Lögrétta - 22.12.1920, Síða 2
LÖtt&JETTA
Frjettir.
Tíðin. Tvo síöustu dagana hefur
veriö norðanátt og dálítiS frost.
Þingkosningarnar. ÞaS er nú sagt
og mun vera áreiðanlegt, aS sjera
ólafur Ólafsson sje hættur viS fram-
hoS. Engan þarf aS undra jjaS, þótt
Lögr. mælti ekki fram meS kosningu
lians, þar sem hún veit ekki betur en
aS hann hafi bæSi fyr og síSar veriS
andstæSingur hennar í stjórnmálum.
Hún hefur margsýnt þaS, aS hún
getur vel átt samvinnu viS andstæS-
inga sína í stjórnmálum frá umliSn-
um árum. En henni er ekki kunnugt
ura, aS skoSanir hennar og sjera ól.
ól. falli saman í nokkru, sem þar
skiftir máli nú, heldur þvert á móti.
— Þetta er sagt út af ummælum
,,Visis“ um kosningagrein Lögr. í
síSasta tbl., en aunars er nú óþarft
aS ræSa þaS mál.
Enn eru þá ekki nema tveir kosn-
ingalistar fullgerSir. NýstofnaS fje-
lag hjer í bænum, sem nefnir sig
„Kjósendafjelag", hjelt á mánudags- ,
kvöldiS var fund til aS undirbúa nýj-
an lista. AtkvæSagreiSslan fór svo,
aS Magnús Jónsson dócent fjekk þar
flest atkv., þá Jón Ólafsson skipstj.,
þá ÞórSur Sveinsson læknir, þá Sig-
urjón Pjetursson kaupm., þá Einar
Arnórsson prófessor o. s. frv. Eink-
um virtist fundurinn, eftir atkv.gr. aS
dæma, vera hiyntur þeim fyrstnefndu
tveimur, en tveir hinir síSastnefndu
höfSu aftur á móti mun færri atkvæSi
en Þ. Sv, — Óvist er samt enn, hvaS
úr listasmíSi þessa fjelags verSur,
jjvi um kosningarnar gengu ýms-
ir fundarmenn snúSugt út, þ. á. m.
suntir helstu forsprakkar fjelags-
stofnunaripnar.
Snorri Sturluson heitir nýútkomin
bók eftir SigurS Nordal prófessor,
á kostnaS Þór. B. Þorlákssonar,
girniieg til fróSleiks, og er þar lýst
Sn. St. og verkum hans. VerSur nán-
ar minst síSar.
Gestahæli. LljálpræSisherinn hefur
á undanföpnum árum veriS aS reyna
aS koma upp húsnæSi fyrir starfsemi
sína á aSalstöSvunum. Eitt slíkt hús
var vígt í HafnarfirSi 17. þ. m., af
foringja hersins, hr. Grauslund, sem
rakti sögu þess og skýrSi frá tilgangi
þess. Húsinu er ætlaS aS vera bæSi
alment gistihús' — þó þaS sje eink-
um ætlaS sjómönnum — og sjúkra-
hús auk þess sem þaS er samkomu-
hús herdeildarinnar í HafnarfirSi.
Var kaupstaSnum hin mesta þörf á
þessu, því hvorugt var til áSur, gisti-
hús nje sjúkrahús. í gestaherbergj-
unum, sem eru á efstu hæS, eru rúm
fyrir 15 manns, en á miShæSinni er
borSstofa og lesstofa, auk herbergja
foríngjanna og samkomusalsins. Á
neSstu hæSinni eru tvær sjúkrastof-
ur auk ýmsra annara herbergja. Hús-
iS er steinsteypuhús, reist af Ásg.
Stefánssyni og kostaSi um 100 þús.
krónur. Upp í þetta hafa þegar feng-
ist um 23 þús. kr. meS samskotum
og hefur Hafnarfj.bær Iagt fram
nokkuS fje og ætlar aS stySja hælið
íramvegis. ViS vígsluathöfnina tal-
aSi ÞóSur læknir Edilonsson fyrir
bæjarins hönd, og þakkaSi aS mak-
legleikum dugnaS og framtakssemi
hersins í þessum efnum. Herinn hef-
ur á stríSsárunum, undir forustu
Grauslunds, einnig reist samkomuhús
í Reykjavík og á ísafirSi.
