Lögrétta - 03.12.1923, Page 4
4
LÖGRJETTA
. í óvissu. Fulltrúar þeir, sem send-
ii* hafa veriS til að sernja við for-
Biann Rínarlanda-nefndarinnar,
’i’irard, gera það að tillögu sinni,
að Rínarlöndin verði sjerstök
heimastjórnarríki, innan Þýska-
lainds, og undir þýskri yfirstjóm,
■e^ ráði sjálf fjármálum sínum og
imianríkismálum.
Kaupgj aldsdeilan norska.
Símað er frá Kristjaníu, að
veýkbannið hafi verið upphafið og
safaningar komist á milli verka-
mdnna og atvinnurekenda.
bótanefndin hafi í einu hljóði
samþykt, að skipa tvær sjerfræð-
inganefndir til þess að reyna að
gera fjárlög Þjóðverja þannig úr
garði, að tekjuhallinn hverfi og
til þess að reyna að ná aftur til
þýskalands fje því, sem hefir ver-
ið laumað úr landi.
ítalir og Rússar.
Símað er frá Róm, að Mussolini
hafi góð orð nm að viðurkenna
ráðstjórnina de jure, til þess að fá
góð sjerleyfi hjá Rússum.
Gengis j öfnunarlánið.
Hið danska gengislán, að upp-
liaíð 5 miljón sterl. pund, er trygt.
Prófessor Jul. Lassen,
fyrverandi Garðprófastur, verður
j«<Saður á morgun (í dag).
Khöfn, 28. nóv-
Stjórnarmyndunin þýska.
Símað er frá Rerlín, að mið-
flofcksmaðurinn Stegerwald sje að
gérS tilraunir til þess að mynda
þingræðisstjóm með tilstyrk
þýíjkra þjóðernissinna, miðflokks-
infi og þýska og bayerska þjóð-
rætjj^flokksins.
Stresemann hefir fengið áskor-
un .jim að verða utanríkisráð-
heri'a nýju stjómarinnar
Kommúnistaóeirðir.
Kommúnistar reyndu í gær að
koma á stað óspektum víðsvegar
í Þýskalandi, en óspektir þessar
voru. bældar niður jafnharðan.
Með því að kommíinistum er nú
bannaður allur fjelagsskapur í
Þýskalandi, er hreyfingunni nú
stjórnað frá miðstöðvum erlendis.
Bretsku kosningarnar.
Kosningahríðin enska heldur á-
fram og magnast dag frá degi.
Búst er við, að Stanley Baldwin
fái öflugan hreinan meirihluta.
Khöfn, 30. nóv.
Miðjarðarhafssambandið.
Símað er frá Rómaborg, að
Primo de Rivera einveldisstjóri
Spánar hafi, í samráði við Musso-
lini forsætisráðherra Itala, gert
sahining og myndað „latneskt“
samband. Eru jafnvel horfur á
því, að lýðveldi Suður-Ameríku
gangi út úr Alþjóðasambandinu.
Rivera(?) hefir gert samning við
Itali um að útvega loftför.
Símað er frá París, að blaðið
,,Le Temps“ geri það að tillögu
sinni að Frakkar og Bretar játist
undir „latneska“ bandalagið.
Stjórnarskifti í pýskalandi.
Símað er frá Berlín, að foringi
miðflokksins, Dr. Marx, hafi tekið
að sjer að mynda ráðuneyti, og
að honum muni takast það, ef
miðflokkurinn ekki beinist gegn
honum.
Khöfn, 1. des.
Nýja stjórnin í Þýskalandi.
Símað er frá Berlín, að Marx
hafi myndað borgaralega stjórn
með stuðningi þýska þjóðernis-
sinna, en jafnaðarmenn hafa snú-
ist einbeittir á móti.
Skaðabæturnar.
Þjóðverjar krefjast þess, að vör-
ur þær, sem fluttar hafa verið frá
Ruhr til Frakklands, verði færðar
þeim til tekna á skaðabótareikn-
ipgnum. — Einnig neita þeir að
borga kostnaðinn af hertökuRubr-
---x--
Dagbók.
27. nóv.
