Lögrétta


Lögrétta - 06.05.1925, Qupperneq 3

Lögrétta - 06.05.1925, Qupperneq 3
LÖGRJETTA 3 svo harðar og hrjónalegar. þær eru víðast hvar . lagðar ólöguðum graníthnullungum, sem standa upp úr götunni eins og frostkúlur í bæjargöngum. Yfir þessa hnull- unga skrölta nú vagnarnir með hræðilegum gný og gauragangi. þegar snjór fellur ræðst bót á þessu. Ókuþórarnir skifta óðara um og beita klárunum fyrir sleða sem renna hljóðlega yfir hjarnið. Framh. SíDiirðiir Benediktsi^on Á síðastliðnu hausti (24. sept) andaðist í Kanada Sigurður Bene- diktsson, ættaður í'rá Aðalholti í Víðisdal í Húnavatnssýslu. Mun með honum fallinn í valinn einn þeirra mörgu landa vorra þar vestra, sem þjóðflokki vorum eru til mikillar sæmdar. Um tvítugsaldur fluttist Sig- urður sál. suður að Faxaflóa, til sjóróðra, eins og þá var títt. Varð hann brátt formaður hjá dugnaðar útvegsmönnum, en eign aðist von bráðar skip sitt sjálfur og hjelt því úti með miklum dugn aði um margra ára skeið. Á árunum 1892—1900 lagðist bátaútvegur við Faxaflóa því nær niður. — Fluttist Sigurður sál. þá til Reykjavíkur og keypti hús- ið Geysi við Skólavörðustíg. En ekki festi hann yndi hjer í bæ. Mun það eigi hafa átt við hans skap, að ganga að daglaunavinnu hjá kaupmönnum. Vildi hann heldur vinna sjer land að forn- um sið. Fór því til Vesturheims sumarið 1902. Tók hann sjer bólfestu — heimilisrjettarland — í Alberta-nýlendu, undir Kletta- fjöllum. þegar vestur kom munu efnk Sigurðar hafa verið gengin til þurðar, eins og flestra vestur- fara, en með mikilli atorku tókst honum að rækta landið, koma sjer upp búi og húsa bæ sinn. Sigurður sál. kvæntist haustið 1895 Vilborgu Gamalíelsdóttur úr Reykjavík. Eignuðust þau einn son, sem dó á barnsaldri — Fóst- urson höfðu þau hjón tekið strax á fyrstu búskaparárum sínum — eitt af „jarðskjálftabörnun- um“. — Var það efnilegur dreng- ur, og ólu þau hann upp sem sitt eigið barn, en mistu hann upp- kominn. Annan fóstur-son tóku þau vestan hafs, sem nú er um tvítugs aldur og stendur nú fyr- ir búi móður sinnar. Að sögn þeirra „landa“ er kom- ið hafa að vestan og heimsótt höfðu þau hjón, var heimili þeirra hið prýðilegasta bæði utan húss og innan, enda voia þau hjón samhent að alln heimilis- stjórn og gestrisni. Sigurður sál. var af góðu fólki kominn, norðanlands. Hann var hár vexti og þrekinn, og hinn karlmannlegasti, en ekki varð hann fríður maður kallaður. Hann var kraftamaður og atorkumikill, eins og áður er sagt. Hjer heima tók hann mikinn þátt í fjelags- málum og á hinni pólitísku hreif- ingu, sem á árunum 1896—1803 skifti mönnum í harðsnúna flokka. Fram á síðustu daga fylgdist hann af áhuga með öll- um þjóðmálum gamla landsins, eins og margir landar gjöra víst enn vestan hafs. Af brjefum hans má sjá, að eigi hefir hann setið hlutlaus hjá í deilumálum í sínu nýja föðurlandi. þeir Sigurður sál. og Stephan G. Stephansson voru nábúar eða sveitungar. Las jeg fyrir stuttu kvæðisstúf eftir Stephan er hann nefnir Stafnbúinn (Heimskringla 12—1—’25). Leist mjer svo að stef þessi hefðu getað verið sögð í minningu Sigurðar. 