Lögrétta - 04.06.1910, Blaðsíða 2
108
L0GRJET1 A.
Lögrjetta kemur út á hverjum mið-
vikudegi og auk pess aukablöö við og við,
minst 60 blöð als á ári. Verð: 4 kr. árg.
á íslandi, erlendis 5 kr. Gjalddagi 1. júli.
mundssyni á Marðarnúpi, föður Guð-
mundar landlæknis.
Bændur hafa jafnan ýmugust á
sprenglærðum búfræðingum, sem öllu
vilja umturna, og er það sfst að
undra; en þennan mann munu þeir
ekki þurfa að óttast; hann lætur lítið
yfir sjer. „Það er minst fengið, þó
prófi sje lokið", segir hann, „og jeg
ætla ekki að flana að neinu". Þetta
er góðs viti. Og svo talar hann fs-
lensku, eins og hann hafi aldrei farið
út úr sveitinni. Það er líka góðs
viti. Er líklegt að hann verði nýtur
maður.
Hann fer hjeðan á „Austra" 10.
þ. m. norður um land á búfjársýn-
ingar þar.
Kunnugur.
ýííflutningsbanniD.
Eftir Halldór Jónsson.
III. Kórvilla andbanninga. (Frh.).
Með því að »ástæðan« til að
drekka áfengi er ekki manninum
meðsköpuð, heldur er biíin til af
á/engn'snautninni sjálfri, eins og
dagleg reynsla og öll vísindi stað-
festa, þá á áfengisbölið, hið and-
lega og líkamlega tjón, sem áfengið
veldur, hvergi annarstaðar rót sína
en í »brennivínsflöskunni«, alveg
eins og berklaveikisbölið á hvergi
annarstaðar rót sína en í berklun-
um (bakteríum þeim, sem með
eitrunarverkunum sínum í líkama
mannsins búa til berklaveikina).
Vjer þurfum að gæta þess, að
starfsemi allra lifandi kvikinda
hefir tvent í för með sjer: 1. að
framleiða nýtt lif, ný samskonar
lifandi kvikindi, og 2. að framleiða
óholl og eitruð efni fyrir lifið sjálft.
Ef vjer lokum lifandi kvikindi
inni í loftþjettu rúmi, þá »kafnar«
það, deyr innan viss tíma.
Það skeður ekki eingöngu af
þeirri orsök, að lífsloftið í rúminu
tæmist, eyðist, heldur einnig og ekki
síður vegna þess, að út úr hinu
lifandi kvikindi sjálfu koma ýms
efni, sem eitra lífsloftið í rúminu.
Ef vjer geymum lifandi smá-
fiska í vatni í litlu íláti, þá drep-
ast þeir þar innan skamst tíma, ef
ekki er skift um vatn á þeim. Or-
sakirnar til þess eru ekki eingöngu
þær, að þeir hafi eytt lífsloftinu í
vatninu svo rækilega, að þeirkafni
af skorti á lífslofti, heldur einnig
þær, að út úr smáfiskunum sjálf-
um koma ýms efni, sem eitra vatnið
og hjálpa til að drepa þá.
Að lifandi kvikindin, gerlarnir,
sem framleiða áfengið, drepast í
vínberjaleginum eftir fáa sólar-
hringa, stafar heldur ekki eingöngu
af því, að þau hafi etið upp til
agna öll hin lífrænu efni í leginum,
heldur einnig (jafnvel fremur) af
því, að þau hafa sjálf framleitt, til-
búið í leginum, svo mikið af eitri
(áfengi), að þetta eitur drepur þau
sjálf.
Áfengið er og eitthvert hentugast
drápsmeðal alls lifs, alls lifandi,
alls hins lífræna. Af þeim ástæð-
um er það, að náttúrufræðingar
nota það til að geyma í því líf-
ræna hluti. Áfengið steindrepur
hverja einustu sellu í Hfrænu hlut-
unum, svo að þeir haldast óbreyttir
og öll rotnunarkvikindi deyja, er í
þá kunna að hafa komist, en önn-
ur ný komast ekki að vegna á-
fengisins.
