Lögrétta - 07.08.1912, Qupperneq 1
Afgreiðslu- og innhelmtum.:
ARINBJ. SVEINBJARNARSON.
Laugaves 41.
Talsimi 74.
Ritstjori:
Þorsteinn gíslason
Pingholtsstræti 17.
Talsimi 178.
M 40.
Heykjnvfk 7. fígúst 191S.
VII. úrg.
1. O. O. F. 93289.
KB 13. 9. 8. 31. 9. G.
Þjóðmenjasafnið opið virka daga kl. 12—2.
Lækning ók. í læknask. þrd. og fsd. 12—1.
Tannlækning ók. (í Pólthósstr. 14) 1. og 3.
md. 1 mán. 11—I.
Landakotsspítali opinn f. sjákravitj. io1/*
—12 og 4-5.
Islands banki opinn 10—27« og 5y«—7.
Landsbankinn 107.—21/*- Bnkstj. við 12—1.
Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl.
12—3 og 5—8
Heilsuhælið opið til heimsókna 12—1.
Lárus Fjeldsted,
Y flrrjettarmálaf® rslumaOur.
Lækjargata 2.
Heima kl. I 1 — 12 og 4—7.
Bækur,
innlendar og erlendar, pappír og allskyns
ritföng kaupa allir í
Bókaversl. Sigfúsar Eymundssonar.
Sambanðsjlokkur
myndaður i þinginu.
í fyrrakvöld gerðust þau tíðindi,
sem áður hafa verið í undirbúningi,
að nýr þingflokkur var myndaður
um sambandsmálið, og nefnir hann
sig Sambandsflokk, en í hann hafa
gengið bæði Heimastjórnarmenn,
milliflokkamenn og Sjálfstæðismenn.
Voru 29 þingmenn á fundinum, sem
þetta gerðist á, og gengu þeir allir
í hinn nýja þingflokk, og auk þess
má telja til hans 2, er eigi gátu sótt
fundinn: Jón í Múla, sem þá var enn
ókominn, og Björn Jónsson, sem er
veikur.
Til Sambandsflokksins má því þeg-
ar telja 31 þingmann, en það er
meira en 3/4 hlutar alls þingsins. Auk
þess er víst um suma af þeim 9
þingmönnum, sem enn eru utan við
þessa flokksmyndun, að þeir eru ein-
dregnir sambandsmenn.
Á stofnfundinum voru 18 Heima-
stjórnarmenn, 7 milliflokkamenn og
4 Sjálfstæðismenn.
Af Pleimastjórnarmönnum komu
ekki á fundinn Eiríkur Briem og
Júlíus Havsteen.
Af milliflokkamönnum voru þar
ekki Kr. Jónsson og Sigurður Eggerz.
Af Sjálfstæðismönnum komu ekki
Björn Kristjánsson og Þorleifur Jóns-
son.
Hinir 3, sem utan við þessa flokks-
myndun standa, eru þeir Ben. Sveins-
son, Bjarni Jónsson og Sk. Thorodd-
sen, fsem klofnuðu frá Sjálfstæðis-
flokknum þegar í byrjun þingsins.
Nú er það öllum vitanlegt, að þeir
ITeimastjórnarmennirnir Eiríkur Briem
og Júlíus Havsteen eru eindregnir
sambandsmenn, þótt ekki tækju þeir
þátt í flokksstofnuninni. Um Björn
Kristjánsson er það einnig vitan-
legt, að hann var einn þeirra þing-
manna, sem höfðu bundist samtök-
um um það síðastl. vor, að vinna að
framgangi sambandsmálsins, og skrif-
að undir skuldbindingar þar að lút-
andi, svo að afstaða hans verður
harla undarleg og óskiljanleg, ef hann
gengur nú, þegar til kemur, móti
móti þeirri skuldbindingu.
í sambandsflokknum eru þá þessir
þingmenn Heimastj.m.: Aug. Flygen-
ring, sr. Eggert Pálsson, Einar Jóns-
son (Geldingalæk), sr. Einar Jónsson,
Guðj. Guðlaugsson, Guðl. Guðmunds-
son, Halld. Steinsson, Hannes Haf-
stein, Jón Jónsson docent, Jón frá
Múla, Jón Magnússon, Jón Ólafsson,
L. H. Bjarnason, Matth. Ólafsson,
Pjetur Jónsson, Stefán Stefánsson
(Fagraskógi), Sfgr. Jónsson, Tryggvi
Bjarnason, Þórarinn Jónsson. En af
milliflokkarnönnum: Jóh. Jóhannes-
son, Jón Jónatansson, Magnús And-
rjesson, Sig. Sigurðsson, sr. Sig.
