Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 22.08.1928, Blaðsíða 2

Lögrétta - 22.08.1928, Blaðsíða 2
..;u ÖGEJETTA 3 LðöRJBTTA ÚtgefAndi og riutjó-ri h*rst*1aa O liln t n Þinfh«]tMtrnti 17. Sfmi 178. Innhshata o% afgreiðcla i Miöitrwti 3. Chapmann’s og Andrew’s hefur undanfarið verið við rannsóknir í Mongolíu. Það hefur komið í ljós, að Mongolía var þjettbygð fyrir 20 þúsund árum, af mönnum á steinaldarstigi. Leiðangursmenn hafa einnig fundið ýms merkileg dýr, s. s. beinagrind af risavöxnu spendýri, áður óþektu, og af öðru dýri, sem einnig er óþekt og hef- ur verið 25 feta hátt og líklega 20 smálesta þungt. Nokkur andúð hefur komið fram í Ameríku gegn Kellogg utanríkisráðherra, vegna ófriðarbannssamninganna. Riitfregn Watson Kirkconnel: European Elegies. Graphic Publ. Co. Ottawa. Útgefendur þessarar bókar eegja að hún eigi nálega ekki sinn líka 1 bókmentasögu nokkurrar þjóðar, og er það næsta sennilegt. í henni eru hundrað ljóð, sem einn einasti maður hefur á j skömmum tíma þýtt hjálparlaust j úr fimtíu málum og ofið þannig j saman, að þau mynda heilsteypt og stórfelt listaverk. Þýðarinn er prófessor í Winnipeg, rúmlega þrítugur að aldri. En þótt hann sje svo ungur er mælt að áður liggi eftir hann merkar ritsmíðar um margvísleg efni, svo sem sögu, hagfræði, jurtafræði, mannfræði, fjelagsfræði, fomfræði, málfræði og samanburðar-bókmentafræði. Hann er fæddur í Kanada og þar hafa forfeður hans dvalið kynslóð eftir kynslóð, en vafalaust mun hann vera af keltneskum uppruna. Mentun sína fjekk hann í Kanada og á Englandi (Oxford), og lagði einkum stund á málfræði. Bók þessi er órækt vitni um frábæra málaþekkingu hans og þó ekki síður um hitt, að hann hefur ekki einungis mikla rímgáfu til að bera heldur einnig skáldskapargáfu í ríkulegum mæli. Slíkar þýðingar sem þessar gerir enginn sá mað- ur, sem ekki er annað en rímari. Bókin er þannig til komin að fyrir þrem árum misti prófessor Kirkconnel konu sína, tuttugu og tveggja ára gamla. Úrvinda af sorg leitaði hann svölunar og hvíldar í því að sökkva sjer niður í saknaðarljóð á hinum ótrúlega mörgu tungum, sem hann var læs á, og þýða þau. Þessar þýðingar gerði hann eingöngu sjer til hug- arhægðar, en alls ekki í því skyni að bók skyldi úr verða. Eftir því sem safnið óx vaknaði þó sú hugs- un hjá honum, að þetta, sem orðið hafði honum sjálfum til hugsvöl- unar, kynni einnig að geta átt er- indi til annara. Það er víst enginn efi á því, að svo muni vera. Þó að jeg bendi hjer á bók þessa heldur en að það sje ógert látið, þá segir það sig sjálft, að jeg get um fæstar af þýðingunum dæmt með samanburði við frum- kvæðin. En um hitt get jeg borið, að mjer hefir verið óblandin nautn að lesa þar mörg þau ljóð, sem aldrei á fyrir mjer að liggja að geta lesið öðruvísi en í þýðingu, og sem jeg sennilega fæ aldrei að sjá í annari þýðingu en þessari. Það verða óefað fleiri en jeg sem hugsa til þýðarans með innilegu þakklæti eftir að hafa lesið bók hans og vildu gjama þrýsta hönd hans, ef þess væri kostur. Tvær þýðingar eru hjer úr ís- lensku og er merkilegt að hvorug þeirra er tekin úr fombókment- unum. önnur