Lögrétta - 18.07.1917, Blaðsíða 3
LÖGRJETTA
Stríðið.
Síðustu frjettir.
Enn segja skeytafregnirnar frá
framsókn Rússa í Galizíu, og aö þeir
hafi tekiö bæina Stanislawow, Kal-
usz og Dolina, sem allir eru suöur
undir Karpatafjöllum, suöur og suö-
austur frá Lemberg. Eftir þessu aö
dæma er þaö töluverö landsspilda,
sem Austurríkismenn hafa hörfaö
þarna úr. Einnig er sagt, aö Þjóö-
verjar hafi nú yfirgefið Pinsk. Aftur
á rnóti er sagt frá sókn af hálfu Þjóö-
verja á tveim stöðurn á vestur-víg-
stöðvunum, bæöi þar sem stendur
aðalviðureign þeirra við Frakka, og
þó einkum norður í Flandern, hjá
Yser-ánni. En ekkert af þessari við-
ureign, hvorki a5 austan nje vestan,
mun vera mikilvægt fyrir ófriðinn
í heild sinni. Frá öörum vígstöðvum
er ekki getið um Ijardaga. En sagt
er frá flugvjelaorustum á vesturvíg-
stöðvunum. Ein fregnin segir frá
því að Englendingar hafi gert flug-
vjelaárás á Krupps-verksmiöjurnar
í Essen og gert þar mikið að,
en slíkar fregnir eru jafnan vafa-
samar, því flugvjelamenn geta ekki
kynt sjer það sjálfir, hverju tjóni þeir
valda, og fá fyrst fregnir um það
eftir á. En síðari skeyti hafa ekki
staðfest þessa frásögn. Um flugvjela-
árás Þjóðverja á Lundúnaborg, sem
áður er frá sagt, er þaði nú sagt, að
manntjón og meiðsl af henni sjeu
allmiklu meiri en frá var skýrt í
fyrstu frjett. Það virðist svo, sem
flugvjelaviðureignin sje að verða
mesta keppikefli beggja ófriðaraðil-
anna á vesturvígstöðvunum.
í Þýskalandi hafa nú orðið stjórn-
arskifti. Bethmann-Hollweg hefur
beðist lausnar frá ríkiskanslaraem-
bættinu, en við því hefur tekið dr.
Michaelis, áður forstjóri matvæla-
ráðsins. Ekki verður það glögglega
sjeð af skeytafregnunum hvað vald-
ið hafi þeirri breytingu, eða hverjar
eigi að verða afleiðingar hennar í ó-
friðarmálunum. En sagt hefur verið
frá þvi, að yfirforingjar hersins, Hin-
denburg og Ludendorff, hafi tvívegis
verið kallaðir til Berlínar, á ráðstefnu
með keisaranum, meðan þetta var aö
gerast. Utanríkisráðherra í nýju
þýsku stjórninni er Brockdorff-Rant-
zau, áður sendiherra i Khöfn.
Um friðarhorfur koma nú engar
fregnir. í einu símskeytinu segir, að
Frakkar geri kröfu til Elsass og Lot-
hringen án þess að almenn atkvæöa-
greiðsla skeri úr. 1 Finnlandi eru
sagðar róstur. Þingið hefur lýst yfir
sjálfstæði landsins, en þó svo, að það
hafi utanríkismál og hermál áfram
í sameiningu við Rússland.
Nýkomin fregn í Mrg.bl. segir að
meiri hluti þýska þingsins vilji semja
frið nú þegar án landvinninga. Sama
fregn hefur það eftir Kerensky ráð-
herra, að stjórnarfyrirkomulag Rúss-
lands eigi að verða áþekt því sem nú
er í Bandarikjunum.
Hafnarniál ísfirðinga.
í 22. tbl. Lögrjettu er grein nokk-
ur urn „Hafnarmál ísfirðinga", sem
jeg má ekki láta með öllu ósvarað.
