Lögrétta - 10.04.1929, Blaðsíða 3
4
LÖGRJBTTA
Endurmiimingar
sr. Friðriks Friðrikssonar.
Ljóðmæli Signrj. Friðjónssonar.
Æfisaga Krists, eftir Papini.
Eggert ólafsson
eftir Vilhj. Þ. Gíslason.
Bókaversl. Þorst. Gíslasonar.
Lskjargðtu t.
er svo hræðilega leiðinlegt, að
koma á ókunnan stað og vita
ekkert um sjálfs sín erindi — að
hafa aldrei sjálfur hugsað fram
fyrir sig — hvaða erindi hann
ætlaði sjer að reka — hvaða starf
hann ætlaði sjer helst að rækja.
Þú verður að muna eftir þvi,
að það er alt á sjálfs þín valdi,
hvernig þjer reiðir af á ókunnum
brautum, af því það ert þú einn,
sem ræður fyrir sjálfan þig, þeg-
ar þangað kemur. Inni á hug-
heima brautum er það aðeins þín
eigin hugsun sem ræður því, hvort
þú kemur þangað ókunnur og öll-
um fjær, eða þú kemur þangað
sem kunnugur gestur, sem allir
kannast við og hafa ánægju af að
taka á móti.
„Með sjálfum sjer verður hver
lengst að fara“, segir gamalt mál-
tæki, og sá, sem byrjar á því jafn-
skjótt og hann leggur á stað út
í lífið, að treysta best á sjálfan
sig til að rata, hann kemst langt.
Sá, sem ætlar sjer að fara í landa-
leit, t. d. norður í heimsskauta-
höf, hann verður að treysta á sína
eigin vegvísi. Honum þýðh- ekk-
ert að vera að spyrja þá til vegar,
sem aldrei hafa komið þar og
aldrei hugsað á þær slóðir. Hið
sama gildir fyrir hvern og einn,
sem eitthvað vill komast inneftir
eilífðarbrautinni miklu; hann
verður sjálfur að hugsa sinn veg,
vilji hann nokkuð komast áfram
þegar mest á reynir.
Hugurinn eða sálin situr kyr í
sama stað, þar sem henni hafði
verið vísað á meðan hún var í lík-
amanum, og lengra kemst hún
ekki, af því hún hafði aldrei hugs-
að lengra, og altaf verið föst við
þá fölsku hugsun og kenningn, að
það yrði sjeð um hverja sál, sem
yfirum kemur, hún væri tekin og
borin í einhverja sæluvist, sem
allra biði. En nú er því svo varið,
að hver og ein sál verður að sjá
sjer sjálfri borgið, þegar yfir er
komið, ef hún vill komast út fyr-
ir kyrstöðuhiinginn, og fá að
njóta ljóssins og lífsins til lang-
frama.
%
Hugsanirnar eru eins og nýr
vorgróður, sem á eftir að breiða
sig yfir jörð alla. Það skyldi því
enginn ímvnda sjer, að hugsanir
sjeu lítilsvirði, sem ekki sje vert
að gefa gaum, því það eru þær,
sem öllu ráða um framtíð þína.
bæði hjer í heimi og þá ekki síður
annars heims. Sá, sem aldrei hef-
ur hugsað fram fyrír sig, óháður
öllum kenningaböndum, hann þarf
ekki að búast við fjölbreyttu and-
legu lífi þegar yfirum er komið.
Sá, sem aldrei hugsar sinn veg
sjálfur, hann mun atlaf þurfa á
annars leiðsögn að halda og þess
vegna veit hann aldrei, hvert er
með hann stefnt. Sá, sem aldrei
tók það, sem hann átti, hann fær
aldrei það, sem aðrir áttu.
Ól. Isl.
Á að fækka prestum?
Jeg er mjög þakklátur kirkju-
| stjórninni fyrir skipun kirkju-
málanefndar, því jeg vona, og hefi
enda nú þegar nokkra vissu fyrir
því, að eitthvert gagn verði að
starfi hennar fyrir kirkju vora og
kristni. En það voru mjer mikil
vonbrigði, að svo virðist, sem
nefndin eða einhverjir innan henn-
ar hafi hugsað sjer að fækka
prestum. Ræð jeg þetta af spurn-
ingum þeim sem nefndin hefur
J sent út um land alt, til sóknar-
' og hreppsnefnda um þetta efni.
! Jeg hjelt satt að segja, að presta-
| köll væru orðin nógu víðlend, þeg-
I ar lögin um sameining presta-
i kalla frá 1907 væru að fullu kom-
in til framkvæmda. All háværav
óánægjuraddir hafa heyrst úr
mörgum samsteypu-prestaköllum,
enda hefur Alþingi sjeð að þau
lög gengu of langt, og breytt lög-
unum þannig, að nú er 3 presta-
i köllum fleira, en þar er ráð fyrir
gert. Jeg hafði því ekki haldið að
sú leið að fækka prestum, væri
svo ofarlega á baugi.
