Lögrétta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Lögrétta - 01.05.1909, Qupperneq 2

Lögrétta - 01.05.1909, Qupperneq 2
86 LÖGRJETTA. Lögrjetta keraur út á hverjura raiö- vlkudegi og auk þesi aukablöð vió og viö, minst 60 blöó als á ári. Veró: 4 kr. árg. á íslandi, erlendis 5 kr. Gjalddagi 1. júli. Á að Ieggja niður Hafnardeild Bókmenta- fjelagsins? í íslenskum blöðum hefur á síðari árum stundum verið farið fram á, að leggja niður Hafnardeild Bókmenta- fjelagsins. Þessum greinum hefur hingað til ekki verið svarað. En þar sem nú mun eiga að láta til skarar skríða á næstkomandi aðalfundi Reykjavíkurdeildarinnar, telur stjórn Hafnardeildarinnar það rjettast, að alþýða manna fái Hka að sjá ástæð- ur þær, er hún hefur til að leggja á móti heimflutningi deildarinnar, og hefur því beðið „Lögrjettu" að birta skjal það, er hjer fer á eftir. Það er erindi frá stjórninni til forseta Reykja- víkurdeildarinnar, er hann hefur ver- ið beðinn að birta fjelögum þar á næsta fundi. Skjalið er svohljóðandi: „Eins og þjer vitið, herra forseti, þá er stjórn Hafnardeildar Bókmenta- fjelagsins á þeirri skoðun, að afnám deildarinnar eða heimflutningur sje hið mesta óráð nú sem stendur. Heimflutningur mundi að miklum mun veikla tjelagið f heild sinni, draga úr bókaútgáfunni og svifta þannig fjelagsmenn bókum, sem þeir eiga heimting á; ennfremur mundi afnám deildarinnar gera íslendingum, sem dvelja erlendis, örðugra að fást við íslensk fræði og gefa út íslensk heimildarrit. í lögum Bókmentatjelagsins er gert ráð fyrir þvf, að það kynni að koma fyrir, að önnur hvor deildin losnaði sundur eða liði undir lok, og „á þá allan fjárstofn sú deild, sem lengur er uppi“. Lögin geta þess aftur á móti hvergi, að það sje hugsanlegt, að annari hvorri deildinni sje slátr- að í fullu fjöri. Aldrei virðist hafa verið eins lítil ástæða eins og nú til að afnema Hafnardeildina; fjár- hagur deildarinnar hefur aldrei fyr verið jafngóður og aldrei fyr hafa jafnmargir skólagengnir menn íslensk- ir dvalið í Höfn. Það er því engin hætta á því, fyrst um sinn, að deild- in losni í sundur af fjelagaskorti eða áhugaleysi fyrir íslenskum fræðum. í handritasöfnum Kaupmannahafnar er enn sem fyr mikill grúi íslenskra handrita og skjala, sem ekki hafa verið gefin út, og mun það eigi fjarri sanni, þó sagt sje að fullur helmingur af sögu Islands sje geymd- ur í handritasöfnum í Kaupmanna- höfn. Þessar heimildir til sögu ís- lands er miklu hægra að gefa út, þegar íslenskt Bókmentafjelag er í bænum. Aðalástæðan fyrir heimflutningi eða rjettara sagt, eina ástæðan, sem til- færð hefur verið, er sú, að það sje óþjóðlegt, að íslenskt vísindafjelag sje í Kaupmannahöfn. Þetta er und- arleg ástæða. Hafnardeild hins fs- lenska Bókmentafjeiags hefur hingað til verið og mun jafnan verða eins íslensk og þjóðleg eins og Reykja- víkurdeildin. Hafnardeildin prentar íslenskar bækur á fslenska tungu, fjelagarnir eru nærri allir íslenskir og fundargjörðir og umræður í fjelag- inu fara, samkvæmt lögum, eingöngu fram á fslensku, en tilgangur fjelags- ins er, „að styðja og styrkja ís- lenska tungu og bókvísi, mentun og heiður hinnar íslensku þjóðar". í hinum miklu mentalöndum er það álitið sjálfsagt, að vfsindaleg tjelög standi fyrir utan pólitiskar hreyfing- ar og dagdóma, og Þjóðverjar, Frakk- ar og Englendingar eiga mörg vís- indaljelög og vísindastofnanir í öðr- um löndum og Iáta sjer heldur enga lægingu þykja, þó sumar stofnanir þeirra talci vísindalega styrki frá öðr- um þjóðum. Ef vjer skoðum hina fjárhagslegu hlið málsins, þá