Lögrétta - 17.08.1910, Blaðsíða 1
Aígreiðslu- og innheimtum.:
ARINBJ. SVEINBJARNARSON.
I.aueavet; 41.
Talsimi 74.
LOGRJETTA
Ritstjóri
PORSTEINN GISLASON
Pingholtsstrtsei 17.
Talsimi 178.
M 30.
Reykjavílc 17. ág’ust 1910.
'V'. árg.
I. O. O. F. 93859.
Forngripasafnið opið á hvern virkan dagkl
12—2.
Lækning ók. í læknask. þrd. og fsd. 12—1.
Tannlækning ók. (í Pólthússtr. 14) 1. og 3.
md. í mán. 11—1.
Landakotsspítali opinn f. sjúkravitj. io'/j
—12 og 4—5.
Islands banki opinn 10—2T/2 og 57«—7•
Landsbankinn io1/^—2'/x. Bnkstj. við 12—-i.
Lagaskólinn ók. leiðbeining 1. og 3. ld. í
mán. 7—8 e. m.
Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl.
12—3 og 5—8.
• MAg
HTh A ThöM5En
HAFNARS1R-1718 I92Ó 2122-R0US 1-2'LÆKJAKT 1-2
• REYKJAVIK •
FaxalagiáMttirinn „Ingólfur“
fer til Borgarness 22. og 30. ágúst.
- - Keflavíkur og Garðs 20. og 25.
ágúst.
Lárus Fjeldsted.
Yflrrjettarmilafnrslumaður.
Lækjargata 2.
Heima kl. 1 1 — 12 og 4—5.
Rúðugter er JOie zoéca,
——— ~~r—--= Dest a0 Bankastr. 14.
—= kaupa hjá Taisímíi^s.
Störbruni
á sýningiinni í Brilssel.
300 iniljóna Kr. ijón.
í Brússel hefur staðið yfir stór sýn-
ing, sem mjög hefur verið vandað
til. Nú segir í símskeyti frá Khöfn
í gærkvöld, að þar hafi komið upp
eldur og tjónið af brunanum sje met-
ið á 300 miljónir króna.
Ekki er þess getið í skeytinu, að
manntjón hafi orðið.
Spánverjar
að skilja við páfann.
Þess var getið nýlega hjer f blað-
inu, að alt útlit væri fyrir að Spán-
verjar væru nú að brjótast undan
yfirráðum páfans, eins og Frakkar
gerðu fyrir fáum árum.
þykir vera lítill stjórnvitringur, og
hefur mætt með ósveigjanlegri hörku
öllum nýmælum, sem núverandi stjórn
Spánverja hefur viljað koma fram í
kirkjumálum þar í landi, enda miða
þau að því, að draga uppeldismál
úr höndum klerka og minka veldi
þeirra, en auka rjettindi þeirra nianna
í landinu, sem aðra trú játa en hina
kaþólsku. Móti þessu hefur spánska
klerkastjettin risið með miklu kappi
og leitað aðstoðar páfa. Maurastjórn-
in studdist við klerkavaldið, en varð
að víkja, þegar eftir Ferrers-morðið,
og þá tók við stjórnartaumunum
Canalejas, sem enn er yfirráðherra,
og hetur hann og stjórn hans farið
Ný ^aga eftir «Tón Trausta.
Þessi nýja saga hans heitir ,Fylgsni‘
og er framhald af Heiðarbýlissögunum,
tjórða sagan í röðinni, þegar „Halla“
er talin með, sem er inngangssagan til
þeirra og óslítanleg frá heildinni. Nafn-
ið tekur sagan af þjófafylgsni uppi í
heiðinni, sem lýst hefur verið í fyrri
sögunum, og er leitinni eftir því, tildrög-
um hennar og afleiðingum lýst f þess-
ari sögu. Enn er hjer margt sama
fólkið á ferð og í fyrri sögunum: Hrepp-
stjórinn í Hvammi og húsfreyja hans,
heiðakotafólkið, Ólafur og Halla, Finn-
ur og Setta o. s. frv. En nýtt fólk
bætist við. Þar er helst að telja Pjet-
ur hreppstjóramág, bróður Borghildar í
Hvammi, og verður það hann, sem
mesta athygli dregur að sjer í þessum
þætti sögunnar, enda er honum mjög vel lýst. Þá er lesendum nú einnig
komið í kynni við sýslumanninn, yfirvald þessa fólks, sem lýst hefur verið,
og son hans, háskólastúdent. Borga í Hvammi, sem var að hlaupu milli
fólksins í síðasta þætti sögunnar, er nú orðin fulltíða, og fallegasta stúlkan
í allri sveitinni. Þorlákur þófari er karl, sem gaman er að kynnast, og á
hann frændur til og frá um sveitir. Og enn er þarna fleira af nýju fólki.
