Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 07.09.1910, Blaðsíða 1

Lögrétta - 07.09.1910, Blaðsíða 1
Aígreiðslu- og innheimtum.: ARINBJ. SVEINBJARNARSON. Liaugavetí 41. Talsimi 74. LOGRJETTA Ritstj ó ri Rorsteinn gislason Pingholtsstrtæi 17. Talsími 178. Reykjavík 7. september ÍOIO. V. árg-. Stórtíðindi. Verslunin Edinborg hefur keypt úrv alið af vefnaðarvörubirgðum hinnar góðkunnu H. Tli. ,A_. Thomsens verslunar hjer í bænum. Yörurnar eru keyptar fyrir svo lágt verð, að verslunin Edinborg stendur sig við að bjóða þær almenningi með afarmiklnm afslætti. Pær verða til sýnis á lilnni árleg’ii liaustsölu verslunarinnar Edinborgar, sem byrjar 15. september næstk. og verður í stærri stýl en nokkru sinni áður. II Það er orðið alkunnugt, að hvergi fást betri kaup en á útsölum versl. Edinborgar. Bíðið með kaup yðar til 15. sept. I Pj'er þurfið efífíi að Bíða með (ílnavörukaup yðar, þegar önnur eins kostaboð eru fyrir hendi og nú, þar sem allskonar vörur, góðar og nýjar, eru seldar með 10{)|0 qfsíœííij ctuR gjqfvarés d ýmsum öérum vörum. Mjunið eftir* einn, að vörurnar, sem afsláttur er gefinn af, eru allar undanteliniiifrarlaust nýjar og góðar og óleg-nar vörur, sem endingarinnar vegna er óhætt að kaupa. Bgill Jacobsen, vefnaðarvöruverslun, Reykjavík. I. O. O. F. 91929. Forngripasafnið opið á hvern virkan dagkl. 12—2. Lækning ók. f læknask. þrd. og fsd. 12—1. . Tannlækning ók. (f Pólthússtr. 14) 1. og 3. md. í mán. 11—1. Landakotsspítali opinn f. sjúkravitj. io'/* —12 og 4—5. Islands banki opinn 10—2V2 og 5T/a—7. Landsbankinn iot/2—2T/2. Bnkstj. við 12—1. ' Lagaskólinn ók. leiðbeining 1. og 3. Id. f mán. 7—8 e. m. Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl. 12—3 og 5—8. HAFNARSTR' 1718 1920 21-22 "KOLAS 12' LÆKJART \ l * REYKJAVIK • Faxaflóagufubáturinn „Ingólfur" fer til Borgarness 11., 14. ogi7. sept. - - Keflavíkur og Garðs 9. og 30. sept. - - Sandgerðis 20. sept. Lárus Fjeldsted, YflrrjettarmálafeerslumaOur. Lækjargata 2. Heima kl. 1 I —12 og 4—5. og kitti er best að Bankastr. 14. Talsími 128. fllafnr PorsteinssDn háls-, nef- og eyrna-læknir, Vonarstræti I (Iðnskólinn). Heima kl. 11—1 alla virka daga. jtýjar kartöjlur og allskonar grænmeti fæst á hverjum degi hjá Petersen bústjóra í Viðey. Heilsááö á Vífilsstöðum fullgert. Til ljóssins. Þetta er mynd af minnisvarða Nielsar Finsens ljóslæknis, sem reistur hefur verið utan við nýja Ríkissjúkrahúsið í Khöfn. Varðinn er gerður af H. Tegner myndhoggvara og heitir: „Til ljóssins" („Mod Lyset"). Margir myndhöggvarar gerðu uppkast að minnismerkinu, en uppkast H. T. var dæmt best. Guð, keisarinn og Prússar. Vil- hjálmur keisari sagði nýlega í ræðu í Königsberg að hann þættist hafa konungstign sína frá guði en ekki frá neinu þingi, þjóðfundi eða þjóð- arvilja, taldi sig vera verkfæri í guðs hendi og kvaðst ekki hirða um al- menningsálit og allsherjarskoðanir, heldur hafa það eitt fyrir augum, að vinna fósturjörðunni gagn og efla framfarir á friðsaman hátt. Prússár eru vanir harðstjórn, en þetta gengur fram af þeim. Öll blöð finna að þessum ofmetnaði; er búist við fundarhöldum og ýmiskon- ar gauragangi. Bruninn í Bryssel. í Bryssel stendur mikil og voldug alheimssýn- ing, sem var opnuð í vor. 15. ág. kom upp eldur í sýningarhúsunum og brunnu mörg þeirra til kaldra kola. Enginn veit hvernig eldurinn kviknaði. Tjónið er geypilegt, um 40 miljónir króna. Slökkviliðinu í Bryssel er lýst svo, að manni finst það hafa hlotið að læra hjá