Lögrétta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Lögrétta - 11.12.1909, Qupperneq 2

Lögrétta - 11.12.1909, Qupperneq 2
228 L 0 G R.I E T rl A. Lögrjetta kemur út á hverjum mið- vikudegi og auk pess aukablöð viö og við,- minst 60 blöð als á ári. Verð: 4 kr. árg.- á íslandi, erlendis 5 kr. Gjalddagi 1. júlí. En hver er tilgangurinn með báflka- skuldabrjefum Landsbankans? Tilgangurinn með að veita Lands- bankanum lagaheimild til að gefa út bankaskuldabrjef með ábyrgð Land- sjóðs þannig til komin, sem að ofan er tekið fram, var sá, að reyna að bæta úr peningaþrönginni hjer á landi og fá erlent fje inn í landið. — Al- . þingi 1907 sá þá ekki annað ráð vænna til að auka starfsfje Lands- bankans, og sjerstaklega draga að bankanum fje frá útlöndum, en að heimila honum útgáfu slíkra skulda- brjefa, og til þess að gera þau sem útgengilegust, lagði landsjóðnr fram ábyrgð sína bœði fyrir öllum höf- uðstól brjefanna og vöxtum af þeim. Þetta gerði brjefin sjerstak- lega verðmæt og Hkleg til sölu á er- lendum markaði, svo framarlega sem útlendingar hefðu nokkra trú á ábyrgð landsjóðs. Heimildin til útgáfu bankaskulda- brjefa þessara er mjög mikils virði fyrir Landsbankann, og þá ekki síður fyrir landsmenn. Bankanum er gert það mögulegt, að fá stórfje inn í landið og verja því til hagkvæmra útlána, og bankinn er ekki skyldur að borga neitt af fje þessu fyr en að 5 árum liðnum; þá fyrst á hann að leysa til sín V20 hluta á ári. Það gerir hann með afborgunum frá lands- mönnum af lánum þeim, sem and- virði bankaskuldabrjefanna er varið til, að sínu leyti eins og með banka- vaxtábrjefin. Bankinn er sem sje hvað banka- skuldabrjefin snertir milliliður milli landsmanna og útlendinga þeirra, er brjefin eignast, en getur sjálfur haft stóran hag af viðskiftum þessum beinlínis og óbeinlínis. Bankaskuldabrjefin hafa ekkertverð, segir ísafold, fyr en búið er að kaupa þau (0: bankinn búinn að selja þau) og þá aukast skuldir bankans sem þeim nemur. Þetta - er að vissu leyti rjett, en hjer er ekki nema hálfsögð sagan, eins og hjer stendur á. Skuldir bankans aukast að því leyti til við sölu bankaskuldabrjef- anna, að hann tekst á hendur að leysa brjef þessi til sín aftur eftir langan, tiltekinn tíma, svo sem fyr er sagt. En um leið og bankinn selur brjefin, eignast hann andvirði þeirra og eykur þannig eignir sín- ar um þá upphœð. Þetta gildir jafnt hvort heldur sem bankinn brúk- ar andvirðið til að borga með, eldri skuldir eða ver því til útlána. Um þetta þegir ísafold, þegar hún setur upp dæmið í 81. tölublaði. Bankaskuldabrjefin eru seld. Það er á allra vitorði, enda hefur ísafold haldið því allra blaða best á lofti, að íslandsbanka hafi verið falin sala á brjefum þessum á síðastl. vetri og að bankastjóra Schou hafi tekist að selja þau í utanför sinni fyrir mjög gott verð. Þessa getur ísafold ekki nú, eins og þó hefði vel mátt gera, ef það hefði „passað í kramið". — Bankaskuldabrjefin eru sem sje sögð seld með þeim skilmála, að sú 1 ‘/2 milj. af brjefum þessum, sem ekki er þegar borguð, skuli borgast í þrennu lagi: 11. desbr. 1909, il.júníog 11. desbr. 