Lögrétta


Lögrétta - 30.12.1931, Page 3

Lögrétta - 30.12.1931, Page 3
LÖGRJETTA 3 Þrjú kvæðí eftir Fröding. Úr vísum frúarinnar. Um eikumar dansar yngisfólk og út í skóginn mig bar. Mig þyrsti í söngva og samúð. — En sorgin var einnig þar. Jeg leitaði, við að vefa, í vinnunnar meðalhóf. En sorgin var þar á sveimi og sorgir í vefinn óf. Jeg reikaði út á engi í einveru þagnarfró. En sorgin kom hljóðlát í humátt og hug minn til sín dró. Áin hún niðar úti áfram sinn vanastig. Spyr ekki um, hvað jeg iðja og ekki heldur um þig. Hún speglar alt, sem hún eygir, í eyðiþagnar ró. Líður svo fram og líður — líður á hvarf í sjó. Jeg mætti stúlku, sem barn sitt bar með blygðun er seint mun jeg gleyma. f tötra klædd hún á vegi var, þar sem vonin á hvergi heima. Þó átti hún nokkuð, þau áttu það tvö, þá ást, sem jeg kann ekki’ að túlka. — Jeg vildi að barnið væri mitt barn og jeg væri sjálf þessi stúlka. Fimbulvetur. Sem norðanvindur napur næðir um merg og bein barátta allra við alla. Við ís hverfist hjarta’ 1 stein. Fyr þar, sem laufgræna lýsti í ljóma af hlýrri sól, bráðum er bær 1 eyði í breða við norðurpól. Enn lifa ástúðar kendir innibyrgðar í þeli. Enn geig að þeim setur og sorgir í sjerhverju hríðarjeli. Stundum herða þær hugi og hrista klaka fjötra; vilja’ út — enn hrökkva’ inn í húsin og í hjamsúg vonlausar nötra. — Bitur baráttusúgur bleikir hið hlýja þel. Lífið er alt of, alt of kalt þeim, sem á ekki klakans skel. Frost gerast lengri og lengri; ljósgeislar stöðugt færri. Æ myrkara verður myrkrið; æ mælist dagurinn smærri. Um norðurpólsbreða næðir norðanvindurinn kaldi, uns allar ástúðar kendir eru á dauðans valdi. Ef einhvern af ofviðri hrekur og ósjó norður í höf, hann finnur þar ekkert eftir annað en hljóða gröf. Inga litla. Inga litla, Inga, lát óma sönginn þinn. Svo einmana er sál mín, svo dapur hugur minn; svo auðnarþung og erfið er sorgin. Inga litla, Inga, er óð þinn til mín ber um auðnir minnar sálar sem vorblær rödd þín fer. Af ástúð fyllist eyðileg borgin. Inga litla, Inga, lát óma lagið þitt. Jeg ætla að gefa í staðinn hálft konungsríkið mitt og silfur alt og gill, er geymir borgin. Mitt hálfa konungsríki er hálf mín þunga sorg; mín hlýúð alt það silfur og gull er finst í borg. Seg, Inga litla, hvort hún ægir þjer sorgin? S. Fr. Fisksalan. Eins og kunnugt er og Lög- rjetta hefur áður rakið, hefur undanfarið gengið mjög treglega salan á íslenzkum fiski erlendis og hefur svo að segja tekið fyrir hana sumstaðar. Isfiskur seldist þó allvel í Engandi aftur í síð- ustu ferðum togaranna. í Þýska- landi fjekst aftur á móti sama og ekkert fyrir fiskinn og auk þess voru hömlur lagðar á ráð- stöfun fjár þess, sem fyrir hann fjekst. Út úr þessum vandræðum var ákveðið af rikisstjórn og ut- anríkismálanefnd að senda Jóhann Þ. Jósefsson alþm. og þýskan konsúl í Vestmannaeyjum til Þýskalands til þess að reyna að semja um þessi mál við Þjóðverja og hefur hann verið í þeirri samningaför nú undanfarið. Um jólin tókst honum að semja á þennan hátt, að því er segir í til- I kynningu frá ráðuneyti forsætis- I ! ráðherra: Islensk fiskiskip fá til marts- loka leyfi til þess að selja afla sinn á uppboðum í Wesermiinde, Bremenhafen, Cuxhafen, Altona og Hamborg, en andvirði aflans á að verja til greiðslu á þýskum vörum, er flytjast til íslands. Heildarupphæð þessara viðskifta getur af hálfu hvers ríkis náð 700 þúsund mörkum, eða um einni miljón kr. á samningstíma- bilinu. Þótt þessir samningar J. Þ. J. nái aðeins til framtíðarvið- skifta, er talið líklegt, að sam- ; komulag náist einnig um það, að | lausar verði látnar innistæður ís- j lendinga í Þýzkalandi. Um svipað leyti og frjettir I berast af þessum málalokum í i i Þýskalandi, koma nýjar frjettir j ! frá Spáni um ráðstafanir til ! ; takmörkunar á fiskinnflutningi. ! i Ríkisstjórnin hefur sem sje feng- ið heimild til þess að takmarka Aiheimsmálið Esperanto. innflutning á allskonar fiski, timbri og glervarningi. Segir svo um þetta í fregn frá Madrid, að tilgangurinn sje sá, að draga úr innflutningi frá þeim löndum, sem að áliti Spánverja fari lengra en hóflegt sje í því að hamla innflutningi spænskra vara. Er þessu því aðallega beint gegn Frakklandi og Bandaríkjunum, en getur að því er fiskinn snertir, einnig komið hart niður á Is- lendingum, en miklar eða of mikl- ar íslenskar fiskbirgðir eru nú þegar fyrirliggjandi á Spáni og sala lítil sem engin. Komið hefur til tals að senda fulltrúa til Spánar til þess að reyna að fá því til vegar komið, að