Lögrétta - 15.05.1918, Page 3
LÖGRJETTA
L*
í*
Friöarsamningar milli miöveld-
anna og Rúmena hafa nú veriö birt-
ir. Ferdinand konungur heldur völd-
um, en miöveldin hafa eftirlit meö
stjórn landsins og hafa þar her á-
fram. Rúmenía lætur Dobrudsja til
Búlgariu, eins og áöur hefur veriö
ráögert. f ófriöarmálunum út á við á
Rúmenía a'ð vera hlutlaus framvegis.
ÞjóSverjar halda áfram að taka
land og borgir af Rússum. Þeir hafa
nýlega tekið Rostov við Donfljótið,
austan við norðurenda Asovshafsins.
Fregn frá í ’gær segir, að Dagmar
keisaraekkja og stórfurstamir Mi-
chael og Nieolaj, setn öll dvöldu suð-
ur i Krím, sjeu nú á valdi Þjóðverja.
Nokkru eldri fregn. frá Petrograd.
segir, að Þjóðverjar hafi í hyggju
að taka Moskvu og leggja Rússland
undir sig. En á fregnum þaðan að
austan mun nú sem stendur lítið
mark takandi. Þar er alt í óvissu og
ólagi. Hungursneyð er nú sögð yfir-
vofandi í Petrograd, og sömuleiðis
Viborg og Helsingfors. í Svíþjóð er
nú talað um Rauðflykkingaóeirðir,
er liklega verða þó stöðvaðar áður
en mikið verður úr. Fregn frá 13.
þ. m. segir að ófriðarþjóðirnar hafi
lokað innsiglingu til Gautaborgar
með tundurduflum.
Þjóðverjar hafa nú viðurkent Lit-
hauen sjálfstætt ríki.
Fregn frá n. þ. m. segir, að þjóð-
höföingjar miðveldanna sjeu á ráð-
stefnu í aðalherbúðum Þjóðverja,
enda er nú, eins og áður gegir, stór
sókn í aðsigi. Það er sagt að her frá
Austurríki sje nú kominn á vígstöðv-
arnar í Belgíu.
Ný sjóárás hefur verið gerð af
Bretum á Ostende og enn sökt stóru
skipi þar í hafnarmynninu. Svo segja
fregnirnar frá loftorustum öðru
hvoru, er ekki virðist þó kveða mikið
að.
Smáríkin Nicaragua og Guatemala
i Ameríku eru nú sögö 'hafa sagt mið-
veldunum strið á hendur.
Dansk-íslenska fjelagið.
Tvö ný rit.
Frá því eru nýkomin hingað tvö
rit, nr. 1 og 2 af Smáritum þess. Hið
fyrra heitir „íslensk húsgerðarlist",
eða „Islandsk Architektur", eftir Al-
fred J. Raavad, bæði prentuð á ís-
lensku og dönsku, og fylgja upp-
drættir af kirkju og sveitabæ með
því útliti og þeirri inmjettingu, sem
höf. leggur til að upp verði tekin hjer
á landi. Ritgerðin er stutt, en efnis-
mikil og mjög svo eftirtektar verð.
Hann vill leggja gamla bæjasniðið
til grundvallar fyrir framtíðarbygg-
ingum hjer á landi og telur það ó-
kofct-r að húsagerð sú, sem nú tíðk-
ast í kaupstöðunum, færist yfir land-
ið. „Menn halda ef til vill, að ekki
sje til á íslandi fortíðarfræ, er þjóð-
leg byggingarlist geti gróið upp af,“
segir hann. „En svo er það þó. Bæði
í grunnmynd og hinu ytra sniði torf-
kirkjunnar og hins gamla íslenska
bæjar eru fyrirmyndir, gotnesks upp-
runa og eðlis, er sem best má nota
við ætlunarverk og byggingar í fram-
tiðinni. Hinir þykku, traustu hlið-
veggir og sundurgreindu gaflar með
hvössum þökum eru ágætur grund-
völlur til að reisa á fyrirmyndir til
bygginga með þjóðlegu sniði og í
samræmi við landslagið.“
Af alþjóðarbyggingum í Reykjavík
minnist hann á þrjár. Alþingishúsið
segir hann að gefi enga hugmynd,
sem notandi sje, um byggingarlist-
fengi. Landsbókasafnið sje sno'tur
bygging og fari vel, eins og því sje
fyrir komið í bænum. En stíllinn sje
of ítalskur til þess að hann geti haft
nein góð áhrif. Aftur á móti telur
hann mentaskólann gimstein, bæði að
því er snertir samband við fortíðina
og listfengi. „En hann er of einstak-
ttr í sinni röð 0g fjarri öllu nýtíðsku-
braskinu," segir höf.
