Lögrétta - 13.05.1924, Síða 1
Innheimta og afgreiðsla
í Þingholtsstræti 17
Sími 178.
Útgefandi og ritstjóri
Þorsteinn Oíslason
Þingholtsstræti 17.
XIX. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 13. maí 1924.
33. tbl.
Umvíðaveröld.
Fridtjof Nansen um Grænlands-
málin.
Hjer í blaðinu hefir áður verið
sagt frá ýmsum þeim umræðqm,
sem fram hafa farið í nágranna-
löndunum um Grænlandsmálin svo-
nefndu, eða deilurnar og samning-
ana um þau milli Dana og Norð-
manna sjerstaklega. Milli þeirra er
niálinu ekki lokið ennþá, en mikið
um það rætt í báðum löndum. Einn
þeirra Norðmanna, sem lagt hefir
nokkuð til þeirra mála, er prófessor
Friðþjófur Nansen. Hann setti fyr-
ir alllöngu fram skoðun sína á mál-
inu í blaðinu Tidens Tegn. Megin-
atriðin í áliti Nansens eru þessi:
Hvorki Danir nje Norðmenn geta
með sanngirni gert kröfur til hins
bygða hluta af ströndum Græn-
lands. líjettir eigendur landsins
eru Eskimóarnir, skrælingjarnir,
og það eru þeirra hagsmunir, sem
urshtunum eiga að ráða. það besta
og rjettasta, sem bæði Danir og
Norðmenn og aðrar þjóðir gætu
gert, væri það, að vera ekki að
blanda sjer í þessa hluti, en láta
Eskimóana lifa í friði án íhlutun-
ar frá Evrópuáhrifum eða menn-
ingu að nokkru leyti. En þar sem
hinsvegar er ekki hægt að bægja
útlendingum alveg í burtu, meðan
einhverskonar ábatavon er annars
vegar, segist Fr. N. ekki sjá aðra
leið til úrlausnar, til þess að verj-
ast hraðfara og ákveðinni eyði-
leggingu Eskimóanna, en þá, að
halda uppi einhverskonar einka-
leyfastjórn, svipað og Danir hafa
gert. þessi stjórn er hinsvegar,
segir hann, langt frá því að vera
nokkur fyrirmynd eins og nú er,
en hinsvegar má vafalaust bæta
hana mikið.
Um afskifti Norðmanna af
Grænlandi segir F. N. m. a.: Mundi
norska þjóðin vera fús til þess að
fórna miklu fje árlega fyrir þann
heiður einan að hafa eignarum-
ráðin yfir Grænlandi. Jeg held að
þeir staðir sjeu til í Noregi, þar
sem hægt væri með meiri hagnaði
að nota það fje, sem Norðmenn
kynnu þannig að hafa aflögu.
Um austurströnd Grænlands tel-
ur Fr. N. hinsvegar nokkru öðru
máli að gegna. Frá sjónarmiði
þjóðarjettarins telur hann það
mjög óvíst, hver rjett hafi til þess
að slá eign sinni á ónumið land.
þess vegna getur einnig verið efi
á því, hver eigi rjett til austur-
strandar Grænlands. En fyrir sunn
an 67. gráðu norðlægrar breiddar
tilheyrir landið efalaust Eskimó-
unum. Allur suðurhluti austur-
strandarinnar frá Hvarfi og að 69.
gráðu norðlægrar breiddar hefir
fyrst verið rannsakaður og kort-
lagður af þremur dönskum leið-
angrum. Norðmenn geta, að áliti
Fr. N., ekkert tilkall gert til þess-
arar strandlengju. peir hafa tæp-
ast stigið þar fæti á land. þar við
bætist svo, að þetta landssvæði er
gildislaust fyrir norska starfsemi.
Að því er kemur til framtíðar-
möguleika Grænlands, talar Fr. N.
helst um gildi ]pess sem ferða-
mannalands.
