Lögrétta - 17.04.1912, Blaðsíða 1
Afgreiðslu- og innheimtum.:
arinbj. sveinbjarnarson.
L.ftuuaveg 41.
Talsimi 74.
Rit s tj ó r i:
Þorsteinn gísla.son
Pingholtsstræti 17,
Talsimi 178.
M 21
ReykjavíU V7. apríl 1013.
"VII. árg;.
400
KLÆÐNAÐIR, allar stærðir,
sjerlega fagrir litir, nýjasta týska, fara ágætlega
og verðið aldrei eins lágt og nú.
Þó gefum við öllum afslátt.
Einnig
Ferming'arföt.
Nýkomið í A usturstræti 1.
Ásg. G. Gunnlaugsson S> Co.
Alþingi.
I. «. O. F. 934199
Þjóðmenjasafnið opið sunnud., þriðjud. og
fimtud. kl. 12—2.
Lækning ók. ( læknask. þrd. og fsd. 12—1.
Tannlækning ók. (í Pólthússtr. 14) I. og 3.
md. ( mán. 11—1.
Landakotsspftali opinn f. sjúkravitj. io'/s
—12 og 4—5.
Islands banki opinn 10—272 og 5y»—7-
Landsbankinn 10*/»—a’/u. Bnkstj. við 12—1.
Lagadeild háskólans ók. leiðbeining 1.
og 3. Id. ( mán. 7—8 e. m.
Landsbókasafnið opiö hv. virkan dag kl.
12—3 og 5—8.
Heilsuhælið opið til heimsókna 12—1.
Lárus Fjeldsted,
YflrrJ ettarmálaf ærslumaflur.
Lækjargata 2.
Heima kl. 1 1 — 12 og 4—7.
Tvisttau,
margar tegundir, mjög góðar og
ódýrar. Ljereft allskonar,
Sirts, Flonelett.
Sturla Jónsson.
Repkapr,
fyrir konur og karla, mjög ódýrar
og góðar.
éííuría clónsson.
Vesturjaraskip jerst.
1600 menn drukna.
Frá Khöfn er símað í gærkvöld:
„Stærsta skip heimsins, sem heitir
„Titanic", er sokkið í Atlantshafi á
vesturleið af ísjaka árekstri.
Loftskeytin segja 1600 druknaða".
Ivalveiðastöövar seldar.
„Austri" segir frá því, að H. El-
lefsen á Asknesi í Mjóafirði hafi nú
selt hvalveiðastöð sína þar, að sögn
fyrir 450 þús. kr. Kaupandinn er
norskur maður, I. Christensen, frá
Túnsbergi. 2 hvalabátar fylgja með
£ kaupinu. Ætlar I. Christensen að
flytjast að Asknesi, segir blaðið, og
halda þeim út þaðan. En helming
stöðvarinnar hefur hann selt til nið-
urrifs og á að flytja hann til Ástra-
líu.
Munu Austfirðingar mjög sjá eftir
hr. H. Ellefsen, því hann hefur al-
staðar reynst hinn nýtasti og besti
maður.
Dahl hvalveiðamaður þar eystra
hefur einnig selt stöð sína, segir
„Austri". Kaupandi hennar er sagð-
ur Mayer lögmaður í Tunsbergi, en
um verð hennar er ókunnugt.
FuPStamOPÖ. Furstinn af Sa-
mos. Andreas Kapassis, var myrtur
24- f- m., skotið á hann 5 skamm-
byssuskotum og hittu 3, svoaðhann
fjell þegar dauður niður. Morðing-
inn er grískur maður, Parides að
nafni, og var hann handsamaður.
Saineinaða gjufuskipafjcl.
Skipafloti þess var við lok síðastl.
árs 118 gufuskíp, auk smærri skipa.
í býggingu voru þá 8 gufuskip, og
eftir áramótin átti að byrja á 2 í við-
bót. Hlutafjeð, 25 milj. kr., var um
áramótin aukið um 5 miljónir. Nettó-
ágóði síðastl. árs var 5,389,900 kr.
Hluthafar fengu 6°/o.
Stórslys enn.
Fiskiskipið „Svanur“ brotnar í
árekstri.
14 menn vanta.
Vjelarbátur ferst.
6 menn drukna.
Aðfaranótt síðastl. sunnudags var
ofsaveður síðari hluta nætur og fram
á morgun, fyrst á sunnan, en varð
síðan vestlægara. Ekki stóð það
nema nokkrar klukkustundir. En í
því urðu þau tvö slys, sem hjer segir
frá á eftir.