okkur, kom of seint, kunni ekkert og gat ekkert. Þetta er Lögr. ritáð frá Khöfn, og hefur því brunatjónið orðið töluvert minna en áður var sagt í símskeyta- fregnum hingað. Tekið á móti sjúklingum. Það var byrjað nú um síðastliðna helgi að taka á móti sjúklingum í Heilsuhælið á Vífilsstöðum. Einn sjúk- lingur var kominn þangað á sunnu- daginn, 5 fluttust þangað á mánu- daginn. Umsóknir um sjúkravist á hælinu voru þá komnar frá millli 20 og 30. Á sunnudaginn var hælið sýnt þeim, er þangað komu í þeim er- indum að skoða það. Hafði það ver- ið tilkynt áður, að svo yrði gert. Læknir og formaður Heilsuhælisfje- lagsins voru þá þar uppfrá. Það er ánægjulegt að skoða Heilsu- hælið á Vífilsstöðum; alt er þar svo vel vandað, jafnt húsið sjálft sem út- búnaður allur. Það er vafalaust að öllu saman lögðu vandaðasta og full- komnasta byggingin, sem til er á landinu. Húsið er alt úr steini, vegg- ir, Ioft og gólf, aðeins hurðir og gluggakarmar úr trje, og svo risið undir járnþakinu. Hitt er alt úr steinsteypu. Aðalhúsið er 64 álnir á lengd og 15 á breidd. En út úr báðum end- um ganga til norðurs tvær álmur, 20 álna langar og 16 álna breiðar. Milli þeirra gengur út þriðja álman úr miðri byggingunni, 9 álna löng og 15 álna breið. Þar er aðalinn- gangurinn í húsið. í stofubygðinni er gangur með norðurhlið, en sunnanmegin er dag- stofa sjúklinga og tvær borðstofur. Ur dagstofunni eru dyr út að stór- um svölum á vesturgafli hússins. Við austurgafl er íbúð læknis og sjer- stakur inngangur í hana. Þar er og tilraunastofa læknis (laboratorium), en við vesturgafl eru 2 sjúkrastofur, hvor handa 6 sjúklingum. í Miðbygð eru 10 einbýlisstofur. í þær hefur Geir kaupmaður Zoega gefið húsbúnað. Þá eru þar 4 sex- rúmastofur og 2 þriggjarúmastofur og svo íbúðarherbergi handa hjúkrunar- konum. Gangur er þar með norð- urhlið, eins og í stofubygð, og þar klæðaskápar handa sjúklingum, einn handa hverjum, og þvottaskálar með vatnspípum. Karlmönnum er ætlað að búa öðrumegin aðaluppgangs, en kvenfólki hinumegin. í efstu bygð eru 2 sexrúmastof- ur, 4 þriggjarúmastofur og baðher- bergi. Þar eru og 14 herbergi handa starfsfólki sjúkrahælisins. Þar fyrir ofan, undir þaki, eru geymsluklefar og þerriloft. í kjallaranum er miðstöðvarhita- vjel, eldhús, stórt og fallegt, búr, borðstofur verkafólks, þvottahús, þrír baðklefar o. m. fl. Þar er hráka- potturinn, sem svo er nefndur, stór pottur, sem í eru soðnir hrákar sjúk- linganna, en uppi í göngunum eru postulínshylki, sem hrákunum er helt í, og flytjast þeir svo af vatnsstraumi þaðan og niður í pottinn í kjallar- anum, en í honum er sjóðandi vatn alla daga. Þegar hrákarnir hafa ver- ið soðnir þar, eiga allar sóttkveykj- ur í þeim að vera drepnar. Salerni eru á öllum hæðum. Húsið er alt lýst með rafmagni. Sjerstakt hús hefur verið reist fyrir rafmagnsvjelarnar Iftinn spöl fyrir austan aðalhúsið. Við rúm hvers sjúklings er lampi. Einnig er hring- ingarhnappur við hvert rúm. Vatnsbrunnur er spölkorn í austur frá húsinu og er vatni dælt þaðan með rafmagni upp í vatnsgeymi hátt uppi í hlíðinni hinumegin við lægð- ina sunnan og austan við Heilsu- hælið. Þaðan er svo vatn leitt um alt húsið. Er þar bæði heit og köld vatnsleiðsla. Loks er að minnast á leguskálann. Það er 90 álna löng og rúml. 6 álna breið álma, sem liggur út frá Vesturgafli hússins, með steingólfi og steyptum steinvegg norðanmegin með gluggum á og þaki yfir, en opin

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.