er fyrsta og þriðja vers úr sálminum „Alt eins og blómstrið eina“. Eigi er þýðinguna að lasta, en þó býst jeg við að flestir Islendingar muni neldur vilja lesa þessi vers í hinni smld- arlegu þýðingu Greens, sem jeg hef bent á annarsstaðar. Hin þýð- ingin er hið undurfagra kvæði Steingríms „Hvar eru fuglar“, og er þó slept næstsíðasta erindinu; en fyrir þeirri úrfellingu mun mega álíta að þýðarinn hafi gert fulla grein með því er hann segir í formálanum. Annars er þýðingin góð, þó að nokkuð vanti á að vetrarstormsgnýrinn í öðru erindi heyrist eins í henni eins og á frummálinu. Aftur á móti hefur tekist prýðilega með þriðja erind- ið, sem þó virðist að varla muni auðvelt viðureignar. Hjer langar mig til að taka of- úrlítinn útúrdúr. — Það mun tæp- lega verða um það deilt, að af öllum íslenskum skáldum hefur Steingrímur verið mestur snilling- ur að þýða erlend ljóð. Hann var, eins og Sir William A. Craigie hefir sagt, „a master in the diffi- cult art of translating poetry“. Hægt er að vísu að benda á þýð- ingar eftir hann sem eru mis- hepnaðar, en þær eru nauðafáar. Hinar eru aftur á móti margar, sem gerðar eru af svo mikilli list að þangað verður komist en ekki lengra. Tökum t. d. Excelsior. Á engu máli er til fullkomnari þýð- ing á nokkru ljóði en þýðing Steingríms á því fagra kvæði. Þá kannast og allir við Lórelei. Það kvæði hefur að sögn verið oftar þýtt en nokkurt annað kvæði í bókmentum heimsins. En skyldu margar af þýðingunum jafnast á við þá er Steingrímur gerði ? Talið er að enskar þýðingar á Lórelei skifti mörgum hundruðum, og þó er víst að engin þeirra þolir sam- anburð við þýðinguna sem við lærðum á Svanhvíti í uppvextin- j um. Það er fróðlegt að veita því ' eftirtekt hve margir erlendir þýð- ! endur hafa tekið fyrir ljóð þessa manns, sem sjálfur var svo mikill þýðari. Steingrímur hefur verið meira þýddur en nokkurt annað nútíðarskáld íslenskt. Framan við bók Kirkconnels er skarpleg og gagnhugsuð ritgerð um þýðingar á ljóðum, en aftan við hana er stuttlega sagt frá höf- undum eða heimildum allra ljóð- anna, sem þýdd eru. Þá er þar registur yfir málin sem þýtt er úr, svo að auðvelt sje að átta sig á því, hvað er úr hverju máli. Annað registur er þar yfir höf- undana, og loks yfir upphöf kvæð- anna. öll er bókin hin prýðileg- asta að frágangi. Eins og að líkindum lætur hef- ur þýðarinn tileinkað bókina minningu konu sinnar. Eitt er víst: Síðan Tennyson orkti „In memoriam“ er þessi bók dýrlegasti sveigurinn, sem nokkur maður hefur lagt á gröf látins ástvinar. Sn. J. Óðinn, varðskipið, er nú bilaður og er bilunin nú á katlinum og mun skipasmíðastöðin eiga að gera við hana á sinn kostnað. V. Hugo: VESALINGARNIR. „Þið komist ekki hjá tveimur prjedikunum. Hlustið þið nú á. Eitt ráð vil jeg gefa ykkur. Látið ykkur þykja vænt hvoru um annað. Jeg hleyp yfir alla formála og kem beint að efninu: Verið hamingjusöm. Siðferðispost- ulamir segja: Njótið gleðinnar í hófi. Jeg segi: Gefið gleðinni lausan tauminn. Látið gamminn geysa. Verið eins ástfangin og þið viljið. Siðferðispostulamir eru skraf-. skjóður og mig langar næstum því til þess að