Barnahælið á Vífilsstöðum. ÞaS ei
nú orSiS langt síSan SigurSur læknir
Magnússon skrifaSi í Lögr. um nauS-
syn á því, aS koma upp barnahæli
í sambandi viS heilsuhæliS á Vífils-
stöSum, Nú er þetta komiS í verk
og var mörgum mönnum hjeSan úr
bænum og úr HafnafirSi boSiS síS-
astl. sunnud. upp aS VífilsstöSum, til
þess aS skoSa þar nýja barnahælið,
— landstjórn, læknum þingmönnum
og blaSamönnum. -— Sig. Magússon
læknir mintist þess fyrst, aS nú væri
VífilsstaSheilsuhæliS 10 ára gamalt
ef taliS væri frá því, er þar var tekiS
til starfa. Fram til þessa hdfSi vantaS
þar sjerstakt barnahæli, en nú væri
aö nokkru bætt úr þeim skorti. Tal-
aSi. hann svo um nauSsyn þessarar
stofnunar og hvaS henni væri ætlaS
aS gera, og sýndi svó, ásamt bygg-
ingameistaranum, GuSjóni Samúels-
syni, gestunum barnahæliS.
ÞaS er í austurenda heilsuhælis-
ins, J>ar sem áöur var læknisibúöin
og eru þar nú 4 sjúkraherbergi, meS
samtals 20 úmum handa börnum, en
í miöju er stór borðstofa, og fram af
henni verönd, sem vel nýtur sólar.
Þar er og eldhús og búr, herbergi
handa hjúkrunarkonum o. s. frv., og
er þessi hluli hælisins alveg fráskil-
inn aS öllu stofum hinna fullorSnu
sjúklingá. Breytingin á hælinu, ásaint
öllum húsgögnum, sem til barnahæl-
isins, hafa veriö keypt, kostar alt aS
30 þús. kr. En svo hefur oröiS aS
byggja sjerstakt íbúSarhús handa
lækninum, og stendur jjaö austan viS
hælið, 22 X 17 álnir á stærS, og kost-
ar eithvaö nálægt 140 þús. kr. —
Allur frágangur, bæöi á barnahælinu
og læknishúsinu, virtist vera injög
vandaður.
Þetta tölubl. er síSasta tbl. þessa
árg. Lögr. Næsta tbl. kemur út á
nýári og verður 1. tbl. 16. árg.
Dáinn er sagður sjera Eiríkur
Gíslason á StaS í HrútafirSi.
Bókaverslun Pjeturs Halldórsson-
ar (Sigf. Eymundssonar bókav.) er
nú flutt í hiö nýja hús P. H. í AusÞ
urstr., rjett viS Landsbankann (áöur
eign Ásgr. Eyjjórssonar) og hefur
húsinu öllu veriS breytt meö tilliti
til þessa, enda er nú húsrúmiS og
allur umbúnaSur þar svo sem best
má veröa.
Fjalla-Eyvindur var í fyrra leilcinn
til ágóSa fyrir ekkju Jóhanns Sigur-
jónssonar, og nú sje jeg, aS efnt hafi
v.eri.S til ýmissa skemtana, til þess
aö afla henni fjár. Þetta er vitanlega
vel gert, þar sem ekkjan á í vök aö
verjast, eftir aS maöur hennar fjell
frá. — En þessi leiS til hjálpar henni
þykir mjer hvimleið. ÞaS er önnur
leið betri, en hún er sú, aS landssjóS--
ur Ijeti henni í tje vissa upphæS á
ári (3—4000 kr.) til Jiess aS hún
jjyrfti ekki aö líöa verulegan skort.