Ágæt lýsing er þar af brúðkaupsveislu í sveit. En þjófaleitin og afleiðing-
ar hennar er þó þungamiðja sögunnar. Efnið skal svo ekki rakið hjer
frekar en þetta. Fyrri þættir „Heiðarbýlisins" hafa eignast fjölda vina,
sem bíða framhaldsins með óþreyju, — og þessi nýja saga mun ekki bregð-
ast bestu vonum þeirra.
Jón Trausti.
að dæmi Frakka í baráttunni gegn
klerkavaldinu, og lá nú mjög nærri,
er síðustu blöð bárust frá útlöndum,
að stjórn Spánverja kallaði sendi-
herra sinn heim frá páfahirðinni og
segði yfirráðum páfa lokið í kirkju-
málum á Spáni. En
á við raman reip að draga heima
fyrir, því klerkastjettin er völdug á
Spáni og almenningur þar fáfróður,
svo að óvíst er, að byltingin takist
þar á sama hátt og í Frakklandi.
Nú sem stendur neita þeir páfi og
Canalejas, hvor um sig, að slaka
nokkuð til í baráttunni, og engin
líkindi til að neinar sættir verði þar
á milli. Annaðhvort er því fyrir
höndum, að Spánn gengur undan
páfadóminum, eða þá að Canalejas
verður að víkja frá völdum.
ferðalagi hans um Yesturland nú
nýlega.
Lögr. hefur minsl á þetta, til
þess að aðvara þingmenn í tíma,
ef þeir vildu taka í taumana og
hindra frestun þingsins. Það var
að minsta kosti svo að heyra á
Skúla Thoroddsen, í Þjóðviljan-
um, þegar aukaþingskröfurnar
voru til umtals, að hann ætlað-
ist ekki til, að ráðherra kæmist
upp með það, eftir alt, sem þá
gekk á, að fresta þinginu.
Ástæða ráðherra fyrir frestun-
inni er auðvitað sú ein, að ná í
nýja konungkjörna þingmenn.
Meðal þjóðkjörinna þingmannaer
hann nú orðinn í minni hluta,
og getur því ætlun hansekkiver-
ið önnnr en sú, að fljóta á at-
kvæðum sinna nýjn konung-
kjörnn manna.
Núverandi konungkjörnir þing-
menn eru allir þjóðkunnir merk-
ismerin, sumir nreðal þeirra starfs-
kraftar, sem þinginu er stórtjón
að missa. Þar að auki eru þeir
öllum óháðir, og lrafa ekkert ann-
að en sannfæring sína til að fara
eftir, þegar t. d. kemur til rann-
sóknar bankamálsins á alþingi.
En hver trúir þvi, að eins verði
um þá menn, er núverandi ráð-
herra kveður til þingsetu, ef hann
notar þar atkvæði þeirra í sinni
eigin sök?
að jresta alþingi?
í brjefi lil Lögr., sem prentað
er á öðrum stað hjer í blaðinu,
er það talið næsta ótrúlegt, að
ráðherra geti komið annað til
hugar nú, en að kalla alþing
saman á rjettum tíma næsta
vetur, þ. e. 15. febr. Og höf.
brjefsins gerir ljóslega grein fyrir,
á hverju hann byggir þetta.
Það er á orðum Björns Jóns-
sonar ráðherra í brjefi til forseta
alþingis 8. júní í sumar, þegar
liann neitaði að kalla sanian
aukaþing.
Rjett er það, að ef ráðherrann
væri öðruvísi maður en hann er,
þá ætti að mega byggja á þessu.
En enginn maður honum knnn-
ur mun samt gera það. Hitt er
víst, að meðan hann var í liðs-
bónarför sinni nyrðra, var þetta
ofarlega í huga hans. Sama er
sagt um Björn Kristjánsson á
jílþingi á að ðaima
um aðferð ráðherra í
bankamállnu.
Út af aðförum ráðherra 2 2. nóv.
síðastl., höfðaði Kr. Jónsson dóm-
stjóri tvö mál. Annað málið snerti
stjórnarathöfnina, sem þá fór fram,
og hefur hún verið dæmd ólögleg.
Hitt málið snerti aðferðina, sem
ráðherra beitti, og var því máli vís-
að frá undirrjetti, með því að það
heyrði ekki undir dómstólana, að
dæma um aðferðina. Þessi undir-
rjettardómur er nú nýlega staðfestur
af yfirdómi.
Tr. Gunnarsson fyrv. bankastjóri
höfðaði einnig mál út af aðferðinni,
og auðvitað hefur það verið eins
dæmt af undirrjetti og mál Kr. J.,
og verður eins dæmt af yfirdómi.
Þriðji bankastjórinn, Eiríkur Briem,
leitaði ekki dómstólanna, en heldur
máli sínu að öllu leyti undir úrskurð
alþingis.
