Lögrétta - 07.08.1922, Page 2
LÖGRJETTA
i f
uin, bæSi stjómarsimiuin og stjórn
*randstæðingum. Átta þingmenn
TQru fjarverandi.
g g j atollurinn var hækkaður
aneð 79 atkvæðum gegn 60.
Hvað afstöðu stjómarinnar til
kjöttollsins snertir má geta þess,
aö Blehr forsætisráðherra ljet þess
getið í umræðunum, að stjóminni
hefði ekki fundist ástæða til að
fara fram á hækkun kjöttollsins
nú, en hefði fremur kosið aö láta
hann bíða hinnar almennu endur-
skoðunar tollanna. Yerður ljóst af
því, að stjómin hefir fremur verið
andvíg því, að tollurinn var settur
& nú.
---- o -
Bach og föandal.
Nöfrdn Baeh og Hándel kannast
margir við nú orðið hjer í bæ. Þeir
hafa svo oft sjeð þau á söngskrám
hinna. ungu hljóöfærameistaravorra
og söngsnillinga.
En ef spurt væri: Hverrar þjóð-
ar voru þeir, hvenær vora þeir
uppi, hvar lifðu þeir og störfuöu
og hvemig urðu þeir svona frá-
bærir listamenn 1 Þá yröi víst flest-
um ógreitt um svar.
Jeg held, að það sje misráðið af
hinum uúgu listamönnum vorum,
þeim, sem kynna vilja þjóö vorri
listaverk útlendra meistara, aö láta
hana ekki vita önnur deili á þeim
en nöfnin. Jeg minnist þess ekki, aö
jeg hafi sjeö æfi þssara meistara
getið á íslensku, þó undarlegt sje.
Líf þeirra beggja þolir þó aö koma
í birtuna, hvort sem litið er á trú
þeirra eða breytni. Báðir voru þeir
'tvímælalaust hinir mestu tónsnill-
ingar og hljóðfærameistarar, sem
nokkurn tíma hafa uppi veriö og líf
þeirra ágæt fyrirmynd ungum lista-
mönnum.
Hjer er ekki rúm til að sgja ýtar-
lega æfisögu þessara meistara; en
jeg ætla, meö leyfi ritstjórans, aS
segja þeim, sem ófróðir kunna að
vera, eithvaö af því, sem dreif á
daga þeirra, eins og mjer hefir kent
verið. Gæti það ef til vill, orðiö til
þess, að enhverjum yröi þá, eins og
mjer, nöfn þeirra minnisstæöari
og kærari,
I.
Jóhannes Sebastian Bach var
fæddur í borginni Eisenach á Þýska
landi 21. mars 1685.
Hann var ættaður frá Þýringum.
Þar bjuggu forfeöur hans og ætt-
menn á 16. og 17. öld, og var þaö
alt margkvísluð söngmannaætt.
Forfaðir Baeh-anna hjet Yeit
Baeh, og voru niðjar hans allir
"ngmenn í 6 ættliðu. V. Bach var
uan og bakari, en unni mjög
■' Vigiist, og sló gígju sína í tóm-
uridum sínum og söng sjálfur
i -ð, en myLnukarlinn sló taktinn.
Bann bjó um hrífc i Pressburg, en
af því aö hann gerðist eindreginn
mótmælandi, þá var hann gerður
rækur þaðan (1550). Hvarf hann
þá aftur til áitthaga sinna í Þýring-
um.
Það er þrent í fari V. Bachs, sem
auðkendi alla niðja hans; þaö var
songgáfan, ættjarðarástin og trú-
festi viö lúthersku kirkjuna.
Það er eins og sönghæfileiki ætt-
arinnar kæmi fram í J. S. Bach í
allri sinni fyllingu, og sem hafin
upp í æöra veldi. Faöir hans Jó-
htnn Ambrosius Bach í Eisenach-
var þar borgarsöngvari; móöir
hans Elísabet Lámmerhirt var frá
Herfurðu (Erfurt) á Saxlandi.
Þrír synirþeirra komust til fullorö-
ins ára, og var J. S. Bach yngstur.
