Lögrétta - 06.05.1922, Blaðsíða 4
LÖGRJETTA
’þjóðina skorti gersamlega sögu-
iegt minni, hún þekki ekki fortíð
sína, og það virðist svo sem hún
vilji ekki þelckja hana.
Eíl. simfregnir
Khöfn 30. apríl.
Barthou kvaddur heim frá Genúa.
Símað er frá G-enúa, að Barthou
fuiltrúi Frakkastjórnar, hafi smátt
og smátt unnist til að slaka ofur-
lítið til við Bússa, gegn því að
Lloyd George gæfi Frökkum upp
nokkuð af hemaðarskuldunum. —
Fn nú hefir Poincaré kvatt Bar-
thou heim til þess að gefa skýrslu
og þykir óvíst, að hann eigi aft-
urkvæmt til Genúa.
Páfiim og Leninstjórnin.
Símað er frá Moskva, að páfin i
hafi viðurkent rússnesku ráð-
stjómina að lögum, og verður
skiftst á stjómarfulltrúum. Jesú't
ar og Fransiscana-munkar fá leyfi
til að starfa í Rússlandi undir
vemd ráðstjóraarinnar.
Khöfn 1. maL
Pjóðasambandsráðið kvatt á fund
Símað er frá Genúa, að alþjóða
sambandsráðið komi saman
fund 11. maí.
Kemalistar herja.
Símað er frá Aþenu, að Tyrkir
(Kemalistar) hafi byrjað ákafa
sókn á vígstöðvunum í Litlu-Asíu
og hafi þeir tekið tvö þorp af
Grikkjum.
Borgarastyrjöld í Kína.
Reuters frjettastofa tilkynnir,
að borgarastyrjöld sje hafin
Kína. Peking í umsátursástandi.
Khöfn 3. maí.
Rússar og Bandamenn.
Símað er frá Genúa, að banda-
menn hafi nú skrifað og afhent
fulltrúum Rússa í gær sameigin-
legt álitsskjal um Rússlandsmálin.
Að því loknu fór Lloyd George
með leynd frá Genúa til þess að
finna Poinearé forsætisráðherra að
máli í bæ einum á landamærum
ítalíu og Frakklands.
Lloyd George skammaður.
Enski marskálkurinn Wilson
ræðst með ákafa miklum á Lloyd
George í blaðinu < Daily Mail.
Heldur Wilson því fnam að stjórn-
málastefna Lloyd Ge^orge sje
breska heimsveldinu til eyðilegg-
ingar.
Dagbók.
2. maí.
Iðnskólanum var sagt upp á laugar
dagskvöldið. 12 nemendur luku burt-
fararprófi úr 4. deild skólans. A
skólanum hafa verið um 100 nemend-
ur í vetur og þar að auki aukadeild
fyrir rafvirkja og prentara um 40
nemendur. 14 kennarar hafa verið
við skólann í vetur, auk skólastjóra,
t>ór. B. Þorlákssonar.
Togararnir. / f veiðum komu í gær
Snorri Sturluson og Vínlandið. Hinn
síðari með Klaða vjel.
10 ára skólastjórastarfsemi Snorra
Sigfússonar kennara á FJateyri var
' minst þar á laugaraaginn við upp-
sögn skólans á þann hátt, að nem-
endur færðu honum vandaða gjöf og
formaður skólanefndar flutti honum
þakkarávarp fyrir nefndarinnar hönd.
Landlækr.isembættið. Guðmundur
Hannesson piófessor, sem verið hefir
settur landlæknir nú í 7 mánuði, skil-
aði embættinu af sjer aftur í gær í
hendur Guðmuudi Björnssyni.
o. mai. *
M.b. Leó fór til Englands á sunnu-
daginn var með kola í ís til sölu þar.
Ætlar báturinn að leggja stund á
kolaveiðar við England í vetur og
nota tognótaaðferðina nýju.
Austur til veiða fóru í gærkveldi
togararnir Kári og Austri. Eru tog-
aiarnir nú óðum að leita þangað til
veiða.