ÞaS verður heldur ekki frá Jóhanni
heitnum tekiS, aS sinn skerf lagöi
liann til þess, aS vinna íslandi og
ísl. þjóðinni nafn út á viS, og ekki
sá sísti. — ÞaS á víst aS heita svo,
aö Jietta hafi isl. þjóðin goldiS hon-
um fje fyrir í lifanda lífi, meS J>ví
aS veita honum hinn árlega skálda-
styrk, hver nú sem upphæðin var.
— En þegar hann svo er fallinn frá,
þá er ekki lengur um fjárframlög aö
ræða, enda þótt aö eftir sje sú mann-
eskja er honpm mun hafa þótt vænst
um í lífinu, 'og þykja mundi honum
hart, ef líta mætti hann upp úr gröf
sinni, aS vita konu sína bjargarlitla
og að þjóðin, sem hatm unni og vann
mest fyrir, vildi ekki leggja henni
lífseyri, þó ekki væri nema í þakk-
lætis- og virSingarskyni viö hann,
fyrir verk hans í þarfir bukmentanria
og aS auka nafn mentaþjóSarinnar
fornu.
Þð veröur eflaust ekki vinsælt, aS
leggja þessu máli liS, en mjer finst
að þaS verSi ekki hjá því komist,
þar sem ekkjan hefur ekkert eða lít-
iS til þess aS lifa af. Jeg skal geta
þess um leiS, aS mjér fyndist ekki
nema sjálísagt, aS ekkjur þeirra
skálda, sem notiS hafa skáldatyrks,
meöan þeir liföu, fengu vissa upphæö
árlega, af því fje sem manninum var
ætlaS, segjum t. d. helming. Skáldin
eru sjaldan svo efnuö, aS þau láti
eftir sig stórfje, og konur þeirra og
börn líSa þvi oft af fjeleysi eftir þá
látna, og hart aS veita þeim af sveit;
þaS er lítill sómi fyrir JjjóSfjelagiö
viS minningu skáldsins. Alveg kinn-
roSalaust getur landiS ekki látiS þetta
mál afskiftalaust, og hjer er heldur
ekki um verulega stórar upphæðir aS
ræða.
Þ. Kr.
Sælir eru einfaldir.
Nútímasaga úr Reybjavík
eftir Gunnar Gunnarssoa.
(Frh.)
— GóSan daginn, Jón Oddsson,
ætlaöi jeg aö segja. GetiS þjer ekki
sagt mjer hvaS klukkan er, því auð-
vitaS standa allar klukkur í þessu
óhemju húsi. ViS vitum einu sinni
ckki hvort tíminn líöur. Og af því aS
jeg hef heyrt, aS síminn beri sóttina
sférlega mikið, hef jeg bannaS öllum
aS hreyfa þaS bölvaö verkfæri. Til
Jiess aS vera alveg viss, hef jeg vaf-
iS um það gamalli vatt-ábreiðu og
ÆkvaS svo alt í karbólvatni. Hjer er
verri þefur en í nokkrum spítala. —
Þetta er meiri bölvuS pestin, Jón
minní
Undir eins og jeg komst aS, flýtti
jeg mjer aö segja henni, aS klukkan
væri nákvæmlega hálf tólf — og
bætti svo viö ósköp hæglátri athuga-
semd um JjaS, aS síminn gæti því aS
cins smitaö, aS einhver veikur hefði
notaS hann áSur. Hún gæti þess vegna
h.ringt hvert á land, sem hún vildi,
sagði jeg — JiaS væri aS minsta kosti
enn J)á ekki sannaö, aS rafmagns-
straumur gæti flutt sóttkveikjur.
— Já — jeg veit nú ekkert um JiaS,
greip Margrjet fram í meS ójiolin-
mæSi, þegar hún hafSi sett úríð sitt.
