Lögrétta - 05.08.1909, Síða 2
150
L0GRJETTA.
Lögrjetta kemur út á hverjum miö-
vikudegi og auk þess aukablöð við og við,
minst 60 blöð als á ári. Verð: 4 kr. árg.
á ísiandi, erlendis 5 kr. Gjalddagi 1. júlí.
SuÉkílinn við Skeriaí Srð
u
y í g ð u r.
Sundskálinn, sem Ungmennafjelag
Reykjavíkur hefur gengist fyrir að
koma upp við Skerjafjörðinn, rjett
suður af Skildinganessmelunum, skamt
austan við Garðana, en vestan við
Skildinganes, var vígður I. þ. m. og
var vígsla hans einn þátturinn í þjóð-
hátíðarhaldinu hjer í ár. Fjöldi manna
var viðstaddur vígsluna, og fór hún
vel fram að öllu leyti. Fyrst voru
sungin þrjú fremstu erindin í kvæði
Guðm. Magnússonar, sem hjer fer á
eftir, en síðan flutti H. Hafstein
bankastjóri ræðu þá, sem hjer er
prentuð. Þá voru sungin þrjú síðari
erindi kvæðisins. Að því búnu kom
hópur ungra manna úr skálanum,
steypti sjer á sund fram af skála-
bryggjunni, og syntu þeir þar um
víkina litla stund. Eftir það hófst
kappsund, og fór það eins og sýnt
er í verðlaunaskýrslunni á öðrum stað
hjer f blaðinu. Skemti mannsöfnuð-
urinn sjer vel við að horfa á sundið.
Sögu sundskálastofnunarinnar og
lýsingu á skálanum er að finna í
vígsluræði H. H. hjer á eftir.
Ræða
H. Hafsteins bankastjóra.
Háttvirta samkomal
Stjórn sundskálafjelagsins „Grettii “
hefur falið mjer að segja nokkur orð
til að lýsa vígslu hins nýja sund-
skála, sem nú stendur hjer fullger,
og í dag verður opnaður til almenn-
ingsafnota, á þann veg, að sund-
flokkur Ungmennafjelegs Reykjavík-
ur, ásamt fleiri syndum mönnum
þreytir fynita sundleikinn hjeðan í
augsýn þess mannfjölda, sem hjer er
saman kominn. Síðan getur hver
sem vill átt kost á því, að fá sjer
hjer heilnæmt og hressandi bað í
söltum sjó.
Þörfin á slíkum sundskála eða bað-
húsi við sjóinn í nánd við Reykja-
vík, hefur lengi vakað fyrir ýmsum.
Menn hafa skrafað og skeggrætt um,
hvað það væri ilt og óþolandi að
hafa ekkert slíkt, sjerstaklega þeir,
sem hafa verið nýkomnir heim frá
öðrum löndum, en úr fratnkvæmdun-
um hefur orðið minna, rjettara sagt,
alls ekkert, þangað til Ungmennaýje-
lag Reykjavíkur tók málið í sína
hönd. Á fundi sínum í nóvember-
mánuði síðastliðið haust ákvað það
að reyna að koma sundskála-hug-
myndinni það áleiðis, að skálinn yrði
kominn upp nú í sumar. Og það
hefur haldið orð.
Ungmennafjelagið hefur að öllu
leyti gengist fyrir bygging sundskál-
ans, og sjálft lagt fram ríflega 1/3
byggingarkostnaðarins og þar fyrir
utan landið undir skálann og veginn
að honum. Byggingarstæðið, hálf
dagslátta lands, var Ungmennafjelag-
inu látið í tje ókeypis af eigendum
Skildinganess, og einnig fjekk fje-
lagið endurgjaldslaust að leggja veg-
inn gegnum túnið á Þormóðsstöðum
hjá Þórarni bónda Arnórssyni. Tæpa
2/3 hluta byggingarkostnaðarins fjekk
fjelagið með hlutabrjefasölu meðal
bæjarbúa, og er sundskálinn því nú
eign hlutafjelags, sem Ungm.fjelag
Rvíkur á mestan hlutann í og nefn-
ist „Sundfjelagið Grettir". í stjórn
þess eru: formaður Jón Þ. Sivertsen,
gjaldkeri Sigurjón Pjetursson og auk
þeirra Guðm. landlæknir Björnsson,
Ólafur Rósenkranz leikfimiskennari
og Símon Pjetursson trjesmiður.