1 stafninum átti ’ann að standa Á styrjaldar-tíð. Á konungsskipi, í hafsjó og hríð. Og benda því leið milli landa, því þaðan var útsýnin varúðar-víð f leyni við blindskerja-brotin Sá, búinn til orustu, væringja- flotinn. Um norræna veröld stóð víkinga- tíð. Og til þeirrar varðgæslu valinn, Sá vaskastur var, Og vitstór og trúastur talinn, Sem þagði ei við ámælis orðum þá ógnanir stukku frá borðum. Frá hrókum í stafnrúmi hinna, Sem heiðvirði áttu þó minna. Síðustu misserin kendi Sigurð- ur vanheilsu,sem ágerðist stöðugt þar til hann lagðist rúmfastur á áliðnu sumri. öll læknishjálp varð árangurslaus, enda var bana- mein hans krabbi. Sjera Pjetur Hjálmsson, sem er prestur þeirra í Albertabygð, skrifaði grein um Sigurð sál. í Lögberg 16. okt. s.l. En það blað er í fárra höndum. Eru því línur þessar settar hjer til minningar um hinn látna merkismann og sem dánartilkynning til frænda hans og vina hjer heima. Guðm. Gamalíelsson. -----o- Sú ákvörðun helmings þing- manna í neðri deild Alþingis að leggja niður einkasölu þá á tóbaki er verið hefir 3 undanfarin ár, en lögleiða um leið stórfelda hækkun á tóbakstollinum, hefur vakið nokkrar deilur innan þings og ut- an. Jeg vildi því mega í stuttri grein benda á nokkur atriði því máli til skýringar. Einkasalan hefur sem kunnugt er staðið frá ársbyrjun 1922, en sökum þess hve miklar birgðir tóbaks voru þá fyrir í landinu (á aðra milj. kr. virði) varð innflutn- ingur árið 1922 og að nokkru leyti 1923 talsvert minni en meðalinn- flutningur tóbaks hafði verið áð- ur. Árið 1923 má þó segja að einkasalan hafi verið tekin fylli- lega til starfa. Arðurinn af einka- sölunni, auk tollsins, varð: 100 þús. kr. árið 1922 og 8 þús. kr. í varasjóð. 200 þús. kr. árið 1923 og 21 þús. kr. í varasjóð. 350 þús. kr. árið 1924 og 35 þús. kr. í varasjóð. Ennfremur 68 þús. kr. gengis- hagnaður að auki 1924, sem not- aður var til að greiða útsvör þau, til Revkjavíkurbæjar, sem einka- salan hafði verið skylduð til að greiða með dómi. Nú hefir upp- hæð útsvarsins verið lögákveðin, 5% af nettótekjum. Ríkissjóður hefir því haft í tekjur af einka- sölunni þessi 3 ár sem hún hefir starfað 650 þús kr. auk varasjóðs- ins sem nú er orðinn 64 þús. kr. Eftir því sem ráða má af útkomu ársins 1924 yrðu meðaltekjur rík- issjóðs framvegis, ef einkasölunni yrði haldið áfram, um 400 þús. kr. árlega og bendir salan fyrsta árs- fjórðunginn 1925 til að sú tala sje síst of lág. Ef gert er ráð fyrir sama tolli og nú er og eðlilegum innflutningi verður því meðaltal fastra árs- tekna ríkissjóðs af tóbaki fast að 1 milj. kr. með því að hafa einka- sölu áfram. í greinargerð flutningsmanna frv. um afnámið, er aðeins gert ráð fyrir, að meðaltekjur ríkis- sjóðs með tollhækkun þeirri, sem frv. fer fram á, verði um 650 þús. kr. það er því bersýnilegt að tekjumissir ríkissjóðs við afnám einkasölunnar verður aldrei minni en um 300 þús. kr. árlega. Auk þess er altaf hætt við að innflutn- ingur vöru þverri við aukinn toll og hættan á smyglun margfaldast. En sú hlið þessa máls, sem varla liggur eins í augum uppi og tekjumissir ríkissjóðs, en er þó engu þýðingarminni, er veltufjár- spamaður sá, sem verður af einkasölufyrirkomulaginu. Dæmin eru ljós. í ársbyrjun 1922 eiga kaupmenn tóbaksbirgðir fyrir á aðra milj. kr. Birgðir einkasöl- unnar munu oftast vera rúml. 300 þús. kr. virði. Um síðustu áramót voru birgðirnar 330 þús. kr. og óhætt mun að fullyrða, að þær