Lögrétta


Lögrétta - 04.05.1920, Qupperneq 2

Lögrétta - 04.05.1920, Qupperneq 2
3 LÖGRJITT A Nýjar bækur verða mjer sendar jaínskjótt og út koma, og forSi af bók- um ávalt fyrirligg-jandi á staðnum,. Bóksalar fá bækur til útsölu eftir vild. Fjölbreyttasta úrval á landinu af alls konar merkisbókum. Bókamenn gerið svo vel og lítið inn! r r LAUGAVEG 4. — REYKJAVIK. nndlrritaös hefur jafnan fyrirliggjandi og selur með lægsta vertsi: Smíðajárn alls konar, þar á meifal sænskt skeifujárn, sívalt járn, ferstrent járn, sleðadrög, bátadrög o. fl. Vatnsveitupípur, og alt þeim tillieyrandi. Hentugustu dælur útveg- aðar með mjög stuttum fyrirvara. Þakjárn og Cement og flest annað til húsabygginga og mannvirkja. Jón Þorláksson Bankastræti n. Sími 103. 9 ISllÍ fyrir hina nafnkendu QYLDENDALS BÓSAVERZLDN, í KAUFMANNAHÖFN LÖGRJETTA kemur út á hverjum mið- vikudegi, og auk þess aukablöð við og við, T erð 10 kr. árg. á Islandi, erlendis 12 kr. 30 au. Gjalddagi I. júlí. Úti um heim. þjóðareign, en framkvæmdastjórn- irnar bíða þess, hvaS þingiö leggi til málanna. Frjettir. Tiðin. Fram til þessa noröanátt og kuldar. í Norðurlandi og á Austur- landi hafa verið snjóveöur. Haröindi óvenjuleg um þetta leyti og horfir viöa til -vandræöa ef þessu fer fram. Bílslys. Nýlega varö maöur undir bíl í Keflavik og beið bana af. Það var merkur maöur aldraður, Einar Jónsson, áöur hreppstjóri i Keflavík. Borgarfjarðarlæknishjerað. Þar er Pjetur Thoroddsen settur læknir. Hann hefur í vetur, sem leið, gegnt læknisstörfum hjer í bænum fyrir föður sinn, Þórð Thoroddsen, sem dvalið hefur erlendis, en P. Th. er njeraðslæknir í Norðfirði og hefur látið annan gegna embættinu fyrir s;g í vetur. Húsbruni. Morguninn 1. þ. mán. brann fiskþrukunarhús Th. Th. hjer inni á Kirkjusandi, iftamt vjelaskúr. Eldsins varð vart kl. 5 og voru slökkvitæki komin þangað fyrir kl. 6, bæði hjeðan úr bænum og frá Fálk- anum, sem lá á höfninni. Næstu hús- um var bjargað, en þurkhúsið brann til grunna. Sárast var, að annar mað- urinn, sem vjelanna gætti, varð inni í brunanum og fórst, unglingsmaður, Ólafur Jónsson að nafni. Skipaferðir. Gullfoss hjelt heiml. írá New-York 1. þ. m. — ísland kom frá Englandi 1. þ. m. — Borg fór til Vestfjarða 30. f. m., en þaðan út. — Suðurland Tór til Austfjarða 29. f. m. Bogi Th. Melsted sagnfræðingur í Khöfn á sextugsafmæli í dag. Dánarfregn. Dáinn er á Seyðisfirði 30. f. m. Gísli Jónsson gullsmiður, merkur, háaldraður maður, sem lengi 1 efur búið þar, faðir Þorsteins stöðv- arstjóra á Seyðisfirði. 10 ára meistara-afmæli í málara- iðn átti frk. Ásta Árnadóttir 2. þ. m. Hún er enn sögð.eini íslendingurinn, sem tekið hefur iðnmeistarapróf, en það gerði hún í Þýskalandi, og er sagt ýmislegt frá veru hennar þar í grein, sem fylgir myndum af henni í aprílblaði „Óðins“ 1909. Um fatnað heitir fróðlegur bæk- iingur, sem nýkomin er út, eftir Guð - mund Hannesson prófessor, sjer- prentun úr Skírni. Tveir menn druknuðu nýlega við lendinguna í Vík í Mýrdal, Kári Ja- þobsson og Sæm. Jakobsson, báðir