Lögrétta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Lögrétta - 22.04.1914, Qupperneq 1

Lögrétta - 22.04.1914, Qupperneq 1
Aígreidslu- og innheimtum.: (’ORARINN B. ÞORLÁKSSON. Vreltnsundi 1. Talilmi 319. Rltstjorl PORSTEINN GÍSLASON Pingboltntrætl 1T. Taliimi 17*. JK 33. Reylijavílí 33. apríl 1914. IX. árg. Frá Eidsvold í Noregi. Eins 05 kunnugt er, halda Norðmenn í vor mikla þjóðhátíð til minningar um að stjórnarskrá þeirra og fullkomið þjóðarsjálfstæði er þá 100 ára. Stjórnarskrá þeirra er frá 17. maí 1814. En þingið, sem stjórn- arskrána samdi, kom saman á Eidsvold í aprílbyrjun 1814. Eidsvold er skamt í norður frá Kristjaníu. Þar eru skógar miklir, sögunarmyllur, járnvinsla o. fl. 1814 var Carsten Anker eigandi Eidsvolds; hann var stórríkur maður og ættgöfugur. Hann ljeði Eidsvoldsþinginu húsaskjól, og er sýnt hjer á myndinni húsið, sem það var háð í, en framan við það sjest hjer á mynd- inni grafreitur C. Ankers. Húsið er nú eign norska ríkisins og var mikið gert við það 1901. Carsten Anker fjekk sæti f stjórn Noregs 1814. Hann var fæddur 1747 en andaðist 1824, Lái>us Fjoldstod, TflrFjettarmAlafsBralumaOup. Lækjargata 2. Helma kl. 11-12 og 4—7. Bœkur, ínnlendar og erlendar, pappír og allskyns ritföng kaupa allir 1 Bókaversl. Sigfúsar Eymundssonar. ?vaí er i vænðum? Síðustu ályktarorð Isafoldar á laugardaginn var út af kosningunum eru þessi: „Er það spá vor, að svo muni reynast, að hvorki muni þau mál ná fram að ganga á þingi í sumar, sem Sjálfstæðismönnum er áhuga- mál að falli — nje þau mál eyðast, sem þeim er sárt um, að fram nái að ganga”. Þó að þessi klausa sje ekki sem fimlegast orðuð — mönnum er ekki „sárt um“, að það ná fram að ganga, sem menn vilja, að gangi fram — þá er auðsætt, hvað í orðunum á að vera fólgið. Blaðið býst við því, að flokkur þess ráði öllu á næsta þingi — og telur hann þá sjálfsagt hafa nægan þingstyrk til þess að taka ad sjer stjórn landsins. Um þennan spádóm blaðsins skal ekkert sagt að þessu sinni. Frjettir eru ekki komnar úr öllum kjördæm- unum. Og um suma þingmenn, sem menn vita, að eru kosnir, er ó- víst, hvar þeir muni skipa sjer á þingi. Ekki verður heldur að svo komnu neitt um það sagt, hvernig á því stendur, að kosningarnar hafa farið eins og þær hafa farið, að svo miklu leyti sem kunnugt er. Til þess vantar ýmis konar vitneskju, meðal annars um það, hvað þing- mannaefnin hafa sagt, og hverju þau hafa lofað í kjördæmunum. Hitt er bersýnilegt, að Sjálfstæð- isflokkurinn verður, með tilstyrk þeirra, sem utan hans kunna að verða, en fylgja honum að málum að meira eða minna leyti, allöflugur á þessu næsta þingi — svo öflugur, að það er ekki nema eðlilegt, að menn fari að verða forvitnir eftir því, hvað sje í vændum, ef hann skyldi mega sín svo mikils, sem ísa- fold spáir. Æila þeir þá að að ónýta stjórn- skrármálið? Eftir því, sem þeir hafa talað í sumum blöðunum síðustu vikurnar — síðan er þeir fundu upp á sín- um allra-nýjasta hjegóma til þess að rífast um, — virðist það mál vera í meira en lítillí hættu statt, ef þeir ráða lögum og lofum. Standa þeir við þau stóryrði ? Banna þeir ráðherranum, hver sem hann þá verður, að skrifa und- ir þann konungsúrskurð um flutning íslandsmála í ríkisráðinu, sem boð- aður hefur veriðf Taki þeir þá stefnu, þá er málið auðvitað ónýtt að sinni, og alt stjórn- arskrárþref undanfarinna þinga ger- samlega gagnslaust. Þá ættu þeir fögrum sigri að hrósa I Eða setja þeir rfkisráðsákvæðið aftur inn í stjórnarskrána f Það fyndist þeim sjálfsagt Ifka mikill sigur — eftir