Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 21.10.1924, Blaðsíða 1

Lögrétta - 21.10.1924, Blaðsíða 1
[nnheimta og afgreiðsla í Þingholtsstræti 17 Sími 178. Útgefandi og ritstjóri Í’orsteinn Oíslason ÞingholtsstrfV'ti 17. XIX. ár. Umvíðaveröld. TiIIögiu- um þjóðnýtingu í Noregi. Árið 1919 var í Noregi skipuð nefnd til þess að athuga og koma fram með tillögur um þjóðnýtingu atvinnuveganna. Nefnd þessi hefir tekið til athugunar þjóðnýtingu al- ment, kosti hennar og galla. Hún hefir nú lokið störfum og gefið út álit sitt. Eru þar rakin höfuðat- riði þessa merkilega máls, kostir og kallar metnir, ályktanir dregn- ar og tillögur gerðar. Skal hjer á eftir skýrt frá stærstu dráttunum í áliti nefndarinnar, eftir skýrslu- útdrætti, sem Lögr. hefir íengið. Nefndin byrjar á að skilgreina hugtakið þjóðnýtingu: 1. pjóðnýting táknar það, að eignarumráð framleiðslutækj anna eru flutt úr höndum einstakling- anna yfir til þjóðfjelagsheildar- innar, og rekin af henni með hags- muni alþjóðar fyrir augum, eftir ákveðnu skipulagi framleiðslunn- ar, með lýðræðisstjórn og hag- fræðilegri og rjettlátri skiftingu arðsins meðal manna. 2. Ef auðvaldsframleiðslan er borin saman við eldri framleiðslu- aðferðir, kemur að vísu í Ijós fram- för, framleiðslumagnið hefir auk- ist, einstaklingsatorkan notið sín, mönnum hefir gefist kostur meiri þæginda, vöruverð hefir lækkað og atvinnan aukist. En þrátt fyrir þetta er skipulag auðvaldsins á framleiðslunni og skiftingu henn- ar meingölluð, vegna hagnaðar- hvatanna, er stjórna allri auð- valdsframleiðslu. Framleiðsla auð- valdsins fullnægir ekki þörfum al- mennings. Hin frjálsa samkepni er skipulagslaus og rík af glundroða, eyðir að óþörfu fje og vinnuafli, orsakar atvinnuleysi og fjárhags- kreppu. En þegar samkepnin hður undir lok, koma í stað hennar sjer- rjettindahringar, er flá neytend- uma inn að skinninu. Skifting auð- valdsins á framleiðslunni hefir í för með sjer fátækt vinnulýðsins. gerir meiri mun fátækra og ríkra en það leiðir aftur til stjettaskift- ingar og stjettabaráttu. Auðvalds- skipulagið veldur aðalmeinum þ.i óðfj elagsins: húsnæðiseklunni, ofdrykkjunni, lauslætinu, glæpun- um, fátæktinni og flótta úr landi. Hin innri mótsetning milli samlags framleiðslu og einstaklingseignar- ijettar dauðadæmir auðvaldsskipu- lagið. 3. það er að nokkru hægt að minka mein auðvaldsframleiðsl- unnar, bæta úr þjóðfjelagsgöllun- um og minka stj ettamuninn, með samvinnuframleiðslu, ríkis- og hjeraðsauðsöfnun, og smá-mann- f j elagsbótum, alt á grandvelli hins ríkjandi auðvaldsskipulags, með því t. d. að ríkið hafi hönd í bagga með og íhlutun um auðvaldsfram- leiðsluna, kjör og kaup verka- manna bætt, allskonar tryggingar- starfsemi aukin og fullkomnuð og almenningi gefinn kostur á að ráða meir skipulagi iðnaðar og meðferð opinbers fjár. En ekkert af þessu bætir að fullu mein mannfjelagsins, á meðan ekki er grafin upp með rótum orsök ógæf- unnar: eignarrjettur einstakling- anna á framleiðslutækjunum, og það, sem af því leiðir, sem er auð- söfnun einstakra manna á kostnað hinna starfandi stjetta. En það er nauðsynlegt að skeia fyrir rætur meinsins. Og þessvegna verður ekki komist hjá þjóðnýtingu. Heykjavík, þriðjudaginn 21. okt. 1921. 5G. tbi. 4. Fengin reynsla gerir mjög sennilegt, að þjóðnýting atvinnu- veganna leiði til betra skipulags á Hamleiðslunni og auki hana að mun frá auðvaldsaðferðinni. 