Landskjörið. Af hálfu Alþýðu-
flokksins verða í kjöri þessir og í
þessari röð: Þorvarður porvarðsson
prentsmiðjustjóri, Erlingur Friðjóns-
•son bæjarfulltrúi á Akureyri, Pjetur
G. Guðmundsson bókhaldari, Jón
Jónatansson afgrm., Guðm. Jónsson
frá Stykkishólmi og Sigur.jón Jó-
hannsson bókh. á Seyðisfirði.
4. mal
Páll ísólfsson og frú eru nú komin
til Khafnar, og munu þau koma hing-
að með Gullfossi næst, og einnig systir
frúarinnar, sem hjá þeim hefir veriS
í vetur.
Merkur maður andaðist að pverá
í Vesturhópi 26. mars þ. á., Jakob
bóndi Gíslason, fæddur árið 1864.
Þau Sigurbjörg Arnadóttir kona hans
reistu bú á Þverá fyrir rúmum 30
árum alveg efnalaus. Heimili þeirra
var alla tíS kunnugt aS ráSvendni,
gestrisni og greiðasemi. — Jarðar-
för Jakobs heitins fór fram 15. apríl.
Við gröfina stóð ekkja hins dána
manns, og umhverfis hana 13 börn
þeirra hjóna uppkomin, 10 synir og
3 dætur, öll hin myndarlegustu. —
petta var ánægjuleg og sjaldgæf
sjón — ljós vottur þess, hve óvenju-
miklu óþreytandi elja, sparsemi og
hirðusemi samhentra hjóna fær til
vegar komið, þó ekki sje í byrjun
annað til en — hugur þeirra og
hönd. L. K.
Fagnaðarsamsæti var cand. theol.
Bagnari Kvaran og konu hans haldið
10. mars af Sambandssöfnuðinum í
Winnipeg, sem R. Kvaran rjeðist til
prestur. Stýrði fagnaðinum forseti
safnaðarins, Magnús B. Halldórsson
la.knir, og hjelt aðalræðuna fyrir
minni þeirra hjóna. Ræður fluttu
ennfremur sjera Rögnvalidur Pjeturs-
son og sjera Albert E. Kristjánsson,
og síðan heiðursgesturinn. Söngur var
og í samsætinu mikill. Að ræðuhöld-
um loknum fóru fram veitingar í
samikomusal kirkjunnar. Sátu sam-
sætið nærfelt 300 manns.
Síríus fór fiá Bergen í gær. Á
hann að koma hingað iþ. 8., og fara
aftur hjeðan þ. 11.
Um fyrstu ræðu Ragnars Kvaran
í kirkju Sambandssafnaðarins íWinni j
peg segir Heimskringla þetta: „Rúrn-
Itga 500 manns mun hafa verið sam-
ar: komið, er allir ljetu hið besta
yfir ræðunni, og má gera ráð t’yrir,
að kirkjan verði vel sótt í framtíð-
inni. Sjera Ragnar er eigi eingöngu
hið mesta glæsimenni, heldur af-
bragðsgóður prjedikari. Ræða hans
var hvorttveggja afbragðsvel samin
og víðsýn og sannfærandi. Þá eiga
menn erindi í kirkju, þegar menn
roega eiga von, á þesskonar prjedik-
unum.........
ið „Fylla' ‘ þýskan botnvörpung og
fíutti til Vestmannaeyja. Höfum vjer
lieyrt, að hann hafi fengið 6 þúsund
króna sekt.
Sterling. Skeyti barst Eimskipafje-
laginu í gær frá Þórólfi Bech skip-
stjóra. Segir þar að Geir sje byrjað-
ur á björgunartilraununum og farinn
að dæla vatni úr skipinu, en ekki er
sagt frá, hvort þetta hafi borið nokk
urn árangur. Veður er hið hagstæð-
asta og hefir verið síðan skipið
strandaði. Vonirnar til að skipið ná-
ist út eru afar litlar, en þó mun
eigi með öllu loku fvrir það skotið,
a'5 björgunarskipinu takist að ná
Sterling á flot.