Fyrirhugaðar hafnarbætur verða
allar gerðar með ráði hafnarverk-
fræðings og fjárkröfur til landsjóðs
bornar fram samkvæmt einróma sam-
þykt bæjarstjórnar, svo um það mál
eru n ú engar deilur.
Greinarhöf. þykist vera hlyntur
hafnarbótum við Pollinn og gefur í
skyn að jeg hafi beitt mjer gegn þeim
sakir hagsmuna mága minna. Þetta
má segja ókunnugum, en kunnugir
vita, að sjálfur á jeg hús og stórar
og fagrar byggingalóðir við Pollinn,
einmitt þar sem höf. vill að hafnar-
bætur verði gerðar. Hagsmunahvatir
liafa því eigi ráðið tillögum mínum
um hafnarmál ísfirðinga, nenta mjer
eigi að1 vera annara um hag mága
uiinna en sjálfshag og ntá hver ráða
dónti sínum um það. — Öðru þarf
ekki að svara í greininni, enginn
sætnilegur maöur villist á henni.
Magnús Torfason,
þingm. Isafjarðar.
Fyrri myndin er frá höfninni i Ar-
kangelsk við Hvítahafið, sem frjett-
•irnar sögðu i vor, að Englendingar
og Japanar hefðu tekið umráð yfir,
]>egar hætta þótti vera á því, að Rúss-
ar serndu sjerfrið viö miðveldin. Ar-
kangelsk er eina útflutningshöfn
Rússa norður á bóginn, en vegna íss
er ekki hægt að halda þar uppi skipa-
Alþing'.
Þingsályktunartillögur.
5. Um skilyrði fyrir styrk til bún-
aðarfjelaga. Flm.: Sig. Sig., Stef.
Stef., Ein. Árn. og Pj. Þórð. Alþingi
ályktar, að ákvæðið um tímatak-
markið á skilyrðum alþingis (A. al-
menn skilyröi) fyrir styrkveitingu úr
landsjóði tii búnaðarfjel. frá 29. apr.
1911, aöl eftir árið 1919 niegi skoðun-
armaður eigi taka upp í jarðabóta-
skýrslu „túnasljettun, túnaútgræðslu
eða sáðreiti, þar sem eigi er áburðar-
hús og salerni", komi eigi til fram-
kvæmda fyr en eftir árið 1925.
6. Um sölu á ráðherrabústaðnum
við Tjarnargötu. Flm.: Sig. Sig. Al-
þingi ályktar að fela landstjórninni
að selja, svo fljótt sem því verður
við komið, ráðherrabústaðinn, hús-
eignina nr. 32 í Tjarnargötu. Bjóðist
landsstjórninni það verð í eignina, er
hún telur viðunanlegt, skal hún gera
Reykjavíkurbæ kost á að kaupa hús-
eignina fyrir það ver.
7. Um einkasölu á kolum. Frá fjár-
hagsnefndinni. Neðri deild alþingis
ályktar að skora á landsstjórnina að
undirbúa og leggja fyrir næsta reglu-
legt alþingi frumvarp til laga um
einkasölu landsjóðs á kolum.
Fyrirspurnir.
1. í tilefni af þingsályktun síðasta
þings um lánsstofnun fyrir landbún-
aðinn. Flm.: Þingmenn Eyf. Hvað
hefur landsstjórnin gert í tilefni af
þingsályktun síðasta þings um láns-
stofnun fyrir landbúnaðinn?
2. um endurskoðun vegalaganna.
Frá Sig. Sigurðssyni. Hvað hefur
landsstjórnin gert út af þingsályktun
alþingis frá 27. ágúst 1915, um end-
urskoðun á vegalögunum ?
Þingmannafrumvörp.
15. Um einkasölu landsstjórnarinn-
ar á kolum. Flm.: Jör. Brynj. Lands-
stjórninni veitist einkaheimild til inn-
flutnings á kolum hingaö til landsins.
