Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 10.11.1909, Síða 3

Lögrétta - 10.11.1909, Síða 3
L0GRJETTA. 207 vindillinn í bænum er »E1 Carancho«; fæst aöeins í Tóbaksversl- un R. P. Leví, Austurstr. 4. svo vel, að Björn gerði landinu ekk- ert tjón þann tíma, sem hann var á Hálsi. Ef hægt væri að finna fleiri menn, sem færir væru um að gæta hans svo, að hann gerði engar vit- leysur, þá væri vel gefandi fyrir það stórbýli á hverjum mánuði. Líklega fer enginn að fetta fingur út í það, þótt ráðherra hafi með þessari sölu brotið þjóðjarðasölulög- in. Það er löggiltur verslunarstaður þarna á Hálsi, en þær jarðir, sem svo er ástatt um, má ekki selja nema með sjerstökum lögum. Fái hann átölulaust að brjóta fjárlögin fyrir útlent gróðafjelag og Hka fyrir Bjarna frá Vogi, þá verður víst ekki farið að amast við því, þó hann hafi brotið þjóðjarðasölulögin fyrir ann- an eins sæmdarmann og Þórð gamla á Hálsi. Smjörvarslunin Laugayeg 22, Talsími 284, Selur: Margarine frá 43 a. pd., Svínafeiti, Plöntufeiti, Smjör og Egg, afaródýr. Smjörverslunin kaupir einnig íslenskt Smjör og Egg fyrir peninga strax. Talsími 284. Hjörtur A. Fjeldsted. ÍJthlutun landsjódsstyrks til barnafrœðslu 1908—9. 1. Til kaupstaðaskóla: Reykja- vík 3184 kr., ísafjörður 893 kr., Ak- ureyri 732 kr., Hafnarfjörður 671 kr., Seyðisfjörður 520 kr. 2. Til fastra skóla utan kaupstaða : Víkur-Eyrarskóli 365 kr., Litla- Hvams og Deildarár 360 kr., Vest- mannaeyjar 600 kr., Eyrarbakki 600 kr., Grindavík 350 kr., Hafnir 200 kr., Miðnesskóli 330 kr., Garður og Leira 500 kr., Keflavík með Njarð- vík 420 kr., Vatnsleysuströnd 400 kr., Álftanes 385 kr., Seltjarnarnes 400 kr., Skipaskagi 585 kr., Borgarhrepp- ur 310 kr., Ólafsvík 480 kr., Hellu- sandur 340 kr., Stykkishólmur 450 kr., Patreksfjörður 325 kr., Bíldu- dalur 360 kr., Þingeyri 440 kr., Núp- ur í Dýrafirði 325 kr., Hóll í Bolung- arvík 500 kr., Hnífsdalur 365 kr., Suðureyri 250 kr., Súðavík 350 kr., Blönduós 255 kr., Sauðárkrókur 455 kr., Óslandshlíð 255 kr., Siglufjörð- ur 360 kr., Ólafsfjörður 425 kr., Hrfsey 200 kr., Grímsey 220 kr., Húsavík 475 kr., Vopnafjörðar 355 kr., Eskifjörður 400 kr., Djupivogur 290 kr., Búðaskóli 380 kr., Látra- skóli 3SOkr., Hesteyrarskóli 255 kr., Flateyri 335 kr. Frá [játiÉi til iiila. Póstafgreiðslumenn eru nýskip- aðir: í Reykjavík Ole P. Blöndal, áður póstskrifari, í stað Guðna Eyj- ólfssonar; á Blönduósi Böðvar Þor- , láksson skrifari, f stað Gísla ísleifs- sonar sýslumanns; í Keflavík ólafur J. . A. Ólafsson verslunarmaður; á” Vopnafirði Einar Runólfsson síma- stjóri. Um skipun póstafgreiðslumannsins í Keflavík hefur Lögr. heyrt það, að hún sje gerð þvert ofan í tillögur póstmeistara, en maðurinn, sem skip- aður er, er unglingur, sonur Arn- bjarnar Ólafssonar, undirtyllu stjórn- armanna við kosningar þar suður á nesinu. Blaðið »Vestri« er