Grein þessa ættu þeir að lesa, sem
við byggingar fást hjer á landi, því
hún er skrifuð 'af smekkvísum og
vitrum matini, sem margt hefur sjeð.
Hann hefur dvaiið hjer í Reykjavík
og nokkuð ferðast hjer um land, er
nú í Kaupmannahöfn, en hefur verið
áðttr langvistum í Ameríku. Hann er
bróðir Thors Jensen framkvæmda-
stjóra. Lögr. hefur áður (í 42 tbl.
T9T5) sagt frá bók eftir hann, sem
fjallar um framtíð íslands og Græn-
lands o. fl. Og kom út 1915. Sýnir hún,
að hann er víðsýnn maður, með miklu
stórfeldari framtíðarhugsjónum fyr-
ir þessi lönd en títt er að finna.
Hitt ritið er eftir dr. jón biskup
Helgason og heitir „Fra Islands
Dæmringstid“ (Frá aftureldingar-
tímum íslands). Eru þar prentaðir
fyrirlestrar þeir, sem dr. J. H. flutti
í Dalum í Danmörku sumarið 1916,
og bókinni er ætlað, að sýna Dönum
nokkra drætti úr sögu íslands, or-
sakirnar til hnignunarinnar i efna-
hag og framtakssemi eftir að landið
komst undir erlend yfirráð, og svo
viðreisnartilraunirnar er þjóðin vakn-
ar til meðvitundar um þetta og fær
vonir um betri framtið. Er sagt frá
eyðilegging biskupavaldsins gamla
meö innleiðslu siðaskiftanna, frá á-
hrifum einokunarverslunarinnar og
aðförum ýmsra danskra valdsmanna
hjer á landi á fyrri tímum, og síðan
frá starfsemi viðreisnarforsprakk-
anna, svo sem Eggerts Ólafssonar,
Magnúsar Stephensen, Fjölnismanna
og Jóns Sigurðssonar, og málstað ts-
lendinga í viðureign. þeirra við danska
valdið er vel fylgt fram, hvar sem
minst er á þann ágreining i ritinu.
Eru rit eins og þetta, sem eru efnis-
mikil, en þó fljótlesin og aðgengi-
leg fyrir allan alinenning, vel til þess
fallin að eyða misskilningi i Dan-
mörku á ágreiningsmálum þeim, sem
uppi eru milli íslendinga og Dana, og
það er einlægur vilji Dansk-íslenska-
fjelagsins, sem þessi rit gefur út, að
vinna sem mest í þá átt.
Alþingi.
Fjárhagur landssjóðs.
Fjárhagsnefnd neðri deildar hefur
gefiö svohljóðandi skýrslu um hag
landssjóðs i lok fjárhagstímabilsins
1916—1917 og urn útlitið fyrir yfir-
standandi f jálhagstímabil:
Eftir fyrirlagi háttv. deildar hef-
ur nefndin athugað fjárhagsástand
landsins eftir föngum, og hefur hún
í þessu efni stuðst við landsreikning-
inn 1916 og farið eftir honum, þótt
hann sje óendurskoðaður, því nefndin
hefur að sjálfsögðu engan tíma haft
til að gagnrýna hann, enda er það
starf, sem að sjálfsögðu verður fram-
kvæmt af yfirskoðunarmönnum. Um
tekjur og gjöld á árinu 1917 hefur
nefndin aflað sjer skýrslna úr bók-
um stjórnarráðsins, en tekið skal það
fram, að með því að enn geta komið
fram útgjöld, er tilheyra því ári,
getur niðurstaðan breytst nokkuð, en
eigi svo, að neinu verulegu muni.
Samkvæmt bráðabirgðauppgerð
tekna og gjalda á árinu 1917 er tekju-
hallinn á árinu kr. 1940109.61, en
upp i þetta er til frá árinu^ipiö 1.
tekjuafgangur það ár kr. 143021,42,
2. innieign hjá landsversluninni í árs-
lok 1916 kr. 590080,63 Samtals kr.