fara aldrei fram úr 400 þús. kr. Ef til vill má gera ráð fyrir að birgðir kaupmanna í ársbyi'j un 1922 hafi verið nokkru meiri en venjulega. þó munar það aldrei meiru en svo að óhætt sje að full- yrða að veltufjárspamaðurinn sem leiðir af einkasölufyrirkomu- laginu sje aldrei minni en 3/4 milj. kr. á ári. í þessu sambandi má einnig benda á annarskonar veltufjársparnað. Er hann fólginn í betri viðskiftakjörum einkasöl- unnar en einstaklinga. það er eng- um kaupsýslumanni sagt til óvirð- ingar þótt fullyrt sje að hann fái ekki jafn góð kjör hjá versl- unum og verksmiðjum erlendis og einkasala. það er ekki annað en algild verslunarregla að stærri kaupandinn fái betri kjör en sá minni. Annar höfuðkostur við einka- sölu er sá vinnusparnaður sem af henni leiðir. Smákaupmaður í Reykjavík sparar sjer margan snúninginn við það að geta keypt allar tóbaksvörur, sem hann versl- ar- með, á einum stað. En þó eru þægindin fyrir verslanir úti um land enn meiri. Áður gat það ver- ið ýmsum erfiðleikum bundið, og kostað þær að minsta kosti miklu meiri erindrekstur í Reykjavík, að kaupa máske sína tóbaksteg- undina hjá hverjum af mörgum heildsölum hjer í bænum. Og jafn- vel þó einhverjir kaupmenn, sem áður höfðu smásölu tóbaks, hafi pantað eitthvað af því beint frá útlöndum, koma sömu vandkvæð- in þar til greina. Sitt lítilræðið varð að kaupa hjá hverju firma. þá er sú vinna, sem fer í heild- söluverslunina með svokallaðri „frjálsri“ verslun með tóbak miklu meiri en nú. Húsaleiga og annar slíkur kostnaður er líka auðsjáanlega miklu minni með einkasölufyrirkomulagi. Eitt þýðingarmikið atriði um tóbaksverslunina eru vörugæðin. Enda þótt tóbak sje eigi nauðsyn- javara í ströngum skilningi, þá gildir jafnt um það, sem aðrar vörur, að gæðin skifta miklu máli fyrir neytandann. því hefir verið haldið fram, og það jafnvel af sumum þingmönnum, að gæði tó- baks hafi versnað að mun síðan einkasalan tók til starfa. þetta væri alvarlegt ef satt væri. En það er ekki satt. Má það glegst sjá af því, a,ð einkasalan skiftir nú við nær öll sömu aðal- firmu og kaupmenn skiftu við áð- ur, og kaupir allar sömu aðalteg- undir frá firmum þessum og áð- ur voru keyptar. það er þá því einu til að dreifa, að verksmiðj- urnar svikju sjerstaklega þann hluta framleiðslu sinnar, sem seldur er einkasölunni. f flestum tilfellum myndu slík svik ekki borga sig fyrir verksmiðjurnar, því þær yrðu þá að framleiða sjer- stakar tegundir fyrir einkasöluna. í öðru lagi mundi óttinn við að bæjarins, hefir einn þeirra látið gera sjer þar höll af marmara og er það hús einstakt í sinni röð í Helsingfors. — Sunnan við Kai- saniemi-víkina er Kaisaniemi- parken. þar er og Botanisk trá- gárd með baðstofum (drivhus) fyrir suðrænan gróður og bústað prófessorsins í grasafræði. Norð- an við Tölo-víkina er og fagur trjágarður (Tölö-parken). þar var áður dýragarður og ber staðurinn enn nafnið Djurgárden, en nú hafa dýrin' verið flutt fram í ey eina austan við Helsingfors er heitir Högholmen, er það fallegur skógi vaxinn hár klapparhólmi. þaðan er fögur útsýn á land upp og til bæjarins. — Norðvestur frá Helsingfors liggur ey ein er Fölis- ön heitir, og ekki lengra frá landi en svo að brú hefir verið bygð yfir sundið. þar hefir verið sett þjóðminjasafn