Lögrétta - 03.03.1920, Síða 3
LÖGRJETTA
3
Frjettir.
Þungar horfur eru nú sagSar víS-
ast um land. JarSlaust er hjer um bil
alstaSar og víSa í austursveitunum
hjer hefur fje veriS á gjöf frá því
um miSjan nóvember og er þvi hey-
fengur margra bænda á þrotum. Úr
SkagafirSi er líka nýlega skrifaS, aS
um langt skeiS hafi ekki veriS þar
eins snjóþungt og nú.
Símslit hafa orSiS mjög víSa í of-
viSrunum, sem gengiS hafa undan-
fariS. Hafa því engin erlend skeyti
komiS síSustu daga.
Tólf vjelbáta vantaSi í einu frá
SandgerSi einn óveSursdaginn. Var
gufuskip þegar gert út til aS leita
þeirra og eru þeir nú allir komnir
fram, en viS illan leik. Einn hafSi t.
d. hrakiS upp undir Mýrar.
í Vestmannaeyjum hefur veriS
mikill vöruskortur undanfariS, því
eyjarnar hafa veriS einangraSar
vegna inflúensuhættunnar. En nú
l’.efur stjórnarráSiS sent Islands Falk
ti! Eyjanna meS matvöru, eldsneyti,
iyf o. fl. sem vantaSi þar.
Landsbankinn. í endurskoSunar-
starfiS þar hefur þingiS kosiS GuS-
jón GuSlaugsson alþm., en stjórnin
Sig Eggerz fyrv. ráSherra.
Eldsneyti í Rvík er nú enskt kokes.
Fjekk stjórnin skipsfarm af því frá
Lundúnum um miSjan síSastl. mán-
uS og þykja þau gott eldsneyti. VerS
á tonni er 350 kr.
Einar Jochumsson er nýlega kom-
inn hingaS til bæjarins, eftir vetrar-
setu norSur í Geiradal, fjörugur og'
áhugasamur eins og áSur, þótt nú
sje nær áttræSur.
Ungar vonir heitir ljóSasafn, sem
uýkomiS er út, eftir Steindór Sig-
urSsson, prentara, prentaS í litlu
upplagi, meS tölusettum eintökum,
eins og Söngvar förumannsins í
fyrra, eftir Stefán frá Hvítadal.
■ 'i: - -yjrr
Sveinbjörn Jónsson cand. juris og
bæjarfógetafulltrúi sigldi meS ís-
landi síSast og ætlar aS dvelja ytra
um hríS til aS kynna sjer ýms lög-
fræSileg mál.
Borbjerg þingmaSur og jafnaSar-
mannaforingi, er nú orSinn formaS-
ur hins danska helmings dansk-ís-
lensku ráSgjafanefndarinnar.
Norrænir sagnfræðingar ætla að
l'.alda mót í Kristjaniu 7. —10. júlí
X- k. til aS vekja aftur og glæSa
samvinnu milli vísindamanna NorS-
urlanda á þessu sviSi.
Fastanefndir Alþingis voru nú
þannig skipaSar:
Fjárhagsnefnd Nd.: Magn. GuSm.,
Þorl. GuSm., Þór. Jónss., IJák. Krist.,
Jón A. Jónsson. *— Fjárhagsnefnd
Ed.: Björn Kristj., Guðj. GuSl.,
GuSm. Ólafss.
Fjárveitinganefnd Nd.: Magnús
Pjet., Þorl. Jónss., Pjetur Jónss.,
Bjarni Jónss., Ól. Proppé, Stef. Stef.,
Gunnar Sig. — Fjárveitingan. Ed.:
Jóh. Jóh., Hj. Snorras., Einar Árna.,
Karl Einarss., Sig. Kvaran.