reka sið- ferðisprjedikanimar öfugar ofan í þá. Getur verið of mik- ið til af ilmandi blómum, of margar útsprungnar rósir, of mikill næturgalasöngur, of mikið af grænu laufi, of mikið af morgunroða hjer í lífinu. Er hægt að láta sjer þykja of vænt hvoru um annað, er hægt að láta sjer þykja of gaman að því að vera saman? Mundi það ekki vera þvætt- ingur að segja: þú ert of elskuleg, þú ert of laglegur, varið ykkur á því. Er hægt að vera of vel lifandi, of ham- ingjusamur. Nei, gleðin er hin sanna vitska. Fagnið og látum oss öll vera glöð. Erum við hamingjusöm af því að við erum góð, eða góð af því að við erum hamingjusöm? Látum okkur vera hamingjusöm án allrar smámunasemi og hlýða sólinni í blindni. Því hvað er sólin ? Það er ástin, og ástin er sama og konan. Konan er stórveldi. Spyrjið þið frelsishetjuna hann Maríus, hvort hann sje ekki þræll hins litla harðstjóra, hennar Cósettu, og það af frjálsum vilja. Konuna stenst enginn Robespierre. Konan ríkir. Þetta er eina konungdæmið, sem jeg hylli. Hvað er Adam. Hann er konungsríki Evu. Fyrir tign Evu er árið 1789 ekki til. Engin bylting hefur áhrif á veldi konunnar. Þið kallið ykkur nítjándu öldina. Ojæja. Við hinir vorum átjánda öldin og við vorum alveg eins heimskir og þið. Þið skuluð ekki halda að þið hafið breytt heiminum neitt, þótt hið hafið komið með pestir og fár. Sannleikurinn er sá, að það sem á veltur er það, að elska altaf kvenfólkið. Jeg hefði gaman af að sjá, hvort þið komist í kringum það. Þessir skollar eru englar okkar. Já, ástir og konur og kossar það er hringurinn, sem þið komist ekki út úr og sem jeg fyrir mitt leyti vildi óska, að jeg kæmist aft- Ferðafjelae Islands. ______ I Ferðafjelagið var stofnað 17. nóvember í fyrra, aðallega fyrir j forgöngu Bjöms ólafssonar stór- ; kaupmanns og er Jón Þorláksson ; fyrrum ráðherra formaður þess. j Sá er aðaltilgangur fjelagsins að „vekja áhuga landsmanna á ferða- lögum um landið, sjerstaklega þá j landshluta, sem lítt eru kunnir j almenningi, en eru fagrir og sjer- ! kennilegir. Til þess gefur það út ; ferðalýsingar um ýmsa staði, j gerir uppdrætti og leiðarvísa. i Fjelagið beitir sjer fyrir bygg- j ingu sæluhúsa í óbygðum, stærri j og fullkomnari en nú tíðkast hjer i á landi. Það gengst fyrir því, að ruddir sjeu og varðaðir fjallvegir i og hefur gát á að slíkum leiðum sje við haldið. Fjelagið gerir eftir j föngum ráðstafanir til þess, að j meðlimir þess geti ferðast ódýrt , um landið. Fjelagið gengst fyrir því, að kynna mönnum jarðfræði j landsins og jurtaríki og sögu ýmsra merkra staða“. Fjelaginu er ekki ætlað að fást neitt við heimsóknir erlendra ferðamanna eða það, að draga hingað út- lendan ferðamannastraum, en að- eins það að vekja athygli lands- manna sjálfra á þeirra eigin landi. Allskonar smáfjelagsskapur er reyndar orðinn hjer svo algengur og flókinn, að flestir eru hættir að veita slíku athygli og margir vita ekki sjálfir í hvaða fjelögum þeir eru, nema kanske rjett á meðan verið er að rukka þá — ! með misjöfnum árangri. Margt af þessum fjelögum gera líka nauða- lítið alment gagn. En ferðafjelag, sem væri rekið af krafti