Um deilurnar, sem orðið hafa
milli Dana og Norðmanna um
þetta segir hann m. a., að í raun
rjettri sje spurningin mjög auð-
leyst, og það sje þess vegna und-
arlegt, hversu mikill hávaði hafi
orðið út af málinu. Á öðrum stað
í greininni segir hann um norsku
hreyfinguna í þessu máli: það er
að sjálfsögðu bæði djarft og von-
laust, að koma fram með skoðanir
og athuganir, sem brjóta alveg í
bága við það, sem hingað til hefir
verið haldið fram í sambandi við
þá skriðu norskrar þjóðernis- og
þjóðrjettartilfinningar, sem svo
margir góðir Norðmenn hafa orðið
hrifnir af og hrundið hefir Græn-
li ndsmálunum af stað. En það, að
jeg geri það samt sem áður, er af
því sprottið, að jeg get ekki betur
sjeð, en að málið hafi verið mjög
einhliða rætt í blöðunum, bæði í
Danmörku og Noregi, og að fólk
sje orðið talsvert ímyndunarveikt
í málinu, hjá hvorum aðilanum
sem er.
Edison.
Ekki alls fyrir löngu hefir ame-
ríski eðlisfræðingurinn og upp-
íyndingamaðurinn Edison tilkynt
það, að hann drægi sig út úr flestri
eða allri starfsemi þeirri, sem
hann hefir rekið, og fjelögum
þeim, sem unnið hafa að ýmsum
uppfyndingum hans. Gengur sonur
hans inn í stjórn þessara fyrir-
tækja í hans stað.
Edison er sjálfsagt langkunnast-
ur allra uppfyndingamanna nútím-
ans og hefir lengi verið skoðaður
af allri alþýðu manna sem einskon-
ar töframaður. Hann er fæddur 11.
febr. 1847, af hollenskum og skotsk
um ættum og var fátækur blaða-
drengur fyrst og gaf síðar sjálfur
út dálítið blað. Síðan varð hann rit-
símamaður.*Snemma fór hann að
gera ýmsar uppgötvanir, einkum
viðvíkjandi símritun. Fyrsta stóra
gróðafyrirtæki hans á því sviði var
endurbót á kauphallarfrjettum,
sem hann gerði 1873 og fekk fyr-
ii 40 þús. dollara. Fyrir það reisti
hann tilraunastöð og verkstæði og
var bækistöð hans síðan lengstum
í Menlo Park við New Ýork. 1877
gerði hann merkilega endurbót á
talsímauppgötvun Bells og eftir
það varð talsíminn mjög útbreidd-
ur. Sama ár var það sem hann fann
upp phónógrafinn og endurbætti
síðan hvað eftir annað. Frá sama
t'mabili er einnig uppgötvun hans
á rafmagns-glóðarlampanum, en
með honum komst fyrst verulegur
skriður á raflýsingarmálin. 1882
bygði hann í New Ýork fyrsta raf-
ljósakerfið með c. 2000 lömpum.'
Hann gerði einnig uppgötvun þá,
sem kvikmyndirnar eru bygðar á.
Hann hefir einnig fengist mikið
við sementsvinslu og bygt stóra
sementssmiðju o. fl. Fjöldamörg
fjelög og verksmiðjur hafa verið
starfandi að þessum uppgötvunum
hans og hefir hann sjálfur stjórn-
að flestum þeirra. En nú hefir
hann hætt þeirri starfsemi, eins og
fyr segir, og fengið hana í hendur
syni sínum.
----o----
Einar Jónsson myndhöggvari
átti fimtugsafmæli 11. þ. m. Til
minningar um það var stofnaður
hjer sjóður, sem hefir það æthin-
arverk, að láta smátt og smátt
gera eirsteypur af listaverkum
hans. Var honum tilkynt þetta með
símskeyti afmælisdaginn. Einnig
fjekk hann þá fregn hjeðan um
það, að fengið væri hjer fje til
þess að koma út bók með myndum
af verkum hans, mjög vandaðri að
öllum frágangi, og er ráðgert, að
bókin verði prentuð í Khöfn. Mun
beimkoma hans dragast eitthvað
vegna þess, að hann mun vilja sjá
sjálfur um útgáfu bókarinnar að
einhverju leyti.
----o---
Einar Jónsson
— 11. maí 1924. —
Hátt skín í heiði
heilög stjarna,
lista gyðja
liðinna alda.
Varp hún geislum
á Galtafellp
vígði vordag
vöggu bami.
Óx þar upp góður,
ungur sveinn,
íturfríður
og orkuþrunginn.
Snemma hneig hugur
að hárri list;
ljek hönd að leiri
og litsteini.
Mótað lá margt
fyrir mildri sjón:
háfjöll og hraun,
og harðir straumar.
íslensk náttúra
var hans auðnubók,
las hann þar fyrst
um list og speki.
Fór svo ungur
úr föðurgarði,
listneminn ljúfi,
um lönd önnur.