ungir menn. Fleiri voru á bátnum, en björguðust. David östlund er nú kominn yest- ur um haf frá Khöfn. Lætur hann vel yfir Skandinavíuleiðangri sínum í brjefi, sem hann skrifar riststj. Lögr. um leið og hann leggur á stað vest- ur. Mun nánar verða sagt fiá starfi ‘nans í næsta tbl., eftir sænskum blöð- um. Sálarrannsóknarfjel. hjer á von á frægum enskum niiðli, Mr. Peters, hingað í sumar. Hefur hann g-etið þess í viðtali við blaðamann, segir í íímfregn frá Khönf, að hann fari hingað í sumar að undirlagi fjelags- ins. Frú Oddný Sun Yat Sen, frá Breiðabólstað á Álftanesi, kom hing- að með íslandi um daginn með son sinn, tveggja ára gamlan, í kynnis- íör til foreldra sinna. Maður hennar, sonur hins nafnkunna kínverska Hjórnmálamanns, er við háskólanám í Edinborg og kvað koma hjngað síðar í sumar. Borgarstjórakosningin á að fara fara fram næstk. laugard. — Lögr. er þeirrar skoðunar, að K. Zimsen cigi að endurkjósast. Hann hefur nú ollum öðrum nánari kynni af málefn- um bæjarins, sem hlýtur að vera þungt á metunum, og hann hefur verkfræðingsmentun, sem hlýtur að -vera nauðsynlegri en aðrar menta- greinar manni í þessari stöðu. Hann er áhugasamur dugnaðarmaður og lætur sjer ant um hvert starf, sem hef jeg undirritaður nú fengið. hann tekur að sjer. Hann virðist yf- ir höfuð vera heppilega valinn maður i borgarstjórastöðuna. Og því skyldu menn þá vera að skifta um, úr því hann gefur koSt á sjer áfram, Marg- ir geta að sjálfsögðu með rökum bent á eitt og annað, sem þeir eru óánægð- ir með í stjórn bæjarmálanna og þeim l'inst þurfa að lagast. En svo mun það verða, hver sem við tæki. Bæjar- menn mega eíckl buast vilf að Ta nokkuril mann í þá stöðu, sem laus verði við aðfinningar og umkvart- anir. Peningaviðskiftin. Svohlj. reglu- gerð um peningaviðskifti við útlönd, er birt í Lögbbl. í gær: 1. gr.: Við- skiftanefnd, sem skipuð var 11. mars þ. á., skal hafa eftirlit og íhlutunar- riett um peningaviðskifti hjerlendra banka, fjelaga og einstalcra manna vjð útlönd. — 2. gr.: Hjerlendum bönkum er skylt áð leggja undir úr- skurð Viðskiftanefndar allar greiðsl- ur til útlanda, svo og láta henni í tje skýrslur þær og upplýsingar um pen- ingaviðskifti við útlönd, sem hún kann að óska. — 3. gr.: Einstökum mönnum og fjelögum, sem selja vörur <il útlanda, er skylt að láta Viðskifta- nefnd í tje, er hún æskir þess, skýrsl - rr um, hvernig andvirði varanna er ráðstafað. — 4. gr.: Stofnunum, fje- lögum og einstökum mönnum, sem ætla að senda peninga til útlanda I póstávísunum, brjefum eða bögglum, er skylt að láta hlutaðeigandi póst- afgreiðslum í tje þær upplýsingar um peningsendingar, sem Viðskiftanefnd kann að óska. Viðskiftanefnd getur, ef hún telur brýna nauðsyn til, stöðv- að slíkar peningasendingar eða frest- að þeim. — 5. gr.: Skipverjum á skipum, sem hjeðan fara til útlanda, er bannað að taka peninga til flutn- ings til útlanda og farþegum með skipum, sem hjeðan fara til útlanda, er bannað að hafa meðferðis meiri peninga, en nauðsynlegt er til ferða- kostnaðar, nema samþykki