Samgöngumálanefnd Nd.: Gísli
Sveinss., Þór. Jónss., Þorst. M. Jónss.,
Pjetur Þórb., Einar Þorgilss., Björn
Hallss., Sv. Ólafss. — Samgöngu-
málanefnd Ed.: GuSj. GuSl., Hjörtur
Sn., Sigurj. Friðj., Halld. Steinss.,
Guðm. Guöfinnss.
Landbúnaðarnefnd Nd.: Magnús
GuSni., Jón Sig., Hák. Krist., Stef.
Stef., Magn. Pjet. — Landbúnaðar-
nefnd Ed.: Sigurj. Friðj., Hj. Sn.,
GuíSm. ólafss.
Sjávarútvegsnefnd Nd.: Ein. Þor-
grlss., Þorl. Guðm., Pjetur Ottesen,
Magn. Kristj., Ól. Proppé. — Sjávar-
útvegsn. Ed.: Bj. Kristj., S. Kvaran,
Karl Einarss.
Mentamálanefnd Nd.: Gísli Sv.,
Eir. Einarss., Pjetur Þórð., Sveinn
Björnss. — Mentamálanefnd Ed.:
Einar Árna., Guðm. Guðf., Sig.
Kvaran.
Allsherjarnefnd Nd.: Sv. Björnss.,
Þorst. M. Jónss., Pjetur Ott., Björn
Hallss., Sig. Stefánss. — Allsherjar-
liefnd Ed.: Jóh. Jóh., Halld. Steinss.,
Sigurj. Friðjónss.
Dansk-íslenska fjelagið hefur á-
kveðið að veita tveimur kennurum
styrk til íslandsferðar.
Páll ísólfsson hefur nýlega haldið
hljómleika í Khöfn, og hlotið mikið
lof fyrir.
Háskólinn. Opinberír fyrirlestrar
eru nú aftur að byrja í háskólanum
hjá prófessorum heimspekisdeildar-
innar. Próf. Á. H. Bjarnason flytur
f j'rirlestra um höfuðrit erlendra
skáldmenta á miövikudögum kl. 6 til
7 og byrjar á Ibsen. Próf. Guðm.
Finnbogason talar um áhrif veðráttu
og loftslags á sálarlífiö á þriöjud.
kl. 6—7 og próf. Sig. Nordal um
sagnaritun Snorra Sturlusonar á
l’óstudögum kl. 7—8- Ætti fólk að
hagnýta sjer þessa fyrirlestra miklu
meira en gert er. Því þarna eru sam-
ankomnir ýmsir bestu fyrirlesarar
landsins og aðgangurinn ókeypis og
öllum heimill. Er ilt til þess að vita,
ef þessi fræðslustarfsemi háskólans
þarf að fara forgörðum e‘Sa leggjast
niður,. að eins fyrir andlegt áhuga-
leysi þeirra, sem hún er ætluð. Mætti
sjerstaklega benda kennurum á, að
hvetja nemendur sína til að sækja
fyrirlestrana. En auk þess gætu
mentamenn yfirleitt sótt þá sjer til
ánægju og þaö þess utan orðið upp-
örfun fjelöguni þeirra innan skól-
ans, ]iví tæpast getur það orðið til
aö auka áhuga þeirra á starfi há-
skólans, aS þurfa stöðugt að tala þar
yfir tómum bekkjum. AnnaS er það,
sem einnig mætti minna á í þessu
sambandi og það er það, að þess er
varla að vænta, að öðrum þjóðum
þyki fýsilegt að skipa hingað sendi-
kennara — eins og í ráði hefur ver-
ið —r ef háskólinn á framvegis að
búa við sarna virðingar- og áhuga-
leysið og hingað til.