Af lífskjörum Bachs er ekki
margt glæsilegt að segja. Hann
lifði fremur inn á við kyrlátu, auö-
ugu listamannslífi heldur en út á
við til fjár og frama. Þegar hann
var 5 ára misti hann foreldra sína
og fór þá til annars eldra bróöur
sms, Jóhanns Christoph B., organ-
leikara í Ohrdruf, og naut þar
kenslu í þátímans fræöigreinum, og
þar á meðal grísku og latínu. Auð-
vitað var honum kent að leika á
bljóðborð (klaver) og fiðlu. En
ekki var hann nema 16 ára, þegar
bróðir hans sló af honum hendinni
og ljet hann spila á sínar eigin spýt
ur; fór hann þá út í heiminn meö
tvær hendur tómar; hann haföi
Láa og skæra söngrödd og leikínn
var 1 ann orðinn í hljóðfæralistinni.
Þetta var nú alt, sem átti, ungur
crengur.
Árið 1700 tókst hann ferð á hend-
ur til Liineborg; var hann þar tek-
inn í söiigsveit í Michelins-skóla'svo
nefndum; en þá vildi svo til, að
liann komst í mútur og misti sín
skæru hljóð; hann var þá notaður
til að leika á fiðlu og organ; fyrir
það skyldi hann fá mat og vasa-
skildinga, einn dal á mánuði hverj-
um. En drengurinn var dáðríkur og
dró ekki af sjer, og með því tókst
lionum að verða listamaður; hrykki
bonum dagurinn ekki til þá vann
hann fram á nætúr. Oft fór hann
heilar dagleiðir til að heyra og læra
eitthvað nýtt. Einu sinni lagði hann
leið sína til hins fræga organmeist-
ara Rúnteen í Hamb^rg, og öðru
sinni fór hann til Celle til að hlusta
ú hina - orðlögðu frakknesku hljóð-
'færasveit þar. Svona liðu 3 ár;
hann fjekk enga fasta tilsögn, held-
i(T kendi sjer að mestu leyti sjálfur.
Enn þurfti hann að fara að
skygnast um eftir einhverri stöðu
sjer til lífsuppeldis. Og af því að
hann var sannur Bach, þá hvari
bann aftur til ættstöðva sinna í
Þýringum; gerðist hann þá fyrst
tðlari í Weimar, en síðar hrepti
hann ógn lítilmótlegt organleikara-
starf í Amstadt. Þá var hann 19
ára. í þessum gestrisna smábæ var
hann 3 ár, og þroskaðist að andleg-
um vexti og vitsku; sönggáfa hans
var þá að brjótast úr hýðinu. Bæj-
armönnum fanst fátt um þær sveifl •
ur; „hann er farinn að breyta lög-
i:num“, sögðu þeir, „á ýmsa vegu“.
Slík nýbreytni þótti þeim óhæfa og
vísuðu honum að lokum á burt.
Einu sinni hafði hann beðið þá um
mánaðarorlof, en það urðu þá fjór-
ir mánuðir. Auðvitað hafði hann
varið þessum mánuðum til að læra
organslátt hjá Buxteude í Liibeck
og orðið að labba þangað, eigi
skemra en 7 mílur vegar. En því
fór fjarri að bæjarmenn teldu hon-
um þetta nokkra afsökun.
Þá hlaut B. sömu stöðu næst í
Muhlhausen í Þýringum (1707).
En lítið var á þeim skiftum að
græða, því að öll árslaunin vora
85 gyllini. En B. kveið hvorki elli
nje fjeleysi, heldur kvæntist á því
sama ári fyrri konu sinni, Mari
Barbaru. Þessa konu sína misti
hann 1720; en ári síðar kvæntist
hann seinni konu sinni, er hjet
Anna Magdalene Wiilkeús, gáfuð
söngkona. I hjónaböndum þessum
fæddust honum alls 19 börn; en ekki
lifðu hann nema 6 synir og 4^dæt-
ur, og þann, sem mestan orðstír
gat sjer af sonum hans, átti hann
viðfyrri konu sinni. B. var trúfast-
ur eiginmaður og ágætur faðir
hörnum sínum.