5. þjóðnýtt framleiðsla bætir úr göllum auðvaldsskipulagsins, en varðveitir um leið kosti þess. þjóð- nýting atvinnuveganna eykur frelsi og jöfnuð. Eignarrjetturinn, sem með auðvaldsfyrirkomulaginu er einkum sj errj ettindi hinna ósvífnu þegna þjóðfjelagsins, fell- ur öllum í skaut, um leið og íramleiðslutækin eru orðin eign al- þjóðar. Erfðarjetturinn á að hald- ast innan sömu takmarka og eign- arrjetturinn. þjóðfjelag með þjóð- nýttri framleiðslu getur gefið öll um þegnum sínum rjett til nægi- legrar vinnu og lífsþarfa. Aftur á móti verður vinnuskylda í lög leidd, og þegar gróði einstakra íramleiðslueigenda með þessu móti er dottinn úr sögunni, er ástæðan til verkfalla horfin. 6. Með þjóðnýttri framleiðslu gerbreytist skifting framleiðslu- arðsins, sem áður fjell í skaut nokkurra einstaklinga, er bá ílytst yfir til þjóðfjelagsheildar- innar, og með því móti fæst nægi- legt veltufje til framleiðslunnar og trygging rjettlátra launa fyrir þjóðholt starf. 7. þjóðnýtt framleiðsla veldui ijettlátri og eðlilegri verkaskift- ingu, eykur einstaklingsframtak og fjárafla þjóðfjelagsheildarinn- ar. Hún kemur af stað betra skipu lagi og aðferðum á framleiðslunni, meiri samvinnu milli auðs og at- hafna, eykur framleiðslumagnið, bætir vinnulagið og styrkir verk agann. 8. þjóðnýting á auðvaldsfram- leiðslunni eykur menninguna og bætir kjör manna og mentun, og gefur vísinda- og listastarfsemi byr undir báða vængi. 9. Með þjóðnýttri framleiðslu hverfur bæði skifting þjóðfjelags- ins í stjettir eftir auði, rígurinn milli framleiðenda og neytenda og milli kaupstaða og sveita. þjóðnýt- ing verður ekki eingöngu ágóði fyrir launaða verkamenn, heldur emnig fyrir kotbændur og aðra smáframleiðendur, er standa utan við hina eiginlegu auðvaldsstjett. Með þjóðnýtingu er gatan greið tii friðar og samlyndis innan þjóðfje- lagsins. 10. Aðferð til þjóðnýttrar fram- leiðslu verði meðal annars á þessa leið: a. Núverandi myntskipun helst óbreytt. b. pjóðfjelagsheildin tekur fram leiðslutækin frá einstaklingunum gegn fullu gjaldi. Endurgjaldið greiðist í peningum og arðberandi verðbrjefum. c. þjóðnýting framkvæmist af þar til hæfri valdstjóm, með ráð- um og aðferðum fagmanna. d. Eignarrj etturinn að fram- leiðslutækjunum flytst yfir til rík- isins í heild, sveita eða bæja, eftir því sem betur þykir fara. e. Stjóm framleiðslunnar hafa á hendi nefndir eða ráð, skipuð reyndum og mentuðum fagmönn- um, völdum með lýðræðishætti. Aðstoðarmenn, verkamenn og neytendur taka þátt í stjórn fyrir- tækjanna, með ráðstjómarhætti. f. Skifting framleiðslunnar verði þannig, að hver fái nægilegt, sjer og sínum'til framfæris, og sje einkum litið á það, hve miklu og góðu verki hver og einn afkastar, þannig, að kappkostað sje að allir fái fult verðmæti vinnu sinnar. Hjalmar Branting. g. Framleiðslukostnaður verði ákveðandi um verð á lífsnauðsynj ■ um, eftir því sem auðið er. h. Stjórnendur, aðstoðarmenn og verkamenn fái ágóðaþóknun, sem svari til notagildis og verð- mætis verka þeirra. Annar ágóði renni í alþjóðarsjóð. i. Til þess að ná umráðum fram- leiðslutækjanna, skal tekinn eigna og jarðaskattur, og stighækkandi suð- og erfðafjárskattur. Ríki. bæja- og sveitarfjelög leggi fran nauðsynlegt veltufje, og reki síð- an fyrir eiginn reikning starf- rækslu framleiðslunnar. Eftir að þjóðnýting er fyllilega komin ' framkvæmd, notist arður fram- leiðslunnar, eigna- og jarðskatt- ur til þess að standa straum af ríkisstjórninni, til hagsbóta fyrir þ j óðf j elagsheildina. Ennfremur er í nefndarálitinu kveðið svo á, að þjóðnýting verði því aðeins framkvæmanleg, að verkamannastjettin fái nauðsyn- lega fræðslu og mentun í verkleg- um