Lögrétta - 04.07.1917, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
ÞORST. GÍSLASON.
Þingholtsstræti 17.
Talsimi 178.
Afgreiðslu- og innheimtum.:
ÞÓR. B. ÞORLÁKSSON.
Bankastræti 11.
Talsími 359.
Nr. 31.
Reykjavík, 4. júlí 1917.
XII. árg.
Bakur,
innlendar og erlendar, pappí'r og alls-
konar ritföng, kaupa allir í
Sókavirsluii Siyfúsar [ymundssonar.
Lárus Fjeldsted,
yfirrjettarmálafærslumaður.
LÆKJARGATA 2.
Venjulega heima kl. 4—7 síðd.
f
Klæðaverslun
H. Andersen & Sön
Aðalstr. 16.
Stofnsett 1888. Sími 32.
Þar eru fötin sauniuð flest.
Þar eru fataefnin best.
Frá Sýnódus 1917.
Biskup ávarpar prestastefnuna og
minnist látins forvera síns.
Kæru bræöur!
Óskandi yður náöar og friöar frá
guöi fööur vorum og drotni Jesú
Kristi frelsara vorum, vil jeg setja
þessa fyrstu prestastefnu, sem haldin
er undir forsæti mínu og bjóöa yður
alla velkomna hingaö.
Náöar og friðar óska jeg yður, því
aö meö þessu eru tekin fram, ekki
aö eins höfuöeinkenni lífsins í trú
guös sonar, heldur og meginskilyröin
fyrir því, aö þjer sem sjerstalega eruð
kallaöir til kennimannlegs embættis
í guðs söfnuði getið með krafti og
djörfung starfað að gróðursetningu,
vexti og þrifum þessarar sömu trúar
hjá þeim setn þjer eruð kallaöir til
að flytja fagnaöarerindi Jesú Krists,
innan þeirra safnaða, sem yður hefur
veriö trúað fyrir forstööu að veita.
Hið kennimannlega starf í söfnuöi
Jesú Krists er í insta eðli sínu and-
legt umboösstarf — ráðsmenska, sem
oss er í hendur seld af safnaðarins
herra. Sem kennimenn Krists erum
vjer fyrst og síðast kvaddir til að
vera umboðsmenn þeirrar marghátt-
uðu náðar guðs, sem Jesú Krist-
ur hefur oss afrekað með kenningu
sinni, lifi sínu og dauða sínum. En
til þess að geta hjálpað öðrum til
þess að veita guðs framboðnu náð
viðtöku og tileinka sjer hana, er
fyrsta skilyrðið ávalt og undantekn-
ingarlaust það, aö vera sjálfur orðinn
handhafi þessarar sömu náðar. Fyr-
ir því er það þá líka ósk mín og
bæn, ekki síður sjálfum mjer til handa
en yður, að faðir miskunnsemdanna
veiti oss öllum sífelt að vaxa svo og
fullkomnast í tileinkun náðarinnar,
að vjer getum í sífelt ríkari mæli
þjónað öðrum með þeirri gjöf, hjálp-
að þeim til að veita henni viðtöku
og lifa í henni njótandi hins dýrðlega
ávaxtar hennar — f r i ð a r i n s,
friðarins í guði föður vorum og Jesú
Kristi frelsara vorum. Því að frið-
urinn, það ásigkomulag vors innra
manns, þegar ekkert raskar rósemi
sálarinnar, af því að öll stefna vilja
vors er í lifandi samræmi við guðs
góða vilja, og af því að vjer höfum,
> lifandi trausti til guðs miskunnar
og trúfesti falið honum allan vorn
hag og öll vor efni — þetta friðar-
hnoss er einmitt ávöxtur tileinkaðr-
ar náðar guðs oss til handa og þess
kfs, er hvílist í náðinni umvafið af
henni; Og þessi friður hjartans flyt-
ttr oss styrk í starfi voru, hugrekki
í baráttu vorri og þolgæði'gttðs barna
í hverri þrenging, sem oss kann að
mæta. Sje hann orðinn hjörtum voo
um íbúandi sem varanleg eign vors
innra rnanns, getutn vjer látið oss í
Ijettu rúmi liggja, þótt verk vor verði
fyrir ómaklegu álasi og útásetning-
urn, og þótt það, sem til var stofnað
af oss í góðum tilgangi og af hreinum
hvötum, sæti misskilningi og tor-
tryggingum af hálfu mannanna, eða
verði lagt út á verra veg fyrir oss.