Skal hún jafnan sjá um, að ætíð sjeu
nægar birgðir af kolum í landinu.
Kolin skal selja kaupfjelögum, bæj-
arfjelögum, sveitarfjelögum, kaup-
mönnum og öðrum, samkvæmt nánari
fyrirmælum, er landsstjórnin setur.
Til framkvæmda þessu má stjórnin
verja fje úr landsjóði eða taka pen-
ingalán, eftir þvi sem nauðsyn kref-
ur.
16. Um heimild fyrir bæjarstjórn
Reykjavíkur til einkasölu á mjólk.
Flm.: Jör. Brynj. BæjarstjórnReykja-
víkur heimilast að taka að sjer einka-
sölu á allri mjólk, nýmjólk, rjóma og
undanrennu, i lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur. — Meðan bæjarstjórnin
notar heimild þessa, er engum öðrum
heimilt að hafa á boðstólum fyrir al-
menning nýmjólk, rjóma og undan-
rennu, nje láta mjólkurtegundir þess-
ar af hendi gegn nokkurs konar end-
urgjaldi við nokkurn utan heimilis
framleiðanda.
17. Um afnárn laga nr. 21, 20. okt.
1905, um skýrslur alidýrasjúkdóma.
Flm.: Magn. Guðm., Stef. Stef., Hák.
Kr„ Þór. J„ Þorl. J„ Pj. Ott., Pj.
Þórð.
18. Um stofnun stýrimannaskóla
á ísafirði. Flm.: Matth. Ól. og Sk. S.
Th. Á ísafirði skal stofna stýrimanna-
skóla, er kenni sörnu námsgreinar og
veiti sömu rjettindi og fiskiskipstjóra-
deild stýrimannskólans í Reykjavík.
19. Um erfðaábúð á landsjóðs og
ferðum nerna 4 mánuði ársins. í bæn-
um eru 25 þús. íbúar og verslun er
þar mikil með timbur, fisk, hrein-
dýrakjöt og margskonar húöir, en alt
er þaö enn vörskiftaverslun, eins og
á gömlum dögum.
Síðari myndin er frá höfninni í
Wladivostock, en sagt var aö Japan-
ar og Englendingar hefðu tekið þar
kirkjujörðum. Flm.: Bj. Stef. Allar
kirkju- og landsjóðsjarðir, sem eigi
eru föst embættisaðsetur, skal byggja
með erfðarjetti i 100 ár, þannig að á-
búðarrjetturinn þau 100 ár, sem bygg-
ingarbrjefið gildir, gangi frá foreldri,
sem eignarjörð þess væri, til barna
þess, barnabarna eða fósturbarna, sem
arfleidd hafa verið, sem væru þau
börn þess, sem ábúðarrjettinn hefur,
eftir byggingarbrjefinu. Til fjarskyld-
ari erfingja nær erfðarjetturinn ekki,
en heimild hefur erfðarjettarhafi til
aö ákveða í sinni erfðaskrá, hver eöa
hverjir af áðurnefndum erfingjum
hans skuli erfa erfðafesturjett hans.
20. Um forðagæslu. Flm.: Gísli Sv.
og Magn. Guðm. — Breyting á forða-
gæslulögunum, og þau þar með num-
in úr gildi.
21. Um friðun lunda. Flm.: Pj.
Þórðarson. — Lundi skal friðaður
frá 20. júní til 10. ágúst.
22. Um breytisg á lögum nr. 57, 22.
nóv. 1907, um vegi. Flm.: Þingmenn
Múlasýslna. — Á eftir 9. lið 2. gr.
komi: 10. Frá Fagradalsbraut í Eg-
ilsstaðaskógi að Eyvindarárbrú um
Eiðaþinghá að Krosshöfða i Hjalta-
staðaþinghá.
