Lögrétta - 15.03.1927, Page 4
4
LÖGRJETTA
l
aði til stöðvarinnar. Skarphjeðinn
hefur kynt sig vel og ekkert
komið fram er sýndi að hann
væri ekki vaxinn starfi sínu, —
en lítið hefur hann tekið fyrir
verk sín, miðað við það er nú
gerist.
í vetur er leið var ekki hægt
að segja að Fljótið legði upp úr.
Það er orðið svo flesta vetur,
að fyrir ofan Ás leggur það ekki,
fyr en um miðjan mars og fyrir
ofan brú leggur það ekki nema
lítilsháttar fyrir jól. Fyrir fimm-
tíu árum var þetta öðru vísi. Þá
var það um jól jafnaðarlegast
lagt upp að Ormarsstaðaá. Nú er
það fyrir nokkru lagt upp að
Mjóanesi.l frostleysunum framan
af í vetur voru menn þó famir
að tala um að gerandi myndi að
setja á laggirnar mjólkurbú við
Fljótið, er væri ekki öllu neðar
en við Ormarsstaðaá og láta
mótorbát safna saman rjómanum.
En þetta mun hafa haft mestan
byrinn fyrir það, að í sumar var
hjer Reyðfirðingur, norskur í
aðra ætt, sem annaðist flutning á
Fljótinu. Fór hann langt niður
fyrir brú og hafði haft við orð
að flytja eftir Fljótinu niður að
Fossi og inn Fljótsdalinn eftir
ánni á flatbotnuðum bát. Þá vel
er athugað sýnist miklum mun
auðveldara að reka mjólkurbú
hjer á Fljótsdalshjeraði nú en
var fyrir 30 árum þá Sigurður
heitinn Sigurðsson hreyfði því.
Það gera vegimir. Bílfær vegur
inn Vellina inst inn í Skriðdal
frá Egilsstöðum norður hjá
Heiðarenda og vegur út Eiða-
þinghána út að Eiðum. Svo er
verið að leggja akfæran veg frá
brúnni inn Fellin. Það er því
ekki iiema framtaksleysi að reka
hjer ekki stórt mjólkurbú. Nú
em Seyðfirðingar famir að láta
til sín heyra að fá bílveg frá
Seyðisfirði til Hjeraðs. Það er
fylsta ástæða til þess. En það
gengur furðu næst, að enginn
íbúi Fljótsdalshjeraðs skuli láta
til sín heyra. Það má þó geta
næxTÍ að jafn fjölmenn og stór
bygð með ótal framleiðslu skil-
yrðum hafi þörf fyrir meira en
þessa einu leið, Fagradalinn til
strandarinnar. Akvegur frá Seyð-
isfirði til Hjeraðs er ekki síður
fyi-ir Hjeraðsbúa en Seyðfirð-
inga. Úthjerað er illa sett vegna
hafnleysis. Braut til Seyðisf jarð-
ar yrði því mun notadrýgri en til
Reyðarfjarðar. Norskur verk-
fræðingur hefir fyrir löngu skrif-
að í Andvara um akveg frá Seyð-
isfirði til Hjeraðs.
Heilsufar er gott. Hinir ungu
læknar hafa besta traust. Á
Hjaltastað er nýbygt íbúðarhús
fyrir lækninn. Er það "steypt
með tvöföldum veggjum og loft
steinsteypt.
Þá má geta þess að við Eiða-
skólahúsið var, í sumar, bygð
stór viðbótarbygging. Er þessi
bygging öll úr steinsteypu: vegg-
ir (tvöfaldir), loft og stigar og
talin hin vandaðasta. Bygginguna
gerðu eftir samningi Sigurður
Bjömsson trjesmiður á Seyðis-
firði og Jón Vigfússon steinsmið-
ur á Seyðisfirði.
Runólfur Bjamason.
Leiðrjetting. Það er skýrt frá
því í síðustu Lögrjettu, sem mjer
barst í dag, sem ástæðu fyrir
neitun Leikfjelagsins við tilboði
hr. G. Kamban, að fjelagið hafi
verið bundið föstum samning-
um um starfsemi sína það sem
eftir væri þessa leikárs.
Út af þessu leyfi jeg mjer að
skýra frá því, að á fundi Leik-
fjelagsins 11. þ. m., þar sem hr.
