Lögrétta


Lögrétta - 10.09.1919, Blaðsíða 3

Lögrétta - 10.09.1919, Blaðsíða 3
LÖGRJETTA 3 a-ttu að vera a sem flestum heimil- um, en til hvers væru húsmetSöl, ef fólk hefði engan leiSarvísir um not- kun þeirra? Menn hafa vonað og vonaS, a'ð landsstjórnin mundi hlut- ast til, að læknar vorir semdu nýja aiþýðlega lækningabók, en sú von hefur brugðist til þessa tíma. Það hefur reyndar kvisast, að hinn mikil- hæfi og að allra dómi ágæti rithöf- i.ndur og læknir hr. Steingrimur hieraðslæknir Matthíasson, sje þeg- ar byrjáður á þess konar bók. Hvort som nú að nokkur fótur er fyrir sögu þessari eða ekki, þá hugga menn sig -við þá veiku von, að þetta reynist satt aö vera, því maðurinn er þegar orö- inn þjóöfrægur fyrir áhuga sinn á Jví að fræða þjóð sína, og sýnist vera þar óþreytandi. Karl. Eftirmæli. Árni Ásgrímsson, hreppstjóri. Snemma i martsmánuöi í vetur sem leið andaðist norður í Skagafirði gamall merkismaöur, Árni Ásgríms- son, fyrrum bóndi á Kálfsstöðum í Hjaltadal og hreppstjóri i Hóla- hreppi, svo tugum ára skifti. Foreldr- ar hans voru Ásgrímur hreppstjóri Arnason prests á Tjörn og Þórey Þorleifsdóttir frá Pálmholti. Bjuggu þau hjón rausnarbúi i Neöra-Ási i ríjaltadal um og fyrir miðja siöustu öld og áttu mörg mannvænleg börn, sem nú efu öll dáin, nema þeir Magn- ús, er lengi bjó á Sljettubjarnarstöð- um i Kolbeinsdal og varð hreppstjóri ettir bróður sinn, og Þorleifur, fyrr- um bóndi á Nautabúi, Eru þeir báöi] a lífi vestan hafs nú. Dáin eru: Jón bóndi i Hrísey, andaðist siðastliðiö haust, Þorgrímur bóndi i Hofstaða- seli, Áslaug, kona Klemens Friðriks- sonar bónda á Vatnsleysu í Viðvíkur- sveit, — þeirra sonur Friðrik, póst- aigreiðslumaður í Reykjavík, —• Guð- íún, kona Jóns oddvita Sigurðssonar á Skúfsstöðum og Hólmfríður, kona Gísla Þorfinnssonar, 1)ónda‘á Hofi í Hjaltadal. — Árið 1868 kvæntist Árni Ásgrímsson Margrjetu Þor- iinnsdóttur (f. 1836, d. 1902), systui Gísla á Hofi og Jóhannesar bónda á Reykjum í Hjaltadal, og bjuggu þau allan sinn búskap á Kálfsstöðum. Born þeirra voru: Hólmfríður, kenslukona, er nú kennir íslensku og dönsku við háskóla í New York, Þór- ey, kenslukona, er andaðist á Hólum í Hjaltadal fyrir nokkrum árum, og Arni búfræðingur frá Hólum, er tók ■' ið jörðinni eftir fööur sinn, og býr síðan á Kálfsstöðum. Það eru ekki margar bæjarleiðir milli Kálfsstaða og Neðra-Áss, þar s"m jeg ólst upp, en ekki man jeg íil að jeg heyrði neitt annað en gott um Kálfsstaðahjónin, Árna og Mar- grjetu, á æskuárum mínum. Þótti rnjer Árni bera af öðrum bændum í dalnum í fyrirmannlegri framkomu, enda þótt mjer þætti þá vænna um mág hans, Jóhannes bónda á Reykj um. Jóhannes dó 1894, er jeg var ny- kominn í skóla, og kyntist jeg hon- um því lítið, en Árna kyntist jeg all- vel síöar, og varð því betur við hann, sem jeg kyntist honum meira. Það var ekki siður hans að hleypa mörg- um inn að kærustu nje sárustu hugs- ununum, en það sem jeg vissi um 1 ær, vakti