Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 24.08.1910, Blaðsíða 4

Lögrétta - 24.08.1910, Blaðsíða 4
156 L0GRJET1 A. ,Hölar‘ fara frá Kaupmannahöfn 0. sept. til Austur- og Noröur- landsins. yi|greiðsla „Ijins sam. gu|uskipa|jelags“. 'AMKVÆMT ákvörðun íundar í heilsuhælisdeild Reykjavikur 15. þ. m. er hjer með skorað á alla Qelagsmenn, sem vilja greiða ije- lagsgjöld sin, áður en ný stjórn verður kosin, svo og þá, er kynnu að vilja láta gjaflr af hendi rakna til tjelagsins, að greiða það lil gjaldkera yfirstjórnarinnar, hr. bankastjóra Sighvatar Bjarnasonar, eða, meðan hann er fjarverandi, herra cand. juris H. Thorsteinson, en eigi til for- manns deildarinnar hjer, hr. læknis Þórðar Thoroddsen. Reykjavík, 20. ágúst 1910. Kl. Jónsson. 0TT0 MBNSTEDs dan$ka smjörliht er be^h Biðjið um legundírnar ,Sóley’* „ Ingóífur " „ Hehla ” eða Jsafold' Smjörlibið fœ$Y e\nungi$ frd: Ofto Mönsled h/f. s Kaupmannahöfn oð/fro5um ______i Panmörku.____ yrði ekki ofmikil fyrirferðar, þá finst mjer, að það gæti komið betur niður. Sjeu nokkur lýti á átgáfu bókar- innar, þá eru það þau, að of mikið beii á pappírnum auðum. Upphöf og niðurlög gera ekkert gagn — tilvís- anir einar gátu verið eins glöggar — en eyða miklu rámi. Samkvæmni eigi heldur í þessu tilliti, því að tví- prentað er á öðrum stöðum hið sama, og jafnvel prentað úr Sálmabókinni það, sem söfnuði er þó ætlað að syngja. Bókin hefði getað verið hæfilega lítil með nægilega stóru og breyttu letri, þótt hún hefði pistla og guðspjöll. Jeg hef samkskonar kver fyrir mjer sænskt, með ótrúlega miklu letri og greinilegu. Allir vita, hve Svíar eru snyrtinæmir í bókagerð. Leturbreyting er með mestu sam- kvæmni á allri efnisskipun bókar- innar; tæplega eins, að mjer virðist á lesköflunum. — — Og loksins geðjast mjer vel að „hornótta letr- inu“. Fyrst jeg tel mjer vansalaust, að bera klæði auglýst í vöruskránni, sem prentuð var með því, með helgi- siðabókina í höndum og á helgum stað, þá get jeg ekki fundið að því, þótt sama letrið skreyti báðar. Svo hefur nú þessi nefndin gengið frá starfi sínu. Þökk sje henni, að vjer eigum nú miklu betri helgisiða- bók og handbók presta en áður. Sjerhver vinur kirkju vorrar mun óska af hjarta, að það með öðru styrki þjóð vora í að finna, að hin sanna guðsþjónusta er eigi fyrst og fremst játning varanna, heldur andi og líf í samfjelagi við Jesúm Krist, og í dæmi hans, en að þá getur sá andi eigi heldur verið án játningar. — „Tungunni er tamast það, sem hjartanu er kærast". Og áfram skal halda. Eina nefnd- ina ætti biskup að kveðja til starfa: endurskoðunarnefnd kirkjusöngsins vors og helgihaldssöngsins alls. Jeg á mjer víst, að þar sje hægt að vinna mikið kirkju vorri til uppbyggingar og bókmentum vorum og þjóðerni til prýði og sæmdar. Máske meira um það síðar. Ritað í júlímánuði. Sigtryggur Guðlaugsson. Brúnn heatur, mark: standfjöður og biti framan hægra, hvarf í síðastl. viku úr Skólavörðuholtinu við Reykja- vlk. Finnandi geri svo vel að skila ann- að hvort í Þingholtsstræti 3, Reykjavfk, eða að Strýtu í Ölfusi. Koddaver fundið o. fl. á göt- unum. Áfgreiðslan vísar á. af vænum dilkum úr KjÓSÍllllÍ hjá Sláturjjel. Suðurlanðs. Nýprentað : St. G. Stephánsson: And- vökur III. Ljóðmæli. Jón Trausti: Heiðarbýlið III. Fylgsnið. Fæst hjá bóksölum. Aðalumboðssala í bókaverslun Arinbjarnar Sveinbjarnarsonar, Laugaveg 41. Riklingur nýkominn til J. Zimsen. Tapast hefur 13. þ. m. milli Kópa- vogs og Reykjavíkur böggull með svörtu sumarsjali og reiðpilsi. Finnandi er beð- inn að skila bögglinum í Ingólfsstræti 18. Tapast hafa þrír kanarífuglar, einn gulur og tveir flekkóttir. Finnandi er beðinn að skila á Laufásveg nr. 6. fæst daglega hjá Siggeir íorjasyni. Ágœt hagbelt f