Skálinn er 18 áln. á lengd og álm-
urnar auk þess iolj og 1 O/4 álnar;
breiddin þrjár álnir. í honum eru
14 klefar; 12 þeirra eru ætlaðir til
afnota 2 eða 3 mönnum í senn, ef
þörf gerist, en tveir þeirra eru nægi-
lega stórir og rúmgóðir fyrir 5—6
menn hvor.
Kostað hefur skálinn 1500 krónur,
Bryggjan er 100 álna löng og hefur
kostað 30® kr. Hún er ennekkial-
veg fullger, að því leyti, að eftir er
að leggja hana með mottum, sem
gert mun verða sem fyrst. Vegna
þess, hve útgrynni er hjer afarmikið,
þyrfti bryggjan að vera lengri, ef vel
væri, og verður reynt að bæta úr
því seinna, ef þörf krefur.
Vegurinn er 90 faðmar á lengd,
og hafa fjelagsmenn úr Ungmenna-
fjelaginu unnið að honum í frfstund-
um sínum á kvöldin eftir vcnjuleg-
an vinnutíma. Hann er því afar-
ódýr, það því fremur sem ýmsir góð-
ir menn hafa reynst þeim vel með
lán á hestum og vögnum.
Trjesmiðirnir Páll Óskar Lárusson
og Guðmundur Hallsson hafa smíð-
að skálann.
Umsjónarmaður við liann er ráðinn
Páll sundkennari Erlingsson; upp í
kostnaðinn við rekstur skalans er ætl-
ast til að komi aðgöngucyrir fyrir
notkun hans, 10 aurar í hvert sinn
fyrir fullorðna og 5 aurar fyrir börrí,
með töluverðum afslætti, ef kc\ ptir
eru mánaðarmiðar eða suniarinið..r.
Ef tekjur nema ekki útgjöldum, tnun
verða reynt að afla þess, er á vantar,
á annan hátt.
Þannig er þá þetta fyrirtæki á
stofn komið.
Hið gleðilegasta við þessa lengi
eftirþráðu sundskálastofnun er það
tákn tímanna, að það eru æskutnenn-
irnir, ungmennin, sem hjer beitast
fyrir það, að koma verklegu ýyrir-
tœki í framkvœmd. Það hefur ekki
vantað að undanförnu, jafnvel alt síð-
an að farið var verulega að vinna að
endurreisn íslands, að æskulýðurinn
legði orð í belg; ungir menn og ungra
manna fjelög hafa dyggilega tekið
þátt í og jafnvel gengið á undan í
ritsmíðum, eggjunum, aðfinslum, kröf-
um og skáldskap um feðrantia frægð
og framtíðarvonir, yfir höfuð í því,
sem gert er með pennanum eða
munninum. En að æskumennirnir
spenni sig fyrir vagn framkvœmd-
anna og taki verklegan þátt í því,
að koma hugsjónunum út í lífið, það
er tiltölulega nýtt hjer, og það stend-
ur í þessu tilfelli í allra nánasta sam-
bandi við þann nýgræðing í þjóðlífi
voru, sem allra mest má styrkja von-
ina um framtíð íslands og íslendinga,
hinn vaxándi áhuga æskumannanna
á líkamlegum íþróttum, fimleikum og
hverskonar kappi í líkamlegri at-
gerfi.
Allir verða með þakklátum hug að
játa, að það er bæði mikið og gott
verk, sem unnið hefur verið í þjóð-
lífi íslands undanfarna áratugi, alt
síðan Jónas Hallgrímsson og Jón Sig-
urðsson, hver á sinn hátt, ljetu gjalla
lúðurinn, sem enn ómar í eyrum vor-
um, til endurvakningar fornu frelsi,
tungu og þjóðerni, en hins vegar
dylst það ekki, að endurvakningin
hefur orðið nokkuð einhliða, helst
til mikið bókfræðileg og hugræn,
horfandi aftur á bak og fram í tím-
ann, en miður rjett fram fyrir fæt-
urna á sjer. Hið verklega og lík-
amlega hefur orðið á hakanum. Menn
hafa reynt að líkja eftir forfeðrunum
í ýmsu, í málafylgi, í lögskýringum,
í kveðskap og orðfæri. En að í-
þróttum þeirra og líkamsatgjörfi höf-
um við að eins dáðst, síður likt eftir
því. Oss hefur þótt gott til þess að
vita, að vera eftirkomendur svo
vaskra manna, og látið þar við lenda.