og hagsýni mætti verða að ýmsu gagni og góðri gleði. Það færist allmikið í vöxt á síðari ár- um að ferðast um óbygðir, þar sem náttúrufegurð er mikil eða sjerkennileg, en þekking manna á heppilegum og ódýrum útbúnaði til slíkra ferða er oft af skomum skamti. En slík ferðalög eru oft skemtilegri en ferðir um sveitir og ekki dýrari, en losa sveita- fólkið við ágang og ónæði, sem mörgu því mun vera lítið gefið um, þótt gestrisnin ráði að jafn- aði meira en tillitið til eigin þæg- inda. En sumir bæir hafa líka einhverjar tekjur af slíkum ferða- lögum. Óbygðaferðimar eru einn- ig hressandi og oftast fullar af nýjungum og fróðleik og reynslu, sem ekki fæst annarsstaðar og nýju útsýni um hið undurfagra land og sjerkenni þess. Norðmenn hafa komið þessum ferðum í mjög gott horf hjá sjer á síðustu árum, svo að þær em nú einhver besta og almennasta hressing og skemt- un þar í landi. En mikið vantar enn á að ferða- lög hjer á landi sjeu aðgengileg að sama skapi, einkum vegna þess, að þau eru að jafnaði dýr (og oft mjög dýr) svo að flestum almenn- ingi er um megn að ferðast svo að nokkru nemi, enda eru göngu- ferðir lítt tíðkaðar hjer, en mörg- um þykja þær annars ódýrastar og skemtilegastar. Ef ferðafjelag- ið gæti eitthvað greitt úr þessu væri það þarft verk. Það hefur nú byrjað á því að gefa út dálitla árbók, en einstak- lega vandaða að frágangi. Helsta greinin í henni er um Þjórsárdal eftir Jón Ófeigsson, fróðleg grein, prýdd mörgum skemtilegum mynd- um. Ymsar smærri greinar eru í heftinu, m. a. þörf ádrepa eftir Farandkarl, um ýmsa ósiði ferða- fólks, spellvirki á gróðri, sóðaskap eða trassaskap í umgengni matar- leifa, umbúða o. sl. og nafnakrot ^bræður hans opna gröfina og hafa á steina og veggi o. fl. og loks um víðavangsauglýsingar kaupmanna á steinum og staurum. En þær eru sjaldan til prýði eða skemtunar og er nú hafin herferð gegn þeim víða um lönd. Æfisaga Krists Eftir Giovanni Papiná. (Ágrip). að þeir hefðu sjeð Símon og stall- Andstaðan gegn upprisunni. Fyrstu mennimir, sem fylgt höfðu Jesú í jarðlífi hans, voru nú loks sannfærðir um, að annað líf hans, hið eilífa líf, væri byrjað. Hann hafði vaknað af tveggja daga grafarsvefni sem guð. Mikla efasemi höfðu lærisvéinamir orðið að sigra hjá sjálfum sjer áður en trú þeirra á upprisuna varð óbifanleg. Og samt hafa óvinir Krists sakað þessa undrun slegnu og hugtrufluðu menn um, að þeir hafi annaðhvort sjálfrátt eða 1 ósjálfrátt skáldað upprisusöguna. Eftir því sem Kaífas og fylgis- ; menn hans sögðu, áttu læri- sveinarnir að hafa flutt líkið á laun burt úr gröfinni og síðan breitt út fregnina um, að gröfin væri tóm, til þess að fá hugvingl- ara og dultrúarmenn til að trúa, að Jesús væri upp risinn og til þess að þeir gætu enn haldið áfram falskenningum sínum í nafni hins dána svikara. Matteus segir frá því, að höfðingjar Gyð- inga hafi fyrir háa borgun fengið nokkra heiðarlega menn til þess að vitna það, er á þyrfti að halda, þaðan burt með sjer stóra byrði, sveipaða hvítum dúk. Andmælendur upprisusögunnar nú á dögum hafa þó hafnað frá- sögninni um líkránið vegna lotn- ingar fyrir þeim, sem með