nánd við bæinn, fyrir 12—15 hesta, fæst leigð yfir næsta mánuð, sept. Semjið við Jón frá Vaðnesi. jjrjej páls jyielsteðs. Með því að í ráði er að gefnar verði út endurminningar Páls sagna- ritara Melsteðs og eitthvað fleira, sem eftir hann liggur, svo sem úr- val úr brjefum hans, leyfi jeg mjer virðingarfylst að mælast til þess, að þeir, sem kynnu að hafa í höndum brjef frá Páli Melsteð eða einhver skjöl eða skilríki, sem snerta æfi hans, vildu gera svo vel að ljá mjer þau til afnota. Þeir, sem vilja verða við þessum tilmælum mínum, eru beðnir um að gera svo vel að senda mjer brjefin til afnota, eða að gera mjer aðvart um þau. Heimili mitt er: Kaup- mannahöfn, Ole Suhrsgata 14. St. í Reykjavík 20. ágúst 1910. Bogi Th. Melsteð. Sökum ýmsra óþæginda af því að eiga samheiti við aðra, tek jeg, Kristín Jónsdóttir straukona, upp undirritað nafn. Kristín J. Hagbarð. Laugaveg 46. Reykjavík. Prentsmiðjan Gutenberg. Tveir hestar tapast. Rauður foli 4 vetra, með hvíta stjörnu í enni og lítið lauf á nös, með snúna hófa á framfótum — og jarpskjóttur foli 3. vetra; var ójárnaður á afturfæti, að öðru leyti al- járnaðir, mark: heilhamrað hægra á báð- um hestunum. Hvar sem þessir hestar kynnu að sjást, eru menn vinsamlegast beðnir að taka þá til hirðingar, og við fyrsta tækifæri að koma þeim með góðri ferð eða gera boð af þeim að Skógtjörn á Álftanesi, mót sanngjarnri borgun. Skógtjörn 22. ágúst 1910. Magnús Jónsson Skaptfellingur. Til lelgu herbergi fyrir einhl. á Bókhlöðustíg ii. Tvö herbergi, fyrir einhleypa, til leigu frá 1. okt. á Lindargötu 34. Einnig trjesmíðaverkstæði. Besta selur jes Zimsen. Ilamburg W. v. Essen & W. Jacoby. (Eigandi Waldemar v. Essen. Stofnad 1869). Vðruafgreiðsla. Skipaafgreiðsla. Vátrygging. Meðmæli: Die Deutsohe Bank. hafa hvergi annað eins feikna-úrval af Spariíötiirn Ferdafötum. Einkar hentug og Ijett eru Impregnerede HermannafÖt (Stormföt). Herdapohar, ljettir og hentugir, frá 2,70—5,00. TVJ3: Nýttl Nýttl Regnleggjahlífar , ljettar og mjög hent- ugar, áreiðanlega vatnsheldar; verð: kr. 1,75—5,00. Brauns verslun „Hamburg-11 Aðalstræti 9. 10 11 þeir þeystu allir i áttina, sem stúlkan varð að hafa farið til þess að komast heim til sín. Þá er þeir voru komnir nokkurn kipp áleiðis, rákust þeir á einn af varðsveinunum, sem vaka um nætur yfir hjörðum sfnum á þessum slóðum. En maðurinn var þá, eftir því sem sagt er, svo óttasleginn, að hann gat fyrst engu orði svarað, en loksins höfðu þeir þó upp úr honum, að hann hefði sjeð stúlku-aumingjann og hundana á eftir henni. »En jeg hef sjeð meira en það«, bætti hann við. »Hugi Baskerville reið hjer fram hjá á Brún sínum, en á hælunum á honum rann hundur þegjandi, ef hund skyldi kalla, svo ógurleg ófreskja og voðaleg, að jeg vildi óska þess af alhuga, að önnur eins óvættur elti mig aldrei á minni æfi«. Stallbræðurnir blótuðu varðsveinin- um og riðu áfram. En er þeir voru komnir spölkorn, varð þeim svo hverft við, að þeim rann kalt vatn milli skinns og hörunds; brúni hesturinn hans Huga hljóp á harða spretti fram hjá þeim, allur i einu löðri, með taum- ana niðri og tóman hnakkinn. Þá drógu drykkjusvolarnir sig saman í þjettan hnapp, því að ógurleg skelfing kom á þá alla í einu. Þeir hjeldu þó áfram ferðinni, en samt hefði hver þeirra, ef aleinn hefði verið, snúið óðara við hestinum og hleypt annan veg. Þeir riðu svo hægt og hægt og náðu loks hundunum, sem stóðu skjálf- andi hver hjá öðrum efst uppi á lítilli hæð á heiðinni. Sumir þeirra snaut- uðu nú burt, en sumir stóðu í sömu sporum og störðu með hárin út í loftið og glentar glyrnurnar ofan í mjótt dal- verpi og flöt, sem lá fyrir framan þá. Riddararnir námu þá staðar, ólíkt ódruknari en áður, er þeir lögðu á stað, eins og nærri má