Ef til vill mætti reyna að bæta dá-
lítið úr þessu með breyttu skipulagi á
fyrirlestrahöldunum, fyrst um sinn
að minsta kosti. Gætu t. d. prófessor-
arnir kornið á með sjer samvinnu
þannig, að að eins einn eða tveir
þeirra flyttu fyrirlestra í einu sama
missirið. Gæti þá unnist tvent, að
betri undirbúningur ynnist til fyrir-
lestranna og að áheyrendurnir þyrftu
ekki að dreifast eins. Þá mættu pró-
fessorarnir kanske líka vera að því,
að sýna hver öðrum þá kurteisi að
hlusta einstöku sinnutn hver á ann-
ars fyrirlestra. Þeir þyrftu þá ekki
að konra í annað skiftið, ef þeim
leiddist í ]iað fyrsta. En þá er hætt
við, að fleiri þykist „löglega forfall-
aðir.“
Mætti jafnframt þessu reyna að
flytja fyrirlestrastaðinn burt úr þing-
húsinu, því húsnæði háskólans þar
er að ýmsu óhentugt til slíkra nota
og ilt að tala í því, auk þess senr það
yrði of lítið, ef nokkur aðsókn yrði.
En kenslumálastjórnin hefur umráð
yfir fleiri stöðum, sem hún gæti lán-
að. — Svo ættu fleiri en prófessorar
heimspekisdeildarinnar að geta tekið
einhvern þátt i slíku fyrirlestrastarfi
og yrði það þá að því skapi fjöl-
breyttara. Því sennilega eru ekki all-
ir kennarar hinna deildanna svo
búndnir af daglegri kenslu, að þeir
gætu ekki lagt einhvern skerf til.
En eitthvað í þessa átt þarf að
gera og á áð gera, ef háskólinn á að
vera lifandi og starfandi stofnun í
menningu þjóðarinnar, og eitthvað
annað og meira en innantóm embætt-.
ismanna verksmiðja sem myglar nið«
ur í andleysi og þröngsýni.
Háskólinn á að gera einhverja
slíka tilraun til að sýna, að hann vilji
sraifa, og fólk á að nota sjer hana
til að sýna, að það vilji láta hann
starfa og skilji starf hans á þessu
sviði.
Alþingi.
Því var slitið rnánud. i. þ. m. En
störfum var lokið á laugard.kvöld 28.
f. m. og nóttina eftir fóru marg:r
þingmenn hjeðan heimleiðis með „ís-
landi.“
Lagagerðin varð rneiri en við var
búist, á svo stuttu þingi. Það af-
greiddi 19 lög og 12 þingsályktanir
Þetta eru
Lögin.
1. Um br. á 1. nr. 64, 14. nóv. 1917»
um laun hreppstjóra og aukatekjur
m. m. (Stj.frv.). — Hreppstjórar
skulu njóta sams konar launauppbót-
ar sein enrbættis og sýslunarmenn
landsins samkv. 33. gr. launalaganna.
2. Um lögg. verslunarstaða í Val-
þjófsdal í Mosvallahr. við Önundar-
fjörð, (flm. Ól. Proppé), og á Lamb-
eyri við Tálknafjörð, (flm. Hákon
Krist.).
3. Um eftirlit með útlendingum,
(stj.frv.). 1. gr. rjett er dómsmála-
raðherra að mæla svo fyrir i reglu-
gerð, að eigi skuli mönnum heimilt
að stíga hjet í land af skipum, nerna
þeir hafi vegabrjef eða önnur skil-
ríki, er sýni á fullnægjandi hátt,
hverjir þeir eru.
4. unr br. á 1. nr. 28. 3. nóv. 1915
um kosningar til Alþingis, (stj.frv.).
Breytingarnar leiða af stjórnarskrár-
breytingunni.
5. Um gjöld til holræsa og gang-
stjetta í kaupstöðum, öðrum en Rvík
og Akureyri, (flm. Jón A. Jónsson).
— 1. gr. Þar sem lagt hefur verið
holræsi í götu á kostnað bæjarsjóðs
er hverjum húseiganda skylt að gera
á sinn kostnað ræsi, er flytji alt skólp
frá húsi hans út í göturæsið o. s. frv.
6. Um viðauka við 1. nr. 12, 12.
ág. 1918, um stimpilgjald, (stj.frv.).
