Lögrétta


Lögrétta - 04.08.1920, Blaðsíða 1

Lögrétta - 04.08.1920, Blaðsíða 1
Lítgeiandi og ritstjóri: ÞORST. GÍSLASON. Þingholtsstrseti 17. Talsími 178. Afgreíðslu- og innheimtum.: ÞÓR. B. ÞORLÁKSSÖN. Bankastraeti 11. Talsími 359. Nr. 30. Reykjavík 4. ágúst 1920. Sv. Jónsson & Go. Kirkjustræti 8 B. Reykjavík. hafa venjulega fyrirlíggjandi miklar birg'öir af fallegu og endingargóöu veggifóöri, margs konar pappír og pappa — á þil, loft og gólf — og gipsuöum loftlistum og loftrósum. Talsími 420. Símnefni: Sveinco. Úti um heim. Georg Brandes hefur nýiéga skrif- aö grein um rússnesku ntálin, sem bjer veröur sagt nokkuö frá, þar sem gera má ráö fyrir, aö ýmsir hafi gam- an að því aö sjá, hvaö hann segir um þau. Ef menn spyrja sjálfa sig aö því nú, þegar þaö alvarlega sem skeöur, t r huliö þoku þvættingsins og reyk iýginnar, hvaö af þvi mýmarga, sem nú fyllir heila blaöalesendanna, hafi teriö ekki einasta merkilegt, heldur örlagaþrungiö fyrir ástand nútíöar og framtíöar, hlýtur svariö aö veröa a þessa leiö. Þaö er "áhrifarík staðreynd, aö all- ir l>eir herir, sem bandamenn hafa gert út, án þess aö slíta friðinum forntlega, og eggjaö á hendur rúss- neska lýöveldinu í þeirri von, aö fá stjórn þess steypt — þaö er stað- reynd, segir hann, að þeir hafa allir veriö gersigraöir. Þaö er einnig stað- reynd, aö meðan stjórnmálamenn Englands og Frakklands vekja að eins undrun með gorgeir, sem er jafn m.ikill og ódugnaöur þeirra og skyss- ur, og meðan Þýskaland og Austur- ríki neyöast til aö fá stjórnina í hend- ur óreyndum mönnum, sem eiga aö etja við örvæntingarþrungnar þjóö- íjelagsaðstæður — meöan þetta ger- ist á Vesturlöndum, er Rússlandi stjórnað borgaralega af ótviræöum afreksmanni, Lenin, sem bæöi kann aö fitja upp á málunum og fylgja þeim eftir, og sem blööin hafa þaö helst út á aö setja, að hann heiti rjettu nafni Uljanof, og hernaðarlega er því stjórnaö af öðru afreksmenni, Trotzky, sem þegar rússneski herinn var tvístraöur, dauðvona og þreyttur eftir fyrri ófriö, skapaði eins og úr engu hvern herinn öðrunt sigursælari, þó heimsblööin hafi þaö helst á móti þonum, að hann heiti að sögn í raun og veru Braunstein. —----- Eftir alt þetta er bandamönnum því nauðugur einn kostur, aö fitja upp á einhverju nýju. Enn sem kom- ið er, geta bandamenn hrósaö þeirn sigri, að vegna hins sifelda hafnbanns geysar hungurdauöi í Rússlandi eins og í Austurírki og hver landfarsóttin annari hættulegri stráfellir fólkið meðan flutningateppan gerir ófrjó- samar hinar miklu auösuppsprettur hins víðlenda ríkis. Akuryrkjn og iðnaö hefur brostið mannafla af því aö ungir menn hafa þurft að vera viö hin geisistóru hersvæði. Neyðin breiöist út, samfara sigurvissunni og hatrinu til hinnar undirferlislegu af- stööu óvinastjórna Rússlands. Aldrei hafa þessar stjórnir horfst í augu viö Rúss^i. Altaf hafa þær att öörum á vaöið, tjekkneskum liðhlaupum, aft- trhaldsseggjum frá keisaratímunum cða þjóöernisuppblásntwn Pólverjum. Og hverju friðarboði Rússa hefur veriö vísað á bug af þessum samein- röa ihaldsflokki Evrópu, sent opin- berlega er kallað, aö berjist fyrir sjálfsákvöröunarrjetti þjóöanna. í þessurn afturkipp eða íhaldi er enginn rauður þráður, riema hræösl- an viö þaö, aö rússnesku byltingahug- myndirnar breiðist út yfir Asiu, eins og þær hafa breiðst yfir Evrópu'. Bandalagiö gegn rússnesku bylting- unni minnir aö mörgu leyti á banda- iagiö, sem fyrir 