Lögrétta


Lögrétta - 23.01.1929, Qupperneq 1

Lögrétta - 23.01.1929, Qupperneq 1
—----------- XXIV. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 23. janúar 1929. 3. tbL Um víða veröld. Trú og vísindi framtíðarínnar. Skoðun J. B. S. Haldane. Trúaralda gengnr yfir heim- inn. Hún kemur fram á ýmsan hátt og ireinist í ýmsar áttir. Fólk hallast að kirkjunum, ka- þólskri kirkju eða mótmælenda- kirkjunum, eða það hallast að ein- hverri „frjálsri" trú, meira eða minna ákveðinni. Jafnvel úr ýms- um þeim áttum sem áður, einkum á síðastliðinni öld, andaði kaldast úr í garð trúarinnar, fær trú- hneigðin nú beinan og óbeinan stuðning, sem sje frá náttúruvís- indunum. Ýmsir helstu náttúru- fræðingar menningarlandanna viðurkenna nú fúslega rjett trú- arinnar og gildi hennar fyrir líf einstaklinga og þjóða, þótt þeir þykist hafa ýmislegt að athuga við deilur og kenningar guðfræð- innar. Á svipaðan hátt eru nú ýmsir trúmenn og kirkjumenn famir að tala öðruvísi en þeir áð- ur gerðu um „vísindin", segja að þau geti á ýmsan hátt orðið tiúnni til endumýjunar og styrktar. Menn eru með öðrum orðum að reyna að brúa djúpið, sem áður var talið að væri milli trúar og vísinda, reyna að koma á milli þeirra samvinnu og samúð í stað ófriðar. Þeir, sem að stað- aldri hafa lesið greinamar í bálk- inum „Um víða veröld“ hjer í blaðinu hafa kynst sumu af því helsta, sem fram hefur komið í þessum efnum á síðkastið úti um heiminn, bæði frá náttúmfræð- ingum og heimspekingum og kirkjunnar mönnum. J. B. S. Haldane heitir einn af kunnustu náttúmfræðingum Breta. Hann hefur ekki alls fyrir löngu skrifað talsvert um afstöðu vísinda og trúar (í bókinni „Possible Worlds and Other Essays“). Trúarreynsla er vem- leiki, segir hann, sem ekki verð- ur frarahjá gengið. Kraftur bæn- arinnar er einnig slíkur vemleiki, hvemig sem menn annars vilja skýra hann. í>að má máske skýra hann á sálfræðilegan hátt og svo, að ekki sje nauðsynlegt, að gera ráð fyrir að gripið sje á guðlegan hátt inní rás náttúmnnar. En alt um það leikur ekki efi á því, að það að biðja sjálfur, eða það að vita um fyrirbænir annara, getur verið vöm gegn freistingum og nokkur eða algerð lækning á sjúk- leikum í starfi taugakerfisins. En trúarreynslu geta menn ekki skiftst á beinlínis. En þeir, sem fyrir henni hafa orðið geta gert aðra þátttakandi í henni með helgiritum og helgisiðum. Þetta vita Hindúar manna best. Hinir | ómentuðu meðal þeirra trúa heilu kerfi af helgisögnum og snúa sjer til allskonar goða. Hinir mentaðri menn trúa ekki á sannleika sagn- anna eða á önnur áhrif siðanna en sálaráhrif. Hindúi einn, sem er vel þektur stærðfræðingur og svo staðfastur í siðum trú&rbragða sinna, að hann mundi heldur deyja, en borða nautasteik, spurði einu sinni enskan stallbróður sinn, hvort það mundi þykja nokkuð furðulegt í Bretlandi, þótt erkibiskupinn í Kantaraborg neit- aði í lávarðadeildinni kenningunni um tilvem guðs. Svo virðist, að í Indlandi hefði áþekk neitun ekki vakið meiri undmn, en það mundi vekja hjer, þótt einhver háskóla- kennari í sálarfræði færi að neita tilvem sálarinnar, eða þótt ein- hver prófessor í eðlisfræði efaðist um vemleika efnisins. Þetta má samt alls