Lögrétta - 04.11.1924, Side 1
Iimheimta og afgreiðsla
í Veltusundi 3
Sími 178.
f nrcp iptta
u w w X\ tJ Ju I JL A
Útgefandi og ritstjóri
þorsteinn Oíslasou
Þingholtsstradi 17.
XIX. á r.
Reykjarfk, þriðjudaginn 4. isóv. 1024.
58. tl»l.
Umvíðaveröld.
Sovjet-stjórnin og menningin.
Lögrjetta 'hefir oft áður flutt
ýmsar fregnir og frásagnir um
Rússlandsmálin og stjórn bolsje-
vika, og reynt að vinsa úr, það sem
best virtist og sannast lýsa ástand-
inu þar, mönnunum sem stjórnuðu
og málunum, sem þeir höfðu fram
að bera. En fregnunum þaðan vildi
oft ekki bera saman — framan af
rjeð flokksfylgi allmikið sögusögn-
unum þaðan, og er sjálfsagt svo að
sumu leyti ennþá, þannig, að þeir
sem hliðhollir voru kommúnisman-
um, sögðu helst frá því einu, sem
betur mátti fara fyrir ‘hann, og
andstæðingar hans frá því, sem
helst var honum til álitshnekkis,
en þögðu um hitt. Á seinustu tím-
um hefir það orðið all-alment, að
Evrópumenn færu til Rússlands til
þess að kynnast þar ástandinu með
eigin augum og skrifa síðan um
það. Má þar t. d. minna á ferðabók
enska vísindamannsins Berrand
Russel. Hann segist hafa farið til
Rússlands sem kommúnisti, en
komið þaðan aftur mjög efasam-
ur og mjög fullur gagnrýni á ýms-
um hlutum þar. Margir 'hafa þó
iýst ástandinu þar öðruvísi og fag-
urlegar.
Nýlega hefir sænskur maður,
sem er prófessor í slafneskum
málum, við háskólann í Kaup-
mannahöfn, Dr. Anton Karlgren,
byrjað að skrifa í Politiken hug-
leiðingar sínar um ferðalag, sem
hann fór til Rússlands í sumar. En
hann var einnig áður nákunnugur
rússneskum högum og hafði fyr
ferðast þar og hafði gott færi á
því að kynnast ýmsum hlutum bet
ur en margir aðrir aðkomumenn,
einkum þeir, sem ekki hafa sjálfir
vald á tungunni.
Dr. Karlgren byrjar á því, að
hann hafi lagt upp í Rússlandsferð
sína með fyrirfram ákveðnum
skoðunum á ástandinu þar, og að
hann hafi aðallega farið til þess
að öðlast af eigin reynd staðfest-
ingu þessa álits. En þessa skoðun
segir hann hafa verið þá, sem
sennilega sje nú algengust meðal
mentaðra, rólegra Vestur-Evrópu-
manna: að síðan bolsjevikarnir
hafi hlaupið af sjer verstu hornin,
sjeu þeir mun betri, en andstæð-
ingar þeirra reyni að telja mönn-
um trú um, og að sovjet-stjórnin
sje ekki einungis eðlileg afleiðing
sögulegrar þróunar, heldur máske
einnig einmitt það, sem Rússland
hafi þurft á að halda, harður, en
heilbrigður skóli, og að þrátt fyrir
alt og alt væru bolsjevikarnir nú
vel á vegi með að skapa nýtt og
lífshæft Rússland. Hann sagðist að
vísu ekki hafa búist við því, að
hitta fyrir sjer land, sem væri full-
komlega risið úr rústum efnalegr-
ar eyðileggingar, undanfarinna
ófriðar og byltingaára. En þó hefði
bann búist við því, að finna land,
sem bæði efnalega — og einkum
andlega væri á ótvíræðri framfara-
braut, land, þar sem upnið væri
með afli og áhuga, fjöri og fram-
sóknarþrá. Fyrstu áhrifin segir
hann að hafi líka verið staðfest-
ing þessa. Járnbrautirnar gengu
reglulega, gistihúsin voru sæmi-
leg, vinnusemin á stjórnarskrif-
stofunum virtist í besta lagi, áhugi
manna vakandi og skapandi hugs-
un og störf að sjá, hvert sem litið
væri. Sjerstök skrifstofa leiðbeindi
aðkomufólkinu, leiddi það stað úr
| stað og sýndi því hvert dæmið á
j fætur öðru um framkvæmdir
sovj et-stj ómarinnar: f yrirmynd-
ar skóla, barnahæli, söfn og sýn-
ingar, og klúbba vísindamann-
anna. Og allar lýsingarnar á
ástandinu í Rússlandi segir höf. að
sjeu til komnar á þennan hátt —
það sjeu elskulegir og áhugasamir
fulltrúar frá upplýsingaskrifstofu
stjórnarinnar, sem ráði ferðinni
og leggi þannig til efnið í lýsing-
arnar. Meðan hann sá ekki annað
en þetta, segist hann líka, eins og
aðrir, hafa verið sannfærður um
gildi og gæði hinnar rússnesku ný-
menningar.