selt hlutafje- lagi á ísafirði. Stjórnmálastefna þess verður framvegis hin sama og áður. Slysið í Yík í Mýrdal. Menn- irnir tveir, sem druknuðu af vjelar- bátnum, sem sleit þar upp í síðastl. mánuði, hjetu Sigurgeir Jónsson og Magnús Ásgeirsson, báðir úr Vest- mannaeyjum. Reykjavík. Kvikmyndasýningarnar í Báru- búð hafa verið vel sóttar, enda eru myndirnar góðar. Ásgrímur Jónsson málari er kominn hingað til bæjarins og dvel- ur hjer í vetur. Bókaþjófnaður hefur nýlega orðið uppvís hjer í bænum og maður verið tekinn fastur fyrir hann. Hann hafði stolið nýjum bókum og sett þær á uppboð. Punt er svar ráðherra (eða lepps- ins) í ísaf. á laugardaginn upp á grein- ina f síðasta blaði Lögr. „Görnul gremja". Það er auðheyrt, að hann vill helst eyða öllu umtali um það mál. »Yesta« kom hingað í nótt frá Stykkishólmi og fer áleiðis út í kvöld, en atti að fara 4. þ. m. Hún beið »Skalholts« á norðurleið f Stykkis- hólmi allan þann tíma, 8 daga, átti að taka úr því vörur og kom hing- að með farþega þess og póst. »Skál- holt« hafði síðan farið inn á Breiða- flóa og er það orðið löngu á eftir áætlun, átti að koma hingað 28. f. m. "VIÐ undirritaðir tann- læknar í Reykjavík gerum kunnugt, að við tökum kr. 80,00 fyrir að búa til heila tanngarða (þar í innifalinn tann-útdráttur, án »deyfing- ar«. Hafi aðrir en við dreg- ið út tannirnar, er verðið kr. 70,00). V. Bernhöft. Br. Björnsson. dunéur í „c&ram" laugardag 13. þ. m. í Góðtempl- arahúsinu kl. 8V2 síðd. Umræðu- efni: Fjárhagur landsjóðs. Svört silkisvunta tapaðist f gærkvöld á leið frá Laufásveg 4, eftir Lækjargötu og upp á Laugaveg. Skilist á Laufásv. 4. Peningar fundnir. Rjettur eig- andi vitji í Tóbaksverslunina, Austurstr. 4. Pakkarúyarp. Þau höfðingshjónin Sigurður Ólafsson sýslumaður í Kaldaðarnesi og kona hans önnuðust með ástúð og stakri umhyggju Pálma sál. Erlendsson í hans löngu og ströngu banalegu á heimili þeirra og gerðu útför hans veglega, án þess að þiggja nokkurt endurgjald fyrir allan þann kostn- að. Fyrir þenna dæmafáa drengslcap og göfuglyndi þökkum við með hrærðu hjarta þessum ágætis hjónum, um leið og við vottum þeim ölium þakklæti okkar, er á einn eða annan hátt auðsýndu hinum látna ástvin okkar velvild í veikindum hans. Drottinn launi þeim öllum af ríkdómi náðar sinnar fyrir mannkærleika þeirra. Kona og b'órn hins látna. MONIÐ EFTIR Ágætir SkautaF (einir) til sölu. Tækifæriskaup. Ritstj. ávísar. Nýkomíð stærsta úrval K.aplmanns- Kaingarns* Ungllnga- Forwiingar- l>rong|a- Föt allar stærðir frá 16 tr. svört og misl. — 27—40 - M 9,50-35 - trá 14-25 - allar stæröir frá 3,50 —15 - 'VetrarfraKkar «k Vetrarjakkar. PSHÝTT! NÝTT! Stormjakkar handa konum og körlum til að nota við iþróltir, veiðifarir og íerðalög, vatnsheldir, vindheldir, ljettir og þægilegir. ómissandi læknum, sýlsumönnum, verkfræðingum og öðrum, er rnikið þurfa að ferðast eða vera úti. lírjiims verslun „Hamborg“, Talsíini 41. Aðalstræti O. Alveg er það 18) jdæmalaust, hve ódýrt er = á útsolunni = h j á Jónatan Lorsteinssyni. Slíkt er alveg óþekt hjer áður. Par geta menn fengið uppbúin rúmin fyrir ótrúlega lágt verð. Stenður að eins þessa viku. “gse. Hraðið ykkur meðan úr nógu er að velja. Pað verður ekki aftur tekið, ef þjer komið of seint. 