Ekki bjó hann nema eitt ár í
Muhlhausen; þá bauð Wilhelm
Ernst hertogi í Weimar honum hirð
söngvararstarf þar og organleikara.
Hertogi þessi var einna fremstur
smáhöfðingja þeirra, sem þá voru
uppi í Þýskalandi; þar dvaldi hann
mörg ár (1708—1717). — Hann
gegndi nú fyrst og fremst organ-
leikarastarfinu, en jafnframt tók
hann þá að semja kirkjuleg tóna-
ljóð. Frá þessum manndómsárum
hans eru margir af organtónum
hans og forspilum og kliðlögum
þeim, er „fúgur“ nefnast, og eiga
rót sína að rekja til lagsöngvaskóla
Palestrina, hins ítalska tónsnillings
\dáinn 1594). Þar samdi h..nn líka
s:na hugvitsfullu organ-kórsöngva,
er söfnuðurinn skyldi syngja, og
r.arga hina kirkjulegu hátíðasöng-
va sína. Alt vildi hann helga sinni
liæru, lútersku kirkju; sá kirkju-
söngur, sem fyrir var, átti til sið-
bótarinnar rót sína að rekja. Frá
Lúther og samverkamönnum hans
sireymdi sú sönglind, sem veitti
kirkju hans lifandi vatn öldum sam-
an. Sálmakveðskapurinn og söng-
urinn hjeldust í hendur. Hátíða-
scngvar B. áttu að verða nokkurs-
konar uppbót fyrir kaþólsku messu-
söngvana, sem lögðust svo mjög
niður með siðbótinni, enda hafa
þeir þróast vel í lúthersku kirkj-
unni. í öllum þessum hátíðasöngv-
um hvílir aðaláherslan á einsöngn-
um (sólósöngnum) ; í þeirri grein
er B. allra tónskálda frjósamastur.
Palestrina var fyrirrennari hans og
fordæmi í þessu efni sbr. kirkju-
sc'ngva Palestiina 1581).
í Weimar varð B. fyrst frægur
af organslætti sínum. Einusinni
veðjuðu þeir B. og frakkneskur org
anleikari, L. Marchand, um það,
hvor leiknari væri; en þegar Marc-
hand var búinn að kynna sjer
snilli B., þá þótti honum hyggileg-
ast að vinda sjer út úr þeim kapp-
leik, þótt orðlagður væri.
Árið 1717 gerði Leopold, fursti
í Anhalt-Köthen B. að söngstjóra
sínum. Furstadæmið var kalvínskt
og kirkjusöngurinn þar að engu
metinn. Úr þessu vildi furstinn
bæta. Hann var ungur og fagurfræði
lega mentaður maður, og sjerstak-
lega sönghneigðúr. B. verður hvort-
tveggja í senn: kennari furstans
og fjelagsbróðir, og iðkuðu þeir
sönglistina saman þar við hirðina;
þar hafði B. litlu eiginlegu skyldu-
starfi að gegna; þar naut því vax-
andi sönggáfa hans nægilegs lofts
og sólskins til þess, að hún gæti
náð fullum vexti. Frá þeim dög-
um stafar megnið af hirðsöngvum
hans. smáum hljóðfærasamleikjum
(sónötum), innan heimilanna, og
dönsum (suiter); við hirðimar og
í hófgörðum komu nú (á 18. öld-
inni) kirkjulegir kórsöngvar í stað
veraldlegra mansöngvakóra, er áð-
ur tíðkuðust (Madrigaler), í því
fór B. að dæmi Palestrina sbr.
kórsöngvar P. 1581).