Jeg er að vísu ekki hræddur við
svar þjóðarinnar í þessu máli,
það verður á einn veg hjá öllum
þeim sem málið skiftir nokkru.
Þjóðin vill ekki fækkun presta,
sem betur fer. Og vona jeg að
nefndinni verði það fullljóst af
svörum þeim er henni berast.
Það hafa ýmsir látið í ljósi, að
hugsanlegt væri að fækka prest-
um, en sá eða þeir sem þessa
skoðun hafa látið í ljósi, hafa
víst sjaldan viljað tapa sínum
eigin presti, eða láta stækka sitt
prestakall. Menn segja sem svo:
Það er að líkindum einhversstað-
ar hægt að fækka prestum, en
það er ekki hægt hjá okkur. Það
er gamla sagan: Ef það nær ekki
til mín!!! Jeg vildi með þessum
fáu línum vekja athygli þeirra
j sem hlut eiga að máli, að með
I svörum sínum taka þeir á sig
! mikla ábyrgð. *
I fyrsta lagi legg jeg áherslu á,
[ að mjög viðsjárvert er fyrir fá-
| mennar nefndir að svara, eða gera
! tillögur um gagngerða breytingu
á skipun míkilsverðra mála, sem
varða alla þjóðina, og haldist hafa
um langan aldur, án þess að gefa
almenningi tækifæri til að láta
skoðun sína í ljósi.
Jeg veit ef til vill ekki hvað
fyrir þeim vakir, sem vilja fækka
prestum. En jeg býst við, að fyrii
sumum stjórnmálamönnum vaki
fyrst og fremst spamaðarhugsun-
in. Auk þess líta menn á sam-
göngubætumar í sumum sveitum.
Það er mikið rjett, að samgöngur
hafa mikið batnað hjer á síðustu
20 árum. Býst jeg þó við, að víða
út um land finnist fólki nokkuð
skorta á, að þær sjeu orðnar svo
góðar sem æskilegt væri. Og enn
sem komið er, ná þær samgöngu-
bætur nær eingöngu til sumarveg-
anna. En mest ferðalög presta eru
einmitt á vetrum, og skeð getur
að enn komi íslenskur vetur.
Fækkunarmenn segja, að nú
megi fara um alt í bíl, en í fyrsta
lagi vantar enn mjög víða bílfæra
vegi, eins og jeg gat um. í öðru
lagi er alls ekki hægt að skikka
þá presta sem nú sitja í embætt-
um, til að þjóna stærri prestaköll-
um. Er þetta því að taka langt
fram fyrir sig. Auðvitað fordæmi
jeg það ekki, ef jeg gæti sjeð að
það væri til uppbyggingar. Það er
heldur ekki hægt nema með þeirra
samþykki, þó þeim væri boðin
hærri laun. En jeg býst við, þó
launin yrðu hækkuð um að
þá vildu margir og væri eins gott
fyrir þá að sitja við sömu laun, '
heldur en taka við stækkuninni,
svo örðugt sem það væri víða
Jeg hef heyrt sagt, að sumir
telji mögulegt að sameina hjer i
sýslu Akranes og Saurbæ, þannig
að presturinn hefði 4 kirkjur. j
Hjer. í sókn (Garðasókn) eru nú |
um 1500 manns. En ef stækkað
! yrði, væri um 15 tíma lestaferð
j frá Akranesi á insta bæinn í hinni
nýju sókn. Sjá allir hve mikið vit
væri í þessu. Grunar mig að víðar
standi líkt á. Jú svo eru bílamir.
| Þennan veg, í svokölluðu besta
hjeraði landsins (Borgarfirðinum)
í er ekki enn hægt að fara í bíl. En
I þó svo væri, að hægt væri að fara
’ í bíl, um landið þvert og endi- !
| langt, þá býst jeg þó við að bíl- j
i ferðir kosti presta nokkuð, eins og
! annað fólk. Og hugsanlegt er, að
! svo lengi, og mikið sje hægt að
sverfa að prestum, að þeir dagar
komi að þeir fari að gera kröfur
eins og aðrir menn, sem þurfa að
lífa.
Þar sem prestaköllin yrðu
stækkuð, væri óhjákvæmilegt að
greiða prestum ferðakostnað eins
og öðrum embættismönnum, gæti
það orðið nokkur upphæð fyrir
ríkissjóð, og vega langt á móti
fækkun embættanna, því að sjálf-
sögðu myndi nokkur hluti þess
ferðakostnaðar lenda á ríkinu. En
að hinu leytinu er það jafn sjálf-
sagt, að fyrir aukaverkin yrði
viðkomandi maður að greiða
ferðakostnað, gæti það orðið
nokkuð mikið í víðlendu presta-
kalli, enda þótt farið væri í bíl!!!