Sjeurn vjer oss meðvitandi þess, aö
vera trúir og árvakrir i verki köll-
unar vorrar, getum vjer með guðs
friðinn í hjarta, sagt meö postulan-
um: „Mjer er það fyrir minstu, að
vera dæmdur af yður eöa a.f rnann-
legu dóntþingi — en drottinn er sá,
sem dæmir mig.“ Fyrir því bið jeg
þess og óska, að friðarins guð gróð-
ursetji, ásamt náð sinni og miskunn,
þennan dýrölega frið guðs barna í
hjörtum vorum, svo að vjer fyrir
hann mættum með degi hverjum
verða til þess hæfari, sjálfir höndl-
aðir af Kristi, að hjálpa öðrum til
að láta höndlast af honum —- hæfari
ti' þess á erfiðum og alvarlegum tím-
um, að rækja þetta umboðsstarf i
söfnuði guðs, sem oss er trúað fyrir,
honum til vegs og dýrðar, sem kall-
aði oss til þjónustu sinnar, söfnuðum
hans til uppbyggingar og sálubóta,
og sjálfum oss til góðrar samvisku.
Til þessa blessi guð oss alla í Jesú
Kristi frelsara vorum. Amen.
Þegar vjer í dag komum saman
á þessari prestastefnu, getur ekki hjá
því farið, að oss sje öllum ofarlega
i huga, að sá maður, sem á átta undan-
gengnum prestastefnum stóð í þeim
sporum, sem nú stend jeg, er frá oss
horfinn að sýnilegum návistum. En
minning mæts manns lifir. Og svo
er um minningu vors látna kirkju-
lega yfirmanns Þ ó r h a 11 s biskups
Bjarnarsonar.
Ár biskupsdóms hans urðu ekki
mörg — að eins 8 ár. Þegar hann,
haustið 1908, enn í blóma aldurs síns,
gjörðist biskup lands vors, hugðu
án efa flestir, sem þektu hann, gott
eitt til biskupstöku hins öldurmann-
lega glæsimennis, með hinar ágætu
gáfur og hið mikla starfsþrek; því
að um mörg ár hafði hann staðið
meðal hinna fremstu og atkvæöa-
mestu til allra mála i fjelagi voru.
Vjer hugðum hið besta til biskups-
dóms hans og væntum þess, að kirkja
vor fengi lengi að njóta góðs af
skörungskap hans, ráðhyggni og
fjölhæfni — því að þessir eiginleikar
höföu í svo ríkum mæli einkent alla
opinliera framkomu hans. En ekki
síst hugði prestastjett lands vors gott
til biskupsdóms Þórhalls sál. bisk-
ups, fyrst og fremst sökum þess, að
hún vænti þess fastlega, að nú mundi
íslands kirkja fá að njóta óskertra
afburða-hæfileika hans, það er eftir
væri æfi hans, en því næst sökum
ljúfamannlegrar framkomu hans, yf-
irlætisleysis og sanngirni. Mjer er þá
líka kunnugra en mörgum öðrum um
það, með hvaða hug og ásetningi
hann gekk til stöðu sinnar sem bisk
up lands vors — með hve heitri löng-
un til þess og einlægum vilja, að
helga íslands kirkju krafta sína, það
er ólifað væri æfinnar, og einlægri
bæn til guðs um, að sem mest gott
mætti af biskupsstarfi sínu hljótast
fyrir kirkju vora. Jeg er ekki heldur
í neinum vafa um, að sú hefði í fleiri
greinum orðið raunin á, ef hann hefði
fengið að njóta krafta sinna óskertra
þessi ár, sem hann sat á biskupsstóli,
og það enda þótt árin hefðu ekki orð-
ið fleiri en þau urðu, livað þá, ef
hann hefði með óskertum kröftum
mátt sitja þar jafnlengi og fyrirrenn-
arar hans á biskupsstóli.
Með þessu hef jeg engan veginn
viljað gera lítið úr biskupsdómi for-
vera míns sáluga — fjarri fer því.
Dómurinn um biskupsstarf hans fer
aö sjálfsögðu eftir því, hverjar kröf-
ur menn gera til þess starfs. Þær kröf-
ur geta menn gert til þess, að enginn
geti fullnægt þeim, og ekki síst í
landi eins og voru, svo víðáttumikið
sem það er, mannfátt og strjálbygt,
með jafn ófullkomnum samgöngum
cg hjer eru og meö jafn mörgum
erfiðleikum, sem hjer er viö að stríöa
af náttúrunnar völdum, tjáir síst að
leggja þann mælikvarða á starfið,
sem gildir í öðrum löndum, þar sem
alt ööru vísi hagar til, en hjer hjá
oss. Vitanlega er biskupsstaðan í eðli
sínu andleg staða og ætti jafnan
svo aö vera f y r s t o g f r e m s t.