Stefánsson, Stefán Stefánsson, Valtýr
i
Jón Magnússon bæjarfógeti.
Forseti sameinaðs alþingis.
Guðmundsson. Óg af Sjálfstæðis-
mönnum: Björn Jónsson, Björn Þor-
láksson, sr. Jens Pálsson, Jósef Björns-
son, Ólafur Briem.
Samþyktin, sem gerð var á stofn-
fundinum, er svohljóðandi:
„að þeir þingmenn úr báðum hin-
um gömlu flokkum og flokksleysingj-
ar, sem vinna vilja að framgangi
nýrra sambandslaga milli tslands og
Danmerkur, gangi saman í nyjan
þingflokk, með þeim skilyrðum:
1. að flokkurinn skuldbindi sig til
þess að vinna í sameiningu að því,
að sambandsmálið verði sem fyrst til
lykta leitt, og fylgi því fram, eftir
atvikum með þeim breytingum á
frumvarpi millilandanefndarinnar 1908,
sem ætla má að verði til þess að
sameina sem mestan þorra þjóðar-
innar um málið, og jafnframt eru
lfklegar til þess, að um þær náist
samkomulag við Danmörk.
2, að flokksmenn sjeu ekki öðrum
flokkasamtökum bundnir á þessu
þingi".
Lögr. er sagt, að þeir Eiríkur
Briem og Júl. Havsteen gangi
báðir í Sambandsflokkinn, svo að í
honum eru þá orðnir 33 þingmenn
af 40.
frá Jyrklanði.
AJt í uppnárni.
Símað er frá Khöfn í morgun:
„Fulltrúadeild tyrkneska þingsins
er rofin gegn vilja fulltrúanna.
Konstantínópel f hervörslu.
Albanauppreisnin útbreiðist".
ÓHanniiMli eru það, sem Ing-
ólfur er enn að flytja um það, að
klofningur sje orðinn innan Heima-
stjórnarflokksins. En „svo mæla börn
sem vilja", segir máltækið. í fremstu
greininni hjer í blaðinu er nákvæm-
lega skýrt frá, hvernig afstaðan er
nú innan þingsins, og sjest það þar,
að Heimastj.menn fylgjast óskiftir að.
Þó ágreiningur komi upp um auka-
atriði, þá er það ekki svo mjög til-
tökumál. Um aðalatriðin halda þeir
fast saman.
Alþingi.
IV.
Þinginnimaframyörp.
35. Um þingfararkaup alþingis-
manna. Flm.: Sig. Stef. og Stgr. J.
Alþingismenn utan Reykjavíkur fá
9 kr. fæðispeninga á dag, en þing-
menn búsettir í Reykjavík 6 kr. Ferða-
kostnaður þingmanna utan Reykja-
víkur: 370 kr. úr A.-Skaftaf., 195 kr.
úr N.-Múl., 190 kr. úr V.-Skaftaf. og
Danmörku, 185 kr. úr S. Múl., 175
kr. úr N.-Þing., 165 kr. úr S.-Þing ,
125 kr. úr Eyjaf., 120 kr. úr Skagaf.,
115 kr. úr Húnav., 110 kr. frá Seyðisf.,
105 kr. úr Strand., 95 kr. úr N.-ísaf.
og Rang., 85 kr. frá Ak., 75 kr. úr
Barðastr. og Árn., 70 kr. úr V.-ísaf.
og Dal., 60 kr. úr Snæf., 55 kr. úr
ísaf., Mýr. og Borgarfj., 20 kr. úr
Gullbr., Kjós. og Vestm. Verði farar-
tálmi af ís, slysum eða öðrum óvið-
ráðanlegum atvikum, á þingm. rjett
til endurgjalds á þeim kostnaði, er
þar af leiðir.
36. Um vatnsveitu á löggiltum
verslunarstöðum. Flm.: St. St. Eyf.,
H. Hafst. Hreppsnefndum er heim-
ilt með samþykki sýslunefndar og
stjórnarráðsins að koma á vatnsveitu
til almenningsnota f löggiltum versl-
unarstöðum,
37. Um viðauka við lög um út-
flutningsgjald af fiski, lýsi o. fl flytur
nefndin í e. d. um árgjald af verslun
og viðskiftum. Af hverri tunnu af
sfldarlýsi (105 kg.) 50 aura, af fóður-
mjöli 40 au., af fóðurkökum 30 au.
og af áburðarefnum 20 au. fyrir hver
100 kgr.