getur engum dulist, að tekjur Bókmentafjelagsins mundu stórunr. rýrna við afnám Hafnardeild- ar, en kostnaður mundi aukast. Að sjálfsögðu mundi fjelagið missa 1500 kr. — IOOO króna styrk úr ríkissjóði og 500 kr. styrk af sjóði Hjelm- stjerne-Rosenkrone's, og ef til vill líka 400 kr. úr konungssjóði. Enn- fremur mundu á næstu árum eflaust ailmargir fjelagar erlendis segja sig úr fjelaginu, ef það væri flutt til Reykjavíkur. Heimflutningur fjelags- ins mundi því að öllum líkindum kosta um 2000 kr. á ári beinlínis, en þar við mundi eir.nig bætasttölu- verður óbeinn kostnaður. Flutning- ur á forlagsbókum fjelagsins til Rvík- ur mundi kosta nokkra upphæð, og svo yrði deildin í Reykjavík að vera sjer úti um rúmgott húsnæði, því bækur Hafnardeildar fylla nú þrjú herbergi á Amalíuborg, sem deildin nú hefur ókeypis til afnota. Enn fremur má geta þess, að Bókmenta- fjelagið mundi varla komast hjá því, að hafa umboðsmann f Kaupmanna- höfn, og hann fengist varla nema fyrir einhverja þóknun. Afnám Hafnardeildar yrði af greind- um ástæðum ekki mikið fjárhags- happ fyrir Reykjavíkurdeildina, því deildin yrði líka, þrátt fyrir minkað- ar tekjur, að taka að sjer skuldbind- ingar Hafnardeildarinnar, og gæti ekki hætt við bækur í miðju kafi. Reykjavíkurdeildin yrði að halda á- fram ^að gefa út ísle.idingasögu og Lýsing íslands, og óviðkunnanlegt væri, að hætta við Safn til sögu ís- lands í miðju bindi. Auk þess hefði deildin siðferðislega skyldu til að halda áfram aiþýðuritum þeim, sem Hafnardeildin var byrjuð á. Arang- ur heimflutnings yrði því að eins rýrnaðar tekjur, meiri kostnaður en aður og meiri skuldbindingar. Eins og kunnugt er, hefur stjórn Hafnardeildarinnar nú í 20 ár litið svo á, að heimflutningur eða alnám Hafnardeildar með einfaldri laga- breytingu væri lagabrot, beint á móti anda og bókstaf iaganna. Ur þeirri þrætu milli deildanna er ekki hægt að skera, nema með langvarandi og kostnaðarsömum málaferlum, og væri heppilegast fyrir fjelagið, að hjá þeim yrði komist. Því verður ekki neitað, að lög fjelagsins eru fyrir löngu orðin úrelt í mörgum grein- um, sumum ákvæðum laganna hefur eigi verið fylgt í 30—40 ár, og sum- ar greinar eru nú oiðnar óhafandi, t. d. að nokkrir fjelagsmenn geta gef- ið atkvæði f báðum deildum og hafa þannig tvöföld atkvæði við alla aðra tjelagsmenn. Eins og nú stendur á, eru kringumstæður beggja deildanna að ýmsu leyti mismunandi, svo hver deild þyrfti ýms sjerstök ákvæði lag- anna. Oss finst afnám Hafnardeildar strfði bæði á móti lögum og tilgangi fje- lagsins, því það getur eigi verið til- gangur fjelagsins að færa inn kví- arnar — að minka vísvitandi svæði og mátt íslenskra bókmenta. Fje- lagið átti þvert á móti að auka afl sitt utanlands og innan samkvæmt kröfum og þörfum tíuians, og til þess eru tvær deildir nauðsynlegar; fje- lagið ætti að minsta kosti að halda þeirri bókaútgáfu sem nú er, og það er hægt, ef deildirnar styrkja hvor aðra. Hafnardeildin mundi eflaust vilja styrkja systur sína í Reykjavík, ef samkomulag gæti komist á milli deildanna, því fjelagið þarf spektog ró til þess að geta unnið að tilgangi sínum. Fjárhagur Reykjavíkurdeild- ar hefur hin seinni ár verið örðugur, en Hafnardeildinni hefur gengið bet- ur. Vjer viljum benda á, að það er ekki ólíklegt, að koma mætti samn- ingum á um skiftingu sjóðsins jafnt milli beggja deilda, ef lögunum er breytt á þann hátt, sem hentugt er fyrir Hafnardeildina. Það hefur vak- að fyrir oss, að nauðsyn væri á, að nýjum lögum væri hagað svo, að sambandslög væru gerð milli deild- anna, sem