Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 01.01.1910, Blaðsíða 4

Lögrétta - 01.01.1910, Blaðsíða 4
4 LÖGRJETTA Otto Monsteds daiiiiiikil £mjÖrlíkl er best Biðjið'kaupmanriinn yðar um þessi merki: „Sóleya „Ingólfur“ „Hekla*‘ eða „Isafold^. Tilsögn í heimahjúkrun sjúktinga j ætlar undirrituð að veita, eins og að undanförnu. Byrjar 4. janúar. Þær, sem vilja taka þátt þar í, eru beðnar að snúa sjer hið fyrsta til mín. Chr. Bjarnhjeðinsson, Laugav. 10. 1 plverkasýningin í Iðnskólanum verður aðeins opin til 4. janúar k'. II—2; þó ekki ný- ársdag. P«r. IS. Þorláks§oii. líinilega þakka kona og börn Pjeturs Pjet- urssonar bæjargjaldkera öllum þeim, sem sýntlu hluttekningu við fráfall hans, og á eínn eða annan hátt heiðruðu útför hans. Anna S. Pjetursson. Kristín Pjetursson. Helgi Pjetursson. Ken*lu byrja jeg aptur 3. jan. næskomandi. Ánna S. Pjetursson. ('Bsear <3o£ansan á Hotel Island veitir tilsögn í fi luspili. Auglýsingum í „Lög rjettU" teknr ritstjórinn viö eða prentsmiðjan. Sugieg stúika getur fengið vist á „Hótel Island" nú þegar. Tapast hefur, annað jóladagskvöld, á leiðinni frá G.-T.-húsinu upp í Berg- staðastræti og norður á Smiðjustíg, flau- elisbelti með gyltum spennum, greiptum rauðum steinum. Finnandi skili gegn fundarlaunum í Gutenberg. Áramóta-guðsþjónustur í dómkirkjunnl: Gamlárskvöld kl. 6: síra Fr. Friðriksson. ---—11 t/2:— S. Á. Gíslason. Nýársdag —12: biskupinn. ---- — 5: dómkirkjupresturinn. Sunnud. 3. jan.— 12: síra Fr. Friðriksson. ------- — 5: dómkirkjupresturinn. Guðsþjónustur í Betel : Gamlárskvöld kl. 6 og kl. 11 síðd. Nýársdag kl. 11. f. h. og kl. 6V2 síðd. Engin samkoma 2. j n. 1910. Davíð Östluml. Frá Mssiii: Gamlárskvöld verður lands- símanum lokað kl. 7 e. h. st órnardeiid kvennaskó ans. Stúlkur þær, sem ætla að sækja um upptöku í hússtjórnardeild kvenna- skólans (síðara námsskeiðið), gefi sig fram sem fyrst. Kenslan hefst I. febr. og stendur yfir 4 mánuði. Borgunin er 25 kr. mánaðariega og greiðist fyriríram fyr- ir hvern mánuð. Nanari upplýsing- ar fást á skólanum. Reykjavík 21. des. 1909. Ingibjörg H. Bjarnason. Hlekkja-armband fundið ágöt- um bæjarins. Vitja má á Bergst.str. 31, gegn fundarlaunum og augl.-borgun. Eggert Claessen yfirrjettarmálaflutningsmaður. Pósthússtræti 17. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5. Talslmi 16. Dömu-úr, með úrfesti og kapseli, tapaðist á jóladaginn á leið frá Miðstræti upp á Bergstaðastíg. Fínnandi geri svo vel og skili því á afgrslst. Lögrjettu. Bœnavika Evaiijrvlis'.s 13;in ’alag's (3.—o. jan. 1010) hefst með sameiginlegri samkomu 1 G >ðtemplar;diú inu su nud. 2. jan. kl. 61/2 síðd. — /Vllii* velliomnir! 8. Á. Gíslason cand. theol. N. Edelbo adjudant. D. Östlund truboði. Til kaupmanna. Fátækranefnd Reykjavikur óskar að fá tilboð um sem ódýr- ust kaup á nauðsynjavörum handa þurfamönnum bæjarins árið 1910, svo sem allskonar kornvöru, kaffi, sykri, steinolíu, ofnkolum o. fl. Þeir kaupmenn, sem eiga vilja kaup við fátækranefndina um þetta, sendi nefndinni tilboð sín fyrir 12. janúar næstk. í lokuðu umslagi, er auðkent sje: »Nauðsynjavara handa þurfalingum«. pr. Fátækranefnd Reykjavíkur, 29 des. 1909. Páll Einarsson. Hver vinnur? Nú er búið að draga um kápnna og skautana hjá Th. Thorsteinsson & Co., og hafa komið upp þessi númer: Kápan 83. Skautariiir 164. Saumavjolin í ,Ingóllss]ivoli‘ or nr. 97. Þeir, er hafa samstæð númer frá þessum verslunum, gefi sig fram. ANDERSEN i JENSEN Overgaden n. Vandet 15. Talsími 1660. Kjöbenhavn. Desimal- búða- og- skála vogir. 1 Talsími 58. Talfíími 58. „Sitjið við þann eldinn, sem best brennur*’ rr* )) «i“ selur fyrst um sinn IíoI heimflutt í bæinn fyrir kr, 3,20 - þrjár krónur og tuttugu aura - kr. 3,20 hvert skippund. 