Lögrétta

Issue

Lögrétta - 19.08.1908, Page 4

Lögrétta - 19.08.1908, Page 4
152 L0GRJET7A. um tíma við háskólann í Khöfn. Hann var í för með Dufferin lávarði hjer um land 1856 og var túlkur hans, bæði hjer á landi og á ferð hans um Noreg. Er hans mjög vel minst í ferðabók Dufferins. Rjett eftir þetta fjekk Sigurður stöðu í utanríkismála- ráðaneytinu og gegndi henni um 50 ár. Nú fyrir nokkrum missirum hafði hann fengið lausn. Hann var mikill vinur Jóns forseta Sigurðssonar og honum mjög handgenginn, var lengi með honum í stjórn Bókmentafje- lagsins og eftir hann forseti Hafnar- deildarinnar um hríð. Sigurður kom aldrei hingað til lands, eftir að hann ferðaðist hjer 1856, en þó var hann alla tíð tryggur ættjarðarvinur. Hann var ramíslenskur í lund og einkenni- legur maður í mörgu, drengur hinn besti og mjög vel látinn af öllum, sem nokkur kynni höfðu af honum. Á síðustu árum mun hann hafa verið orðinn einmana, með því að landar hans allir, er hann þekti best, voru þá annaðhvort dánir eða fluttir burt frá Khötn. Sigurður kvæntist aldrei og dó barnlaus. Ásta Árnadóttir heitir íslensk stúlka, sem nú er í Hamborg og stund- ar þar málaraiðn. Hún er hjeðan frá Reykjavík og lærði hjer fyrst að mála (hjá Bertelsen), fór síðan á skóla í Khöfn, til þess að verða fullnuma, og tók þar gott próf eftir tveggja ára nám. Nokkru síðar settist hún að í Hamborg og hetur unnið þar síðan hjá „Rutenberg og Nielsen". Danskt kvennablað, »Kvinnernes Blad«, flutti í sumar mynd af henni og var þar jafnframt farið mjög loflegum ummæl- um dugnað hennar. ísl. hestar í Banmörku. Á Áh- borgarsýningunni, sem um er getið í síðasta blaði, vöktu íslensku hest- arnir mikla eftirtekt, segja dönsku blöðin. Verðlaun, 20 kr., fjekk grár hestur, sem ung óðalsbóndadóttir, 11 ára gömul, reið. Hún heitir Ebba, og þetta var skólahestur hennar. Á- horfendurnir dáðust bæði að því, hve vel hesturinn hljóp, og líka hinu, hve vel stúlkan sat hann. Einu sinní fjell hún af baki, af því að gjörð bilaði, og var þá hesturinn á harða hlaupi. En hún stökk óðara á bak aftur og ljet sem ekkert væri. Að endingu tók blaðamaður frá Khöfn mynd af | henni á Grána. Ymsir, sem um íslenska hesta rita í dönsk blöð, mæla mjög með því, að danskir húsmenn kaupi þá í stað rússnesku hestanna. „Grosser Kurfurst“ hjet fyrra þýska skemtiskipið, sem kom hingað í sumar. Farþegar þess láta vel af dvölinni hjer í þýskum blöðum, ein- kum söngnum úti á skipinu um kvöldið og á bátunum, er þeir fóru þaðan f land. íslenska kvenbúningnum (há- tíða) lýsa þeir einnig og þykir hann fallegur. Glímumennirnir. Maður, sem skrifar norska blaðinu „Verdens Gang" um Ólympisku leikana, segir þar um íslensku glímumennina: „ . . . Tveir liðlegir og ljóshærðir íslenskir glímumenn eru að glíma uppi á leiksviðinu. En hvað þeir eru ólíkir í vexti glímumönnunum frá því í gær (í grískrómversku glímunni) með uxahnakkana, vöðvakúlurnar og breiðu bökin. Alt er svo smekklegt og viðkunn- anlegt hjá íslendingunum. Þeir minna á grísk myndhöggvaraverk, þar sem þeir koma fram hálfnaktir og svo Ijettir og frjálsir í öllum hreyfingum. Þetta (sem þeir sýna) eru glímur, sem tíðkaðar voru af forferðrum okkar, í heimkynni víkinganna, Noregi, og í landi Snorra Sturlusonar. . . * IPW* Ú tsa vCrður nú um tíma í sölubúðinni 1 Haraldur Níelsson kand. theol. biður þess getið, að hann hafi ekki verið á fundi í Bárubúð 23. f. m., sem gamangrein er um í 34. tbl. „Lögr.