Lögrétta - 23.08.1921, Side 4
4
LÖðRJETTA
C'V’-'V-I Tf'* n Tíky.
*)
Gerduft
HMJ aafafrœga aawrMau
Langbesta efni sem
nútímiim þekkir til þess
að geta búiS til góðar kökur
og kex. Með þvi að nota það verður
bermabökun hæg og ódýr. Að-
eins selt í dósum, er ætíð
ferskt og beldur fall
um fcrafti.
Selt í heildvwzlun
Garðars Gíslasonar
og i ítestnm matvðrwvrahmw.
XIII.
Stjönnu líff ræði-
XII.
Hversu alt þetta mál er þess vert,
að menn reyni af fullri alvöru til að
fá skilning á því. Og hversu ljóst
er yfir að Hta, eða fagurt yfirlit feng-
ið, þegar fundið er eðli drauma, og
skyldleiki miðilsvefnsins og vanalegs
svefns. Sofandi miðill talar. Og sjál
hann talar af meðvitund annars
manns. Annars meðvitund er komin
fram í honum. Og þessi annar seg-
ist eiga heima á annari stjörnu. En
rannsóknin hafði sýnt, að í vana-
legum svefni kemur altaf fram í oss
meðvitund anLars. Og nákvæm at-
hugun svefnvitundarinnar, sýnir al-
veg ótviræðlega að þessi annar
dranmgjafinn, (oneiropoios), er eg
nefni svo, á heima á annari stjörnn.
Hér styður hvað annað mjög fagur-
lega. Hér koma vissulega í ljós á
fegursta hátt, einkenni heilags sann-
leikans.
Tilraunir Tutveys sýna að »and-
iun« sem fer i miðilinn og talar
hans tnngu, getur verið sál manns
á sömu jörð. Og eins getur verið
um drauma vanalegs svefns, þó að
oftast nær sé það sambandið við
ibúa annara stjarna, sem mesturæð-
ur í draumvitundinni. Dranmgjaf-
inn getur verið samstirnis, og ná-
lega, svo að kalla megi, samtýnis
draumþega. Þetta sýnir vel dranm-
saga sem stendur í Tidskrift for
pöykisk Forskning 1906, s. 14—15.
Einn morgnn snemma er forstjóri
dýragarðsins i KaupmannahöfD, Juli-
us Schiött, nafnkunnur maður, stadd-
ur hjá búri hvítabjarnarins og atvik-
ist þá svo til að björninn bítar
bann í fingnrinn. Eu á sömu stundu
dreymir einn af bestu vinum Schiötts,
G. Pauli, að hvitabjörn i dýragarð-
innm biti hann. Pauli lifði í draumi
það sem Schiött lifði i vöku. Schiött
var þarna dramgjafinD, og mun það
stafað hafa nokkuð af þvi, að Pauli
hafi verið mjög undir áhrifum þessa
fjörmikla vinar sins.
Menn undrast mjög draumsögnr
slikar, og þá grnnar ekki, að inn-
geislun frá öðrnm likama, er einmitt
eðli dranmsins. Það er ekki draum-
ur fyr en samband er við annars
meðvitund. Ef menn æfa sig nógu
vel, þá má læra að athnga glögg-
lega, hvernig annarleg meðvitnnd
fer að gera vart við sig þegar mann-
inn syfjar. Fyrst koma myndir, likt
og skuggamyndir, — þvi að litirnir
koma ekki fyr en seinna — en sá
sem er að sofna, veit ekki hvað
þessar myndir þýða þær ern aðeins
efni dranms. Síðan, þegar maðurinn
er sofnaður, þýðir hann þessar mynd-
ir eftir sinn heilafari, gerir úr þeim
tómar missýningar, og heldur að
hann sé að dreyma það sem honum
er knnnngt úr vökn. En verði sam-
bandið við draumgjafann fullkomn-
ara, þá sést að mann dreymir vana-
legast það sem honum er alókunn-
ngt úr vökn og hann hefir aldrei
nm hngsað. En frá þessn mun eg
segja nánar í annari ritgerð.
