Magni - 28.08.1912, Qupperneq 1

Magni - 28.08.1912, Qupperneq 1
Þd kom til Magni, sonr Þórs ok Járnsöxu ; hann var þá þrí- nœttr; hann kastaði fœti Hrungnis jötuns af Þór ok mœlti: Sé þar Ijótan harm, faðir, er ek kom svá síð; ek birtist þá er brýnasta nanðsyn ber til og mælir máli lands og lýös utan bæjar og innan — Kostar 5 aura — hygg, at jötun þenna myndak hafa lostit í hel með hnefa minum, ef ek hefða fundit hann. (Snorra Edda, Skáldskaparmál k. Það heiti er því alment valið, hinu nýlokna alþingi, sem ætlað var ósmá afrek að vinna, bæði í stjórnmálum og fjármálum, St j órn m ála-afrekið mikilf engl egasta er það, að það kom stjórnarskrár- frumvarpinu frá síðasta þingi fyrir kattarnef — málinu, sem þvi var sér- staklega ætlað að bjarga til lands. Og annað afrekið í þeirri grein er bræðingurinn, sem frekara mun á vik- ið síðar. Kauphækkunarauknefnið heíir þing þetta hlotið fyrir það, að það, sjálf- sagt hið lang-lélegasta í allri þing- sögu vorri hinni nýju, hefir látið það vera eitt sitt hið helzta verk, að hækka daglaun alþingismannanna um ýmist 2 eða 4 kr., eða úr 6 kr. upp í 8 eða ro kr., eftir því hvort þingmað- urinn á heima innan bæjar eða utan. Fjárhag landssjóðs var því ætlað að rétta vel við, með undirbúning glæsi- legrar milliþinga-höfðingja-nefndar og eftir því kostnaðarsamrar. En þingið brytjaði niður öll hennar efnilegu börn, að einu undanþegnu, og því líklega einna ófélegustu af öllum hópnum: um síldarlýsistoll, sem var þó í lögum áður, en nefndin vissi ekki af! Loks klykti það út með lotterílaga frumvarpi, til þess, að gera hér ílendan einhvern hinn háskalegasta viðskifta- siðspillingarósóma, sem til er með öðrum þjóðum! Bræðings-pukrið. Það sem stórtspilt hefir fylgi hinn- ar nýju tilraunar til að afla oss betri sambandskosta við Dani er pukrið um þá, eins og forgöngumenn þess máls hugsa sér þá. Þeim er haldið leynd- <um, eigi að eins fyrir almenningi, held- Reykjavík 28. ágúst 1912 ur jafnvel fyrir þingmönnum, utanþeim einum, er forustusveitin er alveg viss um fyrir fram, að eigi muni i aðra skál leggja en henni er þóknanlegt. Þetta hefir auglýst verið fyrirskemstu í aðalhjálpræðis-tóli þeirra félaga, sam- bandsflokkshöfðingjanna, því er áður var lífakkeri heimanstjórnarlýðsins. Það er gert með svofeldum orðum: »Samkomulagsatriðin verða ekki birt fyr en ráðherra hefir gefist kostur á að bera þau fram í Danmörku«; og er það borið fyrir, að ella væri mótstöðnmönn- um málsins í Danmörku gefið færi á að afflytja málstað okkar i dönskum blöð- um áður en fulltrúa alþingis veitist kostur á að flytja málið fram þar með þeim skýringum, sem nauðsynlegar eru. Hver trúir nú? Munu ekki flestir átta sig von bráð- ara á viðmótsmarkinu gamla: yfirþjóð- in á undan ? Tvö bæjarstiörnaraxarsköft. Alt er vitlan8t, þjóð og þing — Það ætti að halda á Kleppi. Og því mun eg reyna að koma i Ef kosningu eg hreppi. [kring (Þingeysk kosningastaka). Það er breytingin á Læknum og á Tjörninni. Lækinn á að byrgja yfir, líklega til prýðis eða hollustu, eða þá hvors- tveggja, þótt hvorugt sé raun og sann- leika samkvæmt. En Tjörnina á síðan að hólfa í tvent, gera garð yfir hana miðja eða sunnanhalt, írá austri til vesturs, og leggja þar veg yfir, milli Fríkirkjuveg- ar og Tjarnargötu. Lækinn er langt komið að dýpka neðan til og laga(!) að öðru leyti; sömuleiðis töluvert áleiðis að leggja þar holræsi, i stiku á vídd. Tjarnargarðinum er vel byrjað á, með 2 öflugum grjóthleðslum frá aust- urlandinu rétt fyrir innan tún B. J. ráðh. og kvað eiga að bera þar afrakstur (rusl) í milli, eða annan ofaníburð. Komið nokkra faðma frá landi. Breytingin á Læknum, sem flestum mun koma saman um að sé ekki nema stórskemd og kosta i ef til vill 30—40 þús. kr. eða hver veit hvað — Lækurinn sé miklu fallegri opinn, eins og áður var hann, og hollustumeiri fyrir bæinn, ef lagaður er lítils háttar, með því að þá streymi sjór liðugt inn um hann og út með hverri flæði í Tjörnina, sem veitir ekki af meiri hollustu en nú hefir hún upp á að bjóða. Tjörnin þarfnast þeirrar mikilsverðrar umbótar, að lagður sé skemtistigur handa bænum alla leið hringinn íkring um hana, þar sem götur ná ekki til að svo komnu, en ekki hins, að skil- inn sé eftir sunnan af henni þriðjung- ur eða helmingur, þar sem mest er af ógengum fenjum og foræðum á landi, og hlaðinn sísökkvandi vegar- garður um hana þvera, með um 40,000 kr. kostnaði, að mælt er. Til þessa hvorstveggja verður þá að taka liklega nær 80,000 kr. lán og demba á bæjarmenn fornspurða, ofan á ráðgert 1,200,000 kr. lán til hafn- argerðar, sem liklegra er að bærinn risi ekki undir en hitt, og hann á þar að auki á hættu að verði honum að falli þann veg, að skip fælist burt frá höfninni vegna gífurlegra hafnargjalda. Það er að segja af Lækjarviðgerð- inni, að hún er líklega hið allra dýr- asta mannvirki, sem hér hefir gert ver- ið. Háyfirstjórn þess hefir bæjarverk- fræðingur Benedikt Jónasson, sem mælt er að ekki gefi verk sín. Og hefir að sögn sér við hlið allmikla sveit meðstjórnenda, meðeftirlitsmanna og framkvæmdar-berserkja fyrir alt að 7 kr. kaup á dag, þar á meðal 2 bræð- ur bæjarverkfræðingsins. í þeirri sveit kváðu og vera nokkrir alt að því ótíndir trésmiðir með 6 kr. kaupi á dag, þó að altalað sé, að fá megi slíka menn fyrir ekki meira en 4 kr. á dag. Alt væri þetta nú sök sér, ef mann- virki þetta væri þá þar eftir mikilsvert og þarflegt.

x

Magni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Magni
https://timarit.is/publication/197

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.