Lögrétta

Eksemplar

Lögrétta - 02.09.1922, Side 3

Lögrétta - 02.09.1922, Side 3
LÖGRJETTA ja Þjóðverjar um algeraai greiðslnfrest til 1924. Prakkland er þannig sett, aS það fær bókstaflega ekki neiþt | borgað. Það hefir varið 80 milj-1 ai d frönkum til vðreisnarstarfsins,' >en ekkert fengið endurgreitt. — ^ Eentan af þessari gífurlegu upp- ^ haið veldur stórkostlegum tekju-! ihalla á fjárlögum Prakká, og hefir i för með sjer fjárhagslega hættu fyrir landið- Prakkar eru engir heimsveldis- sinnar, þeim er viðreisn Bvróp.u áhugamál, þeim er enginn hugur á því að koma illa fram gagn- vart Þjóðverjum; en það er rjett- mætt af Prökkum að benda á sinn eiginn hag, sem eitt af meginat- riðunum í vandræðum álfunnar. Þessvegna leggur Prakkland alla áherslu á, að fá skaðabæturnar greiddar, því það væri fyrsta stig- "til viðreisnar álfunnar. Pólk segir: Hvers vegna draga Prakkar ekki úr vígbúnaðinum. Þessu kvaðst Poincaré svara því einu að Frakkar væru ekki enn •öruggir um að þeir væru óhultir og tryggingarnar, sem hefðu verið gefnar fyrir öryggi þjóðarinnar væru einskis virði. Pólk segði einnig: „Hvers vegna hækka þeir ekki skattana?" Því til svars benti hann á, að þau tíu hjeruð, sem orðið hefðn fyrir eyðilegg- ingum ófriðarins, væru nú ófær cm að borga nokkurn skatt, og hvað beinu skattana snerti þá væri mjög lítið um stóreignafyr- Irtæki, sem hægt væri að láta blæða. Miðstjettimar væru mann- margar í Frakklandi, en það væri ekki hiö sama, og þessar stjettir greiddu afarháa óbeina skatta. Þessvegna væri samanburður við önnur lönd mjög ófullnægjandi. Kvaðst hann sannfærður um að óframkvæmanlegt væri að hækka skattana, eins og nú stæðu sakir. Hvað ástæður Þjóðverja snerti þá kvað hann það vera þeim sjálf- um að kenna hvernig hag þeirra1 væri nú komið. Þrátt fyrir ein- dregin mótmæli þá hefðu þeir sóað offjár í skipaskurði, járn- J brautir o. fl., og kært sig koll-; otta þó marksgengið f jelli. Ef Prakkar hefðu haft sömu "fjár- J málastefnu, þá væru þeir orðnir-' gersamlega gjaldþrota nú. Poincaré taldi álit bandamanna- nefndarinnar um skaðabæturnar fremur lítils virði. Það lagði til að koma á eftirliti með fjárlög- um ÞjóðveVja og vöruútflutningi «n mintist ekkert á eftirlit með seðlaumferðinni eða afstöðu ríkis- bankans. Þessvegna væri það skoð- un Frakka, að ekki bæri að gefa Þjóðverjum neinn greiðslufrest nema þeir gætu gefið bandamönn- um gildar tryggingar. Bf ekki öðruvísi, mundu Frakkar einir taka til þeirra ráða, sem úm mun- aði, en þeir kysu helst að vera 3 samvinnu við bandamenn sína og leggja öll kortin á borðið. d aldi Poincaré síðan upp nokkr- ar tryggingar og gerði nokkrar til lögur, sem hann bað bandamenn að athuga. Ræða Lloyd George. Á næsta fundi ráðstefnunnar hóf tloyd George mál sitt með því, að vanmáttur Þjóðverja á ,að upþfylla friðarsamningana væri eigi aðeins til vandræöa einni þjóð bandamanna, heldur þeim öllum. Vitanlega hefði Prakkland liðið mest við ófriðinn, meira en allir bandamenn, að Rússum ein- um undanteknum. En ’ þær hefðu allar liðið mikið, og ástandið væri ískyggilegt hvar sem litið væri. Mintist hann síðan á blóðtöku þá, sem enska þjóðin hefði orðið fyrir í ófriðnum, og einnig á fórn ítala. Hvað fjárhagslegt tjón við ófriðinn snerti vildi hann benda á óhlutdræga áætlun, sem „Bank- ers Trust Co“ í New York hefðu gefið út um kostnað bandamanna við ófriðinn. Þar væri kostnaöur Prakka talinn 37,500 miljón doll- arar, ítala 14,500 miljón dollarar og Breta 49.000 miljón dollarar. Benti ræðumaður á, að