En þegar jeg fór að vinna á eig-
in hönd, segir hann, þegar jeg fór
að kynna mjer meira, en stjórnin
ein sýndi, þegar jeg fór að ferðast
um og reyna að nota mína eigin
þekkingu til að kynnast sjálfur
ástandinu, — þá fóru þessu góðu
áhrif út um þúfur. þeir kommún-
istar, sem vilja vera hreinskilnir
við sjálfa sig, játa það líka, að það
sje ekki nema lítið brot af hug-
myndum þeirra, sem tekist hafi
að koma í framkvæmd, og það með
erfiðleikum. Mikið af þessu sje
líka skriffinskan einber, en lítið
um veruleg störf, þegar skoðað sje
ofan í kjölinn. Til dæmis um þetta
nefnir höf. það, hversu miklar
skriftir það hafi kostað að fá út-
flutningsleyfi á nokkrum bókum,
sem þó væri í rauninni heimilt að
flytja út. „Skilríkin“ í málinu
hefðu í Leningrad verið orðin 28
blöð, og 18 manns hefðu haft mál-
ið til meðferðar.
þrátt fyrir alt, segir höf., að því
verði þó ekki neitað, að efnalega
hafi þjóðin þó á ýmsan hátt verið
á viðreisnarvegi, þangað til innan-
flokksklofningurinn hjá kommún-
istunum hafi komist í það horf,
sem nú væri hann í, þannig, að hin-
ir yngri og ákafari flokksmenn
rjeðu meiru og vildu láta halda
,,kommúnistastefnunni“ meira
„hreinni“ en áður. því sannleikur-
inn var sá, segir höf., að sú efna-
lega endurreisn, sem farin var að
gera vart við sig, var einmitt því
að þakka, að slakað var á kenning-
um kommúnismans og frumkvæði
einstaklingsins aftur leyft að njóta
sín. Deyfðina og athafnaleysið í
verslunar- og viðskiftalífinu segist
höf. greinilegast hafa sjeð, þegar
hann ferðaðist um Volga-ána,
skömmu á undan kaupstefnunni í
Nisjnij-Novgorod. þar var áður
alt ólgandi og iðandi af lífi og
framtakssömu fjöri. Nú var hægt
að sigla um ána tímunum saman
án þess að eygja eina einustu
fiskiduggu, hvað þá meira — yfir
öllu hvílir skuggaleg lygna drauga-
legrar auðnar.