ekki væri hægt að breyta nema með samþykki beggja, en að hvor deild fyrir sig hefði sjerstök lög eða samþyktir, sem ekki kæmi f bága við sambandslögin, en ákvæði nánar um fyrirkomulag og störf hvorrar deildar. Ef lögunum væri breytt í þessa stefnu og sjóðnum væri skift, mundi það vinnast, að Reykja- víkurdeildin fengi meira fje til um- raða en nú, en Hafnardeildin gæti haldið áfram starfi sínu nokkurn veg- inn í sama horfi, þó hún gæfi fáum örkum minna út á ári. En yrði Hafn- ardeildin afnumin, líklega eftir margra ára málaþras, þá mundi Bókmenta- fjelagið missa mikið fje árlega, verða kraftaminna, en áður, og vegur þess mundi ekki vaxa í augum erlendra fræðimanna. Nú er Hafnardeild Bókmentafje- lagsins útvörður og fulltrúi íslenskra bókmenta gagnvart umheiminum og efasamt, hvort hægt er að reisa slíka stoð aftur, ef hún einu sinni fellur. Virðingarfylst. Friðriksbergi og Kaupmannahöfn, . 14. apríl 1909. Þorv. Thoroddsen, pt. forseti í Hafnard. Bókmentafjel. mæta 4 sinnum á ári við æfing- ar slökkviliðsins, sem og að koma til bruna, er eldsvoða ber að höndum. (Frh.). SrjejúrVestmannaeyjum, 21. apríl iy09. Ötull sýslumaður. — Sekur botn- vörpungur yarnar sýslumanni uppgöngu. — Vestmanneyingar hervæðast. — Sjö sekir skipstjórar teknir á land og sektaðir. — Pörf á síma. — Fiskiafli. — Til Sigfús Blöndal, pt. skrifari. forseta í Reykjavíkurdeild hins ísl. Bókmentatjelags. ^fgreiili lög frá alþingi 1907. 1. Lög um sjerstaka dómþinghá í Keflavík. í Gullbringusýslu skalvera sjer- stök dómþinghá og skal þing- staðurinn vera Keflavík. 2. Lög um stækkun verslunarlóða í Isafjarðarkaupstað. Leyft að reisa verslunarhús al- staðar í umdæmi ísafjarðarkaup- staðar, þ. e. á jörðinni Eyri með hjáleigunni Stekkjanesi. 3. Lög um bráðabyrgðarhækkun á aðflutningsgjaldi. Áður prentað hjer í blaðinu. 4. Lög um breyting á 26 gr. 1. lið í lögum 16. nóv. 1907 um laun sóknarpresta. Aðal-breytingin í því fólgin, að prestar, sem orðnir eru sextugir, geta fengið laun sín úr landsjóði, ef þeir óska, þótt eigi sje í því prestakalli, þar sem sú breyting ella gæti komist á þegar. 5. Lög um breyting á 2. gr. laga 13. apríl 1894 um fuglaveiða- samþykt í Vestmannaeyjum. Þegar sýslunefndinni virðist nauðsyn til bera, að gera fugla- veiðasamþykt fyrir sýsluna, skal hún kveðja til almenns fundar, sem auplýstur sje með nægum fyrirvara. Atkvæðisrjett á fund- inum eiga allir þeir sýslubúar, er jörð eða jarðarhluta hafa þar til ábúðarafnota. 6. Lög um breyting á lögum 4. febr. 1898 um aðgreining holds- veikra frá öðrum mönnum, og flutning þeirra á opinberan spí- tala. í lögum þessum er ákveðið, að lfkþráa menn skuli setja á holds- veikraspítala svo fljótt, sem rúm leyfir, en limafallssjúka því að- eins, að hjeraðslæknir telji það nauðsynlegt vegna sára eða ann- ars lasleika. Bannað að setja sveitarlimi niður á heimili, þar sem holds- veikir eru fyrir, nema læknir leyfi. — Börnum holdsveikra for- eldra, er sveitarstyrks njóta, jafn- an skylt að koma í fóstur á önn- ur heimili. Sveitarómögum, holdsveikum, sem eigi eru á holdsveikraspítal- anum, skal koma fyrir á þann hátt, að eigi stafi af þeim sýk- ingarhætta, sbr. 4. gr. laga 4. febr. 1898. 7. Lög um að leggja jörðina Naust í Hrafnagilsheppi í Eyjafjarðar- sýslu undir lögsagnarumdæmi og bæjarfjelag Akureyrarkaupstaðar. 