Njörður - 03.11.1917, Blaðsíða 3
NJÖRÐUR.
131
Yerzlun Jóns Hróbjartssonar
Aðalstræti 32
hefur nýlega fengið talsvert af álna'irör'UL
og eru þetta helstu tegundirnar:
Bommesí hvítt og röndótt í nærföt.
Tvisttau í svuntur og morgunkjóla.
do. í sængurver.
Blússutau Hvít lérept, Bómullartau 0. fl.
Afsláttur gefinn á álnavöru til 15. nóvember n. k. sé
mikið keypt í einu.
Kii sést það.
Hægrimenn voru ekki lengi að
hugsa sig um, hvern þeir ættu að
hafa í kjöri við kosninguna á mánu-
daginn kemur.
Þeir láta það einróma ásannast,
að Jónas Tómasson er sá maður,
sem þeir vilja í alvöru koma í
bæjarstjórnina.
Þetta er rétt að vonum, þvi
betri dreng né trúrri flokksmann
getur ekki.
Hann er þeim hæfileikum gædd-
ur og hefur þá þekkingu, sem
bæjarstjóra er nauðsynleg, jafnvel
þó verkefni séu fleiri og vanda-
samari en vanalega.
Eigi vitum vér hver verður í
þetta sinn hristur fram úr vinstr-
inni, enda skiftir það engu.
Þó þeir gætu stolið engli af
himnum til að bjóða okkur upp á,
erum vér svo viti bornir, að vér
skiljum hvers vænta má af hon-
um, ef þeir bera hann fram og efla.
Nú sést hve fastir hægrimenn
eru fyrir og hver alvara ríkir í
flokki þeirra.
Láti þeir fella Jónas Tómasson
í annað sinn, er ekki nema tvennu
tii að dreifa:
Beinum svikum í flokknum, eða
svo óheyrilegu tómlæti, að litlu
væri betra.
Ég vildi óska, að vinstrimenn
settu á sinn lista þann allra skársta
sem þeir hafa til.
Þá sést, hve margir hægrimanna
kunna að kjósa eftir flokkum og
málaefnum, jafnhliða því að styðja
sæmdarmann.
Þá sést það, hvort alþýða manna
í bænum vill láta sína menn ráða
i bæjarstjórn eða varpa allri á-
hyggju sinni upp á hina stærri
kaupmenn bæjarins, þeirra börn og
bræðrunga.
Nú sést hve mörgum dugandi
kjÓ8endum hægri menn hafa á að
skipa; nú sést hve bjart er yfir
borginni.
Húrra! Á mánudaginú sést það!
Ritað á Allraheilagramessu.
Hœgrimaður.
Vetur í garð.
Nú er veturinn kominn snjóug-
ur og kaldur. Fyrstu dagar hans
mundu góðir kallaðir ef á þorra
væru.
Miklu voru þó síðustu dagar
sumarsins verri.
Þykist enginn muna jafn illan
október sem nú.
Hvergi hér um slóðir unt að
vinna nein haustverk: með naum-
indum hægt að bjarga ávöxtum úr
görðum og fé af fjöllum.
Tók það strax tii að leggja af
og verður því venju fremur rýrt
til niðurlags, en þungt á fóðrum.
Sumarveðrið i stuttu máli svona:
Kalt og gróðurlaust nær til Jóns-
messu; júlí ágætur, ágúst svalur
en þur. September umhleypinga-
sauiur og ókyr; október scm illur
vetur.
Þannig víðast um Vestfirði.
Þarf mikla atorku til að geta
bjargast við svona stutt sumar. .
Bæj arstj ömarf undur
var haldinn i gærkvöldi kl. 7.
Þar var ýmislegt til gamans,
Guðm. Bérgsson, hinn nýkjörni
fulltrúi þeirra vinstrimanna færði
fyrst fólkinu þakkir, fyrir þávirð-
ingu og það traust, sem það hefði
sýnt sér með því að kjósa sig í
bilnum á dögunum.
Kvaðst hann vilja gjöra allt gott,
en líklegast gæti hann ekkert, því
hann væri í svo miklum minni
hluta.
Helsta mál á dagskrá var tillaga
bjargráðanefndar um að leita 100
þúsund kr. láns hjá landsstjórninni
til atvinnubóta.
Þvi vildi hann láta fresta, þang-
að til seinna, en þá frétti hann, að
til væru lög um almenna hjálp
vegna dýrtíðarinnar og gjörðu þau
ráð fyrir að veita skyldi úr lands-
sjóði lán með góðum kjörum til að
afstýra neyð og hallæri.
Stakk hann þá upp á að biðja
um þriðjungi meira og það sem
allra fyrst. —
VERSLUN
Andreu Filippusdóttnr
fékk með síðustu skipum eftir-
taldar vörur:
Tvíbreið lakaléreft, haldgóð og
ódýr. — Léreft, fleiri sortir. —
Lasting, svartan og mislitan. —
Flunnel, hvit og mislit. — Svart
k 1 æ ð i, afargott. — Golftreyur,
ómissandi í vetrarkuldanum. —
Dömudragtir. — Lifstykki, alveg
ný sort. — Karlmannanærföt, fleiri
sortir. — Manchettskyrtur, allar
stærðir mjög ódýrar. — Flibbar.
— Vetrarhúfur, ómissandi í kuld-
anum. Regnkápur, mikið úrval.
— Krakka nærklukkur. — Mynda-
rammar. — Hnifapör o. m. fl.
.. Skoðið varninginn og þá
munuð þér sannfærast um gæði
hans.
Vitlaust þótti honum að vera
nokkuð að reyna að fá i eldinn,
betra að kaupa kol á 50 kr. skp.
Guðm. Hannesson gaf honum
hýrt auga, en Jón Auðunn gretti
sig! __________
Nýlunda.
Óvenju litið hefur komið til bæj-
arins af slátursfé og kjöti nú i haust.
Bæjarmenn munu með ánægju
hafa borgað 50—60 aura fyrir sæmi-
legt kjöt.
Ekki hafa bæDdur látið sér það
lika inn í Djúpinu, heldur, að sögn,
lagt kjötið inn hjá Ásgeirsverslun
á Arngerðareyri „upp á kannske“.
Þetta hefir þann kost fyrir bæj-
armenn, og aðra, sem stundum
leggja vöru sína eða vinnu inn
bjákaupmönnum óverðsetta, aðþeir
geta hér eftir sagt: Svona hafa
þeir það inn í Djúpinu.
Takist bændum og sjómönnum
að blóta sama goðið, fær það ein-
hverntíma laglega í soðið.