hjá mjer innilega samúð og virðingu. Kálfsstaðaheimilið var orðlagt fyrir gestrisni og allan mynd- arskap, og var þar oft all-gestkvæmt, einkum eftir að börn þeirra voru npp komin. Sagði fólkið að margir efni- legir bændasynir úr nágrannasveit- unum hefðu þótst eiga brýnt erindi að Kálfsstöðum — en fariB þó erind- isleysu. Árni stundaði öll störf sín með mestu samviskusemi, bseði fyrir heimilið og sveitafjelagið, og varði meira fje til að menta dætur sínar en þá var títt um flesta bændur í ná- grenni hans, enda voru þær báðar prýðilega vel gefnar, og hún engu síður, sem heim fór aftur í sveitina til að kenna börnum, og kvaddi vini og vandamenn alt of fljótt, en hin, sem nú er háskólakennari í erlendri stórborg. Seinustu ár æfinnar>var Árni alveg búinn að missa heilsuna og dvaldi hann þá hjá syni sínum Og tengdadóttur á Kálfsstöðum, en elli- lasleikann og dótturmissirinn bar hann með trúartrausti og jafnaðar- geði, og því var það, að þótt jeg bæri 5 æsku töluverða virðingu fyrir myndarlega hreppstjóranum, þá virti jeg hann talsvert meira er jeg hafði átt tal við hann veikan í hinsta sinn hjer á jörðu fyrir nærri t'veimur ár- um. — Þeir eru orðnir fáir eftir, bændurh ir, er bjuggu í Hólahrepp, þegar jeg kvaddi dalinn minn í fyrsta sinn til skólaferðar. Það gengur svo. Menn koma og fara, æði fljótt, þegar litið cr til baka. Líðandi stund finst mörg- um fúlllöng, en liðin æfi ekki nema þverhönd. Mætti gamla sveitin mín jafnan eiga völ slíkra bænda sem Árni Ásgrímsson var. Sigurbjörn Á. Gíslason. Bjarni Björnsson frá Neðra-Vatnshorni. Það hefur dregist lengur en skyldi, að geta opinberiega andláts Bjarna sál. Björnssonar, sem andaðist að heimili sinu, Neðra-Vatnshorni í Kirkjuhvammssveit i Húnavatns- sýslu, xi. nóv. 1917, og stafar það þó ekki af þvi, að ómerkur rnaður þætti til moldar genginn, því óhætt niun' að fullyrða, að þótt hann hefði bvorki „veraldarauð nje völdin há“, þá hafði hann vinsældaauð rnikinn og naut trausts og virðingar allra, sem þektu hann, sem vel gefinn maður og drengur hinn besti. — Bjarni sál. var fæddur að Eyrurn i Eyrarsveit 28. október 1851. Faðir hans var Björn Konráðsson, Konráðssonar Gíslason- ar á Völlum. Var faðir Bjarna sál. þannig bróðursonur Gísla skálds Konráðssonar. Er það merkisætt mikil. Þannig var Bjarni sál. 13. mað- ur frá Birni Þorleifssyni riddara hins rika og 16. maður frá Birni Einars- syni Jórsalafara. Móðir Bjarna sál. var merkiskonan Sigurlaug Brynj- úlfsdóttir prests í Miklaholti i Snæ- fellsnessýslu, Bjarnasonar prests á Mælifelli; voru þau hjón Björn og Sigurlaug systkina börn. Þegar Bjarni sál. var 3 ára fór hann til Kára föðurbróður síns i Hraunfirði i Helgafellssveit og ólst upp hjá honum til tvítugsaldurs; fór hann þá suður og dvaldist þar lengst- um fram yfir þritugsaldur, stundaði ' par formensku á ýmsum stöðum, Þerney, Skildinganesi, Gufuskálum og viðar; þótti honum láta sá starfi mjög vel, aflamaður ágætur