Lögrétta - 28.10.1924, Blaðsíða 1
Innheimtaog afgreiðsla
í Veltusundi 3
Sími 178.
Útgefandi og ritstjóri
Þorsteinn Oíslasou
Þingholtsstræti 17.
XIX. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 28. okt. 1924.
57. tbl.
Um viða veröld
B !
Mac Donald um ensk stjórnmál.
Ensku þingkosningarnar fara
fram á morgun. Kosningaróðurinn
hefir að vísu verið stuttur, en
mjög magnaður hjá öllum flokk-
um. Hefir áður verið sagt hjer í
blaðinu frá málum þeim, sem eink-
um urðu þess valdandi, að til kosn-
inga kom. En þar sem úrslit kosn-
ingaþessara geta orðið mjög merki
leg, ekki aðeins inn á við fyrir
bretska heimsveldið, heldur líka út
á við, fyrir ýms milliríkjamál, er
íróðlegt að reyna að kynnast sem
best að auðið er málum þeim og
mönnum, sem þar koma við sögu.
Telja flestar síðustu fregnir svo,
að úrslitin verði þau, að íhalds-
menn vinni mest á við kosningarn-
ar. Verður hjer nú sagt nokkuð frá
samtali, sem þeir áttu í byrjun
þessa mánaðar um þessi mál, for-
sætisráðherra Mac Donald og
Wickham Steed, einhver hinn
elsti og helsti blaðamaður Eng-
lands. En hinn síðari hefir skrifað
um það í okt.-nóv. hefti tímarits-
ins Review of Reviews.
Hvað get jeg eiginlega sagt,
mælti Mac Donald fyrst. þetta hef
ír komið yfir mig eins og þjófur á
nóttu. Um þetta leyti í gær þóttist
jeg geta leikið á als oddi. Jeg var
þó þreyttur eftir erfiðar en árang-
ursgóðar samningaumr. um tyrk-
nesku málin. Og jeg þóttist nærri
hreykinn þegar tekist hafði að
komast að íullnægjandi niður-
stöðu. En þá um kvöldið kom
þessi breytingartillaga frjálslynda
flokksins um „sjerstaka nefnd til
þess að rannsaka og gefa skýrslu
um það, hvernig stæði á afturköll-
un Campell-málsins. Reyndar er
jeg reiðubúinn til þess að ræða
þetta í þinginu. Og deildin getur
svo greitt atkvæði eins og henni
þóknast, þegar hún hefir heyrt
hvað við höfum fram að færa. En
er það sanngjarnt að ætla okkur
að fallast á rannsóknarnefnd með
valdi til að skoða öll brjef og öll
atvik, til þess að leiða vitni um
þessa getgátuna eða hina, og hvort
þetta eða hitt atvikið hafi haft
áhrif á úrskurð okkar? Hver get-
ur sagt, hvað haft hefir eða ekki
haft áhrif á okkur? Jeg veit ekki
hvaða skilríki eni fyrir hendi. Jeg
segi þetta aðeins frá almennu
sjónarmiði. það væri ekki einu
sinni fullkomlega rjett að ætla
okkur að fallast á dómsrannsókn,
því mergurinn málsins er sá, hvað
fyrst og fremst hafi ráðið afstöðu
hins opinbera saksóknara ríkisins.
En hvað fer svo þessi breytingar-
tillaga frjálslynda flokksins fram
á? Við eigum að leggja mál okk-
ar á vald sjerstakrar nefndar, þar
sem meirihlutmn, sjö móti þrem-
ur, verður samkvæmt hlutarins
eðli skipaður stjórnmálaandstæð-
ingum okkar — það er að segja
mönnum, sem fyrirfram var vit-
anlegt um, að mundu beinast gegn
okkur, og hefðu sem dómarar haft
álit okkar í höndum sjer. Ef þetta
mál á að ræðast, þá á að ræða það
opinberlega í þinginu, og þar á þá
jafnframt að meta, sanngjarnlega
og opinberlega, ábyrgðina á því, að
flækja eða tefja fyrir á þennan
hátt þeim verkum, sem við erum
nú að vinna í alþjóða þágu. því
þrátt fyrir það, þó stjórnin sje
ekki meinhlutastjórn, á hún rjett
til þess að heimta fair play. því
við erum þó enginn stigamanna-
hópur.
