Lögrétta - 13.08.1919, Síða 4
4
LÖGRJETTA
Farkennara vantar
næstkoraandi vetur í Reyðafjarðarhreppi. Umsækjendur gefi sig
fram við Hólmaprest fyrir 1. okt. næstkomandi tiltakandi kaup
og mentunarstig.
Stefán Björnsson.
Karl háleyski brutu, en um hann er
sagt, aS. „þar var hrært alt saman,
guH og silfur og rnold1'. Þetta er Frí-
manns háttur. Hann segir fjölda
margt, sem fæstir vilja fallast á, eöa
telja má vert þess ,aö prentaö væri,
en innan um þaö er áreiöanlega gull
og silfur, jafnvel gimsteinar. Og þetta
cr mest um vert.
.. Stundir á steinvöllum íslands heitir
fyrsta ritgeröin. Hún er um rann
sóknir höf. á steinum o. fl., sem Alþ
veitti honum 600 kr. til. Jeg legg ekki
mikið upp úr henni, en helming
styrksins gaf Fr. fátækum stúdent,
sem stundar rafmagnsfræöi í Gauta-
torg, „þvi pilturinn er fjeþurfi og
hefur sýnt einstakan áhuga og fram-
úrskarandi dugnaðt. Þaö heföi ein-
hver stungið fjenu í vasa sinn, ekkí
betur en verk Fr. var launað.
Heimsófriðurinn og framtíðin heit-
ir næsta ritgerðin, og er hún megin
kafli ritsins. Hinir íslensku ritstjór-
arnir hafa viðrað það fram af sjer, að
skrifa leiðbeinandi ritgerðir um þaö
mikla mál, þó það mætti telja sjálf-
sagða skyldu. Fr. B. A. brýtur hjer
ísinn, og hann er of kunnugur mála-
vöxtum og hefur við of marga menn
talað í öllum helstu löndunum, tií
þess að láta einhver'n símskeytaþvætt-
ing og fagurgala glepja sjer sýn. Er
hjer ekki kostur á að rekja frásögu
hans, sem kemur víða við, en drepa
má á fáein atriði.
Um upptök ófriðarins er sagt, að
þau nái langt aftur í tímann, 0g styrj-
öldin hafi hvorki verið að kenna eins
manns gerræði eða ofstopa nje yfir-
gangi einnar þjóðar, heldur illri fje-
lagsskipun með óbærilegum sköttum,
ágirnd og ofríki auðkýfinga ogæsing-
um byltingamanna, socialista o. fl.
Gullkongarnir lögðu þyngri gullviðj-
ar á þjóðirnar en herklæðin voru,
klerkana skorti hreinskilni og djörf-
ung til þess að efla sátt og samlyndi
milli allra kristinna þjóða, stjórnend-
ur vit og þrek til þess að semja góð
og varanleg lög, sem sæju öllum borg-
urum fyrir lífvænlegri og nytsarn-
legri atvinnu." Ofan á þetta bættist
svo allsherjar atkvæðarjettur með sí-
\axandi valdi fáfróðra og óhæfra
manna, sem ekki kunnu með völd að
fara. í öllum löndum hafði straum-
urinn um langan aldur borið þjóð-
irnar með ómótstæðilegu afli niður í
ófriðarfossinn. Flöf. rekur ýms til-
crög ófriðarins aftur að frakknesku
stjórnarbyltingunni miklu* og aftur
fyrir hana. „Það er óviturlegt og
rangt að kenna herbúnaði Þjóðverja
og þeirra ágengni um ófriðinn,“ seg-
ir höf. „Var hervald Breta, Frakka,
ítala og Japana ekki jafn hættulegt?
spyr hann. Hann sjer, að ræturnar
liggja dýpra. Að hans dómi voru
Þjóðverjar neyddir til þess að hefja
ófriðinn, og gerðu það ekki fyr en
í fulla hnefana.
Hvað sjálfan ófriðinn snertir, dá-
ist hann að hreysti og afreksverkum
Þjóðverja. Hann kallar þá, er þeir
að lokum stóðu einir uppi, Einherja.
Þá eru ekki dómar hans mildir um
allan fagurgala bandamanna um
verndun smáþjóðanna, alþjóðabanda-.
lagið, sjálfsákvörðunarrjett þjóð-
anna og fullkomið rjettlæti. Að þetta
var hræsnin ein sáu margir, en hve
margir sáu fyrir, að Wilson myndi
ganga á bak sinna orða? Það gerði
Fr. B. A. „Þá þekki jeg illa Ameriku
ef hann svíkur ekki alt þetta!“ sagði
hann, er hann las ræðu W. — Hann
minnir á, hversu bandamenn neyddu
smáþjóðirnar til þess að skifta við
sig eina, settu sjálfir verð á vörur
þeirra, og neyddu þær til að sigla
til sinna hafna þó Iífshætta væri.