Af þessum verkunum áfengisins
er það bert, að það er ekki rjett
að segja, eins og hr. M. E. segir:
»Áfengið er ekkert annað en dauð-
ur hlutur«, því að það er miklu
meira. Það er drepandi hlutur;
hlutur, sem sviftir alt lifandi öll-
um lifrœnum eiginleikum, þrengir
sjer inn í og gegn um alt lífrænt,
drepur það og sviftir möguleg-
leikanum til alls lífs.
Áfengið er lífsins gröf, bókstaf-
lega talað.
Af þessum verkunum áfengisins,
lamandi og drepandi áhrifum þess
á alt líf og alt lífrænt, leiðir það,
að það er rangt, að setja áfengið
á bekk með nokkrum öðrum hlut,
sem gengur frjálsum kaupum og
sölu meðal manna.
Fyrir því er það með öllu óhæfi-
legt til drgkkjar. Það getur verið
gagnlegt sem lœkntsigf, eins og
íleiri eiturtegundir, því náskyldar,
en þá á það heima við hlið þeirra
í hyllum apótekanna.
Og að sjálfsögðu á það að geta
fengist til verklegra afnota án veru-
legra tálmana.
Ef andbanningum væri það Ijóst,
að öll áhrif áfengis á hverja ein-
ustu sellu í líkama mannsins eru
skaðleg áhrif, lamandi og drepandi
áhrif á starfsemi þeirra, og þar af
leiðandi á andlega krafta þá, sem
á leyndardómsfullan hált standa í
sambandi við líf og starfsemi sell-
anna í taugakerfi mannsins, hvort
sem þeir kraftar heita skyn, tilfinn-
ing eða vilji, — þá sæu þeir einnig,
hvílík fráleit fjarstœða það er í raun
rjettri, að nota áfengi sem hress-
andi drykk eða skemtandi drykk.
Það er fyrst á hinum síðustu
40—50 árunum, að visindamenn-
irnir hafa alvarlega ransakað eðli
og áhrif áfengisins, og komisl að
fastri niðurstöðu í því efni.
Þeir, sem ekki þekkja þessa
niðurstöðu, en hafa í skoðunum
sínum dagað uppi um eða fyrir
1860, þeir skilja ekki áfengismálið
rjett.
Jeg hygg að það hljóti að vera
vanþekking á þessari vísindalega
sönnuðu niðurstöðu, semveldur því,
að nokkrir andbanningar eru til í
landi hjer, nokkrirsemvilja viðhalda
hinum gömlu, skaðlegu drykkju-
siðum. Jeg get ckki ímyndað mjer,
að nokkur, sem fengið hefur glögga
hugmynd um skaðsemi áfengisins,
sjerstaklega á andlega krafta manns-
ins, geti verið svo tilfmningalaus
fyrir hinni margvíslegu sorg og
eymd, sem hann sjer og veit að
stafar frá drykkjusiðunum, að hann
ekki vilji rjetta hjálpandi hönd til
að Ijetta bölinu af meðborgurum
sínum, — 1 öllu falli leggi ekki
steina í veginn fyrir þeim, er vinna
að útrýmingu drykkjusiðanna, nje
beiti kröftum sínum á móti þeirri
starfsemi. (Frh.).
Ráðherrann og harðinðin.
Kafli úr brjefi, rituðu snoraraa
í síðastl. mánuði.
Áhrifin eða afleiðingarnar af stjórn
raðherra vors eru nú orðin deginum
Ijósari.
Landsbankinn er sem dauð stofn-
un. Lánstrausti hans er stórspilt og
ráðherrabankastjórnin fullyrðir, að
hann geti lítið sem ekkert lánað.
Hann verður naumast með rjettu kall-
aður banki lengur, ef ekkiskipast betur
til um stjórn hans framvegis en hing-
að til hefur átt sjer stað síðan 22.
nóv. Stjórn hans líkist einna helst
stjórn á dánarbúi, sem er undir skift-
um, en notað er sem framfærslustofn-
un meðan a skiítum stendur.
Það er nú komið fram, sem al-
menningur sá þegar fyrir 22. nóv., að
Landsbankinn mundi bíða stórhnekki
við ráðsmensku ráðherra og allar ó-
frægðarsögurnar um bankann.