Sótti’ upp á sóltind
sannrar listar,
sjálfum sjer frægð
og sínu landi.
Leiddi hann í ljós:
líf í steini,
og mjúka drætti
í málmstorku.
Lengi munu verk hans
lýðum kunn;
tala þau trútt
„um tign og vit“.
Kom jeg í Hnitbjörg
á kólgustund,
vildi jeg verma
vit og hjarta.
Opinn stóð þar heimur
hreinnar snildar
fyrir mjer, fágaður
í fögrum myndum.
Hljóttu þjóðarþökk
þúsundfalda,
mannkostaríki
mkringur listar! —
óskar þjer alls góðs
hver íslensk sál. —
Lifðu hjá oss lengi! —
P. P.
-----o-----
Fimm lík hefir nýlega rekið af
íæreyska skipinu, sem fórst í vor
við Grindavík, og 9 lík hefir áður
rekið. þau voru jarðsett hjer þá
rjett á eftir, en hin 5 nú í dag. Eru
þá enn aðeins 3 lík ófundin.
þingemenn eru flestir famir
heimleiðis.
Blaðadeilan nýja enn.
I síðastl. viku voru þeir endur-
kosnir í útgáfufjelagsstjórn Mrg.-
bl. og Isaf. stórkaupmennirnir
Fenger, Garðar og Proppé. Fenger
hafði viljað losna, en fjekk nú ekki,
segja sögurnar. De har havt Lyst
til at styre Skuden — styr den
i-u! höfðu hinh’ sagt. Lad os nu
se, hvad han duer til! Skriv nu og
lad andre skrive! Kaptainen for-
lader ikke sit Skib i Nödens Stund!
— Skriv, Fenger! Skrifaðu, Garð-
ar! Schreib, Proppé, höfðu þeir
sagt uppi á fundinum hjá Natan &
Olsen. Og svo höfðu allir þrír ver-
ið endurkosnir með öllum atkvæð-
um að undanteknum þremur, en
það voru þeirra eigin atkvæði.
En barnalegar eru upiræður Mbl.
vm þetta blaðadeilumál enn. — Lít-
il skýring í viðbót við það, sem
áður er sagt, er ef til vill ekki
cþörf.
Yfirumráð blaða hljóta, þegar á
leynir, að vera í höndum eigend-
anna, svo framarlega sem þeir
vilja neyta umráðarjettar síns.
Yfirumráðin eru fólgin í því, að
þeir ráða ritstjórana og segja
þeim upp. Haldi ritstjórinn fast á
rjetti sínum, getur ‘hann ráðið,
meðan hann er við blaðið, en sje
hann í andstöðu við eigendurna,
verður hann að fara. Núverandi
ritstjórar Mrg.bl. eru ráðnir með
þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Rjettindum þeirra er þannig var-
ið, að þeir geta krafist þriggja
mánaða launa hjá útgáfufjelags-
stjórninni eftir að þeim hefir ver-
ið birt uppsögn á starfinu. En út-
gáfufjelagsstjórnin er þeirrar skoð
unar, að þeir verði að fara frá rit-
stjóminni, hvenær sem henni
þóknast, og sá ritstjórinn, sem er
ltgfræðingur, mun skilja þetta
svo. Um þetta átti fyrv. ritstj. í
þjarki við útgáfufjel.-stjórnina og
lá við sjálf að fógetarjettur yrði
látinn skera úr. Hann hafði sex
mánaða uppsagnarfrest, en fór frá
blaðinu fjórum mánuðum eftir að
honum var birt uppsögnin.
Mrg.bl. hefir hvað eftir annað
sagt, að núver. ritstjórar hafi
alveg sömu afstöðu til útgáfufjel.-
stjórnarinnar sem fyrv. ritstj. hafi
Laft, og hefir Lögr. látið þau um-
mæli afskiftalaus. En þessu er
ekki svo varið. Auk þess sem
ráðningartími þeirra er miklu
styttri, er afstöðumunurinn sá, að
fyrv. ritstjóri gekk í fjelagsskap
við útgáfufjel.-stjórn Mrg.bl. um
blaðaútgáfu og var jafnframt ráð-
inn ritstj. Mrg.bl. — þótt hann
ætti ekkert í Mrg.bl., var hann
samt langstærsti eigandinn í fje-
lagsskapnum, þegar litið var á
bæði blöðin sem heild, stærri eig-
andi en útgáfufjel.-stjómin öll til
samans. þetta skapaði, eins og
skiljanlegt er, örðugleikana við að
segja honum upp, því ella mundi
það hafa verið gert löngu fyr.