156 ji53 »Hann deyr ekki, faðir minn«, svar- aði Rebekka og losaði sig. »Hann deyr ekki, ef við tökum hann. En ef hann er látinn liggja þarna lengi, þá deyr hann, og við erum þá sök í þvi, bæði fyrir guði og mönnum«. »Já«, sagði ísak. »Migtekur það sárt, að sjá hann liggja þarna dauðvona, og jeg veit, að vel má vera, að þú getir læknað hann. Gerðu eins og þjer sýn- ist; þu ert góð stúlka«. ótti ísaks gamla við það, að láta Rebekku ríða með sjer til Ásbæjar, var ekki ástæðulaus. Á leiðinni þangað sá Brjánn frá Bósagiljum hana fyrst, og hefur þegar verið skýrt frá afleið- ingunum. Þegar komið var með burðarstólinn heim til þeirra ísaks og Rebekku, ljet hún bera hann inn í herbergi þeirra, ransakaði sjálf sár ívars og batt um það. Rebekka var vel upp alin. ísalc hafði látið kenna henni allar þær fræðigreinir, sem mest vort metnar hjá Gyðingum, þar á meðal lækningafræðina, og hafði Rebekka fengið tilsögn í henni hjá gamalli konu, sem var dóttir nafnfrægs lækuis. Lækniskunnáttan var á þeim dögum talin mjög leyndardómsfull, og var það kunnugra mál, að Rebekka hefði numið ýmislegt af gömlu kon- unni, sem hún hefði engum öðrum kent, því hún hafði haft mjög miklar mætur á Rebekku. ívar hlújárn var meðvitundarlaus af blóðmissinum, þegar komið var með hann heim til þeirra ísaks og Rebekku. Þegar Rebekka hafði bundið um sárið, ljet hún föður sinn vita, að lífi gests- ins væri ekki hætta búin, ef rjett væri með hann farið, og sagði, að hann mundi án efa geta farið með þeim til Jórvikur næsta dag. ísak tók þeim frjettum fálega. Hann hafði ekki ætl- að, að flytja sjúklinginn heim með sjer, heldur að koma honum fyrir í Ásbæ, fá mann til þess að annast hann, meðan hann væri sjúkur, og borga kostnaðinn. Þessu mótmælti Rebekka og færði fram ýmsar ástæður. Tvær af þeim þótti föður liennar einkum ihugunar verðar. Önnur var sú, að hnn mætti ekki fá öðrum í hendur flöskuna með lyfi þvi, sem hún not- aði, því þá kæmist upp, hvernig það væri búið til. Hin var sú, að særði riddarinn hetði mikla hylli Ríkharðs konungs ljónshjarta, en þar sem ísak hefði nú lánað Jóhanni prinsi fje til þess, að rísa móti Rikharði, þá mundi vera gott, ef konungur kæmi heim, að eiga verndarmann, sem mætti sín mik- ils hjá honum. »Þetta er rjett athugað, Rebekka«, sagði ísak og fjelst á hennar mál. fvar riddari fjekk ekki meðvitundina aftur fyr en seint um kvöldið. Hann hafði sofið órólega, en vaknaði þá. Hugsanir hans voru í fyrstu mjög á reiki, eins og gerist, þegar