innflutningsbannsheimildinni verði ekki beitt harðlega við ís- lenskan fisk. Er á því mikil nauð- syn, að alt sje nú reynt til þess að greiða fyrir íslenskri fisksölu. ——o----- Spænska. Áhugi á námi erlendra tungu- mála og þekking á þeim, hefur vaxið mikið hjer á landi á sein- ustu árum og áratugum. Sjer- staklega hefur enskuþekking og síðar þýskuþekking farið mjög í vöxt, þótt norðurlandamálin sjeu einlægt þau, sem mest eru lesin og lærð. Önnur erlend mál hafa verið hjer miklu minna lesin og lærð, síðan klassisku málin voru minnkuð í lærða skó^num. Ýmsir menntamenn hafa þó að sjálf- sögðu lært vel ýms fleiri mál en þau, ei' nefnd voru, einkum frönsku. Frönskunám hefur líka aukist hjer talsvert á seinustu árum og yfirleitt hinna rómönsku mála, s. s. spænsku og ítölsku. Einkum hefur borið á því að áhugi hefur vaknað á spænsku- námi, enda eiga íslenzkir kaup- sýslumenn margt saman við Spánverja að sælda. Ekki mun spænska þó vera kennd hjer nema í einum skóla, Verslunarskólanum. Við spænskukensluna hefur hjer langmest verið notuð hin danska kenslubók Nyrops, því að íslensk bók hefur ekki verið til fyr en nú um jólin, að út kom ný „Kenslubók í Spænsku“ eftir Þórhall Þorgilsson. Það er allstór bók, um 200 bls. og vel og snyrti- lega frá lienni gengið. Fyrst í bókinni er hljóðfræði og beyging- arfræði og 23 sjerstakar mál- fræðiæfingar, en þá taka við tal- æfingar og leskaflar og verslunar- brjef, en síðan er spænsk-íslenskt orðasafn. Spænskunemendur fá því í þessari bók fjölbreyttar og góðar æfingar og hún er ódýrari en þær bækur, sem mest hafa verið not- aðar hjer hingað til. En Þórhallur Þorgilsson er prýðilega að sjer í spænsku, hefur stundað háskóla- nám í rómönskum málum í París og einnig dvalið á Spáni. Bók hans ætti því að geta komið að góðum notum og aukið spænsku- þekkingu hjer. En spænskunám ; eykst nú mjög í mörgum löndum, t. d. í Bandaríkjunum. X. - ■ -o.-.. Þörfin á alþjóðamáli er æfa- gömul, líklega eins gömul og mannkynið, en aldrei hefur hún verið eins tilfinnanleg og nú og auðvitað fer hún sívaxandi eftir því, sem viðskifti verða greiðarí landa og þjóða á milli. Allt fram að þessu hafa heyrst raddir í þá átt, að þjóðirnar ættu að koma sjer saman um, að taka einhverja þjóðtungu og gera hana að alheimsmáli, en þeim fækkar nú óðum, sem halda því fram. Menn eru nú famir að sjá, að eflaust verður langt að bíða þess að alhr verði á eitt sáttir um, hvaða mál taka skuli. Flestir eru þeir, sem aðhyllst hafa enskuna, vegna þess að þeir telja hana auðlærðasta allra mála, en seinir verða: Þjóðverj- ar, Frakkar, Rússar, Spánverjar, Italir o. fl. að viðurkenna hana og vinna að útbreiðslu hennar, sem von er. Þar að auki er enskan alt annað en ljett, ef læra á hana til hlítar. Allir þeir, sem ferðast hafa í öðrum löndum, þar sem þeir skilja ekki landsmálið, hafa sjálf- sagt fundið til þess, hve miklum óþægindum það veldur, að geta ekki skilið aðra, nje látið skilja sig, án þess að hafa túlk við hendina. Þeir fara oftast á mis helming þeirrar ánægju sem þeim annars hefði hlotnast, fyrir utan þann aukakostnað, sem af því leiðir að þurfa alltaf að hafa túlk við hendina. Þótt það komi hart niður á öll- um þjóðum að esperanto er ekki orðið útbreiddara en það er nú, kemur það þó verst niður á þeim sem tilheyra smáþjóðunum, en þurfa að hafa viðskifti við umheiminn. Tökum t. d. Dani eða Svía, allir þeir sem vilja þar heita sæmilega mentaðir menn verða að minsta kosti að læra fyrir utan sitt móðurmál: þýsku, ensku og jafnvel frönsku. Auðvitað erum við Islending- ar ennþá ver settir, því að oft- ast verðum við að byrja á því að læra dönsku, og svo hin málin á eftir, sem hjá mörgum verður lítið annað en kák, því að ekki er öllum þeim, sem fást við tungumálanám ljett um að læra þrjú eða fleiri tungumál fyrir utan sitt eigið mál. Hve mikill tími og kostnaður fer í að læra öll þessi mál, vita þeir beSt, sem setið hafa við það vetur eftir vetur. Hugmyndin með esperanto er ekki sú, að skapa eitt mál, sem j eig'i að verða sú eina tunga,' sem töluð verði í heiminum, heldur er hún sú, að fá alþjóðamálið fært inn í sjerhvern alþýðuskóla í öllum öndum (þetta heíur þeg- ar verið gert allvíða) svo að allir geti lært það og átt viðskifti sam- an, án þess að læra mörg er- lend tungumál. Aðalskilyrðið til þess að al- þjóðamál geti rutt sjer til rúms í öllum löndum er: að það sje auð- lært öllum, jafnvel þeim, sem litla ■ uppfræðslu hafa fengið. Þetta

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.