'Veröiö er enuþá lægra, sje mikið keypt í eiim. „Hitinn er á við hálfa gjöf“. Talsími 58. Talsími 58. Prentsnnðjan Gutenberg 'MOIOOOMÍMtOHO , Sápuínlöin, | Austurstr. 17. Laugav. 40. Til þvotta: Prima græn sápa, pnndið á 14 au. Prima brún sápa, pd. á . . 19 — Ekta Lessive Lútarduft, pd. á 20 — Ektakemiskirsápuspænir.pd.á 35 — Prima Marserillesápa, pd. á . 25 — Prima Salmíakssápa, pd. á . 30 — H.villaja-Gfalde §ápa, burtnemur bletti, stk. á . . 20 au. Geldasápa (á iitað tauý/.pd. á 35 — Handsápur: Stór jurtasápa (' 3 pd.) stk. á 15 au. Stór tjörusápa (T/3 pd.) stk. á 30 — Stór Karbólsápa (x/3 pd.) stk. á 30 — Sclious Barnaiiápa, (ómissandi á börn), stk. á . 25 au. 3 stk. af ekta fjóíusápu á . 27 — Til bökunar: Florians Eggjaduft (jafngildi 6 eggja) á . . . . . 10 au. 3 skamtar Florians búðings- duft á..................27 — 10 au. Vanille-bökunarduft á 8 au. 5 » do. ... 4 - 3 stórar Vanillestengur á . . 25 1 glas með ávaxtalit á . .10 — Möndlu-, sitrón og vanille- d opar, af 2 stærðuin, glas- ið á . . . . . . . 15—30 — Fínasta Livornó-súkkat, pd.á 68 — Ilmefni: Stór flaska af Brillantine (í hárið) á..............45 au. Iimefm í lausri vigt, iogröm á 10 — Svartur, brúnn og gulur skó- áburðurí stórum öskjum á 20 au. ( minni do. á .... 12 — 3 dósirafjúnó áburði (á box- calfskó) á..............27 — Sápuhúsií, Austurstræti 17, Sápubúðin, Laugaveg 40, selur tómar, stórar grænsáputunnur frá..............kr. 1,50—2,00. h|f Sápuhúsið, Sápubúðin, Austurstræti 17. Laugaveg 40. 0 •4-» 03 Vönduð \-í ° ET E VASA-ÚR \ u Cð ódýrust. 1 © "S St. Runólf88on. J u © QJ Hugh.str. 3. /^ Sy , Svik. y s © O •PH Q O) mTo > rG Smáauglýsingar tekur „Lögrjetta" framvegis fyrir lægra verð en áður. En þá verður borgun að fylgja jafnframt Gullhrlngur (einbaugur) merktur hefur tapast á leið úr miðbænum og upp Hverfisg. Skilist á Smiðjustíg 7 (tiiðri). Reginvaldur. »Menn mínir verjast vel og múrveggirnir hjerna eru hæði sterkir og háir. Þótt hjer væri heill her af Engilsöxum, ynnu þeir ekkert á. Jeg heyri óp þeirra Brjáns og Breka. Við erum að sigra. En til minningar um þann sigur skalt þú verða brend á báli. Jeg lifi það, að horla á eftir þjer til helvítis«. »Lifðu í voninni, þangað til þú færð vissuna«, svaraði Ulfríður með hægð, en breytti þó rjett á eftir rómi og sagði: »Nei, þú skalt undir eins lieyra dóm þinn. Finnurðu ekki reykjarsterkjuna hjerna í herberginu. Hún er altaf að að vaxa, og altat er að sortna meir og meir hjer inni. Hjelstu að það væri banaþokan, sem nú væri að leggj- ast yfir augu þín? Það er ekki, Reg- invaldur. Orsökin er önnur. Manstu ekki eftir brennihrúgunni, sem geymd hefur verið hjerna undir þessum her- bergjum?« »Úlfríður!« andvarpaði Reginvaldur bæði undrandi og reiður. »Þú munt þó ekki hafa kveykt í brennihrúgunni? — Jú, einmitt það! Þú hefur gert það! Kastalinn stendur í báli!« »Logarnir berast fljótt um«, svaraði Úlfríður með kaldri ró, »og bráðum skulu umsátursmennirnir íá merki um það frá einum lurnglugganum, að nú skuli þeir sækja fast fram, meðan kastalaliðið snúi sjer að þvi, að slökkva eldinn. Vertu nú sæll, Reginvaldur! En það skaltu fá að vita, ef þjer er nokkur huggun í því, að jeg verð þjer samferða inn í ókunna heiminn. Jeg hef fylgt þjer til glæpaverkanna og skal nú þola sömu hegninguna og þú. Svo kveð jeg þig í síðasta sinn, föður- morðingi! Betur að hver steinn hjerna í lofthvelfingunni fengi nú tungu til þess að hvísla þessi orð í eyru þjer meðan þú bíður dauðans«. Að svo mæltu gekk hún út úr her- berginu og Reginvaldur heyrði, að hún sneri lyklinum i skránni um