23. Um breyting á lögum nr. 28,
22. okt. 1912, um breytingu á lögum
18. sept. 1883, um stofnun Lands-
banka, að i staðinn fyrir „á Austur-
landi“ komi í Suöur-Múlasýslu. Flm.:
Sv. Ól„ Bj. Stef. og Bj. frá Vogi.
Aðvörun.
Samkvæmt lögum um dýraverndun,
2. grein, skulu „frá 1. okt. 1917 allir
þeir, sem skepnur eiga, hafa næg hús
fyrir þær allar“. Brot gegn þessu
ákvæði varða alt að 1000 kr. sektum.
Á þessa grein vill stjórn „Dýra-
verndunarfjelags íslands" sjer stak-
lega minna enn af nýju, svo að eng-
inn hafi um að kenna öðrum en sjálf-
um sjer, ef verða kynni fyrir barðinu
á lögunum fyrir vanrækslu á því að
fullnægja ákvæðum þeirra.
Hinn 15. mars í vor flutti „Dýra-
verndarinn“ aðvarandi grein um þetta
efni.
Þeir, sem vitnast um, að ekki hafi
nægileg hús fyrir skepnur sínar, verða
hlífðarlaust kærðir.
Stjórn „Dýrav.fjel. íslands“.
Jakob Thorarensen skáld. Þegar
úthlutað verður styrk til lista og bók-
menta næst, ætti hann að koma þar
til greina, og vill Lögr. vekja athygli
alþingis á þessu, hvort sem það skift-
ir styrknum sjálft, að þessu sinni,
eða felur öðrum að gera það, eins
og verið hefur síðustu árin, því bend-
ingar hefur það látið fylgja, sem þá
að sjálfsögðu hafa verið teknar til
greina. — Kvæði J. Th. þekkja menn
og hitt líka, að í blöðum og tímarit-
um hafa margir mentamenn haft um
þau lofleg ummæli og talið hann í
fremstu röð hinna yngri ljóðskálda
okkar.En hann hefir lítinn tima afgangs
frá vinnustundum, er fjelaus maður
og hefur fyrir heimili að sjá, svo að
styrkur til hans mundi hafa þann á-
rangur, að hann gæti sint kveðskap
sínum meira en áður, og til styrkveit-
ingar hefur hann fyllilega unniö1 með
þeim kvæðum, sem þegar ertt til eftir
hann.
ráðin, eins og í Arkangelsk síðastl.
vor. Þar er endastöð Síberíu-járn-
brautar Rússa, og borgin helsti hafn-
arstaður þeirra austur á bóginn. Hún
er stofnuð 1860, og var í fyrstu ekki
annað en rússnesk herstöð, en hafði
í byrjun ófriðarins 150 þús. íbúa. Eru
Rússar þar fjölmennastir,eneinnigeru
þar Mongólar, Kínverjar og Japanar.
Boðsbrjef.
19. júní s. 1. var gefið1 út litið blað
í Reykjavík, og selt til ágóða fyrir
Landspítalasjóð íslands. Blaði þessu
var mjög vel tekið og hafa ýmsir síð-
an hvatt mig til að halda áfram i
líka átt. Vegna þess, og einnig af
því, að jeg álít að blað eigi nú er-
indi til kvenna, hef jeg ráðist í að
byrja á útgáfu blaðs, er beri nafnið
„19. júní“. Það á að ræða öll þau
mál, er konur hafa áhuga á, heimilis-
og uppeldismálin, eigi síður en opin-
ber þjóðfjelagsmál. Það á að leitast
við að flytja fregnir af því, er gerist
meðal systra vorra í hinum stóru
löndunum. Það vill láta til sín taka
alt það, er lítur að þroska vor kvenna
og getur orðið oss til gagns á öllum
hinum margbreyttu starfsviðum vor-
um, og þar skal, svo freklega sem
rúmið leyfir, orðið vera frjálst öllum
þeim, körlum sem konum, er vilja
fræða eða hvetja konurnar. Jeg hefi
þegar fengið loforð um góða lið-
veislu og vona að allir þeir, karlar
sem konur, er hafa eitthvað það á
hjarta, er átt getur heima innan tak-
marka blaðsins, riti í það um áhuga-
mál sín, þó jeg, sakir ókunnugleika,
eigi geti snúið mjer til þeirra per-
sónulega.