blóði sínu hafa gmndvallað hina ósigr- andi kirkju, eða öllu heldur vegna þess, að þeir vom sannfærðir um trú hinna fyrstu píslarvotta. Það var óhugsanlegt bæði um Símon og hina lærisveinana, að þeiv hugsuðu sjer að leika blekkinga- menn og svikara; til þess vora þeir alt of einfaldir í hugsun og blátt áfram í allri framkomu. Þeir líkjast miklu fremur blektum mönnum en svikumm eða loddur- um. En sjeu þeir ekki svikarar og loddarar, þá telja nútímans and- mælendur upprisunnar það víst, að aðrir hafi notað sjer takmarka- laust trúaræði þeirra til þess að blekkja þá. Þeir segja, að læri- sveinarnir hafi vænt þess svo fastlega, að Jesús mundi rísa upp, eins og hann hafði lofað, og að upprisan hafi verið orðin þeim svo nauðsynleg, til þess að vega á móti svívirðingu krossfestingar- innar, að þeir hafi verið alt að því neyddir til, að slá því föstu, að hún væri nálæg, og boða, að hún hefði átt sjer stað. Og þar sem alt andrúmsloft þeirra var þmng- ið af hjátrúarfullum heilaspuna og eftirvæntingum yfimáttúrlegra atburða, þurfti ekki annað en ímyndaðar sýnir móðursjúkrar konu og ofsjónir örvinglaðs maims til þess að orðasveimurinn um op- inberanir breiddist út í hinum litla og sárhrygga hópi eftirlif- andi ástvina Jesú. Nokkrir þeirra gátu ekki hugsað sjer, að meist- arinn hefði brugðist þeim, og sög- ur inn í. Maríus barðist fyrir einu misseri, nú heldur hann brúðkaup. Það er rjett. Já, Maríus, já, Cósetta. Þið hafið rjett fyrir ykkur. Lifið þið djarílega hvort fyrir annað. Látið okkur hin rifna af öfund yfir því að geta ekki gert það eins. Kroppið þið með nefinu öll þau gleðinnar strá, sem til eru á jörðinni og gerið ykkur hreiður úr þeim. Það er enginn galdur að elska og vera elskaður, þegar maður er ungur. Þið skuluð ekki ímynda ykkur að þið hafið fund- ið það upp. Jeg hef einnig elskað, dreymt og andvarpað, jeg hef einnig átt sál eins og tært tunglskinið. Amor er sex þúsund ára gamall strákur. Metúsalem er bam við hlið- ina á honum. I sextíu aldir hefur okkur tekist lífsbaráttan með því að elska hvert annað. Djöfullinn er slunginn dóni. Hann hefur fundið upp á því að hata manninn. En mað- urinn var ennþá slungnari, því hann fann upp á því að elska konuna. Á þann hátt hefur hann skapað sjer meira gott, en djöfullinn hefur gert honum ilt. Það bragð var fundið upp um leið og hin jarðneska paradís var fundin. Kæru vinir, þetta er gömul uppfynding, en altaf ný. Notið ykkur hana. Verið Dafnis og Klóe uns þið getið orðið File- mon og Bákis. Gætið þess, að ykkur bresti ekkert þegar þið eruð saman, svo að Cósetta sje Maríusi sólin og Marí- us öll veröldin fyrir Cósettu. Þið hafið dregið góðan drátt í happdrætti lífsins, kirkjuvígða ást. Þið hafið unnið stóra dráttinn, gætið hans vel, geymið hann undir loku og lás og eyðið honum ekki. Tilbiðjið hvort annað og látið þið alt annað róa norður og niður. Þið getið reitt ykkur á það, að það er satt, sem jeg segi. Það er heilbrigð skyn- semi. Trúið hvort á annað. Til eru margar aðferðir til þess að tilbiðja guð. En sem jeg er lifandi kominn, þá er besta aðferðin sú, að elska konu sína. Jeg elska þig Það er mín