En hinu má ekki gleyma, að eins og
nú hagar til, eins náið og er samband
kirkju og ríkisvalds, þá er biskups-
staðan jafnframt staða hlaðin marg-
víslegum umboðsstörfum og marg-
brotnum, sem gleypa miklu meira,
bæði af tíma og kröftum þess, er hef-
ur hana á hendi, en allan þorra manna
grunar. Að minsta kosti get jeg með
vissu sagt það um sjálfan mig, að jeg
hef ekki haft fulla hugmynd um það
fyr en nú, er jeg hef verið kallaður
til þessa embættis sjálfur, hve hlaðið
það er fjölda starfa, sem eru lítt and-
leg í eðli sínu, en þó svo mikilvæg
fyrir kirkjuna sem fjelagsstofnun, að
ekki eru betur komin í annars
hendi en einmitt biskupsins. Og það
er þá líka fyrst og fremst einmitt
hjer, sem vor látni biskup hefur unn-
ið mikið starf og gagnlegt.
Þess er i því sambandi fyrst að
minnast, að ]>egar Þórhallur sálugi
tók við embætti, var sá mikli breyt-
ingatimi á skipun kirkjumálanna, er
leiddi af kirkjulögunum nýju fra
1907, rjett að byrja. Framkvæmd
allra þeirra lagabreytinga varð að
mestu leýti verlc hans, fyrstu fjögur
biskupsár hans, og getur hver sá, er
veit, hve gagngerðar og jafnvel stór-
feldar breytingar þar er um að ræða,
rent nokkurn grun í, að það hafi
fengið honum ærið að starfa, og eng-
inn, sem til þekkir, mun geta neitað
því, að þar hafi honum tekist að ráða
heppilega til lykta mörgu því máli,
sem var vandfarið með og þurfti bæði
viturleika og lempni til. — Og hvern-
ig embættisfærsla hans öll hefur ver-
ið, um það geta ekki aðrir borið betur
en jeg, sem var skipaður til að ganga
inn í verk hans. Mig hefði aldrei
getað dreymt það, — hvaö þá heldur
meira — aö viðtaka jafn umfangs-
mikils embættis og biskupsembættið
er, reyndist mjer jafn tiltölulega ljett
og hún varð. En hverju var það aö
þakka öðru en sjerstakri reglusemi
hins látna biskups í öllum hans em-
bættisrekstri. Það mun alltitt á skrif-
stofum embættismanna, sem hafa
margháttuðum umboðsstörfum að
gegna, bæði hjer á landi og annar-
staðar, að nieira og minna safnast
fyrir óafgreiddra mála, og ósvaraðra
brjefa. En hjer var ekkert mál óaf-
greitt, er nokkru skifti, og ósvöruðu
brjefin, sem jeg tók við aö honum
látnum, voru ef jeg man rjett, öll
hingað komin e f t i r að hann lagð-
ist banaleguna. Og hvað snertir
reikningsfærslu allra hinna mörgu
sjóða, sem undir hans umsjá voru,
þá var svo frá henni gengið, að alt
mátti heita uppgert áður en liðnar
voru einar þrjár vikur frá dauða hans.
Jeg tek þetta fram af því, að jeg hygg
þetta vera býsna sjaldgæft þar sem
ræða er um jafn umfangsmikið em-
bætti og biskupsins er. En svo var
reglusemin mikil og röggsemin í em-
bættisfærslu hans, svo mikill afkasta-
maður var hann í skrifstofustörfum
öllum, og það, þótt hann, meira en
belming þeirra ára, sem hann sat á
biskupsstóli þjáðist af þeirri heilsu-
bilun, sem um síðir lagði hann í gröf-
ina, að ótöldu margs konar mótlæti
og sorgurn, sem steðjaði að honum á
þessum árum.
Þeir merkisviðburðir kirkjulegs
eðlis, sem gerðust í biskupstið Þór-
halls sáluga biskups, sem sje útkoma
hinnar nýju þýöingar ritningarinnar
í hinni endanlegu mynd hennar, og
það í tveim útgáfum, og sjerstök út-
gáfa nýja testamcntisins að auki, —
svo og útkoma hinnar nýju Helgi-
siðabókar, voru að vísu að miklu leyti
undirbúnir i tíð fyrirrennara hans,
svo að þar var ekki eftir annað en
að leggja á síðasta smiðshöggiö. En
svo niikið var hann við það verk
riðinn frá upphafi, að ekki verður
með nokkuru móti varið að láta
þeirra ógetið, þegar minst er á æfi-
starf Þórhalls biskups.