og vísindamensku. þar sje megin
áherslan lögð á það eitt, að berja
kenningar kommúnismans inn í
fólkið, og mentamenn og menta-
stofnanirnar metnar eftir því einu,
hvernig snúist sje við því fagnað-
arerindi. þetta komi fram annars-
vegar á þann hátt, að nokkur
helstu söfn og minnismerki hafi
verið endurreist og komið í full-
komið horf, með ærnum kostnaði,
en mikilli smekkvísi og þekkingu,
nokkrum heimsfrægum rússnesk-
um vísindamönnum sje fengið fult
frelsi og gefin góð kjör, og erlend-
um öndvegismönnum vísindalífs-
ins sje tekið með kostum og kynj-
um. En hinsvegar komi þetta fram
í því, að þegar farið sje að skoða
betur ofan í kjölinn, sje fjöldi
mentastofnana í niðurníðslu og
vanhirðu, heilar vísindagreinir
sjeu fyrirlitnar og fótum troðnar
og- allur þorri vísindamanna lifi
við skarðan hlut eða jafnvel sult
og seyru. Mörg helstu og bestu
menningarból landsins hafi verið
eydd eða limlest og breytt á hinn
kæruleysislegasta og þekkingar-
snauðasta hátt. Höf. nefnir til
dæmis háskólann í Kasan, sem áð-
ur hafi verið annar virðulegasti
háskóli ríkisins. Höf. ætlaði að
finna þar gamlan kunningja sinn,
prófessor í málfræði — en fekk
það svar, að slíkur óþarfi og hje-
gómi, eins og málfræði og sagn-
fræði væri ekki lengur stunduð
þar — deildin væri afnumin. Og
svona væri þetta víðar og um fleiri
fræðigreinir, ekki síst klassisk
fræði. Jafnvel sú deild rússneska
vísindafjelagsins, sem fengist við
rússneska tungu og bókmentir,
hefði nýlega fengið tilkynningu
um það, að hún yrði lögð niður.
Hefði hún þó unnið geisimikið
verk í vísindanna þágu. Einna
helst fengju þó náttúrufræðin að
vera í friði — en þó yrðu náttúru-
fræðingamir ávalt að byggja á
grundvelli „hins hreina darwin-
isma“. Og sömuleiðis yrðu þeir
sagnfræðingar, sem fengju að vera
sæmilega í friði, að vinna á grund-
velli hreinnar efnishyggju og að-
hyllast söguskoðun efnishyggj-
unnar, eins og hún kæmi fram hjá
Marx. Yfirleitt væri að því stefr.t,
launaviðbót — þeir allra frægustu |
15 rúblur á mánuði. Sumir lifi líka !
á tímakenslu jafnframt, ef unt sje
að fá hana. Höf. segist hafa sjeð j
prófessora sitja berfætta við
vinnu sína og klædda ljelegum
strigafötum, og lesa við bjarmann
af götuljósunum, því annað ljós
hafi ekki verið til. Af vísindarit-
um fáist líka mjög lítið prentað,
þó kommúnistabókmentir ýmsar
sjeu prentaðar unnvörpum. Svo sje
ritskoðunin mjög ströng — og
heimskuleg. T. d. hafi í málfræði-
riti einu verið strikað yfir setn-
ingu eins og „ríkur kaupmaður"
— vegna þess að í hinu nýja Rúss-
landi ættu hvorki að vera til kaup-
menn nje ríkir menn. Einnig var
strikað yfir þessa setningu: „1
heiminum eru margir fátækir og
foreldralausir“, því sovjet-stjórn-
in taki nú við öllum slíkum mun-
aðarleysingjum á barnahæli sín.
Orðið „Paradís“ var einnig strik-
að út úr beygingardæmunum —
þótti of trúarlegs eðlis. En ritskoð-
arinn stakk svo upp á öðru orði í
staðinn — ágætu orði, að öllu öðru
leyti en því, að það sýndi alls ekki
þá beygingu, sem það átti að sýna.
Skáldrit segir höf. að sjeu ýms
góð, og muni skáldlistin geta átt
glæsilega framtíð fyrir sjer, en nú
sje henni þröngvað til þess að vera
aðeins málpípa fyrir kommúnist-
iska pólitík, enda sjeu mörg þau
skáldrit mjög ljeleg.
En, segir höf. að lokum (því
hjer er aðeins drepið á fátt eitt úr
greinum hans), þegar erlendis er
sagt frá þessum hörmungakjörum
rússneskra rithöfunda, er heima
fyrir lagt fyrir þá skjal til að mót-
mæla slíkum „álygum“. Og þeir
eru neyddir til að skrifa undir.