á eynni, og er merkilegt að sjá. þar gefur að líta bóndabæi úr ýmsum hjeröð- um Finnlands alt frá kotum Lapp- anna í norðri til bjálkahúsa kirj- ála í suðaustri. þar er timbur- kirkja gömul (frá 16. öld) með öllum búnaði í bókum^ skrúða, myndum og messugögnum. Kirkjubátur er þar í nausti lang- ur og rennilegur með 30 árar á borð. þessir kirkjubátar vóru áð- ur mjög algengir og tíðkast enn víða, áttu heil þorp þá í fjelagi. Varð tíðum kappróður á sunnu- dögum í kirkjuferðum milli kirkju bátanna eins og títt er heima að réyna gæðingana á slíkum förum. Smurðu menn þá bátana neðan í eggjahvítu svo að þeir yrðu hálli í vatninu. Margt er fleira merki- legt að sjá á Fölisön, sem oflangt yrði hjer upp að telja. Að lokum skal jeg aðeins geta þess að hringinn í kring um Hels- ingfors hafa þotið upp smáþorp (Villa-stáder), sem að miklu leyti lifa á bænum, og sem með tíman- um eflaust vaxa saman við hann. Er fagurt mjög í sumum þorpum þessum, svo sem t. d. Grankulla, er hefir verið bygt í þjettum greni skógi, eða á Brándö, eyju austan við Helsingfors. Er hún tengd við Helsingfors með langri brú og gengur sporvagn á milli. Sporvagnar ganga eftir aðalgöt- um Helsingfors og til fjölsóttustu skemtistaðanna utanbæjar eins og Brándö og Fölisön. Annars keppa bílar og hestvagnar um fólks- flutninginn. Fjölgar bílunum nú, en þó ber miklu meira á hestvögn- um en t. d. í Kaupmannahöfn eða jafnvel Reykjavík. Aktygin hafa oft einkennilegan boga yfir makk- ann og eru sett bjöllum að aust- rænum sið. Hestarnir eru fallegir og vel hirtir, venjulega, stundum auðsæilega af hinni mestu ást og alúð. þó eru þeir ekki öfundsverð- ir af æfi sinni, því göturnar eru um, var mjer ungum sögð sú saga, að korn gæti ekki vaxið í voru landi. Og auðvitað trúði jeg þessu, svo sem öðru fleiru er mjer var ungum kent. Og jeg óx og „varð stór“ og jeg hjelt áfram að trúa þessu, þó ekki með öllu ef- unarlaust. En jeg hefi nú á síð- asta missiri algerlega glatað þe-ss- ari barnatrú og komist á þver- andstæða skoðun. Jeg er, með öðrum orðum, algerlega fulltrúa þess, að korn geti gróið á íslandi. Og jeg skal ekki kasta þeirri trú, fyrri en þrautreynt er, að sann- leikurinn er annar. Og vafasamt hvort jeg geri það þó! Alkunnugt er, að akurrækt var á Islandi alment stunduð fram um árið 1400, eða fram að svarta- dauða. En þá lagðist hún svo að segja niður. þó finnast nokkur dæmi þess að einstakir menn stunduðu akuryrkju löngu síðar. Er þeirra allra merkastur „Vísi“- Gísli, sem um mörg ár samfleytt ræktaði korn á býli sínu, Hlíðar- enda, og eggjaði menn til þeirr- ar yrkju, með litlum árangri þó. En hundrað árum síðar var korn- rækt töluvert stunduð. Um það segir Sigurður þórólfsson í bók sinni: „Minning feðra vorra“, á þessa leið: „þeir fyrstu, sem getið er um i að ræktað hafi korn á 18. öldinni voru: Gottrup lögmaður á þing- eyrum og Jón Eiríksson í Krók- ey; þeir stunduðu einnig garð- yrkju. En eftir miðja öldina rækt- uðu margir korn, þar á meðal Björn Jónsson í Nesi við Seltjörn; hann fjekk fullþroskað korn 1769; það sumar var þó eitt hið kald- asta. Árið 1774 fjekk Thordal á Bessastöðum 5 tunnur af byggi og eina tunnu af höfrum. Hann fjekk brátt reynslu fyrir því, að korn, sem orðið var landvant, spratt betur en hið útlenda. 