En altaf bjuggu B. þær vonir í
brjósti, að sjer mundi gefast víð-
tækara starf í þjónustu kirkjunnar
og þær vonir ljet hann bera sig til
Leipzig (1723); þar varð hann
songstjóri við Thomasskólann svo
nefnda. Leipzig varð nú síðasti á-
fangastaðurinn á æfibrmt hans;
þar bjó hann því sem næst sam-
fleytt til dauðadags (28. júlí
1750).
f söngsveitinni, sem hann átti
að stýra, voru 55 söngsveinar, og
með þeim átti hann að annast all-
an söng í 4—5 kirkjum; þar mátti
hann hafa fult frelsi til að semja
sjálfur megnið af kirkjusöngvunum
og átti það ekki illa við hann; þar
að auki tók hann að sjer að stjórna
stærsta söngfjelagi borgarinnar, og
ennfremur söngfjelági háskólans, og
taldi hann þá söngstjóraembætti sitt
við Thomas-skólann fremur sem
aukagetu.
En þó að hann hefði nú ærið
að starfa og væri kominn á rjett-
an stað að því leyti, þá fór fjarri,
að hann lifði í friði og fullsælu í
borg þessari. Hann stóð þarna eins
og einn uppi, innan um oddborgara,
bundinn af ótal hliðsjónum til
hægri og vinstri; hann var innaTi
um fólk, sem ekki hafði hugsað
um, að nokkuð væri sjerstaklega í
hann varið. Yerst fjell honum þó
söngstjórastaðan við Thomasarskól-
ann; þar var hann bundinn í báða
skó; hann varð meira að segja að
kenna latínu við skólann langa hríð,
til að auka te£jur sínar; þetta bak-
aði honum hið mesta amstur og
ónæði. Svo var alt af skornum
skamti, sem hann þurfti að hafa
til þess að geta gegnt starfi ;ínu
eftir kröfum listarinnar. Tlonum
voru t. d. ætlaðir einir 7 menn til
hljóðfærasveitarinnar; hina varð
hann að útvega sjer sjálfur, eins
og best gekk.
Það er ótrúlegt, hve miklu B.
fjekk afkastað í Leipzig, svo kröpp
sein ytri kjórin voru Allur þorrinn
af hinum fjölmörgu kirkjutónum
hans eru frá þeim árum.
Ekki var um neina upplyfting
að ræða öll þessi ár, nema hvað
hann brá sjer tvisvar að heiman,
í annað skiftið til Dresden, og í
hitt skiftið til Friðriks II. Prússa-
konungs í Berlín. Hann átti nú
einusinni þarna heima, og þar sat
hann sem fastast, þrátt fyrir alt
ardstreymið af hálfu skólápilta og
þjarkið við skólastjórann.
Svo voru kjör hans bágborin, að
hann varð sjálfur að „stinga nótna-
plöturnar“, til þess hann gæti látið
prenta nokkra af söngvum sínum.
Sjón hans var þá farin að veikl-
ast, og er haldið að þessi „nótna-
s(unga“ hans hafi algerlega farið
með hana.
Síðustu ár B. voru einkar þung-
bær; hann varð alblindur; tvisvar
voru augu hans skorin upp, og
meðul var hann látinn fá óaflátan-
lcga; en honum versnaði æ því
raeira.
En þegar B. var dáinn, þá gerðu
bf.rgarbúar útför hans veglega;
en ekki var þó meining þeirra um
þennan mikla meistara rótgrónari
hjá þeim en svo, að eftirlifmdi
ekkja hans komst í hina mestu ör-
birgð og volæði. Hún dó 10 árum
síðar (1760) og var þá kcmin á
>onarvöl. —
í Bach mætast tvær aldir í sögu
sönglistarinnar, og er hann sem full
trúi þeirra beggja: hinnar hreim-
miklu og fjöltónuðu lagsöngvaald-
ar, er náði hámarki sínu með Pa-
lestrina; þá var hver röddin í marg-
rödduðum söng sjálfstætt lag, eins
og í tvísöngnum (polyfoni); en
jafnframt var B. fulltrúi eða aðal-
frumkvöðull hinnar mjúktónuðu
samhljómsaldar, þar sem ein rödd-
in í hverju margrödduðu lagi var
aðalröddin, en hinar henni til
fegranar og fyllingar (homofoni).