leið og hún gekk burtu frá hurðinni. Hann þóttist þá sjá, að engin von væri þess framar, að hann kæmist lifandi burt úr herberginu. Samt orgaði hann há- stöfum og kallaði á menn sina. Hann hrópaði upp nöfn þeirra eins eftir eftir annan, og þess á milli kallaði hann: »Jeg brenn hjer inni! Komið þið, þrælmenni og svikarar! Ætlið þið að láta mig farast í logunum? Riddarar og vopnabræður, Brjánn og Breki! Heyrið þið ekki til mín! Á jeg að farast hjer? svikarar og níð- ingar! — Þeir heyra ekki til min fyrir háreystinni frá bardaganum«, andvarp- aði hann. »Reykurinn drepur mig! Nú er kominn eldur í gólfið! Aðeins einn andardrátt af hreinu lofti, drott- inn!« Svona æpti hann í sifellu, ým- ist bölbænir yfir sjálfum sjer, yfir öllu mannkyninu og jafnvei guði sjálfum, eða þá fyrirbænir. »Þú sækir fast að mjer, djöfull!« grenjaði hann. »En burt meðþig! Burt með þig, illi andi! Eigijeg að fara með þjer, þá skulu allir hjer fylgja mjer! Jeg skal ríða til helvítis í broddi fyrir stórum skara. Ha, ha, ha!« Það var komið æði á hann. Hann hló bylmingshlátur, svo að kvað við íloft- hvelfingunni. »Hver er það, sem hlær?« kallaði hann, því hlátur hans berg- málaði frá veggjunum. »Varst það þú, Úlfríður, gamla norn? Jeg fyrir- gef þjer, því fyrir utan djöfulinn sjálf- an hefði enginn getað hlegið á þessari stundu neina þú ein. — Burt — burt! En það væri synd að lýsa, frekar en þegar er gert, banabeði föðurmorð- ingjans og guðníðingsins. XXX. Þótt Siðrikur legði reyndar ekki mik- inn trúnað á orð Úlfriðar gömlu, hafði hann samt sagt þeim svarta riddaranum og Húnboga frá loforði hennar. Þeim þótti vænt um að heyra, að þeir ættu vin inni í kastalanum, er orðið gæti þeim, ef til vildi, að liði. Öllum kom þeim saman um, að sjálfsagt væri að gera áhlaup á kastalann. »Afkomandi Alfreds konungs er þar í hættu«, sagði Siðríkur. »Og göfug kona á þar á hættu, að verða smánuð«, sagði svarti riddarinn. »Þótt ekki væri annað en að hjálpa Vaniba veslingnum, þá væri jeg fús til þess að hætta til þess lífi mínu og limum«, sagði Húnbogi. »Það segi jeg með«, sagði klerkur- inn frá Prestshúsakapellunni. »Önnur eins fifl eru ekki á hverju strái«. »Það er salt, prestur«, mælti svarti riddarinn. »En er nú ekki best að Siðrikur i Rauðuskógum taki við og stjórni áhlaupinu?« »Alls ekki«, svaraði Siðrikur. »Jeg hef aldrei vanist hermensku, og mjer er ókunnugt bæði um það, hvernig sækja á og verja þessi kastalavígi Nor- manna hjer á Englaadi. Jegskalganga fram í fremstu röð, en forustuna get jeg ekki tekið að mjer«. »Jeg skal taka að mjer að stjórna bogmönnunum«, sagði Húnbogi, »og jeg lofa því, að sjá um að hver maður verði skotinn, sem ekki heldur sjer innan skýlanna á vigveggjunum«. »Það er vel mælt, Húnbogi«, svar- aði svarti riddarinn, »og ef menn vilja gera mjer þann sóma, að velja mig fyrir foringja og lofa að fylgja mjer, þá skal jeg taka að mjer að stjórna áhlaupinu«. Þegar foringjarnir höfðu á þennan liátt skift með sjer verkum, hófst fyrsta áhlaupið, og hefur þegar verið skýrt frá, hvernig það gekk. Þegar útvirkið var unnið, sendi svarti riddarinn Húnboga tilkynningu um sigurinn og bað hann jafnframtað hafa nú nánar gætur á kastalanum, svo að ekki yrði dregið saman liðið þar inni til útrásar og virkið tekið attur. Hann vissi, að þótt menn þeir, sem hann hafði á að skipa, væru djarfir til atlögu, voru þeir samt óvanir hermensku og mundu því illa stand- ast áhlaup æfðra hermanna frá kast- alanum. Svo ljet hann búa til fiotbrú á kast- alagröfinávi-og gerði ráð fyrir að hún mundi nægja. En til þess fór tölu- verður tími, og meðan á þeirri bið

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.