— En standiS Jjjer nú ekki þarna og
taliS beint upp í mig! SnúiS þjer yö-
ur ofurlítiö til hliðar, maður — hinn-
ar hiiðarinnar — ekki undan vind-
inum. Nei, á m í n u heimili hreyfir
enginn símann, fyr en þessi faraldur
er um garS genginn, svo framarlega
sem jeg heiti Margrjet Eiríksdóttir
c;g er einhvers ráSandi á mínu heim-
iii. Enginn fær heldur aS nálgast
húsiö hjerna, ekki einu sínni hann
Karl minn. Þjer vitið aS hann stjórn-
ar eldiviðarúthlutuninni? Jeg hef
gefið honum leyfi til jjess aS koma á
liverju kvöldi, til aS bjóSa góða nótt,
einmitt þangaS sem Jjjer eruS — ekki
feti nær. Hann verður aS gera svo
vel og sofa úti í bæ, fyrst hann getur
ekki haldiö sjer á mottumii innan
ciyra, og þarf endilega aS vera aS
skifta sjer af þessu. Jeg skal sem sje
segja yður þaS, Jón Oddsson, aS und-
ir eins snemma í gærmorgun, fór
jeg, á gamals aldri, eins og jeg nú
er, til dætra minna og spurði þær
rjett sisona: GætiS þiS nú vel aS því,
að hvorki þiS eSa börnin hafið nein-
ar samgöngur við aðra menn meSan
þessi pest geysar? En alstaðar var
fólk á þönum út og inn, svo aS jeg
hefSi svo sem ekki þurft að spyrja.
Og svo tók jeg börnin heim með mjer,
meS góðu eða illu, eftir því sem á
stóð, Jjví hjer eru þau aS minsta kosti
örugg. ViS höfum alt, sem viö þurf-
um á aS halda — egg, niSursoðna
mjólk, kjöt, kartöflur, og jeg veit
ekki hvaS og hvað. BrauS getum við
bakaS sjálf. Jeg hef aflæst dyrunum
og tekiö lyklana, og vinnukonurnar
hafa oröiö aS sverja þess sáluhjálp-
areið aS skriða ekki út um gluggana
á nóttum eöa eiga nokkur mök við
aðra út í frá. — Jeg skil ekki, því
þjer eruð ekki svo skynsamur, Jón,
eS halda yður nú heima.
— ÞaS eru svo margir veikir,
sagSi jeg.
— Nú, jæja — þjer hjúkriS sjúk-
um, sagði húu og skelti aftur glugg-
anutn og bandaSi mjer burtu í ákafa.
Og svona lauk nú samtalinu Jjví.
Jeg var annars kominn í allra besta
skap og hló með sjálfum mjer........
Einkum dillaði það mjer, að gera
mjer Karl Bogason i hugarlund þeg-
ar hann kæmi aS bjóða góöa nótt.
.... Á andliti mínu hafa hlotiö aö
sjást einhver merki þessarar ánægju
þegar jeg hringdi dyrabjöllunni hjá
Grími ElliSagrími og frlú Vigdís tók
á móti mjer, því })aö fyrsta, sem hún
sagöi var:
— AS hverju ertu að brosa?
Jeg stóð kyr eitt augnablik og
horfð/i á frú Vigdísi. Jeg sá undir
eins, aS einhver breyting hafði orðiS
á henni, frá því að viö sáumst siö-
ast. Jeg gat aS eins ekki gert mjer
jiess grein, í hverju hún væri fólgiri.
Jeg tók þó brátt eftir þreytusvipnum
ogeins og bulinni kvöl og óró í augna-
ráSi hennar, sem ekki haföi verið Jrar
áSur. Jeg hafði altaf hálfamastviSþví,
hve móðurlega hún tók af mjer yfir-
höfnina — nú tók mig það jafnvel
sárt, aS hún gleymdi því, eða gerSi
JjaS ekki, að rninsta kosti.
Jeg svaraði, og reyndi af*alefli aS
brosa áfram, aS jeg hefði verið aS
tala viö móður hennar. En gleðii mín
var gersamlega horfin. Frú Vigdís
hló, en hlátur hennar var ekki Ijettur
og ósvikinn eins og endra nær, og við
töluðum ekki meira um þetta, J)ó viS
hefðum eflaust gert það, ef við hefS-
um veriS í því skapi. Þegar viS kom-
um inn í stofuna, spurði jeg hana —
því i þetta skifti var þó dálítiS erfitt
aS byrja samtaliS.