733102.05. Eftir verða kr. 1207007.56,
sem er þá tekjuhallinn á síðastliðnu
fjárlmgstímabili.
Um árið 1918 verður að sjálfsögðu
lítið sagt með fullri vissu; en jafn-
vel þótt gengið sje út frá því, að á-
ætlaðar tekjur komi inn og útgjöld.
þau, sem í fjárlögutn standa, fari
ekki verulega fram úr áætlun, hlýt-
ur þó tekjuhallinn að verða, sbr.
fjárl., um kr. 400000.00. Við þetta
bætist kostnaður af væntanl. dýrtíð-
arráðstöfunum þessa þings, sem eigi
er sjeð hverjar verða, en nefndin á-
ætlar kr. 400000.00 og útgjöld, sem
ekki standa á fjárlögum, áætluð kr.
600000.00. Samtals kr. 1400000.00.
Upp í þennan tekjuhalla ársins
1918 er eigi annað til, svo sjáanlegt
sje, en tekjuauki, sem samþyktur
kann að verða á þessu þingi, því að
við samning fjárlaganna fyrir yfir-
standandi fjárhagstímabil var tekið
tillit til tekjuaukafrv. þeirra, er sam-
þykt vöru á síðasta þingi, nema
tekjuskattsaukans, sem erfitt er aö
gera áætlnn um.
Verði tekjuaukafrv. þait samþykt,
sem nú eru fram komin, má búast
við nokkrum auknum tekjum á yfir-
standandi ári, en varla mundu þau
ræma méiru en 300000 kr., og yrði þá
tekjuhalli ársins I918 rúm I miljón.
Að sönnu skal það tekið fram, að
benda má á ýnts atriði, er gera það
sennilegt, að tekjuhallinn kunni að
verða feitthvað minni, en þar sem
jafnframt rná búast við, að útgjöld
kotni, sem nú eru ófyrirsjáanleg,
81
þvkir eigi varlegt að ganga út frá
honum minni.
Um ástandið á árinú 1919 er enn
erfiðara að segja nokkuð ákveðið, en
með því að tekjufrv. þau, sem nú
kunna að verða samþykt, gefa vænt-
anlega meiri tekjur á því ári en yf-
irstandandi ári, vegna þess, hversu
liðið er nú á árið, má ef til vill vænta
þess, að tekjuhallinn veröi eigi yfir
1 miljón næsta ár, þótt við kunni að
bætast ófyrirsjáanleg gjöld.
Ef þessar áætlanir fara nærri hinu
rjetta,ætti samanlagður tekjuhallifyr-
ir fjárhagstímab. 1916—1917 og 1918
— 1919 að verða undir 3)4 nriljón kr„
ef ástándið verður svipað og nú er.
Ef styrjöldin endar fyrir árslok 1919,
má búast við, að hagur verði betri,
en jafnframt má og taka það til at-
hugunar, að ástandið getur versnað,
ef til vill til stórra muna, og hagurinn
þatrnig orðið verri en hjer er gert
ráð fyrir.
Það skal tekið fram, að viðlaga-
sjóður var við árslok um j-}4 milj.
kr., en hann er eigi í handbæru fje,
eins og kunnugt er. Ágóði af lands-
versluninni hefur orðið til ársloka
1917 um 1 miljón k'r., en eigi virðist
fært að byggja á því sem eign, þar
sem búast má við allmiklum halla
á versluninni þegar styrjöldin hættir,
vegna verðlækkunar á vörum, tapi
á húsum o. fl.
Eins og fjármálaráðherrann hefur
þegar gefið skýrslu um, voru skuldir
landssjóðs í árslok 1917 sem næst
kr. 19000000.00.
Fjárhæð þessi hefur verið notuð
eins og hjer greinir: a. Gömul lán
til ýmsra fyrirtækja ca. 2415000 kr.,
b. Til rekstrar landsverslunarinnar
5660000 kr., c. Til skipakaupa 3550-
000 kr, d. Dýrtíðarlán Revkjavíkur
110000 kr., e. Tekjuhalli síðasta fjár-
hagstímabils ca. 1200000 kr., f. í sjóði
við árslok 1917 7375000 kr. Samtals
20300000 kr.
