43. Birgðir nógar. Eptirspurn dagleg.
Pantanir fljótt afgreiddar. Viðskifti öll greidd á þann besta hátt,
sem auðið er.
Margt fleira fæst á sama stað, sem að akstri og reiðskap lýtur.
Reykjavík 19. maí 1908. Talsími 250,
Virðingarfylst
Jiaíóvin Cinarsson,
aktygjasmiður.
Styðjið ijTn/endan iðnað.
Járnsteypa ReyRjavíRur hefur til sölu neðantalda muni:
3 teg. Brunnkarma.
20 — Ofn- og Maskínuristar.
2 — Hengilagera
6 — Rúllur fyrir botnvörpuskip.
3 — Kluss, stór og smá.
6 — Gashausar.
3 — Vaska.
3 — Spilvængi.
Gufuramma.
3 teg. Pumpulok.
30 — Blakkarhjól.
Bátskefa.
2 stærðir Ventila.
margar teg. Ristarstangir.
Bökunarhellur.
Hjólböruhjól.
Hreinsiramma.
Þetta selst allt mjög ódýrt. — Pantanir afgrciddar iro
fljótt sem unnt er.
Menn snúi sjer til
JÓNS BRYNJÓLFSSONAR,
Austurstræti 3. Reykjavík.
Efter Opfordring gjentager
Den MorsKe KomiRer
fixz\ Jöe
sin Aftenunderholdning Lördag
den 30. Mai Kl. 8V2 og Söndag
den 31. Mai Kl. 8
í Lokalet Bárubúð.
Se PlaRaterne.
SlippFj elagið i Reykjavík
selur ódýrast alt sem tilheyrir skipum og bátum.
Skoðið vörurnar og spyrjið um verð þeirra. — Það borgar sig.
Prentsmiðjan Gutenberg.