Viðskifta- uefnadr komi til. — 6. gr.: Nú vill einhver ekki hlíta úrskurði Viðskifta- r.efndar, og g'etur hann þá skotið honum tik stjórnarráðsins til fullnað- arúrskurðar. —- 7. gr.: Brot gegn á- kvæðum reglugerðar þessarar varða sektum alt að 100000 kr., enda varði 'orotið ekki þyngri refsingu að lög- um. Til brota gegn reglugerð þess- ari telst það að gefa Viðskiftanefnd vangar skýrslur eða láta henni í £]* íangar upplýsingar. — 8. gr.: Með mál út af brotum gegn reglugerð ];essari skal farið sem almenn lög- íeglumál. — 9. %r.: Reglugerð þessi öðlast gildi þegar í stað. Óðinn. Útgáfa síðustu tbl. 15. árg. hefur dregist vegna anna í prent- Gerlasamsetningurinn „Ratin“, sem undir vísindalegu eftirliti er búinn til á Bakteriologisk Laboratorium „Rat- in“, Kaupmannahöfn, veldur smitandi sjúkdómi hjá rottum og músum og drepur rottur á 1—3 vikum, mýs á 2—9 dögum. Ummæli um árangur, ásamt verð- iista og nánari upplýsingum, fást með því að snúa sjer til RATINS SALGSKONTOR. Ny Östergade 2. —- Köbenhavn K. smiðjunni. En nú eru þau komin fyr- ir nokkru, og er þetta innihaklið: Mynd af Jakobi sál. Jónssyni á Varmalæk, með grein eftir Kristófer Þorsteinsson á Kroppi. Kvæði um Ragnarök. Dagsetur, leikrit eftir Pál Steingrímsson. Mynd af Jóhanni sál. Sigurjónssyni skáldi með þýðing á grein, sem danskur rithöfundur skrif- aði um hann látinn. Þrjú kvæði eftir sigurj. Friðjónsson. Myndir af Hóse- asi Björnssyni og Guðbjörgu Gísla- dóttur, áður á Höskuldsstöðum í Breiðdal, síðar í Ameríku. Kvæði og vísur eftir Fnjósk. Mynd af Jóni H. Þorbergssyni á Bessastöðum. Kvæði eitir Halgrím Jónsson. Mynd af Tóm- asi Tómassyni frá Hjöllum í ögur- sveit, með grein eftir sjera Sig. Ste- fánsson; Þýðing eftir Vald. Briem liískup á latínuljóðum Páls kennara Sveinssonar um Kötlugosið 1918. Gamalt brjef frá Benedikt skáldi Sveinbjarnarsyni Gröndal, til Þor- steins læknis í Vestmannaeyjum. Draumasögur eftir frú Önnu Thor- lacius og Ólaf Thorlaljus. Tvö kvæði rftir sjera Jakob sál. Guðmundsson á Sauðafelli. — Tvö sönglög eftir Halldór Jónsson, við Haustvísur eftir Þ. G., og visur eftir Kolb. Högnason. 1. hefti af 16. árg. Óðins er nú í prenturi. Fjelagsprentsmiðjan. kosningarrjettar. Lítill, sjerstakur kvennahópur vakti athygli hennar. Það voru varla 20 konur, sem allar höfðu spjald á bakinu með þessari áletran: „Við erum frá íslandi. Þar höfum við fengið þessi rjettindi fyrir löngu. Hvað gefur hin stóra New York og hin frjálsa Ameríka dætr- um sínum?“ — „Jeg varð hrifin aí stolti,“ sagði frú Böggild. Mig lang- aöi til að kalla upp og segja: Það eru m í n i r landar. Ekki datt mjer þá í hug, að jeg mundi hitta þá konu úti á íslandi, sem skapa]5 hefði að mestu þessa breytingu.