1910. Nú gæti svo hugsast, að kaupandi brjefanna, eftir alt það, sem nú er verið að prjedika, færi að láta sjer detta í hug, hvort hann hefði ekki verið hálf-gabbaður á kaup- unum og hvort ekki myndu tiltök að sleppa við kaupin á þvf, sem ó- borgað er af brjefum þessum, sem eftir kenningu sjálfs ráðherrablaðsins væru »ekki verðbrjef, heldur að- eins einhliða skuldbindingar(( bank- ans eins, sem þannig væri ástatt með, að varasjóður hans væri veð- settur, ólöglega þó, og sem eigi hefði verið stjórnað betur en svo, að margra ára forstjórum hans hefði þurft að vfkja frá, öllum í einu, með þeim fagra vitnisburði, sem þeir hafa fengið við frávíkninguna! Þá spillir það heldur ekki til, að ráðherrablaðið gefur í skyn að verið geti, að leggja þurfi háan nef- skatt á þjóðina tíl að gera landsjóði unt að reisa bankann við. — Það er svo sem til að gera það tryggara í augum erlendrakaupenda bankavaxta- brjefanna, hve mikils virði ábyrgð landsjóðs sjel Jeg geri ráð fyrir, að það vaki ekki fyrir ráðherrablaðinu ísafold með „skrifum" sínum um bankaskulda- brjefin, að firra landsjóð, ef.til vill, ábyrgð, sem gæti verið hættuleg fyrir hann, ef Landsbankinn væri svo á heljarþröminni, sem ísafold prjedikar, beinlínis og óbeinlínis. Jeg þykist vita, að ísafold detti slíkt ekki í hug. En því er þá verið að vekja upp þá drauga, sem ómögu- legt getur verið að kveða niður og geta riðið lánstrausti alls lands- ins að fullu um langan, ókominn tíma? ísland má ekki við slíkum aðförum. A. sem burtrekstur hennar var bygður á. Niðurl. Ákærurnar undir staflið 4—5—7 eru ósannaðir sleggjudómar um lán- veitingar og skuldaheimtur Landsb.- stjórnarinnar. — Meðal annars er þar sagt að »sjálf- skuldarábyrgðarlán hafi yfirleitt verið mjög vanrœkt og ekki gengið eftir þeim árum saman. Víxillán og sjálfskuldarábyrgðarlán oft veitt mönnum, sem allir vissu að ekki áttu fyrir skuldum, og ekki hirt um innheimtu fyr en komið var í óefni, og einu sinni fleygt í mála- fœrslumann í einni dembu 150,000 krónum«. Að vanrækt hafi verið, að inn- heimta árum saman, eru ósannindi á hœðsta stigi. Það hefur verið í 16 ár föst regla bankastjórnarinnar, að koma saman 3—4 sinnum á ári, til þess, að fara yfir allar lánsbækur bankans og víxla, og skrifa upp á lista allar skuldir, sem ekki voru greiddir á rjettum tíma, eða samið um framlenging á. Þegar svo var búið að semja þessa svokölluðu „svörtu töflu" yfir fasteignalán, ábyrgðarlán og víxla, sem í vanskilum voru, ljet bankastjórnin skrifa skuldakröfu öll- um þeim, sem í vanskilum voru. Þeim, sem hvorki borguðu nje svör- uðu, var svo skrifað í annað sinn, ogþegar þeir ekki heldur borguðu nje svöruðu þá, var skuldakrafan afhent malafærslumanni. Þetta hefur verið föst regla síðan jeg kom til bankans, og svo geta aðrir dæmt, hvort það er satt, að bankastjórnin yfirleitt árum saman hafi vanrœkt að ganga eftir skuldum. Þau mörg hundruð manna, sem hafa fengið skuldakröfur bankans, munu fús til að sanna það, að ráð* herra fer hjer með bein ósannindi, sem verða að rógi, þegar hann símar þau og auglýsir þau út um alt land á bak við bankastjórnina. Jeg vona, að sú verði reyndin, að slfk ummæli og fleiri, sem B. J. hefur sagt um bankastjórnina, falli ekki niður bótalaust. Hann er bú- inn að rita, auglýsa og síma; nú á hann eftir að sanna. Sem sýnishorn af trassaskap banka- stjórnarinnar segir B. J. að hún hafi látið afsagða víxla og ábyrgðarlán drasla þangað til að hún hafi fleygt »í einni dembu 150,000 kr.« skulda- kröfum f málfærslumann. Hjer hlýtur að vera átt við hr. Eggert Claessen, því hann er sá eini málafærslumaður, sem hefur haft til meðferðar skulda- mál Landsbankans, síðan 1904, og getur hann borið um það, að þetta eru ósannindi, því honum hefur al- drei verið afhent í einu lagi frá bank- anum Ián (önnur en víxla) fyrir hærri upphæð en 36 þús. kr. og þar af voru 6 lánin 22 þús. kr., og aldrei af- hentir víxlar í einu lagi fyrir hærri upphæð en 28 þús. kr. og var þar af einn víxillinn 11,500 kr. — Yfir höfuð veit B. J. ekkert um störf bankans, nema það, sem