Lögrétta

Issue

Lögrétta - 21.06.1911, Page 3

Lögrétta - 21.06.1911, Page 3
L 0 G R J E T TA. 117 úr hjartaslagi Guðjón Baldvinsson kand. phil., kennari við barnaskól- ann á ísafirði. Mishermi er það í „Visi“ i gær, sem segir um foringjana a Fálkan- um og háskólasetninguna. Það er rjett, að skriiuð voru spjöld til þeirra, eins og margra annara, og þeim þar með boðið að vera við athöfnina. En þau komust ekki til þeirra í tæka tfð og voru svo látin í póstkassa. En er brjef voru borin um næst úr póstkössunum, var Fálkinn farinn. — »Vísir« hyggur, að þeir hafi feng- ið boðsbrjefin og farið út þess vegna, en það er misskilningur. Íslandsglíman fór fram á föstu- dagskvöld, eins og til stóð. Sigur- jón Pjetursson vann nú beltið í ann- að sinn, feldi alla. Haraldur Einars- son, glímumaðurinn að austan, meidd- ist í fæti, svo að hann varð að ganga frá. Hafði hann verið feldur bæði af Hallgr. Benediktssyni o. fl. En lfklega hefur fótarmeiðslið bagað hann, einnig áður en hann hætti. Heimspekispróf tóku hjer þessir stúdentar síðastl. föstudag : Halldór Hansen, Helgi Skúlason, Jón Ás- björnsson, Jón Jóhannesson, Sig. Sigurðsson og Þorst. Þorsteinsson — allir með eink. dáv. nema S. S., er fjekk dáv. -f-. Enginn fangi er nú í hegningar- húsinu. Hinn síðast útskrifaðist það- an 16. þ. m, daginn fyrir afmæli Jóns Sigurðssonar. HJÓnaband. 17. þ. m. voru gefin saman í hjónaband hjer í bænumL. H. Muller verslunarstjóri og frk. Marie f. Bertelsen. Frá útlöndum eru nýlega komin Pjetur Halldórsson bóksali ásamt unnustu sinni, frk. Ólöfu Björnsdótt- ur, og systur, frk. Hólmfríði Hall- dórsdóttur, er dvallð hefur erlendis um hrfð, — um tíma hjá K. Kuchler f Þýskalandi. r á víéavangi. Nú skal eigi nefna norðanált í ljóði, engum klökkva-óði út um sveitir stefna; en úr sólskins-sjóði söngva til skal efna. Gengur vor að verki: vaxnir straumar geisa, fönn til fjalla leysa, fella vetrar merki. Græn er gnúpum peysa gjörð — sem hempa klerki. Yfir völl og voga veltur ljóssins alda, — vorið brýst til valda. Virðast skuggar loga, er þeir undan halda eins og fætur toga. Hjer er enginn hljómur heftur vissu stefi; enginn kennir kvefi hversu hás sje rómur. — Söng með sínu neti svanur, spói, lómur. Úti’ á viðavangi veltist jeg i blómum, snortinn geisla-gómum, gripinn vorsins fangi. Drapst þú mig úr drómum, dagur bjarti, langi. Jakob Thorarensen. Ísaíold. Tileinkað Karli í Koti. ísafold er frjetlaflest — fer með skreyttar sagnii' rnest. — ísafold er blaða best, en — bara »negativt« það sjest. Hindurvitni og hræsnis-pesl hefur ísa fóstrað best. Andrúmsloptið er þar versl, setn ísafold er lesin mest. Sverrir. jtfálajerlin. Á öðrum stað lijer í blaðinu er getið um endalyktir hinna svo- nefndu »Kássumála«, sem Björn Jónsson hratt á stað í fyrrasumar. Það var ekkert smáræðis verk, að skrifa varnir i allri þeirri mála- kássu. Ritslj. Lögr. ljet prenta inngang fyrir vörninni í hverju einstöku máli, og fer hann hjer á eftir: „Mál þetta er eitt meðal margra tuga samskonar mála, er stefnandi hefur höfðað gegn þeim blaðamönn- um hjer í landinu, sem honum þyk- ir hafa of nánar gætur á stjórnar- farinu, sem íslendingar eiga nú við að búa, og er það bersýnilega til- gangur hans með öllum þessum mál- um, að sljóvga það eftirlit og hetta málfrelsi blaðanna með hjálp þeirra ófrjálslegu og löngu úreltu laga- ákvæða, sem enn gilda hjer á landi um þessi efni. Hann mun sjá, sem er, að efhonum tækist að múlbinda blöðin, svo að ekkert yrði um stjórn- arathafnir hans sagt annað en það, sem hann vill vera láta, þá ætti hann hægra með það eftir en áður, að