Útgáfu-starfs hans að Nýju Kirkju-
blaöi er og vert að minnast í þessu
sambandi, svo margt gott og fróðlegt
og svo margt einkennilegt, sem það
hafði að flytja. Dómarnir um það
blað voru að vísu löngum býsna sund-
urleitir, eins og gengur. En hvað sem
því liöur, þá er hitt víst, að það
hefðu ekki allir á sig lagt í jafn um-
fangsmiklu embætti og hans var, og
svo störfum hlaðinn sem hann var,
að halda jafn stóru blaði út öll þessi
ár. Víst er, að eftirmaður hans í em-
bættinu er ekki meiri maður en það,
að hann hefur ekki treyst sjer til aö
halda því verki forvera síns áfram,
og er mjer þó sárt til þess að hugsa,
ef það skyldi nú vera með öllu úr
sögunni. En hvort sem það verður
nú svo eða ekki — þá hefur Þórhall-
ur biskup ekkert eftir sig látið, er
gefi betri og sannari mynd af mann-
inum sjálfum, allri lífsskoðun hans
og lyndiseinkunn hans, en einmitt
greinarnar hans í Kirkjublaöinu —
svo stóreinkennilegt sem þetta var
hvorttveggja. Því að Þórhallur sál.
biskup var í engu eins og fólk er
flest. Hann var í mörgu tilliti hinn
sjerkennilegasti maður og hirti yfir-
leitt ekki um í neinni grein að binda
bagga sína sömu hnútum og sam-
ferðamenn.
Lífsskoðun hans var í t r ú-
arlegu tilliti víðfeðmari og rýmri
en alment gerist. Hann undi sjer ald-
rei í neinum andlegum þrengslum.
Kreddufylgi alt (dogmatism) var
honum ógeðfelt. Kristindómurinn var
honum umfram alt kærleikslíf — „líf
á kærleiksvegi Krists, ofar öllum
kenningum kirkjuflokkanna." —
F r j á 1 s 1 y n d i hans var ekki
minna í trúarefnum, en öðrum. Hann
var alt of vel að sjer i guðlegum
fræöum til þess að hann ekki hefði
fylstu samúð með öllum þeim, sem
á vorum dögum hafa verið að ryðja
nýjar brautir, eöá veita trúarstað-
reyndunum inn í nýjan farveg og
samrímanlegri nútíðar-hugmyndum
manna. En hann var aldrei neinn
baráttumaður, síst er leið á æfina,
og hafði sig lítt frammi i hinum
kirkjulegu deilum síðustu ára, þótt
aldrei færi hann hins vegar i felur
með það, hvoru megin hann var í
þeim deilum. Það var engan veginn
stefnuleysisvottur, að hann ekki lagði
þar meira til mála en hann gerði;
það átti sjer áreiðanlega aðrar rætur,
og þá þær helst, að hann vildi f r i ð-
inn, en óttaðist alla sundrung. Hann
dáöist að Lúter, en hann elskaði Mel-
ankton, enda var hann að öllu eðlis-
fari líkari hinum síðarnefnda. Hon-
um var það lengst af þvert um geð,
að deila á þá, er litu öðrum augum
á hlutina en hann, og hann gat, þótt
geðríkur væri, þagað við árásum,
sem hann sjálfur varð fyrir. Yfir-
höfuð var hann manna umburðar-
lyndastur —- ekki að eins í trúmál-
um, heldur og í öðrum málum. Þess
hygg jeg, að þjer, undirmenn hans,
bæði í prófasts og preststöðu, hafið
sjeð margan vottinn í viðskiftum yð-
ar við hann. Þegar svo þar við bætt-
ist ljúfmenska hans í allri framkomu,
ástúð í viðmóti og óvenjulegt yfir-
lætisleysi hans, þá er síst að furða,
að hann væri vinsæll yfirmaður. Því
að þ a ð var hann. Þeim, sem undir
hann voru gefnir, gat ekki annað
en þótt vænt um slíkan yfirmann,
og það eins þótt þeir væru honum
ósamþykkir í skoðunum. „Bróður“-
ávarpið i brjefum hans var engin til-
gerð, heldur sönn lýsing þess hugar-
þels, sem hann bar til allra sinna und-
irmanna; þeir voru honum allir
„bræður“, hann umgekst þá eins og
bræður og vildi, að þeir litu á sig
sem bróður.