38. Breyting á læknaskipuninni.
Flm : Sk. Th. ísafjarðarlæknishjeraði
skal skift í tvö hjeruð: ísafjarðar-
hjerað og Hólshjerað, er nái yfir
Hólshrepp með Bolungarvík.
39. Breyting á lögum 20. okt.
1905 um sölu þjóðjarða. Flm. St.
St. Eyf. Þjóðjörð, sem gengur úr
sjálfsábúð og hvorki viðtakandi eða
hluteigandi sveitarfjelag notar kaupa-
rjett sinn, skal landsjóður hafa for-
kaupsrjett á. — Geti seljandi fengið
hærra boð annarstaðar, má hann sæta
þvf. Landsjóður getur látið rifta sölu
þjóðjarða, ef selter óviðkomandi manni
og keypt jörðina með sama verði.
40. Breyting á fátækralögunum
10 nóv. 1905. Flm. Matth. Ó).,
Sig. Sig., H. St. 77 gr. laganna
orðist svo: Ef þurfalingur fer eftir
læknisráði á sjúkrahús, annað en
holdsveikraspítala, þá kostar fram-
færslusveit hans dvöl hans þar, lyf
og læknishjálp alt að 200 kr. á ári,
það sem fram yfir er 200 kr., greið-
ist úr landsjóði.
41. Um nýnefni. Flm.: Guðl.
Guðm. og Stef. Stef. (Eyf). — Eng-
inn má taka upp nje nota ný nöfn
á býlum, er jarðabók telur, eða á
afbýlum, grasbýlum eða húsmensku-
býlum, er bygð eru í landi lögbýla,
nema leyfi stjórnarráðsins komi til.
— Enginn má breyta skírnarnafni
sínu nje taka upp nýtt nafn, nema
með leyfi stjórnarráðsins. — Fyrir
leyfisbrjefið greiðist 10 kr., er renn-
ur í landsjóð. — Skrá yfir nýnefni,
er upp hafa verið tekin eða leyfis-
brjef gefið fyrir, skal við hver árs-
lok birta í lögbirtingablaðinu.
Fjiirkláðinn.
Fjárkláðanefndinni í Ed. (St. St.,
Jós. Bj., Þór. J., Guðj. Guðl. og Sig.
Lgg) þykir frv. stjórnarinnar um út-
rýming fjárkláðans ekki vel undir-
búið og vill því ekki leggja til að
það verði samþykt á þessu þingi.
Telur hún að skýrslur þær, er fyrir
liggi um útbreiðslu kláðans, sjeu ó-
fullnægjandi, og óumflýjanleg nauð-
syn sje ekki á því, að fyrirskipa
tvískoðun alls sauðfjár í landinu. En
f stað þess flytur hún þiningsálykt-
un, að alþingi skori á stjórnina að
beita ákvæðum laga 8. nóv. 1901 á
næstkomandi hausti, og láta tvíböð-
un fara fram, þar sem kláði kemur
upp og mikill kláðagrunur er. Að
sýslumenn láti fram fara vandlega
kláðaskoðun á öllu sauðfje í næstk.
aprílmán, og heimtar nákvæmlegar
skýrslur um þessar skoðanir og um
fjárkláða, sem fyrir kann að koma.
Skýrslurnar ættu að koma svo fljótt
í hendur stjórnarinnar, að hún geti
lagt rökstuddar tillögur um útrým-
ingu fjárkláðans fyrir þing 1913.
Ennfremur er skorað á stjórnina, að
hún leiti álits fjáreigenda í landinu
um það, hvort þeir óski heimildar-
laga fyrir samþyktum um árleg
þrifaböð á sauðfje.
Pingnefndir.
(E. d.): Mósamþyktarnefnd : Eir.
Br. (form.), Sig. St., Jón Jónat. (skr.).
Kjötmarkanefnd: Þór.J. (skr ), Guðj.
Guðl., St. St. (form.).
Þingfararnefnd: Sig. Egg. (form.),
Sig. Stef. (skr.), Guðj. Guðl., Ein. J.,
Jens P.
Fnllin frumvörp.
Neðri deild hefur felt frumvarp um
hagfræðisskýrslur um tóbaksinnflutn-
ing og frv. um prestsmötu Grundar-
kirkju.
Efri deild feldi í gær stjórnarfrv.
um útrýmingu fjárkláðans.
Lög afgreidd frá þinginu.
1. Um færslu þingtímans, að þing
komi saman fyrsta virkan dag í júlí-
mánuði. Efri deild afgreiddi frv. 5.
