Lögrétta - 06.05.1924, Page 2
2
LÖGRJETTA
Berklavarnamál.
Eftir Sigurð Magnússon.
L
Úr Noregsför sumarið 1923.
Á sólbjörtum sumarmorgni síð-
* ast í júní lögðum vjer á stað frá
Kristjaníu. Samferðafólkið var
danskir, norskii’, sænskir og finsk-
ir berklaveikislæknar, sumir með
konum og dætrum. Settumst við
upp í bifreiðarnar. Áttu þær að
flytja okkur um frjósömustu bygð-
ir Noregs í þrjá daga. Fórum við
sem leið liggur til Kongsvinger,
þaðan norður með Raumelfur til
Elverum, þá vestur til Litlaham-
ars og síðan vestan Mjörs aftur til
Kristjaníu. petta var aðalleiðin, en
margir krókar voru á leið okkar,
því við áttum að skoða þau berkla-
veikrahæli Norðmanna, sem liggja
nálægt þessum alfaravegi.
það yrði of langt mál að lýsa
þessari fögru leið, yfir akra og
engi, gegnum fagra birki- og furu-
skóga, yfir hálsa og hæðir, fram-
hjá ám og vötnum, enda á þetta
greinarkom ekki að verða nein
eiginleg ferðasaga, og mun jeg á
fátt annað minnast á ferðinni, en
þessi berklaveikrahæli, sem við
sáum.
Sitthvað getum við íslendingar
lært af Norðmönnum, einmitt í
berklavarnamálum, enda eru lands-
hættir að mörgu leyti líkir í Nor-
egi og á íslandi, og sömu erfiðleik-
amir við að stríða. Við getum sagt
um ísland, eins og einn af sam-
ferðamönnunum, norskur læknir,
sagði við mig um land sitt: „Land-
ið er svo örðugt viðfangs“, („saa
uhaandterligt, aa! saa uhaandter-
ligt!“). Og sannast að segja em
samgöngur og ýmsar framkvæmd-
ir örðugar í þessu langa, hálenda
klettalandi, sem nær suður á móts
við Jótland, og langt norður í ís-
haf, en er svo fáment, að ekki em
nema sjö manneskjur á hverjum
ferkílómetra (en í Danmörku t. d.
86). En að vísu, hvað megum við
þá segja, með eina hræðu á fer-
kílómetra!
þessi strjálbygð Noregs gerir
það að verkum, að berklaveikra-
stofnanir hafa orðið þar tiltölulega
fleiri og smærri, en í þjettbýlum
löndum. Fyrir utan nokkur eigin-
leg heilsuhæli, hafa Norðmenn, á
síðustu 20 áram komið upp um 90
svokölluðum „berklaveikraheimil-
um“ (Tuberkulosehjem). pau eru
Lesbók LUgrjettu 1L
Tilraunirnar
með Einari Nielsen.
Bráðabirgða-frásögn
eftir
Einar H. Kvaran.
------- Niðurl.
Skýrsla eftirlitsnefndar.
„Hinn 19. og 21. marts komum
vjer undirritaðir saman í tilrauna-
stofunni kl. I1/^ e. h. til þess að
rannsaka stofuna, sjerstaklega
myrkurbyrgið og umhverfi þess,
og miðilinn. Skoðunin fór fram við
ágæta rafljósbirtu. Vjer byrjuðum
á því að skoða veggi byrgisins og
gólfið í því. Gólfið er steingólf og
yfir því pappadúkur neðst, þá
línóleumdúkur og inn á hann nær
gólfteppi inn yfir meginið af byrg-
isgólfinu. öllum þessum dúkum
var lyft upp góðan spöl út fyrir
byrgið og alt nákvæmlega rannsak-
að, og fanst þar ekkert lauslegt nje
gransamlegt. pví næst voru byrg-
istjöldin rannsökuð, sem fest voru
á stöng uppi undir lofti. Tjöldin
voru svört, 275 cm. löng og 263
cm. breið samtals og náðu saman
í miðju. Efnið í tjöldunum var
venjulega fyrir 10—20 sjúklinga,
og svo skamt er á milli hælanna,
að berklaveikir sjúklingar eiga
víðast auðvelt með að sækja þang-
að, en oft getur ástandið verið
þannig, að nauðsynlegt sje að taka
sjúklinga þegar í stað frá heimil-
um sínum. Einnig eru þessi heim-
ili fyrir sjúklinga, sem verið hafa
á heilsuhæli, en ekki orðið heil-
brigðir og era lítt vinnufærir og
geta ekki verið á heimilum sínum
vegna smitunarhættu eða hjúkrun-
arskorts þar. Fyrir slíka sjúklinga
eru þessi litlu „heimili“ heppilegri
staður, er til lengdar lætur, enda
ódýrari, en heilsuhælin, og það er
þeim að mörgu leyti geðfeldara að
dvelja nálægt ættingjum sínum og
vinum.