Steed ritstjóri sagði þá, að sjer
virtust írsku málin vera merkustu
og vandasömustu úrlausnarefni nú
og þau, sem stjórnarskifti gætu
haft varhugaverðust áhrif á.
því svaraði forsætisráðherra á
þá leið, að enginn, hvorki í írlandi
nje annarstaðar, gæti tortrygt
verkamannastjórnina um það, að
hún hefði reynt að ganga á snið
við það, að fullnægja írsku samn-
ingunum. En eins og jeg hefi ný-
lega sagt í neðri málstofunni, þá
hefði jeg óskað þess, að það hefði
ekki orðið mitt hlutskifti að fara
höndum um þessa landamæradeilu,
því hvorki jeg nje nokkur minna
manna ber ábyrgð á þeim erfið-
leikum, sem þar hafa komið fram.
En fyrst við höfum á annað borð
átt að bera ábyrgð á því, að halda
uppi heiðri þessa lands og verja
trúmensku þess við að halda hátíð-
lega gefin loforð, þá hefir okkur
ekki dottið í hug að reyna að
hvika frá því, eða að hespa fram
af okkur vandann og deilurnar,
sem af honum gætu risið. Við höf-
um gert skyldu okkar og munum
gera svo, meðan okkur ber með
mál þessi að íara. Og við munum
meira að segja ekkert láta ógert til
þess að knýja fram það skipulag,
sem megi verða til góðs bæði fyr-
ir Irland og alt bretska veldið. En
eins og þjer sjáið, það er ekki víst,
að við ráðum sjálfir gerðum okkar.
þvínæst mintist Steed ritstjóri
á þá erfiðieika og þær breytingar,
sem nýjar kosningar og stjórnar-
skifti gætu haft í för með sjer fyr-
ir sambúð Frakka og Breta og þar
af leiðandi á málefni álfunnar
allrar og úrslit málanna frá Lund-
úna-ráðstefnunni og Genfar-fund-
inum.
1 Genf hafa verið unnin jákvæð
og skapandi störf, sagði þá Mac
Donald. þau verða að sjálfsögðu að
athugast ofan í kjölinn, og eftir
því sem unt er í sama anda og þau
voru unnin í. En sá andi er ekki að-
eins andi þeirrar stefnu, sem er á
móti herskapnum sjálfum, heldur
er það andi friðarins og afvopnun-
arinnar. Aðaltilgangur Genfar-
samþyktarinnar, sem við bárum
fram báðir, jeg og hr. Herriot, var
sá, að fá sköpuð skilyrði þess, að
afvopnunarráðstefna gæti orðið
haldin. Og eins og kunnugt er, er
gert ráð fyrir slíkri ráðstefnu und
ir forustu aiþjóðabandalagsins, í
næstkomandi júnímánuði.
þá mintist Steed á vandræðin,
| sem risið hefðu út af afstöðu Jap-
| ana og Bandaríkjanna (og fyr hef-
; ir verið frá sagt hjer í Lögrj.).
! Kvaðst Mac Donald fyrir sitt leyti
; ekki geta gengið þegjandi fram
| hjá kvörtunum Japana, því meg-
instefna síns flokks væri sú, að
vinna fyrir friðinn og að gera
friðarhugsjónina að veruleika.
Hvort sem þetta væri nú kölluð
„verkamanna pólitík“ eða „social-
ismi“, eða eitthvað annað, þá væri
það nú sannleikurinn.
þá skaut Steed ritstjóri því
fram, „hvernig mundi standa á
þeim einkennulegu atvikum, að
orðið „sócialismi“ væri notað sem
einskonar fuglahræða í enskum
stjórnmálum nútímans. En fyrir
þrjátíu árum töluðu Englendingar
um „sócialisma" án þess að sjáan-
legur væri helmingurinn af þeirri
skelfingu, sem nú fylgdi slíku tali.