8. Lög um viðauka við lög 14. des. 1877, um ýmisleg atriði, er snerta fiskiveiðar á opnum skipum og lög 10. nóv. 1905, um viðauka við nefnd lög. Ákveðið, að greind lög skuli og ná til þiljaðra mótorbáta, sem ganga í Vestmannaeyjum, og eru ekki stærri en nemi 15 smálest- um. 9. Lög um að stofna slökkvilið í Hafnarfirði. Allir kaupstaðarbúar, sem tii þess eru álitnir hæfir, skyldir að Hann sýndi það þann 19. þ. m. hinn setti sýslumaður hjer, Björn Þórðarson, að hann er ötull, ódeigur og ósjerhlífinn. — Þann dag, nálægt hádegi, var honum tilkynt það, að botnvörpungur væri að veiðum í landhelgi, milli Lands og Eyja. — Fjekk hann sjer þá vjelarbát og lagði á stað til að hafa hönd í hári söku- dólgsins. En móttökurnar voru ekki sera alúðlegastar, því þegar skipstjóra var tilkynt erindið, þá setti hann á sig fólskusvip og kvaðst ekki vilja þessa menn upp á skipið. Ætlaði þá sýslumaður að leggja að skipinu og ráða til uppgöngu, en þá skipaði skipstjóri skipverjum sínum til varnar við borðstokk skipsins með barefli, sleggjur o. s. frv. í þrjú skifti reyndi sýslumaður að leggja að, en það fór ávalt á sömu leið. Fór það betur, að sýslumaður rjeði ekki til uppgöngu, því að enginn efi er á því, að hann hefði ekki sloppið upp óskaddur. Kom það fram við þessar atlögur, að sýslumaður hafði ekki í hyggju *ð hlífa sjer eða draga sig í hlje.— Varð sýslumaður samt að hverfa frá við svo búið. Eftir því, sem næst verður komist, er ekki ósennilegt, heldur öllu frem- ur nær því víst, að skipstjóri þessi er hinn sami óþokki, sem fyrir nokkrum árum síðan varnaði sýslu- manni Magnúsi Jónssyni uppgöngu með því að dæla á hann og þá sem með honum voru heitu vatni. Þá var hann einnig að ólöglegum veið- um í landhelgi og sýslumaður þá í sömu erindagerðum og nú, að hand- sama hann og færa til lands til sekta. Þegar sýslumaður Björn var far- inn heimleiðis, dró botnvörpungurinn inn veiðarfæri sín. Annars eru botn- vörpungar vanir, er þeir sjá vjelar- báta stefna að þeim, er þeir eru að ólöglegum veiðum, að losa veiðar- færin við sig eða ná þeim upp á þilfar. En þessi hirti ekki um það, heldur hjelt áfram hinni ólöglegu veiði, þótt hann stæði augliti til auglitis sýslumanni. Skipið er frá Hull og heitir „Gaol" nr. 761. Þegar sýslumaður kom í land, Ijet hann hafa gætur á skipi þessu, og kom það þá í Ijós, að það lá í skjóli vestan við Eyjarnar með vörpuhler- ana útbyrðis, ásamt fleirum botn vörpungum, sem einnig höfðu veiðar- færi útbyrðis. Sýslumaðnr brá þegar í stað við og fær tvo vjelarbáta og um 30 menn, og höfðu þeir nokkrar byssur með sjer og skotfæri. Þá var kl. 6 e. h. Þegar komið var vestur fyrir Eyjar, kom það í Ijós, að sökudólgurinn var flúinn. Hann hefur að öllum líkindum aldrei lagst við akkeri, en stygst við aðra báta, sem farið höfðu þar áður um til fiskiveiða. — Samt sem áður var þar ærið að starfa fyrir sýslumann, því að hann náði þar í sjö botnvörpunga, sem höfðu ólöglega búið um veiðarfæri sín. — Sýslumaður tók alla skipstjórana í land: 3 enska, 2 fraeska, 1 hollensk- an og 1 norskan. Flesrir komu mögl- unarlítið; að eins einn bauð skip- verjum að draga upp akkeri og halda til hafs. Hafði sýslumaður sent þang- að annan bátinn, cn var sjálfur í öðru skipi. En þeir, sem sendir voru,sýndu fulla alvöru. Ráku »spil“-manninn í burtu og stöðvuðu „spilið". Hafði einn um orð við „spil“-manninn, að hann yrði skotinn, ef hann færi ekki í burtu. Þetta sagði hann að vísu á íslensku, en það hittist svo á, að „spil“-maðurinn var einmitt íslenskur. Varð hann hræddur mjög og hörf- aði aftur á skipið. Skipstjóri skip- aði í sífellu að draga upp akkeri og halda til hafs. En þegar að hann sá, að einn af þeim, sem upp voru komnir af Eyjabúum, hlóð byssu sína, þá spurði hann um það, hvort sýslu- maður væri með í förinni. Óg þegar honum