trúarjátning. Hver sá sem elskar er rjetttrúaður. Kæra vinir. Konunnar skál. Það er sagt að jeg sje gamall. En það er samt sem áður undursamlegt hvað jeg finn mig yngjast upp. Jeg verð eins og ölvaður af því að sjá þessi fallegu, glöðu böm. Mig gæti beinlínis langað til þess að gifta mig, ef einhver vildi eiga mig. Það er óhugsandi, að drottinn hafi skapað me^ ^hnars en þess að tigna og tilbiðja eða að gantast öÉ^öina sjer, spegla sig í kon- unni sinni og reisa sig ' d&öga um stoltaralega með stjelið spert. Það er tilÉ^r lífsins. Svona hugsuðum við, með leyfi að segja, r* rið vorum ungir. Og, drott- inn minn dýri, hvað þá af fallegum konum. Og þá ljek maður sjer. En hva^bað. Elskið hvort annað. Ef við elskum ekki hvert tá þætti mjer fróðlegt að vita hvað það ætti eigifl^^ð þýða, að vorið er til, og þá mundi jeg fyrir mitt*1^ biðja skaparann að stinga öllum þessum fögru hlut^’ hann sýnir okkur, aftur ofan í handraðann sinn, b^hum og fuglunum og fallegu stúlkunum. Kæru böm. ^í^kið blessun óbreytts, gamals manns“. - |gj\ Þetta var skemtilegti !rj)*Ugt Qg þægilegt kvöld. Hið góða skap GillenormandS blæ sinn á það. Dálítið var dansað, mikið hlegið, í sttft^háli það var vistlegt á gamla vísu, eins og við var að ^ þar sem Gillenormand var gestgjafi. Á eftir hávað^ kom þögnin. Brúðhjónin fóru. Skömmu eftir mið^' Varð hús Gillenormands að musteri ástarinnar. Hjet l^Um við. Á þröskuldi brúð- kaupsnæturinnar stenduf 't)sktidi engill og styður með fingri á vör. Sálin fyllist ^hgu er hún sjer hátíðina í helgidómi ástarinnar. Um slík hús hlýtur ^era vafurlogi. Ánægjan sem í þeim býr ætti að geisl^e8hum veggina og lýsa upp myrkrið. Það er ómögulef^huað, en að þessi heilaga og örlögþrungna hátíð senctí sjer himneska geisla út í óendanleikann. Ástin ei' f* dýrðlega deigla, þar sem maður og kona renna saiíM^0 að úr verður þríein vera, hin mannlega þrenning. ?£?1 ondurfæðing tveggja sálna í eina hlýtur að hafa ^ á myrkrið. Elskhuginn er prestur. Hin undrandi 6r ótta lostin. Eitthvað af þessari gleði stígur upp ^j^ðs. Þar sem er sannarlegt hjónaband, það er að segj^ ar sem ástin er, þar er hug- sjónin. Brúðarsængin br^r Upp morgunroða í myrkr- inu. Ef það væri gefið J5,lCblegum augum að sjá hinar ógnþrungnu og dýrðlegu sýnir hins æðra lífs, mundu þau sennilega sjá verur næturinnar, hinar óþektu vængjuðu verur, huldufólk ósýnileikans, hnappast yfir hið lýsandi hús, glaðar og blessandi. Þær mundu benda á hina hreinu konu og á guðdómlegum ásjónum þeirra mundi endur- skína hamingja mannanna. Ef hin sæluhrifnu hjón, sem halda að þau sjeu ein, gætu hlustað mundu þau heyra vængjaþyt í brúðarskemmu sinni. Því hinni fullkomnu hamingju fylgir þátttaka englanna. Yfir þessu litla svefn- herbergi hvelfist allur himininn. Þegar tveir líkamir, sem ástin hefur gert heilaga, mætast í faðmlögum sköpunar- innar, hlýtur af kossum þeirra að fara titringur um óend- anlega dularheima stjamanna. Þessháttar sæla er ósvikin. Utan þessarar gleði er engin gleði til. Ástin er eina alsælan. Alt annað er grátur. Að elska, eða að hafa elskað — það er nóg. Krefjist einskis annars. í fylgnsnum