Skal nú aftur vikið að bifreiðar-
ferð okkar. Fyrsta hælið, sem við
skoðuðum, var nálægt Kongs-
vinger og nefndist Syningom. Var
þar rúm fyrir 24 berklaveika
sjúklinga. Var þar fagurt um að
litast, eins og nafnið bendir á
(mætti þýða það Umsjá eða Víð-
sjá), og hælið hið snotrasta. Var
það eign „Heilsumálafjelags
norska kvenna“, en hafði áður
verið búgarður manns nokkurs og
gaf hann fjelaginu eignina eftir
sinn dag. Sá galli var á, að 20 kíló-
metrar voru til næsta læknis, og
gat hann ekki vitjað hælisins nema
tvisvar í mánuði. þætti það lítil
læknishjálp hjer á landi! Era hjer-
uð norsku læknanna ærið mann-
mörg, hjeraðsbúar stundum eins
margar þúsundir eins og hjer eru
hundruð, en það bætir úr skák, að
sumstaðar eru vel mentaðar hjúkr-
unarkonur. Heitmann, yfirlæknir
berklaveikismála í Noregi, hjelt
hjer ræðu um þessi norsku berkla-
veikraheimili, og sagði meðal ann-
ars, að þessi hæli væru mjög vin-
sæl og ætíð fullskipuð. Var það ein-
róma álit læknanna, sem í förinni
voru, að þetta smáhæla-fyrirkomu-
lag mundi vera hið ákjósanlegasta
í svo strjálbygðu landi sem Noreg-
ur er, en hinsvegar væru nokkur
stærri, fullkomin heilsuhæli nauð-
synleg, sem væra einskonar mið-
stöðvar (Centralanstalter) og sjer-
staklega ætluð sjúklingum á byrj-
unarstigum.
Síðan skoðuðum við Vinger-
berklaveikraheimili, fyrir 15 sjúkl-
inga, rekið af Vinger-sveitarfje-
lagi. Næsti áfangastaður var
Gjösegaarden. Er það heilsuhæli,
eign Jonassens yfirlæknis. Var þar
hinn ágætasti verður á borð bor-
svartur lastingur og era tjöldin
einföld. pá var rannsakaður byrg-
isstóllinn, lítill hægindastóll með
fjöðrum undir setunni og klæddur
plydsi. preifað var vandlega niður
með öllu sætinu og stólnum snúið
við og fj aðrirnar rannsakaðar ná-
kvæmlega og bönd þau er þeim
halda. Sjerstaklega var þess gætt,
að hvergi væri saumspretta. því
næst var stóllinn settur aftur í
byrgið.
Næst vora vandlega skoðaðir
þeir stólar, er næstir vora byrginu
cg hugsanlegt var að miðillinn gæti
náð til úr byrginu. pá voru skoðuð
dyratjöldin, er hanga fyrir dyran-
um milli skrifstofu Einars H.
Kvaran og tilraunastofunnar,
sömuleiðis stengurnar, er tjöldin
hanga á. — pá var raðað stólum
eftir því sem fundarmenn áttu að
sitja, í hálfhring fyrir framan
byrgið og hið þannig afmarkaða
svæði nákvæmlega athugað. Að því
búnu var miðillinn leiddur inn og
látinn fara úr öllum fötum á gólf-
inu milli tjaldsins og stólaraðarinn-
ar í viðurvist vor allra. Lagði hann
öll fötin á einn stólinn og talaði við
oss á meðan. Nú með því að 4 af
oss á seinustu fundum höfðum sjeð
heilar líkamningar og vjer lögðum
aðaláhersluna á, að heilar líkamn-
inn og sátum við þar í góðum fagn-
aði um hríð. Ókum við svo þaðan
og komum að kveldi til Elverum.
