Lögrétta - 14.10.1931, Side 4
4
LÖGRJETTA
Kaupbætir Lögrjettu 1931
/
Kaupendur Lögrjettu fá í ár eina bók úr 1. flokki, eða tvær
bækur, aðra úr 2. flokki, hina úr 3. flokki. Þeir sem borga tvö ár
fá eina bók úr hverjum flokki, eftir eigin vali.
1. flokkur: Einsöngslög, eftir Árna Thorsteinsson, Andvörp
(skáldsögur), eftir Björn Austræna, Stafrof söngfræðinnar (innb.),
eftir Björn Kristjánsson, Vargur í vjeum, eftir Gunnar Gunnars-
son, Farmannsljóð, eftir Jón Bergmann, Ógróin jörð (skáldsögur),
eftir Jón Björnsson, Dægurflugur,eftir Þorst. Gíslason, íslensk þjóð-
fræði, eftir Vilhj. Þ. Gíslason, Heimhugi (kvæði), eftir Þorstein
Þ. Þorsteinsson.
2. f 1 o k k u r: Tíu sönglög, eftir Árna Thorsteinsson. Syndir
annara, eftir Einar H. Kvaran, Drengurinn, eftir Gunnar Gunn-
arsson, Dóttir Faraós, eftir Jón Trausta, Mannasiðir, eftir Jón
Jacobson, Alþýðleg veðurfræði, eftir Sigurð Þórólfsson, Út yfir
gröf og dauða, eftir Tvedale (þýtt af Sig. Kr. Pjeturssyni, Myrk-
ur, eftir Tryggva Sveinbjörnsson, Segðu mjer að sunnan, eftir
Huldu.
3. flokkur: Búarímur, eftir Grím Thomsen, Nokkur kvæði,
eftir Þorstein Gíslason, Riss, eftir Þorst. Gíslason, Jónas Hall-
grímsson, eftir Þorst. Gíslason, Næstu harðindi og Mannskaðar, eft-
ir Guðmund Björnsson, Æfintýri Zambra (lögreglusögur), eftir H.
Hills, Um þjóðarbúskap Þjóðverja, eftir Funk.
áburðurinn notaðist illa mun mest
vera til orðinn áður og um það
leyti sem fyrri sjáttur stóð yfir.
Áður en sjeð varð hvernig háar-
spretta yrði og verkanir áburðar-
ins á hana. Mergurinn málsins, og
það sem þeir bændur þurfa að at-
huga, sem notuðu tilbúinn áburð,
er þetta: hefði sprettan og út-
koman ekki orðið ennþá verri, ef
þeir hefðu ekki notað tilbúna
áburðinn. Ætli það sje ekki sanni
næst að það hafi verið tilbúni
áburðurinn sem bjargaði svo ekki
varð algerður grasbrestur á ný-
ræktartúnunum víða um land ?
Gamalræktuð tún, sem standa á
gömlum merg, ef svo má segja,
geta altaf sprottið þótt þau fái
engan áburð eitt ár. En nýju tún-
in þola ekki slíkt áfall. 1 sumar
gat ekkert bjargað þeim nema til-
búni áburðurinn og lagaráburður.
Venjulegur búfjáráburður kom
ekki að liði.
Mjer virðist að vorið og sumar-
ið nýliðna gefi mörg íhugunar-
efni viðvíkjandi jarðræktinni.
Hvernig eru túnin, sem brugðust
verst? og hvernig eru túnin, sem
voru kafloðin? jarðvegur, lega
og ræktunarástand ? Stóðu gömlu
túnin sig yfirleitt nokuð betur en
vel gerðar sáðsljettur, sem fengu
nægilegan tilbúinn áburð hæfilega
snemma o. s. frv.
Jeg orðlengi þetta ekki frekar,
en vil biðja sem flesta bændur,
sem hafa áhuga fyrir umbótum
í túnræktinni, og notuðu tilbúinn
áburð s. 1. sumar, að senda mjer
fáeinar línur og segja mjer
reynslu sína og álit. Hver veit
nema það geti spunnist eitthvað
gott út af því?
Reykjavík, 8. október 1931.
Árni G. Eylands.
■ ■ e
Landsímann átti 25 ára afmæli
29. f. m. þegar hann var opnaður
29. sept. 1906, var haldin hjer
fjölmenn fagnaðarveitsla, og á 20
ára afmæli hans var einnig hald-
ið fjölment samsæti til minningar
um opnun hans. En þegar hann
var opnaður, var samkomulagið
hjer svoleiðis, að helstu foringjar
stjórnarandstöðuflokksins vildu
ekki koma þar nærri.