Friðurinn var ekki kominn á, er
ritgerðin var skrifuð, en’höf. segir
þunglega hugur um hann. „Ættu
ekki hinir hámentuðu bandamenn að
blygðast sín fyrir, að niðast á hinni
hugrökkustu, duglegustu og ráðvönd-
* Um hana segir höf.: Hún flutt;
mannkyninu enga nýja kenningu eða
hugsjón, og hóf ekki nýtt tímabil í
sögu mannkynsins.
u.stu þjóð Evrópu.? .... Illá er þá
Germönum aftur farið, ef slik.ii
samningar tryggja mannkyninu leng-
ur frið, en á meðán gUllvaldarnir
stinga gulli stríðsþjóðanna í vas-
ann......
Afleiðingar ófriðarins telur höf.
meðal annars þær,_að hvíti kynbálk-
urinn hafi veiklast í bráð og starf
hans alt fyrir rjettlæti og velmegun
stöðvast. Standi nú meiri hætta en
] áður af gulu þjóðunum. Þá hafi og
auðkýfingar nað meiri yfirráðum en
nokkru sinni fyr, óhæfir menn úr
verkamannastjett náð völdum og ó-
stjórn komin víða í stað reglulegrar
stjórnar.
Hringsjá og ísland í stríði heita
síðustu ritgerðirnar. Þar er drepið á
hið nýja fullveldisskipulag landsins
cg horfur þess. Þykir honum, að vjer
stöndum nú að ýmsu leyti ver í við-
skiftum við aðrar þjóðir'en áður var.
Honum þykir hætta á, að almenni
kosningarjetturinn skapi hjer æsinga-
menn og óþarfa stjórnarlalla.sem eigi
i sífeldum róstum og sökkvi landinu
í óbotnandi skuldir, svo að auðkýf-
iagar eignist að lokum landið, þjóðin
verði þeirra ambátt og fullveldið
fjalaköttur, sem kremur hana ti'
dauðs.
Nokkrir ritdómar og smágreinar
reka lestina. Ekki þykir höf. þýðing
Guöm. heit. Guðmundssonar góð á
erindi Tennysons:
Knowledge comes but wisdom lingers
h.ke a traweller on the shore.
The individual wanes and withers
but the race is more and more.
G. G. þýddi:
Reynslan fæst en hygnin haltrar,
henni dvelst sem mjer á strönd.
Iiinstaklingsins ekki gætir,
út er heildin voldug þönd.
Fr. B. A þýðir:
Þekking vinst en viskan síður,
vegfarandi lifs á strönd.
Einstaklingúr eyðist, visnar,
en ættin vex og fyllir lönd.
Síðari þýðingin er auðsjeð miklu
betri.
Því miður gefa þessar linur mjög
cfullkomna hugmynd um heftið. Þar
er mannkynssaga, hagfræði, búfræði,
stjórnvísindi, verkfræði, heimspeki,
siðfræði, málfræði og skáldskap
blandað og elt, ofiö og fljettað sam-
an í furöanlega bendu, „allt hrært
saman, gull ok silfr og mold.“
, G. H.
Ný Ijóðabök.
Halla Eyjólfsdóttir: Ljóð-
mæli. Rvík 1919 .
Enn þá ný ljóðabók! Var eklci
uóg komið á markaðinn ? mun marg-
ur spyrja. Og svo segja sum blöð
m líka, og — eru þó full af alls
konar ljóðasmíði. Eða hvað segir
eftirspurnin ? — Ber mikið á þvi,
að þjóðin hætti að kaupa, og það
þrátt fyrir dýrtíðina og sihækkandi
verð á bókum? Eða er fólk að ganga
af göflunum ?
Fyrir 80 árum, á dögum Fjölnis-
nanna, varð mikið hringl í bók-
mentaheimi Iands vors, og þá spurði
gömul kona sjera Árna í Görðum,
hvort veröldin mundi ekki vera geng.
in af vitinu. Ónei, heillin mín, sagði
stiftsprófastur, jeg hugsa hún jakki
við þetta. Jeg var ekki fjarri því að
hugsa eins og sjera Árni, þótt stór-
um meira gangi nú á, en þá, þegar
jafnvel Breiðfjörð var bannsunginn.
Og þó er ekki ýkjalangt síðan, er
jeg skaut þeirri sneið að: Hannesi
Hafstein, að hann sæti á Horn-
ftröndúm og hlífðist við að yrkja.
og sagði:
Fyrir því víst að flestir vestra fást
við þorska,
komi þar út kvæða-vitska
kostar vættin tíu fiska.