lapið er í hann af mönnum, sem segja það helst, sem hann vill heyra*. Af eigin sjón og ransókn getur hann ekkert sagt um bankann. Þess vegna mun það vera dómur allra sanngjarnra manna, að B. J. mátti engan úrskurð leggja á málið, fyr en hinum málspartinum — banka- stjórninni — var gefinn kostur á, að koma fram með sínar upplýsingar og varnir. Svo hefði hver sá maður gjört, sem vildi samviskusamlega og hlutdrægnislaust beita valdi sínu, og ekki misbrúka stöðu sína. Oft hefur B. J. verið að lýsa í ísafold af honum tilbúnu litla Rúss- landi. En nú er hann að búa til stóra Rússland. Öll aðferð hans í bankamálinu lfkist stjórnarfarinu í gamla Rússlandi, þegar það er sem verst. Fyrst eru fengnir menn til þess að leita upp sakagiftir, og nokkrar spinnur hann lfklega sjálfur upp; annar málspartur ekki heyrður, engin vitni eru fram leidd, engar löggildar sannanir, — og svo er dómurinn feldur. Aðför er gjörð að bankastjórunumeins °g glæpamönnum, komið að þeim óvörum og heimtað, að peningar allir sjeu afhentir samstundis, og svo er stjórnin öll rekin út. Þar næst er kramsað ofan í peningakassa lands- ins, til þess að taka þar borgun fyrir að sfma ósannar sakagiftir út um Iandið og til útlanda. Sumir halda, að B. J. sje að reyna að verða smáútgáfa af Rússakeis- ara, eða Neró, ef hann fær að halda völdum nógu lengi. í 8 ákæruatriðum er ráðh. að rita um, að »bankastjórnina vanti bráð- nauðsynlegar bœkur, og sumar, sem hún hafi, sjeu í mestu ó- reiðm. Engar af bankabókunum hefur B. J. sjeð, og hefði ekki vit á þeim, þó hann sæi þær. Jeg neita, að þetta sje satt, en fjölyrði ekki um þetta af því, að bráðlega er von á banka- fróðum mönnum, sem hafa vit á bók- færslu, svo rjettast er að bíða eftir þeirra ummælum. En um vöntun bráðnauðsynlegra bóka, veit jeg ekki hvað B. J. meinar, nema ef vera skyldi gjörðabók, sem hann byrjaði á alþingi að gala um, og hefur síðan í sumar og haust skrifað bankastjórninni um 5—6 brjef. En þessi gerðabók er hvergi fyrir- skipuð og B. J. hefur ekki vald til að skipa fyrir um hana, og auk þess er þetta svo einskis vert atriði, að jeg nenni ekki að skrifa um það. Það er aðeins fyrir krakka aÁ kíta um slíkt. Jeg býst við, að sumum þyki jeg vera nokkuð harðorður í greinum mínum við mann í hárri stöðu, en jeg er viss um, að „ísafold" hrósar mjer fyrir það; hún er iðulega að hæla sjálfri sjer fyrir það, að hún taki í lurginn á höfðingjunum og fari ekki í manngreinarálit. — Lögin eiga að ganga jafnt yfir alla segir hún. — Já, bara að ísafold geti kent ráð- herranum þessi fáu orð: — Lögin eiga að ganga jafnt yfir alla. Því sem stendur eru tvenn lög í land- inu, önnur fyrir vinina, hin fyrir óvinina. Jeg er sannfærður um það, að ef jeg hefði verið upphaflega Valtýing- ur, og svo trúlega fylgt B. J. í gegn- utn þykt og þunt í hans höfuð- sóttarhringiðuhringlandi-stórpólitík, eins og sumir þeir, sem nú standa lfkir ljósahjálmum á háborði ráðherr- ans, þá stæði nú í „Isafold" með feitu letri, að engum banka á Norð- urlöndum hefði undanfarin ár verið stjórnað jafn vel og Landsbankanum, — það er að segja, ef B. J. þættist þurfa að brúka bankann og mig. Sem ráðherra hefur B. J. ekki að- eins gert landinu minkun með þessu áhlaupi á bankann, ásamt fleiri stjórn- arstörfum, og eyðilagt lánstraust bank- ans um nokkur ár, heldur hefur hann eyðilagt sjálfstjórnarmál landsins, sem hann eitt í.inn ljest berjast fyrir. Menn í útlöndum hljóta að segja: „Hvernig á sú þjóð að geta stjórnað sjer sjálf, sem ekki er meira þrosk- uð en svo, að veljæ svona mann í valdamestu, æðstu stöðu landsins, og heldur