lífsins finst engin önnur perla. Að elska — það er fullkomnunin. Hvað er orðið af Jean Valjean? Að vörmu spori eftir að hann hló að gamansemi Có- settu stóð hann upp, án þess að eftir því væri tekið og gekk fram í anddyrið. Það var sama herbergið, sem hann kom inn í misseri áður, ataður aur, blóði og púðri, er hann bar dóttursoninn heim til afa síns. Á vegginn voru hengd- ir blómsveigar. Hljóðfæraleikaramir sátu í legubekknum, sem Maríus hafði verið lagður á. Basque stóð þar prúð- búinn og hagræddi blómsveigum kringum rjettina, sem bera átti fram. Jean Valjean benti á fatlann, bað hann að afsaka burtför sína og fór. Gluggar borðstofunnar sneru út að götunni. Jean Valjean stóð um stund hreyfingarlaus í myrkrinu neðan við upplýstu gluggana. Hann hlustaði. Glymjandi veitslu- fagnaðarins barst út til hans, hin hvella og mynduga rödd Gillenormands, hljóðfæraslátturinn, glasaglaumur og diskaskellir og hlátrar gestanna. Gegnum allan hávaðann heyrði hann ljúfa og glaða rödd Cósettu. Hann gekk heim- leiðis í Homme-Armé-götu, en fór lengstu leiðina, sömu göturnar og hann hafði einlægt gengið síðasta misserið, þegar hann fylgdi Cósettu til Maríusar til þess að kom- ast hjá vagnaþvögunni og götuaurnum. Hann gekk inn í hús sitt, kveykti á kerti og gekk upp stigann. íbúðin var auð. Jafnvel Toussaunt var horfin. Skóhljóð Jeans V’aljean kvað við hærra en venjulega. Allir skápar stóðu opnir. Hann fór inn í herbergi Cósettu. í rúmi hennar vom engin lök. Framar átti enginn að sofa í þessu rúmi. Alla smáhlutina, sem henni þótti vænt um, hafði Cósetta tekið með sjer. Annað var ekki eftir en hinir stórskom- ari húsmunir og berir veggirnir. Rúm Toussaints var einnig óumbúið. Rúm Jeans Valjean var það eina, sem um var búið. Hann horfði á veggina, lokaði nokkmm skáp- um og fór aftur inn í herbergi sitt og setti kertið á borð. Hann tók hendina úr fatlanum og beitti henni eins og ekkert væri að henni. Hann gekk að rúminu sínu og varð litið á töskuna, sem hann skyldi aldrei við sig. Þegar hann kom í húsið, 4. júní, setti hann hana á stól við höfðalag sitt. Hann tók lykil úr vasa sfnum og opnaði hana. Hann tók upp úr henni, hægt og hægt, fötin, sem Cósetta hafði verið í fyrir tíu árum þegar hún fór frá Montfermeil. Fyrst tók hann litla svarta kjólinn, svo dökka klútinn, stóra bamsskóna, sem ennþá voru næstum því nógu stórir henni, svo fótsmá var hún, prjónakotið, svuntuna, með vasanum framan á og ullarsokkana. Þessir sokkar, sem ennþá báru svip hins yndislega bamsfótar voru ekki öllu stærri en hönd Jeans Valjean. öll voru föt- in svört. Hann hafði borið þau fyrir hana frá Montfer- meil. Jafnóðum og hann tók þau upp úr töskunni lagði hann þau á rúmið og rifjaði upp fyrir sjer það, sem gerst hafði. Þetta var um vetur, í köldum desembermánuði. Ilún hríðskalf hálfnakin í tötrum sínum og fætumir vom frostbólgnir 1 klossunum. Hann, Jean Valjean, hafði látið hana fara úr þessum tötmm til þess að klæðast sorgar- klæðum. Móðir hennar hefur sjálfsagt glaðst í gröf sinni yfir því að dóttir hennar syrgði hana, og einkum af því L

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.