Bretar hefðu því kröfu til fjár eigi síður en Prakkar, jafnvel þó eyddu hjeruðunum í Prakklandi væri bætt við kostnaðinn. Lloyd George benti því næst á, að auk þeirra lána sem Bretar hefðu tekið til herkostnaðar, þá heftSu þeir einnig náð inn með auknum sköttum 3,000 miljón ster- lingspundum, og hefðu engn- aðrir bandamenn gert þetta á ófriðar- árunum en þeir og Ameríkumenn. Kvaðst hann sannfæröur um, að herkostnaður Breta, beinn og ó- beinn hefði oröið hærri hlutfalls- lega en á nokkurri annarj þjóð. Hvað eyðileggingarnar snerti þá væri hann vel vitandi þess, að þær væru miklar í Prakklandi, en þá mætti geta þess, að verslun Breta hefði einnig stórspilst við ófriðinn. Pólksfjöldi eyddu hjer- aðanna í Frakklandi væri, að hann hjeldi, 2 miljónir. En 4—5 milj- ónir Englendinga væru nú at- atvinnulausir íEnglandi vegna þess hve versluninni hefði hrakað við ófriðinn og fyrir öllu þessu fólki þyrfti ríkið að sjá. Þessvegna væri þýska úrræöaleysið ekki mál, sem varðaði eina eða tvær af bandaþjóðunum. Með atvinnuleys- inu enska væri skattarnir þyngri í Englandi en alstaðar annarstað- ar, skuldirnar mestar og byrðar Breta gætu þolað samanburð við allar aðrar bandaþjóðir. Poincaré svaraði ræðu þessari nokkru og fann mjög aö fram- kvæmd friðarsamninganna á öðr- um sviðum en hann hefði áður minst á. í svarræðu sinni taldi Lloyd George Poincaré hafa gert of lítið úr nytsemi friðarsamning- anna. Hver áhrif hafa samning- arnir haft á afvopnun Þýska- lands? spurði hann. ÞjóSverjar hafa framselt 33.478 fallbyssur. — Getur verið að einhverjar sjeu faldar þar ennþá, en ómögulega svo margar að þær nægi heilum her. Þeir hafa afhent 38,000,000 hlaðnar sprengjur, yfir 11,000 há- skeytlur, yfir 87,000 vjelþyssur, 4^4 miljón rifla og 458 miljón stykki af skotfærum. Þessvegna væri það ómögulegt, að Þjóðverj- ar gætu farið meö ófriði á hendur fyrri fjendum sínum. Sem hem- aðarþjóð væru Þjóðverjar orðnir að engu. Af 5 miljón manna her sínum, sem einu sinni hefði verið undir vopnum, væru nú eftir 100.000. Ploti þeirra væri upp- rættur, þaö væri Prökkum mik- ils virði og eigi síður Bretum. Hvað afvopnunina snerti yrði því ekki annað sagt en friðarsamn- ingarnir hefðu gert fult gagn. Hvað 'skaðabæturnar snerti kvað Lloyd George skaðábótanefnd hafa verið setta til þess að úr- skurða. hvað Þ.jóðverjar gætu borgað, og því mætti ekki gleyma, að þær ívilnanir sem Þjóðverjar hefðu fengið, hefðu verið ákveðn- ar af þeirri nefnd. Og. þrátt fyrir allan afslátt hefðu Þjóðverjar þó fram að þessu greitt 500 milj- ón sterlingspund eöa 10 miljard gullmörk. Það væri þó nokkuð. Því næst benti forsætisráðherr- ann á, að þrjár byltingar hefðu gengið yfir Þýskaland, og að það væri bersýnilegt, aS stjómin ætti erfitt með að ráða við sum sam- bandsríkin. Það væri satt, sem Poincaré segði, að Þjóðverjar væru altaf aö kveina og kvarta yfir kjörum sínum. Það væri ekki ástæða til að taka mark á harmatölum skuldunauts að ó- rannsökuðu máli, en gengi marks- ins væri öruggur mælikvarði, sem stjórnmálamenn bandamanna yrðu að taka mark á. Lloyd George kvaöst benda á þetta alt, án þess að hann ósk- aði þess að Þjóðverjar slyppu við að greiða nokkuð það, sem þeir gætu greitt. Allir bandamenn mundu vera einhuga um að láta Þjóðverja greiða eins mikið og þeir gætU. En um hitt væru menn ekki eins sammála, hvaða vegi bæri að fara til þessa. Minti hann á, að á Spa-fundinum hefði kom- ið fram tillaga um að hertaka Buhr-hjeraðið. Það hefði ekki ver- ið gert þá, því herstjórnin hefði sagt að