Síðari timnm til fróðleiks má geta
þess, að eg hefi eigi allsjaldan rekið
mig á þann skilning, að draumar
eða draumórar, og rannsókn á eðli
drauma, sé eitt og hið sama. En
það tvent er ólikast. Og er ekki við
öðru að bdast, en erfitt sé að koma
fram nýjum hugsunum, og þá helst
^ i stórkostlegasta lagi eru, þar
sem svo geigvænlegur greiningar-
skortur getur gert vart við sig, og
það jafnvel þó að menn sén hvorki
ógreindir né ómentaðir.
íbúi annarar stjörnn er það sem
vanalegast talar fyrir munn hins sof-
sndi miðils. Á þvi er ekki nokkur
vafi. Eg hefi, fyrir tilstuðlan miðils,
talað við þá sem heima eiga á öðr-
um stjörnum, i biljóna mílna fjar-
lægð. Það er eins vfst og að eg er
til.
Nú má að visn heyra það sagt,
að jafnvel hin rikasta sannfæring
manns, þurfi ekki að vera neitt sann-
færandi fyrir aðra. Jafnvel gáfaðir
og mentaðir menn láta sér slikt nm
munn fara. En þó er það ekki rétt.
Gildi sannfæringar er mjög mis-
jafnt, eftir þvi hvers sannfæring það
er, og hvernig tilkomin. Eitt er
sannfæring þess manns um vísinda-
leg efni sem ekki, eða lítið hefir
við Vísindi fengist. Annað, sannfær-
ing þess sem hefir sýnt sig í fremstu
röð sem námsmann og rannsóknara.
Eitt er sannfæring, fljótfengin og
bygð á skjótri skoðun og skammri
ihugun. Annað sannfæring, sem feng-
in er með 20, 30 eða 40 ára námi
og rannsókn.
Mestum hluta ævi minnar hefi
eg varið til að reyna að afla mér
þekkingar. Náttúrufræði hefi eg
stundað, og einnig læknisfræði Htið
eitt, með tilsögn framúrskarandi
kennara. Þó nokkuð hefi eg lesið af
því sem best hefir verið ritað í
heimspeki og mannkynssögu að
fornu og nýju. Áhugi minn á
að læra var þegar í barnæsku
mikill og hefir vaxið með aldrinnm.
Betur og betur hefi eg ver(ð að læra
hina réttn visindalegu varkárni.
Hina réttu varkárni segi eg, sí þvi
að það er til svikin vara sem menn
nefna svo, en að réttu lagi heitir
nautska gagnvart nýjum sannindum
og illvild gagnvart þeim sem koma
fram með þau. Um mörg ár hefi
eg stöðugt æft mig á ýmsum at-
hugunum ekki auðgerðum. Þetta er
hér sagt til þess að menn geti séð,
að eg ætti að hafa í besta lagi skil-
yrði til þess að hrapa ekki að höfuð-
sannfæringum. En þar liggur mikið
við, að menn treysti mér ekki ver
en vert er. Og i huga minum er
ekki nokkur minsti skuggi af efa
um að hin mikla gáta er ráðin.
Ráðin eins og gátur eru ráðnar þeg-
ar um visindi er að ræða. Það er að
segja þannig, að nú er gatan greið
til ávalt vaxandi þekkingar.
Fagurlega Ijóst er nú yfir aðal-
KARTOFLER.
Danske Kartofler leveres frit i
Skib, Köbenhavns Havn, á 16 kr.
pr. 100 Kg. med Sække, mod Bank-
remburs. Grosserer Glintholm, Pile-
alle 55, Köbenhavn P.
atriðum þessa máls. Frá manninum
geislar magn sem kalla má lifmagn
og vitmagn. Og það hagar sér likt
og rafmagn. Og lif- og vitgeislan
eins likama, getur framleitt sig aftur,
inducerast, í öðrum likömum.
Það þóttu undur mikil, þegar
Marconi og Oliver Lodge tókst fyr-
ir ekki mörgnm árum að koma á
»þráðlausu sambandi* þó að ensk
mila væri á milli eða tvær. Nú
skiftast menn rafgeislaskeytnm' á þó
að þúsundir mílna séu á milli.