Erjefin hans Bröndals.
Morgunblaðið og Lögrjetta hafa
fiutt fáein brjef frá Matthíasi til
ritstjórans. Þegar jeg las þetta,
datt mjer í hug, hvort nokkur
maður hirti um brjef Benedikts
Gröndals. Þau eru vitanlega full
af fyndni og rituð af mikilli snild.
Mjer dettur í hug, það sem merk-
ur maður sagði mjer nýlega, ald-
urhniginn. Hann sá brjef, eða
heyrði, frá Gröndal, ritað til E.
Th. Jónassens, sem mun hafa ver-
io bæjarfógeti í Reykjavík þegar
Gröndal ritiaði brjefið, en þá var
sögumaður minn í skóla. Þetta
brjef var umkvörtun um mykju,
eða forarfýlu af áburði, sem lát-
inn var á túnblett í bænum. Var
brjefið afarfyndið og langt, víð-
förult og ef til vill nærgöngult
við einstaka menn. En þess háttar
verður að fyrirgefa ritsnillingi. —
Jónassen hafði tekið brjefið til sín
og haft þau orð um, að þ‘ e 11 a
gæti hann ekki fengið sig til að
láta af hendi við skjalasafnið. En
eí til vill er það, brjefið, glatað
fyrir bragðið. Þegar jeg heyrði
þetta, kom mjer í hug að vekja
athygli á brjefum Gröndals. Ef
til vill eru þau vel geymd, víðs-
vegar. Fegurðar frágangur þeirra
kann að hafa haldið hlífiskildi
Uppboðsauglysing.
Mánudaginn þann 15. maímánaðar næstkomandi verða við op-
inbert uppboð, er haldið verður á Xeðra-Hál.si í Kjósarhreppi,
samkvæint beiðni erfingja dániarbús Þórðar hreppstjóra Guðmunds-
sonar, seldar kýr, bestar og sauðf je. svo og ýms búsáhöld og inn-
anstokksmunir dánarbúinu tilheyrandi. — Gjaldfrestur er til 20.
oktbr. næstkomandi.
Uppboðið hefst kl. 1 e. hád. greindan dag. — Uppboðsskil-
málar verðg birtír á uppboðsstaðnum.
Skrifstofu Gnllbringu- og Kjósarsýslu, 15. apríl 1922.
Magnús Jónsson.
í53SSKH
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við jarðarför
sím Stefáns Stephensen frá Hróarsholti.
Aðstandendur.
Dómsmálafréttír.
málaflutningsmanns Lárusar Fjeld
Med, 120 kr. til hvors, greiði á-
lcærði Ólafur Friðriksson að helm
ingi, en hinn helminginn greiði
Morgunblaðið flutti á sínum.b;,nn in solidum með átærðum
sinum tíma dóm aukarjettarins í Kendrik Qttóssyni, Markúsi Jóns-
Ólafsmálið.
málinu. Þar var Ólaíur Friðriks-
son dæmdur 6X5 daga fangelsi
við vatn oe brauð. Hendrik Ottós-
son í 4X5 daga fangelsi sömu
ti gundar, Markús, Reimar og
Jónas 3X5 daga famgelsi einnig
við vatn og brauð, og Ásgeir Guð-
j.nsson sýknaður.
ökipaður sækjandi málsins fyr-
ir hæstarjetti var hrj.mflm. Jón
Asbjörnsson, en verjandi hinna
ákærðu var hrj.mflm. Láfus
Fjeldsted.Málið var dæmt i hæsta
rjetti 1. þ. m. og í dóminum seg-
ir svo:
Eftir hinum ófullkomnu upplýs-
ingum, sem fengist hafa í málinu
og samkvæmt ástæðum þeim, er
greindár eru í hinum
dómi, og ekkert vemlegt þykir
syni, Reimari Eyjólfssyni og Jón-
asi Magnússyni.
Dóminum skal fidlnægja með
>aðför að lögum.
o mai.