menn vakna eftir meðvitundarleysi. Hann mundi i fyrstu ekkert eftir tildrögunum til þess, að hann hnje niður á leiksviðinu, og mjög óljóst ettir hinu öllu, sem gerst hafði fyr um daginn. Alt var Lngíisaxnesku fangarnir vbru nú leiddir burt, en rjett á eftir var komið inn í herbergið með munkinn. Hann virtist vera hræddur og utan við sig. »Heilaga guðs móðir«, sagði hann og leit til riddaranna, »loks er jeg þá óhultur og kominn undir þak kristinna manna«. »Já, óhultur ertu«, svaraði Breki. »Og um kristindóminn hjerna er það að segja, að þarna stendur þú nú frammi fyrir hinum ágæta riddara Reginvaldi uxaskalla, sem alkunnur er fyrir hatur á Gyðingum, og þarna er Brjánn musterisriddari frá Bósagiljum, sem hefur valið sjer það lífsstarf, að afhöfða Serki«. »Þið eruð vinir og fjelagar hins á- gæta guðs vinar, Ýmis ábóta frá Jörfa«, sagði munkurinn, án þess að skeyta um hæðnistóninn i svari Breka. »Ykkur er skylt að hjálpa honum, bæði vegna riddaraheitis ykkar og svo af kristi- legum bróðurkærleika«. Munkurinn hjelt langa guðíræðistölu, blandaða með latneskum klausum. »Segðu okkur formálalaust, prestur minn, hvað komið hefur fyrir Ými ábóta«, sagði Brjánn og greip fram í fyrir munkinum. »Hefur hann verið handtekinn, og hverjir hafa gert það?« »Hann hefur verið handtekinn af þeim herjans þjónum, sem hafast við hjer í skógunum«, svaraði ir.unkurinn. »Ekkert skeyta þeir um, þótt þeir brjóti ritningarinnar helgu boð, því þar stendur: »Legg ekki hönd á drott- ins smurða og ger ekki spámÓnnuM mínum neitt ilt«. »Svona eru þessir prestar«, sagði Reginvaldur; »altaf eru þeir upp á aðra komnir. í stað þess að veita okkur lið, þarfnast nú ábótinn frá Jörfa hjálpar frá okkur. En dragðu okkur ekki lengur á erindi þínu, prestur, en segðu undir eins, hvers ábótinn væntir af okkur«. »Með þínu góða leyfi skal jeg þá gera það«, svaraði munkurinn. »Þessir herjans þjónar rjeðu á ábótann og lögðu hönd á hann, þvert ofan í bann heilagrar ritningar, eins og jeg hef áð- ur sagt. Þeir rændu farangur hans og tóku frá honum tvö hundruð mörlc í hreinu gulli, en þar að auki heimta þeir af honum háan lausnareyri. Nú biður ábótinn ykkur að frelsa sig', annað hvort með því að borga fyrir sig gjaldið, eða þá með vopnum«. »Fjandinn sjálfur hjálpi honum í minn stað«, sagði Reginvaldur. »Hann hefur líklega drukkið fullmikið í morg- un. En hefur húsbóndi þinn, munkur sæll, nokkru sinni hevrt þess getið, að aðalsmenn Normanna hjer á Englandi hafi lagt fram fje í lausnareyri fyrir klerka, sem eru tíu sinnum ríkari en þeir sjálfir? En með vopnum getum við ekki frelsað hann. Við erum hjer inniluktir af óvinum, sem eru tíu sinn- um fjölmennari en við,- og^getum bú- ist við áhlaupi á hverri stundu«. »Jeg ætlaði einmitt (Tíka, að; segja ykkur frá því, ef þið hefðuðgefið mjer

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.