blöð, sem forsvara yerk hans"? Tryggvi (funnarsson. Landsbankinn. Gæslustjórar Landsbankans. Ráöherraábyrgðin. Þegar hr. Björn Jónsson vjek gæslustjórum Landsbankans frá sýslan sinni, þá var frávikningin endanleg. Svo var hún birt í tilkynningunni alræmdu, sem fest var hjer upp á götunum 22. nóv. þ. á. Svo er þessi illræmda ráðstöfun ráðherra auglýst í Lögbirtingablaðinu 47. tbl. þ. á. og í B-dei!d Stjórnartíðindanna bl. 202. þ. á. Það er því Jenginn efi á því, að hr. B. J. hefur ætlast til, að frávikning þeirra væri ekki ein- ungis til bráðabyrgða, heldur cnd- anleg og ðafturtæk fyrir allan tímann, þar til þingið getur kosið af nýju gæslustjóra handa Landsbank- anum. Vjer skulum nú athuga lagaheim- ild ráðherra til þessarar stjórnarráð- stöfunar. Samkvæmt lögum um stofnun Landsbanka 18. sept. 1885, IV. kap., 20, gr., gat landshöfðingi, en ráðherra er nú að þessu í landshöfðingja stað, vikið gæslustjórum Landsbankans frá um stundarsakir. En í þeim lög- um, sem nú gilda, I. nr. 12. 9. júlí 1909, I. gr. 2 mgr. er sagt, að ráðherra geti vikið bankastjórum frá um stundarsakir eða að fullu og öllu. L. 1909 8. gr. nemur að öliu úr gildi IV. kap. áðurnefndra laga 1885 og þar með heimildina til að víkja gæslustjórum frá um stundar- sakil'. En með því að lög 1909 ganga iyrst í gildi 1. jan. 1910, þá hafði ráðherra að forminu til heim- ild til að víkja gæslustjórum frá, eftir 1. 1885, um stundarsakir. Það er þá enginn ágreiningur um það, að frávikningin getur gilt til nýárs næstkomandi. En svo er spurningin, hvort ráðherra hafi ekki hlaupið ónotalega á sig með því að reka gæslustjóra frá að fullu og öllu, með því * að ætlast til þess, að frá- vikningin gilti líka eftir I. jan. 1910. Ráðherra hefur sem sje — auk þess, sem frávikningin er fullskýr í orða- lagi sínu — ek.ki mótmælt því, að þetta sje og hafi verið tilætlan sín. Þar sem nú fyrnefnd 1. 1909 I. gr. veitir ráðherra rjett til að víkja bankastjórum frá um stundarsakir eða að fullu og öllu, þá er spurning- in sú, hvort gœslustjórarnir falli undir þetta ákvæði. Þessu má ó- hikað svara neitandi, því að orðið »bankastjóri(( þýðir alstaðar í 1. 1909 þá forstjóra bankans cina, sem ráðherra skipar, en alls ekki gæslustjórana tvo, sem þingið velur. Þetta skal nú sýnt og sannað. L. nr. 12, 1909,- 1. gr. 1. mgr. segir: »í stjórn bankans eru tveir bankastjórar, er ráðherra skipar, og tveir gœslustjórar, er kosnir sjeu sinn af hvorri deild alþingis til 4 ára í senn«, og 1. gr. 2. mgr. segir: »Ráðherra getur vikið bankastjórum frá um stundarsakir, öðrum eða báð- um«. Þetta sýnir, að hjer getur ekki verið átt við aðra en banka- stjóra þá, er ráðherra skipar, en alls ekki við gæslustjórana. 3. gr. 1. 1909 segir: „Bankastjórar ann- ast daglég störf bankans, og stýrá þeim með aðstoð gæslustjóraí£ og: „Nákvæmari fyrirmæli um sambandið milli bankastjóra sín í milli og bankastjóra og gæslustjóra verða ákveðin í reglugjörð, er ráðherra setur". 4. gr. segir: »Bankastjórar skulu undirskrifa, svo að skuldbindi bankann" o. s. frv., en 4. gr. 2. og 3. liður sýna glögt, að hjer er að- eins átt við þá forstjóra bankans eina, sem ráðherra skipar, því að í 2. lið segir: „Fjehirðir bankans má eigi greiða neina tjárhæð úr bank- anum, sem samþykki bankastjórnar þarf til, nema með samþykki boggja bankastjóranna«, og 3. liður segir: „Nú er annarhvor bankastjóra for- fállaður, og undirskrifar þá annarhvor gæslustjórinn í hans stað" og: »verði ágreiningur milli bankastjóranna ... sker atkvæði þess gæslustjórans úr, er fyr var kosinn«, 5. gr.: »I5anka- stjórar mega ekki hafa embættis- störf á hendi nje aðra atvinnu". Nú vita allir, að löggjafarvaldið sjálft kaus á sama þingi, sem lögin urðu til á, æðsta dómará landsins gæslu- stjóra, svo að ekki þarf um það að villast, að bankastjórar táknar hjer líka forstjóra þá, er ráðherra skipar. 