í gær kom inn hingað frönsk
skonnorta, „St. Yves“ frá Paimpol,
nokkuð brotin, og hafði með sjer 12
menn af einu fiskiskipinu hjeðan,
„Svaninum", eign H. P. Duus. Skip
þetta hafði rekist á „Svaninn" í stór-
veðrinu og brotið hann eitthvað. En
þessir 12 menn komust upp á franska
skipið. Aðrir 14, sem á „Svaninum"
voru, urðu þar eftir, og vita fjelagar
þeirra ekkert um þá frá þeirri stundu,
er áreksturinn varð. Skipstjóri segir
svo frá, að eftir kl. 3V4 um nóttina
hafi gert kafaldsbyl og vindur farið
að breytast. Skipstjóri var þá uppi
á þilfari og eins stýrimaður. Sáu
þeir skip koma siglandi og bar það
að þeim með miklum hraða og ekki
hægt að komast hjá árekstri. Skip-
stjóri ljet þá kalla á þá, sem undir
þiljum voru. En áreksturinn bar brátt
að, og rakst franska skonnortan fram-
an á bóginn á „Svaninum". Þeir
hlupu þá 12 af „Svaninum" og upp
á skonnortuna, er strax rann aftur
með, og hvarf „Svanurinn" þeirn
eftir stutta stund í kafaldsjeli.
Þeir sem af komust, voru: Guðjón
Guðmundsson skipstjóri (Grettisg. 12),
Sig. Sigurðsson stýrimaður (Grettisg.
22), Ólafur Ólafsson, Stefán Jósefs-
son, Kristinn Guðmundsson, Ásmund-
ur Guðmundsson, Benedikt Jóhanns-
son, Jón Guðmundsson, Árni Jóns-
son, Guðm. Eiríksson, Theódórjóns-
son, Guðmundur Hjörleifsson.
En þeir, sem eftir urðu á skipinu,
voru:
1. Vigfús Magnússon, af Akranesi.
2. SigmundurHelgason.afAkranesi.
5. Jóhann Hjörleifsson, úr Reykja-
vík (Bræðraborgarst.).
4. Sveinn Davfðsson, af Akranesi.
5. Magnús Magnússon, af Akranesi.
6. Bjarni Guðmundss., af Akranesi.
7. Ólafur Jónsson, frá Gígjarhóli í
Biskupstungum.
8. Teitur Gíslason, af Akranesi.
9. Jón Pálsson, úr Keflavík.
10. Magnús Ólafsson, af Akranesi.
11. Eiríkur Jónsson, úr Reykjavfk
(Brekkust. 3).
12. HallgrímurEyjólfsson, fráBakkar-
holti í Ölfusi.
13. Eiríkur Ingvarsson, úr Reykjavík
(Ánanaustum), ættaður austan af
Skeiðum.
14. Jón Páll Jónsson, úr Keflavík.
Vonlaust er eigi um, að mennirnir
hafi komist af á „Svaninum". Slysið
hafði viljað til nálægt Vestmanna-
eyjum, og skip mörg um þærslóðir.
„Fálkinn" hefur verið beðinn, með
símtali til Vestmannaeyja, að leita
skipsins.
Frá þessari sömu nótt vantar vjel-
arbát frá Vestmannaeyjum og talið
víst að hann hafi farist með 6 mönn-
um, sem á voru. Formaður hans
hjet Bergsteinn Bergsteinsson.
Reykjavík.
»UppáhaIdsskáldið mitt«. Svo
hjet ritgerðarefni við burtfararpróf á
Kennaraskólanum í vor. Gengu 19
undir prófið. Kusu 13 sjer Jónas,
en 2 Hallgrím Pjetursson. Þá fengu
þeir fjórir sitt atkvæðið hver, tveir
látnir, þeir Bjarni og Kristján, og
tveir lifandi, þeir Steingrímur og Jón
Trausti. Aðrir komust eigi á hornið.
„N. Kbl.".
Stórhýsi selt. Þorv. Þorvarðsson
prentsmiðjustjóri hefur selt hús sitt í
Aðalstræti 8, þar sem kvikmyndaleik-
húsið er meðal annars, Jóh. Jóhann-
essyni kaupmanni fyrir 52 þús. kr.
Málaferli. Mál það, er Páll Ein-
arsson borgarstjóri höfðaði í sumar
gegn L. H. Bjarnason prófessor og
vann fyrir undirdómi, en áfrýjað var
af báðum málsaðilum til yfirdóms,
eins og Lögr hefur áður frá sagt, er
nú nýlega dæmt í yfirdómi, og var
hr. L H. B. þar sýknaður og hr.
P. E dæmdur til að greiða máls-
kostnað, 20 kr.
Maður skaut sig á skipi hjer úti
á höfninni í gærmorgun, skipstjóri á
fiskiskipinu „Hildur", Daníel Jónsson
að nafni, ættaður úr Hafnarfirði og
myndarmaður. Orsökin til þessa er
ókunn.