ísfisksala í september. 20 ferðir
hafa togarar hjeðan farið út með
ísfisk í september, 18 til Englands
og 2 til Þýskalands. Afli allra
seldist fyrir 15222 sterlingspund,
eða 761 pund að meðaltali á skip,
en í fyrra var meðaltalið 881 pund
sterl.
Fiskbirgðir 1. þ. m. voru taldar
233,406 skippund, 50 þús. skipp.
hærri en á sama tíma í fyrra.
Vilhj. Finsen ritstjóri flutti ný-
lega útvarpserindi í Osló um notk-
un jarðhita á Islandi, og sýndi
fram á, að hægt væri að nota
hann til framleiðslu á jarðeplum
og kálmeti, sem nægðu Norð-
mönnum að fullu, og vakti þetta
mikla athygli og umtal.
Atlantshafsflugið. Transcon-
tinental Airlines Corporation, fje-
lagið í Bandaríkjunum, sem koma
vill á flugferðum norðurleiðina yf-
ir Atlantshaf til Evrópu, um
Grænland og ísland, hefur nú
fengið leyfi dönsku stjórnarinnar
til þess að hafa í Grænlandi tvær
viðkomustöðvar í föstum flugferð-
um þessa leið. Umboðsmaður fje-
lagsins er P. Freuchen, alkunnur
danskur Grænlandsfari, og er gert
ráð fyrir að flugvjelar verði send-
ar að vestan í reynsluflug nú þeg-
ar í haust.
Sjera Bjarni Þorsteinsson pró-
fessor á Siglufirði á sjötugsaf-
mæli í dag.
Prentsm. Acta.
Jónasar Hallgrímssonar, og eiginlega finst hon-
um hann ekki nefnandi nema sem skólakennari
og fyrir málið, en minnist ekkert á Scripta
historica, sem enda þótt þær sje þýðingar voru
þó epokugerandi og hafa verið grundvöllur til
þekkingar á literaturum meðal allra hinna eldri
útl. fornfræðinga. Það er maðurinn,en ekki mál-
ið, sem ræður því hvað reiknast skal til einnar
Literatur. Hvar á annars að telja SaxoGramma-
tucus? Allir Danir telja hann með danskri Li-
teratur, og það þykir mj er hart ef Englar ekki
telja t. a. m. Beda með enskri Literatur, eða ef
hvert land ekki telur sína annála með sinni Li-
teratur, þó þeir sje á latínu. Æfisaga Bjarna eft-
ir Einar Hjörleifsson er einnig Makværk, tómt
Repositorium fyrir Einars Ætshetik og At- s
heisme; meðal annars hrósar hann uppyfir alt
metrikinni á „Sveinar íslenskir sitjum hjer“
(sem mjer finst ekkert betra en margt annað) !
og segir að Bjarni hafi eftirskilið Jónasi Hall-|
grímssyni listina að ríma, eins og enginn hafi
getað rímað fyr en Jónas! Af öðrum eins setn-
ingum úa og grúa product þessara manna, sem
hafðir eru upp yfir skýin.fyrir þessar ritgerð-
ir eins og þær sje einhver sjerleg og háfleyg
speki, og þegar jeg nú á ómögulegt með
að gera mig að þeim lygara sem consentrerar
með þessum Consent, þá er jeg hvergi hæfur
nje kirkjugæfur, og einmitt þessi mín — þó
mest negativa — Opposition á móti smekk-
leysunni hefur valdið því, að jeg má hvergi
vera með (mig langar raunar alls ekki til þess)
— ut unum exemplum referam: ekki var jeg
kvaddur til eða inviteraður til að taka þátt í
veitslunni sem haldin var fyrir þjer hjerna
um árið, enda þótt jeg væri sjálfkjörinn til
þess að vera með, enn síður mjer falið á hend-
ur að yrkja fyrir minni þínu; en að bjóða mig
fram eða biðja um að lofa mjer að vera með,
það geri jeg aldrei. Þessi æra eða þess konar
er veitt Steingrími og Matthíasi (meðan hans
naut), af því þeir passa. að setja sig ekki í
Opposition við þessa mediocritatem, sem er
einkenni hinnar uppvaxandi Generationar. Það|
er eins og alt sje að nivellerast, mörg rjettí
lag'eg kvæði, laglegur stíll et cetera, en ekkert
excellent eða einkennilegt. Trú mjer til, Good-
templarar og bindindismenn eru mikið góðir,
en þeir gera ekkert, sem neitt kveður aö;
þeirra eina afreksverk er að vera ófuJlir, en
þeir afreka aldrei það, sem þeir fullu afrekuðu.
Goodtemplarafjelagið er eitt af teiknum tím-
ans, alt berst yfir í negationarinnar stagner-
andi tjörn! Ennfremur er það altítt að telja
ekki sálma 'með Poesi — eins og öll Theologian,
jafnvel prjedikanir, ekki grípi inn í skáldskap
— hvað eru Davíðssámlar ? hvað er Esajas?