Björn Gíslason
Mjóstræti 6
fjekk með m.s. Agathe 50 tegundir af Leður-koffortum og
Töskum við allra hæ’fi; verð frá 5 kr. til 900 kr. stykkið.
-* Heildsala ad eins.
Ekko.
Hið hesta og jafnframt hið ódýrasta Súpupulver, sem
hingað til hefur komið til landsins, hefur
Björn Gíslason
Mjóstræti 6.
ESinungfis heildsala.
Det kgfl. oktr. Söassurance-Gompag'ni
tekur að sjer allskonar sjóvá.tryg'erÍHg'ar-.
Umboðsmenn úti um land:
á Isafirði: Ólafur Davíðsson kaupmaður
á Sauðárkróki: Kristján Gíslason kanpmaður
á Akureyri: Pjetur Pjetursson kauprnaður
á Seyðisfirði: Jón bókhaldari Jónsson í Firði.
Aðalumboðsmaður fyrir Island
Eggert Claessen, yfírrj.malaflutningsmaður.
Kennarastaða
við barnaskólann í Borgarnesi,
er laus til umsóknar. Mjög æskilegt að kennarinn geti kent leikfimi og
söng. — Lysthafendur sendi umsóknir til skólanefndar fyrir i. okt. n. k.
Borgarnesi 30. júlí 1919.
Skólanefndin.
t skandinaw
(Skandinavian Extrans, Ltd.)
Amaliegade 4.
Telephone: Palæ 25 79. Telegraphic Adr.: Extransas, Copenhagen. ‘
Copenhagen, 22. Juli 1919.
Heiðruðu útgerðarmenn.
Yðu; tilkynnnist hjer með að þar sem við höfum opuað ný viðskifta-
sambönd við Eystrasaltshafnirnar á Þýskalandi, Póllandi, Finnlandi og
Rússlandi —- erum við kaupendur að öllum sjávarafurðum, er þjer kunnið
að hafa á boðstólum. Sjerstaklega leiðum vjer athygli yðar að því að
sjá varafurðir svo sem : %
Síld, Fisk, allar tegundir, bæði saltaðan og hertan, Lýsi, allar teg-
undir kaupum við hæsta verði bæði í fastan reikning og í umboðssölu.
Sendið oss tilboð. öllum tilboðum svarað greinilega.
jFrederikshavit,
er besti fjórg'engfismótorinn.
Hann brenhir steinolíu og er mjög
sparneytinn.
Vjelin er afar vönduð og ábyggi-
leg, gangviss og hæg meðferðar.
Nánari upplýsingar um vjelina og
hið afarlága verð gefa umboðs-
mennirnir
Þorsteinn Jónsson Karl Nikulásson
járnsm., Reykjavík,
íyrir vestur- og suðurland.
kon'úll, Akureyri,
fyrir norður- og austurland.
Nú kostar kvæðabók húsfreyj-
unnar á Laugabóli 8 krónur, og mun
það verð samsvara 8 fiska verði (á
tandsvísu) hnakkaflattra þorska,
undan jökli. Kemur þá alt heim við
minn slumpareikning í stökunni —
eí ljóðmælin í sjáflu sjer eru „vætt-
ar“ virði; og það eru þau að mínum
dómi.
Húsfreyjan á Lapgabóli gerir eng-
ar háar kröfur sem skáld, og gefur
út kvæði sín eftir ósk og beiðni vina
sinna, hún tekur og sjaldan til „háu
tónann^", en tekst þó heldur vel.
þegar hún freistar þess. En rímlistin
er henni meðfædd og svo handhæg
að hendingarnar koma ósjálfrátt
sem ýmsum hefur verið varhugaverð
gáfa.
Fegurstu kveðlingar hennar þykja
mjer æskuljóðin við Gilsfjörð, svo og
söngtextar hennar helgaðir tónsnill-
ingnum Sigv. Kaldalóns.
Saga frú Höllu er í fám orðum
þessi: Hún er af góðu fólki komin,
fluttist um tvítugt úr foreldrahúsum,
úr svanasöngnum við Gilsfjörð, sem
hún kveður um, að hinu auðuga
rausnarheimili, Laugabóli i ísafirði:
kom hún þangað með tvær hendur
tómar, en með góðar gáfur og göf-
uga sál; giftist hún þar brátt bænda-
skörungnum Þórði Jónssyni Hall-
dórssonar, sem var ekkjumaöur, og
áttu þau saman 14 mannvænleg
börn, 11 eru á lífi. Þórður þótti af-
bragðsmaður (eins og faðir hans,
móðir.og systkini). Hann varð ekki
langlífur; býr hún síðan með börn-
vm þeirra, og skortir eigi fje. Má
með sanni segja, að þó hún færði
ekki líkamlegan fjárafla í Laugabóls-
búið, færði hún að Djúpinu drjúgum
hmn andlega auðinn.