Og það er enn fremur komið fram,
sem þjóðina tekur sárast og mestu
máli skiftir, að áliti lands og þjóðar
og lánstrausti landsmanna hefur ver-
ið hnekt svo mjög af ráðherra, að
því verður ekki með orðum lýst nje
það tölum talið.
Arið 1906 var hart vor og engu
vægara, ef ekki sumstaðar jafnvel
harðara en þetta vor, en sakaði ekki.
Veturinn eftir (1906—07) var fjen-
aður snemma tekinn á gjöf eins og
nú síðastliðinn vetur. Sá vetur var
því gjafifeldur eins og þessi vetur og
heyfengur manna var hvergi nærri
nægur, en það kom þá alls ekki að
sök, því að bændur brugðu þá skjót-
lega við og öfluðu sjer fóðurbætis.
Norðlendingar pöntuðu þá með sím-
skeyti kraftfóður ytra frá og fengu
sjerstakt skip í febrúar 1907 hlaðið
fóðurbirgðum að mestu.
Kendu menn þá vott menningar-
og framfara í búskapnum, að almenn-
ingur hafði lært þau ráð, sem til þess
eru að forðast skepnufelli, ef heyfeng-
ur er ekki nægilegur, og þóttust
menn þá þess fullvissir, að framar
yrði ekki horfellir hjer á landi.
Þau harmkvæli litu menn svo á,
að þau gætu talist leyfar liðinna tíma,
eins og reyndin hefur orðið annar-
staðar, þar sem bændur lifa á útbeit-
arfjenaði og þeir einu sinni hafa kom-
ist upp á að nota kraftfóður til þess
að lcoma í veg fyrir skepnufellir eins
og t. d. á Skotlandi.
En hvað skeður, Björn Jónsson
verður ráðherra og á einum degi
(22. nóv.) tekst honum að loka þeirri
, leið, sem bær.dum varð að standa
opin til þess að þeir gætu notið
sín menningu sinni samboðið og
hagnýtt sjer lærdóm og þekking
síðustu ára, að afla nú kraftfóðurs, en
leiðin er lánsíraustið.
Ástæður manna hjer á landi eru
ekki öðruvísi en annarstaðar að því
leyti, að mönnum veitir erfitt að
bjarga sjer eftir að þeir hafa mist
tiltrú annara og lánstraust sitt. Og
því fremur veitir mönnum það erfið-
ara hjer á landi sem hjer þarf að
leggja mikið í kostnað, iarðabætur,
húsagerð o. fl. o. fl., til þess að
hafa við góð kjör að búa og geta
aukið framleiðsluna.
Tíl Landsbankans hefur mönnum
síðan 22. nóv. sjaldnast orðið leitað
um lán og önnur þvíiík viðskifti til
annars en að fá nei.
Lánstraust landsmanna hefur þorrið
mjög erlendis, og tiltrú manna á
meðal minkað, en tortrygni aukist,
svo að bændur, jafnt stórir sem
smáir, sjá engin ráð til þess að afla
kraftfóðurs, því að þegar lánstraustið
er frá þeim tekið, eru þeir sviftir
getunni til þess að útvega sjer kraft-
fóður. Til þess að geta það verða
bændur að fá lán til hausts, sem
þeirri upphæð nemur, er kraftfóðrið
kostar.
Bændur eru ekki búnir að gleyma
kraftfóðurkaupunum 1907 og þeir
vita nú gerr en þá, að þótt kraft-
fóðrið, víðast hvar, sje í sjálfu sjer
dýrara en heyið, þá margborgar það
sig að kaupa kraftfóður til heydrýg-
inda heldur en að missa skepnurnar
úr hor eða verða að skera af heyj-
um á áliðnum vetri, eða þegar komið
er fram á vor.
En bændum eru þessar bjargir
bannaðar að þessu sinni, því að ráð-
herra hefur svo stórspilt lánstrausti
landsmanna og áliti þjóðarinnar jafnt
inn á við sem út á við.
Það heyrist varla talað um kraft-
fóðurkaup, sem heldur ekki er að
furða, því til hvers væri það nema
einskis? Hvað hjálpa orðin ein þegar
skilyrðin tyrir framkvæmdinni vantar.