“ — Hún lauk svo máli sínu með því að óska Kvennablaðinu og ritstjóra þess, að lifa önnur 25 ára til, og þá skyldu \ þær allar mætast hjer aftur. Bað svo konur að taka undir þessa ósk með þreföldu húrra, sem var gert sam- stundis. Skömmu áður en staðið var upp frá borðum, stóð frú Helga Torfason upp og afhenti heiðursgestinum þús- nnd krónur frá Kvenrjettindafjelag- inu, með kveðju þess og þökk fyrir störf hennar í þágu kvenna. Ætti hún að afhenda þessa gjöf til Kvenna- blaðsins, til að græða eitthvað af þeim sárum, sem það mundi hafa fengið á síðustu árum. Frú B. kvað vandsamt fyrir sig •ið þakka Kvenrjettindafjelaginu bæði þessa og aðra góðvild þess til sín. Hún og K. R. F. í. hefði nú lifað og unnið saman siðan það var stofnað, 1907. Samkomulagið hefði jafnan verið gott, þótt farið hefði stundum fyrir þeirii eins og góðum, heiðarleg- um hjónum, sem verður á að sinnast stundum. Hún kvað sín störf í þágu kvenna hafa jafnan verið studd af K. R. F. í. sem bakhjarli. þess vegna hefði getað orðið meira gagn að þeim. Gallinn væri sá einn, að aðrar konur, einkum ungu konurnar, styddu það of lítið. Reykjavíkur-konur yrðu þó að muna, að „Adel forpligter", og skyldur fylgja því, að vera kaupstað- arbúar. Af þeim verður að heimta meiri framsýni, þroska og framtaks- seriii en landsbúunum upp til dala og úti á annnesjunum. Höfustaðarkon- urnar eiga að hafa forustuna í fram- íaramálum kvenna. Frá þeim á að koma sú næma heildartilfinning, sem tengir íslenskar konur saman. Og þ.að er einmitt þessi tilfinning, sem K.venrjettindafjelagið og Kvenna- blaðið hefur viljað skapa. Síðan bað hún alla að óska K. R. F. í. langra lífdaga og góðrar framtíðar. — Eftir að staðið var upp frá borðum, skemtu konur sjer með ýmsu móti, og voru allar i besta skapi. — Komu þeir bræður, Þórarinn og Eggert Guð- mundssynir og skemtu með fiðlusnili og organslætti, sem konurnar tóku undir með söng, sem fór ágætlega, þóTt aldrei hefði verið saman æfðar. Var svo samkomunni lokið kl. 2 um nóttina. Eftirfarandi visu fjekk frú Bríet í heillaskeyti frá kunningjakonu sinni: „Fyrir störf um fjórðung aldar færðu nú í dag kveðju og þakkir þúsundfaldar, þær verða hvergi eftirtaldar, meðan hvítu fóstran faldar og fyllir vor um sveitir kaldar sól pg sumarlag.“ A góuþræl 1920. Eftir Jón ólafsson á Bústöðum. Kufli hvítum klædd er jörðin. Kosti fáa góa bar. Harðindanna hörð er gjörðin. Hvergi þorra betri var. Skýlislausir fuglar fundu fáir strá eitt sín í nef; hungurmorða’ á hverri stundu. Himna faðir björg þeim gef! Vonin er, að vorið bæti veðuráttu fari úr; raunatíð þá rými sæti, renni’ upp sól með hlýrri skúr. Von með trausti hugann’hressi hverjum þejm, sem bágast á. Kraftur drottins bjargir blessi. Böl og kvíði hverfur þá. Síðustu frjettir. Ráðstefna bandamanna í San Remo á ítalíu var lokið 26. f. m. Næst koma fulltrúar þeirra saman í Spa í Belgíu, og á þá ráðstefnu eiga nú fvr^t að koma til viðtals við þá full- trúar frá Þjóðverjum, Múller ríkis- kanslari o. fl. Það er líka sagt, að Frakkar og Þjóðverjar ætli að halda ráðstefnu til þess að tala um fjármál og viðskifti sín á milli. Hafði stjórn Þýskalands stungið upp á þessu, en stjórn Frakka samþykt. Það virtist sem samkoman í Remo ætláði að ■cerða Frökkum mótsnúin, en nú segir í símfregnum, að frönsku blöð- iu láti vel yfir henni. Hún rak eftir l>ví, að Þjóðverjar