og gleði- maður hinn mesti og gat því alt aí valið um háseta. Ekki mun hann camt hafa hafa safnað fje þessi ár, því greiðvikinn og gjöfull var hann alla tíð, og gætti ekki ætíð hófs í þeim efnum, gaf meira en eínin leyfðu í raun og veru. — Vorið 1884 kom i:ann norður að Hvoli i Þverárhreppi til frænda síns, Skarphjeðins Einars- sonar. Giftist hann Ingibjörgu. dótt- ur hans, en misti hana frá 2 börn- um 1893; brá hann þá búi en byrjaði aftur bú á Neðra-Vatnshorni 1894; þar bjó hann til dauðadags. Á Neðra- Vatnshorni giftist hann aftur frænku sinni, Soffíu, dóttur Jóhanns Þor- kelssonar og Þorbjargar yfirsetu- konu Steingrímsdóttur, Pálssonar prests á Undirfelli, Bjarnasonar prests á Mælifelli. Syrgir hún nú mann sinn ásamt 4 börnum þeirra. Bjarni sál. var meðalmaður á vöxt og fríður sýnum. Viðkynningarmaður var hann hinn besti, greindur vel og skemtinn, var því ekki furða, þó oft væri gestkvæmt hjá honum, enda er mjer það þhrsónulega kunnugt, að svo var það á Vatnshorni, að oft mátti heita húsfyllir og var öllum „heimill matur og hey/‘ eins og sagt var um forföður hans, Bjarna ridd- pra Þorleifsson, og einkar var þeim hjónum báðum lagið, með höfðings- lund sinni, að leyna því, þó af litlu væri að taka. — Hagyrðingur var Bjarni sál. góður, eins og foréldrar hans, orkti oft smellnar tækifæris- og hestavísur, því hann hafði mjög gaman af hestum, og átti jafnan eitt- hvað, sem fallega bar fótinn, og eftir hann er einhver besta heimslista vís- an, sem jeg hef heyrt: „Hesti góðum hleypa’ um grund, hlunna renna svini, syngja ljóð um silkihrund og súpa á brennivini.“ Þarna er áreiðanlega tekið fram það sem honum var rnestur ánægjuauki, meðan lífsgleðin var ólömuð. — Síð- ustu árin, eftir að veikindin fóru að þjá hann, hneigðist hugur hans meir ?ð alvarlegum efnum, og rjett fyrir andlátið orkti hann þessa vísu: „Lækka boðar lífs á dröfn; líkn hvar veitist þjáðum blasir við mjer heilög höfn, hliðið opnast bráðum.“ Hann er nú kominn inn fyrir hliðið, inn i ókunnu æfintýralöndin, i hóp farinna vina, manna og málleysingja, en við kunningjar hans og vinir, sem eftir erum hjernamegin, geymum 11 inningu hans i þakklátum huga og h.lökkum til að hitta hann bak við kafið, og heyra eþna eða tvær skrítn- ar sögur, eins og í gamla daga. Eggert Levy. Þorsteinn Einarsson írá Berjanesi í Vestur-Landeyjum. Fæddur 24. des. 1888. Dáinn 2. des. 1918. Kveðja vina og vandamanna. Að hugum hljóður kveðinn er harmur við þitt lát, og blessuð bjatta gleðin í beiskan snúin grát: Þú hneigst svo ern og ungur með æskuþrótt í val. En hvergi harmur þungur vor hjörtu buga skal. Því guð þeim lifið gefur í geislum kærleikans, er skýrast skrifað hefur á skjöld sinn nafnið hans og starfað ævi alla í anda’ og krafti þeim, unz klukkur helgar kalla að kvöldi barnið heim. Og verk þín vanst þú dyggur og vinsæld mikla hlaust, — þú varst svo trúr og tryggur, að trausts þú alt af nautst. Þin sál var prjál-laus prýði í