— 1. gr. Hver, sem fær vörur frá
útlöndum, er skyldur til að sýna hlut-
aðeigandi lögreglustjóra eða um-
boðsmanni hans, eins fljótt og verða
r;á, reikn. yfir innkaupsverð þeirra,
kominna um borð í skip, er flytja á
vöruna hingað til lands. Þetta nær
til allra vara, sem hingað eru send-
ar, að undanteknum íslenskum afurð-
um, sem endursendar eru, og venju-
legum farangri ferðamanna. Hina
sýndu reikninga skal lögreglustjóri
eða umboðsmaður hans stimpla þann-
ig, að reikningar uin alls konar leik-
föng og alls konar muni, sem ein-
göngu eru ætlaðir til skrauts, úr
hvaða efni sem eru, stimplast með
15% af verðinu, en reikningar um all-
ar aðrar vörur með 1%. Verði ágrein-
ingur um flokkunina, fellir stjórnar-
ráðið unr það fullnaðarúrskurð.
7. Um br. á I. nr. 18, 20. okt. 1905,
um lögreglusamþyktir utan kaup-
staða, (flm. Einar Þorg.). — í stað
orðanna í t. málsgr. „enda búi sýslu-
niaður þar“, komi: enda búi sýslu-
rnaður, umboðsmaður sýslumanns
rða hreppstjóri þar. í ástæðum segir:
í lögum nr. 18, 20. okt. 1905, er svo
ákveðið, að verslunarstaðir utan
ir með því rnóti að sýslumaður búi í
verslunarstaðnum. Nú eru sumir
verslunarstaðir á landinu svo settir,
og það jafnvel verslunarstaðir, sem
bafa marga íbúa, svo sem t. d. Kefla-
víkurverslunarstaður í Gullbringu-
sýslu, að þeir hafa ekki sýslumenn-
ina búsetta hjá sjer, en er þó bráð
nauðsynlegt að geta gert lögreglu-
samþykt hjá sjer, sökum mannfjölda
og þar af leiðandi nauðsynja á því,
að geta .haldið uppi góðri reglu.
8. Um kenslu í mótorvjelfræði,
(flm. Magn. Krist.). — 1. gr. Við
vjelstjóraskólann í Rvík skal stofna
sjerstaka deild, þar sem kend er mó-
torvjelfræði, munnleg og verkleg.
Stjórnarráðið ræður kennara eftir
þörfurn. Laun þeirra greiðast úr rík-
issjóði.
9. Um br. á tilsk. 10. júlí 1795 og
tilsk. 20. jan. 1797 um sáttanefndir,
(flm. Sv. Björnsson og Gunn. Sig.).
— 38. gr. Síðasta málsgr. í tilskipun
10. júlí 1795 og 25. gr. síðasta máls-
gr. í tilskipun 20 . jan. 1797 orðist
svo : Þó er óheimilt að málaflutnings-
menn sjeu umboðsmenn aðilja við
sáttaumleitanir, nema umbjóðandi
þeirra sje búsettur utan þeirrar þing-
hár, þar sem sáttaleitun fer fram.
10. Um bann gegn botnvörpuveið-
tiin, (frá samvinnunefnd sjávarút-
vegsnefnda). — 1. gr. í landhelgi við
ísland skulu bannaðar vera fiskveið-
ar með botnvörpum. — 2. gr’. Nú er
botnvörpuskip í landhelgi, og skulu
þá veiðarfæri öll vera í búlka innan-
borðs. — 3. gr. Brot gegn 1. gr. varða
sektum, 10000—20000 kr.; skulu þá
og öll veiðarfæri, þar með taldir
dragstrengir, svo og allur afli innan-
borðs, upptæk. Brot gegn 2. gr. varða
sektum, 2000—-10000 kr. Um upptekt
afla og veiðarfæra fer sem um brot
gegn 1. gr„ er um ítrekað brot er að
ræða. Leggja má löghald á skipið og
selja það, að undangengnu fjárnámi,
til lúkningar sektum samkv. þessari
grein og kostnaði. — 4. gr. Hver sá
maður, er leiðbeinir skipi við botn-
vörpuveiðar í landhelgi við ísland,
eða liðsinnir því við slíkar veiðar,
eða hjálpar hinum brotlegu til að
komast undan hegningu fyrir þær,
skal sæta sektum, 500—5000 kr.