Fyrst landi vor, Gunnar á Hlíðar-
enda, gat hlaupið hæð sína alvopn-
aður og Skarphjeðinn stokkið I2áln-
ir yfir Markarfljót milli höfuðísa, þá
þurftum við ekki að hafa fyrir því
að vinna þá frægðina landinu til
handa. Fyrst Kjartan samlandi
vor Ólafsson synti svo vel, að
hann gat kaffært Ólaf konung
Tryggvason sjálfan, þá gerði minna
til, þó við sykkjum eins og steinar
rjett við fjöruna. Það bar á okkur
sundfrægðarljóma frá fornöldinni samt.
Endurminningadraumurinn hefur kom-
ið í staðinn fyrir veruleikann og
borið oss ofurliði. Á sama hátt
hafa framtíðardraumarnir og stórpóli-
tíkin oft borið ofurliði nútímans nauð-
synjastörf til efnalegs sjalfstæðis og
verklegrar viðreisnar. Meðan hinar
og þessar hugsjónakreddur og kenn-
ingar hafa þróast og fest rætur
meira eða minna, hefur landið hald-
ið áfram að blasa upp og skógarnir
að upprætast. Þjóðlíf vort hefur ’
að þessu leyti verið misvaxið,
líkt eins og unglingur með of
stórt höfuð, og of lítinn líkama.
Slíkt er aldrei holt, enda verður þess
ekki dulist, að á síðari tímum hefur
brytt á ýmsum þjóðfjelagskvillum,
öfgasýki í einu og öðru, sem getur
leitt til mikillar hættu. Ur þessum
misvexti á hinn nývaknaði áhugi
æskumannanna á iþróttum og lík-
amsæfingum að bæta. Langt frá því
að rýra hugsjónirnar, hið andlega og
stórhuga, á þetta einmitt að stuðla að
því, að byggja upp hinn nauðsynlega
grundvöll undir það, skapa hin nauð-
synlegu skilyrði fyrir sterkri framþró-
un. Eins oglíkamsæfingarnarherðaog
styrkja líkama einstaklingsins, eins á
sú stefna að styrkja og efla þjóðina í
heild sinni, svo að, einnig að því er
þjóðlffið snertir, verði heilbrigð sál í
heilbrigðum líkama, og eftirfarandi
kynslóð verði betri, sterkari, vitrari
og atkastameiri, heldur en sú, sem
nú lifir. Þetta tekur auðvitað tíma.
En þegar frá byrjun má læra margt
af líkamsíþróttinni, sem væri hollur
lærdómur fyrir vort opinbera líf.
Hver sá, sem keppir við aðra í
löngu hlaupi, sundi eða glímu, kemst
brátt að raun um það, að kapp er
best með forsjá. Hann lærir það
fljótt, að sá sem vill sigra, hann má
ekki oftaka sig á neinu gönuskeiði
eða ofraun, heldur verður hann að
fara jafnt og beint og eiga nokkuð
eftir alla leið að markinu. Hann
Mannflutningar á flóabátum og
strandferðabátum hjer
við land.
Hr. Edílon Grímsson hefur í tveim
síðustu blöðum Lögrjettu skrifað langt
mál um Faxaflóabátinn „Ingólf";
þessar greinar eiga að vera svar til
mín.
Jeg hef átalið, að lífi manna sje
stofnað í voða á mannflutningabátum
við strendur landsins og á flóabátun-
um og á mótorbátum, sem keppa við
„Ingólf" um mannflutninga á Faxa-
flóa; jeg hef lagt sjerstaklega áherslu
á það, að lífsháskinn stafi af ofhleðslu,
björgunartæki sjeu oft einatt ófull-
nægjandi, þegar óvenju margir far-
þegar sjeu með þessum bátum o.
s. frv.
Hr. Edílon Grímsson játar, að það
sje lífshálski, að ofhlaða mótorbátana
með fólki; hann neitar því ekki, að
„Hólar“ hafi stundum farið ofhlaðnir
af fólki frá Austfjörðum til Reykja-
víkur; en hann kannast ekki við, að
neitt sje athugavert við mannflutn-
inga með „Ingólfi" á Faxaflóa.
Það mun nú liggja nærri, að álykta
sem svo, að úr því að ofhiaða megi
aðra báta með fólki, svo voði standi
af, þá megi líka ofbjóða „Ingólfi",
enda þó að Edílon Grímsson „hafi
haft afskifti af útvegun hans og til-
högun“.
sannfærist um, að gætni og hóf-
semi í hvívetna, glögg skynjan á
ástandinu, sem er, snarræði til þess
að grípa tækifærið og þrek og þol
til að fylgja sjer, er einasti vísi
vegurinn til sigurs, og lærir því að
meta hvern unninn sigur eftir því,
hvernig hann er fenginn. En um fram
alt — hann lærir, að leikurinn á að
vera það, sem Englendingar nefna
fair. Hann á að vera heiðarlegur,
undirhyggjulaus, háður í einlægni,
þannig, að keppinautarnir, andstæð-
ingarnir, geti tekist í hendur bæði
fyrir og eftir glímuna. Það ættu
allir ætíð að muna.