ekki skiljast sem vöm fyrir trúarbrögð Hindúa, sem hafa umborið og afsakað allskonar ósiði, morð, saurlifnað og óþrifn- að og hafa ýmsar leiðinlegar sagnir. En alt um það er viðgang- ur og útbreiðsla þessara trúar- bragða staðreynd og áhrif þeirra á líf áhangendanna. Það er þá líka staðreynd, að það er ekki nauð- synlegt að kennisetningum sje trúað til þess að þær hafi áhrif. Ef haldið er áfram að álíta, að átrúnaður sje prófsteinn á trú, þá virðist mjer, segir Haldane, að eitt af þrennu geti komið fyrir. Áhrif kirkjunnar geta orðið til þess að gera ófrjósama alla vísindalega hugsun og drepa niður mannleg- um framförum, svo að fylgisþjóðir kirkjunnar standi uppi eins vam- arlausar gegn ókristnum þjóðum, semu væm opnaðar vísindum, eins og ókristnar Asíuþjóðir vom vamarlausar gegn kristnu þjóð- unum á nítjándu öld. Ef einhver Asíuþjóð fer að hugsa á líffræði- legan hátt á undan þjóðunum af Evrópu uppmna, þá munu þær drotna yfír heiminum, ef draga má nokkurar ályktanir um fram- tíðina af reynslu fortíðarinnar. Sumir telja það, í öðru lagi, hugsanlegt, að öll trú hyrfi eða yrði áhrifalaus. Slíkt yrði sjálf- sagt til ills. Ef við höfnuðum trúnni algerlega mundum við sennilega fara að gera sjálf okkur guðdómleg og haga okkur mjög eigingimislega, eða við mundum gera ríkið að guði. Það getur ver- ið að trú,9 eins og við þekkjum hana, geti einhvemtíma horfið, þvi ýmsir lifa nú góðu lífi án hennar. Það er mögulegt að verða á heimspekilegan hátt sannfærður um hinn æðsta veruleika og um nauðsyn hins andlega án þess að gera ráð fyrir öðrum heimi, eða , jafnvel persónulegum guði. Og slíka sannfæringu mætti styðja með dulrænni reynslu. En allur I þorri manna hefur ekki hæfileika ! \ til svo óhlutrænnar hugsunai'. Og það er jafnvel ennþá erfiðara, | þótt mögulegt sje það að sjálf- gæðissannfæringu, eins og Ber- | trand Russel gerir, en trúa því jafnframt, að hún sje óverulegt aukaatriði í tilvem, sem í heild sinni láti sig hana engu skifta. Þriðji möguleikinn er sá, að á rústum kristindómsins rísi ný trúarbrögð í samræmi við hugs- unarhátt nútímans, eða í sam- ræmi við hugsunarháttinn fyrir einni öld. Drög að slíkum kenn- ingum finnast í ummælum merk- ustu spíritista, í hagfræðikenning- um kommúnistaflokksins og í rit- um þeirra, sem trúa á skapandi þróun og víðar. t nýrri trú mundu krystallast samtímavísindi, eins og í gömlum trúarbrögðum eru úrelt vísindi. En jafnvel þótt einhver slík ný trúarbrögð gætu í svip orðið framfaraspor í vísindalegu og sið- ferðilegu uppeldi mundu þau verða vísindalegum og siðferði- legum framförum framtíðarinnar miklu alvariegri hindrun en krist- mdómurinn. Að öllu þessu athuguðu hallast Haldane því helst að því, að trú og vísindi mætti kalla tvenskonar listræn form, sem menn nota til þess að lýsa reynslu sinni. Bæði guðfræði og náttúrufræði geta verið verðmætar leiðbeiningar til góðrar breytni, eins og þau geta verið fögur í sjálfu sjer. En þar I fyrir þurfa hvorki guðfræði nje ' náttúrufræði að vera sönn. Trú er aðferð til að lifa lífinu og af- staða til alheimsins. Hún kemur mönnum í nánara samband við innra eðli veruleikans. Fullyrð- ingar um staðreyndir, gerðar í hennar nafni, em