eigi nægðu til þess minna en sjö herdeildir, og að tvísýna hefði þótt á, að bandamenn hefðu nokkurntíma 'haft upp kostnaðinn, sem af hertökunni hefði leitt. Lagði Lloyd George síðan til, •eftir að hann hafði komið fram^ með ýms fleiri andmæli ,gegn> Poincaré, að tillögum hans yrði vísað til sjerstakrar nefndar, er segði álit sitt á þeim. Ennfrem- ur töluðu á fundinum Schanzer utanríkisráðherra ítala og Theunis forsætisráðherra Belga. Tillögurnar. Tillögur Poincaré, þær er nefnd in fekk til meðferðar, voru þess efnis, að bandamenn kæmu á öruggu eftirliti meS tollmálum Þjóðverja, verslun þeira við önn- ur lönd, seðlaútgáfunni og rík- isbankanum. Ennfremur rekstur náma og skóga í Ruhr-hjeraðinu og þátttöku í ýmsum verksmiðju- fyrirtækjum þýskum, t. d. litunar- verksmiðjunum og að tollmála- stjórn þess væri nú í höndum bandamanna. Nefnd sú, sem fekk þetta mál til meðferðar komst ekki að sam- komulagi. Oðru megin stóðu full- triiar Prakka í nefndinni en hinu megin fulltrúar Breta og Itala. Var meiri hlutinn þannig þeirrar skoðunar, að ekki bæri að að- hyllast þessar tillögur, því ákvæð- in um eftirlit með fjármálum Þjóðverja gengu of nærri full- veldi þeirra, og hertaka Ruhr- hjeraðanna gæti haft ískyggileg- ar áfleiðingar. Þegar májið kom aftur fyrir þá forsætisráðherrana urðu um- ræður hinar snörpustu. Var reynt að koma skipulagi á, með því móti að báðir aðilar slökuðu nokk- uð til, en þetta reyndist óger- legt. Poincaré hjelt fast við fyrri tillögur sínar og Lloyd George vildi ekki víkja um hársbreidd frá þeirrj skoðun sinni, að fram- kvæmd þvingunarráðstafananna vami það sem dygði til þess að koma Evrópu á knje. Lauk svo að málinu var vísað aftur til skaðabótanefndarinnar í París til úrslita. Var því þá ná- kvæmlega jafn langt komið eins og fyrir ráðstefnuna. En Poin- caré ljet þess getið, að Frakkar mundu ekki telja sig skylda til að hlýða úrskurðj nefndarinnar, ef hann færi í þá átt, að Þjóð- verjum yrði sýnd undanlátssemi áfram, og ljet líklega um, að Frakkar mundu þá ef til vill taka til sinna ráða og framkvæma tillögurnar einir. Vitanlega er þetta í alla staði rjettmætt, því friðarsamningarnir heimila að sú aðferð sje höfð, sem Poincaré vill nota nú. En sennilegt er, aS samvinnan milli Prakka og Breta væri úr sögunni á sömu stund, sem Frakkar sendu her inn í Þýskaland til að koma tillögum Poincaré í framkvæmd. Skaðabótanefndin sendi þýsku stjórninni, þegar eftir að hún hafði tekið viS málinu aftur, kröfu um, að afborgunin, sem greiðast átti 15. ágúst yrði greidd samstundis. Stjómin svaraði aftur, að henni væri það ómögulegt, hún gæti eki borgað neitt.( Þar viS situr. Ekkert hefir gerst í málinu síðan, annað en það, að nefndin hefir sent tvo fulltrúa til Berlín til þess að ræða við stjórnina þar og kynna sjer á- standið. Erl. simfregtiir Khöfn 24. ágúst. Harður dómur. Símað er frá London, að blaðið „Irish Times“ hafi átt viðtal við rithöfundinn Bernhard Shaw um írlandsmálin. Lýsir Shaw upp- reisnarliði de Valera sem þorpara- lýð, er rjett væri að skjóta og írskri pólitík sem hugsjóna lang- loku, er enginn maður ætti að láta sig nokkru skifta. (Shaw er sjálfur íri, fæddur í Dublin 1856, en hefir lengst af æfinni dvalið í Englandi og er talinn með allra fremstu leikritahöfundum Breta). Ameríkumenn neita að styðja de Valera Hæstirjetturinn í New York hefir kveðið upp úrskurð er bann- ai bönkunum að greiSa de Valera 2.300.000 dollara, er safnað hefir verið saman vestan hafs til stuðn- irgs málefnum írska ríkisins. Nýjasta