Margir sálmar eru hin tignarlegasta Poesi, eða
var ekki Hallgrímur Pjetursson skáld? Eða má
ekki telja „Alt eins og blómstrið eina“ með
skáldskap? Sama er að segja um rímurnar;
þær eru ekki einungis ekki skoðaðar með Poesi,
lieldur og rifnar niður og úthúðaðar eins og
illgresi, sem ætti að upprætast — það er mest
síðan Jónas Hallgr. ritaði á móti þeim, svo apa
allir eftir honum; en það eru ekki rímurnar
sjálfar, eða rímnakveðskapurinn, heldur rímna-
skáldin, sem eru vítaverð; ef við værum con-
sequent, þá ætti að fordæma alla Poesi, af því
hún er violeruð af einhverjum leirskáldum.
Rímur eru ekkert annað en episk kvæði, og þær
gætu verið eins góðar eins og hver önnum
Poesi, ef þær væru vel gerðar; item hefur ver-
ið haft á móti rímnalögunum, ja, það er satt
að oft er illa kveðið, en ef fara ætti út í allar
okkar musikölsku prestationer — inclusive
söngkenslunni sem nú er, þar sem engin hug-
mynd er um „Foredrag“, fegurð &c — þá mætti
margt segja.
Af öllu þessu sjerðu, hvað mín meining
er um þetta, og hversu vingjarnlegum augum
jeg lít á tírnann — það hefur ekkert hjálpað
þó margir góðir menn hafi komið fram, altaf
er fult af allra handa óþjóðalíð og gaurum, sem
ekkert hafa til síns ágætis nema sjálfbyrgings-
skapinn, háar hugmyndir um sjálfa sig — jeg
skil t. a. m. ekkert í Jóni Ólafssyni, sem er
smekkmaður og hefur svo víðan horizont, að
hann skuli vera að taka í Þjóðólf þessi þunn-
ildiskvæði eftir Sæmund Eyjólfsson (Páll fyrirj
Agrippu t. d.). Yfir höfuð er jeg ekki mikið
hrifinn af framförunum hjer upp á vissan
máta; mjer finst t. a. m. engin proportion í
versluninni; það er lifnuð töluverð Trafik við
Englendinga, en úr okkar flokki þýtur upp
hver svikarinn og fallentinn eftir annan, vit-
lausir spekulantar og loftkastalabyggj endur;
þessir fátæku aumingjar eru svo stórhuga að
þeir slá plötur til beggja ihanda og óttast ekkl
þó þeir velti sjer inn í mörg þúsund króna um-
setningu, en hafa hvorki vit á verslun nje pen-
ingum heldur en hundar — nú er hjer einn
enskur kaupmaður kominn með skipinu Þor-
láks til að rukka Finn (kaupmann, sem var
utanveltustrákur hjá Jóni Guðnasyni og aldrei
hefur átt neitt) að sögn um 30,000 kr.! Og
þetta eru ekki eins dæmi. íslendingar eru engir
búmenn, þeir hafa ekkert vit á peningum, en
eru óhófsmenn og eyðsluseggir, og þar af kem-
ur mikið af okkar eymd; þegar þeir komast
í nokkra veltu, þá láta þeir eins og þeir sjeu
vitlausir, svo alt fer á höfuðið — maður sjer
þetta í fleiru en peningunum: Þegar skólapilt-
ar, bæði hjer og á Möðruvöllum, koma úr bað-
stofum og kumböldum og eiga að vera í stærri
og betur bygðum húsum, þá brjóta þeir alt og
bramla; á gufuskipunum heldur almúgafólk að
það megi vaða um alt og sóðast í öllu, og þegar
það er bannað, þá hljóma skammirnar um skip-
stjórann fjöllunum hærra — í staðinn fyrir að
maður skyldi halda, að Civilisationin gæfi því
dálitla Respect, en því er ekki að fagna. Allur
okkar búskapur er tómt helvítis Roderi, það
sýnir þingið líka í fjárveitingunum, jeg hef
nefnt það við þig áður á hinum blöðunum. Það
sem blöðin hafa best getað kent fólkinu, það
er þetta sífelda Hyl um peningaleysi, að öf-
unda alla, sem hafa laun, et cetera, og hef jeg
aldrei sjeð það í neinum blöðum nema ís-
lenskum. — Nú held jeg nóg sje komið, það
fer að ganga á blaðið, það líður á tímann, jeg
verða að ná í konuna þína til þess að setja
,upp á hana brjefið, og svo verð jeg að mæla
fram með mjer við þig þannig, að jeg sje
helvíti mikill Pessimisti.
Jeg þurfti raunar að segja enn meira við
þig! Þinn
Ben. Gröndal.