Sátum við þar kvöldboð hjá Patter-
son hjeraðslækni. Bar þar margt á
góma og skal það ekki rakið.
Næsta dag skoðuðum við fjögur
berklaveikraheimili, í Elveram,
Löjten, Finsal og Moelven. Hið
fyrsta þeirra var aðeins fyrir
berklaveika sjúklinga, en hin þrjú
bæði fyrir berklaveika og aðra
sjúklinga. Vora þau rekin af sveit-
arfjelögum og rúmuðu hvert um
sig 22, 32 og 30 sjúklinga. Var
þessum hælum skift í tvær aðskild-
ar deildir, voru berklaveikir uppi,
en aðrir sjúklingar niðri. Vora
deildirnar jafn stórar. Reynist svo
í sveitum í Noregi, að sjúkrarúm
þurfa að vera jafn mörg fyrir
berklaveika sjúklinga eina saman,
sem fyrir aðra sjúklinga samtals
(að frátöldum geðveikum sjúkling-
um), og ekkert þótti athugavert
við að hafa báðar deildirnar undir
sama þaki. Hygg jeg, að líkt fyr-
irkomulag myndi reynast heppilegt
sumstaðar hjer á landi, og mun jeg
víkja að því síðar.
Norðmenn eru hinir gestrisn-
ustu og var hádegismaturinn hjá
fylkislækni Hilde á Akurgarði hinn
ríkmannlegasti og sömuleiðis
kveldveitslan á Mesnalien-heilsu-
hæli. Hilde fylkislæknir er búhöld-
ur mikill og auðugur, enda hefi jeg
ekki fyr sjeð svo stórt og ríkmann-
legt læknissetur. Bar garðurinn
utanhúss og innan vott um gamla
norska menningu, enda hafði hann
verið í ætt frúarinnar í 400 ár. Var
þar gnægð handofinna glugga-
tjalda og allskonar dúka og hag-
lega gerðra húsgagna í norskum
stíl. Er slík þjóðleg innanhúss-
menning ólíku skemtilegri . en
dönsku „stáss-stofurnar“ á Islandi.
Ekki var heldur óskemtilegt að
koma í fjós læknisins. Vora þar
86 kýr, allar með látúnshnúð
fremst á hornunum. Var sem í gull
sæi og var nautahjörð þessi ærið
tilkomumikil. Voru kýmar öðru-
megin í fjósinu allar rauðar, en
hinu megin allar rauðskjöldóttar.
Sagði fjósamaður, að allar þessar
rauðu kusur væra af þelamerkur-
kyni og var lotning í röddinní, al-
veg eins og þegar ættfræðingar
telja kyn manna til Bjamar bunu,
Grímssonar hersis úr Sogni. Ekki
man jeg, hvemig hann ættfærði
þær skjöldóttu.
Hinn þriðja daginn skoðuðum
við hið nýja og vandaða berkla-
ingar kæmu í ljós á þessum sjer-
staklega undirbúnu fundum (test-
seancer), þá töldum vjer óþarft að
leita í koki miðilsins nje annars-
staðar inn í líkama hans. En þó
var frá þessu bragðið á seinni
fundinum, þ. 21. marts, að því
leyti, að vjer gengum allir úr
skugga um að loftrás nasanna var
eðlileg með því að halda á víxl fyr-
ir aðra nösina og láta miðilinn
blása gegnum hina nösina. pað
kvöld rannsakaði og Guðm. Thor-
oddsen endaþarm miðilsins með
því að þreifa með fingri upp í
þarminn, enda var miðillinn fús til
að láta framkvæma þá skoðun,
þótt hann væri henni óviðbúinn.
pá er vjer höfðum athugað mið-
ilinn beran á gólfinu, var honum
vísað inn í byrgið og þar sat hann
á stólnum meðan fataskoðunin fór
fram. — þess skal getið, að enda-
þarmsskoðunin fór fram inni í
byrginu.