beita valdinu 1 öllum efnum eftir eigin geðþótta og leiða almenning eftir vild sinni. En það er hver- vetna um hinn mentaða heim talin skylda góðra blaða, að gæta hags- muna og rjettar bæði almennings og einstakra manna gagnvart þeim, sem með völdin fara. Þessi eftirlitsskylda og það álit, sem blöðin hafa aflað sjer með því, að gegna henni, gefur þeim rjettindi, sem viðurkend eru í öllum menningarlöndum, til þess að tala hiklaust og afdráttarlaust máli þeirra, sem þeim finst vera rangind- um beittir, hvort heldur eru heilar þjóðir, heilar stjettir manna eða ein- stakir menn. Mundi það hafa hinar verstu afleiðingar, ef hægt væri að hefta þessa starfsemi blaðanna. En svo er á það að líta, hvernig verið hafi framkoma þeirrar stjórnar, sem hjer fer nú með völd og vill beita gömlum og úreltum lagaákvæð- um til þess að sljóvga skyldueftirlit blaðanna með gerðum sínum. Hún hefur verið, að allra skynberandi og óhlutdrægra manna dómi, hin versta stjórn og aumlegasta í alla staði. Það mál, sem verið hefur íslend- ingum hið mesta áhugamál og þeir hafa barist fyrir í fulla tvo manns- aldra, hefur stefnandi svæft og eyði- lagt. Þetta mál er „Sambandsmálið", og er hann þar í sök, sem seint eða aldrei verður fyrirgefin. Hann kom svo fram í Danmörku um það leyti, sem hann tók hjer við völdum, að jeg tel ísland hafa beðið álitshnekki við þá framkomu, sem langan tíma muni þurfa til að bæta. Fjárstjórn landsins hefur farið hon- um og flokki hans afarilla úr hendi. Fylgismenn hans hafa fengið að óþörfu stórfje úr landsjóði. Fjárlög landsins hefur hann brotið, borgað út fje og samið um úthorgun á fje, sem eigi er heimilað í fjárlögunum. Hann hefur ráðist á peningastofn- un landsins og gert henni lítt bætan- legan hnekki með ráðlagi sínu, rekið frá henni þjóðfrægan ágætismann og sett aftuir fyrir hana gæðing sinn, en óhæfan mann til starfsins. Ennfrem- ur rekið frá henni þingkosna gæslu- stjóra hennar og skipað starf þeirra öðrum, móti lögum landsins. Dómar hafa gengið um þessar gerðir hans, en hann hefur ekki hlýtt dómsvald- inu. A opinberum málfundum hjer í bænum hefur hann borið fram ósann- indi í mikilsverðu máli, er rekin hafa verið ofan í hann sem einber upp- spuni, og það tel jeg óhæfilegt af manni í hans stöðu. En svo mætti lengi fram telja og út í eiustök atriði fer jeg ekki. En maður, sem svo hegðar sje í valda- sessi, getur ekki verið laus við að- finningar, svo lengi seiu niálfrelsi er 1 landinu, Yfiirleitt er það sarníæring mín, að eigi sje unt að finna hjer nokk- urn mann, sem jafnilla sje til þess fallinu og stefnandi að gegna því emba:tti, sem hann hefur nú á hendi, cTunéur i c^ram laugarginn 24. þ. m. kl. 81/? í Templarahúsinu. Alþingis- kjósendur eru beðnir að fjöl- ineiina. Stjórnin. og að það sje mjög til ógagns þjóð- inni á marga lund, ef hann á að sitja í því áfram. Þetta hef jeg leit- ast við að sýna lesendum blaðs míns og talið nijer skylt að gera það". „Vjer erum fátæk þjóð, íslending- ar — þess vegna megum vjer ekki banna aðflutning á dýrri og skað- legri vöru'*. Jóni á Seli þótti það einnig hyggi- lega gert, að kaupa tóman óþarfa fyrir 50 kr. svo að hann gæti fengið 20 kr. afslátt á reikningi sínum, — en kaupmaðurinn hló. „Margir einstaklingar eru alveg gjaldþrota eða því sem næst — þess vegna verður að halda aðflutningi átengis sem lengst". „Jú, jú; Bakkus karlinn hefur löng- um bjargað mönnum frá gjaldþroti, tða hitt þó heldur". Landsjóður er í þröng, stjórn og skattamálanefnd hefur ekki verið sýnt um að efla hann sem skyldi, og flokkadrættir og persónurígur veldur því, að ómögulegt er að koma neinni arðvænlegri stórbreytingu á tolllöggjöf landsins, að þessu sinni. — Þess vegna verður að styðjast við áfengistollinn enn um hríð". Aumt er að lenda í höndum okr- ara og vera svo blindur að halda, að það sje gróðavegur; en hver er verri okrari en Bakkus, sem segir: „Láttu mig fá 5 kr. og þá skal landsjóður fá tvær hjá mjer".