Landsmálafundur var haldinn aust-
ur við pjórsárbrú 21. þ. m. Boðuðu til
hans ýmsir menn í Árness- og Rang-
árvallasýslum. Enginn þingmaður sýsl-
anna hafði verið mættur þar, nema
Jörundur Brynjólfsson. Tillögur marg-
ar voru samþyktar á fundinum, þar
á meðal sú, að skorað væri á þing
og stjórn að hlutast til um það, að
lán þau, sem bændur hefðu stofnað
á dýrtíðar- og kreppuárunum, yrðu
látin standa afborgunarlaust í 10
ár, með 4% vöxtum.
28. nóv.
Jarðarför sjera Jóns Thorstensen
frá pingvöllum fór fram 26. f. m.
frá dómkirkjunni, og sýnir það vin-
sældirnar hjá fyrri sóknarbörnum
hans, að margir bændur úr pingvalla-
sveit og Grafningi komu hingað til
þess að vera við jarðarförina. Báru
þeir kistuna inn í kirkjpna og síðan
frá kirkjunni og suður í kirkjugarð,
en prestar báru hana út úr kirkj-
unni. Húskveðju flutti sjera Hall-
dór Jónsson á Reynivöllum, svili hins
látna, en sjera Jóhann porkelsson
flutti ræðu í kirkjunni-
Bánarfregn. 13. þ. m. Ijetst Yal-
gerður Jónsdóttir á Kúludalsá í
Innra-Akraneshreppi.
Dánarfregn. Síðastliðinn sunnudag
andaðist á Spákellsstöðum í Laxár-
aal í Dalasýslu, ekkjan Guðríður Jóns-
dóttir, 92 ára gömul. Árið 1866 gftist
hún bóndanum þar, Jóni Markús-
syni. Bjuggu þau þar góðu búi um
mörg ár, og hún síðar sem ekkja-
Síðustu árin hefir hún verið þar
hjá syni sínum, Guðbrandi Jónssyni.
Guðríður sál. var greindar- og mynd-
arkona, og vel virt af öllum, er hana
þoktu.
2f. nóv.
Svanur. Björgunarskipinu „Geir“
hefir tekist að ná „Svan“ út við
Ólafsvík, og er kominn með hann
hingað. En vörur allar, sem áttu að
fera með „Svan“ suður, eru enn
vestra. Var þar á meðal nokkuð af
nýju keti, og má búast við, að farið
sje að slá í það.
Ragnheiður Einarsdóttir, systir
þeirra sjerá Gísla Einarssonar í Staf-
holti og Indriða Einarssonar, ljest
í Stafholti hjá bróður sínum, 26.
nóv. Hún var fædd 29. júlí 1836, og
varð 87 ára gömul. Hún hafði verið
gift skamma stund á yngri árunum,
en varð ekki barna auðið. Ragnheið-
ur sál. var fríðleikskona, og barþess
sýnileg merkin til dauðadags. Hún
var vaxin upp á endurreisnartíma
landsins, frá 1830 til 1850, og dugn-
aður hennar og starfsþrek var fyrir
þeim sem hana þektu, lundarlag og
einkenni frá góðri horfinni öld.
Bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í
gær var símað frá Vestmannaeyjum,
að atkvæðagreiðsla hefði farið fram
um það, hvort þar skyldi vera bæjar-
stjóri eða ekki. Voru 518 atkv. greidd
með því, en 81 á móti.
hjeraðsins.
Símað er frá París,
að skaða-
30. nóv.
Kosningin á Akureyri.
„Dagur
( (
fíytur 8. þ. m. langa grein um fall
Magnúsar Kristjánssonar á Akur-
eyri og er óskaplegt að heyra og sjá
hvernig skepnan ber sig, og sýnir
þetta best hve stoltir við Reykvík-
ingar megum í rauninni vera af okk-
ar Jónasi, þegar við berum hann
seman við Jónas þeirra Akureyring-
anna. Aðrir eins 'tíkarskrækir út af
kosningaósigri hafa aldrei áður
heyrst.
3. desbr.
Úr Skagafirði er skrifað 22. fyrra
œánaðar, að þar sje kafsnjór um alt
og engir möguleikar að komast um
jörðina nema á skíðum; sje því ger-
samlega jarðlaust og allar skepnur
á gjöf.
Snjóljett er enn austur um sveitir,
að því er maður segir, nýkominn að
austan. Er nýfarið að taka lömb á
gjöf. Bráðapest kvað hafa gert vart
við sig austan fjalls í hausf; en þó
hefir hún ekki orðið skæð.
