Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 10.10.1908, Blaðsíða 4

Lögrétta - 10.10.1908, Blaðsíða 4
188 L0GRJETTA. af llfi slnu í tómum og einskis verðum fíflaskap". „Því æðri sem þau kalla sig, því hlægi- jegri eru þau“, sagði Barnaveikisgerillinn. „Og mennirnir eru þó hlægilegastir af þeim öllum“, sagði Berklagerillinn. „Já, það finst mjer líka“, sagði Kóleru- gerillinn. „Lítum t. d. á fjölgunina. Mjer er reyndar ekki fullkunnugt um, hvernig hún fer fram hjá ykkur, herrar mínir, en jeg tel víst, að það sje eins og hjá öðrum skynsömum verum". „Jeg skifti mjer bara 1 sundur", sagði Berklagerillinn. „Og það geri jeg líka“, sagði Barna- veikisgerillinn. „Auðvitað", sagði Kólerugerillinn og hneigði sig. „Það vissi jeg líka. Það er ekki annað en að vaxa og skifta sjer svo f miðjunni. A þann liátt geta á fáum dögum orðið til milljónir af gerlum. En þetta er of auðveld og eðlileg aðferð til þess að æðri dýrin geti látið sjer nægja með hana. Þess vegna gengur líka fjölg- unin hjá þeim svo seint. Þau eiga ekki nema örfáa unga í senn, og þó gengur langur tími á undan til undirbúnings. Og svo eru loksins ungarnir ósjálfbjarga fram eftir öllum aldri. Mennirriir eiga sjaldan nema einn í einu, en sjeu þeir i tveir, þá kemur það í blöðin. Og dauð- inn er líka jafn ónáttúrlegur hjá þeim og fæðingin. Þegar maður deyr, verður enn meira uppistand út úr því en fæð- ingunni. — Jeg þekki mennina og hef verið við jarðarfarir margra þeirra. Ha, ha, ha!“ „Jeg líka“, sagði Barnaveikisgerillinn. „Og jeg sömuleiðis", sagði Berklager- illinn. „Þá er það eitthvað öðruvísi hjá okkur", sagði Kólerugerillinn. „Þegar við deyjum, þá er öllu lokið; við hverfum möglunar- laust og greftrunarlaust. Jeg skal taka sjálfan mig til dæmis. Jeg get ekki lifað á þurru meira en þrjá daga í röð, og nú er komið fram á þriðja daginn. Líf mitt er nú komið undir því, hvort Katrín kemur næst inn með þurran klút eða votan klút. En sjáið þið nokkra hrygð á mjer fyrir því?“ „Nei, sfður en svo“, sagði Berklager- illinn. „Það er nú öðru nær“, sagði Barna I veikisgerillinn. „Nei, það er sem jeg sagði“, mælti Kólerugerillinn; „það er ekki mikið varið í mennina. Hugsið ykkur bara, hve lengi þeir hafa verið að uppgötva okkur! Fram- eftir öllum öldum áttu þeir í stríði við ljón og tígrisdýr, höggorma og krókódíla og aðrar ómerkilegar skepnur af því tægi. Og þegar þeir höfðu sigrað, þá hjeldu þeir, að þeir gætu ráðið öllu á jörðinni, og kölluðu sig æðri öllum skepnum. Þeir vissu þá ekki einu sinni, að við værum til. Svo merkileg sem augun í þeim eiga að vera, þá sáu þeir okkur ekki. Og með sínu mikla viti skildu þeir þá ekkert f tilveru okkar. Öll vopnin þeirra dugðu ekki heldur neitt móti okkur“. „En nú þekkja þeir okkur samt", sagði Barnaveikisgerillinn. „Því miður", sagði Berklagerillinn. „Já, nú þekkja þeir okkur", sagði Kól- erugeriilinn. Svo hættu þeir samtalinu og fjellu allir þrír í dvala. En nú duttu tveir nýir snáðar ofan úr loft- inu og komu niður skamt frá þeim. Þeir voru eins litlir og hinir, sem fyrir voru, en annar var stuttur og digur, en hinn langur og mjór og allur í vindingum eins og tappatogari. „Hverjir eru þar á ferð?" hvíslaði Kól- erugerillinn að fjelögum sínum. „Teg þekki þá ekki", sagði Barna- veikisgerillinn. „Jeg ekki heldur", sagði Berklagerill- inn. „Við skulum heilsa upp á þá", sagði Kólerugerillinn. Svo hneigði hann sig fyrir þeim, sem nýkomnir voru, en þeir tóku kveðju hans kurteislega. „Leyfist mjer að spyrja, herrar mínir", sagði Kólerugerillinn: „Eruð þið lífseig- ir?" „Hvað á sú spurning að þýða?“ sagði sá digri og velti sjer á borðinu. „Jeg þoli hvað sem fyrir kernur", sagði sá mjói og sneri upp á sig. „Og hvernig verður fjölgunin hjá ykk- ur? — Þið skiftið- ykkur væntanlega, eða er ekki svo? í fjóra, átta eða sextán parta ?