*) En sje landið svo illa statt, að það geti ekki fengið peninga, nema landsmenn borgi 150%, þá er best að segja það sem fyrst til sveitar. Stjórnspekingarnir sumir byggja gróðavon landsjóðs á, að meira verði drukið, ef aðflutningsbanninu er frestað. En reynslan sýnir, að meiri áfengis- drykkju fylgir fleiri tár kvenna og barna, fleiri dánar vonir roskinna foreldra, fleiri vængbrotin ungmenni, fleiri hreppsómagar, fleiri slys, fleiri glæpir. Skyldi nokkur dirfast að telja það meinlaust eða jafnvel gróða fyrir landið, að efla ógæfu margra lands- mannaf „Embættismennirnir borga, og skila á þennan hátt launum sínum aftur í landsjóð", — segja and banningar í al- þýðuhóp. En þó svo væri að einhverju leyti, fer þó minst af áfenginu í landssjóð og hver getur reiknað „tekjuhallann" af t. d. hverjum drykk- feldum lækni eða presti; mismuninn á tjóninu, sem þeir gera nú, og gagn- inu, sem þeir gætu gert ellaf „Útlendingar drekka og borga", segja margir. Óvíst mun vera, hvað mikið er tollað af drykkjum útlend- inga í aðaldrykkjuskaparstöðum þeirra hjer á landi, en þó það væri alt lögum samkvæmt, er það æði öfug gestrisni og auðvirðilegur hugsunar- háttur að hugsa sem svo: „Þaðgerir ekkert til, þótt vj r fjeflettum er- lenda aðkomumenn og seljum þeim vörur, sem þeir hafa tjón af. Fari þeir á hreppinn eða í hundana, ef þeim sýnist, sama er mjer; þeir eru útlendingar". Skiljanlegt er, að illræmdir strand- ræningjar hugsi svipað þessu, en gestrisnir’ íslendingar ættu að fyrir- verða sig fyrir að hlusta á annað eins, hvað þá sjálfir að flytja þær kenningar. Hugsum oss, að vjer værum sjálfir útlendingar, eða ættum nákomna vandamenn ytra,—mundum vjer kjósa, að breytt væri við oss eða þá svip- að því, sem sumir vor á meðal virð- ast helst kjósa að breyta við erlenda mennf — — Fegurra væri, ef prestarnir á þingi legðu sig í framkróka til að eyða hatri og óþörfum flokkadrætti, held ur en hitt, að nokkur þeirra styddi þau örþrifaráð, að efla áfengisbölið í „hagnaðarskyni fyrir landið”. 5. G. *) Árið 1908 fluttust til íslands áfengir drykkir fyrir rúmar 554 þúsund kr.; sama ár fjekk landsjóður í áfengistoll 193 þúsundir rúmar. Mismunurinn: 361 þús. kr., hefur naumast aukið gjaldþol landsmanna. Taurúlla stór, til sölu fyrir hálfvirði hjá Jóli. Jóhmmessyni, Laugaveg 19. Áskorun. Við undirritaðar konur í Reykjavík höfum ásett okkur að bindast fyrir það, að heiðra minningu fyrver- andi ráðherra H. Hafsteins fyrir happasæl afskifti hans af kvenrjettindamálinu, með því að efna til samskota meðal kvenna til að stol'na minningarsjóð, er beri nafn hans, og verði vöxtum sjóðsins á sínum tíma varið til þess að styrkja fátækar stúlkur, sem stunda nám við há- skóla Islands. Æskilegast væri, að samskotin yrðu sem almennust með litlu lillagi frá hverjum og að þeim yrði hraðað, svo að hægt væri að stofnsetja sjóðinn á 50. af- mæli H. Hafsteins, sem er 4. Des. næstkomandi vetur. Reykjavik, 7. Júní 1911. Frú Agúsla Sigfúsdóttir, Frú Álfheiður Briem, Frú Ásta Hallgrímsson, Amtmannsstíg 2. Tjarnargötu 24. Templarasundi 3. Frk. Bergljót Lárusdóttir, Frk. Elín Stephensen, Þingholtsstræti 16. Viðey. Ráðskona Guðbjörg Guðmundsdótlir, Frú Guðborg Eggertsdóltir, Kolasundi 1. Grettisgötu 46. Frú