* þ. á. á LAUGAYEGI 1, og þar seldir ýmsir munir frá konungskomunni fyrra ár, svo sem: Vagnar, Tjöld, Tjalddúkur, Aktygi, Sængur, Koddar, Lök, Koddaver, Gólfteppi, Vattteppi, Flögg, Borðdúkar, Borðhnífar, Álnavara, Sláturpottar, Leir- og Glervara, ásamt fleiru. Stórkostlega niðursett verð. Búðin er opin trá kl. 12—3 virka daga. Munid eptir klædskerabúdinni í HT* Hafnarstræti. (I liis Gunnars Porbjarnarsonar). jjón Kristjánsson nuddlæknir. Aðalstræti 18, Talsími 124. Heima til viðtals daglega frá kl. 2—3 og 5—6. Íítfför þorsteins Jóus- souar læknis frá Vest- mannaeyjum hyrjar með húskveðju á Hókhlöðustíg 10, kl. 11V2 f. h., hinn 21. þ. m., og þaðan verður lík hans fiutt til Yestmannaeyja. cTyrirtafis <Tim6ur, trje, spirur, plankar, óunn- in borð, rúplœgð borð, gólf- Mest úrval af öllu er að karlmannaklæðnaði lýtur. fðtin þaðan: jara bezt-halða lengst—kosta minnst. >0000000000000000000000000000' ■fllif í ■ I eru bygðir á byggingarstöðinni „Alpha“ í Reykjavík undir yfir- umsjón skipasmiðs Otta Guðmundssonar. í alla báta eru settir ,,AIpha“-mótorar, sem allir viðurkenna bestu mótora, sem flutst hafa til íslands. Bátarnir eru bygðir úr eik eða bestu furu, af þeirri stærð sem óskað er. Allir, sem vilja eignast mótorbáta, semji við smiðinn sjálfan, undírritaðan, eða, í fjarveru hans, við kaupm. Kr. Magnússon i Reykjavík. Sandgerði 25. júlí 1908. Matth. Þórðarson. >0000000000000000oooooooooc ffleð því aö menn fara nú aptur að nota steinolíu- lampa sína, leyfum vór oss aó minna á vorar / borð og panel, er nýkomið og selst með lœgsta verði i TIOMSENS iAGASÍNL dÍQgnRápurnar á 7 kr. komnar aftur í Klæðskera-deildina. Jhomscns jlíagasini. Til leigu 3—4 herbergi í Sivertsenshúsi, Hafn- arstræti 22, niðrí, 2 herbergi í Melsteðshúsi, Lækjar- torgi 1, niðri. Semja skal á skrifstofunni í Shomsens jVíagasini. Verðið á merkjum vorum, sem viðurkend eru hvarvetna, er þetta (á brúsum): „§ólarshær“.....................1« a. pt. Pensylvansk Standard White 17 a. pt. Pensylvansk Water Wkite . . 19 a. pt. í 5 potta og 10 pt. brúsum. Á 40 potta brúsum 1 eyri ódýrari potturinn. Munið eptir því, að með því að kaupa olíuna á brúsum fáið þér fulla pottatölu og eigið ekki neina rýrnun eða spilli á hættu, eins og þegar olían er keypt í tunnum. Háttvirtir viðskiptavinir vorir eru beðnir um að aðgæta, að á 5 og 10 potta brúsum séu vörumiðar vorir á tappan- um og hliðinni; á 40 potta brúsum eru miðar á hliðinni og blý (plombe). P. S. Viðskiptavinir vorir eru beðnir, sjálfs sín vegna, að setja nýja kveiki í lampana, áður en þeir verða teknir til notkunar, því aðeins með því móti næst fult ljósmagn úr olíunni. Með mikilli virðingu. D. D. P. A. ID. S. H. F. Auglýsingum í „Lög- rjettu“ tekur ritstjórinn við eða prentsmiðjan. Sveinn jjjörnsson yfirrjettarmálaflutningsmaður. Hafnarstrœli 16.

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.