Það sem því gleður mig ailra mest,
þegar jeg lít þennan nýbygða sund-
skála, — sem jeg vona að verði sem
flestum til sem mestrar ánægju, holl-
ustu og heilsubótar, — það er það
samband, sem hann stendur í við
hið vaknandi sportslíf hjá hinni ungu
og uppvaxandi kynslóð, og á Ung-
mennafjelag Reykjavíkur hinar mestu
þakkir skilið fyrir þann sýnilegavott
um framkvæmd og dáð, er þessi nýja
stefna vekur. Jeg vil óska þess og
vona, að þessi skáli verði almenn-
ingi að þeim notum, sem til er ætl-
ast, og frumkvöðlum og frömuðum
verksins til þess sóma, sem þeir eiga
skilið.
Að svo mæltu lýsi jeg því yfir f
umboði stjórnarnefndar sundfjelags-
ins Grettis, að sundskálinn er opn-
aður til afnota.
Lengra svar þarf ekki upp á hinar
löngu greinar um Faxaflóabátinn.
En þefta mál er ekki útrætt fyrir
það.
Það væri mikil og hættulegur mis-
skilningur, ef menn færu að trúa því,
að annarstaðar í heiminum væri ekk-
ert eftirlit haft með því, hve margir
farþegar mættu vera með hverju skipi.
Það gæti orðið til þess, að ókunn-
ugir teldu það hótfyndni eina,
að tala um slíkt hjá oss. Þvert á
móti. Um þetta er einmitt nauðsyn-
legt að ræða, því að hjer stöndum
vjer langt að baki annara siðaðra
þjóða.
Þær eiga lög um það, hver skip
mega flytja farpega, og hver ekki;
þar er og fast ákveðið, hve margir
farpegar megi vera með hverju skipi,
og hvert skip skyldað til að hafa
báta og önnur björgunarfœri („Flyde-
grejer) fyrir alla, sem á skipinu eru.
Slík lög þurfum vjer og að eign-
ast.
Meðan vjer eigum þau ekki, er
mjög hætt við, að það geti komið
fyrir hvenær sem vera skal, að stór
slys hljótist af.
Það er sannfæring mín, að undir
eins yrði hlaupið upp til handa og
fóta, að hrynda af stað löggjöf um
þetta, ef verulegt slys bæri að hönd-
um, slys, sem kenna mætti fyrir-
hyggjuleysi í ofhleðslu. En væri
ekki betra að byrgja brunninn áður
en barnið dettur í hannf
Ivvæði
Gnðmundar Magnússonar.
Lag: Sjá, hin ungborna tíð.
Nú er hæli vort bygt, nú er hreystinni trygt
yfir höfuð sjer þak gegnum æskunnar stríð.
Það ber gullaldarbrag, sem vjer gerum í dag,
og vjer gefum þjer ávöxtinn, komandi tíð.
Það bar feðranna orð yfir stórhöf og storð,
hversu strauminn þeir ljeku og brimfallsins rót.
Sjerhver konungleg þraut lagði blóm þeim á braut,
jafnvel björnum á sundi þeir lögðust á móT.
Nú skal frægðaröld ný renna skini um ský,
nú skal skuggunum hnekt voru dáðleysi frá.
Hjer skal djarflega teflt, hjer skal atgervið eflt,
hjer skal ættlera-svipurinn skolast af brá.
Sjá, hjer býður hann hönd, leggur band inn í strönd,
þessi blikandi leikvöllur, kvikandi, tær.
Dröfn, þitt vinfengi’ er valt, fang þitt karlmensku-kalt,
en þín kesknis-bros laða, svo eggjandi skær.
Þar sem fólkið er hraust, er það hugarvílslaust,
þar á heimurinn gnægð, þar er hvervetna byr.
Því er búð þessi reist, þetta bandalag treyst,
að sú blessunaröld megi koma því fyr.
Heill þjer framgjarna sveitl Krýni frægð þennan reit,
þar sem frumherja-vígið þú reisir á strönd.
Marga hamingjuspá er í hylling að sjá,
eins og heiðbjartan jökul við sædjúpsins rönd.
Er of snemt að fara að tala um
þetta nú? Á að bíða þangað til
nokkur hundruð manna hverfa á svip-
stundu í sjóinn.