alt, sem þeir eru búnir að segja um það atriði! Eða renna þeir öllu niður og aug- lýsa þegjandi, að alt þeirra uppþot út af konungsúrskurðinum, sem boð- aður hefur verið, hafi ekki verið neitt annað en það, sem það var — kosningabrellaf Það þætti þeim Hklegast líka mik- iH 9^ frasgur sigurl Ónýta þeir /ánamálið ? Eftir því sem sumir þeirra hafa talað, sem framsögu hafa haft fyrir sjálfstæðismenn í blöðunum, virðast dáindis góðar líkur til þess. Ög væri það ekki líka von og vel til fundið, að íslenskir „sjálfstæðis- menn" biðu eftir danskri löggjöj um rikisfána, í stað þess að fara að þjóta svona f það að nota tækifærið til þess að íslensk þjóð geti eignast fána sjálff Tækist þeim nú að ónýta bæði stjórnarskrármálið og fánamálið fyrir þjóðinni á sama þinginu, þá væri óneitanlega vel að verið, og þá yrði þeim ekki örðugt um svar, ef þeir væru spurðir að því, t. d. við kosn- ingarnar að vori, hver árangur hefði orðið af því, að þjóðin hefði sent þá á þing f meiri hluta. Það er svo sem engin undur, þó að menn sjeu forvitnir um, hvað nú sje í vændum. Og ekki dregur það úr forvitninni, að þeir tala svo, sem þeir muni telja sig færa um að taka við landstjórn- inni. Hver verður ráðherrann þeirra? Hingað til hafa þeir svarað þeirti spurningu af nokkuru mikillæti, þeg- ar hún hefur verið fyrir þá lögð. Þeim hefur auðsjáanlega fundist, að þjóðinni kæmi það ekki mikið við— ef hún yrði að eins svo lánsöm að £á einhvern úr þeirra flokki. En svo eru aðrir, sem líta annan veg á það mál. Þeim finst ekki standa alveg á sama um það — þó að „sjálfstæðismaður" taki við stjórn- inni — hvort t. d. þjóðinni á að stjórna kappsamur framfaramaður eða staður afturhaldsmaður, rjettlátur eða ranglátur maður, lipurt prúðmenni, sem hvarvetna kemur fram þjóðinni til sóma, eða vandræðalegur hjer- villingur, sem aldrei veit hvað hann á að gera, o. s, frv., o. s. frv. Og með sjálfstæðismönnum er sagt, að um svo auðugan og sundurleitan ráðherraefna-garð sje að gresja. Skalla-Grimur. Eimskipal)elagið. Fjelags- stjórnin hjet í vetur verðlaunum fyrir best gerða hlutabrjefsteikningu, sem henni bærist. Nú hefur hún dæmt um þær, sem komið hafa, og þótti teikning Stefáns Eiríkssonar trjeskera best, enda kvað hún vera mjög falleg. Málararnir, Þórarinn og Ás- grfmur, sendu hvorugur teikningu; mun hafa þótt verðlaunin of lítil, og Ifka annrfki við annað bannað. Einnig hefur fjelagsstjórnin ákveð- ið gerð á flaggi handa fjelaginu. Það er blátt Þórsmerki á hvítum feldi. Þá uppástungu átti Samúel Eggertsson skrautritari. Gerð Þórs- merkisins má sjá í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Þó er í flaggmerkinu nokkuð vikið frá þeirri gerð, sem þar er sýnd. En Þórsmerki er ekki sama sem Þórshamar. Knud Berlín og Danir. Skrif próf. K. Berlíns á seinni tímum hafa bersýnilega vakið mikla eftirtekt á íslandi og hafa lítt dreg- ið úr tortrygni sumra íslendinga til okkar Dana. Það er vorkunn, þó Islendingar hugsi sem svo: Þessi K. B. er pró fessor í rikisrjettarfrœði við háskóla Kaupmannahafnar og skrifar fjölda greina í eitt Kaupmannahafnarblaðið og ýms tfmarit. Staðhæfingum hans hefur lítt verið mótmælt í Danmörku; heldur hafa ýmsir kunnir Danir (Harald Nielsen, Vald. Rördam o. fl.) fallist á skoðanir hans. Hann hlýtur að vera mikils metinn maður í Danmörku og einskonar leiðtogi Dana gagnvart íslendingum. En þetta er misskilningur. Það eru ekki allir prófessorar miklir menn. Það hefur að vfsu tekist K. Berlín að fá suma menn hjer á sitt mál, en þeir eru nú varla sjerlega margir, þótt