Sörnu hegningu skal hver sá sæta,
sem er i botnvörpuskipi eða á bát við
skipshliðina, þegar það er að veiðum
í landhelgi, nema hann geti þá gert
þá grein fyrir dvöl sinni þar, að lílc-
legt þyki, að hann eigi enga hlut- .
deild í hinum ólöglega veiðiskap
þess. Ákvæði greinar þessarar gilda
ekki um þá menn, sem eru lögskráðir
skipverjar á botnvörpuskipinu. — 5.
gr. Skipstjóri, er gerir sig sekan í
ítrekuðu broti gegn x. gr„ skal, auk
refsingar þeirrar, sem um getur í 3.
gr„ sæta fangelsi, ekki vægara en 2
mánaða einföldu fangelsi. Auk þess
má og endrarnær, þegar miklar sak-
ir eru, láta skipstjóra sæta fangelsi
fyrir brot gegn 1. gr„ auk sektar-
hegningar þeirrar, sem ákveðin er í
3. gr. — 6. gr. Sektarfje eftir lögum
þessurn, svo og andvirði fyrir upp-
tækan afla og veiðarfæri, rennur í
Landhelgissjóð Islands. Um sölu
upptæks afla og veiðarfæra skal jafn-
an leita samþykkis stjórnarráðsins.
Aldrei má þó selja hinum seka upp-
tæk veiðarfæri og afla, nema því að
eins, að knýjandi nauðsyn sje fyrir
bendi. — 7. gr. Mál þau, er rísa af
brotum gegn lögum þessum, skal reka
sem opinber lögreglumál. — 8. gr.
Með lögum þessum eru úr gildi num-
in lög nr. 8, 6. apríl 1898, lög nr. 18,
8. júlí 1902, lög nr, 27, 25. sept. 1902,
lög nr. 56, 30. júlí 1909, svo og 2.
gr. laga nr. 55, 10. nóv. 1913, um
stofnun Landhelgissjóðs Islands, um
það, er tekur íil sektarfjár og and-
\irðist upptækra veiðarværa og afla
eftir lögum þessum. .— í greinargerð
segir m. a.: Þetta frumvarp er sam-
andregin núgildandi lög að þessu
rnáli lútandi, með þeim einum breyt-
ingurn aðallega, að sektarákvæðin
eru harðari. Þetta ef jafnframt gert
cítir áskorunum kjósenda á þing-
málafundum í ýmsum kjördæmum
úti um land, og falla þær saman við
skoðun nefndarinnar á þessu rnáli.
H. Um breyting á póstlögum, nr.
43, 16. nóv. 1907, (frá samgöngu-
málanefnd). — 1; gr. Framan við 9,
gr. laga nr. 43, 16. nóv. 1907, komi:
Hvert skip, sem er íslensk eign, eða
skip, sem menn, búsettir hjer á landi,
hafa á leigu, er skyldugt til, þegar
það er afgreitt frá höfn í útlöndum
til íslands, að láta pósthús þar á
staðnum vita um för sína, og taka til
flutnings, ef þess er óskað, alls konar
brjefasendingar, sem taldar eru und-
ii staflið a í 2. gr. póstlaganna. Út-
gerðarmenn og skipstjóri bera á-
byrgð á að þessu sje hlýtt.
Greinargerð fyrir frv. þessu felst
i brjefi aðalpóstmeistara til stjórn-
arráðsins frá 16. febr. þ. á„ og hefur
póststjórnin sámið frumvarpið, en
stjórnarráðið sei\t það samgöngu-
• málanefndum Alþingis.