130 árum var myndað á móti frönsku byltingunni. En þetta bandalag hefur gert velferö þjóöanna miklu rneira tjón, því þaö er það, sem meira en nokkuð annað á sök á dýr- tiöinni, eldiviöarskortinum, húsnæö- ísleysinu og almennri eyrnd mann- liynsins. Allar hinar ástæöurnar, sem altaf eru látnar í veöri vaka, eru sntávægilegar hjá hinni vitfirrings- legu utanrikispólitík vesturrikjanna, sem hefur gert ómögulega endurreisn tlutningatækjanna, en komiö á stað hækkandi sköttum en heft friðsam- lega framtakssemi. Mönnum ætti að skiljast það, að hung-ursneyðin í Rússlandi hefúr einnig i för með sjer neyð i Þýskaiandi og Austurríki. Frá stjórnmálalegu sjónarmiði veltur því ekki á því, að senda nokkra brauð- bita suður á bóginn eða nokkur börn norður á bóginn, heldur á hinu, að þjóðuntim lærist að loka eyrum sín- um fyrir orðagjálfrinu en opna þau tyrir sannleikanum. Þann dag, sem ekki einungis verka- lýðsflokkur Englands og Frakklands, heldur einnig borgaraflokkarnir, þrátt fyrir allan jafnaðármensku ótta sinn, sjá það, að óverjandi og óalandi utanríkisstefna er dýpsta orsök allra þessara nteina, þann dag fer að birta, því rnyrkri, sem við ráfunt nú í. En segja menn þá, kemur þá ekki yfir okkur steypiflóð jafnaöarmensk- unnar og hefur endaskifti á öllu, :ænir því sem við eigum og gerir okkur að þrælum. En þaö stoðar ekki, að senda her- sveitir gegn hugsjónum. Enginn veit, hvað framtíðin ber í skauti sínu. Þaö vitum við þó, að það, sem hæfir einu landinu, hæfir ekki ööru. Hvert land á sína sjer- stöku fortíð, sínar sjerstöku stjettar- skipanir, sína sjerstöku menningu. Aldrei hefur nokkur hugsjón farið úr einu landi og í annað án þess að mót- ast eftir staðháttum. Jafnvel þing- ræöið, sem á sínum tíma var þrótt- mikil hugsjón, var þó framkvæmd smátt og* smátt og löguð eftir ein- kennum og ástæðum hinna ýmsu ianda. Siðaskiftin voru rán kaþólskra kirkjueigna. Þau voru framkvæmd sitt á hvern hátt í Englandi, Þýska- landi, Sviss og Norðurlöndum. Frönsku byltingunni fylgdi niður- jöfnun stóreignanna. En þó flestar hugsjónir byltingarinnar væru smárn saman viðurkendar, jafnvel í Þýska- landi, tóku Þjóðverjar þó þaö eitt upp, sem þeir álitu þörf á og þýski í'ðallinn hjelt eignum sínum. Því meira sem rússneska lýðveldiö er sjálft lát- ið sjá fyrir sinurn eigin málurn, eftir ráðum bestu manna, sem njóta trausts þjóðarinnar, ]>ví fúsari veröa Rúss- ar til að láta önnur lönd Evrópu skipa sínurn málum..Söguleg reynsla sýnir cinnig, að stjórnmálahreyfing, sem umheimurinn lætur i friði, veröur mildari og veður ekki eins geyst og hreytist innan frá og kemst í jafn- vægi viö umhverfið. Það er að eins til eitt óskeikult ráð til að útbreiða kenningar bolsjevika : viltustu mynd sinni, og það er þaö, sem bandamenn hafa notað, stööug iblutun í rússnesk mál, neitun allra ramninga, og hernaður alls konar ó- þióöalýös. Þaö var þess'vegna kom- inn tími til þess að hætta hafnbanninu og semja friö, eftir sex ófriöarár. ÞaÖ parf ekki aö vera af mannkærleika. baö getur veriö í þágu vesturveld- anna sjálfra. Þau fá bráöum nóg að gera viö endurskoðun friðarsamning- anna viö Tyrki. Eöa ef þeir verða ekki endurskoðaöir, fá þeir hundraö sinnum nteira að gera viö aö fást viö þær 70 miljónir múhamedsmanna i Indlandi, sem mótmæla þeim. Vest- urrikin lenda líka brátt í bitrustu baráttu fyrir menningunni, sem látið er hei^a að sje um olíulindir, eða andlegri mentun, sem