Strand. enn. Vjelskipið „Óðinn‘;,
sem áður hefir verið í strandferðum
á Austfjörðum, en nú hafði verið
gert út á fiskveiðar, er nýlega strand
að úti fyrir Hornafirði. Fregnin kom
hingað í fyrradag. Eigendur voru
þeir St. Th. Jónsson konsúll á Seyð-
isfirði, Sig. Jónsson verslunarstjóri
þar, Valtýr Guðmundsson prófessor
í Khöfn o. fl.
Fylla kom hingað í gærmorgun
snemma frá Danmörku og tekur nú
við landhelgisgæslunni hjer eftir Is-
lands Falk. Skipið kom við á Seyðis-
firði og var statt þar, þegar strand
Sterling bar að höndum á mánudags-
ro.orguninn og veitti þar skjóta hjálp
til að flytja póst og farþega úr skip-
inu inn á Seyðisfjörð, éins og áður
hefir verið sagt frá hjer í blaðinu.
Foringi skipsins er nú barón Gylden-
krone. Hafnsögumaðurinn er Sigurð-
ur Oddsson. Nokkrir farþega.r komu
hingað með skipinu frá Seyðisfirði.
Mislingar. Einn skipverja á Fylla
var veikur af mislingum, þegar hing-
að kom í gær. Var hann einangraður
í skipinu og settur á sóttvamarhúsið
þegar hingað kom, svo væntanlega
er engin hætta á smitun.
Landhelgisbrot. Á leiA sinni frá
Seyðisfirði og hingað tók varðskip-
athugavert við, verður að stað-
fyrir þeim. En tímans tönn er iðin; festa hann, þó þannig, að brot
að jeta í sundur það, sem traust- óiafs heimfærist undir HJ4 gr. 1.
ara er en pappírinn. Helga dóttir Rg 0g 58. gr. sbr. 99. gr. hegn-
sr.illingsins, læknisfrú í Hafnar- ingarlaganna og ákveðst refsing-
firði, á ef til vill brjef merkileg in fyrir hann 8 mánaða betrunar-
frá föður sínum, en varla þó þau, húsvinna, og að refsing hinna á-
sem send hafa verið út í busk- kærðu Markúsar Jónss^nar, Reim
ann, því naumast hefir Gröndal ars Eyjólfssor.ar og Jónasar Magn
ritað brjef sín í bók. — Hvernig ússonar ákveðst 2X5 daga »fang-
sem þetta er, þarf að vinda bráð- eisi við vatn og brauð, og að
an bug að því að safna brjefum málskostnaðarákvæði dómsins
Ráöstejnan í Benúa.
Af upptalningu þeirri sem fer hjer
á eftir á fulltrúum og sjerfræðing-
um þeim, sem ríkin hafa sent á ráð-
stefnuna í Genúa, má sjá að það er
ekki nein smáræðis samkoma sem
stendur yfir þar um þessar mundir.
Og af herbergjatölu þeirri sem sendi-
nefndirnar bafa fengið til að búa í,
má ráða að eigi mnni vera auðvelt
að fá húsaskjól á gistihúsunum í
Genúa um þessar mundir, enda þótt
fjölda margir hafi fengið inni á sristi-
húsum utan borgarinnar.
Inni í borginni búa sendinefnd
Englendinga — 110 manns, í 130
herbergjum, serdinefnd Belga — 14
roanns í 18 herbergjum og sendinefnd
Sviss — 8 manns í 10 herbergjum.
pessar þrjár sendineíndir, eru allar
á sama gistihúsinu. Sendinefnd Þjóð-
verja er 80 manns og býr á gisti-
húsunum Eden Park Hotel og Bavar-
ia Hotel í 80 herbergjum. ítalska
nefndin er 100 manns og býr í 136
herbergjum, Japanarnir eru 50 og
hafa jafnmörg herbergi til umráða
og fulltrúar Frakkaieru 90 og hafa
Gröndals. Þau mundu verða kær- breytist að þvi leyti, að hinir á- 90 herbergi. Fulltrúar Rússa og sjer-
fræðingar munu vera um 65 talsins
og hafa þeir 80 herbergi. Búa þannig
517 sendimenn inn í borginni og
hafa nær sex hundruð herbergi til
afnota.