Jeg hvgg t. d. að bíll inn að
! Stóra-Botni (þegar bílfært væri
orðið þangað) mundi ekki kosta
undir 50 krónum, yrði það þá dýr
ferð fyrir þann sem ætti að
borga. Því hvernig væri hægt að
ætlást til þess, jafnvel af presti,
— sem flest þykir annars
bjóðandi —, að hann kosti bíl-
ferð í einn eða tvo daga t. d. til
að skíra barn, og fái 3—4 krón-
ur fyrir. Áður en menn svara of-
annefndum spurningum nefndar-
innar, ættu menn því vel að at-
huga, hve mikinn kostnað menn
hljóta að baka þeim mönnum, sem
koma til með að búa langt frá
presti sínum, ef prestaköllum er
fækkað.
Fyrir þeim sem vilja fækka
prestum, vakir að líkindum
,.sparnaður“ eins og jeg gat um
áður, því ekki er hugsanlegt að
neinum detti í hug að starfið
verði betur rækt með sameining
prestakallanna og margskonar
auknum erfiðleikum. Og ekki er
jeg viss um að þjóðin álíti þann
„sparnað“ æskilegastan.
I erindi mínu í Reykjavík s. 1.
haust, um Ríki og kirkju, vild;
jeg ef mögulegt væri, láta þjóð-
' ina rumska í þessum málum. Að ‘
Ný fegurð
fyrir bros yðar.
Náið burtu húðinni, sem gerir
tennurnar dökkar.
'T'ANNHIRÐINGAR hafa tekið stórum
* framförum.
Tannlæknavísindin rekja nú fjölda tann-
kvilla til húðar (lags), sem myndast á
tönnunum. Rennið tungunni yflr tenn-
urnar; þá finnið þér slímkent lag.
Nú hafa vísindin gert tannpastað Pep-
sodent og þar með fundið ráð til að eyða
að fullu þessari húð. Það losar húðina og
nær henni af. Það inniheldur hvorki
kísil né vikur.
Reynið Pepsodent. Sjáið, hvernig tenn-
urnar hvítna jafnóðum og húðlagið hverf-
ur. Fárra daga notkun færir yður heim
sanninn um mátt þess. Skriflð eftir
ókeypis 10 daga sýnishorni til: A. H.
Riise, Afd. 2613. Bredgade 25, EX,
Kauprhannahöfn, K.
FÁIÐ TÚPU I DAG!
íflBk Skrísett «
Vðrumerki
Afburða-temnpasta nútímans.
Hefur meömæli helztu tannlaekna í öllum heimi. 2613
40
hún sjálf, öll, gerði sjer grein fyr-
ir hvemig þeim málum er nú
komið. Hvort æskilegt væri að
breyta nokkru, og þá á hvern veg.
Þessi mál varða svo mjög al-
þjóð, að hún verður öll að láta
þar álit sitt í ljósi, og með það á-
lit fyrir augum, verður að ræða
um framtíðarfyrirkomulag kirkju-
málanna.
Fvrir mjer vakir fvrst þessi
spurning: Vill þjóðin, þarf þjóðin
kristindómsins við ? Þessu ætla
jeg ekki að svara hjer, gerði það
í áðumefndu erindi. En þessu
þarf hver einstakur að svara. Mín
skoðun er, að henni hafi ef til vill
aldrei riðið meira á því að vera
kristin þjóð en einmitt nú. Ef
vjer eigum að viðhalda kirkju og
kristni, þá eigum vjer að gera
það fyrst og fremst með lifandi
þátttöku hver og einn. Ef það er
þjóðarnauðsyn, þá er ekki hægt
að spyrja hvað vjer getum-kom-
ist af með fæsta aura. Heldur
hvernig má það verða happa-
drýgst fyrir hvern einstakan og
þjóðina í heild.
Ef t. d. ætti að sameina Saur-
bæ og Akranes, og vjer Akumes-
ingar ættum þannig fyrir þings-
ins náð að hafa einhvern part af
presti, þá býst jeg við að vjer
mundum reyna að komast af án
þeirrar náðar hins háa Alþingis.
Og mundum heldur, þó ekki sje-
um fríkirkjumenn, neyðast til að
fara þá leiðina. Jeg teldi það mik-
inn skaða fyrir menningarlíf þjóð-
arinnar í heild að íslenska kirkjan
yrði fríkirkja. En eitt mvndi þá
áreiðanlega vinnast: Þingmanna-
efni og stjórnmálamenn mundu
þá vilja vera meiri vinir kirkj-
unnar en nú er, a. m. k. þá stund-
ina er þeir koma til okkar á bið-
ilsbuxunum.
Ól. B. Björnsson.
Prentsm. Acta.