— SaknarSu ekki barnanna?
— Jú — víst sakna jeg þeirra,
sagöi hún rólega. En jeg á fyrst og
írerrist aS hugsa um þau og þaö, að
þau sjeu örugg, en ekki um mig —
þaS er alveg rjett hjá mömmu. Og
eins og nú er komiS, eru aS minsta
kosti líkindi til þess að þau veikist
ekki. Þar að auki eru báðar stúlkurn-
ar úti aS hjúkra og bera út mat, svo
aS jeg er ein heima. Einhver verSur
aö vera hjer, svo aö Grímur komi
Hf. Eimskip afj elagf íslands
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags Islands verður
lialdinn í Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavík, laugardaginn 25.
júní 1921, og hefst kl. 1 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum
á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstand-
andi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úr-
skurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desemher
1920 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoð-
enda, svörum stjómarinnar og tillögum lil úrskurðar frá
endurskoðendunum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar unx skiftingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna x stjórn félagsins i stað þeirra sem
úr ganga samkvæmt félagslögununx.
4. Kosning eins endux’skoðanda í stað þess er frá fer, og eins
varaendurskoðanda.
5. Unxx’æður og atkvæðagi’eiðsla unx önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
peir einir geta sótt fundinn, senx hafa aðgöngumiða. Að-
göngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og um-
boðsmönnunx hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavik, eða
öðrunx stað, sem auglýstur verður síðai-, dagana 21.—23, jxxní
næstk., að báðum dögum meðtöldum. Menn geta fengið eyðu-
blöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn hjá hlutafjársöfn-
urum félagsins um alt land og afgreiðslumönnum þess, svo
og á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
Reykjavík, 18. desember 1920.
' •>../ '
, STJÓRNIN.
ekki aö tóinum kofanum þá sjaldan
hann kemur hingaö og setst niöur í
tvær mínútur. Arinars heföi jeg líka
fariS út. En mjer finst jeg ekki geta
gert annaS betra, en aS styrkja
h a n n á allan hátt. Þaö er mest um
vert. Þetta eru erfiöir, dagar fyrir
Grím, Jóri Oddsson.
— Já — svaraöi jeg hægt. Jeg hef
tekiS eftir J)ví.
Hún hallaöi. sjer áfram, í stólnum
— viö sátunx hvort andspænis ööru —
og- Vioi-ík; Ueiot ; augtl micr.
—- Hefur J) ú líka tekiö eftir J)ví.
Augnasvipur hennar var angurvær
og auguri fyltust tárum. — Hefur
hann sagt þjer nokkuö — því mjer
segir hann ekkert .... þess þarf
heldur ekki. En þaö er nærri því
eins og hann sje hræddur viS J)aS, aö
jeg Jiekki hugsanir hans. Kæri Jón,
þú mátt ekki áfellast mig — jeg er
svo undarlega hrædd. ÞaS er eins og
stór steinn hjerigi rjett yfir höföinu
á mjer og hann ætti aS falla á hverri
stundu og mola mig í sundur.........
)á jeg get ekki búist v.iö því, aö
þú skiljir mig —- jeg skil mig ekki
sjálf. —1 En eitthvaö hefur komiiö
’íyrir Grím Jjessa siöustu daga. Jeg
j get ekki almennilega skiliö þaö.
| Ilann er eiginlega ekki öSruvísi viS
hann enn þá ástúölegri, en nokkru
sinni áöur, J)aS er eins og hann kvelj-
ist mín vegna — eins og hann vissi
af einhverri hættu, sem voföi yfir
mjer, en jeg þekti ekki........ En
hvernig sem þessu vikur viö — hvort
sem |)aö eru nú öll Jiessi veikindi, all-
ur þessi dauöi, eöa hvaS þaö nú er —•
J)á er þaö víst, aS eitthvaö er aS ger-
ast í honum á hverju augnabliki. Þó
hann sitji hjerna ekki nema tvær
rnínútur, er hann, þegar hann fer,
oröinn annar, en þegar hann kom.