efnum, ábyrgðartilfinningu og taki öflugan þátt í starfrækslunni. Fullkomin þjóðnýting geti aðeins komist á, með því að það verði um öll lönd. Aftur á móti geti þjóð- nýting komist á í einstökum lönd- um, í sjerstökum greinum, sem óháðar sjeu þróun annara landa. þjóðnýtingin eigi að byrja með opinberu eftirliti og afskiftum af atvinnuvegunum, og þeirri reglu, að verkamenn taki þátt í stjórn fyrirtækjanna, fái ágóðaþóknun, laun stjórnendanna sjeu takmörk- uð, tollar lækkaðir og skattarnir látnir eingöngu hvíla á þeim efn- uðu o. s. frv. Meiri hluti nefndarinnar styður þetta álit, sem samið er að mestu og sett í kerfi af Dahl hæstarjett- ardómara, sem er formaður nefnd- arinnar. Sænsk stjórnarskifti. Eins og áður hefir verið sagt frá hjer í blaðinu, er nýlokið kosn- ingum í Svíþjóð, og hefir þeim lokið þannig, að hægrimannastjórn Tryggers hefir farið frá völdum. Eitt aðaldeiluefnið vom hervarn- armálin. Síðustu símfregnir segja nú, að leiðtogi jafnaðarmanna, Hjalmar Branting sje tekinn við stjórninni. Er það í þriðja skifti sem hann er forsætisráðherra Fyrst var hann það stuttan tíma á stríðsárunum, síðan myndaði hann einlitt jafnaðarmannaráðuneyti í marts 1920. Branting hefir um langan aldur verið viðurkendur foringi sænskra jafnaðarmanna og einhver mestvirti stjórnmálamað- ur þar í landi, og yfirleitt í miklu áliti meðal jafnaðarmanna alstað- ar í álfunni. Hann er nú maður um hálfsjötugt, en þingmaður hefir 1 hann verið frá 1896. Upphaflega ■ lagði hann stund á stærðfræði og stjörnufræði, en hneigðist snemma að opinberum málum og gerðist blaðamaður. Fyrst starfaði hann við blað, sem hjet Tíminn og var helst málgagn iðnfjelaganna, en varð síðan alger jafnaðarmaður og ritstjóri aðalblaðs þeirra. Hefir ] flokkurinn eflst mjög undir for- ustu hans, enda er hann ritfær maður og sagður ræðumaður ágætur. Óánægja og sundrung hef ir þó komið upp innan flokksins : en er nú jöfnuð að mestu eða öllu ; leyti. Var Branting í þeim deilum : ákveðinn andstæðingur „ung- ! sócíalistanna“ svonefndu. Um önnur ráðherraembætti er þess getið í síðustu símfregnum, að utanríkisráðherra sje Undin prófessor, dómsmálaráðh. Nathin forstjóri, hermálaráðh. Albin Hansson ritstjóri, fjármálaráðh. Thorson og verslunarmálaráðh. Samdler. Flestir vora menn þessir emnig í fyrra ráðuneyti Brantings. Anatole France dáinn. Franska skáldið A. France er nýdáinn og fór jarðarför hans fram í París s. 1. laugardag, og segja símfregnir, að franska þjóð- in hafi sjaldan sýnt nokkru stór- menni sínu jafnmikla hluttekn- ingu. Frakkar töldu A. Fr. einnig einhvérn hinn mesta ritsnilling sinn, þó oft hafi reyndar verið deilt um hann og verk hans og for- boð á þau lögð, vegna ádeilu gegn og hæðni við ýms atriði ríkis og einkum kirkju, og stundum af sið- ferðilegum ástæðum. En ritsnild hans og ýmsa glæsimensku, ljett- leik hans og lærdóm, hafa menn þó alment viðurkent. Hann hlaut bókmentaverðlaun Nóbelsjóðins fyrir fáum ámm, en gaf þau til líknarstarfsemi. Kunnastur varð A. Fr. fyrir sögur sínar, s. s. La Rótisserie de la Reine Pédauque (og aðra bók henni skylda, Les opinions de M. Jérome Coignard), Le Crime de Sylvestre Bonnard, Thais, Le Livre de mon Ami, La Revolte des Anges o. fl. Hann hef- ir einnig skrifað bók um Jeanne d’Arc, sem mikla athygli vakti og umræður, og ýmislegt um bók- mentaleg efni (í Journals des De- bats og Temps), og sjeð um út- gáfur ýmsra franskra merkisrita og skrifað formála fyrir. því upp- runalega lagði hann stund á bók- mentafræði og sagnfræði. — Hann var um