Lífgeislan frá Turvey framleiddi
hans heila — og annað Hkams-
ástand i manni sem var i nokkurra
milna fjarlægð. Athuganir sem eg
hefi getið nm i ritgerðinni »Lif-
geislan og magnan«, sýna að jafn-
vel stærstu vegalengdir sem orðið
geta á jörðu hér, koma ekki í veg
fyrir þetta »þráðlausa samband*
taugakerfanna. Athuganir á vanaleg-
um svefni og miðilsvefni sýna, þann-
ig að enginn vafi getur á leikið, að
þetta »þráðlausa samband* tanga-
kerfanna getur orðið, þrátt fyrir fjar-
lægðir slikar sem i stjörnugeimnum
gerast, sólhverfanna og jafnvel vetrar-
brautanna á milli.
Alt þetta er ekki vitund »mys-
tískt* eða dularfult. En hversu firna-
merkilegt það er. Og að halda
áfram á þeirri þekkingarbraut sem
þetta er byrjunin á, mun á skömmum
tíma gjörbreyta högum og horfum
á jörðu hér.
I næsta kafla verður svo sagt frá
því hvernig það getur orðið, að sá
sem deyr, kemur fram aftur á ann-
ari stjörnu, og að vísu sem likam-
leg vera. , Mdra
Helf;i Pjeturss
■ ——Qwi*. —
Bókin utn vet'inn eftir kínverska
fornspekinginn Lao-Tse er nýkomin
út hjá G. Gamalíelssyni i isl. þýð-
ingufeftir mag. Jakob Jóh. Smára
og Inga Jóhannesson, bróður hans
ogjhefir sá siðari einnig ritað eftir
mála til skýringar.
starfar eins og að undanförnu.
ur til 14. maí.
Inntökuakilyrði á skólann
a. Að umsækjandi sé ekki
Kensla byrjar 15. október og stend-
eru þesBi:
yngri en 14 ára, undanþágu má þó
veita, ef sérstök atvik mæla með.
b. ’g/Að hann hafi engan næman sjúkdóm.
c. Að hann hafi vottorð um góða hegðun.
d. Að helmingur af skólagjaldi og fæðisgjaldi sé greitt við inn-
töku, og ábyrgð sett fyrir eftirstöðvum.
e. Að umsækjandi sanni með vottorði, að hann hafi tekið fulln-
aðarpróf, samkv. fræðslulögunum, ella gangi undir inntöku-
próf þegar bann kemur í skólann.
Skólagjald er 75 krónur yfir námstímann.
Fæðisgjald var síðastl. ár um 70 kr. á mánuði fyrir hvern
nemanda, en fyrir næsta skólaár er enn þá óákveðið um fæðis-
gjaldið, en jafnan hefir það verið sett svo lágt sem unt er. Ef
nemendur vilja, geta þeir haft matarfélag og verður ait undirbúið
til þess.
Skólinn leggur námsmeyjum til rúmstæði með dýnum og púð-
um. Annan sængurfatnað verða þærgað leggja sér til.
Umsóknir um inntöku á skólann sendist formanni skólastjórn-
arinnar, alþm. Þórarni Jónssyni á Hjaltabakka, fyrir miðjan sept..
n. k.
ðliisinn í niHSlai
byrjar 1. nóvember og starfar 6 mánuði. Aðgang fá bæði piltar
og stúlkur, alls staðar að meðan rúm leyfir.
Inntökuskilyrdi a
Að vera vel læs og skrifandi, þekkja 4 höfuðgreinar reikningg
í heilum tölum og metrakerfi.
Hafa ófiekkað mannorð og engan næman sjúkdóm.
Nemendur hafa heimavist ef þeir vilja og matarfólag, Alt,
sem þar að lýtur, verður undirbúið fyrir þá.
Helmingur áætlaðs kostnaðs greiðist í byrjun skólaársins, en
ábyrgð gefin fyrir greiðslu hins.
Skólinn veitir kenslu í öllum almennum námsgreinum, sem
kendar eru í alþýðuskólum, og lætur sér ant um framfarir nem-
anda. — Umsóknir sendist fyrir 5. október.
Undirritaður gefur nánari upplýsingar.
Hvammstanga 18. ágúat 1921.
Asgeir Magnússon skólastjórL