Ástæðan til þess, að hin síðasttalda
upphæð er allmikið hærri en lána-
upphæðin, er sú, að í árslok var að
sjálfsögðu allmikið ógreitt af gjöld-
um ársins 1917, og í landssjóði átti
bæði Stóra Norræna ritsímafjel. og
rikissjóður Dana allmikið fje. Sú
fjárhæð, sem talin er í sjóði 1. janúar
1918, er því þeim mun hærri sem
nemur hinum ógreidda hluta gjalda
ársins 1917 og fje því, sem ríkissjóð-
ur og Stóra Norræna ritsímafjel. áttu
inni í landssjóði.
Nánara yfirlit eða frekari skýrslu
sjer nefndin eigi fært að gefa um
fjárhágsástandið.
Fyrirspurnir.
1. Um úthlutun og sölu kornvöru
og sykurs. Flm. Halld. Stein. —
Hvað knúði landsstjórnina til að gefa
út reglugerð, dags. 23. jan, þ. á, um
úthlutun og sölu kornvöru, sykurs
c. fl.?
2. Um framkvæmdir fossanefnd-
arinnar. Flm.: Gísli Sv., Pj. Ott., Stef.
Stef., Jón Jóns., Magn. Guð., Þór.
Jón., Ein Arnórs., Sig. Sig., Sig.
Stef. og Magn. Pjet. — Hvað líður
framkvæmdum fossanefndarinnar, er
skiþuð var samkvæmt ályktun síðasta
Alþingis, og hver er niðurstaða henn-
ar að því er sjerstaklega snertir 1.
og 4. lið nefndrar ályktunar?
3. Um úthlutun kola. Frá Bjarna
Jónssyni frá Vogi — Eftir hverju var
landssjóðskolunum úthlutað manna á
meðal síðasta vetur. Hefur lands-
stjómin eða sveitastjórnirnar ráðið
því, hversu með var farið?
Öllum þessum fyrirspurnum er ó-
svarað.
ÞingsályktunartillÖgur.
12. Um sauðfjárbaðlyfþ Flm. Þór.
Jónss., Pj. Ott. — Neðri deild Al-
þingis ályktar að skora á landstjórn-
ina: 1. Að annast um það, að nægileg
baðlyf til þrifabaða á sauðfje næsta
haust verði komin til landsins ekki
síðar en fyrir næstkomandi ágúst-
mánaðarlok. 2. Að brýna rækilega
fyrir hreppsnefndum og bæjarstjórn-
um, að tryggilegt eftirlit sje haft
með böðunum, og aö þær fari, eftir
því sem kostur er á, samtímis fram
á þeim svæðum, þar sem samgÖng-
ur eru tiðar.
13. Um heimild fyrir landstjórn-
ina til að greiða Gisla Guðmttndssyrti
meiri laun en heimilað er í fjárlög-
ununl. Frá Fjárveitinganefnd. — Al-
þingi ályktar að heintila landstjórn-
inrti aö greiða Gísla Guðmttndssyni,
gerlafræðingi, 600 kr. á ári af launutrt
þeim, sent í fjárlögunum eru ætluð
forstöðumanni efnarannsóknarstof-
unnar í Reykjavík, meöan hann gegn-
ir þeim störfum.
14. Um útsæði. Frá bjargráða-
nefnd n. d. — Alþingi ályktar að
skora á landstjórnina aö gera ráð-
stafanir til þess: 1. Að vekja athygli
sveitar- og bæjarfjelaga á því að sjá
sjer fyrir nægilegu útsæði í haust og
tryggri geymslu þess i vetur. 2. Að
afla útsæðis til geymslu, innlends og
útlends, af bestu tegund, og heimilast
benni að verja fje úr landsjóði til
þess að láta gera tryggan geymslu-
stað fyrir útsæðið. 3. Aö annast urn,
að gefinn verði út leiðarvísir til al-
mennings urn trygga geymslu útsæð-
is yfir veturinn.
15. Urn biðlaun handa Metúsalem
Stefánssyni, skólastjóra á Eiðum.
Frá fjárveitinganefnd. Alþingi álykt-
ar að heimila landstjórninni að greiða
Metúsalem Stefánssyni, skólastjóra á
Eiðum, frá 1. jan. 1919 1000 kr. bið-
laun á ári, meðan hann fær ekki fasta
stöðu, þó ekki lengur en í 2 ár.