þ. m. með 7 atkv. gegn 6 að við-
höfðu nafnakalli. Já sögðu: Stgr. J,,
Ág. Fl., Ein. J. (N.-M.), Jens P., Jós.
Bj., Sig. Egg. og St. St. Nei sögðu :
Bj. Þorl., E. Br., Guðj. Guðl., Jón
Jónat., Sig. Stef. og Þór. J. — Þetta
frv. hefur mætt allmikilli mótspyrnu
í þinginu, sjerstaklega af bændastjett-
inni, og hafa töluvert heitar umræð-
ur orðið um það, einkum í efri deild.
Pingsályktunftrtillögur.
Matth. 01. flytur þingsályktun um,
að neðri deild alþingis skori á land-
stjórnina, að láta rannsaka og gera
áætlun um mótorbátahöfn á Suður-
eyri í Súgandafirði.
Sam. alþingi.
Fundur í sam. alþ. var haldinn 1
dag kl. 11‘/2 Varaforseti prófessor
E Briem stýrði fundi. Prófað kjör-
brjef Jóns í Múla 1. þm. Sunnmýl-
inga og reyndist ekkert við það að
at’nuga.
Síðan fór fram forsetakosning, með
því að núv. ráðherra var áður for-
seti, og var Jón Magnússon bæjar-
fógeti kosinn með 22 atkv. Jóh. Jó-
hannessonbæjarfógeti og L. H. Bjarna-
son prófessor fengu sitt atkvæðið
hvor, en 14 seðlar voru auðir.
Lausn frá embætti hefur Sigurð-
ur Sigurðsson læknir í Dalasýslu sótt
um vegna heilsubilunar, en gegnir þó
emba;ttinu til næsta vors.
Smjörsftlan í Fnglandi. L. Zöll-
ner konsúll símaði síðastl. föstudag,
að smjör frá Hróarslækjarbúi hafi
verið selt fyrir 119 sh. 100 pd.
Kuldahret. Öll var síðastl. vika
köld, en þó einkum síðari hlutinn, og
verst var á föstudaginn; þá urðu fjöll
hvít niður í miðjar hlíðar hjer syðra,
og á Norðurlandi snjóaði í sveitum,
svo að sumstaðar varð að hættaslætti.
Á heiðum, svo sem Vaðlaheiði og
Fjarðarheiði, kom ófærð af snjó, og
menn eru hræddir um fjártjón á af-
rjettum nyrðra. — Nú er aftur skift
um og hefur verið gott veður síðan
um helgi, en þó fremur kalt.
Einar Mikkelsen.
Myndin hjer er tekin af honum
áður en hann fór í glæfraförina, sem
hann er nú nýkominn heim úr. Hann
kom við hjer í Reykjavík, er hann
lagði á stað í förina.
Mikkelsen er vel þrítugur maður,
fæddur i88o,tók stýrimannspróf 1899,
og var með í Amdrupsleiðangrinum
til Austur-Grænlands árið 1900, í
leiðangri til Franz Jósefs lands var
hann slðan 1901 —2, og 1906—7 var
hann í ransóknarleiðangri, er hann
sjálfur stýrði, f höfunum norðan og
vestan við Ameríku.
Nánari fregnir af Grænlandsför
hans koma nú innan skams.
Reykj avík.
Jóll alþni. í Múlft kom heim í
gærmorgun, með skipi frá Englandi
til Hafnarfjarðar. Hann er vel hress.
En fullkomna bót á meinsemd sinni
hefur hann, því miður, ekki fengið enn.
Hftfnarmálið. Hafnarfræðingur
hefur verið hjerfráfjel.Saaby& Lercke,
og er sagt, að það muni ætla að
gera tilboð í hafnargerðina.
Fálkinn er nú kominn frá Græn-
landi og tekinn hjer við strandgæslu
aftur, en Heimdallur farinn.
Síra Halldór í Presthólum er
hjer um tíma. Hann er að semja
um kaup á Presthólum af landsjóði.
Leiðrjettingar. Prentvilla var í
ræðu Jóns bókavarðar Jakobssonar í
síðasta tbl. 43. línu frá byrjun: „enn
betur en þeir" fyrir: enn betur þeir.
Sömul. er þar prentvilla í þing-
fregnunum, þar sem sagt er frá frv.
M. Ól. um líftrygging sjómanna: að
iðgjaldið skuli fyrst um sinn vera
„I0%" fyrir io°/oo, eða 10 af þúsundi.
Victoria Louise, þýska skemti-
ferðaskipið frá Hamborgarlínunni, sem
komið hefur hjer áður í sumar, kom
aftur í fyrra dag og var hjer í gær.
Farþegar um 500.