kölluö er bar- átta um kolin. Litla-Asíu og Indland gefa svo mikið pólitískt umhugsun- arefni, aö friður við Rússland ætti aö vera fljótgeröur. Sú kensla í trú- arsálarfræöi, sem múhamedstrúar- þe.ssará stjórnmálamanna. Anatólía er eins og Irland. Aö cins Armeníu- menn þurfa þeir ekki aö hugsa um, fyrir þá hefur ekkert veriö gert, þeir eiga hvorki kol nje olíu og hafa þéss vegna orðið olnbogabörn hins kristi- lega kærleika. Söngur. Eins og Lögrjetta hefur áöur sagt frá, hefur verið óvenjumikið um söngskerntanir hjer í bænum í sumar. Það veitir heldur ekki af því, að bæta upp vetrarþögnina í þeitn efnum. En þá eru flestir þeirra, setn lengst hafa brotist i listinni, erlendis, en koma svo hingað í sumarleyfinu. Og þeim er tekið tveim höndurn. ÞaÁ má t. d. geta þess, að manni, sem hefur gam- an að því, aö reikna hlutina út í krónum, hefur talist svo til, að Reyk- vikingar hafi varið til þessara skemt- ana í sumar, um eða yfir 20 þúsund krónum. En hvaö svo sem um það er, þá bafa menn sjálfsagd skemt sjer vel og listamönnunum mikið verið hælt, þó sannleikurinn sje sjálfsagt eins og gengur og gerist sá, að allur þorri manna hafi lítið vit á því, eins og reyndar er viö aö búast, þar sem æf- ingin er lítil, en listin ung í landinu. Þessr menn eiga því allir fyrst og íremst þakklæti skilið fyrir þaö, sem þeir með komum sínum hingað gera til þess, aö útbréiða áhuga manna Á ,,músik“ og efla og bæta smekk þeirra. Hjer er ekki hægt aö kveða upp neina sjerfræðidóma um meðferð mannanna í einstökum atriðum, á þeim verkefnum, sem þeir tóku sjer fyrir hendur, en skal að eins sagt stuttlega frá söngskemtunum þeirra : heild. Pjetur Jónsson mun vera clstur þessara manna og oftast hafa látið hjer til sín heyra. Hann söng mest lög úr ýmsum söngleikjum, sem bann hefur leikið í ytra, einkum eft- ír Wagner, og virðist yfirleitt láta ]>að best, og rödd hans njóta sín þar mest. Hann er nú einnig orðinn æfð- ur Wagner-söngvari, héfur sungið i flestum stærri hlutverkum söngleika hans við þýsk leikhús, nú síðast i Darmstadt, þar sem. hann er fastur slarfsmaður. Er mikið látið af leik hans þar í ýmsum erlendum blöðum, tnda mikill munur á öllum ástæðum þar víöa og hjer. Hjer hafa víst flest- ir áheyrendurnir það. á tilfinningunni, að aHmikið vanti á þaö, að bæði söng- maðurinn og lögin sjálf njóti sín til fulls, bæöi vegna húsnæðisins, að minsta kosti eins og það er í Bár- rrini, og eins vegna þess, aö óperu- lögin, sem sungin eru, eru slitin út úr eölilegu sambandi sínu og um- hverfi við leikinn í heild sinni. En um þaö tjáir ekki að fást, þvi að sennilega á það langt i land, að Reyk- víkingar fái aö heyra einhvern þess- ara söngleikja í heild sinni. Þá hafa þau hjónin D ó r a og Haraldur Sigúrðsson frá Kaldaðarnesi haldið nokkra hljóm- leika, frúin sungið ýms erlend og ís- lensk lög og hr. H. S. leikið á píanó. Má víst telja h&nn snjallastan þeirra landa, sem við þaö fást. Hann hneigð- ist mjög að þessu þegar í æsku og hefur undanfarið stundað nám bæði i Danmörku og Þýskalandi, en nú er crðinn kennari við sönglistaskólann í Khöfn. Enn fremur hjelt T h e ó d ó r. A r n a s o n fiðluleikari einn hljóm- leik og ljek ýms ]>ekt ágætislög með mikilli leikni og skilningi, að dómi l'eirra, sem um það hafa skrifað. Eitt lag ljek hann eftir sjálfan sig, enda cr hann af söngelsku fólki kominn. Síöast, en ekki síst, hefur svo P á 11 ísólfsson haldið hjer tvo