Jeg minnist þess, þegar jeg las
bækling hr. Sidney Webbs um So-
cialismann í Englandi, sem kom út
að mig minnir 1893. Hann byrjaði
á setningu eitthvað á þessa leið:
Við erum allir sócialistar, nú á
tímum, sagði Sir William Har- I
court nýlega í neðri málstofunni, :
og prinsinn af Wales gerði fyrir
skömmu sömu játninguna. Skyldi
prinsinn nú geta sagt það sama og
afi hans, svo að ekki yrðu æsing-
ar úr ? Og ef ekki, er það þá vegna
gauragangsins í rússnesku bolsje-
vikkunum, eða vegna þess, að
verkamenn eru teknir við stjórn-
inni hjer?“
Forsætisráðherrann hugsaði sig
um andartak og sagði síðan:
Ástæðumar eru ýmsar. En megin-
astæðan, mergurinn málsins, er
sá, að gömlu flokkamir eru hrædd
ír við siðferðilegan þrótt og hita
verkamannaflokksins. þeir geta
sjálfir ekki jafnast við hann, og
þeir finna til þess, að þegar flokk-
ur hefir ákveðna hugsjón og er
henni trúr, þá öðlast hann með því
hreyfiafl, sem gerir hann hættu-
legan eldri og minna lifandi sam-
tökum. þjer hafið ef til vill tekið
eftir líkingunni, sem jeg notaði í
i-æðunni minm í Derby á dögunum,
um tvær aðferðir til að koma sam-
an flokki eða hjörð. Til eru tvær
aðferðir að safna saman flokki
skynsamra manna. önnur er sú,
að vitna til vitsmuna þeirra og'
dómgreindar og reyna að fá þá til
þess að skilja málin. Hin aðferð-
in er sú, að gelta að þeim og hræða
þá saman í hrærigraut og þvögu.
Ópin á móti „Sócialismanum“ era
aðeins gelt.
En þjer, minn kæri forsætisráð-
herra, og ýmsir fjelagar yðar,
sagði þá ritstjórinn, hafið þó gert
meira en aðeins það, að vitna til
Llákaldrar skynsemi fólksins.
Sjálfrátt eða ósjálfrátt virðist þið
hafa skýrskotað til þjóðernistil-
finninga þess, að jeg ekki segi til
ættjarðarástar þess. Og þetta hef-
i r átt við mig, því jeg trúi því, að
hinn eini heilbrigði grandvöllut
góðrar alþjóðastefnu (internation-
a’isma) sje heilbrigð þjóðernis-
stefna, og að bragðlaus alheims-
borgaraháttur (cosmopolitanism)
sje að engu liði í hagnýtum utan-
ríkismálum. Og jeg hefi einnig
lengi trúað því, að það, sem kall-
aðir eru verkamenn og verkakon-
ur þessa lands sje mjög þjóðræk-
ið fólk, í orðsins góðu merkingu,
pað kom berlega fram á ófriðarár-
! unum.
Við finnum innilega til ættjarð-
arástar okkar, sagði þá forsætis-
ráðherrann, þó við tölum ekki oft
um hana. það er ást á jörðinni,
ást á bæjunum og býlunum, og
stöðunum þar sem við hittum sam-
fjelaga okkar, og kirkjugörðunum,
þar sem ástvinir okkar sofa. Að
andlegu gildi er þessi ást skyld
ættjarðarást hins forna aðals, þó
hann hafi notið og njóti sjerrjett-
inda meiri en við. En við skiljum
aðalsmennina, og jeg held, að þeir
skilji okkur. þeir unna líka jörð-
inni og býlunum og reyna á sinn
hátt að fullnægja skyldum þeirrar
! þjóðfjelagsþjónustu, sem afstaða
þeirra heimtar. þeir verða heldur
ekki oft fundnir í flokki þeirra
hvell-myntu, hávaðasömu ættjarð-
arvina, sem geyja að sócialisman-
j um. Við finnum muninn á slíkum
: mönnum (sem jeg kalla the gentle-
i men), og hinum mannflokknum,
; jafnvel í þingdeildinni.