Og hann talar ekki um.þaö viö mig
—þaö er þaö, sem eykur mjer óttann.
Hann g e t u r víst ekki talaö unx
þaö .... F.n jeg finn aö honum liS-
ur llla — æ — þaÖ særir mig inst í
hjartaö. En mig langar svo, miS lang-
ar svo ósköp til aS hjálpa honiun —
— ef jeg gæti þaö. — HvaS á jeg
aö gera, Jón Oddssop? — Hirtu ekki
um J>aS, þó jeg gráti — þaö liöur
bráöum hjá. — En hváö á jeg aö
gera? ------ Nú höfum viS Grímur
þekst í svona tnörg ár, og þekst vel
— höfum elskaö hvort annaS —
elskaS, finst mjer, heitar en nokkur
annar. — Og svo .... alt í einu
hleöst eitthvaS upp á tnilli okkar, —
eitthvaö, sem viö vitum ekki hvaS
er, — eitthvað sem við ráöum ekki
viö.....Og — og — svo stöndum
við uppi, aöskilin, einn góSan veöur-
dag, einmana og hvort fyrir sig.....
Æ, æ, — þetta er óþolandi, Jón. —
HvaS er þetta alt eiginlega? Geturðu
frætt mig á því, Jón — hvaö e r
eiginlega lífið — og ástin — og þetta
alt, hvað þaS nú heitir....ITvernig
getur svona skilrúm hlaöist upp milli
tveggja sálna, sem hafa elskast, eins
og viö Grímur. Jeg hef beöiö guö á
himnum, að losa höftin af tungum
okkar, svo aö viS geturn talaö hisp-
urslaust saman, svo aS alt verSi eins
og áður okkar í milli. Hvers vegna
getum vm paö eKinr Mvoiugt
okkar J)arf nokkru aö leyna — og
viö unnumst ef til vill heitar, en
nokkru sinni áSur. Og þó er eins og
eitthvað hafi hlaðist upp á milli okk-
ar, og skilji okkur aö. Eöa er þaö aS
eins þreyta Gríms og kvalir, sem
hafa þessi áhrif á mig? Er Jietta alt
saman ímyndun ein? Þegir hann aö
eins til aö þyrma mjer? Og er þaö
aS eins jeg, sem er að veröa ímynd-
unarveik? — GuS gefi, aö það væri
ekki anriaö — guS gefi þaö! ....
— Kæra frú Vigdís, sagSi jeg —
og mjer var J)aö áköf áreynsla aö
koma saman þessum stuttu. setning-
um — Grímur getur komiö á hverri
stundu. Hann má ekki sjá þig svona.
— Nei — þaö er einmitt mergur-
inn málsins -— Jxarna kemur J)aS....
Þetta er líka nrin skoöun — — og
sjáSu hvaS jeg er fljót aS sigrast á
•Jessu, að eins viö hugsunina um það,
aS Grímur sjái mig svona? — En
hvers vegna á jeg eiginlega aS leyna
hann því, hvernig rnjer líSur? Væri
mig — þaS er aö segja, mjer finst
ekki betra að láta hann sjá þaS? —
Nei — jeg veit ekkert upp nje ofan
frarnar!
— Fleyröu annars — sagöi jeg alt
i einu, hvaSa erindi átti Páll Einars-
son hingaS í dag?
ÞaS hefur sjálfsagt veriö eitthvaS í
raddblænum, sem olli því, aö frú Vig-
clís horfði alt i einu á mig óttaslegnu,
gráttæru augunum.
— Pjetur Ólafsson sagöist hafa
sjeS hann koma hjeöan út og sagöi
•mjer frá því, sagSi jeg og vildi um-
fram alt, aö viö töluðum nú hrein-
I skilnislega saman.
Kaupendur Lögr., þeir sem ekki
r.afa þegar greitt andviröi bíaSsins,
eru vinsamlega beSnir aölátalxaöekki
ciragast. BlaSaútgáfa er erfiö nú og
verSið, í samanburði við útgáfu-
kostnaS, ekki lítiö lægra en fyrir
stríöiö.
Fjelagsprentsmiljan