16. Um aukinn styrk og lánsheim-
ild til flóabáta. Frá samgöngumála-
nefnd • n. d. —- Alþingi ályktar að
heimila landsfjórninni: 1. að hækka
styrk þann, sem ákveðinn er í gild-
andi fjárlögum til Langanessbáts, um
um alt að 12 þús. kr. á ári, og gangi
1 eða 2 bátar frá Sauðárkróki til
Seyðisfjarðar, með viðkomu í Gríms-
ey, er sjeu eigi minni til samans en
80 smálestir og haldi uppi ferðum
til miðs nóvémbers. 2. að lána alt að
90 þús. kr. til kaupa á Húnaflóabát.
17. Um kolanám í Gunnarsstaða-
gróf í Drangsnesslandi. Frá bjarg-
ráðanefnd e. d. — Alþingi ályktar að
heimila landstjórninni að styrkja
kolanám í Gunnarsstaðagróf íDrangs-
nesslandi "við Steingrímsfjörð í
Strandasýslu með f járframlagi úr
landsjóði, er nemi 10 kr. á hverja
smálest nothæfra kola, sem framleidd
verða þar og seld á þessu ári, enda
verði kolin seld þeim mun ódýrari.
Enn fremur heimilast Strandasýslu
námurjettindi landsins í Gunnars-
staðagróf ókeypis til ársloka 1919.
Þingsályktunartillögu um úthlutun
matvöru- og sykurseðla hefur verið
vísað til stjórnarinnar með svohljóð-
andi rökstuddri dagskrá: „Með
trausti til þess, að landstjórnin og
landsverslunin hafi fullan huga á, að
íullnægja eins og föng leyfa og við
verður komið, hinum mismunandi
þörfum hjeraða og bygðarlaga til
vöruforða og aðflutninga, tekur
deildin fyrir næsta mál á dagskrá."
Þingsályktunin um sattðfjárbaðlyf
hefur verið samþykt.
Feld frumvörp.
1. Unr einkarjett til verslunar með
smjör og tólg (frv. Sigurj. Friðj.).
2. Frv. stjórnarinnar um heimild
handa landstjórninni til að fyrirskipa
fráfærur ásauðar. Var það felt í e. d.
með 8 atkv. gegn 6 og greiddu atkv.
með frv.: G. Bj.; Jóh. Jóh., Magn.
Kr.,-Magn. Torf., Sig. Egg. og Sig.
Jónsson. Á móti frv. greiddu atkv.:
Egg. P., Guðj. Guðl., Guðm. Ól., H.
St., Hj. Sn., Karl Ein., Kr. Dan. og
Sigurj. Friðj.
hafa látið smiða í Danmörku, 60
tonn að stærð, og er nýkominn hing-
að.
Þingfrestun. Líklegt er, að alþingi
verði frestað um hríð nú um hvíta-
sunnuna, þótt ekki sje það fullákveð-
ið enn, og mun þá helst í ráði, aö
það komi saman aftur 1. ágúst i sum-
ar. Stendur þessi þingfrestun i sam-
bandi við þær horfur í sambands-
málinu, sem frá er sagt i grein á
öðrum stað hjer í blaðinu.
Ensku samningarnir. Þeir munu
nú vera fullgerðir, eða um það bil
og má vænta, að aðalatriði þeirra
verði birt einhvern af næstu dögum.
Þjóðvinafjelagið. Aiþing kaus í
gær formann þess, í stað Tryggva
heit. Gunnarssonar, Benedikt Sveins-
son alþm.
Smjörlíkisverksmiðja í Reykjavík.
Fjelag er stofnað hjer i bænum til
þess að koma á fót smjörlíkisverk-
smiðju og von á vjelum til hennar
með júlíferð Botníu frá Khöfn. For-
maður fjelagsins er Jón Kristjánsson
prófessor, en Gísli Guðmundsson
gerlafræðingur er ráðanautur þess.
Leikhúsið. Þar er nú sýndur leik-
urinn „Landafræöi og ást“, eftir
Björnson.
Hörmulegt slys vildi til i sund-
lauginni í fyrrakvöld. Þar druknaði
drengur, "sem var nýfarinn að læra
að synda, hafði dottið ofan í laugina
án þess menn yrðu varir við. Dreng-
urinn hjet Hafliði Björnsson, 10 ára
gamall, sonur Björns Erlendssonar
trjesmiðs og Guðrúnar Pálsdóttur
Hafliðasonar, efnilegur og góðttr
drengur.