áttrætt þegar hann and- aðist. Síðustu símfregnir. Á flokksráðstefnu gerbótaflokks ins franska, sem haldin er í París og margar þjóðir hafa sent full- trúa á, var á sunnudaginn stofnað samband gerbótaflokka víðsvegar um heim, og var þetta gert fyrir frumkvæði danska þingmannsins Ivar Berentzen. Sambandi þessu er ætlað að ná til sem flestra þjóða heimsins, í líkingu við samband jafnaðarmanna. Herriot forsætisráðherra og Marx kanslari hafa báðir látið í ljós, að nú væri að hefjast vinátta ! milli þjóðverja og Frakka, og hef- ir þetta vakið mikla eftirtekt. Kosningasamvinna íhaldsmanna og frjálslyndra manna í Englandi er orðin mjög víðtæk. 1 þýskalandi er búist við þing- rofi innan skamms, vegna veikrar afstöðu stjórnarinnar. ----o----- / Askorun svarað. Jeg hefi ekki borið nje viljað bera þær sakir á kennara háskól- ans, sem greindar em í áskorun prófessora og prófdómenda laga- deildar til mín í síðasta tbl. Lögrj Jeg hefi bent á, að þessar sakar- giftir felist í ummælum Sig. Nor- dals prófessors í Andvaragrein hans, og ekki ætlað mjer að auka neinu við þær frá sjálfum mjer. pessvegna tel jeg, að það sje próf. Nordals en ekki mitt að svara áskoran þeirra. Nú vill svo vel til, að próf. Nor- dal hefir tekið málið upp í sama tölublaði, sem flytur áskorunina. Hann fer alveg rjett með það, að jeg hefi borið það upp á hann, að þessar ásakanir felist í ummælum 'hans, en segir svo: „Slík árás vai ekki í orðum mínum fólgin, enda hefir enginn skilið þau svo fyr, svo að jeg viti“. Jeg verð nú að halda því fram, að það hafi verið fyllilega rjettmætt að skilja orð hans eins og jeg gerði, meðan eng- in leiðrjetting eða skýring á þeim var fram komin frá honum sjálf- um, en hitt skal jeg fúslega viður- kenna, að hann á leiðrjettingu orða sinna, og skýringarrj ett á þeim öðrum fremur, og þegar hann full- yrðir að slík árás sje ekki í þeim fólgin, þá hefi jeg fyrir mitt leyti engu þar við að bæta. Gangráður. o- tlðt í (16—22. júlí 1924). Eftir Gunnar Árnason frá Skútu- stöðum. ----- Frh. Fimtudaginn 17. júlí. Kl. 10—11 skiftu fundarmenn sjer í flokka og voru í biblíutímum hjá hinum og þessum, og var um- ræðuefni allra: Trúin. Kl. lli/4 hjelt prófessor Edvard Geismar (frá Khöfn) fyrirlestur, er nefndist: Hvert stefnum vjer cg menning vor? I stað gullaldarinnar, sem búist var við að rynni upp, þegar manns- andinn næði tökum á náttúraöfl- unum, er það komið á daginn, að vjelarnar hafa vjelað mennina — þeir era orðnir og verða meir og meir aðeins vjelastykki, er starfa í þjónustu lífskvíðans og drotnun- argirninnar. Svona ræður nákalt vjelgengið á öllum sviðum, því þótt allir hrópi, að rjettlæti skuli ríkja, þá er það aðeins gjallyrði; menn berj- ast um að verða í meirihluta, til þess að geta kúgað minnihlutann. Hjörtun eru forhert, hausarnir orðnir að reikningsvjelum. Vísindi og listir eru til þess eins notuð, að rjettlæta og varpa fegurðarblæ yf- ir þessa baráttu. En þetta er vítisleið. Hvað fær bjargað? Kristindómurinn ? Með því einu móti að hann snúist gegn heiminum. það nægir ekki að menn tönglist á: „En hver er sá, sem sigrar heiminn, nema sá, sem trúir að Jesús sje sonur Guðs?“ Menn verða að lifa í þeirri trú og breyta eftir henni. Við ljósið frá krossi Krists verða menn að dæma menninguna, með fórnarkærleika hans verða þeir að ávinna heim- inn. það er eina björgunarvonin, — Umræður áttu að vera á eft- ir, en áliðið var og aðeins einn tal- aði, dr. Manfred Björkqvist, hinn kunni sænski vakningaprjedikari.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.