sjálf- stæða kirkjuhljómleika, auk þess, sem liann hefur leikið á pianó undir söng Pj. Jónssonar. P. í. mun vera yngstur ]>essara manna, og hefur undanfar- ]>ar, próf. Straube. Hefur prófessorinn haft miklar mætur og álit á hæfileik- tun hans, eins og t. d. má marka á því, að hann hefur valið hann til þess aö gegna störfum sínum í fjarveru sinni. Hann hefir nú upp á siðkastið ferðast nokkuö um erlendis og haldið lrljomleika, s. s. i Berlin, Teplitz i Bæheimi, Kaupmannahöfn og víðar, menn munu ókeypis gefa þeim há- , stundaö nám í Þýskalandi, aðal- göfgu ráöherrum, Lloyd George og >ega hjá einum þektasta kennaranum Millerand, mun krefjast allrar athygli XV. árg. ll.f. „Völwndwr" Timburvezlun — Trjesmiðja — Tunnugerð l&éykjavik. Smíðar flest alt, er áð húsbyggingum (aðallega hurðir og gíugga) og tunnugerö (aðallega kjöttunnur og sildartunnur) lýtur. Selur flestar algengar tegundir af timbri (furu og greni) í hús, hús- gögn, báta og amboð. Ábyrgist viöskiftavinum sinum nær og fjær þau bestu viðskifti, sem völ er á. Fljót afgreiðsla. Símnefni: Völundur. Sanngjarnt verð. og alstaðar verið vel tekið. Hjer í Reykjavik ljek hann aðallega lög eftir Bach og Reger og mun sá síðar- nefndi hafa verið nær alveg óþektur hjer áður. Til þess að gefa mönnum nokkra hugmynd um álit fróðra manna á list P. í., skal tekinn hjer upp kafli úr einu þektasta „músik“- sjerfræöiriti Þýskalands, „Allegm. ?\lusik-Zeitung“, þar sem getiö er um síðasta orgelleik hans í Berlín : Orgel- hljómleikur sá, sem íslendingurinn Páll ísólfsson hjelt í Garnisonkirkj- tmni, kynti okkur afburða orgelsnill- ing á háu stigi (einem Orgelvirtu- osen grozen Stiles). P. í. er ekki ein- ungis listasnjall í ytri meöferð lag- anna (ein hervorragender Tecknich- er), heldur nær hann einnig insta eðli þeirra mjög vel (ein ausdruchskunst- ler hohen Ranges). Það sýndi um- frarn alt koral-forspil Ba;chs o. s. frv., segir höf., W. Schrenlc. Sama kem- ur fram í almennu blööunum, t. d- segir Berliner Tageblatt, 22. júní s. 1., að P. í. hafi haft. „afburðavald á hljóðfærinu“. Og Politiken segir um hljómleik hans í Ivhöfn, að hann hafi á úý „sannað hina miklu leikni sina sem organleikari.“ — Þó hr. P. í. dvelji nú svo mikið erlendis, þá fylgist hann með öllum hreyfingum í því litla „músik“-lífi sem hjer er, og hefur stundum skrifað dálítið um Jað. Og þó sumurn finnist hann all- haröur í dómum, er hann fullur á- huga á endurbótum ísl. sönglifs. — Hann hefur einnig samiö nokkur lög og hefur eitt þeirra veriö leikið hjer af Har. Sig. Að lokum má svo kannske í öllu bróöerni benda á einn leiðinlegan ó- sið, sem altaf fer í vöxt hjer víð söngskemtanir, en er smávægilegur í sjálfu sjer, en því leiðinlegri, sem hann er alveg óþarfur. En þaö er, bvernig farið er með lagtextana í söngskránum sumum. — Á fyrstu skemtun sinni söng t. d. Pjetur Jóns- son hið alkunna kvæði Björnsons : Syng mig hjem. Þar eru nokkrar lín- iirnar prentaöar svona: Ti min sang stár i vár bak den barm sont var hárd og gjör klar, hvem jeg var. Og f kvæöi Þorst. Gíslasonar: Dana- gramur, seuj hann söng þá, er upp- hafið látið vera svona: Danagramur heyr nú hljóma hátt það mál, er fyrrum stála rimniur gall i gylfa höllum, geir og rönd á Norðurlöndum. Þó sjálfsagt megi segja, að þetta liggi í augum uppi og sje smávægi- legt — og auðvitað haföi það engin ahrif á meðferð hr. P. J. — er ástæða til að benda á það, bæði af því, að