„Hólar“ heyri jeg sagt að stund-
um hafi flutt í haustferðum sínum
c. 500 manns frá Austfjörðum til
Reykjavíkur, eða Faxaflóa. Þetta
hefur slampast af. En hvernig hefði
nú farið, ef skipið heíði fengið óvið-
ráðanlegt veður fyrir sunnan land,
og orðið fyrir margra daga — eða
jafnvel vikna — hrakningi? Ætli það
hefðu ekki orðið slæmir dagar, meðal
annars sakir vistaskorts og vatns-
skorts, þó að öllum yrði að lokum
bjargað til lands?
Faxaflóabáturinn „Ingólfur" hef jeg
heyrt sagt að flutt hafi alt að 300
manns í einni ferð til Borgarness.
Báturinn er ekki svo stór, að líklegt
sje, að það sje tryggilegt, að hlaða
hann svo mörgum mönnum, ef nokk-
uð yrði að veðri. Og björgunarbáta
og björgunarhringi hefur hann vart
fyrir svo marga menn. En það mundi
honum gert að skyldu, að hafa ein-
hver björgunarfæri fyrir alla farþega,
ef lög væru til um slíkt.
„Varanger", flóabát Bteiðafjarðar,
hef jeg sjeð fara með fjölda nianns
frá Stykkishólmi og renna upp á sker
í logni og albjörtu veðri. Slíkt get-
ur viljað til, þó að duglegir og gætnir
menn eigi í hlut. Og hvað varð
nú þar til bjargar? Það, að hann
hafði af tilviljun stórt róðrarskip í
eftirdragi, sem hann var að flytja
þar hafna milli.
Hver, sem ferðast með opin augu,
verður að sjá, að það er ekki van-
þörf að hafa vit fyrir fólkinu. Það
er ekki mikið sagt með því, þó að
sagt sje, að ekki sje hættulegra að
fara með „Ingólfi" til Borgarness,
heldur en „að fara í misjöfnu veðri
út í skip á Reykjavíkurhöfn". Ein-
mitt á höfnum við ísland hafa menn
oft í hugsunarleysi stofnað lífi sínu
og annara í voða — og einmitt með
því, að ofhlaða báta með fólki.
Hjer í Reykjavík hafa nokkrir menn
atvinnu af því, að flytja farþega milli
skips og lands; þeir geta haft freist-
ingu til þess að taka of marga í bát-
inn sinn fyrir ávinnings sakir. Væru
þetta lögskipaðir ferjubátar til mann-
flutninga, væri og sjálfsagt að setja
takmörk fyrir því, hve marga farþega
hver bátur mætti taka í hverri ferð.
Þó að ekki væri á annað að líta
en það, hve dýrt mannslífið er, þá
er það víst, að vjer höfum ekki efni
á að spila í „lotteríi" með það meira
en nauðsyn er á.
Landsjóður leggur talsvert fje til
strandferðabáta og flóabáta, einkum
vegna mannflutninganna.
Getur nokkrum manni blandast
hugur um, að það sje rjettmæt
krafa til stjórnar og þings, að ije
þetta sje ekki veitt án alls tillits með
því, hvernig þessir mannflutningar
eru leystir af hendi? Er ekki sjálf-
sagt að setja með lögum svo tryggi-
leg ákvæði sem kostur er á fyrir
því, að fjenu verði ekki varið til þess
að drekkja ferðafólki, heldur að mann-
lífinu sje sem best borgið að verða
má?
Svo langt erum vjer komnir, að
vjer höfum sett sæmilegar og þarfar
lagaákvarðanir um útflutning hrossa,
um fiutning hrossa á sjó, svo að þeim
sje ekki bráður bani búinn af fyrir-
liyggju'eysi þeirra, sem með eiga að
fara. Hrossakaupmönnunum hefur
sjálfsagt verið fremur illa við þau
lög. En þau eru alt að einu þörf
og mannúðleg.
Gera má og ráð fyrir, að einhverj-
um útgerðarmönnum strandferðabáta
og flóabáta hjer við land kunni að
þykja óþarfi, að löggjafarvaldið skifti
sjer af því, hve marga menn þeir
flytja á skipum sfnum; en jeg
ætla nú samt sem áður að láta
það verða mitt seinasta orð í bráð-
ina um þetta mál, að skora á
landstjórnina að undirbúa til nœsta
þings lög, er trgggi svo sem auðið
er líf manna á farþegaskipum með
ströndum fram og á flóabátum,
í líkingu við það, sem gert er með
öðrum siðuðum þjóðum.
Jón Pórarinsson.