Svona sagði einn þeirra sjálfur, að
gert hefði verið einu sinni, þegar
kvartað var um kjör þeirra í
frönsku blaði. það stoðar ekki að
mótmæla, sagði hann. Andlegt líf
Rússlands er hægt og hægt að
ganga aftur á bak ofan 1 gröfina.
Kosningaúrslit.
Kosningaúrslitin í Englandi eru
nú næstum því öll kunn orðin.
íhaldsmenn hafa unnið mikinn
sigur, fengið hreinan meirihluta,
að nota alla hina æðri mentun 408 sæti, jafnaðarmenn 151 sæti
En ef til vill er sovjet-mönnun-
um ekki sýnd sanngirni með því
að dæma þá eftir efnahgslífi lands-
ins einu saman. þeir segjast sjálfir
ekki síður hafa lagt áherslu á aðr-
ar hliðar þjóðlífsins — fyrst og
fremst á menningarlífið. Og það er
orðin einskonar trúarsetning í
Vestur-Evrópu, að hvað svo sem
segja megi um bolsjevika að öðru
leyti, verði það ekki af þeim skaf-
ið, í mentamálum hafi þeir unnið
gott verk og giftusamlegt.
þar segir Dr. Karlgren þó að
skifti líka mjög í tvö hom. Ann-
ars vegar sje einskonar sýningar-
menning á yfirborðinu, einkum
ætluð útlendingum, hinsvegar sje
inn á við í landinu sjálfu hlífðar-
laus barátta gegn allri menningu
landsins í þjónustu flokksfylgisins :
og til þess að útbreiða og viðhalda
kommúnimanum. T. d. segir höf.
frá því, að einn háskólabókavörð-
ur hafi verið kærður fyrir það, að
láta rit Kants sjást í hillum hand-
bókasafnsins. þar ættu aðeins að
vera kommúnitiskar bækur. Pró-
fessor einn í bókmentasögu var
einnig kærður fyrir það af áheyr-
endum sínum, að í meðferð hans á
Shakespeare vottaði ekki neitt
fyrir kenningum Marx. Verkamað-
ur einn, sem átti að vera einskon-
ar prófdómari við læknapróf,
kærði líka prófessorana þar fyrir
að vanrækja þá skyldu sína, að
brýna það fyrir stúdentunum, að
útbreiða kommúnismann í hjeruð-
um sínum, en leggja of mikla
áherslu á læknisfræðin út af fyrir
sig.
Auk þessara andlegu kjara, sem
höf. segir að rússneskir vísinda-
menn og rithöfundar eigi við að
búa, lýsir hann einnig efnalegri
aðstöðu þeirra mjög illa. Meðal-
laun prófessora sjeu 30—33 rúbl-
ur á mánuði, eða um 100 kr.
(danskar), en þar frá dragist þó
ýms gjöld, og launin sjeu mjög illa
og óreglulega goldin. þó fái hinir
frægustu vísindamenn nokkra
og frjálslyndir menn 39 sæti. Áð-
ur höfðu íhaldsmenn 259 sæti,
verkamenn 191 og frjálsíyndi
flokkurinn 158. Alls eru í neðri
málstofunni 615 fulltrúar. þess má
þó geta, að atkvæðatala jafnaðar-
manna hefir aukist um c. 1 millj.,
um aðrar atkvæðatölur er ófrjett.
Búist er við þvi, að Stanley Bald-
win myndi stjórn innan skamms.
Meðal þeirra, sem fjellu, eru As-
quith (fyrir jafnaðarmanni) og
tveir ráðherrar eða aukaráðherrar
úr stjórn Mac Donalds, og annar
þeirra er miss Bondfield, eina
konan í stjórninni.
Atkvæðatala við sænsku kosn-
ingarnar, sem fyr er frá sagt, hef-
ir orðið sú, að jafnaðarmenn fengu
715 þús. atkv., íhaldsmenn 449
þús., frjálslyndir menn 294 þús.,
bændasambandið 186 þús., komm-
únistar 80 þús. 1 neðri deild þings-
ins sitja því 104 j afnaðarmenn, 64
íhaldsmenn, 34 frjálslyndir, 23
bændafl.m. og 5 kommúnistar.
Branting er forsætisráðherra.