söngskrár þektra söngvara veröa oft beinlínis eða óbeinlínis til að vekja athygli á lögum þeim og ljóðum, sem þeir syngja, en lærast þá afbökuö með þessu lagi, og ekki síður af því, að þetta er eins og byr undir vængi þess leirbullara-ósiðar, sem nú er meira og meira að stinga sjer hjer niður, aö búta og bita vísur og vísu- orð sundur svo lagi og máli sje mis- þyrmt. Þetta gæti t. d. auðveldlega ehdaö á því, aö bráðum fengjum við söngskrá meö t. d. s-vona meistara- verki: Eld gamla ísa fold ástkæra fóstur moldfjallkona fríö. Eins og bent var á í upphafi þess- arar greinar, eiga allir þessir menn ekki síst skilið þakklæti fyrir þann skerf, sem þeir þannig hafa lagt til þess, að vekja áhuga í ísl. sönglistar- bfi og efla og bæta þar smekk manna. Þessar samkomur þeirra geta því gef- ið tilefni til margvíslegra umræðna um'ástand og horfur hjer í þeim efn- um. En hjer skal aö eins bent á fátt eitt, þó nijög væri þaö æskilegt, að einmitt þessu máli væri meiri at- hygli sýnd opinberlega og aö þeir, sem til þess eru færir, lægju ekki á liði sínu með að leiðbeina og gagn- rýna eftir föngum. Aðsóknin aö ■ þeirn söngskemtun- um, sem að ofan getur, er m. a. gott sýnishorn þess áhuga, sem vaknaður cr á söngmentum hjer, þó vitanlegt sje, að þekkingin sje ekki að sama skapi alstaðar. En einmitt af því, eð áhuginn er að vakna, af því að gera má ráð fyrir því, að vísir að sjálfstæðu, íslensku „músik“-lífi sje að myndast, er nauösynlegt, að auk- in þekking og bættur smekkur veröi samfara. Einmitt meðan öflin eru að váxa og þroskast, er nauðsynlegt, að sveigja þau inn á rjetta braut. — Hljóðfærasláttur, bæði orgel- og pianóleikur er altaf aö breiöast meira og meira út um bæi og sveitir, söng- íjelög eru aö þjóta upp og sönglaga- smiðir aö gægjast fram hingað og þang-að. En alt er þetta stopult og á strjálingi enn þá. Það vantar ein- liverja miöstöð ísL sönglífs, einhverja stofnun eða stað, eða jafnvel þó ekki væri nema einn maður, þróttmikill og þekkingarmikill, þar sem það besta gæti.safnast saman, þaðan sem nýj- um straumum væri veitt yfir landiö, þangað sem ungt fólk gæti sótt sjer góöa kenslu og uppörfun. ÞafS vantar hljómlistarskóla. Lögrjetta hefur áöur vikið stuttlega oö þvi máli. Slíkir skólar eru til í öllum menningarlöndum. Hann ætti ekki að þurfa aö vera nein fjárhags- leg byröi hjer — yrði heldur ekki stór í upphafi, og gæti vel verið í sambandi viö einhverja aðra stofn- uri, t. d. háskólann, en sem sjálf- stæöur liður. En meö góöri stjórn og góðum mannafla, er það efalaust, að hann gæti gert ísl. sönglífi mikið gagn. Og afleiðingarnar af starfi hans mundu ná inn á mörg heimili, þar sem hljómlist er stunduð. Þeir, sem vildu leggja vel stund á hljóm- bst, þyrftu ekki eins margir og áðúr að fara utan. Og svona mætti margt telja. En þessu máli hefur lítill gaum- ur verið gefinn. Það hefur mest ver- ið Jón Leifs, píanóleikari, sem nú er viö nám í Leipzig, sem um þetta hef- ur ritað, og Páll ísólfsson nokkuð. En það ætti að vera miklu meira. Því þeir, sem unna framtíö ís- lenskrar söngmentar, unna einnig hugsjóninni um stofnun íslensks bljómlistarskóla. Alfred Dreyfus, franski herforing- inn, sem mikiö var umtalaður fyrir nokkrutn árum, vegna málaferla þeirra og útlegðar, sem hanri varð fyrir, en var sýknaður af, ekki síst fyrir atfylgi skáldsins Zola, — er nú tiýlega sagöur látinn.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.