19. júní verður mánaðarblað, 1 örk
í 4 blaða broti. Sakir verðhækkunar,
sem nú er á vinnulaunum og pappír,
treysti jeg mjer eigi til að setja verð-
ið lægra en kr. 3.00 áraganginn. En
ef alt gengur vel, mun lítið fylgirit
sent kaupendum í lok árgangsins.
Jeg treysti þvi, að margar velvilj-
aðar og áhugasamar konur vilji þegar
frá byrjun styðja þetta fyrirtæki með
því að kaupa blaðið eða útvega því
áskrifendur, og eru það! vinsamleg
tilmæli mín til ykkar, er sýna viljið
blaðinu þá velvild, að hraða sem mest
áskriftasöfnun og gera mjer aðvart
um það hið fyrsta. Mun blaðið þá
sent yður með næstu ferðum.
Reykjavík, 1. júli 1917.
Með virðingu
Inga L. Lárusdóttir.
Bröttugötu 6.
Frjettir.
Tíðin hefur verið góð síðastl. viku
og grasvexti hefur mikið farið fram,
svo að nú er hann sumstaðar sagður
alt að þvi í meðallagi.
Aflabrögð. Frá Akureyri er sagt,
að þar sje nú mokafli og síldarganga
mikil. En kvartað um olíuleysi á vjel-
skipunum. Síldveiðar eru að byrja
þar, en byrjuðu nokkru fyr á Vest-
fjörðum.
Skipaferðir. „Lagarfoss“ kom frá
Ameríku 14. þ. m. með ýmsar mat-
vörur og um 500 olítunnur á þilfar-
inu. Hjeðan fer hann bráðlega aftur
vestur um haf. — Seglskip, sem
„Drot“ heitir, kom fyrir nokkrunv
dögum með timburfarm frá Svíþjóð
til Árna Jónssonar kaupm. Það lagöi
á stað frá Svíþjóð í apríl, en var tek-
ið af ensku herskipi skamt frá landi
hjer, flutt til Stornoway og lá þar
lengi. Hvað eftir annað hitti það
þýska kafbáta á leið sinni. — „Gull-
foss“ átti að leggja af stað frá New
York um miðjan þennan mánuð. —
„Fálkinn" fer hjeðan um næstu helgi
125
Tvöfalt hefti af „Iðunni“ (1. og 2.
h III. árg.) kemur út um mánaða-
mótin ágúst-sept.br., eins og i fyrra.
útgef.
til Khafnar. — „Botnia“ er nýkomin
hingað norðan um land, úr hringferð.
— „Bisp“ kom til Austfjarða 15. þ.
m. með salt og tunnur. — Bergens-
fjelagið kveðst ekki geta að svo
stöddu sent hingað skip i stað Flóru.
„Ceres“, „Vestu“ og fleiri skipum
sökt. í fyrrakvöld fjekk stjórnarráðið
símskeyti frá Lydersen skipstjóra á
„Ceres“, sem sagði að skipinu hefði
verið sökt, en farþegum og skipshöfn
bjargað, nema tveimur mönnum, 2.
vjelameistara, Danielsen, og sænskum
kyndara. Farþegar voru Thor Jensen,
R. Thors og frk. Þóra Friðriksson.
„Ceres“ var á leið hingað frá Eng-
landi með útgerðarvörur.
í gær fjekk stjórnarráðið símskeyti
um að „Vestu“ hafði verið sökt á
leið frá Austurlandi með fisk og síld
til Fleetwood. 5 menn hefðu farist, en
þeir ekki nafngreindir. Enginn þeirra,
sem á skipinu voru, mun hafa verið
hjerlendur. „Vesta“ var í förum fyrir
landstjórnina.