G. Kamban bar munnlega fram
tilboð sitt, beindi jeg þeirri fyr-
irspum til formanns fjelagsins,
hvort hann fyrir sína eða fje-
lagsins hönd væri bundinn nokkr-
um skuldbindingum eða lofoxð-
um um leika eftir að hætt væri
við Munkana á Möðruvöllum.
Þessari fyrirspum minni svar-
aði formaður ákveðið „nei“; að-
eins væri búið að þýða eitt leik-
rit og yrði fjelagið auðvitað að
borga þýðinguna.
Þetta heyrðu allir viðstaddir
fjelagar Leikfjelagsins.
Jeg verð því að líta svo á, að
um enga fasta samninga hafi ver-
ið að ræða og að því fjær hinu
rjetta sje að segja, eða gefa í
skyn, að hr. Kamban hafi heimt-
að rifting á gerðum samning-
um.
Rvík 14. marts 1927.
Borgþór Jósefsson.
'.m
Lögrj. sjer ekki, að leiðrjett-
ing þessi komi í bág við ummæli
hennar í síðasta tbl. Hefði fonn.
Leikfjel. tekið tilboði hr. ,G. K.
eins og það kom fyrst, þá hefði
hann rift samningum við höfund
Munkanna á Möðruvöllum. Þeg-
ar tilboð G. K. var endumýjað,
var fjelagið bundið samningum
við formann sinn og leiðbeinara,
en frá þeim samningum leysti
form. fjelagið, svo að það gæti,
ef því sýndist, tekið tilboðinu.
Virðist því síst ofhermt, að form.
Leikfjel. hafi hagað sjer í þessu
máli „eins og hann hlaut að gera
og rjett var“.
Dómur er fallinn í hæstarjetti
í málinu út af meðferð skag-
firska drengsins, sem fyr hefur
verið sagt frá. Hjónin, sem í hlut
eiga, vom dæmd í 2X5 daga
fangelsi við vatn og brauð, einnig
eiga þau að greiða kostnað af
spítaladvöl drengsins vegna fót-
armeins og málskostnað. En
skaðabætur vegna örkumla era
drengnum ekki dæmdar, þar sem
móðir hans hafði ekki krafist
þeirra. Hæstirjettur telur ekki
sannað, gagnvart neitun ákærðu,
að drengurinn hafi verið svelt-
ur og telur einnig, að meðferð
hans hafi að nokkra stafað af
annríki einyrkjanna og af því,
að þeim hafi ekki verið Ijóst
hverjar afleiðingar hirðuleysi
þeirra hefði, en hinsvegar væri
ýms meðferðin á drengnum og
aðbúð hans svo vítaverð, að hún
væri ósæmileg hverri húsmóður.
Hæstirjettur átaldi nokkuð með-
ferð málsins í undirrjetti.
Karlakór K. F. U. M. hefur
haldið samsöngva undanfarið við
góða aðsókn og góðan orðstír. Á
söngskránni voru 12 lög, þar af
aðeins eitt íslenskt, eftir Árna
Thorsteinsson (við Fyrstu vor-
dægur eftir Þorst. Gíslason).
Mestu viðfangsefnin vora annars
Sten Sture eftir Körling, með J
einsöng Símonar Þórðarsonar og
Varde eftir Haarklou, með ein-
söng Ó. Norðmanns, en í heild
sinni vora lögin smeþklega og vel
valin. Flokkurinn er samt orðinn
svo snjallur, að hann mætti vel
temja sjer enn fleiri stór við-
fangsefni, þó að vísu sje hann
full fámennur (rúml. 30 manns).
Er sjerstök ástæða til þess að
minnast flokksins nú, þar sem
hann átti 10 ára afmæli 11. þ.
m. Hefur hann á þessum árum
unnið hjer mikið og gott starf
; undir ötulli og smekkvísri stjórn
! ágæts söngstjóra, Jóns Halldórs-
j sonar, er orðinn vandaður og vel
samsunginn flokkur og hefur
I prýðilega einsöngvara. Færðu
| kórmennirnir söngstjóranum gull-
i úr að gjöf í afmælisfagnaði sem
| þeir hjeldu.
Harmoniku-leikari norskur, G.