12. Um manntal, (frá allsherjar-
nefnd). — 1. gr. Ár þau, er ártalið
endar á O, skal taka alment manntal
um alt land. Skal það fara frám 1.
desember eða annan dag, sem kon-
ungur ákveður, og skal því lokið
þann sama dag, nema óviðráðanlegar
hindranir komi í veg fyrir það. Skulu
allir taldir þar sem þeir höfðu nátt-
stað aðfaranótt manntalsdagsins,
hvort sem þeir eiga þar heima eða
ekki. Þó skal þeirra, sem að heiman
eru aðfaranótt manntalsdagsins, einn-
ig getið á heimili þeirra, með at-
hugasemd um, að þeir sjeu fjarver-
andi. Hagstofa íslands gerir fyrir-
myndir að eyðublööum undir mann-j
talsskrárnar.
13. Um heiroild fyrir landsstjórn-
ina til að takmarka eða banna inn-
fiutning á óþörfum varningi, (frá
fjárhagsnefnd). — 1. gr. Lands-
stjórninni er heimilt með reglugérð
eða reglugerðum að takmarka eða
banna- innflutning á alls konar óþörf-
ura varningi, og ákveður hún, hvaöa
vörur skuli teljast til slíks varnings.
—: 2. gr. Brot gegn reglugerð eða
íeglugerðum, sem settar eru samkv.
1. gr„ varða sektum, alt að 100.000
kr. Mál út af slíkum brotum skulu
rekin senr almenn lögreglumál. — 3.
gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
14. Um ráðstafanir á gulforða ís-
landsbanka og um heimild fyrir rík-
isstjórnina til að banna útflutning á
-gulli, (stj.frv.). — Samhlj. bráða-
birgðalögum, sem áður hefur verið
sagt frá, að. viðbættri sv.hlj. grein:
íslandsbanki er skyldur til að greiða
ókeypis og eftir þörfum í Reykjavík,
samkvæmt brjefi eða símskeyti, fjár-
hæðir, sem Landsbankinn borgar inn
í reikning íslandsbanka við viðskifta-
banka hans í Kaupmannahöfn, og
flytja á sama hátt og ókeypis það
fje, sem Landsbankinn þarf að flytja
frá Reykjavík til Kaupmannahafnar.
Nú getur Islandsbanki ekki yfirfært
fje fyrir Landsbankann eins og að
framan er tilskilið, og feþur þá ó-
innleysanleiki seðla íslandbanka úr
gildi gagnvart Landsbankanum.
15. Um að leggja jarðirnar Kjarna
og Hamra í Hrafnagilshreppi undir
logsagnarumdæmi og bæjarfjelag
A,kureyrar, (flm. Einar Árnason).
Þessar jarðir eru lagðar til Akureyr-
ar frá 6. júní 1920, ef sýslunefnd
Eyjafjarðar felst á það.
16. Um breyting á 1. nr. 88, 14.
nóv. 1917, um notkun bifreiða, (flm.
Guðj. Guðl.). — 1. málsgrein 5.
greinar i lögum nr. 88, I4. nóv.
1917, orðist svo: Enginn má stýra
bHreið, nema hann sje fullra 20 ára
að aldri og hafi ökuskírteini frá lög-
reglustjóra, sem heimilar honum að
stýra bifreið. Þó getur stjórnarráðið
veitt undanþágu frá aldurstakmark-
inu, alt niður í 18 ára aldur, þegar svo
stendur á, að bifreiðarstjórinn vill að
eins stýra sinni eigin bifreið, foreldr-
is eða fósturforeldris, og notar hana
a!ls ekki til almennra fólksflutninga.
17. Um heimild handa ríkisstjórn-
inni til að banna flutning til landsins
á varningi, sem stjórnin telur stafa
sýkngarhættu af. —: Samhlj. bráða-
b.l„ sem áður hafa verið birt.