Afleiðingarnar af stjórnarráðstöf-
unum ráðherrans eru sýnilega fyrir
landbúskapinn skepnufellir og lamba-
dauði, ef forsjónin ræður ekki fram
úr því betur en á horfist.
En hverjar skyldu nú afleiðing-
arnar fyrir aðrar atvinnugreinar vera
orðnar eða eiga eftir að verða?
Lánstraustið er fjöregg þjóðanna
og fæstar mundu þær þjóðir, sem
staðist gætu aðra eins árás á álit sitt
og lánstraust án hörmunga fyrir
landsmenn í heild sinni og gjald-
þrota margra manna, sem að öðrum
kosti yrði komist hjá.
Lánstraustið er lffæð viðskiftalífs-
ins og atvinnugreinanna, og ráðherr-
ann sjálfur, vor innlenda stjórn, hef-
ur orðið til þess að skera á lífæðina.
Námaslys varð snemma í síð-
astl. mánuði skamt frá bænum
Birmingham í Alabama í Ameríku.
Það var í kolanámu, hafði kvikn-
að í þar niðri í einum göngunuin
og sló loga upp um opið, en jafn-
framt varð ákafleg sprenging þar
niðri. Maður, sem stóð nokkra
faðma frá námuopinu, fanst dauð-
ur. Talið er, að um 300 manns
hafi farist þarna.
Heilsuhælið á Yifilsstöðum
þarf 7 vinnukonur frá 20. júlí næstk. Pær stúlkur,
sem um þau störf vilja sækja, snúi sjer til fröken
Valgerðar Steinsen, Veltusundi 1.
II »•- A. O. Larsen kaupmaður frá
Esbjerg kemur hingað til Reykjavíkur með »Botniu«
16. júlí nk. og dvelur hjer nokkra daga tii þess að semja
við þá, sem senda vilja íslenskar vörur í umboðssölu til
Danmerkur.
Á leið hingað kemur hann við á Seyðisfirði,
Vopnafirði, Húsavík, Akureyri, Sauðarkróki, Biönduósi og
ísafirði, sjerstaklega með því augnamiði, að sláturfjelög-
in norðlensku gætu haft gagn af ferð hans og samið
við hann.
Steinolíumótorinn
„SKANDÍ A“
er bestur mótor í fiskibáta, sterkur, einbrotinn og Ijettur, en þó
ódýr eftir gæðum. Búinn til í Lysekil mek. verkstaðs A/s í Svíaríki,
sem er stærsta mótora- og báta-verksmiðja á Norðurlöndum. Af-
bragðs fiskibátar úr trje og stáli. Öll tilboð og upplýsingar gefur
einkasalinn fyrir ísland og Færeyjar:
JAKOB GUNNL0GSSON,
KÖBENHAVN K.
Frá fjaOatindum til lliiia.
Telpa
óskast nú þegar til að gæta barna.
Einar Arnórsson, Laufásveg 14.
Börn drukna. Það hörmulega
slys vildi til á Þorbrandsstöðum í
Vopnafirði 17. f. m., að 3 börn
bóndans þar, Þórðar Þórðarsonar,
druknaði í krapablá skamt frá bæn-
um. Börnin voru öll á líkum aldri,
hið elsta á II. eða 12. ári.
Hafís. Þær frjettiru eru nú sagðar
frá Vestfjörðum, að mikill ís sje út
undan Önundarfirði.
„Snorria heitir bátur, sem Ellev-
sen hefur nýlega látið smíða til
hvalveiða hjer við land.
Vegagerð. Árni Zakaríasson vega-
gerðamaðnr fór hjeðan nú í vikunni
með „Austra" áleiðis til Húsavíkur,
og með honum margt af verkamönn-
um. Þeir halda í sumar áfram með
Reykjadalsbrautina, og var hún í
fyrra sumar komin inn fyrir Laxá.
Húsbruni. í gær brann íbúð-
arhúsið á Stórhofi á Rangárvöll-
um, mikið hús og vandað, er Ein-
ar tyrv. sýslum. Benediktsson
bygði, er hann bjó þar. Jörðina á
nú Guðm. þorbjarnarson frá Hvoli
i Mýrdal og býr hann á báðum
jörðunum Hofi og Hvoli. í gær kl.