Aðventistar. 3. þ. m. staðfesti
ráðherra kosningu Ólafs J. Ólsens
trúboða til forstöðu aðventistasafnað-
ar hjer í Reykjavík.
Yeðrið er óstöðugt, snjóar öðru
hvoru, en hlýindi og gott veður á
rnilli.
Til útlanda fór „Sterling" hjeðan
á sunnud. og „Flóra norður um land
í morgun. Með „Sterling" fór meðal
annara Þorvaldur Pálsson læknir, til
Leith og þaðan til London. — Með
„Flóru" fóru heimleiðis sjera P. H.
Hjálmarsson á Grenjaðarstað og Olg.
Friðgeirsson verslunarstj. á Vopna-
firði.
Templaraflokkur sá, sem ljek i
Góðtemplarahúsinu hjer á annan í
páskum og þótti takast vel, hefur
ákveðið að fara suður ( Hafnarfjörð
og leika þar til ágóða fyrir „Geirs"-
samskotasjóðinn á laugardaginn kem-
ur. Væntanlega láta Hafnfirðingar
ekki á sjer standa með að sækja
þessa skemtun og fylla húsið, ekki
stærra en það er.
Sama kveld ætla allar stúkur hjer
í sameiningu að halda kvöldskemtun
í Góðtemplarahúsinu hjer, í sama til-
gangi.
Leikliúsið. Þar er nú verið að
leika „Sherlock Holmes*, sama leik-
inn og sýndur var hjer fyrir nokkr-
um árum. Aðalhlutverkin hafa nú
Bjarni Björnsson og Andrjes Björns-
son, en áður höfðu þau Jens Waage
og Árni Eiríksson.
Mikill afli. Vikuna,8.—15. þ. m.
komu á land hjer í Rvík á 14 ísl.
botnvörpungum samtals 486 þús.
fiskar, Og er sá afli mest þorskur um
þetta leyti. Þessi afli mun vera að
minsta kosti um 200 þús. kr. virði.
Sftmskotin. Síðan Lögr. kom út
seinast hafa henni borist þessi sam-
skot: frá L. Fjeldsteð 10 kr., frá
A. Fjeldsted 10 kr., frá M. V. 15 kr.
Þingkositiiigar i iMrikk-
lamli hafa nýlega farið fram og
urðu mikill sigur fyrir Veniselos yfir-
ráðherra. Gömlu stjórnmálaflokkarn-
ir eru nú gersamlega sundraðir og
megnið af þinginu fylgir Veniselos-
stjórninni.
Kríteyingar kusu enn fulltrúa til
f gríska þingsins.
(Tilraun til sanngjarnrar þingskipunar).
Alþingismenn sjeu fyrst um sinn 36, þar
af 12 í efri deild, en 24 í neðri deild al-
þingis.
Til n. d. sje kosið í kjörhjeruðum, öllum
í senn, til 6 (eða 4) ára, þannig:
Kjörhjeruð. Manntal, Þingmenn.
1. Austur- og V.-Skaftaf.s. 2963 I
2. Vestm.eyjasýsla . . . 1319 I
3. Rangárvallasýsla . . 4024 I
4. Arnessýsla .... 6072 2
5. Kjósar- og Galibr.sýsla 4448 I
6. Reykjavíkurbær . . . 11600 3
7. Hafnarfjarðarbær . . 1574 I
8. Borgarfj,- og Mýrasýsla 43H I
9. Snæf,- og Hnappad.s. 3933 I
10. Dala- og Strandasýsla 3792 I
11. Barðastrandarsýsla . . 3369 I
12. V.-Isafj.s. og ísafj.bær 4287 I
13. Norður-ísafj.sýsla . . 3963 I
14. Húnavatnssýsla . . . 4022 I
15. Skagafjarðarsýsia . . 4338 I
16. Eyjafj.sýsla og Akur-
eyrarbær 7463 2
17. S,- og N.-Þingeyjars. 5150 2
18. N.-Múlas. og Seyðisfj.b. 3942 I
19. S.-Múlasýsla .... 4643 I
24 þm.
Hjer eru 3550 landsmenn að meðaltali
um hvern þingmann. Nái manntal í ein-
menningskjörhjeraði fullum 5000 að tölu,
fær það 2 þingmenn. Eins ef tvímennings-
kjörhjerað nær 10,000, fær það 3 þm. o.
s. frv., eftir manntalinu 10. hvert ár. Að
tölu til eiga nú 19., 5., 15. og 8. kjöihjer-
að skemst í land til að ná tveim þm. —
2. kjörhjerað er lægst fyrir neðan meðal-
tal, en sökum staðhátta fer illa að hafa
það með öðru kjörhjeraði, og fólki er mjög
að fjölga þar síðustu ár. Sarna er að segja
um 7. kjördæmið, nema það sje, eins og
nú, sameinað 5. hjeraði, er hafi 2 þm., en
það kemur í sama stað niður.