“ sagði Kólerugerillinn. „Miklu, miklu fleiri", sagði sá digri. „Hvað haldið þið að við sjeum?" sagði sá mjói. „Jeg held, að þið sjeuð gerlar", svar- aði Kólerugerillinn og hneigði sig. „Jeg býð ykkur velkomna f fjelagsskapinn. Nafn mitt er Kólerugerill, en þessir tveir, sem hjá mjer eru, eru Barnaveikisgerill- inn og Berklagerillinn". „Góðan daginn, góðann daginn", sagði sá digri. „Nafn mitt er Gerðargerill, en þennan herra hitti jeg á leiðinni hjerna ofan úr loftinu; það er Rotnunargerill- inn". „Jeg tel mjer heiður að kynnast ykk- ur“, sagði Rotnunargerillinn. „Við vorum að tala um mennina", sagði Kólerugerillinn. „Voruð þið að tala um blessaða menn- ina", sagði Gerðargerillinn og velti sjer af ánægju á borðinu. Þeir eru bestu vinir mínir". „Því miður get jeg ekki hrósað mjer af svo virðulegu vinfengi", sagði Berkla- gerillinn með þótta. „Jeg ekki heldur", sagði Barnaveikis- gerillinn. • „Orð yðar særa okkur", sagði Kóleru- gerillinn. „Við vorum áður orðnir sam- mála um það, að mennirnir væru verstu fjendur okkar allra". „Hvað á sá fjandskapur að þýða?“ sagði Gerðargerillinu. „En við skulum tala um málið reiðilaust. Þið getið alls ekki ætlast til, að jeg sje mönnunum reið- ur, jafn góðir og þeir eru mjer. Þeir rækta mig, skal jeg segja ykkur. Reynd- ar voru þeir lengi að uppgötva mig, en að því geta þeir ekki gert; drottinn hafði ekki gefið þeim meira vit en svo. En undir eins og þeir uppgötvuðu mig, þótti þeim vænt um mig. Og nú geta þeir alls eklci án mín verið". (Frh.). Reykjavik. Leiðrjetting. í næst-síðasta blaði stóð, að um ioo manns væru við vinnu hjer í sláturhúsinu, en átti að vera um 50 manns. Matarlystarleysi. Ráðskonan gamla hjerna hinumegin sló fyrir nokkrum dögum stórri auglýsingu upp á götunum og boðaði andstæð- inga sambandslagafrumvarpsins til áts. Ekki er þó svo að skilja, að hún ætlaði að gefa veisluna, heldur áttu »húskarlar«, »kaupahjeðnar«, »smalar« og allir aðrir að borga sjálfir. Um það leyti, sem átið átti að byrja, komu upp þverræmur yfir auglýsingarnar og stóð þar prentað, að samsætinu væri frestað til næsta kvölds. Það höfðu ekki komið nema örfáir hræður. Nú voru hlauparar sendir út um bæinn og liðinu skip- að að koma og jeta. En það sat við sinn keyp og kom ekki. Var þá slegið upp nýrri auglýsingu og sagt þar, að átinu væri frestað um óákveð- inn tíma. — Lystarleysið fer að verða í meira lagi raunalegt hjá flokknum, „valda- lystarleysi" hjá leiðtogunum og mat- arlystarleysi hjá múgnum. Fötur — Balar — stórt úrval hjá JBS ZIMSEN. lleö því aö menn fara 11 ú aptur aö nota steinoláu- lampa sína, leyfum ver oss aö minna á vorar Verðið á merkjum vorum, sem viðurkennd eru hvarvetna, er þetta (á brúsum): „Sólarskær*4.......................16 a. pt. Pensylvansk Ktandard Wliite 17 a. pt. Pensylvansk Water Wliite . . 19 a. pt. i 5 potta og 10 pt. brúsum. Á 40 potta brúsum 1 eyri ódýrari potturinn. Munið eptir því, að með því að kaupa oliuna á brúsum, fáið þér fulla pottatölu og eigið ekki neina rýruun eða spilli á hættu, eins og þegar olian er keypt á tunnum. Háttvirtir viðskiptavinir vorir eru beðnir um að aðgæta, að á 5 og 10 potta brúsum séu vörumiðar vorir á tappan- um og hliðinni; á 40 potta hrúsum eru miðar á hliðinni ogblý (plombe). P. S. Viðskiptavinir vorir eru beðnir, sjálfs sín vegna, að setja nýja kveiki í lampana, áður en þeir verða teknir til notkunar, því að eins með því móti næst fullt ljósmagn úr olíunni. Með mikilli virðingu. D. D- P. A. II. D. S. H. F. A A < > < > V V A < > V -kveikjaðar OLÍUVJELAR eru ódýrastar og lang- bestar hjá bestar og- ódýrastar hjá <Jas aEimsen. Okeypis læknishjálp er veitt í læknaskólahúsinu, Þing- holtsstræti 25, á þriðjudögum og föstudögum, kl. 12—1. G. Björnsson. G. Magnússnn. Sigurður Magnússon læknir fluttur í Pósthússtræti 14 A (hús Árna rakara). Viðtalstími: kl. 11—12 og 5—6. Talsími 204. í orgel- og píanóspili, söng og söngfræði (theori), tek jeg að mjer nú þegar. Valgerður Lárusdóttir. Hædu um Undraverkin heldur D, Ostlund, ritstjóri, í B e t e 1 á sunnudaginn kl. 6'le síðdegis. Allir velkomnir. Enginn inngangseyrir. jón Xristjánsson nuddlæknir. Aðalstræti 18, Talsími 124. Heima til viðtals daglega frá kl. 2—3 og 5—6. Gulrójur og föðurrójur seljast þessa dagana í Gróðrarstöðinni. JOaufíur og alhkonar krydd læsthfd c7es Simsan. Auglýsingum í „Lög- rjettu“ tekur ritstjórinn við eða prentsmiðjan. G. Sveinbjörnsson, kand juris, er fluttur í Miðstræti 6. Fæði og þjónusta fæst á Laufás- vegi 45, niðri, hús Þórarins málara. Hentugt fyrir kennaraskólanemendur. Prentsm. Gutenberg.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.