-----------------o-----
Flensborgarskólinn. Honum var
sagt upp 30. f. m. Á honum voru í
vetur 66 nemendur, þar af 36 úr
Hafnarfirði. í heimavist voru 18.
Kostnaður hvers þeirra varð 61 kr.
70 au. um mánuðinn. Ráðskona var
Sigríður Bæringsdóttir úr Reykja-
vík. 19 tóku burtfararpróf.
Höfuðbólið Hagi á Barðaströnd
fæst til kaups og ábúðar í fardög-
um 1925. 1 kaupinu fylgja með
þessar jarðir: Ýtri- og Innri-Múli,
Grænhóll, Tungumúli og Sauðeyj-
ar. — Samið skal við
Hákon Kristófersson, Haga.
_A_lþingi.
Störf Alþingis.
Alþingi, sem slitið var 7. þ. m.,
átti setu í 83 daga. Á þessum tíma
hafa störf þingsins verið sem hjer
segir, samkvæmt yfirliti, sem
skrifstofan hefir gert: Lagafrum-
vörp voru lögð fyrir þingið alls
111, þar af 24 stjómarfrv., 18 í
nd. og 6 í ed. En þingmannafrv.
voru 87. Af þessum fmmvörpum
vóru afgreidd sem lög 47, þar af
16 stjórnarfrv. og 31 þingmanna-
frv. En felt var 1 stjórnarfrv. og
15 þingmannafrv. Með rökstuddri
dagskrá var vísað frá 6 þing-
mannfrv. og 3 vísað til stjórnar-
innar. En óútrædd urðu alls 39
frumvörp, þar af 7 stjórnarfrv. og
32 þingmannafrv. Auk þess voru
svo bornar fram 36 þingsályktun-
artillögur, 20 í nd., 13 í ed. og 3 í
sam. þingi. Af þessum tillögum
voru 16 afgreiddar til ríkisstjórn-
arinnar, 7 í nd., 3 í ed. og 6 sem
ályktanir alþingis. Ennfremur var
samþykt ein ályktun um fram-
kvæmdir innan þings. Loks var
vísað frá með rökstuddri dagskrá
2 þingsályktunartill., 1 feld, 7 vís-
að til stjórnarinnar, 2 teknar aft-
ur og 7 ekki útræddar. Fyrirspum-
ir voru bomar fram 3, 2 í nd. og 1
í ed., þar af var 2 svarað, en 1 ekki
leyfð. — Alls hafa því verið tek-
in til meðferðar í þinginu 150 mál.
Fundir hafa verið haldnir alls 139,
þar af í nd. 67, í ed. 65 og í sam-
einuðu þingi 7.
—— o~—■
Frá Vestmannaeyjum. þaðan
hafa gengið nú á vertíðinni 72 bát-
ar, alt vjelbátar, og auk þeirra 2
gufubátar, og gekk þeim tiltölulega
mjög tregt í samanburði við vjel-
bátana. Afli er talinn alls um 26
þús. skp. Hæstur afli á vjelbát mun
vera um 700 skp. — Tíðin hefir
verið mjög hagstæð, aðeins einn
landlegudagur frá 1. marts.
Frú Björg þorláksdóttir hefir
undanfarið flutt fyrirlestra við
heimspekisdeild háskólans hjer.
Til Ameríku er nýlega farinn
Steingrímur Einarsson læknir.
Sömul. þorbjörg Árnadóttir hjúkr-
unarkona. St. E. er ráðinn við spí-
tala í Chicago og p. Á. við annan í
Canada.
Leiðarljóð heitir sönglagasafn,
sam nýkomið er út á ísafirði, á
kostnað Jónasar Tómassonar bók-
sala, en safnað hefir Sigurður Ei-
ríksson regluboði. þar í em ýms
ný lög, eftir íslenska höfunda, sem
ekki hafa áður verið prentuð.
tslandsfáni. Jónas Tómasson
bóksali á Isafirði hefir gefið út
nýtt lag eftir sig við kvæði Guðm.
Guðmundssonar: Islandsfáni.
Hjúskapur. Nýlega hafa verið
gefin saman í hjónaband ungfrú
þórhildur E. M. Bjarnadóttir frá
Heiði á Síðu og Gottskálk Jónsson
frá Hvoli.