Ljóðmæli Höllu bjóða engan stór-
feldan eða frumlegan skáldskap ljóða.
markaði vorum, en hún kveður al-
þýðuljóðmæli fyrir alþýðu, þótt hún
hka bjóði hærri tóna. Hún kveður
eins og ósjálfrátt, oftast bæði ljett
og lipurt. Kveöur um fast og laust,
hátt og lágt,gott og ilt, kveður eins og
hfið leggur sig og hún sjer, heyrir,
finnur og skilur. Hún sýnir eins og
„filmur“ eða kvikmyndir bæjar- og
sveitabraginn með þess margvíslegii
mótsetningum og fátæklegu glað
værðum, eða vandræðum og von-
brigðum. Já, segir lesarinn, svona lif-
t:m við í sveitunum; gaman að sjá
þetta uppmálað svona hispurslaust.
Iin þó er hin hlið ljóðmælanna æðri
og enn þá sannari, það er hliðin, þar
sem konan, ntóðirin, og húsfreyjan
kveður um hið inra og hjartfólgn-
asta í heimilislífinu, einkum alt, sem
tekur til barnanna. Annars kveður
hún með djúpri samúð um hvert
kvikindi á eða nálægt heimilinu,
kennir eins í brjóst um krummann
og músina eins og lambið og kálfinn,
ex það er borið rjetti eða á eitthvað
bágt. Stökur um sampíning góðrar
h.úsmóður við svanga mús, geta gert
mig að betri manni, en miklu síður
sjúkar stunur til sjöstjörnunnar!
Margt af lausavtsum ljóðmæla
þessara er ljettmeti, eins og oft vill
verða. En úr því höfundurinn ljet
aðra ráða, og vill koma til dyra
eins og hún er klædd, sje jeg ekki,
að mikill skaði sje skeður, enda seg-
ir hún sjálf (i brjefi til mín) : „Mjer
hefur aldrei komið til hugar að
kveða fyrir alla þjóðina, alla mína
kveðlinga hef jeg ort af eigin hvöt,
sjálfri tnjer til skemtunar og vanda-
mönnum mínttm til gantans og gleði.“
í júní 1919.
Matth. Jochumsson.
Óðinn, XV. ár, 1.—3. tbl. I aprílbl.
er mynd af Ben. S. Þórarinssyni
kaupm. Grein um Borgarnes, ræða,
sjera Einars Friðgeirssonar á Borg á
50 ára afmæli kauptúnsins. Vísur eft-
tr Fnjósk. — í maíbl. eru myndir af
Halldóri Gunnlaugssyni stórkaupm. í
Khöfn og systur hans Jakobinu Mart-
hinsen, börnum Jakobs Gunnlaugs-
sot% stórkaupm., og dóu þau bæði úr
iuflúensuveikinni síðastl. haust.
Kvæði eftir Jak. Thor. og latneskt
kvæði eftir Pál Sveinsson adjunkl
til Jóns skjalavarðar Þorkelssonar á
scxtugsafmæli hans. Mynd af Gísla
Högnasyni frá Búðunt í Fáskrúðs
íirði. með grein eftir Ara Brynjólfs-
son á Þverhantri. Minningarkvæði um
dr. Björn Bjarnason frá Viðfirði.
Þórsdrápa og Þorbjargar, eftir
Fnjósk, til Th. Jensen famkv.stjoja
og frúar hans, er þau sendu Borgar-
nesskauptúni 10 þús. kr. gjöf á 50 ára
afmæli þess. Tvö kvæði eftir Halldór
Helgason. — I júníbl. er mynd af
síra Jónasi sagnaskáldi Jónassyni og
grein um hann. Tvö kvæði eftir Hali-
dór ITelgason. Vísttr eftir Fnjósk.
Mynd af Eyjólfi Þorkelssyni úrsmið.
Kvæði ’um íslenskuna, eftir síra Jón
á Stafafelli. Myndir af hjónunum í
Glæsibæ í Eyjafirði, Kristjáni og
Guðrúnu. Mynd af Guðm. Ásgeirs-
syni frá Fróðá, ungum manni, sem
fjell á vesturvígstöðvunum. Gæfu-
vegttrinn, Jtýðing eftir Ól. ísleifsson.
Tvö lög fylgja, annað eftir sjera
LTalldór Jónsson við þýðingu Þ. G. á
kvæðinu ísland, eftir W. S. C. Russel
liitt eftir Jón Friðfinnsson .við kvæði
eftir St. G. St.: „Gamla landið góðra
crfða.“ ’
Fjelagsprentsmiðjan.