6 siðd. varð eldsins fyrst vart af
Guðm. Þorbjarnarsyni, og eptir
tvo tíma var húsiðbrunnið, og varð
aðeins bjargað ýmsum útbygging-
um. Mestu af húsgögnum og áhöld
um bjargað að mestu. Eldurinn
hefur kviknað frá skorsteininum.
Húsið var vátryggtiNordisk Brand-
forsikring, umboðsmaður Albert
bankabókari Þórðarson.
Reykjavík.
Bæjarstjórnin. Aukafundur 12.
maí. Frumvarp til fundarskapa rætt
og samþykt.
Framhaldsfundur 13. maí. Samþ.
að leyfa Garðari kaupm. Gíslasyni
bryggjugerð fram undan Kaupangi
með ýmsum skilyrðum, er bæjar-
stjórn setti.
Kosnir til að íhuga útsvarskærur:
Þ. J. Thoroddsen, L. H. Bjarnason
og Arinbj. Sveinbjarnarson.
Þessar brunabótav. samþ.: Hús
Jóh. Jóhannessonar á Laugav. 19
3024 kr.; Sigurbj. Þorkdssonar á
Njálsg. 44: 3785 kr.; Samúels Jóns-
sonar á Skólav.st. 35 : 16,529 kr.;
Th. Thorsteinsons a Kirkjusandi:
2,466 kr.
Fundur 19. maí. Út af erindi frá
kaupmönnum um, að losna við vatns-
skatt af verslunarhúsum, samþ. bæj-
arstjórnsvohljóðandi yfirlýsing: „Bæj-
arstjórnin telur gjaldsins vera krafist
eins og ætlast var til samkv. reglu- ■
gerðinni, en lofar jafnframt að taka
þetta atriði til sjerstakrar athugunar,
þegar reglugerðin verður endursamin
um næstu áramót.
Vatnsskattur baðhússins ákveðinn
150 kr. á ári.
Samþ. brunabótav. á húsi Guðm.
Einarssonar á Framnesvegi: 3,997 kr.
Fundur 2. júní. Borgarstjóra gef-
ið umboð til 100 þús. kr. lántöku.
Samþ. að veita í þetta sinn 4OO
kr. til barnaskóla Ásgr. Magnússonar.
Samþ. að lána söngstofu barna-
skólans væntanlegum söngmenta-
skóla, er O Johansen, Sigf. Einars-
son og frú hans ráðgera að koma
hjer upp.
Sigg. Torfasyni kaupmanni veitt
slátrunarleyfi með sömu skilmálum og
síðastl. ár.
Erindi frá O. Kjögx og Filippsen,
bróður Filippsens framkvæmdarstjóra
Steinolíufjelagsins, um heimild til
rafmagnsstöðvarreksturs með krafti
úr Elliðaárfossum var vísað til gas-
nefndar.
Þessar brunahótav. samþ.: Hús
Sig. Kristjánssonar í Bankastr.: 3018
kr.; J. Thorsteinssons á Grímsstöð-
um: 2,589 kr.; erfingja frú M. Lár-
usdóttur: 4.°78 kr-; J°h. Lárussonar
á Skólav.st. 41 : 4364 kr.; Hj. Þor-
steinssonar á Frakkast.: 3,483 kr.
Heilsuhælið. Þar er ráðin ráðs-
kona frk. Valgerður Steinsen og
yfirhjúkrunarkona Karen Christensen
frá Khöfn.
Sýning Ástu Árnadóttur málara
verður endurtekin í Iðnskólanum á
sunnudaginn kemur og mánudaginn.
Frk. Ásta fer til Khafnar með
„Botniu" 11. þ. m.
Norskur prófessor, Ólsen að
nafni, frá háskólanum í Kristjaníu, er
hjer nú staddur og verður hjer á
landi um tíma í sumar til þess að
kynnast íslensku máli.
Dr. Norman-Hansen, danskur
læknir og rithöfundur, kom hingað
í síðastl. vik, ásamt dóttur sinni, og
ætlar að ferðast hjer um land eitt-
hvað í sumar.
Hann var á Grænlandi sfðastl. sum-
ar og varð dr. Cook samferða það-
an til Danmerkur í haust sem leið.
Prentsmiðjan Gutenberg.