Það sýnir alhæfni B., að tónar
hans ná því nær til allra greina
sönglistarinnar. Organmeistari hefir
enginn verið slíkur sem hann. Ai
því að hann var í aðra röndina lag-
söngvaskáld, þá er harm meistari i
því að semja kliðlög (,,fúgur“)
fyrir hljóðfæri, eins og Palestrina
hafði áður verið í því að semja þau
fyrir mannsraddir eingöngu; tók
þá hver söngvari sinn þátt í text-
anum, og svo lenti öllum saman að
lokum í hrífandi klið. Lítið sýnis-
horn af þessum lagsöngvum er hið
alkunna lag: „Lóan í flokkum flýg-
ur“ (kanon).
Þetta kemur fram hjá B. í Org-
antónum hans og 15 forspilum, og
þar að auki í meira en 100 organ-
kórsöngvum; og eigi kemur það síð-
ur fram í þeim tónaljóðum, sem
hann ætlar hijóðfærum einum
(hljóðborði, fiðlu, gígju o. fl.).
I kirkjutónum hans er organstíll-
inn auðfundina framar öllu öðru,
Organmeistarinn er jafnfamt meist-
ari lúthersku Mrkjunnar, eins og
Palestrina var á sínum tíma meist-
ari rómversku Mrkjunnar.
B. hefir sam'ð 5 heila árganga
af kirkjulegum hátíðasöngvum yfir
alla sunnudaga og helgidaga, og
eru þeir alls 295. Allir eiga þeir
rót sína í einhverju kirkjulagi
(sálmalagi) eða kórsöng. — Þá hef-
ir hann og samið tóna við píning-
arsögu Krists í hverju guðspjalli
fyrir sig („Passioner“, t. d. Matt-
heusar-passion), og eina tóna út af
píningarsögunni í heild sinni. Eina
kaþólska hámessu hefir hann og
samið, og telja sumir hann jafn-
vel ná hámarM listar sinnar ein-
mitt þar.
Ennfremur hefir hann ort guð-
spjallatóna (oratoriur) á jólum,
pásbum og hvítarunnu: Ein tenór-
rödd les upp guðspjöllin, söngsveit-
in grípur inn í á viðeigandi biblíu-
orðum, og inn á milli koma svo ein-
söngvar í sálmastíl. Kórsöngurinn
er meginþátturinn í þessu öllu.
Við þetta bætast enn biblíutexta-
tónar hans (mótettur), þó að eigi
jafnist þeir við hátíðasöngva hans
að listfengi.
Það er sannmæli, sem tónskáldinu
Mozart. varð eittsinn orði, er
hann var að leika eitt af tónljóð- i
im Bachs:
„Hann ætti ekM að heita Bach.
(bekkur, lækur), heldur Meer (haf)
sökum þess hve hann er óendanlega.
a> ðugur af tónasamböndum og sam-
h3jómum“.
Bach var ekki virtfir að verð-
ltikum í lifanda lífi, og nærri lá,
að hann gleymdist með öllu á.
h:nni köldu og andlega dauðu skyn-
S'-misöld, sem þá fór í hönd. Það
er fyrst á 19. öld, að hann kimur
í Ijósmál aftur, einkum eftir það-
er tónskáldið Mendelsohn hafði.
stigið fyrsta sporið með því að
gera tóna Bachs út af píningarsögu
Mattheusar lýðum kunna (1809).
Nú hefir Bach verið reistur dýr-
kgur og óbrotgjarn minnisvarði.
Bá minnisvarði er: öll tónaljóðin
hans, sem Bach-fjelagið í Leipzig.
gaf út á 200 ára afmæli hans (21.
mars 1885), 30 bindi alls, í fjögra.
blaða broti.
Þar rætast orð skáldsins:
„Sem kurl þá funa fela um stund,
fram hann brunar aftur' ‘.
Frh.
......— ..........
Stóra Norræna ritsímafjelagið
hjelt aðalfund sinn í Kaupmanna-
höfn 30. júní. Fjelagið stendur með
hinum mesta blóma og var hluthöf-
um greiddur 22% arður af hlufca-
fje þeirra. Aðalforstjóri fjelagsins
er Weimann.