fullnægðu ákvæð- um friðarskilmálanna um afvopnun hersins, eins og Frakkar kröfðust, en ádráttur var gefinn þar um lán ti! Þióðverja, bæði á peningum og hrá- vörum, til þess að rjetta við iðnað þeirra. Frakkar halda fyrst um sinn Frankfurt a. M. Simfregn frá I. þ. m. segir, að Pól- verjar hafi ráðist á her bolsjevíka og tekið marga fanga. Með þeim hafi Ukrainebúar verið í árásinni, þ. e. mótflokksmenn stjórnarinnar þar, og tií standi árás á höfuðborgina Kiew, eða Kænugarða. Ensk blöð skori á Pólverja, að láta fordæmi Denikins sjer að varnaði verða. í Asserbedjan- ríki í Kákasus er mynduð ráðstjórn og ríkið komið í samband við bolsje- víkaríkið rússneska, eins og Ukraine áður. En meðan Denikin rjeði í Suð- ur-Rússlandi, hafði hann gert samn- mga við Asserbedjanríki og viðurkení sjálfstæði þess, en hafði frjálsar leið- ir til aðdrátta um járnbrautir lands- ins og hafnir. Höfuðborg þessa rík- is er Baku, við Kaspihaf, þar sem hinar heimskunnu olíulindir eru. Jafnaðarmannadagurinn, 1. maí, nefur, að því er símfregnir segja, ver- ið kyrlátur nema í París. Þar höfðu orðið blóðugar skærur milli fólksins og lögregluliðsins og allsherjarverk- fa.ll. Þó varð járnbrautaferðum hald- ið uppi að mestu leyti. í Buda-Pest Foru samkomur banna^ar þennan dag. Fregn frá 29. f. m. segir, að full- trúaþing skotskra iðnaðarmanna krefjst sjálfstjórnar fyrir Skotland. — Það er nú ákveðið, að Álandseyjar fái sjálfstjórn, lög um það samþykt af finska þinginu. — Krónprinsessa Svía andaðist 1. þ. m. — Þingkosn- ■ngar eiga að fara fram í Þýskalandl í júní. Fregn frá 1. þ. m. segir um norð- ’irför Amundsens, að hann hafi setst ið ífyrrahaust á norðurströnd Asíu og búist við að koma til Alaska 5 ágústlok, en halda heimleiðis um Bandaríkin. Frá Danmöiku, Danir taka við' Norður-Sljesvík á morgun og er þeim það að sjálfsögðu mikill fagnaðardagur, þótt ýmsir sjeu ekki sem best ánægðir með úrslitin í heild. Á morgun á nýkosna þingið að koma saman, og tekur þá bráðlega ný stjórn við völdum. Konungur hef- ur kvatt saman foringja stjórnmála- flokkanna og þeir orðið ásáttir um, að vinstrimenn myndi stjórnina ein- ir sjer. Nú er búist við, að Neer- gaard verði falið að mynda stjórnina, en ekki I. C. Christensen, eins og áð- ur var sagt. Þrír flokkar komu fram við kosn- íngarnar, auk þeirra fimm, sem áður hafa verið nefndir, svonefndur Mið- yílokkur (Centrum) með prófesso" Birk, áður hægrimann, sem foringja, Oháðir jafnaðarmenn og Vinstri jafnaðarmenn, en enginn þessara ílokka reyndist svo sterkur nokkur- • staðar, að hann kæmi fulltrúa í gegn. Segir í skýrslu frá danska sendiherr- anum, að Birks-flokkurinn hafi feng- 9°55 atkv., Óháðir jafn.m. 7255 og V.-jafn. 3807 atkv. Þar segir, að Zahleflokkurinn hafi tapað 16 þing- sætum, vinstrimenn unnið 4, jafnað- armenn 3, íhaldsmenn 6 og atvinnu- rekendafl. 3. Lag er enn ekki komið á verkfalls- riálin í Khöfn. ölgerðarmenn hafa nú krafist að Carlsberg-ölgerðin og Samein. ölgerðirnar verði gerðar að

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.