Nú voru fötin skoðuð og hafði
oss á undan komið saman um, að
jakkinn, flibbi og slifsi skyldi tek-
ið burtu, og var það gert. — þá
var skoðuð flík fyrir flík og að því
búnu rjett inn í byrgið, en þar fór
miðillinn í þær: 1. þunn normal
nærskyrta, 2. do. nærbrækur, 3.
röndótt manchetskyrta lin, 4.
veikraheimih á Litlahamri. það er
hið stærsta af þeim ,,heimilum“,
sem við sáum og rúmar um 40
sjúklinga. Skoðuðum við einnig
þjóðmenjasafnið á Litlahamri
(Sandvigske Samlinger), og var
það fróðlegt og skemtilegt. Mátti
þar sjá húsagerð Norðmanna og
menningarmenjar frá elstu tím-
um og fram eftir öldum. Er þetta
safn að mörgu leyti skemtilegra og
fullkomnara en hið alkunna safn á
Bygðey við Kristjaníu. Datt mjer
í hug, hvort hinir ágætu íslensku
listamenn hefðu ekki gott af'að
kynna sjer sem best hinn gamla
norska stíl, því menning vor er að
miklu leyti af norskum rótum
runnin. Væri æskilegt, að lista-
menn vorir ljetu sjer ant um bað-
stofur bændanna og stofur kaup-
staðabúa, og í sambandi við hús-
gagnasmiði og húsameistara vora
sköpuðu endurfæðingu þjóðlegs ís-
lensks húsgagna- og húsagerðar-
stíls, sem væri skemtilegri en sá
sviplausi glundroðastíll, er nú ríkir.
Við hjeldum svo til Kristjaníu
(vestan Mjörs) og komum þangað
er langt var liðið nætur. Kom okk-
ur samferðafólkinu saman inn það,
að aldrei hefðum við farið ógleym-
anlegri för, enda var veður hið
fegursta alla leiðina, sólskin og
logn. það er að segja, logn var að-
eins þegar við námum staðar, því
bifreiðamar ókum með svo mikl-
um hraða, að bifreiðastjóramir
fullvissuðu okkur um, að þeir
myndu verða að greiða háar sektir,
ef kærðir yrðu fyrir ólöglegan
hraða, en á því var engin hætta.
þeir sem við mættum brostu og
veifuðu vasaklútunum.
Næsta dag að morgni fórum við
svo aðra leið með jámbraut suður
með Kristjanufirði að vestan.
Höfðu margir læknar bætst við,
er ekki voru í hinni umgetnu bif-
reiðaferð. Skyldum við skoða hið
nýbygða Vardaasens heilsuhæli hjá
Asker, sem bæjarfjelag Kristjaníu
hafði reist. þetta heilsuhæli tekur
120 sjúklinga og er hið veglegasta,
en hafði orðið svo dýrt, að það
kostaði 40 þúsund krónur fyrir
hvern sjúkling. Var ekki trútt um,
að sumum þættu berklavarnir
verða nokkuð öfgakendar, er slíkt
hæli var reist, er hvert sjúkrarúm
yrði svo dýrt, að ódýrara væri að
reisa veglegt hús fyrir hvem
einstakan sjúkling! Ekki þurfa
gjaldendur Reykjavíkur að stynja
undir sjúkrahússkostnaði, því leit
mun vera á jafn stórum bæ, sem
svartir hálfsokkar með blám
sokkaböndum, 5. utanyfirbuxur
brúnar, 6. vesti brúnt, 7. flatbotn-
aðir morgunskór. Alt var þetta
vandlega athugað af oss öllum,
horft í gegnum ermar, boli, 'skálm-
ar, gáð að saumum og vandlega
þuklað allstaðar þar sem tvöfalt
var eða fóðrað, ef ekki var hægt að
horfa í gegnum það móti ljósi.
Vasar á vesti og buxum voru vand-
lega skoðaðir og þeim snúið við. Á
fyrra fundinum var skilinn eftir
velktur vasaklútur, ef 'miðillinn
skyldi þurfa að snýta sjer, en á
seinni fundinum var, til frekari
tryggingar, látinn mislitur vasa-
klútur í stað þess hvíta. þess skal
geta, að hvergi fanst nein saum-
spretta á fötunum nje nokkuð það
á miðlinum, sem nokkra gransemd
gæti vakið.
Miðillinn var mjög fús til allra
þessara rannsókna og glaður og
ánægður meðan þær fóra fram.