18. Stjórnarskrá konungsríkisins
Islands.
19. Um þingmannakosning í Rvík.
1. gr. Alþingismenn Reykjavíkur
skulu vera 4. Þegar sú skipun er á
komin samkvæmt 12. gr„ skulu sæti
eiga í neðri deild Alþingis 28 þing-
menn. — 2. gr. Alþingiskosningar í
Reykjavík skulu vera hlutbundnar.
Um kosningar þessar gilda hinar
sömu reglur sem um aðrar kjör-
dæmakosningar, með þeim breyting-
um, sem leiða af því, að kosningarn-
ai í Reykjavík eru hlutbundnar.
Þingsályktanir.
1. (Flm. Sig Stef.). Neðri deild Al-
þingis ályktar að skora á stjórnina
að láta sömu reglur gilda um útborg-
un á launum presta og annara em-
bættismanna ríkisins.
2. (Flm. Guðm. Guðf.). Efri deild
AJþingis ályktar að skora á stjórn-
ina að athuga, um leið og endurskoð-
un vegal. frá 1907 fer fram, samkv. á-
lyktun siðasta Alþingis, hvort ekki
sje 'rjettast að telja flutningabrautina
frá Þjórsá austur yfir Ytri-Rangá í
Rangárvallasýslu í sjerstökum flokki
flutningabrauta, með sjerstökum á-
kvæðum um viðhaldsskyldu. — Þessi
þingsályktunartillaga er flutt sem
viðbót við þingsál.till. frá síðasta Al-
þingi um endurskoðun vegalaganna
ftá 1907.
3. (Flm. Magn. Pjet. og Ii. Krist.).
Neðri deild Alþingis ályktar að skora
á landsstjórnina að láta rannsaka svo
fljótt sem unt er innsiglingu á Bjarn-
arfjörð hinn syðra í Strandasýslu og
hafnarstað við Kaldrananes. Enn-
fremur að láta rannsaka siglingaleið-
ina frá Flatey á Breiðafirði til Haga-
bótar á Barðaströnd.
4. (Flm. G. Sv„ M. Pjet., H. Steins.
og Sv. Bj.) Sameinað Alþingi skorar
alvarlega á landsstj. að hlutast til
um, að sem öflúgast verði haldið uppi
vörnum gegn því, að spánska inflú-
ensu-sýkin berist til landsins eða
breiðist út innan lands, og spara til
þess hvorki fje nje fyrirhöfn.
5. (Flm. J. Sig. og Magn. Guðm.).
Neðjd deild Alþingis ályktar að skora
á landsstjórnina að hlutast til um, að
rannsakað verði vandlega áj næsta
suiíiri brúarstæði á Hjeraðsvatnaós
vestari.
6. (Frá sjávarútvegsnefnd). Al-
þingi ályktar að skora á ríkisstjórn-
ina að annast um, að á þessu ári
verði að minsta kosti tvö skip að
staðaldri við landhedgisgætslu hjer
við land og að stjórninni heimilist
jafnframt fje til þeirra útgjalda, sem
af jiessu leiðir. Ennfremur heimilast
stjórninni nauðsynlegt fje til frekari
undirbúnings og framkvæmda i land-
helgisgætslumálinu.
7- (Flm. K. Ein.). Alþingi ályktar
að heimila landsstjórninni að veita
Björgunarfjelagi Vestmannaeyja alt
að 50 þúsund króna viðbótarstyrk til
að kaupa björgunarbát, í viðbót við
styrk þann, er heimilað er að veita í
þingsályktunartillögu 11. júní 1918
i þessu skyni. Styrkveitingin er
sömu skilyrðum bundin og styrkveit-
ingin í nefndri tillögu.
8. (Flm. B. J. frá Vogi og Ól. P.).
Neðri deild Alþingis ályktar að skora
á stjórnina að hafa svo strangt, eftir-
lit með vöruvöndun í landinu sem lög