prúðra drengja sveit, er furðar sist, þótt sviði, að sumri fljótt hjer sleit. Við ljúfu jólaljósin hjer lífið fyrst þú sást. Og upp þú ranst sem rósin við röðulblik af ást. Þú áttir útsýn djarfa og andans sumarþrá: Til æðri’ og æðri starfa þú yngist guði hjá. Vjer öll, sem heitt þjer unnum, og aldrei gleymist þú, þjer kærar þakkir kunnurn og kveðjum þig i trú: á ást, er göfgar andann og eilíft gildi bér, — á himin fyrir handan, þar hittast munum vjer! Guðm. Guðmundsson. Frjettir. Alþýðleg veðurfræði heitir bók, sem nú er að koma út, eftir Sigurð I’órólfsson skólastj. á Hvítárbakka. Sögur Rannveigar, eftir Einar H. Kvaran, eru nú fullprentaðar og koma innan skams í bókaverslanir. Flugæfingar í Rvík. 3. þ. m. lyfti flugvjelin sjer í fyrsta sinn frá flug- vellinum hjer sunnan við bæinn. Það var um kveldið og veður var kyrt og fagurt, og fjöldi manna var saman kominn inni á vellinum til að horfa a. Fyrst var vjelin sýnd inni í hús- inu, sem reist hefur verið þarna kanda henni, en síðan rann hún fram á völlinn, og þar stje upp í hana for- maður Flugfjelagsins, Garðar Gísla- son stórkaupmaður, og ávarpaði á- horfendur með ræðu, tók fram, Fve mikils mætti vænta af fluglistinni til bóta á samgöngum, er fram liðu stundir, og lýsti gleði sinni yfir því, að útlit væri fyrir, að flugferðir gætu áður langt liði komist á hjer á landi. Var ræðunni svarað með miklu lófa- klappi og húrraópum. En síðan stje Faber flugmaður upp í vjelina og rann hún á stað eftir flugvellinum og sveif svo að lítilli stundu liðinni hátt í lofti yfir höfðurn manna. Hr. Faber er þaulæfður flugmaður' og hefur lengi verið i flugsveit enska hersins á vesturvigstöðvunum. Næsta dag fór vjelin upp með far- þeg-a, einn eftir annan, og svo hex- ur gengið síðan á hverjum degi. Hafa nú þegar margir farið í loft upp með henni, bæði karlar og kon- ur, og þykir mikið til koma. Vjelin er alt af öðru hvoru á sveimi yfir l>ænum og heyrist frá henni sterk suða, eins og á ferðinni væri risavax- Radiumstofnunin Lækningastofan er i Póthússtræti 7 (hús Nathan Olsen). Viðtalst:mi daglega kl. 2-3. Gunnlaugur Claessen. Dansk-íslenska fjelagið. Frá 1. sept. þ. á. er skrifstofa fjelagsins í Kaupmannahöfn: Nyhavn 22 3 (Charlottenborgarmegin). Opin daglega ix—1. Sími: Byen 2793. . ) in hunangsfluga. 25 kr. kostar að ! fara upp í henni og er hún'þá í lofti 5'—10 mínútur. Með suma hefur hún þó verið miklu lengur, alt að hálf-' j tíma. Minningarsjóður Eggerts ólafsson- ar. Þegar Guðm. G. Bárðarson, nátt- | útufræðingur, í Bæ í Hrútafirði, var hjer á ferð í sumar, afhenti hann gialdkera sjóðsins kr. 44.50, er hann hafði safnað i nágrenninu. — Þeir sem komið hafa á Náttúrugripasafn- ið, hafa eflaust tekið eftir bauknum, j cr tekur á móti gjöfum til sjóðsins. Baukurinn var tæmdur í fyrsta sinni 10. dag júlímánaðar í sumar, og voru þá í honum 17 kr. og 13 aurar. Síldveiðamar. Þær hafa verið daufar á Siglufirði og Eyjafirði í ágústmánuði, en