Erichsen, bróðir þess, sem kom
hjer í fyrra, heldur nú hljóm-
leika hjer. Hann er nefndur í aug-
lýsingum heimsmeistari og snill-
ingur og öðram hógværam nöfn-
um. Hann hefur samið ljett lög,
sem þykja skemtileg ýms og era
vinsæl og ljek þau nokkuð. Ann-
ars vora hljómleikarnir tilkomu-
litlir.
Heimför Vestur-íslendinga. Sr.
Rögnv. Pjetursson hefur hafið
máls á því vestra, að koma á sam-
tökum um kynnisför Vestur-ís-
lendinga heim hingað sumarið
1930. Gerir hann ráð fyxir því,
að 1200—1300 manns sláist í
hóp saman og fái sjerstakt skip,
dvelji í hálfsmánaðartíma í
Rvík og á Þingvöllum, fari nokk-
uð umhverfis land, síðan til Ir-
J lands og Manar og þá vestur
; aftur. Væntanlega verða hátíða-
I höld hjer í sæmilegu lagi 1930,
| höfðingleg en yfirlætislaus og
stilt í hóf eftir getu landsins,
En lítt sjer á enn alvarlega hvað
verða vill, þó margt sje skrafað.
En engum gestum mundi hjart-
anlegar fagnað, en glæsilegum
hópi Vestur-íslendinga.
Iðnaðarmenn hafa ákveðið að
leggja 60 þús. kr. af mörkum til
samskólans, ef úr verður stofnun
hans.
Vigfús Einarsson er skipaður
skrifstofustjóri atvinnu- og sam-
göngumálaráðuneytisins, í stað
Odds Hermannssonar.
Fiskifjelagið hóf aðalf. sinn 14.
þ. m. Fjelagsdeildir eru 46. Náms-
skeið vora haldin 10 s. 1. ár og
var kostnaður við þau 8500 kr.
Starfsmannalaun era 13 þús.
kr., og til ýmsra styrkja fara
16800 kr. 1 ráði er að reyna að
fá skipaða milliþinganefnd til
allsherjarathugunar á sjávarút-
vegsmálum.
Inflúensan er nú allsstaðar í
rjenun erlendis, þar sem til hef-
ur frjetst.
Út af Stokkseyrarbrunanum
hefir verið ákveðið að hefja mál
gegn I. Bjamasyni, sem í gæslu-
varðhaldi hefur setið vegna hans
undanfarið.
íslenskur húsbúnaður. Sam-
Velox
skilvindan
góða er hljóðlítjl og ljett í
snúningi.
Skilur sjerlega vel, einföld
og hæg í hreinsun og end-
ist ágætlega.
Fæst í 3 stærðum.
No. 0 skilur 65 lítr.
— 1 — 120 —
— 2 — 220 —
Velox
strokkurinn
strokkar rjómann á 15—20
mínútum. 3 stærðir 5, 10 og
15 lítra.
Y aralilutir
ávalt fyrirliggjandi.
Verslnn
1ÍHS Dflriarsonar
Reykjavík.
band norðlenskra kvenna hefur
heitið verðlaunum fyrir bestu
uppdrætti að ísl. húsbúnaði, borði,
bekk, 2 stólum, skáp og rúmi og
háganlegri tilhögun í baðstofu.
Hið ísl. garðyrkjufjelag hefur
nýlega sent út ársrit sitt, m. a.
með grein um Burbank eftir
Einar Helgason og hugvekju eft-
ir Hannes Thorsteinsson. ,
Kol og salt hefur látið reisa
svonefndan ,,krana“ á hafnar-
bakkanum til uppskipunar og út-
skipunar á kolum. Er það mikil
jámgrind, sem aka má til, raf-
knúin og getur uppskipunartæk ■
ið tekið hálfa aðra smálest í
einu, en alls getur verkfærið
losað um 80 smál. á klukkustund.
Verkfærið kvað hafa kostað
rúmar 300 þús. kr.
Fjöldi greina bíður nú birting-
ar í Lögr. Höf. era beðnir að hafa
greinar sínar eins stuttar og
auðið er, efnis vegna, og við
blaða hæfi. Getur þá birting
gengið greiðlega. Að öðram kosti
er hætt við að greinar rekist á,
dragist óþægilega eða verði al-
veg útundan.
-o----
Prentsm. Acta.