þeir sjeu nokkuð há- værir. Og til eru þeir menn hjer, sem hafa verulegan skilning á íslensk- um málum og þekkja sögu íslands alt eins vel og K. Berlín, og þessir menn hafa litlar mætur á sagnfræði K. B., leggja lítið upp úr orðum hans. Þeir hafa að vísu lítt reynt að rengja staðhæfingar hans. En fyrst er nú það, að ekki hafa öll dönsk blöð eins mikið rúm handa íslenskum málum og blað það, sem K. B. skrifar f, og í öðru lagi þarf mikils tíma við og mikillar þol- inmæði til þess að fara f ritdeilur við annan eins mann og K. B., er vill alt af fá ályktunarorðið. Það er vorkunn, þótt flestir dragi sig í hlje. Allur þorri hinnar dönsku þjóðar hefur mjög svo ófullkominn skilning á fslenskum málum, en fæstir hafa samt tekið sjer K. B. að leiðtoga f málum þeim. Flestum hjer leiðist skrif hans, og þeir lesa þau ekki. Enda er danska þjóðin f heild sinni frjálslynd þjóð og ann íslendingum alls frelsis, ætlar alls ekki að ganga á rjett íslendinga. Þetta þori jeg að fullyrða. Og eins er um flesta hina frjálslyndu stjórnmálamenn og þá einkum hina núverandi stjórn Dana. Hún þekkir vel óskir og vonir íslendinga og skilur þær, og hún þarf ekki leiðbeininga K. B. við. Hún ber heiður og velferð íslend- inga fyrir brjósti og ætlar alls ekki að sletta sjer fram í sjermál Islands eða að gera íslendinga afskifta á nokkurn hátt, eins og sumir íslend- ingar halda. Það, sem er sagt um það, er eintómur misskilningur. Jeg er alveg sannfærður um, að danska stjórnin vill gefa íslendingum það^ sem þeirra er, og leitist við að búa til modus vivendi milli þjóðanna, er báðir aðilar mættu vel við una. Holger Wiehe. „ísland. Das Land und das Volk4*, (Landið og þjóðin) heitir ný bók eftirpróf. PaulHerrmann, prentuð á k ostnað B. G. Teubners í Leipzig, 1914. Bókin er 113 sfður, með 9 myndum, og kostar 1 m. 25 pf. — Próf. Herrmann hefur þrisvar komið hingað til lands (1904, 1908 og 1911) og samið stórt rit um ís- land („Island in V ergangenheit und Gegenwart". Leipzig 1907, 1910). En þessi litla bók er ekki útdráttur úr því, heldur nývirki, samanþjöpp- uð lýsing á landinu og þjóðinni að fornu og nýju, og segist höfundurinn óska þess, að bókin megi vekja al- menna athygli á þessari hugþekku germönsku þjóð (íslendingum) og afla henni vinsælda. Þjóðverjar hafa skrifað fjölda bóka um ísland að undanförnu. Er það hálfskrítið að heyra þá (t. d. próf. Herrmann) bregða okkur um það, að við sjeum allir í bókum og vanrækjum vinnuna. Þeim ferst það víst manna síst. Árið 1911 komu út 10914 bækur á Englandi; árið 1910 komu út 13470 bækur f Ameríku, en það sama ár voru gefnar út 31281 bækur á Þýskalandi. 1910 voru bókahöfundar 9000 í Ame- rfku, 8000 á Stóra Bretlandi, en 31000 á Þýskalandi1), svo að það er engin furða þó að eitthvað drjúpi á okkur úr þeim þýsku pennum. En þess ber að geta sem gert er. Þessi nýju þýsku rit hata rjett öll verið einkar hlýleg í okkar garð, og sum fram úr hófi. Þau hafa líka flutt mikinn og margvíslegan sann- an fróðleik um landið og þjóðina, svo að við megum vera þessum þýsku „íslandsvinum" þakklátir fyrir skrifin. En það er eins og það eigi þó aldrei af okkur að ganga, eins og dómur á landinu, að útlendingar geti aldrei borið því rjett söguna Það var farið að skrökva upp á landið áður en íslenska þjóðin kom til. Árið 825 skrifar írskur munkur bók, þar sem hann minnist á Thule og ber til baka níðsögur um það! Og svona hefur þetta gengið fram á þennan dag, oflof og oflast á víxl, og oftar á verri veginn. Ef satt skal segja er mjer ver við oflofið en lastmælin. En