Guðrún Björnsdóttir, Frk. Guðrún Daníelsdóttir, Þingholtsstræti 16. Þingholtsstræti 9. Frú Guðrún Jónsdóltir, Frú Guðrún Sigurðardóttir, Bergstaðastræti 2. Grundarstíg 15. Frú Helga Edilons, Frú IJelga Ólafsson, Frú Helga Torfason, Vesturgötu 48. Laugaveg 2. Laugaveg 13. Frk. Hólmfríður Gísladótlir, Frú Ingibjörg Cl. Porláksson, Vonarstræti 3. Tjarnargötu 18. Mad. Ingiríður Brynjólfsdóttir, Frk. Ingunn Bergmann, Þingholtsstræti 28. Vonarstræti 3. Frú Ingveldur Thordersen, Frú Jakobína Thomsen, Þingholtsstræti 19. Miðstræti 8 A. Frk. Krisiín Aradóttir, Frú Kristín Böðuarsson, Pósthússtr. 14 A. Þingholtsstræti 19. Frú Kristín Y. Jakobsson, Frk. Kristrún Hallgrímsson, Bólstaðahlíð. Templarasundi 3. Frk. Laufey Vilhjálmsdóttir, Frú Lilja Kristjánsdóttir, Rauðará. Laugaveg 37 A. Frú Lilja Ólafsdótlir, Frk. Lovísa Ágústsdótlir, Frú Margrét Jensen, Laugaveg 25. Grettisgötu 1. Fríkirkjuveg 11. Frú Margrét (ÓlsenJ Magnúsdóttir, Frk. Martha Stephensen, Skólavörðustíg 31. Viðey. Frú Milly Sigurðsson, Frú Oklavía Smith, Frú Sigríður Bjarnason, Suðurgötu 12. Miðstræti 7. Laufásveg 35. Frú Sigríður Jakobsdóttir, Frú Sigríður Pórarinsson, Laugaveg 41. Laufásveg 34. Frk. Sigurbjörg Porláksdóttir, Frú Stefanía Copland, Pósthússtræti 17. Skólastrræti 4. Frú Slefanía Guðmundsdóttir, Frú Valgerður Jónsdóltir, Laugaveg 11. Laufásveg 5. Frú Valgerður Ólafsdótlir, Frú Pórunn Pálsdóttir, Smiðjustígf 12. Þingholtsstræti 17. Samskotunum veita móttöku : Bankastjórafrú igústa Sigfúsdóttir, Frú Ásta Hallgrímsson, Frú Helga Torfasou, Frú Margrjet (ólsen) Magnúsdóttir, Frú Milly Sigurðsson. Frí fjalláta til iirti Mannslát. 2. þ. m. andaðist að heimili s/nu, Syðrihaga í Miklaholts- hreppi, Kristján Jónasson, bróðir Jónasar Jónassonar lögregluþjóns hjer í bænum, — mjög vandaður maður. Prestur í Grundarþinguni er síra Þorsteinn Briem skipaður, áður aðstoðarprestur í Görðum. Prófastur er nýlega skipaður í Mýraprófastsdæmi síra Magnús And- rjesson á Gilsbakka, og hefur hann verið það áður, en nú síðast um hríð síra Jóhann í Stafholti. Stórbruni. Mánudagskvöldið 12. þ. m. brunnu til kaldra kola öll verslunarhús og íbúðarhús Guðmund- ar kaupm. Jónassonar í Skarðsstöð. Alt var sagt vátrygt fyrir 34 þús. kr., í fjelaginu „Palatine", sem þeir 0. Johnson & Kaaber eru umboðs- menn fyrir. l'fáriiúni í húseign og vöium British N.-W. Syndicate hafa þeir M. Blöndahl alþm. og H. Zoéga kaup- maður nýlega látið gera. Einnig hafa þeir höfðað mál gegn fjelaginu út af viðskiftum, sem þeir hafa átt við það. Málaferlin. Nú er þeim loks- ins lokið öllum málaferlunum, sem afsetti ráðherrann okkar, Björn Jónsson, hratt á stað fyrir tæpu ári, sællar minningar. Þeim lauk síðastlitinn íimtudag með því, að dæmt var í 20 málum, sem síra Eiríkur Briem höfðaði gegn ísaf., og var blaðið sýknað í tveimur, en dæmt í 18, samtals i 405 kr. sektir og 270 kr. málskostað. Alls bætast þar við málgagn B. J. 675 kr., og er það þá orðið langhæst allra blaðanna í sektun- um, eins og auðvitað mátti vera hverjum algáðum manni þegar í upphaíi, að verða mundi áður lyki. ísland erlendis. Heimspekispróf við háskólann í Khöfn hafa nýlega tekið: Helgi Guðmundsson, Laufey Valdimars- dóttir, Sigtr. Eiríksson, Skúli Skúla- son, Stgr. Jónsson og Þórður Þor- grímsson. Prófessor Þorvaldur Thorodd- sen. Honum hefur verið boðið á alþjóðalund lögfræðinga og jarð- fræðinga, scm halda á í Rómaborg í sumar, og hann beðinn að halda þar fyrirlestur. Hefur honum verið falið að vera um leið fulltrúi Kaup- mannahafnarháskóla á fundinum.

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.