Landnám fslands 817—930; heitir
brjefspjald, sem herra Samúel Egg-
ertsson hefir gefið út. Eru á því
sýndar leiðir þær, er helstu landnáms-
mennirnir fóru frá Noregi og hingað
til lands. Er kortið glögt til yfirlits.
pað kostar aðeins 25 aura ef keypt
er aðeins eitt. Höfundur brjefspjalds-
ins getur þess, að ef til vill gefi
hann síðar út fleiri svipuð spjöld
um efni úr sögu íslands.
------o------
Frá Danmörku.
20. nóv.
Brú yfir Litlabelti.
Járnbrantarráðið er um þessar
mundir að athuga áætlanir þær,
sem fram hafa komið um brú yfir
Litlabelti. Ráðið hefir komist að
þeirri niðurstöðu að brú þessi sje
f járhagslega gott fyrirtæki, og
búist er við, að endanlegt frum-
varp um brúarbygginguna verði
bráðlega lagt fyrir ríkisþingið.
í
Sjávarflóð enn.
Stórviðri á suðvestan, meira en
nokkur hin fyrri, hefir verið í
Danmörku undanfarna daga. Hef-
ir ofviðri þetta valdið miklu
tjóni og sjávarflóð orðið víðsveg-
ar á Vesturströnd Jótlands. Marg-
ir flóðgarðar voru orðnir mjög
skemdir á Iaugardaginn og flæðir
yfir akrana, svo að húsin eru í
hættu. Sjerstaklega er mjög al-
varlegt ástand í hjeraðinu um-
hverfs Kolding. Á sunnudaginn
brotnaði skarð í flóðgarðinn milli
Næsö og Stadil. Eru öll flóðgarða-
lönd nú undir sjó, og telst svo til,
að það sjeu 2500 tunnur lands.
Göturnar í Lemvig eru undir
vatni. Frá Bovbjerg og Harboöre
berast einnig frjettir um alvar-
legar skemdir. Sjótjón hefir einn-
ig orðið í ofviðrinu. Mótorskipið
„Java“, eign Östasiatisk kom-
pagne, hefir rekist á grunn við
SJetterhage, á leið til Aarhus, með
fullfermi af vörum frá Asíu. 4
björgunarskip frá Switzer eru að
reyna að bjarga skipinu út.
Samkvæmt síðustu vikuskýrslu
pjóðbankans hefir málmtrygging
bankans hækkað úr 46.9 upp í
49.4%. Gullforðinn var óbreyttur,
209.6 miljón krónur, en upphæð
seðla í umferð hafði lækkað um
14.4 miljónir, niður í 439.9 miljón
krónur.
Rvík, 30. nóv.
Gengis j öfnunarlánið.
Þjóðbankinn danski tilkvnuíir,
að lánið í Englandi til gengis-
Káífsskintt
órökuð, bert, vel spýtt og ógölluð kaupir háu verði
Versíun Jes Zimsen.
Hjer með tilkynnst vinum og vandamönnum, að fóstur-
sonur minn elskulegur, Ingiberg Sigurgeirsson, andaðist á
Franska spítalanum 2. desember. — Jarðarförin ákveðin síðar.
Sigríður R. Pálsdóttir
Nýlendugötu 7.
jöfnunarsjóðsins geti nú talist
fengið. Hefir sjóðurinn þá um-
ráð yfir 2.7 miljónum sterl. pd.
og 10 miljónum dollara. Vextirnir
af þeim hluta lánsins, sem gengis-
jöfnunarsjóður inn notar, verða
5%% af dollaraláninu, og af
sterlings láninu 1% yfir banka-
forvöxtum, þó ekki minni en 5%,
og bætist þar við bankaprovision.
Blöðin segja, að það sje Lundúna-
útibú National City Bank í New-
York, sem útvegað hefir dollara-
lánið, en sterlingslánið er útvegað
fyrir milligöngu Hambros Bank
og fimm annara stórbanka enskra.
Iiáninu er komið fyrir sem yfir-
dráttarláni, sem stjórn gengisjöfn-
unarsjóðsins getur notað eftir
þörfum.
Reedts-Thott barón látinn
Tage Reedts-Thott barón andað-
ist á þriðjudaginn var, 84 ára
gamall. Hann var landþingsmaður
1886—1910, var utanríkisráðherra
í stjórn Estrups frá 11892 til 1894
og varð síðan forsætisráðherra og
utanríkisráðherra þangað til 1897.