Úrslit norsku kosninganna, sem
fyr hefir líka verið sagt frá, hafa
í einstökum atriðum orðið þessi:
Vinstrimenn eru 36 (áður 39),
hægrimenn 54 (áður 57), bænda-
flokksmenn 22 (áður 18), jafnað-
armenn ýmsir 38 (áður 36, þ. e.
bæði socialistar og kommúnistar,
þó þeir hafi ekki unnið saman í
flokki). Forsætisráðherra er Mo-
winckel, en óvíst ennþá, hvort nokk
ur breyting verði, eða hvenær.
Síðustu símfregnir.
Frakkar hafa viðurkent ráð
stjórnina rússnesku að lögum. —
Frá París er símað, að mjög víð-
tæk samvinna sje að hefjast milli
helstu stóriðnaðarmanna Frakka
og þjóðverja. þess má geta einn-
ig, að nýlega hefir einn kunnasti
iðjuhöldur Frakka og forvígis-
maður þessarar samvinnu,Locheur,
verið skipaður sendiherra í Berlín.
— Frá Barcelona er símað, að de
Rivera hafi verið sýnt banatil-
ræði.
----o----
Isiendingar í Canada.
í júníhefti mánaðartímarits
eins, sem gefið er út í Montreal í
Canada (Agricultural and In-
dustrial Progress in Canada), er
grein um íslendinga þar í landi,
eftir Miss Grace A. Mac Gawr, í
Vancouver, B. C. Er þar stutt yf-
irlit um helstu atriðin í landnáms-
sögu íslendinga í Canada, vöxt
þeirra þar og viðgang og framtíð-
arskilyrði.
Byrjar greinarhöf. á því, að af
öllum þeim innflytj endum, sem
ekki sjeu bretskrar ættar, hafi
sennilega engin þjóð lagt drýgri
skerf til landnáms og þroska hins
órudda vesturlands, eins og íslend-
ingar (frá því um 1873). En fólk-
inu sjálfu lýsir höf. þannig, að það
sje staðfast, iðjusamt og löghlýð-
ið fólk, vel mentað og þroskað í
öllu lífi sínu. þar að auki hafi þeim
manna best tekist að samlagast
landsháttum og þjóðlífi Canada og
hafi verið góðir borgarar þar, eins
og sjá megi á því, að um 1300
þeirra hafi gengið í Canada-her-
inn á ófriðarárunum. Flestir
! þeirra fáist þó við sveitabúskap,
en um fimtungur þeirra hafi þó
safnast saman í borgum, einkum
Winnipeg. En þar sjeu nú um
6000 íslendingar. Ennfremur er
sagt, að þeir taki mikinn þátt í
ýmsum opinberum málum og kveði
víðast mikið að þeim í hjeraðs-
stjórn, eða annari starfsemi, bæði í
kirkjumálum, skólamálum og verk
legum framkvæmdum. En við-
gang sinn allan eigi þeir mest að
þakka eigin orku og framsókn, því
1 styrks hafi þeir aldrei notið nokk-
, urs að ráði, en erfiðleikar frunT-
býlislífsins hinsvegar verið marg-
! víslegir. þó hafi hjer um bil eng-
ir þeirra leitað heim aftur.
Yfirleitt er greinin mjög lof-
samleg í garð íslendinga, og eru
þetta helstu atriðin úr henni.
Annars er, eins og fyr segir, mest
■ af henni yfirlit um sögu og hag
landa vestra. íslendingar hjer
heima, sem kynnast vilja þeim
málum betur, geta lesið um þau í
bók prófessors Halldórs Her-
mannssonar, um íslendinga í Ame-
ríku, sem Hafnardeild Dansk-ís-
lenska fjelagsins gaf út fyrir
nokkru.
——o------
Gengi var skráð hjer svo síðast:
pund kr. 28,75, danskar kr. á kr.
110,07, norskar kr. á kr. 91,14,
sænskar kr. á kr. 168,96, dollar á
kr. 6,36, franskir frankar á kr.
33,63.
Skagaf jarðarsýsla er veitt Sig.
Sigurðssyni frá Vigur.