Frjettir.
Tíðin er stöðugt hin besta. í byrj-
un vikunnar brá snÖggvast til norð-
anáttar og kólnaði, en það stóð stutt.
Um alt land er látið vel af vorveðr-
áttunni og skepnuhöld sögð í góðu
lagi.
Skipaferðir. Bisp kom frá Vest
fjörðum 10. þ. m. og fór til útlanda
t3. Sterling kom í gær vestan um
land og á að fara aftur I strandferð
norður um land næstkomandi rnánu-
dag. Gullfoss fór frá Halifax áleiðis
lil New York 8. þ. m.
AflabrÖgð. Þilskip Duusverslunar
hafa á nýafstaðinni vertíð fengið
þennan afla: Ása 62 þús., Valtýr 62,
Seagull 50, Sæborg 45)4, Keflavík
39 og Sigurfari 22)4 þús.
„Faxi“ heitir nýr vjelbátur, sem
Sigttrjón Pjetttrsson katipm. 0. fl.
Mannalát. Dáinn er nýlega á
sjúkrahúsi lijer í bænum Ketill Bergs-
son, bróðir Guðmundar Bergssonar
bóksala á ísafirði, myndarmaður á
besta aldri. — 6. þ. m. andaðist í
Þórisholti í Mýrdal Finnbogi Ein-
arsson áður hreppstjóri, '84 ára gam-
all, merkur maður.
Nýlega er látinn Kjartan Jónsson
bóndi á Efrihúsum í Önundarfirði,
faðir Jóns kennara og ritstjóra „Skin-
faxa“.
Póstþjófnaður. Seint í vetur hvarf
póstpoki á Stað i Hrútafirði. og átti
hann að fara til Sauðárkróks. í hon-
t'tn voru 6 peningabrjef með sanxtals
5324 kr. og 16 ábyrgðarbrjef. Nokkru
síðar fanst eitthvað af peningunum
í grend við Stað, en grunur fjell á
manninn, sem þá peninga þóttist
íinna, aö hann mundi valdur að þjófn-
aðinum, og hefur hann nú nýlega ját-
að þetta á sig- Fundist hafa 3170 kr.
af peningunum, eftir tilvísun hans, en
20 hundraðkrónaseðla hafði hann
brent, og sömuleiðis öll ábyrgðar-
brjefin. Rúml. 150 kr. er talið að hann
hafi eytt. Maðurinn heitir Jón Elíes-
arson og var vetrarmaður á Stað,
Norræna stúdentasambandið. Rvik-
urdeild þéss hafði skemtikvöld 10.
þ. m., finskt kvöld. Formaður deild-
arinnar, Steinþór Guðmundsson, setti.
samkomuna, en síðan var sunginn
þjóðsöngur Finna. Þá hjelt Jón biskup
Helgason fróðlegan og skemtilegan
fyrirlestur um brautryðjanda bók-
mentastarfsemi Finna á síðastl. öld,-
Elias Lönnroth, er safnaði hinu fræga
ljóðasafni þeirra, Kalevala, og setti
það saman í heild. Hann rakti og að-
alefni kvæðanna, og mun fyrirlestur-
inn að sjálfsögðu síðar birtast á
prenti. Frú Krabbe las upp kafla úr
Kalevala og H. Wiehe dócent söng
finsk l'ög. Einnig skemti flokkur
ungra manna með söng. En að lok-
um var dansað fram á nótt.
Landsþingskosningin í Færeyjum
fór svo, að Johannes Pattirsson
kongsbóndi í Kirkjubæ var kosinit
landsþingsmaður, og virtnúr Zahle-
stjórnin við það eitt atkvæði í þing-
inu.
„Alt éins og blómstrið einá“. Þctin
an sálmanna sálm íslendinga, eftir
Hallgrím Pjetursson, hefur Guntiav
Gunnarsson þýtt á dönsku, og er
þýðing hans í „Höjskolebladet“ frá
ágúst Í917, ágætlega gerð. — í sama
blaöi er mjög fallegt kvæði eftir G.
G., frumsamið á dönsku, og heitir
„Hösthymne",