i Síðan rakti Mac Donald, að sjer
j virtist nokkuð af þessari „un-
j gentlemanly" framkomu, í stjórn-
i málaafstöðunni ensku nú, og það
| harmaði hann — ekki af persónu-
: legum ástæðum, heldur vegna
i landsins í heild sinni. því persónu-
j lega væri sjer það fengur að losna
við stjórnarstörfin. Hann hefði
verið að reyna að bera byrðar, sem
ef til vill væru of þungar öllum
mönnum. En hann hefði talið það
skyldu sína að reyna — og það
hefði ekki verið alveg árangurs-
laust. Vitanlega hefir okkur í
verkamannastjórninni stundum
skjátlast. það er mannlegt. Og svo
er um allar stjórnir. En við höf-
um, sagði hann að lokum, á heið-
arlegan hátt reynt að vinna að
sameiginlegum hag heildarinnar,
og þurfum þessvegna ekkert að
óttast kosningadóminn.
Síðustu símfregnir.
Frá London er símað, að 40 þús.
hermenn undir stjórn Feng Yuh
Siang hafi blóðsúthellingalaust
lagt undir sig höfuðborgina í
Kína, Peking. þeir segjast með
þessu ætla að stemma stigu fyrir
borgarastyrjöldinni, sameina aft-
ur öll fylki ríkisins, fá erlent lán
og koma lagi á fjármálin.
Ebert forseti hefir rofið þýska
þingið og fara kosningar fram 30.
nóv. n. k.
M. sMnM (larósi.
(16.—22. júlí 1924).
Eftir Gunnar Árnason frá Skútu-
stöðum.
----- Frh.
Föstudaginn 18. júlí.
Kl. 9—10 biblíutími. Umræðu-
efni: Vonin.
Meginhluta dagsins var varið í
það, að skoða Steinviksholm, en
þar eru borgarrústir Ólafs Engil-
brektssonar, síðasta erkibiskups-
ins í Niðarósi (1523—37). Tvö
gufuskip fluttu fundarmenn, og
var þröngskipað á báðum, en gleð-
skapur mikill. Borgarrústunum er
haldið vel við, svo að glögt má sjá
gerð og skipun kastalans. Til að
fylla upp í skörðin flutti dr. Wall-
em frá Niðarósi snjalt erindi um
sögu erkibiskups og virkisins.. Síð-
an las leikkonan frú Erna Rösoch
upp „Bergljót“ eftir Björnson.
Greip það flesta.
Áður en lagt var upp heimleiðis,
voru sungnir þjóðsöngvar, en við
urðum að sætta okkur við „Yderst
mod Norden“, því enginn kunni
þar „Ó, guð vors lands“, þó feg-
urstur sje þeirra allra — og er þá
mikið sagt.
Um kvöldið var mjög hátíðleg
guðsþjónusta. Tveir prestar vora
fyrir altari, tn blandað kór stú-
denta söng. Sjera Bengt Serenius
frá Finnlandi prjedikaði, og var
ræða hans kröftug og áminnandi.
Laugardagur 19. júlí.
Kl. 9—10 biblíutími. Umræðu-
efni: Kærleikurinn.
Kl. lli/4 hjelt prófessor Arvid
Runestam í Uppsölum fyrirlestur
um: Hverju irúum við í raun og
veru um guð ? Lætur það að líkind-
um, að hjer var um trúarheim-
speki að ræða, sem fór fyrir ofan
garð og neðan hjá allflestum, en
rauði þráðúrinn var á þá leið, að
i guðshugmynd einstaklingsins hlyti
I að byggjast á heimsskoðun hans,
og því fyrst fyrir hendi að spyrja:
Hverju trúum vjer um manninn?