Hann var eigandi ljensins Gaunö,
nálægt Næstved, er hann tók við
umráðum yfir 1862, og forráða-
maður Herlufsholmsskóla og jarð-
eigna hans frá 1887.
Ahlefeldt-Laurvig látinn.
Á fimtudagsmorguninn var and
aðist G. W. Ahlefeldt-Lauvigen
greifi í Eriksholm, 65 ára gamall.
Árið 1887 fór hann að vinna við
sendisveitarstörf, og var sendi-
herr í Wien árin 1897 til 1908.
Árið 1908—1909 var hann utan-
rikisráðherra í ráðuneytum Neer-
gaard og Holstein, og 1910—1913
í stjórn Klaus Berntsen.
----------------
Hagtáðindi.
Dýrtíðin. Smásöluverð vöruteg-
unda hefir, samkvæmt október-
hefti „Hagtíðinda" breytst mjög
lítið síðasta ársfjórðung. Allur
fjöldi vörutegunda er skráður með
sama verði eins og fyrir þremur
mánuðum eða mjög líku. Sykur,
garðávextir og aldini og kjöt hef-
ir lækkað um 10—11%, en fiskur
hækkað um 13%. Sje verðið borið
saman við það sem var 1. okt. í
fyrra gætir mest hækkunarinnar
á sykri 22%, — það er eina vöru-
tegundin, sem er hærri nú en þá,
en síðan þá hafa garðávextir lækk-
að um 16% og kjöt um 15%. —
Síðan fyrir stríð hafa matvörur
þær, .sem skýrslan tekur með,
hækkað í verði um 162%, en síð-
asta ár hefir lækkunin Ýerið 7%
T apast
hefir ljós hestur, merktur K á
\instri bóg. Hver, sem kynni að
verða var við hest þennan, er beð-
inn að gera aðvart Kristni Jóns-
syni, Eimskipafjelaginu, eða í
síma 1370.
£ Jón Jónsson, læknir,
S Skólavörðustíg 19, Reykjavík.
Tannaðgerðir og tannsmfði.
Sími 1248. •
Mig undirritaðan vantar af íjalli
steingráan fola tveggja vetra, marýt
stýft hægra biti framan, heilrifait
vinstra. Sá, sem kynni að verða var
við folann, er beðinn að gera undir-
rituðum aðvart.
Nesi, Seltjarnarnesi, 3. des. 1923.
Gunnsteinn Einarsson.
og síðasta ársfjórðung 3%.
Toliar. Fyrra missiri yfirstand-
andi árs, hafa tollar af vörum
innfluttum hingað til Reykjarík-
ur numið 1,013,376 kr. en voru í'
fyrra á sama tíma 885,879 kr.
þegar með er talið útflutnings-
gjald. Vörutollurinn nemur mestu
— er hann 333,047 kr. þá er vín-
fanga og gosdrykkjatollur 208,12®
lcr. Kaffi- og sykurtollur 189,441
kr. og tóbakstollurinn 176,874 kr..
Innflutningurinn hefir verið heltn-
ingi meiri en á sama tíma í fyrra.
litflutningstollurinn, sem er 1%-
af andvirði útfluttrar vöru, hefir
numið 73,878 kr., en var á sama
tíma í fyrra 67,360 kr.
Saltfisksútflutningur. Samkvæmt
skýrslum yfirmatsmanna um út-
flutning að verkuðum saltfiskí
fyrir fyrstu þrjá ársfjórðunga yf-
irstandandi árs, hefir útflutning-
nrinn orðið alls 29,082,255 kg. —
Mestur hefir útflutningurinn orð-
ið í september, yfir 5 þús. smá-
lestir, en minstur í júní, 1,795-
smál. Útflutningurinn skiftist
þannig niður á matsdæmi: Reykja-
víkur 15,224 smálestir, Seyðis-
fjarðar 5,161 smál., ísafjarðar-
3,897 smál., Vestmannaeyja 3,37S
smál., og Akureyrarumdæmi 1,425
smálestir. Af iitflutningnum voru
14,131 smálestir af fyrra árs fiski,.
14,663 smál. af þessa árs fiski, en
288 smálestir af fyrra árs afla, en
verkað á þessu ári.
Islensk .......
endurreisn
eftir Vilhj. Þ, Gíslason, er nýasta
• íslenska fræðibókin.