Til e. d. sje kosið þannig:
1. almennum kosningum 8. þm., helmingur
í senn 4. hvert ár, til 8 ára:
í Sunnlendingafj (án Rvíkur) . 2 þm.
- Reykjavtkurbæ ...... 1 —
- Vestfirðingafjórðungi ... 2 —
- Norðlendingafjórðungi ... 2 —
- Austfirðingafjórðungi ... 2 —
2. af sýslunefndum hvers landsfjórðungs
1 þm., alls 4 þm., og sá helmingur
þeirra kosinn 6. hvert ár til 12 áfa.
Meðaltal landsmanna um hvern efrid.-
þm., samkvæmt 1. tölul., er 10,648. Þeim
ætti að mega fiölga eftir aukning mann-
tals í kjördæmunum í sama hlutfalli eins
og ÞinÉ>mönnum neðri deildar.
Meðal manntal af Öllu landinu um hvern
af 36 þm. er 2363. En cftir þessu skiftist
það á landsfjórðungana þannig:
Þingm,- Lamdsm.
tal um þm.
í Sunnlendingafjórðungi . 147* 2304
- Vestfirðingafjórðungi . . 8r/a 2482
- Norðlendingafjórðttngi . 8 2450
- Austfirðingafjórðungi . • 5 2216
Hjer eru N.-Þingeyjars. og A.-Skaftaf.-
sýsla reiknaðar til Austfirðingafjórðungs.
Sálandshluti fær, tiltölulega eftir mannfjölda,
hæsta þm.tölu með 5, en Vestfirðingafj.
lægsta með 8l/a. En nær rjettu er varla
unt að komast.
Þingskipunarfyrirkomulagið er enn á
reiki. Þótt ýmislegt megi að þessari til-
lögu finna, er hún naumast óhagkvæmari
en sú, er sett var f stjórnarskrárfrv. frá
þinginu síðast. Henni er ekki vanþörf á
að breyta, og svo má einnig vera um
þessa. Hún losar þó þingið við þann
vanda, að skipa sjalft e. d.
Jeg geymi að rökstyðja hana frekar,
þangað til jeg sje, hvort henni verður nokk-
ur gaumur gefinn.
B. B.
M fátiÉi til fiskiik
Prestafundar Hólastiftis hefst á
Hólum í Hjaltadal sunnud. 30. júní
með guðsþjónustu í dómkirkjunni.
Síra Stefáni á Völlum er ætlað að
prjedika.
Sýsla veitt. Snæfellsness- og
Hnappadalssýsla var 26. f. m. veitt
Páli Vídalín Bjarnasyni Skagfirðinga-
sýslumanni frá 1. júlí þ. á. að telja.
Skagaijai’ðarsýsla er nú auglýst
laus og umsóknarfrestur til 15. júní
næstk. Árslaun 3000 kr.
Afli á Austfjörðúm. „Austri" frá
28. f. m. segir þá nokkurn síldar-
afla á Seyðisfirði, en þorskur er þar
eigi. Sama blað frá 16. f. m. segir
þó góðan afla á Fáskrúðsfirði og þar
suður af.
Hreindýr hafa í vetur sjest úti
um alt Fljótsdalshjerað, og bendir
það á, að snjóþungt sje venju fremur
inni í Öræfunum, þar sem þau hafa
annars bækistöð sína.
Frakkneskur konsúll á Seyðis-
íirði er Þórarinn Guðmundsson kaup-
maður skipaður.
Árnesingur skrifar Lögr. „ ... í
Búnaðarritinu 26. ári I. h. er skýrt
frá heiðursgjöfum úr gjafasjóði Krist-
jáns konungs IX. Þar er tekið fram
um einn manninn, sem styrk hefur
hlotið, G. E. í Skipholti, að hann
hafi meðal annars „sáðsljettað" 3
dagsl. En þetta er töluvert orðum
aukið, að því er jeg best veit. Hann
hefur að vísu látið plægja tvo
bletti fyrir einum 5—6 árum úti í
högum, en þeir eru ógiitir og hefur
aldrei verið borið á þá; annar blett-
urinn aldrei herfaður, en hinn einu
sinni. Á þeim blettinum, sem ald-
rei hefur verið herfaður, eru þrír
plógstrangir mikið grónir, eins og
þeir ultu fyrst af plógnum, og hinn
bletturinn er í litlu betra ásigkomu-
lagi.... Rangar frásagnir, eins
og þessi, ættu ekki að vera í Bún-
aðarr., eða þá að leiðrjettast.
Gestur*.