var sagt það, sem reyndar áður var búið að tjá honum, þá kvaðst hann ekki skyldi sýna mótþróa. — Þeir voru kátir Eyjabúar, þegar þeir komu heim um kveldið (kl. 10) með veiðina. Sungu þeir og skutu sem aðrir sigurvegarar. En skip- stjórunum 7 mun hafa fátt um. fund- - ist, enda búist við lítilli veiði þá nóttina. Heyrði t. d. einn norska skipstjórann segja við sjálfan sig þar sem hann sat hugsandi: „Det var god Forretning det“. Um kl. 2 um nóttina var prófum Iokið; voru skipstjórar sektaðir um 200 kr. og þar yfir hver og síðan fluttir til skipa þeirra. En sökudólgurinn versti — hann slapp. í gær sást hann hjer við Eyjar að nýju með veiðarfærin út- byrðis, og í morgun mun hann enn hafa sjest. En hann er var um sig; varpar ekki akkerum, og verður við svo búið að standa, þvf að „Fálk- inn" okkar hefur ekki sjest hjer lengi (líklega ekki síðan 5. apríl). Og að koma boðum til hans á stuttum tíma, er ómögulegt, því að ekki er sím- anum til að dreifa hjer — og hans ekki von í bráð, eftir því sem heyrst hefur. Stór-hneyksli er það í raun og veru, að síminn hingað skyldi vera feldur núna, jafn-mikil þörf og virðist vera á honum hjer. „Það er verið að refsa ykkur Eyjabúum fyrir kosningarnar í haust", sagði einn landvarnar- eða þjóðræðismaðurinn (jeg þekki aldrei mörkin á þeim) hjer nýlega, er það frjettist hingað, að síminn væri feldur. Hvílík mis- sýning hjá afa gamla, ef hann hugs- ar það, að hann sje með þessu að refsa Eyjabuum, þótt hann ljeti dilk- ana sína skera símann hingað niður. Nei, hann er vinna landinu í heild sinni stórt ógagn, baka landinu í heild sinni stórtjón. í líku tilfelli sem því, er nú hefur verið minst á út af þessum botnvörpung, væri nú búið að ná í botnvörpung þennan, ef sími hefði verið hingað. — Hjer er einnig nú þessa dagana annar botnvörpungur að sveima í kringum Eyjarnar, sem margar kærur hvfla á út af stórskemdum, sem hann hefur gert á veiðarfærum sjómanna hjer. Hann hefur einnig orðið svo nær- göngull einum bát, sem var „á línu" að hann varð að skera á línuna til þess að forða sjer undan honum. Við náum ekki í „Fálkann", kom- um ekki boðum til hans, og því má eins búast við, að þessi sökudólgur sleppi einnig hjeðan án þess, að honum verði refsað. Þannig mætti halda áfram að telja upp ýms dæmi, sem sýndu það, að það er ekki Eyjabúum einum, held- ur öllu landinu í heild sinni, stórtjón, að hjer er símalaust. — En hvað Eyjabúa snertir, þá munu þeir eflaust, þá er þingkosning fer hjer næst fram, sýna það, að þeir munu ekki láta þessa refsingu blindaðra fyrirliða verða til þess, að hræða þá frá sann- færingu sinni. Svo lítilsigldar sálir erum við ekki; þær raggeitur finnast hjer ekki, sem betur fer, Af aflabrögðum hjer á þessari ver- tíð er það að segja, að alt útlit var til, að þessi vertíð yrði ein hin allra arðsamasta, en aprílmánuður hefur verið svo stormasamur, að sjaldan hefur verið komið á sjó hjer þennan rnánuð, líklega ekki oftar en 5—6 sinnum. Aprfl er þó venjulegast besti fiskimánuðurinn, en oft minna úr því honum sleppir. Reyndar eru hjer all-góðir hlutir hjá nokkrum vjelabátum. Hæst líklega um 16 þúsundir á bát, í sex staða skifti venjulegast. Meðal-afli á bát líklega 7—IO þúsundir. Nokkrir bátar hafa minna. í fljótu bragði virðist þetta hár hlutur, en þess er ekki ávalt jafnframt gætt, sem vera ber, að óvenju-mikill kostnaður hvílir á vjelarbáta-útgerðinni hjer. Og víst er það, að fiskist hjer ekki til muna þann tímann, sem eftir er til „loka", verður ástandið hjer á engan hátt

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.