það er ekkert vit í því að láta afskiftalaust alt, sem um landið er ritað og þjóðina. Ranghermin geta bagað okkur á margan hátt, og það er okkar þjóðarskylda að bera af okkur bæði oflof og óverðskulduð lastmæli. Og sje um fræðirit að 1 Daily Mail Yearbook 1914, bls. 178. ræða, eins og þetta, þá er það líka kurteisisskylda við höfundirin að benda honum á misfellurnar. í þessari bók próf Herrmanns eru margir góðir kaflar, og sumstaðar ágætlega að orði komist, en þar eru líka mörg ranghermi og ýmsar of- sjónir og missýningar, svo margt, að hjer verða ekki nefnd nema nokkur dæmi: 1. Á bls. 49 hefur hann hausavíxl á „boðskap konungs til íslendinga I0/i 1902" og stjórnarskrár-/rum- varpinu, sem lagt var fyrir alþingi 1902. 2. Á bls. 53 er sagt að „konung- urinn einn fari með utanríkismál Is- lands". Það er ekki rjett. Utanríkis- ráðherra Dana fer með þau fyrir okkar hönd. 3. Á sömu síðu er sagt að danski forsætisráðherrann skrifi undir út- nefningu íslandsráðherra með kon- ungi. Það er rangt — afnumið. ís- landsráðherra skrifar sjálfur undir útnefningu sína eða eftirmanns síns með konungi. 4. Um lunderni og menningu ís- lendinga segir hann alveg það sama og margir hafa áður sagt, að við sjqum mjög gáfuð þjóð og undra vel mentuð, en sjeum líka allir á kafi í bókmentum okkar og hug- smíðum („theoríum"), en hins vegar hirðulausir um öll atvinnubrögð, þreklausir og úthaldslausir og von- lausir (bls. 56—60). Þessum stóra- dóm lúta svo allar lýsingar hans á högum þjóðarinnar. Hann nefnir að vfsu fiestar þær miklu framfarir, sem þjóðin hefur tekið undanfarna áratugi, en metur þær ekki að verðleikum margar hverjar, og skynjar ekki að hugar- far þjóðarinnar hefur stórbreytst síð- an hún varð sjálfri sjer ráðandi (1874), þrek hennar, þor og dugur vax- ið um allan helming. Hann veit ekki, aðþað er nú viðkvæðið hjer á landi, að menn eigi að hafa allan hugann á at- vinnuvegum sínum, að bæta þá, veit ekki, að okkar meðfædda mentunarfýkn sækir nú meir og meir í allskonar gagnfræði, svelgir f sig nútíðarfræð- in á japanska vísu, svo að sam- viskan er þegar vöknuð og farin að hvisla að okkur, að við megum gæta að því, að glata ekki okkar eigin ættarmenningu. Það er auðsjeð að höfundurinn hefur ekkert veður af þessum stakka- skiftum þjóðarinnar — og það er höfuðgallinn á bókinni hans. 5. Á bls. 65 hefur honum sjest yfir yfirsetukvennalögin 1912, fer eftir gömlu lögunum, og er með þá vitleysu, að yfirsetukonur í kaup- stöðum hafi 600 kr. í laun. Berkla- iögin 1903 nefnir hann ekki þar sem hann minnist á heilsuhælið (bls. 67). Og sjúkrasamlögin, sem nú eru að komast á fót (Lög nr. 39. 19n), nefnir hann hvergi; þá fram- för kunna þó Þjóðverjar manna best að meta. 6. Hann nefnir ellistyrktarsjóðina, en honum hefur sjest yfir nýju lögin, lög um almennan ellistyrk 9/7 1909. Gjaldið er nú kr. 1,50 á hvern karlm. (18—60 ára) og 75 aur. á konur (18—60 ára) og 50 aura tillag úr landssjóði fyrir hvern gjaldanda. 7. Hann segir, bls. 68, að þurfa- menn sjeu hjer fram úr lagi margir og fátækraframfærið þyngsta byrðin, sem hvíli á þjóðinni! Þetta er hrein og bein fjarstæða. Þessi byrði er ljettari hjer en víðast f öðrum löndum. Hann segir ai fátækraútgjöldin 1909—’io hafi verið 156969 kr. Ekki er það rjett; þau voru að frá- dregnum endurgoldnum sveitarstyrk I34S79 eða 2 kr. 20 aur. á mann — það er að segja í sveitum. Kaup- stöðunum gleymir hann alveg. í Þeim voru þessi útgjöld 2 kr. 88 aur. á hvern bæjarbúa árið 1910.

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.