níðingsverkið. Símað er frá'Dublin, að Michael Collins forsætisráðherra írska frí- ríkisins hafi verið gerð fyrirsát, og hann skotinn til bana nálægt Bandon' í greifadæminu Cork í írlandi. írska þingið Dail Eireann hefir þegar verið kvatt saman. Hefir afar miklum óhug slegið á íra við morð þetta. Khöfn 26. ágúst. Vandrœði Austurrikis. Prá Vín er símað, að umleit- anir safmbandskanslarans í Aust- urríki um ríkjasameining í Berlín og Prag (um sameining Austur- ríkis og Þýskalands eða Tjekkó- slóvakíu) hafi orðið árangurslaus- ir. Á hann nú að hitta utanrík- iíráðherra ítala í Verona, til þess að ræða málið við hann, en með því að Schanzer má ekki gera bindandi samning, verður málið síðan lagt fyrir þjóðbandalagið. Bankahrun yfirvofandi i pýskalandi. Frá Berlín er símað, að margir smáir og miðlungsstórir bankar í Þýskalandi eigi örðugt með að standa í skilum, vegna hins gíf- urlega gengisfalls þýska marksins, sem enn heldur áfram. — Por- ingjar iðnfjelaganna hafa beint áskorun til ríkiskanslarans um að koma á eftirliti með starfsemi allra banka í ríkinu. Fulltrúar skaðabótanefndar bandamanna hafa lokið samning- um sínum við þýsku stjórnina. Vörulán til Rússlands. Prá Berlín er símað, að Sie- mens-verksmiðjurnar þýsku hafi með samþykki stjómarinnar rúss- nesku veitt rússneska rafmagns- hringnum mjög mikið vörulán. Er það fyrsta vörulánið sem Rússar hafa fengið, síóan stjómarbylt- ingin varð.. MorS Cottins. Prá London er símað, að lík Collins forsætisráðherra íra, sem myrtur var á dögunum, hafi verið flutt til Dublin, og á útförin að fara fram á mánudaginn á alþjóð- ar kostnað. Við flutning líksins ljet almenningur ákaflega hlut-. tekningu í ljósi, og síðustu dag- ana, síðan morðið var framið, hefir sjálfboðaliðum írska hersins fjölgað stórlega. Bannið í Svíþjóð. Andbanningar gera ráð fyrir að bannið verffi samþykt. Undirbúningur bannmanna í SvíþjóS úndir bannlagaatkvæða- greiðsluna hefir verið afskaplega mikill, og undirróður þeirra síð- ustu vikumar stórfeldur. — And- banningablaðið ,Dagens Nyheteri, sem fylgir Bratt að málum, gerir þó ráð fyrir þeim úrslitum, aö bannig verði samþykt með 61% atkyæða. Khöfn 28. ág. Samvinna nýju ríkjanna. Símað eí frá Marienbad að bandalagið milli Jugoslavíu og Tjekkóslóvakíu hafi verið fram- lengt og aukið við það ýmsum samningsatriðum, þannig að það nær nú einnig til fjárhags og viðskiftamála. Framtíff Austurríkis. Símað er frá París, að franska stjórnin hafi krafist þess, að al- þjóða sambandið komi fram með tillögur sínar um framtíð Aust- urríkis fyrir 1. september með því aS kanslarinn í Austurríki óski að fá að vita um, hvað stór- veldin ætli sjer að gera Austur- ríki viðvíkjandi, fyrir 15. sept. Bannið í Svíþjóð. BannatkvæSagreiðslan í Svíþjóð hófst í gær (27. ágúst). Símfregn- ir frá Stokkhólmi segja, að frá þvr snemma morguns hafi verið straumur kjósenda að kjörstöðun- um um alt land, og þátttakan meiri en dæmj hafa verið til um nokkrar politískar kosningar. Um 2,800.000 hafa atkvæðisrjett. Upp- talning atkvæða er byrjuð og hafa verið talin 280.000 atkvæði gegn banninu en 123,000 atkv. með því. Khöfn 29. ágúst. Eftirmaður Collins. Símað er frá London, að Willi- am Cosgrave hafi verið kjörinn til þess að gegna forsetastÖrfum í írlandi fyrst um sinn. Daginn sem Michael Collins var jarðaður lá öll vinna niðri allan daginn og sorgarathafnir fóru fram í öllum kirkjum írska frí- ríkisins. Banniff felt í S.víþjóff? Símað er frá Stokkhólmi að

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.