betri á Vestfjörðum. Þar hefur aflast í sumar meira af siid en nokkru sinni áður. Það er sagt, að komnar hafi verið á land 16. ág. á ísafirði 34 þús. tunnur, i Álfta- firði 30 þús., á Hesteyri 6 þús. og á Önundarfirði 4 þús. tunnur, eða sam- tals 74 þús. tunnur. Þó ekki hafi afl- ast tiltölulega eins vel norðan lands, i) á þó telja, að-síldaraflinn sje yfir- leitt góður á þessu sumri. Á 12. þús. tn. hafa veiðst frá stöð Elíasar Stefánssonar í Djúpsvík við Reykjafjörð. Blaðið „Fram“ á Siglufirði segir þ. 23. ,f. m., að síldveiðin sje þá orðin samtals á öllum veiðistöðvum 210 þús. tunnur: Á Sigulfirði 77 þús., á Vestfjörðum 68 þús., á Ströndum 25 þús., á Eyjafirði 40 þús. tn. — Fyrir utan landhelgi höfðu Norð- menn þá veitt og flutt til Noregs 45 þús. tn. Síldveiði í hringnætur mun nú lokið að þessu sinni og eru sum síldveiðiskipin þegar komin, en önnur á leiðinni eða að eins ófarin oð norðan. Spánska veikin. „Morgunblaðið“ gat þess fyrir nokkru, að stjörnuspek- ingar hefðu spáð því í fyrra, að „pest- in“ mundi koma, en menn hefðu ekki trúað þeim, og þó hefði spádómurinn reynst sannur. Blaðið getur þess, að nú hafi s’-jörnuspekingar aftur spáð því, að ný „pest“ kæmi upp í haust, og bendir a að betra sje, að menn sjeu varir um sig. Jeg hef átt kost á, að kynna mjei athuganir þær, sem færustu stjörnu- spekingar Englendinga hafa gert í þessu efni, og segja þeir meðal ann- ars, að í haust muni dánartalan vaxa mjög í Englandi meðal allra stjetta, en þó einkum meðaj æðri stjettanna, og muni það ná til opinberra starfs- manna í ýmsum greinum, og þing- manna, og ef til vill muni konungs • húsið ekki verða varhluta af þessum áhrifum. Yfir höfuð muni heilbrigði þjóðarinnar verða um eitt skeið á veikum fæti, og farsóttir komi upp, glæpir vaxi og morð, og sjálfsmorð eigi sjer jafnvel stað. Jeg hef athugað plánetu-afstöður þær, sem spádómar þessir eru bygðir á með tilliti til hnattstöðu Reýkjavík- ur, og fundið, að þær eru nokkru vægari í áhrifum sínum hjer en í I'nglandi, en þó er vissara fyrir alla þá, sem hjer eiga að sjá um sóttvarn- Þ, að hafa betri gætur á, en þeÍT gerðu í fyrra, er „pestin“ geysaði, — og „ekki veldur sá er varar“. Jón Árnason. Alþingi. Þingmannafrumvörp. 70. Frv. um landhelgisvörn. Frá sjávarútvegssamvinnunefnd. — 1. gr.: Landsstjómin skal kaupa eða láta byggja, svo fljótt sem verða má, skip til landhelgisvarna með ströndum ís. londs, og heimilast henni að taka lán td þess. -— 2. gr.: Kostnaður við út- gerð strandvarnarskipsins greiðist úr ríkissjóði. — 3. gr.: Lög þessi öðlast gildi þegar i stað. ' í greinargerð segir m. a.: Eins og kunnugt er, er í sambandslögunum svo um samið, að Danir, í notum rjett- inda þeirra, er þeir njóta hjer, haldi uppi þeim landhelgisvörnum, sem þeir hingað til hafa gert, og ekki frekari. En hitt er jafnkunnugt, að sú vörn er allsendis ónóg og að miklu leyti sama sem engin vörn, þar sem hana brestur einatt þar og þá, er mest