Síðustu orð hins deyjandi biskups
voru þessi: „Guð gefi góðu
m á 1 e f n i s i g u r“. Hvert það mál-
efni hefur verið, sem þar var í huga
hans, veit jeg ekki með vissu, en
þaö veit jeg hins vegar, að málefni
kristindómsins, málefni guðs ríkis,
var honum öllum málefnum fremur
„góða málefnið“ og því er mjer ljúf-
ast að líta svo á, að til þess hafi ósk-
in síðasta litið. Það er þá líka trú
mín, að vjer stjettarbræður hans í
andlegum embættum á landi hjer,
gætum ekki með öðrum hætti betur
heiðrað minningu vors vinsæla látna
biskups, en með því, að leggja fram
krafta vora til þess að góða málefnið
— málefni kristindómsins, málefni
guðs ríkis veröi sigursælt með þjóð
vorri dýrð guðs til eflingar og landi
og lýð til heilla og blessunar.
Með þeirri ósk og bæn til guðs, að
svo megi verða, bið jeg guö aö blessa
oss öllum minningu vors látna bisk-
ups.
r
Eimskipafjelag Islands.
Skýrsla um aðalfund
22. júní 1917.
(Eins og hún er bókuð í gjörðabók
fjelagsins.)
Ár 1917, föstudaginn 22. júnímán.
var haldinn aðalfundur Eimskipafje-
lags íslands, samkvæmt auglýsingu
útgefinni af stjórn fjelagsins þ. 16.
des. f. á. Var fundurinn haldinn í
Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavík og
settur kl. 12 á hád. af formanni
stjórnarinnar, Sveini Björnssyni yfir-
dómslögmanni. — Stakk hann upp
á fundarstjóra Eggert yfirdómara
Briem og var fundurinn því samþykk-
ur. Tók hann þá við fundarstjórn
og kvaddi til fundarskrifara Gisla
Sveinsson yfirdómslögmann.
Fundarstjóri lagði fram 3 eintök
af Lögbirtingablaðinu með fundar-
auglýsingu, sömuleiðis eitt eintak af
blöðunum : ísafold, Vestra, Norður-
landi, Austra og Suðurlandi, enn-
fremur eitt eintak af vestanblöðun-
um Lögbergi og Heimskringlu, með
birtingu fundarboðs. Skjöl þessi
voru merkt nr. 1 — 10.
Fundarstjóri lýsti fundinn löglega
boðaðan með tilliti til framlagðra
skjala og samkv. 8. gr. fjelagslag-
anna. — Lagði fram skýrslu ritara
stjórnarinnar um afhenta aðgöngu-
miða að fundinum og atkvæðaseðia,
sem voru fyrir hlutafje alls kr.
617,600.00, en alt atkvæðabært hluta-
fje í fjelaginu er kr. 1,457.900.00.
Skýrsla þessi merktist nr. 11.
(SvohljóÖandi:
»Skýrsla
um afhending aðgöngumiða og at-
kvæðaseðla til aðalfundar hf. Eim-
skipafjelags íslands 22. júní 1917.
I. Landssjóður. Innborgað hlutafje
100.000 kr., atkvæði 4000.
II. Hluthafar, aðrir en landssjóður
og Vestur-íslendingar. Afhentir
aðgöngumiðar fyrir hlutaije
366,050 kr., atkvæði 14642.
Samtals 466.050 kr., atkv. 18642.
III. Umboðsmaður Vestur-íslendinga
hr. Árni Eggertsson fer með at-
kvæði fyrir 151.550 kr., og svar-
ar þar til atkvæðatala 6062. Sam-
kvæmt 10 gr. fjelagslaganna hafa
honum verið afhentir atkvæða-
miðar fyrir þessar 151.550 kr.
að tölu: 6062 x 466,050 :
1257900 = atkv. 2246, þar-
eð atkvæðabært hlutafje ann-
að en Vestur-íslendinga er kr.
1257900.00 og aðgöngumiðar af-
hentir fyrir kr. 466.050.00 af því.
Eru þannig afhentir aðgöngumið-
ar fyrir alls 617.600 kr., en alt at-
kvæðisbært hlutafje í fjelaginu er
1.457.900 kr.“).
Lýsti fundarstjóri fundinn lögmæt-
an samkv. 7. gr. fjelagslaganna.
Var þá gengið til dagskrár fund-