geta. Flestir þeirra vildu ekki fyrir nokkurn mun fara lengra; en þrír þeirra áræddu að ríða ofan i dalverpið, annaðhvort af því, að þeir voru meiri ofurhugar en hinír eða þá öllu druknari. Dalverpið breikkaði smám saman, er ofan eftir dró, og endaði á sljettri grund. Á henni stóðu 2 af þessum stóru stein- um eða björgum, sem menn hafa reist þar fyrri á öldum og sjá má þar enn. Bjart var um sljettuna alla af tungl- skini, og á henni miðri lá veslings- stúlkan dauð af þreytu og skelfingu. Drykkjurútarnir urðu nú alveg högg- dofa af sjón þeirri, sem fyrir þá bar. Það var ekki svo mjög dána stúlkan og lík Huga Baskervilles þar skamt frá, sem skelfdi þá svo mjög, en eitt- hvert skrímsl ógurlegt útlitum stóð hjá líki Huga og myndaði sig til að bíta það á barkann — stórt dýr, svart, í hundsliki, en stærra þó og voðalegra en nokkur hundur, sem nokkur mensk- ur maður hefur nokkurn tima augum litið. Meðan þeir námu staðar og störðu á þessa sýn, reif dýrið upp barkann á líki Huga Baskervilles, en svo sneri það sjer við og rak framan í riddarana þrjá glóandi augun og glefsandi hvoptana, svo að mennirnir æptu allir upp yfir sig af ógn og hryll- ingu og þutu á stað hver sem betur gat. Á flóttanum út yfir heiðina rak hvert skelfingarópið annað, og svo segir sagan, að sömu nóttina hafi einn þeirra beðið banann af þessari sjón, en hinir tveir aldrei oi’ðið samir og áður. Þannig er í fám orðum, synir minir, frásagan um þennan hund, sem ávalt síðan hefur verið óttaefni og kvala fyrir ætt okkar. Jeg hef látið ykkur fá að heyra hana, af því að það, sem við vitum með vissu um þessi ósköp, er þó ekki fult eins ógurlegt og skelfandi, eins og það, sem bent er til og búast má við. Ekki verður heldur á móti því borið, að ýmsir af ættmönnum vorum hafi beðið bráðan bana, hrylli- legan, grimmilegan og dularfullan. En við skulum leita líknar hjá for- sjóninni, sem er svo ósegjanlega mild, að hún lætur það ekki við gangast, sem við erum í ritningunni látnir lesa, að bölvun forfeðranna fylgi niðjum þeirra í þriðja og Qórða lið. Þessari forsjón fel jeg ykkur, synir mínir, og ræð ykkur til að vera varkárir og forðast heiðina, þegar er myrkt er orðið og illar vætlir eru komnar þar í almætti sitt. »Þetta skrifa jeg, Hugi Baskerville, til sona minna, Hróðgeirs og Jóns, en legg um leið blátt bann fyrir að þeir gefi systur sinni, Ellisif, nokkurn minsta ávæning um þetta mál«. Þegar er doktor Mortimer hafði lesið alla þessa kynlegu frásögn á enda, skaut hann gleraugunum upp á ennið og starði á Sherlock Holmes. Hann varpaði mæðilega öndinni og henti vindlingsstúfnum sínum inn í eldinn. »Hvað sýnist yður um söguna?« spurði hann. »Hún er merkileg, eða finst yður ekki það?« »Já, fyrir þá, sem safna æfintýrum og þjóðsögum«. Doktor Martimer tók samanbrotið dagblað upp úr vasa sínum. »Það var nú rjett, herra Holmes, en nú skal jeg lesa yður annað, sem er ekki eins gamaldags. Þetta er »Devon- sveitar dagblaðið« frá 14. júní þessa árs. Þar er stutt grein, sem drepur á alt það, sem enn er komið fram um dauða baróns Karls Baskervilles, er þá var látinn tyrir nokkrum dögum«. Vinur minn hallaði sjer lítið eitt áfram, og var sem lifnaði nokkuð yfir honum. Hinn þurkaði fyrst gleraugun og fór svo að lesa: »Hið skyndilega og óvænta andlát baróns Karls Baskervilles hefur alstað- ar vakið mikinn söknuð meðal manna hjer um slóðir. Hann var fyrst og fremst manna líklegastur til þingmanns fyrir Mið-Devon-kjördæmið við næstu kosningar. Hann hafði þennan stutta tíma, sem hann bjó á barónssetrinu, áunnið sjer hylli og aðdáun allra þeirra, sem komust í kynni við hann, fyrir einstakt örlæti og alla framkomu aðra. Það er gleðilegt að sjá á þess-

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.