En saga sanns manns væri þján-
ingarsaga fórnfúss kærleika og
þar af leiðandi yrði guðsmyndin
hinn líðandi kærleikur, sem jafnvel
skirrist ekki við að negla son sinn
á krossinn, til þess að frelsa
mannssálirnar með píning hans.
| Engin sál kemst aðra leið en gegn- j
i um margar og miklar þjáningar í
inn í himnaríki, þótt guð hljóti að
líða með og í öllum.
Nálgaðist því skoðun prófessors-
ins hina svonefndu föðurpínukenn-
ing Praxeasar játara (frá seinni
hluta 2. aldar), eins og tekið var
fram af sumum þeim, er á eftir
sögðu nokkur orð. það voru: sjera.
Koch, Nordentoft prófastur og
próf. Geismar frá Danmröku, próf.
Aulén frá Svíþjóð og biskup
Gleditsch í Niðarósi. Sögðu þeir
margt vel, en leystu lítt hnútinn.
Aukakennari við háskólann í
Osló, Peter Marstrander, hjelt
ræðu í kirkjunni um kvöldið. Jesús
Kristur drottinn vor. þar var mað-
ur, sem talaði af trúarreynslu og
snart hjörtu margra.
— Jesús Kristur er drottinn
minn og drottinn þinn. Við höldum
oft að við sjeum frjálsir og sjálf-
stæðir einstaklingar, en við erum
þrælar hans. En sá þrældómur er
css hvorki til niðurlægingar nje
þjökunar. Hann er oss til frelsis.
þar sem andi drottins er, þar er
írelsi. Að vísu höfum við oft
brugðist honum og svikið hann í
trygðum, en hann gaf okkur ald-
rei lausa, hjelt áfram að drotna í
samviskunni.
Kristur er ekki einvörðungu
drottinn þinn og minn, hann er
drottinn alls kristindómsins og
drottinn himins og jarðar. Hversu
andkristinn sem heimurinn virðist,
verður hann síðast að lúta honum,
sem að lokum leggur alt undir guð,
svo að hann sje í öllu.
Hver er Jesús Kristur drottinn
vor? þú þekkir sögu hans af
guðspjöllunum, en — að vísu er
hún dýrmæt, og þó — hún heyrir
til fortíðinni. En kristindómur vor
er hvorki draumórakend hetju-
dýrkun nje skáldatilbeiðsla á fyrri ’
tíðar manni. Trúarlíf getur eng-
inn dauður maður vakið nje við-
haldið: drottinn vor er hinn upp-
risni og lifandi Jesús Kristur,
hann sem er hinn sami um aldir
alda.
Spyrjir þú: hver er sá? vil jeg
svara: Hann er sjálfur hjerna,
daglega er hann í nálægð þinni.
Spurðu hann sjálfan hver hann
sje. Og sjert þú hljóður og hlustir
eftir með opnum hug, mun hann
sýna þjer, hver hann er. En opin-
beri hann þjer það ekki sjálfur,
get jeg ekki skýrt þjer frá honum
með mælginni — þú skyldir hann
aldrei.
En getum við ekki sagt: það er
kærleikur hans, sem gerir hann að
drotni vorum og guði jafnan.
Kærleikur guðs verður aldrei
skýrður, þú verður að höndla
hann. Sá sem það gerir, veit, að
þá hefst líf hans — kærleikslíf,
sælulíf, því Jesús Kristur er drott-
inn hans. Hann yfirgefur engan í
sorg nje gleði, því með þjónum
sínum skiftir hann auði sínum,
friði og afli, sigrinum á syndinni.
Láttu aðra vera — líttu í eigin
barm. Hefir þú ekki heima fyrir, í
skólanum og kirkjunni orðið þess
var, að Jesús Kristur er drottinn
þinn ? Reyndu að lifa eins og þú til
heyrðir honum að fullu og öllu, og
þig mun undra, hvílíkan mátt þú
öðlast. Mundu þetta: Guð hefir
falið þig Jesú Kristi — þú getur
ekkert við því gert — tak móti
þeirri vissu með fögnuði hreins og
óskifts hjarta — og þitt er lífið —
hið eilífa líf. Nl.
—o-
Fálkinn hefir nýlega tekið tvo
útlenda botnvörpunga og þór emn.