þarf við. Er þetta í sjálfu sjer eðlilegt, því að ekki er unt, að eitt skip geti leyst þetta starf af hendi, og ekki má held. ur vænta, að útlendingar sjái með sömu augum hag vorn, sem vjer mundum sjálfir gera, og mætti þó, ef til vill, vera nokkur bót í þessari vörn um sinn, til viðbótar, ef vjer kæmum sjálfir upp vörn jafnhliða, sem um munaði. Að vísu bryddi á þeirri skoð- un í nefndinni, að trygg verði vörnln aldrei, fyr en vjer að öllu leyti +ök- um hana sjálfir í vora hönd, en til þíss mundi engan veginn nægja.það eina skip, sem í frumvarpinu er farið fram á að kaupa. En að öllu athuguðu áræddi nefndin þó ekki að telja fært nje framkvæmanlegt að sinni, að fara lcngra en ráðgert er í þessu frum- \arpi. Að minsta kosti muni eigi meiru verða í framkvæmd komið áður en alþingi kemur saman afturoggefst kostur á að auka, ef fært þykir, það, sem hjer er til stofnað. Nefndin hefur sflað sjer þeirra upplýsinga, er hún ótti kost á, um rekstrarkostnað vænt- anlegs varnarskips, og er sú áætlun á þessa leið: Skipstjóri 10000 kr., 2 stýrimenn 8000, 1. vjelmeistari 6000, 2. vjel- meistarÍ45oo,2 kyndarar 6000, 1. mat- sveinn 3600, 2. matvseinn 1200, 5 há- setar 15000, kol 96000, olía, tvistur 2000, vátrygging 16000, viðhald 8000, \istir 20000, fyrning 60000 kr. Sam- tals 256300 kr. 71. Um lestagjald af skipum. Frá fjárhagsnefnd. — 1. gr. Af hverþt skipi, sem er 12 smálestir brúttó eða stærra og skrásett hjer á landi, skal greiða í ríkissjóð 2 kr. gjald á ári af brúttó-smálest. Hálf smálest eða meira telst heil, en minna broti skal slept. — 2. gr.: Lögreglustjórar inn heimta gjald þetta á manntalsþing um, i fyrsta skifti 1920, og skal það greiðast í því lögsagnarumdæmi, þar sem skip er skrásett. Um greiðslu gjaldsins í rikissjóð fer sem um önu- ur manntalsbókargjöld. — 3. gr.: Gjald þetta hefur lögtaksrjett, og er skip að veði fyrir því i 2 ár frá gjald- daga. — 4. gr.: Lausaf járskattur af skipum, sem eru 12 smálestir brúttó fcða stærri, fellur burt. í greinargerð segir: Lausafjár- skattur af skipum er mjög lágur, og skattur þessi hvílir alls eigi á öðrum “skipum en fiskiskipum. Nú er svo komið, að vjer erum teknir að eignast vöruflutningaskip og einnig stærri fiskiskip en gengið var út frá, er nú- gildandi lög um lausafjártíund voru sett. Sennilegt er, að skattur þessi muni gefa ríkissjóði um 40000 kr. á ári, því að sanni mun næst, að skipa- stóll landsins nemi nú um 20000 smá- lestum, er frá eru talin skip og bátar undir 12 smálestum. 72. Um breyting á lögum nr. 22. 14. des. 1877, um húsaskatt. Frá fjár- hagsnefnd. — 1. gr.: í stað orðanna , \x/2 króna“ í 1. gf. laga nr. 22, 14. des. 1877, um húsaskatt, komi: 3 krónur. — 2. gr.: Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1920, og gilda til ársloka 1921. I greinargerð segir: Flestir skattar ríkissjóðs hafa verið hækkaðir síðan hin nýafstaðna heimsstyrjöld hófst.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.