1776 uppskar hann 10 tunnur af byggi en Björn Jónsson í Nesi eina tunnu af hundrað ferh. föðmum. Tvö næstu árin voru köld og upp- skeran þá minni. Eftir þetta hættu nálega allir við akuryrkju á Islandi. þá komu köld ár hvert eftir öðru. Sennilegast hafa það þó verið ,,Móðuharðindin“, sem að þessu sinni áttu stærsta þátt- inn í að drepa niður akuryrkjuna í landi voru. þau urðu sem kunnugt er, banabiti margri dafn- andi dáð, og drógu úr flestum framförum, um langt skeið. Og ekki að orsakalausu. Að ísland var í fornöld, er skóguf óx „milli fjöru og fjalls“, betur fallið til akuryrkju en það nú er, þykist maður eiga auðvelt með að skilja. En að veðurátt eða gróðrarskilyrði hafi á ofanverðri átjándu öld verið nokkru betri en nú tíðkast, í landi voru, benda engin gögn á, nema síður sje! Skógarnir voru þá eyddir og skjól- in með. Landið og loftslagið víst nokkuð líkt því, sem enn er. Og ræktunarvísindin lítt komin á legg. En þrátt fyrir það náði korn oft fullum þroska og það jafnvel sum hin köldustu sumur! Merki- legt má kalla, hve lítið þessu er á lofti haldið. Jeg hefi engan sjeð eða heyrt á það minnast annan en Sig. þórólfsson. En jeg efast ekki um að hann fari hjer með rjett mál og hafi góðar heimildir fyrir. Söguþekking hans er svo al- þekt. Furðuleg má hún kallast speki hinna hálærðu ræktunarvísinda- manna vorra, sem kenna oss auð- trúa heimalningum, að kornyrkja sje eigi hugsanleg í landinu, beint ofan í staðreyndir langafá sinna, og án þess að hafa nokkrar yngri- tíma átyllur máli sínu til stuðn- ings. En ennþá undraverðara er hve auðvelt hefir reynst að „sann- færa“ almenning um þessa villu- trú. En er það ekki einmitt ættaf- mark margra hinna örgustu villu- kenninga, að þær útbyggja allri skynsemi? Og er ekki jafnan auð- veldast að útbreiða þær kenning- ar, sem engrar áreynslu krefjast? Svo sýnist það vera stundum! Á 18. öld ræktuðu Islendmgar bygg og hafra, norðanlands og sunnan, oft með góðum árangri, en nú er hvorugt talið geta þrifist þar, ekki einu sinni í bestu sveit- um Suðurlands. I ýmsum nyrstu hjeruðum Noregs og Svíþj., þar sem korntegndir þrifust illa eða ekki á 18. öld og langt fram á þá 19., er nú bygg og jafnvel líka hafrar, ræktað með góðum árangri. það eru eftirtektarverð og undarlega andstæð dæmi þetta og illa samrýmandi! Hvað veldur þessu? myndi trúgjarn og ókunn- ugur maður spyrja. Hefir veður- átt Norður-Skandinaviu batnað svo og blíðkast jafnframt því, að á ísl. kólnaði og versnaði veðra- far? —- Ónei. Til allrar hamingju er ekki sökin svo alvarleg fyrir oss eyjarskeggja. Löndin og.mis- munur þeirra er víðast nokkuð líkt því sem áður var. En munur- inn liggur einkum eða aðallega í því, að þeir frændur vorir, þar í kringum heimskautabauginr í austurátt hafa verið þrautseigir og þolinmóðir, þreifað sig áfram og alið upp sjerstakar bráðþroska byggtegundir handa sjer, meðan íslenskir menn stungu árum í kjöl, lásu óbænir sínar og tömdu sjer að trúa einkunnarorði ómensk unnar: Ómögulegt! Alveg ómögu- legt! “ — Og því miður! það líða sennilega mörg ár og heilir manns aldrar fvrri en öll „ómöguleika“ myglan er upprætt úr moðsekkj- um þjóðlífsvenju vorrar. En burt | skal hún alt að einu. Frh.

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.