I nágrannabæjunum eru: sendinefnd
Dana 10 menn, frá Svíþjóð 10, frá
Noregi 8, frá Hollandi 16, frá Lux-
emburg 4, frá Spáni 15, frá Portú-
gal 9, Ungverjalandi 7, Austurríki 6,
Búlgaríu 15, Albaníu 3, Jugóslavíu
12, Póllandi 40, Lettlandi 6, Estlandi
24, Tjekkóslóvakíu 30, Lithauen 7,
Finnlandi 7, Rúmeníu 22 og Grikk-
landi 22. Samtals 323 fulltrúar. Als
hafa þannig verið taldir 840 full-
trúar frá ríimlega 30 þjóðum, en hjer
eru þó ótaldar ýmsar smáþjóðir.
Samtals eru fulltrúar.iir og aðstoðar-
menn þeirra nálægt 1000.
Afarmiklar umbætur \oru gerðar
á símasambandi borgarinnar bæði við
innlendar stöðvar og eins við flestar
höfuðborgir Evrópu. Var hyorttveggja
gert að leggia nýjar símalínur í
ýmsar áttir, rg reisa sterka loft-
skeytastöð, til þess að annast skeyta-
Wmdingar til fjariægra staða.
Flugslys.
Hinn 4. f. m. fórst Handley-Page
flugvjel skarnt frá Peking og ljetu
17 menn lifið, alt Kínrerjar.
komið sælgæti öllum almenningi: kærðu Markús og Jónas greiði
og harðla útgengileg. Mjer sýnist einir in golidum málsvamarlaun
sem ritstjóri Morgunblaðsins, sem ' talsmanna ‘þeirra í hjeraði.
er útgefandi, ætti ekki að láta i Allan áfrýjunarkostnað málsms,
þetta mál niður falla. — Þá era! þ.ar með talin málflutningslaun til
blaðaritgerðir Gröndals margar og sækjanda og verjanda fyrir hæsta
m jög læsilegar, bæði í Fróða, þeg- j r.ietti, 120 kr. til hvors, greiði
ar Gröndal var kennari við Möðru! binir ákærðu Olafur, Hendrik,
vallaskólann, og svo ritaði hann Markús, Reimar og Jónas sem
í Fjallkonuna oft gleðiríkar og síðar se.gir.
gamansamar ritgerðir. Alt þetta j Því dæmist rjett vera:
ætti að setja í bók og væri þá vell Refsing ákærða Ólafs Friðriks-
gert, bæði gagnvart höfundinum ■ sonar ákveðst 8 mánaða betrunar-
og almenningi. Mikið er að græða húsvinna, og hinna ákærðu Mark-
á brjefum Matthíasar, að sjálf-:úsar Jónssonar, Reimars Eyjólfs-
sögðu. En þó var Gröndal slyng- sonar og Jónasar Magnússonar
ari rithöfundur í sundurlausu máli 2X5 daga fangelsi við vatn og
sökum fyndni sinnar og flugs. —1 brauð fyrir hvem þeirra. Hinir
Hann var að vísu nærgöngull ákærðu Markús Jónsson og Jón-
stundum við menn, t. d. Guðmund:a! Magnússon grciði einir in solid
Hjalta.son í blaðinu Fróða. En ! nm málsvamarlaun sín í hjeraði.
hans hæðni eða græska var þann-jAð öðru leyti skal aukarjettar-
ig, svo listfeng, að um hana. mátti dómurinn vera óraskaður.
ekki fást. Skáldaýkjur lágu hon- J Allan áfrýjunarkostnað m.tlsins,
um svo lausar á tungu, að hann‘;þar með talin málflutningslaun til
gat ekki gert að því, þó fleygar sækjanda og verjanda fyrir hæ.sta
setningar kæmu af vörunum. ' rjetti, málflutningsmanns Jóns
Guðmundur Friðjónsson. Ásbjömssonar og hæstarjettar-