Carlsberg Pilsner.
r
Agætisvitnisborður alstaðar
t
Það er þá alþingi, en ekki dóm-
stólarnir, sem dæma á um aðferð
ráðherra við frávikning bankastjórn-
arinnar 22. nóv., og dómar um hana
geta ekki verið nema á einn veg,
enda kvað það við hjá öllum í vet-
ur meðan málsgögnin voru ekki
komin fram, að hvernig sem á þau
væri litið, þá væri aðferðin óforsvar-
anleg. Hún vakti alment hneyksli,
hvar sem um hana var rætt, bæði
utan lands og innan. Og ekki verð-
ur hún afsökuð með tramkomu máls-
gagnanna, heldur þvert á móti, og
þá enn síður með því, að sjálf stjórn-
arathöfnin hefur verið dæmd ólögleg.
Til kand. Sigurbj. Á.
Gíslasonar.
Hr. Sigurbjörn hefur getið rjett til,
er hann eignar mjer greinina um á-
rásir á nýju biblíuþýðinguna íslensku
í 33. tölubl. Lögrjettu. Jeg vissi, að
hann hlyti að fara nær um hið rjetta
í því efni, þótt nafn mitt stæði þar
ekki. Og það nægði mjer.
Nd hefur hr. S. skýrt frá málinu
í síðasta tölublaði Lögrjettu, og hef
jeg ekki nema fylstu ástæðu til að
vera ánægður með þá skýrslu, þótt
ófögur sje.
Hann hefur þar staðfest frásögn
mína um málið eins vel og jeg gat
frekast óskað. Myrkraverk hans og
þeirra kærendanna er að mestu leyti
komið fram í dagsbirtuna. Hjeðan
af engum ofverk að vita, hvernig
manni er að mæta, þar sem hr. S.
er. Tíminn mun leiða í ljós, hvort
hin nánu afskifti hans af þessu róg-
máli verða til að auka álit hans með
þjóð vorri.
Ónot hr. S. til mín um „bróður-
hug og sanngirni" (í gæsalöppum)
get jeg og hef jeg fyrirgefið honum
sem smávægilegt atriði í þessu deilu-
máli. Aðalatriðið er, að nú er fengin
skýrsla hr. S. sjálfs um afskifti hans
af málinu, og með hliðsjón á henni
segi jeg með orðum hr. S.: „Getur
hver dæmt um þau (0: afskifti hans
af máli þessu), sem honum sýnist“.
Jeg er ekki í neinum vafa um,
hver dómurinn verður.
Jón Helgcison.
Þýsk-franska stríðið. Utanrík-
isstjórnin framska er nú að gefa út
mikið ritverk um það og öll tildrög
til þess. Nefud manna annast út-
gáfuna, og er sagnfræðingurinn Joseph
Reinack fornr.iaður hennar. Nefndin
byrjaði að vinna að verkinu fyrir 3
árum, og nú er fyrsta bindið nýlega
komið út.
Knut Ham&un
varð fimtugur 4. þ. m. Norðmenn
hafa á fáum árum nú undanfarandi
mist fjögur skáld sín, sem mest
frægðarorð fór af, hvert eftir annað,
nú síðast í ár Björnson. Knut Ham-
sun er eitt hið helsta og stærsta
af skáldum þeirra nú, sem skarðið
fylla. — Það er sagt, að í Kristjaníu
hafi átt að minnast fimtugsafmælis
hans hátíðlega, en hann hafi neitað
að koma þangað. Hann leigir nú
bæinn Bakkelund í Elverum í Aust-
urdal og býr þar.
Fríi [játiÉm til iiik
Jón H. Sigurðsson, hjeraðslæknir
Rangvellinga, er nýkominn heim eftir
dvöl í Khöfn síðan í fyrra. 1. þ. m.
kvæntist hann í Khöfn frk. Ragn-
heiði Thórarensen, dóttur Gríms Thor-
arensens í Kirkjubæ á Rangárvöllum.
Tveir menn druknnðu fyrra
sunnudag í Miðá í Dölum. Þeir voru
að sundríða þar að gamni sínu, og
losnaði annar af hestinum, en hinn
ætlaði þá að bjarga honum. Við
þetta druknuðu báðir. Mennirnir
hjetu Eyjólfur Böðvarsson, frá Þangs-
stöðum í Laxárdal, og Ólafur Stefáns-
son frá Saurhóli í Saurbænum. Báðir
voru kaupamenn hjá Birni sýslumanni
á Sauðafelli.
Loítskeytastöð í Yestmannaeyj-
um. Englendingur, Turnbull að nafni,
segir ráðberrablaðið að hingað sje
kominn til þess að ransaka, hvernig
Vestmannaeyjar væru til þess fallnar,
að hafa þar loftskeytastöð. Hann
fór hjeðan til Krýsuvíkur og ætlaði
þaðan til Eyrarbakka.