Pá vora enn, til frekari trygg-
ingar, skoðuð utanyfirföt þeirra
frú Kvaran og próf. Har. Níels-
sonar, en þau sátu næst miðlinum
á fundunum, sínu megin hvort.
Var þetta gert til þess að fyrir-
byggja það, að grunur gæti leikið
á því, að miðillinn hefði getað fal-
ið nokkuð á þeim, til þess að ná
svo aumlega er staddur í þessu
efni sem Reykjavík. Bíður bærinn
þess með stakri þolinmæði, að rík-
issjóður reisi spítala fyrir sjúkl-
inga höfuðstaðarins, og er ekki of
sagt, að heilbrigðismál bæjarins
sjeu í megnri vanhirðingu.
þegar við höfðum skoðað þetta
veglega heilsuhæli, þá byrjaði
hinn eiginlegi berklalæknafundur.
Voru haldnir þrír fyrirlestrar
þennan dag og hjelt jeg einn
þeirra. Eftir það snæddum við
miðdegisverð í hinum mikla sal
heilsuhælisins, og var Kristjaníu-
bær veitandinn. Vora ræður haldn-
ar og minni drukkin, og meðal ann-
ars talaði fulltrúi bæjarstjómar
Kristjaníu vinsamlega um Islend-
inga og mintist sjerstaklega á þá
starfsbræðurna Snorra Sturluson
og Sigurður prófessor Nordal, og
gat þess, að háskóli Norðmanna
hefði ákveðið að bjóða hinum síð-
amefnda hjá sjer að vera, enda
væri hinn fymefndi forfallaður.
Næsta dag var fundinum haldið
áfram í Kristjaníu, en ekki skal jeg
rekja efni þessara mörgu læknis-
fræðislegu fyrirlestra, enda er hjer
ekki staðurinn fyrir slíka greinar-
gerð. Læt jeg svo staðar numið
um ferð þessa og mun svo snúa
mjer að íslenskum berklavarna-
málum. Framh.
----o----
Bretar læra af Dðnum.
Um 1870 varð allmikil breyting
á landbúnaði Dana. Komframleiðsl
an borgaði sig illa. þeir breyttu því
um, og í stað þess að rækta korn,
settu þeir á stofn sameignar smjör-
bú, sem brátt urðu almenn um alt
land.
Svínarækt fór þá einnig mjög í
vöxt og hefir aukist ár frá ári. Er
nú, sem kunnugt er, smjör og flesk
aðalflutningsvara bændanna.Dansk
ir bændur fluttu út 1922 vikulega
að meðaltali 1837 smálestir af
smjöri, 2142 smál. af fleski og 392
smál. af kjöti.
Danir hafa á undanfömum áram
selt megnið af landbúnaðarvörum
sínum til Bretlands og upp á síð-
kastið einnig til Bandaríkjanna og
þýskalands. Til þess að koma land-
búnaðinum í þetta horf, hafa
bændur myndað samvinnufjelög,
sem annast afurðasöluna. Geta þeir
um leið og varan fer úr þeirra
höndum, fengið hana greidda hjá
fjelögunum. Fjelögin hafa bæði
því af þeim síðar á fundunum. En
til annara fundarmanna gat harm
ekki náð úr byrginu.
Eftir þetta komu aðrir fundar-
menn inn og allir settust í sæti sín
og dyrunum var lokað og leit
Guðm. Thoroddsen sjerstaklega
eftir því.
Eins og á undanförnum fundum
var rauða ljósinu komið fyrir á
píanóinu, sem þessi kvöld stóð á
miðju stofugólfi rjett aftan við
miðja stólaröðina, andspænis tjald-
gættinni.
Að lokum skal þess getið, að fyr-
ir fyrri fundinn rannsökuðum
vjer bæði herbergin, er liggja að
tilraunastofunni, auk tilraunastof-
unnar sjálfrar, til þess að tryggja
oss að enginn maður gæti verið
þar falinn og á undan fundunum
var aflæst dyrum þessara tveggja
herbergja, þeim er út á ganginn
vissu“.
Páll Einarsson. Halldór Hansen.
Har. Níelsson. Guðm. Thoroddsen.
Einar H. Kvaran.
Við vorum auðvitað mjög for-
vitin að þessari rannsókn lokinni.
þrír næstu fundir á undan höfðu
verið árangurslausir, en stjóm-
andinn hafði vonað að fá fyrir-