7. gr. I. 1909 er vafasömust. Þar er bannað bankastjórum og sýsl- unarmönnum bankans að vera skuldskeyttum bankanum. Gæslu- stjórar fal'a ekki undir orðið »sýsl- unarmennv., því að þá væri það haft í annari merkingu en í 4. gr., og ekki heldur undir bankastjóra, því að þá væri það orð látið tákna annað í þessari einu grein en alstaðar annarstaðar í lögunum, því að það þýðir jafnan forstjóra bankans, er ráðherra skipar. En löggjafarvaldinu er ekki ætlandi að hafa slíkt orð í tvennri merkingu í sömu lögunum. Það verður að gera ráð fyrir því, að orðalagið sje rjett, sjálfu sjer sam- kvæmt og vel athugað. Þar sem nú ákvæðið í 1. 18. sept. 1885 20. gr„ um heimild ráðherra til að víkja gæslustjórum frá um stund- arsakir er afnumið með I. 12, 9. júlí 1909, 8. gr. og 2. gr. 1. 1909 útaf fyrir sig ogsbr. við lög 1900 í heild sinni sýnir það skýrt og ákveðið, að ráð- herra hefur aðeins rjett til að víkja þeim forstjórum bankans frá, er hann sjálfur skipar, þá liggur það eftir 1, jan. 1910 alveg fyrir utan valdsvið hans að víkja gæslustjórum frá. Þingið eitt getur gert það. Þeir geta og sjálfir farið frá vegna forfalla. Gæslustjórum er bæði rjett og skylt að gæta bankans eftir nýárið. Ef þeir gera ekki alt, sem í þeirra valdi stendur, til þess að taka við starfi sínu aftur með nýári, þá hafa þeir brotið skyldur sínar gagnvart þinginu. Þá værí bank- inn gæslustjóralaus, en það er ó- löglegt. Ráðherra brestur vald til að skipa menn í stað þeirra. Ef hann gerir það, sem honum er trú- andi til, þá væri það óglögt. Hon- um hefur ekki verið bent á þetta. Hann er ólögfróður maður, og þótt ekki væri annað, þá verður misræði hans skiljanlegt afþví. Lögfræðing- arnir í »ransóknarnefndinni« hefðu unnið þarfara verk með því, að kenna ráðherranum að lesa og skilja banka- Iögin, en með hinni fáránlegu lúsaleit sinni í bankanum og á bankastjórn- inni fráviknu. Björn Jónsson hefur gengið á rjett þingsins með frávikningu sinni á gæslustjórum bankans. Það er eðli- legt, að þingið vildi ekki veita hon- um heimild til þess að reka trúnaðar- menn sína, gæslustjórana, frá starfa þeim, er það hefur trúað þeim fyrir, eftir geðþótta sínum, til þess að hann fengi veitt gæðingu sínum þann bita. Þar sem Björn Jónsson ráðherra hefur brotið, eða að minsta kosti ætlað sjer að brjóta 1. nr. 12, 1909, (bankalögin) með því að svifta bank- ann þeim mönnum, sem alþingi valdi sem trúnaðarmenn sma — vísvitandi, því að honum er skylt að þekkja þessi lög, — þá hefur hann gert sig sekan í athæfi, er yarðar við ifíið- herraábyrgðarlög nr. 2, 4. mars 19*04, sbr. 3. gr. b. 11. gr. segir: »Ráð- lierra .... má krefja til ábyrgðar fyrii: sjerhver störf, .... er hann liefur orðið sekur um, ef málið er svo vaxið, að hannhefur, annað- hvort af áselnirigi eða stórkostlegu hirðuleysi, farið í bága við stjórnar- skipunarlög landsins eða önnur lög þess.......og 3. gr. segir, að ráðherra varði það ábyrgð,- ef hann veldur-þvf, að brotið sje gegn lög- um landsins »með því að fram- kvœma eða valda því, að fram- kvœmt sje nokkuð það, er fer í bága við fyrirmœli lagannae. Ef nokkuð er víst, þá er það það, að ráðherra hefur brotið bankalögin með oft nefndri stjórnarráðstöfun sinni. Spurningin er aðeins þessi: Hvað œtlar þingið að fyrirgefa honum mikið?

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.