Nýlega er og komin fregn um, að
seglskipinu „Áfram“ hafi verið sökt
á leið hingað frá Englandi. Einnig,
að sökt hafi verið seglskipi, sem var
á leið frá Khöfn til Riisverslunar á
Hólmavík, og öðru til Framtíðarinn-
ar á Seyðisfirði. En mönnum af öll-
um þessum skipu var bjargað. —
„Áfram“ var eign þeirra P.Ólafssonar
konsúls hjer og Þorst. Jónssonar
kaupmanns á Seyðisfirði.
Verðlagsnefndin. 22. f. m. var Ein-
ar Helgason ráðanautur skipaður í
hana í stað; Jóns Sívertsen skóla-
stjóra, sem nú dvelur í Ameríku.
Slys vildi til hjer við hafnargerð-
ina í síðastl. viku. Maður, sem Ás-
valdur Magnússon heitir, datt svo,
að hann varð undir vagni, og fór
hjólið yfir báða fætur hans og braut
þá mikið. Var hann fluttur á spítala
og hafa fæturnir verið teknir af hon-
um.
Sogsfossarnir. Borgarstjóri Rvíkur
hefur fyrir bæjarins hönd gert kaup-
samning við eiganda Bíldsfells og
Tungu í Grafningi, Guðmund Þor-
valdsson, um kaup á vatnsafli úr
þeim hluta Sogsfossanna, sem til-
heyrir þessum jörðum, að Kitufossi
undanskildum, og er verðið 30 þús.
kr.
Nýtt kvennablað er farið að koma
út hjer, á að verða mánaðarblað, og
heitir „19. júní“. Ritstj. er Inga L.
Lárusdóttir. Verð árg. 3 kr.
Úr Fáskrúðsfirði er skrifað 22.
júní: „Vjelbátar nýbyrjaðir að fiska,
hefur vantað, hingað til, olíu og beitu.
Nú er landstjórnarolia fengin, og svo
hefur orðið hjer síldarvart; hafa
þessir fáu bátar, sem hjeðan stunda
veiðar, aflað allvel, 3—6 skpd. í róðri.
Hjer horfir til vandræða með elds-
neyti. Kol engin, sem fáanleg eru.
Allur fjöldi manna að afla sjer elds-
neytis á annan hátt, með því að hend-
ast hingað og þangað um sveitina í
mótekju, sem þó er viðast mjög lje-
leg, og verður sá eldiviður afardýr,
eftir gæðum, þegar á alt er litið.
Allmikill kur er í fjölda kjósenda
yfir „dýrtíðaruppbót" embættismanna,
og verða þær „ofsjónir" enn þá ægi-
legri fyrir það, að einlægt þrengir
nú að með kaup á lifsnauðsynjum, en
vinnulaun og framleiðsla eykst ekki
að sama skapi, og verða þá auðsæar
afleiðingarnar. Verð á þeim fáu vöru-
tegundum, sem við og við fást hjei,
er afarhátt. Mjöltunnan á kr. 60.00,
völsuð hafragrjón á 88 eða 90 kr.
tunnan. Smjörliki hefur ekki sjest í
verslunum hjer síðan í fyrra sumar,
enda er mönnum nær ekið með viö-
bitsleysi, sjerstaklega mjólkurlausum
þurrabúðarmönnum. Mæna nú allra
augu til hins háa stjórnarráðs, að það
geri sitt ýtrasta til að afstýra þeim
vandræðum, sem af vöruskorti leiða,
því nú sýnir reynslan okkur að kaup-
menn geta brugðist í því að ná nauð-
synjum frá útlöndum.
Ekki eru menn á eitt mál sáttir hjer
hvað aðflutningsbann áfengis snertir;
það á marga mótstöðumenn hjer.
Höfum við ekki trú á því að það
leiðist farsællega til lykta. Vínnautn