ósannar í ein- stökum atriðum, en oft sannur kjaminn í þeim. Vísindin eru einnig aðferð til að lifa lífinu. og afstaða til alheimsins. Þau snerta alt, nema eðli veruleikans. Fullyrðingar um staðreyndir, gerðar í nafni þeirra, eru venju- lega rjettar í einstökum atriðum, en geta aðeins leitt í ljós form, en ekki raunverulegt eðli veruleikans. Vitur maður sníður breytni sína bæði eftir trú og vísindum, en skoðar hvorugt sem fullgilda sannreynd, heldur sem form eða ímynd. SíSustu fregnir. Fyrir franska þinginu liggur nú tillagá, að smíða á þessu ári 18 ný herskip, samtals 50 þús. smálestir. 1 Italíu eru ríkisgjöld til flotans á þessu ári áætluð 48 milljónum líra hærri en í fyrra. Hjer um bil al- staðar er flotaaukning og þar með aukin ófriðarhætta. Þó eru Kín- verjar að minka her sinn. Þeir hafa haft 2(4 milljón hermanna. En nefnd, sem athugað hefur máhð undanfarið, álítur að kom- ast megi af með 8Ö0 þús. manna her. I Kína hafa verið miklir landsskjálftar undanfarið, í Shanai og fórst margt manna, en hung- ursneyð er á landskjálftasvæðinuu I hafnarbænum Cumane í Vene- zuele hafa nýlega orðið miklir landskjálftar og fórust 200 manns að minsta kosti. Áme Borg hefur nýlega sett heimsmet í sundi, í Astralíu, synti 880 yards á 10 mín 27 sek. Finninn Tliunberg hefur einnig nýlega sett heims- met í 500 metra skautahlaupá, 42,8 sek. og sömuleiðis Norðmafi- urinn Wallengrud í 5000 metra skautahlaupi, 8 mín. 24.2 sek. í Jugóslaviu eru 3Ífeldar viðsjár. Einræðisstjómin hefur, sam- kvæmt lögum, sem hún hafði áð- ur gefið út, látið lögregiuna í Agram leysa upp alla Króatisk*. þjóðemisflokka, þ. á. m. bænda- flokk Miatcheks, en gerði upptæka sjóði og skjalasöfn flokkanna. Morgan hefur verið kosinn fuH- trúi Bandaríkjanna í skaðabóta- nefndina og vekur það óánægju bæði Frakka og Þjóðverja. Undan- famar 7 vikur hafa 26 þús. manns dáið úr innflúensu í Bandar- ríkjunum. Talið er að franskur fræðimaður, Normet, hafi fundið serum til að ráða bót á blóðmissi. ----o----- Deilurnar» útgerðina Eins og áður hefur verið sagt, þá hafa staðið hjer kaupdeilur milli sjómanna og útgerðarmanna og hefur samkomulag ekki tek- ist. En verkfall er nú hafið á tog- araflotanum og skipum Eimskipar fjelagsins. Til þess að geta gefið lesendum sem nánastar og hlut- lausastar fregnir af deilumálun- um hefur Lögrj. snúið sjer tíl tveggja mikilsmegandi manna, sem að þessu standa, alþingis- mannanna Sigurjóns A. Ólafsson- ar formanns Sjómannafjelagsina og Jóns Ólafssonar framkvæmda- stjóra og fer frásögn þeirra hjer á eftir. Væntanlega tekst að ráða deilumálunum til heppilegra lykta áður en langt um líður, svo að sem mest verði komist hjá þeirri úlfúð og því fjárhagslega tjóni, semaf langri vinnustöðvun hlýtst. Það virðast heldur ekki vera eins mikið sem milli ber nú orðið, eins og á horfðist í fyrstu. Sjerstak- lega mundi stöðvun á kaupferð- um koma hart niður á alþjóð manna og verður að krefjast þess afdráttarlaust af samningsaðiljum að þeir láti einskis ófreistað til þess að binda enda á Eimskipa- fjelagsdeiluna hið allra fyrsta. Siglingastöðvunin hefur þegar haft þau áhrif að t. d. Samband

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.